Vísir - 24.06.1942, Page 3
VISIR
Stmi 2339.
Látið skrlfstofuna vita um það fólk, sem er farið burt úr bænum. — Opið 9-9 og
2-5 á sunnudögum. — Simi 2339. — Kjósið hjá lögmanni i Miðbœjarbarnaskólanum
Opið ÍO 12 f. h. og 1-5 og 8-9 e. h. og á laugardögum 1-5 og sunnudogum 3-5.
D-listi er listi Sjálfstæðisflokksins
Akranesmótið.
Þriðjud. 2?. júní 1942.
Mótinu var slitið með kveðju-
stund í Akranes-kirkju kl. 8% í
gærkveldi (mánud.) og komu
Reykvikingarnir heim laust fyr-
ir miðnætti í nótt, eða þeir, sem
far gátu fengið með „Laxfossi“
(220), — nokkrir urðu eftir, en
aðrir liöfðu farið heim á sunnu-
dagskvöld.
f»að var auðfundið á leiðinni
lieim, að fólkið var mjög ánægt
yfir því hvernig þetta mót liafði
tekist í heild sinni. Enda mátti
segja, að allt hjálpaðist að til að
gera mótið sem ánægjulegast
og eftirminnilegast. Veðrið var
svo skínandi fagurt, ræðumenn-
irnir svo sérstaldega vel fyrir
kallaðir, jafnvel svo, að manni
fannst, sem þeim myndi aldrei
hafa tekist jafnvel upp. Og ]k'»
að manni fyndist fvrst framan
af, að allt vera „lausara í bönd-
um“, en ó Hraungerði, þá smá-
breyttist þetta, eftir útisam-
komuna á sunnudag. Eftir jiað
var sem strengir huga og lijartna
þátttakenda yrðu æ betur sam-
stilltir, og varð þess hezt vart þá
um kvöldið, um og eftir mið-
nætti. Þá var haldin „improvi-
seruð“ samkoma í stóru sam-
komutjaldþ þar sem margir
þátttakendur og þó einkum hið
yngra fólk, piltar og stúlkur,
tóku til máls og báru fram vitn-
isburði. um Frelsara sinn. Það
var ögleymanleg stund.
Hugleiðingarnar, sem fluttar
voru voru að uppistöðu útskýr-
ingar á bænunum í Faðirvorinu,
og voru hver annari andþrungn-
ari. Þó heyrði eg að menn voru
sérstaklega hrifnir af liugleið-
ingu síra Magnúsar Guðmunds-
sonár i Ólafsvík, um „Daglegt
brauð og fyrirgefning synd-
anna“.
Á mánudagsmorgun kom
síra Bjami Jónsson vígslubiskup
upp eftir, og flutti eina af sínum
kjarnmiklu og hressandi ræð-
um. Og einkennilegt var það:
Hann kpm í kirkjuna, svo að
segja beint af skipsfjöl og vissi
eigi livað aðrir ræðumenn höfðu
talað, —■ en hans ræða var eins
og samandregið í stuttu máli,
skýrt og, skorinort allt það, sem
áður.hafði hugleitt verið. Veit
eg það, að sú ræða gerir þátttak-
endum auðveldara að taka heim
með sér aðalinnihald þessa
móts.
Fjölsótt barnasamkoma var
haldin á mánudag kl. 1, en al-
menn altarisganga siðar um
daginn, og tóku þátt i henni
rösk tvö hundruð manns.
Því miður er hér ekki rúm til
I að segja frá-móti þessu ítarlega
en hér hefir gert verið. En það
má segja, að mót þessi séu að
verða stórmerkur atbui’ður og
áhrifamikill i íslenzku trúarlífi,
vekja mikla athygli — og
eru til mikillar blessunar þeim,
sem þátt taka í þeim. En mér er
sagt að á útisamkomunni á
sunnudag liafi verið um 800
manns.
Og dásamlegt er það, live vel
rættist úr öllum erfiðleikum í
sambandi við mótið, oft á síð-
ustu stundu, svo að allt virtist
ganga viðstöðulaust og allt féll
saman. Auðvitað höfðu hinir
ungu forgöngumenn, og þá ekki
sízt Bjarni Eyjóifsson ritstjóri
„fangið fullt“ og miklar áhyggj-
ur. Og þeir leystu sín störf af
hendi af mikilli prýði. En það
var auðfundið, þeim sem fengu
að skyggnast inn í þeirra vanda-
sama og erfiða starf, að Guðs
blessun var yfir þvi og öllu sem
þarna fór fram. Og þarna var
indælt að vera! Þetta mót verð-
ur mönnum ekki siður minnis-
stætt en Hraungerðismótin.
Að lokum fáein orð enn um
sönginn: Ýmsir Akumesingar
höfðu orð á því við mig, að þeim
hefði ]xítt messusöngurinn að-
dáanlega fagur, og vildu vita,
hver æft hefði þennan flokk og
stjórnaði honum. Eg veit ekki
hetur en að Gunnar Sigurjóns-
son cand. teliol. hafi æft flokk-
inn, enda hefir hann lagt stund
á tónlist og er mjög smekkvís á
því sviði. En einsöngvararnir
voru Jóel Fr. Ingvarsson frá
Hafnarfirði og frk. Guðfinna
Jónsdóttir. Þeirra hlutverk var
ekki fyrirferðamikið (í messu-
sv.) en féll vel inn í. Þeir sem
koma að staðaldri i K. F. U. M.
kannast við söng ungfrúarinn-
ar, því að liún syngur þar oft.
Er rödd hennar fögur og undur
látlaus, og meðferð hennar á
lögum og ljóðum jafnan prýði-
leg. í Akraneskirkju var unun á
að lilýða setningamar, sem hún
flutti.
Gunnar á alveg sérstaka þökk
skilið þeirra, sém mótið sóttu,
fyi-ir þann þátt, sem hann átti
!í að gera það hátiðlegt og til-
komumikið með hinum góða
söng og orgelleik.
Frjr.
Helmasundlaugar tilvalin tæki þegar bita*
veitan kemur,
Heimasundlaugar em ný tæki sem Konráð Gíslason ritstjóri
auglýsir í blöðunum um þessar mundir, og vakið hafa almenna
athygli fólks, svo að fyrirspurnir berast unnvörpum víðvíkjandi
þessum þægilegu baðlaugum.
Visir snéri sér til Ivonróðs í
morgun og innti hann nánar
eftir þessu. Kvað hann þetta
vera .einn lið í væntanlegu fyrir-
tæki sem hann væri að setja á
stofn, en það er vönduð íþrótta-
tækjaverzlun, senx liann mun
opna i haust. Sagðist liann oft
hafa veitt því eftirtekt hve erf-
iðlega gengi að kaupa íþrótta-
tæki og yfir höfuð allt það sem
að iþróttum lyti. Það mætti
kannske með mikilli fyi’irhöfn
og með þvi að ganga búð úr búð,
hrafla saman ]>að helzta sem
íþróttamenn þyrftu ó að halda,
en enginn vegur að fá það á ein-
um stað. Kvaðst Konráð vonast
til að geta bætt úr þessu, er
hann opnar hina nýju verzlun
sína í haust, þar sem hann mun
kappkosta að hafa allar þær
vörur er á einhvern hátt geta
talizt undir „sport“, svo sem
veiðiáhöld, ferðaútbúnað og
allt sem að iþróttaiðkunum lýt-
ur.
Heimasundlaugarnar eru eins-
konar forspil að þessari verzlun.
Þær má panta nú þegar hjá
Konráði og fer verð þeirra eftir
stæi’ð. Þær minnstu eru barna-
Karlm. reiðstígvél
og ferðastígvél
Dýkomin
SL<»vn /l. HECIOR
LaugaveglZ__
æ:
Ntulknv*
vantar að Hótel Borg
Upplýsingar á skriístoíunni
Sendiiveinn
óskast strax
Upplýsingar á skrifstoíunni
©kaupíélaqid
Þakka hjartanlega öllum skyldum og vandalausum,
sem glöddu mig á 80 ára afmœli mínu með gjöfum,
blómum og heillaóskaskeytum. Guð blessi ykkur ÖU.
J ón J ó n s s 0 n, Hverfisgötu 68.
MIGLIIVdAR
milli Bretlands og Islands halda áfram,
eins og að undanförnu. Höfum 3—4
skip í förum. Tilkynningar um vöru-
sendingar sendist
CuUiford ii Clark ud.
BRADLEYS CHAMBERS,
LONDON STREET, FLEETWOOD.
Okkur vantai'
krakka til að bera blaðið til kaupenda um
Vesturbæinn
Snúið ykkur strax til afgreiðslunnar.
Dagblaðið VÍSIK
Oólfteppi
nokkur stykki fyrirliggjandi.
Sverrir Bernhöft h.f.
Lækjargötu 4.
laugar frá 75 cm. í þvermál, en
hinar stærstu eru 5.50 m. í þver-
xnál og er dýpi þeirra misjafnt.
Þær dýpstu eru 1.15 m. djúþar.
Koma má fyrir dýfingarpalli á
stærri laugmium.
Sundlaugar þessar eru búnar
til iir sérstökum segldúk, mjög
sterkum og öruggum gegn fúa.
Þegar ekki er vatn í laugunum,
má brjóta þær saman, stinga
þeixn í poka og flytja með sér
hvert á land sem maður vill.
Það er hægt að hafa þær í kjall-
aranum hjá sér á veturna, i
Frh. á 4. síðu.
Framboðslistar
i Reykjavík við kosniograr tíl
Alþingis 5 . iuli 1943.
A. B.
Listi Alþýðuflokksins Listi Frams ékn arflokksms
Stefán' Jóh. Stefánsson Ólafur Jóhannesson
Sigurjón Á. Ólafsson Eiríkur Hjartarson
Jón Blöndal Jóhann Hjörleifsson
Guðmundlur R. Oddsson Guðmundnr Óíafsson
Jóhanna Egilsdóttir Jón Þórðarson
Nikulás Friðriksson Sveinn Gamalíeisson
Jón A. Pétursson Sigurður Sólonsson
Runólfur Pétursson Jakobína Ásgedrsdóttir
Tómas Vigfússon Jón Þórðarson
Sigurður Ólafsson Guðjón Teitsson
Guðgeir Jónsson Guðmundúr Kjr. Guðtmmðsmm
Ágúst Jósefsson Sigurður Kristinsson:
O. D.
Listi Sameiningarflokks Listi SjálfstæðisflokkBms
alþýðu — Sósíalista- flokksins Magnús Jónsson _ Jakob Möller
Einar Olgeirsson Bjami Benediktsson
Brynjólfur Bjarnason Sigurður Kristjánsson
Sigfús Sigurhjartarson Guðrún Jónasson
Sigurður Guðnason Jóhann' G. Möller
Konráð Gíslason Guðmundur Ásbjörnsson.
Katrín Thoroddsen Sigurður Halldórsson
Ársæll Sigurðsson Einar Erlendsson
Stefán ögmundlsson Sigurður Sigurðsson
Sveinbjörn Guðlaugsson Halldór Hansen
Guðmundur Snorri Jónsson Björn Bjarnason Halldór Kiljan Laxness. Jón Ásbjömssom
E. F.
Listi Landsmálaflokks Listi frjálslyndra
Þjóðveldismanna vinstrimanna
Bjarni Bjarnason Sigurður Jónasson
Valdimar Jóhannsson Jón Guðlaugsson
Nikulás E. Þórðarson Þormóðnr Pálsson
Jón Ólafsson Páll Magnússon Sveinbjörn Jónsson Ottó Guðmundsson Grétar Fells Halldór Jónasson Árni Friðriksson Einar Ragnar Jónsson Jónas Kristjánsson Hákon Guðmundsson
Yfirkjörstjórnin í Reykjavík,
22. júní 1942.
Björn Þórðarson. Stþ. Guðmundsson. Einar B. Guðmundsson.