Vísir - 03.09.1942, Blaðsíða 1
Ritstjórar:
Kristján Guðiaugsson
Hersteinn Pálsson
Skrifstofur:
Félagsprentsmiðjan (3. hæð)
Ritstjórar
Blaðamenn Sími:
Auglýsingar 1660
Gjaldkeri 5 linur
Afgreiðsla
32. ár.
Reykjavík, fimmtudaginn 3. september 1942.
178. tbl.
RUSSAR HORFA ENN
SV AF STALINGRAD.
Þjódvepjai* segjast komnir að Volgu.
Þeir hafa sent liðsauka til Reshev.
EINKASKEYTI FRÁ UNITED PRESS, New York, í morgun.
Sókn Þjóðverja til Stalingrad verður æ öflugri,
en Rússar kannast ekki við það, að þeim hafi
tekizt að brjótast austur að Volga fyrir norð-
an borgina. Hinsvegar kannast þeir við, að þeir hafi enn
orðið að láta undan síga milli Kotelnikovo og Stalin-
grad.
í gær var Novorossisk nefnd í l'yi'sta skipti í langan
tíma í herst.iórnartilkynningu Rússa. Skýrði hún frá
því, að Þ jóðverjar legðu nú meira kapp á sóknina þang-
að en áður, en þeir hafa tilkynnt fall hafnarborgarinn-
ar Anape, sem er næst fyrir norðan Novorossisk. Eiga
þeir því ekki langt ófarið til þessarar mestu hafnar-
borgar við Svartahaf, sem enn er í höndum Rússa. —
Af sókn Zukovs eru fregnir litlar sem engar síðan aukatil-
kynningin var gefin um hana í síðustu viku. Rússar hafa þó
ekki dregið dul á það síðan, að þeir eigi við mikla örðugleika
að stríða og nú síðast skýra þeir frá því, að Þjóðverjum liafi
iorizt liðsauki til þessara vígstöðva. Þeir segjast samt hafa
frumkvæðið sjálfir.
Eins og áður getur kannast
Rússar ekki við það, að bryn-
sveitir Þjóðverja hafi komizt að
"Volga, en segja það frá bardög-
unum á þeim slóðum, að þeir
hafi getað breikkað yfirráða-
svæði sitt á vesturbakka Don
suður af Kletskaya.
Þótt Rússar játi, að þeir hafi
orðið að hörfa í nýjar varnar-
stöðvar suðvestur af Stalingrad,
meðfram járnbrautinni frá
Kotelnikovo, þá birta þeir jafn-
framt sigurfregn frá bardögun-
um þar. Kveðast þeir hafa næsi-
um gereytt 14. skriðdrekadeild
Þjóðverja. 88 þýzkir skriðdrek-
JBgBjsstuns ua ‘umgo[s
ar rufu varnir Rússa á þessum
Þjóðverjar fram allt að 200
skriðdrekum á litlu svæði.
Suður í Kákasus, annarsstað-
ar en hjá Novorossisk, telja
Rússar sig standa í Þjóðverjum
og gera á þá jafnvel skæð gagn-
áhlaup. Á einum stað, skammt
frá Prokladnya kveðast Rússar
hafa umkringt þýzka sveit, sem
hætti sér of langt fram, án þess
.að gæta aðdráttarleiða sinna.
Þjóðverjar eru fáorðir um
hardagana í Rússlandi að öðru
leyti en því, að þeir tilkynntu
í gær að þeir væri komnir að
Yolga. Flugher þeirjra fer í öfl-
uga árásarleiðangra á flutninga-
leiðir Rússa og skip á Volga og
Kaspiahafi.
Fregnir hafa borizt um það
til Washington, að Finnar verði
nú að leggja til æ meira lið og
þegar er kunnugt um margar
finnskar herdeildir, sem berjist
á suðurvigstöðvunum. Þjóðverj-
ar hafa æft marga Finna í fall-
Loftárás á
Karlsrnhe.
Aðalárásarmark brezka flug-
hersins í nótt 'var Karlsruhe
skammt frá Rín.
Flugmennirnir, sem tóku þátt
i árásinni, segjast hafa séð
marga viðtæka elda í borginni
og reykskýið lagði upp í 8000
feta hæð.
Auk þess voru gerðar árásir
á aðrar borgir, en ekki á eins
stóran mælikvarða. Bretar
misstu 8 flugvélar i þessum
árásum.
hlífasveitum. Þetta er árangur-
inn af fundum Hitlers og Mann-
erheims, að áliti manna í Wash-
ington.
3 ár:
9710 öxulflusvélar
íyrir 6231 örezkar
•
13,000 smál. sprengja
varpað á Þýzkaland
ífjúní-júlí.
Bretar hafa gefið út dálítið
»uPPg'jör“ Vegna þess, að
fjórða ár styrjaldarinnar er
hafið. Á þeim tíma hafa Bret-
ar skotið niðm-
9710 öxulflugvélar,
en á sama tíma hafa f Iugherir
öxulríkjanna éyðilagt
6231 brezka flugvél.
1 júní og júlímánuði á þessu
ári vörpuðu brezkar flugvélar
jamtals 13.000 smálestum af
sprengjum á þýzkar borgir,
en 8500 smálestum á sama
tíma í fyrra, og 3500 smál.
árið 1940. Sprengjumagnið
hefir því nærri ferfaldazt á
tveim árum.
Áreiðanlegar fregnir hafa
borizt um það frá Oslo, að
Quislingar sé að undirbúa
stofnun ríkisþings, sem mun
eiga að tilkynna 25. sept. n. k.,
þegar ár er liðið síðan Terboven
útnefndi „stjóm“ Quislings.
Talið er að Quisling muni
halda áfram nýskipunarbrölti
sínu á félögum og stofnunum,
livort sem lilutaðeigandi aðilar
samþykkja þær aðgerðir eða
eru þeim andvigir. Quislingar
hafa líka látið mikið til sín taka
í sveitunum að undanförnu, og
það er talið standa í sambandi
við stofnun ríkisþingsins.
Stofnun þessa þings mun
ekki hafa nein áhrif á afstöðu
kirkjunnar eða kennarastéttar-
innar til Quislings.
JBgiptaland:
Litlir bar-
dagar í gær
I gær voru litlir bardagar á
landi á vígstöðvunum suður af
EI Alamein.
Þess í stað héldu flugvélar
uppi árásum á syðri hluta víg-
slöðvanna. Þar tókst öxulherj-
unum ekki að hrjótast inn í hin-
ar raunverulegu varnar Rreta.
Á mánudag ög þriðjudag
kveðast Italir og Þjóðverjar
hafa skotið niður 55 brezkar
flugvélar og eyðilagt 30 skrið-
dreka.
Berklasjúkllngar í
verksmiðjuvinnn.
Lundúnafregnir hafa það eft-
ir þýzku heilbrigðistímariti, að
240 þúsund berklasjúklingar sé
sarfandi í verksmiðjum þar í
landi, þar af 90.000 í Vopnaverk-
smiðjum.
Stafar þetta af því, hversu
mjög vinnufólksþörfin fer vax-
andi, eftir þvi sem herinn gerir
kröfur til fleiri manna.
Síðustu 3 mánuði hefir Laval
útvegað Þjóðverjum 50.000
verkamenn, en ætlaði að útvega
]>eim 350.000 á þessu tímabili.
í Luxemburg hefir 120.000
rnönnum verið boðið út til upp-
skeruvinnu í Þýzkalandi.
„Stríðið verður langt
„Stríðið verður langt og örð-
ugt“, sagði King, yfirflotafor-
ingi Bandaríkjanna í ræðu, sem
hann hélt í Cleveland í fyrra-
dag.
„Við höfum ekki enn nóg af
drápstækjum til að láta and-
stæðingana finna raunverulega
krafta okkar. En þegar svo
verður komið, þá rnunu Japanir
fá að finna smjörþefinn af þvi,
að Tulagi var aðeins örlítil
byrjun“,
Skipaskortur hjá
Þjóðverjum.
Það eru fleiri en bandamenn,
sem þarfnast fleiri skipa. Þjóð-
verjar hvetja menn nú til að
gerast skipasmiðir.
í fregnum frá Bern segir, að
reynt sé að útvega skipasmiða-
stöðvum Þjóðverja ólærða
verkamenn fyrir þá skipasmiði,
sem teknir voru i herinn og fást
þvi ekki aftur. Þjóðverjar hafa
líka krafizt þess af Norðmönn-
um, að þeir byggi tréskip fyrir
þá.
Bretar telja sig hafa sökkt a.
m. k. 1 milljón smálesta skipa
á Norðursjónum og meðfram
ströndum Noregs og Frakk-
lands.
H. M. Wrangell, fyrrum for-
seti útgerðarmannasambands
Noregs, er látinn í Haugasundi,
83 ára að aldri. Hann var ræðis-
maður íslands og Danmerkur í
Haugasundi siðan 1896.
Níu mánaða inn-
rásaræfingar.
Undanfarna níu mánuði hafa amerískar og brezkar her-
sveitir æft af miklu kappi með það fyrir augum, að
stofnaðar verði nýjar vígstöðvar í Vestur-Evrópu. Her-
sveitir Breta hafa verið Iátnar framkvæma eins erfiðar og strang-
ar æfingar og víkingasVeitirnar voru einar látnar undirgang-
ast áður.
f
Svo er helzt að sjá sem Ber-
ínarbúar óttist gestagang á
horð við þann, sem Köln,
Bremen og fleiri borgir hafa
orðið fyrir af hendi hrezka
flughersins. — Myndin sýnir
sýningarhöll við Kaiserdamm
i miðhluta Berlinar. Net hafa
verið dregin yfir bygginguna,
til þess að hún líkist sem mest
grasfleti og villi flugmönnum
bandamanna sýn.
Færri skip-
um sökkt,
— Knox.
Frank Knox, flotamálaráð-
herra Bandaríkjanna, skýrði frá
því í gær, að mjög drægi nú úr
kafbátahernaðinum við Amer-
íkustrendur.
Kvað hann árangurinn, sem
kafbátar Þjóðverja næðu, fara
stöðugt minnkandi, eftir þvi
sem fleiri smáskip væri tekin í
notkun gegn þeim.
Knox sagði að skipasmiðarnar
gengi svo vel, að skip væri alltaf
á undan áætlun, og smíði flug-
stöðvarskipa væri hraðað eftir
mætti.
Kinhwa
umkringd.
Kínverjar halda áfram sókn
sinni í Chekiangfylki og hafa
umkringt Kinhwa, höfuðborg
fylkisins.
Japanir höfðu gert tilraunir
til að stöðva Kínverja fyrir utan
Kinhwa, en það hefir ekki lán-
azt. Á leið sinni til borgarinnar
hafa Kinverjar tekið 3 smá-
borgir.
í Kwantung-fylki eru Kínverj-
ar líka í sókn og eiga þar 25 km.
ófarna til Kanton.
Um mánaðamótin júli—ágúst
voru 200 menn handteknir í
Stafangri. Meðal þeirra voru
bæjarlæknirinn, einn af prest-
unum, hankastarfsnienn, verka-
menn og járnbrautarstarfs-
menn.
•
Julius Karolys greifi, tengda-
sonur Horthys rikisstjóra, fórst
í flugslysi i gær, er flugvél, sem
liann var i, hrapaði ofan í
Dóná. Hann var 36 ára og var
að læra að fljúga, þvi að hann
var aðeins nýgenginn i herinn.
Karoiys var kvæntur Paulette
Horthy, sem lézt fyrir 2 árum.
j Hermiálaráðuneyti og flug-
| málaráðuneyti Breta gáfu út
, sameiginlega tilkynningu um
þetta í morgun í tilefni þess, að
kl. 11 voru þrjú ár liðin, síðan
Bretar sögðu Þjóðverjum stríð
á hendur og þar með liófst
fjórða styrjaldarárið.
Segir í tilkynningunni, að all-
ar æfingar fari fram með það
fyrir augum, að nýjar vígstöðv-
ar verði stofnaðar og þá verði
Bretland sameiginleg innrásar-
bækistöð Breta og Bandaríkj-
anna.
Georg 6. talaði þá i útvarp til
heimsveldisins og lýsti ákvörð-
un Breta um að berjast þar til
nazisminn hefði verið að velli
lagður. Verða haldnar guðsþjón-
ustur um gervalt Bretaveldi í
dag vegna þessa.
Vara-forsætisráðherra Breta,
Major Attlee, hefir hirt ávarp
vegna þessa styrjaldarafmælis,
þar sem segir, að hinar frjálsu
sameinuðu þjóðir sé jafnstað-
ráðnar og nokkuru sinni i að
berjast til sigurs. „Hergagna-
framleiðsla þeirra fer hraðvax-
andi“, sagði Attlee, „og hún er
ekki búin að ná liámarki. Her-
gagnaframleiðsla öxulríkjanna
er hinsvegar komin yfir há-
markið og er ó leið niður á við.“
Stærsta blað Finnlands —
Helsingin Sanomat — hefir
birt grein um styrjaldarafmælið
og segir þar m. a., að styrjöldin
breiði úr sér yfir æ meira land-
flæmi á hverju ári, sem líður,
og fleiri þjóðir dragist inn í
hildarleikinn. Þjáningar fólks-
2 dauðadómar.
Sérstakur dómstóll í París
hefir kveðið upp tvo dauða-
dóma fyrir brot á reglum um
skömmtun á matvörum, að
því er segir í fregn frá Vichy.
Þetta eru ströngustu dómar,
sem enn hafa verið kveðnir
upp í slíkum málum í Frakk-
landi.
ins fara vaxandi og skugginn,
sem sltyggir á framtiðina verður
æ dimmri og geigvænlegri.
Húsbyggingar í
Vestmannaeyjum.
15 ný íbúðarhús eru nú í
smíðum þar. Eru mörg þeirra
vel á veg komin.
I þeim munu verða um 26
f jölskyldu-ibúðir, auk allmargra
herbergja fyrir einhleypa.
Allt eru þetta steinhús og flest
með svokölluðum „valma-
þökum“.
Nýtt efni til húsþaka hefir nú
flutzt til Eyja, en það eru plötur
búnar til úr asbest og sementi.
Sennilegt er að þetta efni sé
lientugra en járn, sem ryðgar
eftir tiltölulegan skamman tíma
og kostar mikið viðhald.
Auk þessara nýbygginga fara
fram miklar endurbætur á eldri
húsum og margir stækka liús
sín.
SAMKOMULAGSUMLEIT-
UNUM 1 SJÓMANNADEIL-
UNNI HALDIÐ ÁFRAM
1 DAG.
Eins og getið var í frétt í
Vísi í gær boðaði sáttanefndin
fund með stjórn Eimskipafé-
lagsins og fulltrúum sjó-
manna (háseta og kyndara)
kl. 2 í gær. Engin úrslit feng-
ust á þeim fundi, en sam-
komulagsnmleitununum er
haldið áfram í dag.
Samkv. upplýsingum, sem
Vísir aflaði sér í morgun, var
svo ráð fyrir gert, að sátta-
nefndin ræddi Við fulltrúa há-
seta og kyndara kl. 2 e. h.,
við fulltrúa yfirmanna á skip-
unum kl. 3, en kl. 4 við stjóm
Eimskipafélagsins. Er því von
um, að rekspölur sé að kom-
ast á samkomulagsumleitan-
imar, en menn bíða þess al-
mennt með óþreyju, að deila
þessi verði leyst.