Vísir - 02.06.1942, Page 3
VISIR
' ■/* • ■ ■ 1
Það þarf að endur-
bæta
Viötal við aflakong Keflvíkinga
Guðmund Kr. Guðmundsson.
TF ERTÍÐIN, sem nú er á enda fyrir skemmstu,
* hefir víðast verið í rýrara lagi, m. a. hér við
Faxaflóa. Gæftaleysi var mikið fyrri hluta vertíðar-
innar, svo að í Keflavík nam t. d. meðalróðrafjöldi 62
róðrum. Hæsti bátur þar var Jón Guðmundsson — for-
maður Guðmundur Kr. Guðmundsson — er hafði 1035
skpd. í 82 róðrum.
Guðmundur Kr. Guðmunds-
son er maður á bezta aldri,
fæddur í Iveflavík 14. janúar
1897, meðalmaður á hæð, kvik-
ur í hreyfingum og ákveðinn
i allri framkomu. Hefir hann
stundað sjómennslcu yfir 30 ár,
og fengizt við flestar veiðiað-
ferðir, sem þekktar eru hér á
landi, og jafnan þótt með dug-
legustu mönnum, bæði sem
undir- og yfirmaður.
Vísir hefir falið fréttaritara
sínum í Keflavík að hafa tal
af aflakonginum, og fer sam-
talið hér á eftir.
Eg hitti Guðmund á heimili
hans við Vesturgötu í Keflavík,
og eftir að við höfðum rabbað
saman um vertíðina og ástand-
ið almennt, tókst mér að læða
iun nokkrum spurningum um
hann sjálfan og starf hans.
JHvenær fórstu fyrst til
sjós?“
„Eg var 13 ára, þegar eg fór
fyrst á togara sem hjálparkokk-
ur, og eftir 13 mánaða veru
við það starf komst eg á dekk.
Síðan var eg á togurum þar til
þeir voru seldir, í bjTjun fyrra
stríðsins, en þá fór eg á vél-
bátaflotann — isfirzku bátana
— og var þar í 8 ár með mörg-
um frægum afla- óg ágætis-
mönnum, svo sem Guðmundi
Þorláki, Guðmundi Júní og
Magnúsi Vagnssyni. Sjómanna-
skólanámi mínu lauk eg á ísa-
firði,.en af Guðmundi Þorláki
tel eg mig mest hafa lært af
því sem viðkemur verklegri
sjómennsku. Eg fór svo aflur
á togara um 1922 og var þar
nokkurn tíma.“
„Hvenær byrjaðir' þú sem
skipstjóri á vélhátum?“
„Það var 1929, sem eg byrj-
aði sem formaður á m.b. Gull-
fossi frá Keflavík, og í þessi
13 ár, sem eg er búinn að vera
formaður, liefi eg verið með
6 báta, bæði fyrir sjálfan mig
og aðra, og oftast gengið nokk-
uð vel.“
„Hefirðu ekki oft áður ver-
ið aflahæstur?“
„Það man eg ekki, — nema
eg liafi verið hæstur aflaleysis-
árið. Þá var eg með Stakk.“
„Hvað álítur þú vera frum-
skilyrði þess, að fá mikinn
afla ?“
„Góðan mannskap, bæði á
landi og sjó, góða beitu og góð-
an bát. Góður frágangur á lín-
unni í landi er að mínu áliti
mjög mikið skilyrði.“'
„Hefirðu ekki oft komizt í
hann krappan á sjónuin öll
þessi ár?“
„Stundum og stundum ekki,
— en það er bezt að vera ekk-
ert að tala um það. Það er oft
gott og gaman að vera á sjón-
um, svo það er ekki' nema eðli-
legt, að það sé öðru hvoru erf-
iðleikum bundið."
„Álítur þú, að fiskirí með
línu eigi ennþá framtíð fyrir
höndum?“
„Já, með svipuðum staðhátt-
um og nú eru. Fiskurinn hef-
ir talsvert annað háttalag nú
en áður, mér virðist hann halda
sig dýpra, en áður kom hann
venjulega að sunnan eða norð-
an grunnt með landinu.“
„Hvað finnst þér skemmti-
legasti veiðiskapurin ?“
„Eg held, að línufiskiri sé
skemmtilegast í góðum afla,
en liin slæmu hafnarskilyrði
hér á Suðurnesjum draga mjög
úr ánægjunni, því að stundum
er það kvíðaefni að koma að
landi með fullan bát, jafnvel
þó í sæmilegu veðri sé.“
„Hvernig álítur þú, að ör-
yggismálum sjómanna sé nú
komið?“ *
„Eg álít talstöðina, þótt ó-
fullkomin sé, bezta tækið, sem
við höfum fengið í öryggismál-
um okkar. Talstöðin hefir oft
bjargað mönnum, bátum og
veiðarfærum. En það væri gott,
ef við gætum losnað við raf-
hlöðurnar og fengið nýjustu
gerðina af talstöðvum, — með
geymum, sem hægt er að hlaða
um borð í bátunum. Þessar
„batteríisstöðvar“ eru altaf
hálf kraftlausar, og ef til vill
ónothæfar, }>egai' mest þarf á
að halda. — Okkur sjómönn-
unum væri mjög kærkomið að
fá talstöðvarnar bættar.“
„Er það nokkuð sérstakt, sem
þú vil-dir segja um vertiðina,
sem er liðin?“
„Já, okkur vantar höfn, —■
stórfelldar hafnarbætur á Suð-
urnesjum eru lifsnauðsyn. —
Skilaðu því til þeirra, sem völd-
in hafa.“
Valur vann Vísis-gripinn.
Nigraði Víking’ með 1:0.
Fram-K. R. 1:0.
Tveir aðrir bátar frá Kefla-
vik fengu yfir 1000 skippund.
Guðfinnur fékk 1018 skpd. i
81 róðri og Ólafur Magnússon
1015 skpd. i 75 róðrum.
Mestur hluti aflans var seld-
ur nýr í skip til útflutnings, eða
til flökunar og i íshús. Dálílið
var saltað af flestum bátunum
og var enginn saltskortur,
vegna þess hve þörf var lítil
fyrir það.
Gizkað er á að hæsti hlutur
verði um 8000 kr.
Revýan
,,Nú er það svart, maður,“ verð-
ur sýnd í kvöld kl 8. Aðgöngu-
miðar seidir í dag eftir kl. 2.
Stúdentar!
Styrkið Nýja Stúdentagarðinn!
Jarðarför
Jóns Hinriks Benediktssonar fór
fram í gærdag, að viðstöddu miklu
fjölmenni. Síra Sigurbjörn Einars-
son talaði í kirkjunni og flutti einn-
ig bæn í heimahúsum. Skólabræð-
ur og félagar hins látna báru kist-
una úr og í kirkju. Lauk athöfn-
inni í kirkjunni með því, að sung-
inn var íslenzki þjóðsöngurinn.
Jarðað var í Fossvogi.
Úrslitaleikir afmælismóts í.
S. í. fóru frani á Iþróttavellin-
um i gærkveldi. Fyrst kepptu
Fram og K.R. og lauk með sigri
Fram: 1:0. Karl Torfason setti
markið.
Aðalúrslitaleikurinn var á
milli Vals og Víkings og lauk
á þann hátt, að Valur sigraði
og vann þar með mótið og Vís-
is-bikarinn.
I fyrri hálfleik léku Víkingar
undan vindi og stóð þá jafnt á
með félögunum, en í seinni
hálfleik sýndu Valsmenn mikla
yfirburði og voru Vikingar
lieppnir að fá eklci fleiri mörk
á sig. Eiga Vikingar helzt
Brandi Brynjólfssyni, Berentz
og vinstri bakverði sínum það
að þakka, að ekki fór ver en
raun bar vitni um.
Strax er seinni hálfleikur
byrjaði, skoraði Ellert Sölvason
mjög fallegt mark. í þessum
hálfleik hallaði mjög á Víkinga
og öllum upphlaupum þeirra
var hrundið af hinni sterku
vörn Valsmanna. Stóð sig þar
bezt Sigurður ,Ólafsson.
Léikur þessi var all fjörugur,
en samt virtust Víkingar mjög
seinir til og hikandi. Hjá Val
var öruggur leikur og meiri
samleikur. Veður var hið ákjós-
anlegasta. Áhorfendur um 2500.
Dónxari var Þráinn Sigurðsson
og dæmdi liann vel að vanda.
— Stigin eru þannig, að Valut’
, hefir 6 stig og vann mótið
j glæsilega, Víkingur 3 stig, Fram
| 2 stig og K. R. 1 stig .
E.
Sl iilliii
«k
óskast í skóverzlun hálfan daginn. Umsóknir sendist
V>]i, merkt: „Skóverzlun“ fyrir 6. þ. m.
Matsvein og nokkra
báseta
vantar á reknetabát frá Akranesi. — Uppl. gefur
STEFÁN A. PÁLSSON.
Varðarhúsinu.
Sími: 3244.
SIGLINCÍAR
milli Bretlands og íslands halda -áfram,
eins og að undanfömu. Höfum 3—4
skip í förum. Tilkynningar um vöm-
sendingar sendist
C iiIIiioe d & Clark tiS
BRADLEYS CHAMBERS,
LONDON STREET, FLEETWOOD.
Leskjað kalk.
JvpnHBiMN
iVokkrar §túlknr
óskast í
Dósaverksmiðjrana b.f.
Uppl. á skrifstofunni
Terkamenn
ó§ka§t
til lengri tíma
$.f. Ntál§miðjan
Raflagnir
Getum tekið að okkur raflagnir i nokkrar nýbyggingar. —
Önnumst einnig viðgerðir á eldri lögnum og allskonar raftækj-
um.-----
P-4
HAFTÆKJAVERZLLN «. VINNtSTOFA
LAUCAVEO 46 SÍMI 6858
UtanrfkisráOnneytið
*■ "* .*-■ ‘ ^ •VV'-
vill ráða stúlku vana vélritun og hraðritun. Krafizt er kunn-
áttu í erlendum tungumálum, einkum enzku.
t
* *’ "
Nánari upplýsingar hjá skrifstofustjóra ráðuneytisins.
1 DAG TEKNIR UPP
§nmarkjólar
í miklu úrvali. — Mikið af stórum númerum.
Sanmastofa
Guðrúnar Hrngrímsdóttur
Bankaslræti 11.
vc„
Sími 2943
Btiikiikingi!
Ennþá höfum við vörurnar, sem yður vantar mest. Við liöf-
um nú tekið upp klæðskerasaumuð karlmannaföt, enskar dragt-
ir og kápur. Ennfremur enska model-kjóla, sumarfalnað. ryk-
frakká o. fl.-
/ _ .
Gleymið ekki ódýra skófatnaðinum meðan úrvalið er nóg.
Komið.
Skoðið.
Kaupiðw
Wmd§or*91ag:a§in
Vesturgötu 2.
■>
Maðurinn minn,
Ófeigur Ófeigsson
andaðist aðfaranólt sunnudagsins 31. maí.
Jóhanna G. Frímannsdóttir.
Elsltulegi faðir okkar og afi,
Þopsteinn Jónsson
andaðist á Elli- og hjúkrunarheimilinu Grund 31. maí.
María Þorsteinsdóttir, Vonarstræti 8, dætur og dætrabörn.
Innilegt þakklæti fyrir samúð og vináttu við andlát og
jarðarför
Gudra. S. Guðmundssonap forstjópa.
Fyrir mína hönd, barna minna og foreldra.
Lára Jóhannesdóttir.