Vísir - 09.06.1942, Page 3
VlSIR
Síðasti endurnýj unardagur í dag.
Happdrættið.
Stmi 2339.
Þar liggur kjörskrá frammi, athugid hvort þér eruð á kjörskrá.
Kærufrestur er útrunninn 13. júní.
X/átið skrifstofuna vita um þad fólk, sem er farið burt úr bænum
Sími 233$.
Njötu^ur:
»Ég hefi skírt næstum 3 þúsund börn,
fermt um 2 þúsund og gefið saman um
þúsund hjóntf Viðtal við síra Friðrik Hallgrímsson,
1 dag er einn af kunnustu og
mætustu mönnum þessa bæjar-
félags sjötugur. Það er síra Frið"-
rik Hallgrímsson dómprófastur.
Hann er fæddur í Reykjavík
þann 9. júní árið 1872. Tók guð-
fræðipróf árið 1897 og var vígð-
ur að Holdsveikraspítalanum að
Laugamesi árið 1898. Hann var
aðeins eitt ár á Laugamesspítala
og stundaði barnakennslu í
Rvík jafnframt prestsstarfinu.
Var hann síðan prestur í Út-
skálaprestakalli árið 1899—
1903, en þá fluttist hann búferl-
um til Ameríku og dvaldi í bæn-
um Baldur í Arííyle-byggð, Það=
an kom hann aftui* til íslands |
árið 1925 ög tók við prestem-
bætti í Réykjavík. Var hann pró-
fastur í Kjalarnesprófastsdæmi
1938—’40, er hann var settur
dómprófastur og síðan kosinn í
það embætti 1941. Bíra Friðrik
hefir samið og fært í búning
margar bækur. I dag kemur út
sjöunda barnabókin hans, sem
heitir „G uðvin góð i“. Auk I
bamabókanna hefir síra Frið-
rik samið f jórar aðrar bækur, I
sem em „Kristin fræði“, „Písl-
arsagan“, „Kristur og mennim-
ir“ og eina barnabók, sem er á
dönsku. .
Sira Friðrik er giftur Bentínu
dóttir Bjöms bónda Gíslasonar í
Búlandsnesi, hins merkasta bú-
manns og bókamanns, er lengi
hélt veðurskýrslu hér fyrir Veð-
urstofuna í Kaupmannahöfn.
Hafa þau hjón eignast fimm
böra, sem eru: Ellen Marie,
Þóra Miller, Hallgrímur for-
stjóri Shell á ísl., Ágústa og
Esther, sem giftist í kvöld dr.
Cyril Jackson sendikennara.
★
Fréttaritari Vísis hafði tal af
síra Friðrik í gærdag og bað
hann að svara nokkurum spum-
ingum í tilefni afmælis hans í
dag. Varð hann vel við þessari
málaleitan vorri og fer hér á eft-
ir stutt viðtal við hann:
—• Hvað um æfi yðar?
— Æfi mín hefir verið lítið
viðburðarík. Eg hefi nuddað við
mift verk — prestskapinn —- í
43 ár og haft mesta yndi af því
starfi og aldrei óskað mér neins
annars starfs. Eg hefi ávallt átt
samvinnu við ágætis menn, bæði
vestan hafs og hér heima.
— Yður likar starfið svona
vel?
— Já. Eg tel prestsstarfið veg-
legast allra starfa, vegna þess,
að sá boðskapur, sem prestur-
inn flytur, er sá, sem öllum
mönnum er mest nauðsyn á að
gera sér glögga grein fyrir. Aft-
ur á móti á sá óhki blær, sem
trúarlífið fær hjá einstaklingun-
um að miklu Ieyti rót sína í
lundarfari hvers eins. Sumir
menn tala mikið um trú sína,
aðrir aftur á móti eru fámálug-
ir um hana. Sumir eru strangir
og nákvæmir í trúarsettning-
Uhii eo aðrif láta sér
hægja stórar og breiðar línur,
Enn eru einir, sem heimta, að
allir geri sér éins gi'eih fyrir
trúarsannindunum, en aðrir
telja það mestu varða, að mað-
urinn elski Guð sinn og liafi
ríka löngun til jiess að þóknast
honum. En þennan inismun
verða kristnir menn að læra að
umhera hver hjá öðrum.
| — Hvað segið þér um presta-
fjölgunina i Reykjavík?
j — Eg hefi alltaf viljað, að
prestum yrði fjölgað í Reykja-.
vík, á þann hátt, að hver þeirra
fengi sitt ákveðna starfsvið.
j — Þér hafið kynnst mörgum
um dagana?
— Já. Það eru eðlilegar afleið-
inðar prestSstarfsins, hvað mað-
ur kynnist mörgum. Það hefir
■; valdið mér hvað mestri gleði,
hve ég hefi notið mikillar vin-
áttu margra, góðra manna. En
mestrar ánægju hefi eg samt
notið í sambúðinni við mína á-
gætu konu, sem hefir verið mér
ómetanleg hjálp í preststarfi
I minu og hömin okkar á heimili
; mínu. Eg hefi alltaf lialdið mik-
ið upp á heimili mitt og lagt
mikla áherzlu á það.
— Þér berið árin vel.
— Eg þakka því, hversu
mikla og góða útivist eg hafði
meðan eg dvaldi í Canada. Eg
lék.tennis og golf á sumrin, en
slundaði skautaíþrótt á veturna.
Þetta var heilnæmt líf og hefir
lialdið mér svona vel við. Eg
stunda ennþá golf og fer út núna
á eftir til þess að iðka þessa á-
gætu íþrótt.
j —Hvar hefir yður liðið bezt?
— Það er erfitt að segja um
það. Staðirnir, sem eg hefi dval-
ið á hafa verið sitt með hvoru
J móti, en eg hefi allsstaðar verið
ánægður, þvi þegar menn
vinna sér geðfellt verk og vel fer
um þá, hafa þeir engan tíma til
þess að láta sér leiðast.
l — Hafið þér ekki unnið mörg
preStverk, frá þvi þér byrjuðuð
prestþjónustu í Reykjavík?
— Jú. Þau eru nú orðin mörg.
Eg hefi stundað prestskap í 43
ár og þar af 17 ár í Reykjavik,
og á þessum 17 árum hefi eg
skýrt næstum 3 þúsund börn,
fermt um 2 þúsund og gefið
saman um 1 þúsund hjón.
— Hafið þér mætur á einu
starfi öðru frekar? \
— Já. Eg vil minnast á það,
að eg hefi haft alveg sérstaka
gleði af þeim verkum, sem eg
hefi unnið fyrir börnin og ungl-
ingana. Eg byrjaði í september
árið 1926 á barnaguðsþjónust-
um og hefi lialdið þvi áfram
fram á þennan dag.
Þá vil eg og geta þess, að eg
geymi innilegar qg hlýjar end-
urminningar frá starfsárum
mínum vestan liafs og hefi á
margan liátt orðið var við vin-
áttu þaðan, síðan yg kom hing-
að lieim aftur.
*
Sira Friðrik Hallgrímsson er
einn á meðal merkustu núlif-
andi Islendinga og er hann með
afbrigðum vinsæll og vellátinn
maður af öllum er til hans
þekkja, en þeir eru fjölda marg-
ir. Sem dæmi um vinsældir
jiessa ágæta manns, íeyfum vér
oss að hirta ummæli þekkts
blaðamanns vestan hafs, G. J.
Olesen. Fer liér á eftir orðréttur
útdráttur úr grein þessari, er
birtist í Almanaki Ólafs S.
Tliorgeirssonar árið 1940:
„Einn hinn glæsilegasti mað-
ur í prestsstöðu meðal Vestur-
íslendinga á fyrsta f jórðungi 20.
aldar, mun síra Friðrik Hall-
grímsson ætíð verða talinn, og
sá maðurinn, sem einna mest
hefir verið harmaður af öllum
þeim Vestur-íslendingum, sem
heim hafa flutt til ættjarðarinn-
ar aftur, eftir lengri eða
skemmri dvöl hér vestra og er
ekki f jarri lagi, að hans sé að
nokkru minnst í riti því, sem
merkilegast má telja á blaða-
og bókmenntasviði Vestur-Is-
lendinga og sem á lofti hefir
haldið minningu svo f jölmargra
ágætismanna í fortíð og samtíð,
því hann er maður, sem ennþá
á sterk ítök í hjörtum fjölda
Vestur-íslendinga, þó fjarvist-
um sé hann nú búinn að vera
nær 15 ár . .. „. .. . Um síra
Friðrik mætti skrifa Iangt mál,
en það ætla eg ekki að gera,
hvorki er eg fær um það og svo
leyfir rúmið það ekki ....“,
segir starfsbróðir vor vestan
hafs og vér neyðumst til þess að
segja það sama.
G. Eiri.
Hvöt.
Sjálfstæðiskvennafélagið Hvöt
hélt fund í gær kl. y2. Sú breyting
hefir or'Sið innan stjórnar félags-
ins, að frú Guðrún Guðlaugsdótt-
ir hefir látiíS af varaformannsstörí-
um, en vi<5 hefir tekið frú Guðrún
Pétursdóttir, móðir Bjarna Bene-
diktssonar borgarstjóra.
Leskjað kalk.
ppnrnNN
*•
Sjúkrasamlag
Reykjavíkur
tilkynnir
Að marggefnu tilefni skal bent á, að sam-
kvæmt 12. gr. samþykkta samlagsins greiðir
það ekki sjúkrakostnað samlagsmanna fyrir
það tímabil, sem hann er í vanskilum, enda
þótt iðgjaldsskuldin verði síðar greidd að
• fullu. Verður því t. d. kostnaður, sem til fell-
ur í JÚNÍ, ekki greiddur, nema iðgjald fyrir
MAÍ hafi verið greitt áður en sjúkrahjálpin
fór fram.
Þéir, sem ætla úr bænum ættu því, áður en
þeir fara, að greiða iðgjöld fyrir þann tíma,
sem þeir ætla að vera í burtu. Þeir, sem fara
til staðar, þar sem sjúkrasamlag starfar, eiga
að snúa sér til samlagsins á staðnum, ef þeir
þurfa á læknishjálp að halda.
Ennþá liöfum við vörurnar, sem yður vantar mest. Við höf-
um nú tekið upp klæðskerasaumuð karlmannaföt, enskar dragt-
ir og kápur. Ennfremur enska model-kjóla, sitmarfatnað, ryk-
frakka o. fl.--
Gleymið ekki ódýra skófatnaðinum meðan úrvalið er nóg.
Komið.
Skoðið.
Kaupið.
H imlNor-IIagasiii
Vesturgötu 2.
\.vjar
síldartunnur
til sölu
Bernh. Peterien
Sími 152®
STIFTASAUMUR
PAPPASAUMUR
BOLTAJÁRN
SKIPASAUMUR („Skipsu)
allar stærðir.
Verzlnn O. ELtMMGSEM kf.
Dóttir mín elskuleg og systir okkar.
Sigríöur Guðrún Valdimarstd.óttir’
andaðist að Vifílsstöðum 8. þ. m.
Magdalena Jósefstlóttir' og börn.
Elsku maðurinn minn, sonur og bróðir okkar,,
Pétur Árnason
Lokastíg 15, andaðist að Landakotsspítala mánudaginn
8. þ. m.
Marianna Elíasdóttir. Guðbjörg Loftsdótth ®g systkíni.
Jarðarför elsku litla drengsins okkar,
Sigurðar
er andaðist 4. juni, er ákveðin frá heimili okkar, Skeggja-
götu 10, fimmludaginn 11. júní klukkan 2% eftir hádegi.
Marta Guðbrandsdóttir. Guðjón Júliusson.
Iljartans þakkir fyrir auðsýnda samúð við andlát q
jarðarför
Björns Bjarnasonar
byggingameistara.
Guð blessi ykkur öll.
Fyrir hönd mina og annara aðstandenda.
Guðbjörg Bergsteinsdóttir.
Hjartanlega þakka eg fyrir mína hönd og dætra minna
ógleymanlega samúð og hluttekningu okkur auðsýnda við
fráfall og jarðarför konunnar minnar elskulegu,
Oddnýjar Guöbrandsdóttur
Stúkunni Leiðarstjarnan í Keflavík er þakkað sérstak-
lega fyrir frábæra samúð.
Keflavík, 8. júní 1942.
Sigurberg Ásbjörnsson og dætur.
Þökkum lijartanlega auðsýnda samúð við andlát og jarð-
arför móður okkar,
Þuriðar Þórarinsdóttur
Fyrir hönd okkar og fjarstaddra systra.
Jakob Guðmundsson. Eggeil. Gilfer.
Þór. Guðmundsson. Guðm. Guðmundsson.