Vísir - 07.07.1942, Page 2
DAGBLAÐ
Útgefandi:
BLAÐAÚTGÁFAN VÍSIR H.F.
Ritstjórar: Kristján Guðlaugsson
Hersteinn Pálsson.
Skrifstofa: Félagsprentsmiðjunni.
Afgreiðsla Hverfisgötu 12
(gengið inn frá Ingólfsstræti).
Símar: 1 660 (fimm línur).
Verð kr. 3,00 á mánuði.
Lausasala 15 og 25 aurar.
Félagsprentsmiðjan h.f.
Þegar á reynir.
j^LLAR þjóðir heims eiga nú
við margskonar erfiðleika
að stríða vegna ófriðarins.
Margar verða þær að fórna því
dýrmætasta, sem þær eiga, —
blóði sona sinna og dætra, —
en aðrar gjalda margskonar af-
hroð, þótt ekki sé í blóði. Allt
daglegt líf þjóðanna truflast og
þær verða að taka upp nýjar
lífsvenjur, ólíkar því, sem áður
hefir tíðkast, og sem menn
hefðu almennt ekki trúað fyrir
strið, að almenningur myndi
sætta sig við.
íslendingar hafa þegar orðið
að fórna mörgum mannslifum
og miklu bióði i hlautbolla ófrið-
arguðsins. Leiðir j>að beint af
legu landsins, að hér verður ekki
lifað nema leitað sé yfir sæ til
annarra landa og fanga aflað
þjóðinni til lifsframfæris. At-
vinnuvegirnir eru of einhæfir,
— framleiðslan of fábreytt, —
þannig að þjóðin getur ekki
nema að litlu leyti búið að sínu.
Hinir auknu erfiðleikar bitna
með allverulegum þunga á öllu
atvinnuiífi landsmanna. Þótt
hér hafi atvinna aukizt í svip
og fjárveitan sé meiri en áður
tiðkaðist, eru þetta sjúkdóms-
einkenni, sem miða að hrörn-
un og aigjöru liruni, ef þjóðin
ber ekki gæfu til að miða kröf-
ur sínar við það, sem koma
mun, erfiðleika þá, sem fram
undan eru í stríðslokin og næstu
árin eftir stríðið. Á ófriðartím-
um veldur óvissan því og ýmis-
konar erfiðleikar, að kominún-
istar eiga hægara með að ná
eyrum fólksins, en þegar allt
gengur sinn vanagang — seig-
an og liægan. Kosningar þær,
sem nú eru um garð gengnar,
sýna þetta og sanna.
ófriðarbölið verður ekki bætt
með því að íslenzka þjóðin bíði
annað meira, — láti kommún-
ismann gegnsýra þjóðlífið,
grafa undan atvinnuvegunum,
vekja úlfúð og vinna að upp-
lausn þeirrar lýðræðisskipunar,
sem hér hefir verið í heiðri hala-
in og íslenzka þjóðin á allt gott
að þakka. Það er athyglisvert,
að íslendingum hefir því aðeins
vegnað vel, að þeir hafi notið
frelsis. Fyrir því var þetta land
numið að frelsið var forfeðrun-
um dýcmætara en heimahagar,
auður og ættjarðarást, og mun-
um við, sem nú lifum, ekki vera
slíkir ættlerar, að á okkur sann-
ist, að við höfum gleymt að
varðveita þann dýrmæta arf,
sem við vorum að visu sviftir
um langt skeið, en höfum end-
urheimt að nýju. Eina leiðin til
þess að frelsið verði varðveitt,
er að þjóðin standi gegn komm-
únismanum og láti það eitt ekki
nægja, heldur sæki fram gegn
honum og útrými honum með
öllu. Þannig að hver einstakling-
ur hafi á honum skömm, eins
og hv^r pest verðskuldar.
Kosningasigur kommúnist-
anna stafar vafalaust af þvi, að
fjöldi fólks á nú við ýmsa ó-
venjulega erfiðleika að stríða
sökum ófriðarins, svo sem hús-
næðisskorí, sem erfitt er að ráða
iram úr, og margskyns mis-
ræmi, sem Ieiðir af byltingum ó-
friðarins, en sém auðvelt er að
VISIR
Sjómenn hjá Eimskip kref j
ast hækkunar á áhættu-
kaupi.
Nýlega skrifuðu hásetar, kyndarar og þjónustufólk á skipun-
um Selfossi, Dettifossi og Kötlu, Eimskipafélögum fslands og
Reykjavíkur og fóru fram á 20 kr. hækkun á dagpeninga á á-
hættukaupi í siglingum milli Ameríku og íslands og auk þess
mikil frí meðan skipin Iiggja í Reykjavíkurhöfn. Hér fer á eftir
bréf það er skipshafnimar sendu Eimskipafélögunum.
„Sökum þess, að samninagr
þeir, er gerðir voru um áhættu-
þóknun þá, sem nú er greidd
skipshöfnum á kaupskipaflotan-
um, eru að okkar áliti ekki full-
nægjandi hvað jöfnuð snertir
meðal skipshafnarinnar, þ. e. að
yfirmenn skipanna liafa kr.
20.00 meira á dag fyrir, að okk-
ur skilst, sömu áhættu, þá leyf-
um við okkur að tilkynna yður,
að það er eindregin krafa okk-
ar, að áhættuþóknun sú, er
greidd verður í framtíðinni,
verði jöfn til allra, sem á skip-
unum sigla. í öðru lagi er ]>að
almenn krafa okkar undir-
manna, að o»kur verði greidd
uppbót, er nemur kr. 10.00 pr.
dag á mann, meðan skipin eru
hér við land. í þriðja lagi, að
undirmenn fái frí fyrstu 24 klsl.
sem skipin liggja í Reykjavík
og inætti það skiptast á 2 fyrstu
sólarhringana eftir samkomu-
lagi. Frí þetta sé óháð öðrumfrí-
dögum, er samningar ákveða.
Ennfremur að frí skuli gefið
hvern laugardag eftir kl. 12 á
hádegi.
Ilafi ’okkur ekki borizt svar
frá yður viðvíkjandi kröfum
þessum innan fjögurra daga frá
deginum í dag að telja, skoðið
þér þetta bréf sem uppsögn
okkar úr skipum.“
p.t. Reykjavik, 29. júní 1942.
(Undirskrift sjómanna).
Eftir móttöku þessa bréfs
snéri stjórn Eimskipafélagsins
sér til Sjómannafélags Rvíkur
og spurðist fyrir um það, hvort
stjórn félagsins myndi ekki taka
upp samningaumleitanir fyrir
sjómennina, þar eð gera mætti
ráð fyrir, að þeir væru meðlimir
i félaginu. Stjórn Sjómannafé-
lagsins neitaði þessu og kvaðst
ekki hafa verið beðin um það
af sjómönnum og því telja sér
málið með öllu óviðkomandi.
Eru þetta sömu aðfarirnar og
hjá Dagsbrún, er verkamenn
hjá Eimskip hófu verkfall sitt.
Það væri brot á gerðardómslög-
unum, ef eimskipafélögin
senwlu við sjómenn um þessar
kjarabætur og mun málið þvi
verða rætt við ríkisstjórnina.
í einu dagblaði bæjarins i
morgun segir, að stjórnir eim-
skipafélaganna hafi rætt sam-
eiginlega í gærkvöldi um kröf-
ur skipshafnanna og segir enn-
fremur, að sennilega verði rætt
við sjómennina í dag. Er þessi
frásögn á misskilningi byggð og
á sér hvergi stað, enda eru sjó-
menn ekki hinir réttu samnings-
aðilar, heldur Sjómannafélagið,
eða að öðrum kosti ríkisstjórn-
in- — $
Kosningaúrslit i nokkrnm
sveitakjördæmnm.
I gærdag var talið í 6 sveitakjördæmum og fékk Sjálf-
stæðisfJokkurinn þrjá menn kjörna (í Borgarfjarðar-
sýslu, Gullbringu- og Kjósarsýslu og Austur-Húna-
vatnssýslu), en Framsókn fékk fjóra kjörna (í Mýra-
sýslu, Vestur-Húnavatnssýslu og 2 í Rangár\rallasýslu).
Hér fer á eftir yfirlit yfir úrslit í hverri einstakri sýslu.
nota til áróðurs í kosningum,
enda var það óspart gert af
hálfu kommúnistanna. Þá mun
og hið einstaka hafnarverkfall
hafa aflað kommúnistunum
nokkurra atkvæða, og sýnist
svo sem enn hyggist þeir að
halda áfram á sömu braut.
Beita þeir nú fyrir sig „komm-
únista-cellum“ skipshafna í
kaupgjaldsdeilu, sem enn er ó-
útkljáð, en háð er af hálfu þeirra
með sömu endemum og hafnai'-
verkamenn létu sér sæma að
beita. Hér er um nýtt fyrirbrigði
að ræða, þar sem verklýðsfélög-
in skjóta sér undan ábyrgð, en
tefla fram verkamönnunum
sjálfum, ófélagsbundnum og á-
bvrgðarlausum, en standa svo
væntanlega á hak við og veita
þeim beinan og óbeinan stuðn-
ing til þess að koma kröfum sín-
um fram.
Það kann vel að vera, að sann-
girni mæli með, að verkamenn
og sjómenn fái einhverjar kjara-
bætur, en eins og sakir standa
rnunu þeir þó betur settir en all-
ur þorri landsmanna, að því er
atvinnu og tekjur snertir. Hitl
er fráleitt, að láta kommúnist-
um haldast uppi að afla sér
fylgis vegna launabaráttu þess-
ara manna. Þarf hér að stemma
á að ósi, að því er snertir hina
kommúnistísku starfsemi, sem
er þjóðhættuleg, frá hvaða sjón-
armiði sem séð er.
300 þátttakendur á
kristilegu móti í
Svarfaðardal.
Frá Dalvík símaði fréttaritari
blaðsins að kristilegt mót hefði
verið haldið að Brautarhóli í
Svarfaðardal um helgina, með
um 300 þátttakendum, flestum
úr Reykjavík, en auk þess um
50 frá Akranesi. Var það flest
ungt fólk.
Mótið var sett á laugardaginn,
og var slitið í gær. Veður hefir
verið heldur óhagstætt, nema í
gær var það gott. 1 sambandi við
mótið voru tvær guðsþjónustur
haldnar í Vallakirkju. Yfirleitt
hefir gleðibragur hvílt yfir sam-
komunum og mótinu i heild. —
Sunnlendingar þeir, er þátt tóku
í mótinu, fara að Ásbyrgi og
Dettifossi áður en ]>eir halda
suður. Biðja þeir Vísi að flytja
vinum og ættingjum hér i bæ
kærar kveðjur.
Fyrsta sild til Dalvíkur fékkst
á bátana Léif Eiríksson og
Björn Jörundsson (samah um
nót). Fengu þeir 350 mál á svip-
stundu. I gærmorgun fóru bátar
frá Hrísey i fyrstu síldveiðiför
sina.
Skólahverfi
að rísa upp á Akureyri
Á Akureyri hefir aldrei verið
sótt eins mikið um byggingar-
leyfi og nú. Má telja víst að fáist
byggingaefni, muni bygginga-
framkvæmdir verða óvenju
miklar í ár á Akureyri.
Um þessar mundir er í óða
önn verið að koma upp iþrótta-
höllinni — veglegustu íþrótta-
höll landsins. Þá er ennfremur
búið að ákveða fyrirhugaðri
gagnfræðaskólabyggingu stað í
brekkunni skammt frá sund-
lauginni og íþróttahöllinni.
Bygginganefnd hefir verið
kösin til að aunast bygginga-
framkvæmdir fyrirhugaðs hús-
mæðraskóla, og hefir hún farið
fram á að fá lóð í námunda við
gagnfræðaskólann. Mun bæjar-
stjórnin sennilega taka þetta
mál til meðferðar á fundi i dag.
Samþykki hún að húsmæðra-
skólinn fái húsnæði á þessum
stað, mun þarna rísa upp heilt
og samfelt skólahverfi, því að
áður hefir bamaskóli verið
reistur á þessum slóðum.
Gullbringu- og Kjósarsýsla.
Frambjóðandi Sjálfstæðis-
llokksins, Ólafur Thors, hlaut
kosningu með 1247 atkv. (1504
árið 1937). Frambjóðandi AI-
þýðuflokksins, Guðm. f. »Guð-
mundsson fékk 548 atkv. (593).
Þórarinn Þórarinsson, fram-
bjóðandi Framsóknar fékk 334
atkv. (LI. fékk 86 atkv. við kosn-
ingarnar 1937), og frambjóð-
andi Sósíalista hlaut 215 atkv.
(Ll. fékk siðast 86 atkv.).
Mýrasýsla.
Bjarni Ásgeirsson, frambjóð-
andi Framsóknarflokksins, fékk
486 atkv. (516 síðast) og hlaut
kosningu. Frambjóðandi Sjálf-
stæðisflokksins, Friðrik Þórðar-
son fékk 345 atkv. (421) og Jó-
hann Kúld, frambjóðandi Sósí-
alista, fékk 71 atkv. (8).
Vestur-Húnavatnssýsla.
Frambjóðandi Framsóknar,
Skúli Guðmundsson, hlaut
kosningu með 415 atkv. (436).
Guðbrandur ísberg, frambjóð-
andi Sjálfstæðisflokksins, fékk
246 atkv. (Bændafl. og Sjálf-
stæðisfl. fengu 378 atkv. 1937).
Frambjóðandi Sósíalista, Elísa-
bet Eiriksdóttir, 54 atkv. (0). og
frambjóðandi Alþýðuflokksins,
Arngrimur, fékk 26 atkv. (1).
Austur-Húnavatnssýsla.
Kosinn var Jón Pálmason,
frambjóðandi Sjálfstæðisflokks-
ins, með 591 atkv. (428 síðast).
Hannes Pálsson, frambjóðandi
Framsóknar, hlaut 494 atkv.
(318), frambjóðandi Sósialista,
Klemens Þorleifsson, fékk 29 at-
kv. (2) og frambjóðandi Al-
þýðuflokksins, Friðfinnur Ólafs-
son, fékk 17 atkv. (94 síðast).
Rangárval lasýsla.
Báðir frambjóðendur Fram-
sóknarflokksins voru kosnir,
Helgi Jónasson með 971 atkv. og
Björn Fr. Björnsson með 873 at-
kv. (946 og 934 síðast). Fram-
bjóðendur Sjálfstæðisflokksins,
Ingólfur Jónsson og Sigurjón
Sigurðsson, fengu 820 og 789
atkv. (895 og 891). Frambjóð-
endur Alþýðuflokksins, Ágúst
Einarsson og Björn Blöndal,
fengu 16 og 13 atkv.
í dag verður talið í eftirtöld-
um sýslum: Vestur-Skaftafells-
sýslu (byrjaði kl. 10 í morgun),
Árnessýslu, Dalasýslu, Snæfells-
sýslu, báðum Þingeyjarsýslun-
um, Suður-Múlasýslu, Skaga-
fjarðarsýslu og Barðarstranda-
sýslu í kvöld.
Á morgun verður talið í Norð-
ur-Múlasýslu og Austur-Skafta-
fellssýslu. Á föstudag í Norður-
Isafjarðarsýslu.
í morgun var byrjað að telja
í Vestur-Skaptafellssýslu og er
talningu ekki lokið enn. Síðustu
tölur eru þessar: Gísli Sveins-
son (S.) með 285 atkv. Guðjón
Baldvinsson (A.) með 10 atkv.,
HlöðverSigurðsson með 10 átkv.
Sveibjörn Högnason (F.) hefir
fengið 370 atkv.
Staðastaðarkirkja.
Gamlir Staðsveitungar, nær
og fjær. Eg hefði helzt kosið að
eiga tal við ykkur persónulega
um sameiginleg áhugamál varð-
andi sveitina okkar og framfíð
hennar. En þar sem það getur
ekki orðið kem eg til ykkar á
þennan hátt.
Eg veit að ykkur fer, sem
flestum Islendingum, að leita í
huganum fornra æskustöðva
með vinsemd og hlýju. Þið rif j-
ið upp gleði og sorgarstundirn-
ar „heima“ og kysuð vafalaust
flest ykkar að geta skroppið
öðru hverju hingað vestur til
vina og kunningja.
Mér er líka kunnugt um það,
að margir ykkar fylgjast vel
mecj því sem gerist í átthögun-
um og teljið ekkert ykkur óvið-
komandi er til heilla horfir.
En ykkur sem gamlir eruð og
ekki hafið komið i átthagann 10
síðastliðin ár vil eg segja þetta:
Hér hefir og er að breytast
margt til bins betra.
Gömlu torfbæirnir hverfa en
myndarleg og snotur stein-
steypuhús koma í þeirra stað.
Heyhlöður og peningshús úr
steinsteypu eru hér mjög víða.
En * mikilsverðustu umbæt-
urnar eru þó vegirnir. Þið sem
farið hafið fótgangandi úr Stað-
arsveitinni í Borgarnes eða á
Akranes getið læzt metið sam-
göngubæturnar. Enda má full-
yrða að með bættum samgöng-
um hafi stórhugur og umbóta-
geta vaxið að sama skapi. En
þótt framfarir séu miklar eru
enn, sem vænta má, mörg' mál
er leysa þarf nú eða í næstu
framtíð.
Eg ætla í línum þeim er hér
fara á eftir að drepa lítillega á
eitt þessara mála, en það er
kirkjubygginign á Staðastað.
I janúarveðrinu mikla í vetur
fauk af henni járn, gluggar
brotnuðu og grindin skekktist
og var það sérstök heppni að
hún skyldi ekki fara öll.
Það er því ekki annað fyrir
söfnuðinn að gera en byggja
nýja kirkju.
Undanfarið hefir safnast all-
mikið fé og margir hafa gefið af
litlum efnum. Söfnuðurinn þarf
hinsvegar allmikið fé fil viðbót-
ar, sem taka verður að láni, eða
afla á annan hátt. Kirkjan verð-
ur steinsteypt og mun rúma um
100 manns í sæti. Eg segi ykkur
frá þessu, gömlu Staðsveitung-
ar, sannfærður um að marga
ykkar langar til að leggja hér
hönd á plóginn með okkur, sem
heima erum. Langar ykkur
ekki til að létta undir með ætt-
ingjum og vinum í átthögunum
til að koma upp fallegu guðs-
húsi er hæfir okkar fallegu
sveif?
Mikið er rætt um strið og
striðskostnað, sem eðlilegt er.
Þjóðirnar mergsjúga sig, til að
geta haldið morðvélum sínum
gangandi, til áð eyðileggja sem
mest hvort heldur er dautt eða
lifandi. Logar haturs og hefnda
fara eyðandi um lög og láð.
Vér Islendingar eigum ekki i
stríði og berum þvi engan striðs-
kostnað. Vér viljum frið við
alla menn.
Viljið þið ekki, kæru vinir,
vera með í þvi að verja ofurlitlu
af tekjum ykkar til að stuðla að
því að skapa frið á jörðu? Viljið
þið ekki stuðla að þvi, að „log-
inn helgi“ fái að njóta sín sem
bezt?
Kirkjan er riki friðarins og
herst ávallt fyrir hugsjón
bræðralags, kærleika og friðar.
Hún heyjir sitt heilaga stríð fyr-
ir þessum hugsjónum hvar sem
er á jörðinni.
Hjálpið nú vinum yðar og
ættingjum heima i gömlu átt-
högunum til að skapa sér slikt
vigi. Látið' það verða ykkar
striðsútgjöld. Fullviss um að þið
Frh. á 3. síðu.
Nýr
miðstöðvar-
ketill
til sölu.
Guðmundur Friðfinnsson.
Kjartansgötu 3.
hefjasl að nýju miðvikudag-
inn 8. ]>. m. Þátttakendur
gefi sig fram sem fyrst. —
Uppl. í síma 4059.
Sundhöll Reykjavíkur.
TeSpa
11—13 ára, óskast til að gæta
2ja ára barns. Dvalið er í
sumarbústað. Uppl. á Há-
vallagötu 3, kjallara, kl.
4—SV2 i kvöld.
DVðttakleuur
Nýkomnar.
Sími 1884. Klapparstíg 30.
Nemandi
úr Verzlunarskólanum
óskar eftir skrifstofustarfi til
haustsins. Tilboð, merkt:
„m. bekkur“, sendist Vísi
fyrir fimmtudagskvöld.
Stórt segl
gott í yfirbreiðslu, einnig nýtt
rásegl með rá og nokkurar
tjaldamadressur. — Uppl.
Verkstæðinu, Frakkastig 1.
UppboO
Uppboð verður haldið að
Járngerðarstöðum í Grinda-
vík föstudaginn 10. júlí n. k.
og hefst kl. 3y2 e. h.
Selt verður: Búslóð, veið-
arfæri, beitingastampar ó. fl.
Greiðsla við hamarshögg.
Sýslumaðurinn
í Gullbringu- og Kjósarsýslu,
7. júlí 1942.
Jóh. Gunnar Ólafsson,
settur.
Nknr
(vandaður) 2x2.7 metrar að
stærð, er til sölu. Uppl. í síma
2388.
Útvarp frá Boston
á íslenzku.
Kl. 6.30—7 e. h. eftir íslenzk-
um tíma í dag verður útvarpað
frá stöðinni WBSO i Boston
ræðu, sem Thor Tliors sendi-
herra flytur. María Markan
syngur og aðstoðarráðherra
Adolf Berle talar. Stöðin útvarp-
ar á 19 metrum. Gerð verður
tilraun til þess að endurvarpa
ræðunum og söngnum.