Vísir - 05.06.1942, Side 1
Ritstjóri:
Kristján Guðiaugsson
Skrifstofur:
Félagsprentsmiðjan (3. hæð).
32. ár.
Ritstjórl | 1
Blaðamenn Slmji
Auglýsingar 1660
Gjaldkeri Afgreiðsla J 5 línur
m * m
103. tbl.
Japanskt orustuskip og
flugvélaskip laskast í árás
á Midway-ey á Kyrrahafi.
EINKASKEYTI frá United Press. London í morgun.
Ifregn frá Washington segir, að Japanir hafi gert
árás á Miðway-eyju, sem er milli Sandyíkureyja
og Japan. I fyrstu fregn var að eins sagt frá
árás flugvéla á þetta ramgera, litla eyvirki, og komu
þá fram getgátur um, að þarna hefðu verið á ferðinni
flugvélar frá flugvélaskipi, en þessi loftárás kom í
kjölfar tveggja árása á Dutch Harbor á Aleutineyjum,
suðvestur af Alaska, sem fyrr var getið.
Bn í síðari tilkynningu frá Washington er nánara frá árás-
um þessum sagt og m.a., að japönsk flotadeild sé undan Mid-
way-ey, og sé hér því um sameiginlega árás hérskipa og flugvéla
að ræða, og líkur benda til, að Japanar ætli að frelsta þess aðsetja
þarna lið á land. Er aðstaða Japana öll ótryggari, af því að
eyjan er á valdi Bandaríkjamanna.
. t<w«-rr»í.7'nnr-
Hversu þessari árás Japana
reiðir af, verður ekki um sagt
erin sem komið er, en fullyrða
má, að Bandaríkjamenn hafi
iekið hraustlega á móti, ekki
siður en áður, er Japanir hafa
gert tilraunir til þess að brjóta
mótspjTnuna þar á bak aftur.
Margar flugvélar Japana
hafa þegar verið skotnar nið-
ur eða laskaðar, og japanskt
orustuskip og flugvélaskip hafa
laskast, og sennilega eitt all-
stórt herskip til.
Eftir þessari fregn að dæma
er það allöflug flotadeild, sem
Japanir hafa sent til þess að
hertaka eyna.
Þetta er 6. árásin á Midway-
ey og var hin síðasta gerð 10.
marz. Þetta er langsamlega
mesta árásin, sem Japanar
nokkuru sinni hafa gert á eyna,
sem er 1194 mílur frá Pearl
Harbour á Sandvíkureyjum.
Hitler i
FinnlandL
Hitler flaug til Finnlands i
gær í afmælisheimsókn til
Mannerheims, marskálks. Með
Hitler fóru von Keitel yfirhers-
höfðingi, Otto Dietrich úr út-
hreiðslumálaráðuneyti dr. Göbb-
els og fulltrúi von Rihbentrops
utanríkisráðherra.
Ryti rikisforseti og Manner-
heim marskálkur o. fl. ræddu
við Hitler. Líklegt er, að fleiri
„óskir“ hafi verið fram bornar
en afmælisóskir.
HITLER ÓTTAST
BANATILRÆÐI.
Sjö japönskum
kafbátum sökkt.
I tilkynningu frá aðalbæki-
stöð MacArthurs í Ástralíu seg-
ir, að hollenzkar og ástralskar
flugvélar hafi sökkt tveimur eða.
þremur japönskum kafbátum
við austurströnd Ástralíu og að
meðtöldum þeim, sem .Tapanii’
mistsu í árásinni á Sidney, hefir
verið sökkt fyrir þeim á skömm-
um tima sjö kafbátum.
#
Japönsk kafbátaárás
á Diego Suarez.
Japanir liafa einnig, að þvi er
nú er orðið kunnugt, gert árás
með dverg-kafbátum á Diego
Suarez, flotastöðina, sem Brel-
ar tóku af Vicliy-Frökkum.
Birtu Japanir aukatilkynningu
um árósipa og þóttust hafa laslc-
að orusiuskip af Queen Elisa-
beth gerð og herskip af sömu
stærð og gerð og beitiskipið
Arethusa. —• Brezka flotamála-
ráðuneytið tilkynnir, að þ. 30.
maí hafi sérstaklega útbúnir
japanskir kafbátar gert tilraun
til árása á brezk herskip á Diego
Stiarez-vikinni, en árásin hafi
algérlega mistekizt og ekkert
brezkt herskip laskazt.
Louis P. Lochner, sem um
langt skeið var fréttaritari Uni-
ted Press í Berlín, birti fregn
i dag, þar sem hann segir, að
Hitler óttist banatilræði af
hálfu herforingja sinna. Jafn-
vel marskálkar og aðrir liinna
æðstu foringja, verða að skilja
eftir skammbyssur sínar og
skotfærabelti, þegar þeir ganga
fyrir Hitler.
Lochner hefir einnig skýrt
frá því, að skömmu óður en
Þjóðvei’jar réðust inn í Pól-
Iand, liafi Hitler ávarpað hers-
liöfðingja sina. Þá sagði hann,
að heyja yrði algera styrjöld
og ekki hlifa neinum, hvorki
konum né börnum. Mér stend-
ur á sama hvaða nöfnum eg
er nefndur og þótt mér verði
líkt við Attile, sagði Hitler enn
fremur.
SÆNSIÍUR VÍSINDAMAÐUR
UM STÓRÁRÁSIRNAR
Á ÞÝZKAR BORGIR.
Amerískir blaðamenn hafa
birt fyrstu frásögn sjónarvotts
að’loftáí’ásunum miklu á þýzk-
ar borgir. Sjónarvottur þessi
er kunnur sænskur vísinda-
maður, dr. B. O. Allaner. Hann
Flugvélat’ bandantanna ltafa
gert nýjar árásir á Kupang á
Timor og Rabaul.
•
Tveimur amerískum tundur-
spillum var hleypt af stolckun-
um í gær. — Bandaríkjamenn
ætla að vera búnir að ljúka
smíði tveggja úthafa flotans á 2
árum.
sagði i viðtali við blaðamenn
frá International News Service,
að eyðileggingin hefði verið
miklu meiri en menn hefðu
talið hugsanlegt.
í kjölfar hinna miklu loft-
árá'sa brezka flugliersins láta
menn greipar sópa, þvi að
skorturinn er farinn að segja
til sín i Þýzkalandi, en margir
þeirra, sem fara um ráns liendi,
Þjóðverjar höfðu 16
risaskriðdreka til
varnar í Bir Tamar.
Áframhald er á hörðum bar-
dögum í Libyu. I Bir Tamar,
sem enn er á valdi Breta, liöfðu
Þjóðverjar 16 risa-skriðdreka
tiL varnar, og var stöðin varin
af kappi, en bardögum lauk
með því, að Þjóðverjar urðu
að láta undan siga. Nyrst á *
vigstöðvunum við Gazala og
syðst við Bir Hakeim hefir
Þjóðverjum ekkert orðið á-
gengt, en á miðju varnarsvæði
Breta hefir þeim tekizt að ná
fótfestu og reka fleyg inn í
varnabelti Bandamanna. Er enn
barizt þarna af miklu kappi,
fyrir vestan Knightsbridge
vegamótin. Miklir loftbardagar
liafa verið háðir. Þjóðverjar
beita skriðdrekum í stórum
stil, steypiflugvélum og ítölsku
fóigönguliði við Bir Hakeim,
en ekki orðið ágengt. Sjö
steypiflugvélar voru skotnar
niður í fyrradag á þeim slóð-
um. I Bir Hakeim liafa Frjáls-
ir Frakkar varizt svo vasklega,
að Ritcliie hershöfðingi Banda-
manna í sandauðninni hefir
þakkað þeim með þeirn um-
inælum, að þeir hafi verið öðr-
um bandamönnum til skinandi
fyrirmyndar. Sumir þessara
Frakka liafa barizt í Riffland-
inu í Marokkó.
Úrslit eru enn ekki fyrirsjá-
anleg í bardögunum í Libyu.
feinn af liermálasérfræðing-
Um Breta sagði í gær, að likur
Væru til, að Ronnnel hafi ætl-
að sækja fram til Suez i þrem-
ur áföngum, þ. e. taka Tobruk
fyrst, sækja því næst fram að
landamæruni Egiptalands, og í
þriðja áfanganum allt til Suez.
Þessi áform væri nátengd öðr-
um áformum Hitlers. En Rom-
mel hefir ekki enn náð fyrsta
markinu, sem átti að ná á 4
dögum.
Hitler hefir fvrirskipað liér-
aðsstjóra nazista i Kölnarhéraði,
að senda skýrslu um loftárásina
miklu á Köln aðfaranótt sunnu-
dags.
Á austurvigstöðvuniim er nú
barizt mikið í nánd við Rzhev og
munu Rússat’ nú hafa umkringt
])á borg alveg.
Brezku víkingasveitirnar voru
eina klukkustund í Frakklandi,
eftir að þær liöfðu verið settar
á land þar kl. 3 í fyrrinótt. Þær
náðu fótfestu í fjörunni tiltölu-
lega skammt frá Boulogne, áður
en Þjóðverjar hófu skothríð
sina.
eru þegar teknir og skotnir.
Dr. Allaner minntist á árás-
ina á Rostock við Eystrasalt.
Alll Heinkel-verksmiðjusvæðið
er í rúst, sagði liann. Við langar
götur var ekki hús uppi stand-
andi, sem hægt er að búa í. Að-
aljárnbrautarstöðin, símastöð-
in og aðrir hernaðarlega mik-
ilvægir staðir eru í rústum.
FRETTIR
í STUTTU MÁLI.
I maí sökktu Rússar í norður-
höfum fyrir Þjóðverjum:
12 flutningaskipum.
7 olíuflutningaskipum.
3 tundurspillum.
2 varðskipum.
•
Að undanförnu hefir dregið
úr loftárásum á Möltu. Engin
árás var gerð á eyna í fyrrinótt,
en í gær komu orustuflugvélar
í skyndiárásarferð.
•
Haclia, forseti Tékkiu, hefir
sent Hitler samúðarskeyti í til-
efni af fráfalli Heyderich. I
skeytinu lætur hann i ljós von
um, að Bretar bíði ósigur i
styrjöldinni.
. Nokkurra þýzkra flugvéla
varð vart yfir norðurströnd
Bretlands í nótt. Nokkurum
sprengjum var varpað. Einn
maður beið bana, en nokkurir
særðust.
•
Brezkir varðmenn hafa skotið
til bana 2 japanska sjóliðsfor-
ingja á Madagascar. Sjóliðsfor-
ingjarnir voru' dulbúnir og
veittu vopnaða mótspyrnu er
átti að handtaka þá.
•
Vegna árásarinnar á Heyde-
rich hafa nú alls verið teknir
af lífi i Tékkóslóvaltíu 181 mað-
ur og voru í þessurn hóp 32 kon-
ur á aldrinum 22—74 ára.
•
Franslcir jafnaðarmenn hafa
útbýtt leyniriti í París, þar sem
heitið er stuðningi við De
Gaulle.
•
Sprenging varð nýlega i Ren-
nes á skrifstofu, þar sem safnað
var sjálfboðaliðum til þess að
berjast í Rússlandi.
•
Franskir frelsisvinir hafa
sprengt í loft upp skotfæra-
birgðir Þjóðverja í Hazebruck.
- • .
Mikil og vaxandi andúð er
gegn Hitler í Ruhr og er útbýtt
leyniritum, þar sem þess er
krafizt, að friður verði saminn
og Hitler steypt af stóli.
•
Bretar héldu áfram skyndi-
árásarleiðöngrum sínum til
Frakklands og hernumdu land-
anna i gær og voru alls farnar
fjórar ferðir og varpað sprengj-
um á flugstöðvar, orkuver,
járnbrautarstöðvar o. s. frv.
Nokkur mótspyrna var veitt í
sumum ferðunum. Þrjár brezk-
ar flugvélar komu ekki aftur til
bækistöðva sinna.
Japanar hafa gert tvær loft-
árásir — sennilega flugvélar frá
flugvélastöðvarskipi — á flota-
og flugstöð Bandaríkjanna í
Dutch Harbour, sem liggja til
suðvesturs frá Alaska. Banda-
ríkjamenn hafa unnið að víg-
girðingu hafnarinnar í nærfellt
10 ár.— I fyrri árásinni varð lít-
; ið sem ckkert tjón, en fregnir ó-
j komnar um ])á síðari.
Fulltrúadeild þjóðþingsins í
Washingfon hefir einrónia fall-
izt á tillögu Roosevelts um að
Bandaríkin segi Rúmeniu, Búlg-
aríu og Ungverjalandi strið á
hendur.
Framboö við alþingis-
kosningarnar.
Kunnugt er um eftirtöld framboð Sjálfstæðisflokksins, Alþýðu-
flokksins og Sósíalistaflokksins.
Sjálfstæðisflokkurinn hefir
þegar ákveðið framboð í öllum
kjördæmum landsins, nema
tveimur (Mýrasýslu og N.-Múla-
sýslu).
Þessi framboð flokksins hafa
verið ákveðin utan Réykjavíkur
Skotárásin á
Skerjafirði.
Tilkynning frá ameríska
sendiráðinu.
Amerikanska sendiráðið til-
kynnir, að hernaðaryfirvöldin
hafi strax hafið framkvæmdir i
málinu út af skotunum, sem
urðu á Skerjafirði i gær.
Nokkrar handtökur liafa átí
sér stað, til að komast að hverjir
það hafi verið, sem voru valdir
að atvikinu. Ameríkanski sendi-
lierrann sagðist samgléðjast öll-
um íslendingum að enginn hefði
meiðst, segist hann vera viss um,
að vegna þess, hve áhrifamiklar
og skjótar ráðstafanir hernaðar-
yfirvöldin hafi gert, munu þær
koma í veg fyrir slík vandræða-
slys í framtíðinni.
Ameríkanski sendilierrann
sagði, að tilgangur ameríska
námsins sé tvöfaldur, að verja
ísland og sjá um að enginn sak-
laus þurfi að ljða við fram-
kvæmd hernámsins. Ef lil vill
verður ráðist á oss, áður en við
vitum af, af óvini, sem er mátt-
ugur, miskurinarlaus og einnig
mjög duglegur. Þéssvegna eru
svo mörg hernaðarlega mikil-
væg svæði, og þessvegna er
þeirra gætt með hlöðnum bvss-
um, og þessvegna liætta land-
og sjóflugmenn lífi sinu daglega
hér, og stundum verður það
þeim að bana. Ameríski herinn,
sagði hann, er viðbúinn, og ef
á Iionum þarf að halda, er liann
ákveðinn að sýna sig starfi sínu
vaxinn, fyrir land sitt og ísland
einnig. En að vera viss um að
liann sé alltaf viðbúinn á öllum
timum, og að hver einstakur
skynsamur, hygginn og gætinn
maður sé það, er vandamál. Það
er vandamál, sem herstjórnin
vinnur að dag og nótt, vegna ís-
lendinganna og annara borgara,
sem verða að búa við byssur og
byssustingi. Mistök verða ekki
þoluð, og allt mun verða gert til
að afstýra þeim. Líf íslendinga
og Amerikana eru alveg jafn
kær yfirvöldunum, sem vinna
að því, að verja bæði löndin.
Að síðustu sagði sendiherrann
að hann þakkaði íslenzkum
blaðamönnum fyrir það, með
hve miklum skilningi athuga-
semdir þeirra hefði verið, þeg-
ar litli drengurinn Jón Hinrik
Benediktsson liefði verið skot-
inn. Þið hafið gagnrýnt okkur,
sagði hann, en það hefir verið
sanngjarnt, og þið hafið ekki
efast um góðan vilja okkar. Með
því liafið þið gert ykkur sjálf-
um og landi vkkar sóma, og
hafið látið okkur verða ennþá
ákveðnari, en það er hægt, að
uppræta þá galla, sem geta ver-
ið á stjórnarfari okkar, og að
' samvinnan við ísland nálgist
meira þá luigsjón, sem okkur
liefir dreymt um,
og Hafnarfjarðar:
Gullbringu- og Kjósarsýsla:
Qlafur Thors forsætisráðherra.
Borgarfjarðarsýsla: Pétur
Ottesen alþm., Ytra-Hólmi.
Snæfellsnessýsla: Gunnar
Thoroddsen, pi-ófessor.
Dalasýsla: Þorsteinn Þor-
steinsson, sýslumaður.
Barðastrandasýsla: Gísli Jóns-
son forstjóri, Rvík.
Vestur-ísafjarðarsýsla: Bárð-
ur Jakobsson, cand. jur.
Isafjörðúr: Dr. Björn Björns-
son hagfræðingur, Rvik.
N or ður-ísafjarðarsýsla: Sig-
urður Bjarnason cand. jur. frá
Vigur.
Strandasýsla: Pétúr Guð-
mundsson oddviti, Ófeigsfirði.
Vestur-Húnavatnssýsla: Guð-
brandur Isberg, sýslumaður.
Austur-Húnavatnssýsla: Jón
Pálmason alþm., Akri.
Skagafjarðarsýsla: Jóhann
Hafstein cand. jur., Rvík, Pétur
Hannesson, sparisjóðsform.,
Sauðárkróki.
Akureyri: Sigurður E. Hliðar,
dýralæknir.
Eyjafjarðarsýsla: Garðar
Þorsteinsson alþm., Rvik, Stef-
án Stefánsson alþm., Fagra-
skógi.
Suður-Þingeyjarsýsla: Júlíus
Ilafstein, sýslumaður.
Norður-Þingeyjarsýsla: Bene-
dikt Gíslason, bóndi, Hofteigi.
, Seyðisfjörður: Lárus Jóhann-
esson, hrm., Rvik.
Suður-Múlasýsla: Árni Jóns-
sori alþm. frá Múla, Jón Sigfús-
son, bæjarstjóri, Neskaupstað.
Aústur-Skaftafellssýsla: Helgi
H. Eiríksson skólastjóri, Rvík.
Vestur-Skaptafellsýsla: Gisli
Sveinsson sýslumaður.
Rangárvallasýsla: Ingólfur
Jónsson kaupfélagsstjóri, Hellu,
Sigurjón Sigurðsson, bóndi,
Raftholti.
Árnessýsla: Eiríkur Einars-
sön, bankafulltrúi, Rvik, Sig-
urðUr .Ölafsson kaupm. Selfossi.
Vestmannaeyjar: Jóhann Þ.
Jósefsson álþm.
, Alþýðublaðið birti i morgun
framboð Alþýðuflokksins hér í
Rvík, er hafði verið ákveðið á
miðstjórnarfundi flokksins í
gær. Listinn er skipaður sem hér
segir:
Stefán Jóliann Stefánsson,
forseti Alþýðuflokksins, Sigur-
jón Á. Ólafsson, forseti Alþýðu-
sambandsins, Jón Blöndal, hag-
fræðingur, Guðmundur R.
Oddsson, forstjóri, Jóhanna Eg-
ilsdóttir, form. Verkakvennaféi.
Framsókn, Nikulás Friðriksson,
umsjónarnraður, Jón Axel Pét-
ursson, formaður. Stýrimanna-
fél. íslands, Runólfur Pétursson,
iðnaðarmaður, Tómas Vigfús-
son, form. Trésmiðafél. Rvílcur,
Sigurður. . Ólafsson, gjaldkeri
Sjómanpafélagsins, , , Guðgeir
Jónsson, form. Bókbindarafél.
Reykjavikur, Ágúst Jósefsson,
heilbrigðisf ulltrúi.
Þjóðviljinn hefir siðustu dag-
ana tilkynnt framboð Sðsíal-
istaflokksins í eftirtöldum
kjördæmum: I Vestur-Húna-
vatnssýslu: Elísabet Eirilcsdótt-
ir; Austur-Húnavatnssýslu:
Klemens Þorleifsson, Dalasýslu,
Jóhannes úr Kötlum, og i Suð-
ur-Þingeyjarsýslu: Kristinn
Andrésson.