Vísir - 12.06.1942, Page 3
VISIR
Stmi 2339.
Þar liggur Jkjörskrá frammi, athugid hvort þér eruð á kjörskrá.
Kærufrestur er útrunninn 13. júní.
Látiö skrifstofuna vita um það fólk, sem er farid burt úr bænum
Simi 233®.
Nordahl Grieg segir frá:
Styrjöldin hefir sýnt það
bezta, sem með Norðmönn-
um býr---------og það versta
Einn hinna þekktustu Norðmanna, sem nú eru uppi, rithöf-
undurinn Nordahl Grieg, átti tal við blaðamenn drykk-
langa stund í gær. Kom hann hingað í byrjun vikunnar og mun
dvelja hér nokkra hríð. Meðan hann dvelur hér mun hann
ferðast um landið, lesa upp fyrir norska sjómenn og aðra Norð-
menn búsetta hér og ef til vill mun hann lesa upp fyrir íslendinga
Nordahl Grieg hafði verið í
hernum um Iiríð, þegar Þjóð-
verjar gerðu innrásina í landið. ,
Tók liann þátt í bardögum gegn ;
þeim, en vann auk þess að því,
að koma gulli Noregsbanka úr
landi. Var hér um 250 milljónir
að ræða og af því náðu Þjóð-
verjar aðeins í 116 kr. virði!
Nordahl Grieg fór til Bret-
lands á herskipi og nokkuru síð-
ar urðu Norðmenn að liætta
vopnaðri mótspyrnu í landinu
sjálfu. Síðán hafa Norðmenn
flúið þaðan hundruðum sam-
an á allskonar farkosti, jafnvel
á eintrjáningsbátum (kano).
Þeir hafa hvað eftir annað lagt
út á hafið í lélegum fleytum,
sem víkingarnir í fornöld hefði
ekki komið til hugar að nota.
Til Sviþjóðar hafa líka margir
leitað, enda þótt strangar gætur
sé liafðar á landamærunum.
í Noregi hefir það komið i
Ijós, að ýmsir frægir menn eða
afkomendur f rægra manna hafa
gerzt ættlerar. Þannig er t. d.
um Erling Björnson, Knut Ham-
sun o. fl. Skoðanir Hamsuns er
ekki hægt að kenna því, að hann
sé genginn í barndóm. Hann er
sonur skósmiðs Pedersen að
nafni og með þvi að taka sér
nýtt nafn liefir hann ætlað að
segja alveg slcilið við fortíðina,
til þess að ekkert geli varpað
skugga á nafn það, sem hann nú
ber.
Hinsvegar er Sigrid Undset
hið fegursta dæmi nútimans um
móðir sögualdarinnar, sem lét
ekki bugast við missi sonarins,
heldur sór þess dýran eið að
hefna harma sinna.
Flestir blaðamanna hafa ann-
að hvort misst atvinnu sina eða
verið hnepptir i varðhald. Norsk
blöð bera þess merki, að Quisl-
ingar liafa úr litlu að velja, því
að þau eru ótrúlega illa skrifuð.
Þau, eins og svo margt annað
bera þess merki, að stríðið hefir
bæði kallað fram það auðvirði-
legasta í fari þjóðarinnar, og það
göfugasta og hetjulegasta,
sem aðeins lætur á sér bæra í
eldskírn mikilla umbrota.
Quisling sjálfur er gáfaður
maður, hann er afburða mála-
maður og var námsmaður góð-
ur, en hann hefir aldrei hugsað
sjálfstæða liugsun. Hann er
hörmulegur ræðumaður og
þjáist af ofsóknarótta.
Áhangendur hans verða æ
færri og færri, svo að bein stjórn
landsins færist með hverri viku
meira í hendur Þjóðverja, sem
hafa frá öndverðu gefið skipan-
irnar, þótt jieir liafi jafnan liaft
Norðmenn til að framkvæma
þær.
Norsk leiklist liggur niðri, því
að þótt nokkrir leikarar starfi,
þá kemur Norðmönnum ekki til
hugar að horfa á verk góðskálda
sinna, Björnson og Ibsens, með
kúgurum sínum. Þeir vilja ekki
njöta andagiftar þeirra við hlið
fjandmanna sinna.
Starf Nordahls Griegs í þessu
stríði hefir það i för með sér að
hann ferðast meðal norskra sjó-
manna, flugmanna og annarra
hermanna. Hann kann frá
hiörgu að segja um dugnað
þessara manna og afrek þeirra í
þágu bandamanna, þótt eigi sé
hægt að telja það hér.
Að lokum skýrði Nordahl
Grieg frá því, að vænta mætti
kvæðasafns eftir hann með
haustinu og vonandi yrði það
síðasta styrjaldarhaustið.
Dæmdur í 3ja sinn
fyrir þjófnað.
í morgun var kveðinn upp
dómur í aukarétti Reykjavíkur
yfir Andrési nokkrum Eiríks-
syni er gerzt íiafði brotlegur um
þjófnað í þriðja skipti á ævinni.
Hafði hann að þessu sinni stolið
100 krónum í veski og var fyrir
bragðið dæmdur í 4 mánaða
fangelsi og auk þess sviptur
kosningarrétti og kjörgengi til
opinberra starfa og almennra
kosninga.
Málavextir voru þeir, að þann
21. marz s. 1. fór Andrés Eiríks-
son sjómaður um borð í vélbát-
inn „Frekjuna“, og segist liafa
farið þangað með það fyrir aug-
um að fá skiprúm, sem hann þó
kvaðst ekki hafa fengið. ..
Á meðan hann var staddur
um borð i Frekjunni, var hann
einn nokkra stund í hásetaklefa
skipsins og sá þá peningaveski
á borðinu, sem hann stakk á sig
og fór með í land. I veskinu voru
100 krónur i peningum. Daginn
eftir komst þjófnaðurinn upp,
og var Andrés þá ekki búinn að
eyða peningunum.
Fyrir þennan þjófnað hlaut
Andrés 4 mánaða fangelsi og
svipting kosningarréttar og
kjörgengis. Þess her að geta að
Andrés liefir tvisvar áður verið
dæmdur fyrir þjófnað, í fyrra
skiptið 1939, er hann var dæmd-
ur í 60 daga fangelsi skilorðs-
bundið, og í seinna skiptið árið
1941, er liann fékk 6 mánaða
fangelsi óskilorðsbundið.
Góð og ódýr
til sölu. Heimkeyrt.
Fiskkassagerðin.
Sími: 4483.
Vðrabill
til sölu, Ford, model 1931, í
góðu standi. Til sýnis í Shell-
portinu við Lækjargötu kl.
7—9 í kvöld.
>
•<jpwn*,v :JÍ^\
VERZLUNIN
SAMKVÆMIS-
RJÓLAEFNi
NÝKOMIÐ
^íokkra
verkamenn
vantar í vinnu fyrir utan bæinn. Góð aðbúð, bæði fæði
og húsnæði. — Uppl. i síma 5592.
42 itndentar ntikríf'
nðnst í dag.
í dag var Menntakólanum í Reykjavík sagt upp. 42 nýir stúd-
entar útskrifuðust, 27 í máladeild (þar af 2 utanskólanemendur)
og 15 í stærðfræðideild (þar af 2 utanskóla). Hæsta einkunn
hlaut Jón Löve úr stærðfræðideild, I. ágætiseinkunn 9.17
stig. í máladeild fengu tveir nemendur I. ágætiseinkunn, þeir
Vilhjálmur Þorl. Bjarnar 9.12 stig og Guðmundur Ásmundsson
9.00 stig.-
í dag færðu 25 ára stúdentar menntaskólanum Steinway-
píanó að gjöf, 6 þús. kr. virði. Ákveðið mun verða að hljóð-
færið verði geymt í menntaskólaselinu.
Máladeild (Skólanemendur) : Ása
María Þórhallsdóttir, Birgir Möl-
ler, Gísli Einarsson, Gísli Símonar-
son, Guðbjörg Magnúsdóttir, Guð-
mundur Ásmundsson, Guðrún
HALLGRÍMSKIRKJA.
Frh. af 1. síðu.
allra landsmanna, hvaða stétt
eða flokki, sem þeir tilheyra.
Menn verða að athuga það, að
bygging þessi er gerð fvrir fram-
tíðina, engu siður en oklcur sjálf
og hún á að verða áhrifaríkur
þáttur í menningu þjóðarheild-
arinnar, því hér er um mikið og
fagurt listaverk að ræða.“
*
Ekki leikur neinn vafi á því,
að allur þorri landsmanna gerir
sér ljósa grein fyrir því, að hér
er um að ræða eitthvert stærsta
menningarmál íslenzku þjóðar-
innar fyrr og síðar, og nauðsyn-
legt er, að ekkert mannsbarn
láti undir liöfuð leggjast að
leggja þar stein í vegginn.
Flestar menningarþjóðir
heims eiga fagrar kirkjubygg-
ingar frá liðinni tíð, sem geyma
minningu um trúrækni horfinna
kynslóða. Vér íslendingar höf-
um ekki haft tækifæri til þess
fyrr en nú, að reisa komandi
kynslóðum óbrotlegan minnis-
varða um trúrækni okkar, en
nú er tækifærið ltomið, og ef eg
þekki íslendinga rétt, láta þeir
það eklci ónotað. Eg er þess full-
viss, að hver og einn einasti Is-
lendingur leggur sig fram til
þess að styðja þennan fagra og
göfuga málstað.
G. Ein.
Thorarensen, Halla Bergs, Haukur
Jónsson, Jón Aðalsteinn Jónsson,
Jónas Árnason, Jónas Bjarnason,
Kjartan GuÖjónsson, Kristín Guð-
mundsdóttir, Lilja Petersen, Páll
Ásg. Tryggvason, Pálmi Jónsson,
Ragnheiður Árnadóttir, Ragnhild- 1
ur Ingibergsdóttir, Sigurður Bald-
ursson, Stefán Haraldsson, Vil-
hjálmur Þorl. Bjarnar, Yngi Ólafs-
son, Þórhallur Einarsson, Þórhall-
ur Halldórsson. (Utanskólanem-
endur) : Guðjón Hólrn', Unnsteinn
Stefánsson.
Stœrðfrœðideild (Skólanemend-
ur): Björn Kalman, Einar H.
Árnason, Elsa I. S. Eiríksson, Frið-
rik Friðriksson, Garðar P. Jónsson,
Gunnar Kr. Bergsteinsson, Gunnar
Eggertsson, Ingibjörg Þorkelsdótt-
ir, Jón Löve, Júlíus Guðmundsson,
Kristinn Baldursson, Snorri Jóns-
son, Viggó Maack. (Utanskólanem-
endur) : Eyjólfur Jónsson, Harald-
ur Árnason.
Hallgrímskirkja í Reykjavík.
„Hin almenna fjársöfnunar-
nefnd" kirkjunnar, biður þess get-
ið að gjöfum til kirkjunnar sé veitt
inóttaka daglega frá kl. i—6 e. h.
á skrifstofu Hjartar Hanssonar í
Bankastr. II, sími 4361.
Áheit á Strandarkirkju,,
afh. Vísi: 5 kr. frá A. Þ. 5 kr.
frá G. Þ. 5 kr. frá G. Þ. 2 kr.
frá Oddi, 10 kr. frá M. í. 5 kr.
frá G. Þ. 2 kr. frá Þ. B.
Til ekkjunnar með börnin sex,
afhent Vísi: 10 kr. (áheit) frá
Guðrúnu. 15 kr. (áheit) frá „17“.
10 kr. frá Áslaugu.og Bjössa. 15
kr. (áheit) frá ónefndri.
Noregs-söfnunin.
Vísi hafa borizt til Noregs-söfn-
unarinnar 1000 kr. frá Þvottahús-
inu Drífa.
FIX
Kjólaverzlun — Saumastofa
opnar í dag Garðastræfi 2
(húsi Jóns Fannberg 2 hæð)
SELJUM ALLSKONAR MODELKJÓLA SVO SEM:
Eftirmiðdagskj óla
Kvöldkjóla
Ballkjóla
Kjóldpagtii*
ENNFREMUR:
BIússup
V Pils
Morgunsloppa
Sumapkjóla á telpup
XJndiFfót
Handprjónaðar svefn-
treyjur o.fl.
KJðlaverzlunin FIX
Garðastræti 2.
BEZT AÐ AUGLÝSA I VÍSL
Tveir tekkgiuggar
glerlausir, töpuðust af bifreið frá Hafnarfirði til
Reykjavikur s. 1. laugardagsmorgun. Mjög há fundar-
laun verða greidd.
Nmjörlíkiss'crðÍD Ljömi
Sími: 2093.
V erkamenn
Okkur vantar nokkura menn til ýmissa starfa í síld-
arverksmiðjunni á Djúpavík, um tveggja mánaða tíma.
Upplýsingar í síma 2895 í Reykjavik og hjá Guðmundi
Guðjónssyni, Djúpavík.
H.f. Djnpavik
Lantar
sendisvein og lagermann
jvpanuflr