Vísir - 03.09.1942, Blaðsíða 2
VÍSIR
Þýzk flugvél skotin
niður við Reykj avík
Fypsta flugvél, sem Bandaríkjaflugmenn
skjóta niðuF í Evrópu.
Tveir sæmdir heiðursmerki.
Ameríska herstjómin hér á landi hefir gefið út
tilkynningu um það, að þýzk f jögurra hreyfla
sprengjuflugvél hafi verið skotin niður
skammt frá Reykjavík í síðasta mánuði. Var þetta
fyrsta flugvél öxulríkjanna, sem Bandaríkjamenn
skjóta niður yfir Evrópu og hafa tveir flugmenn verið
sæmdir heiðursmerkjum fyrir.
VÍSIR
DAGBLAÐ
Útgefandi:
BLAÐAÚTGÁFAN VÍSIR H.F.
Ritstjórar: Kristján Guðlaugsson
Hersteinn Pálsson.
Skrifstofa: Félagsprentsmiðjunni.
Afgreiðsla Hverfisgötu 12
(gengið inn frá Ingólfsstræti).
Símar: 1 660 (fimm linur).
Verð kr. 4,00 á mánuði.
Lausasala 25 aurar.
Félagsprentsmiðjan h.f.
Bankarnir
og ríkið.
T flestum löndum er nú lögð
áhérzla á að fá fólkið til að
spara. Það er gert með tvennt
fyrir augum. 1 fyrsta lagi til þess
að ná fé til hernaðarþarfa, og í )
öðru lagi til þess að forðast verð-
þenslu, Frá því ófriðurinn hófst
/íefir ekkert verið gert hér á
landi til þess að ýta undir sparn-
að hjá landsmönnum. En öll
aukin sparnaðarviðleitni hefði
orðið talsverður hemill á verð-
þensluna, sem ljóst var að koma
mundi, ef ekkert yrði gert til
að afstýra lienni. Hér starfa þrír
bankar, sem allir eru eign ríkis-
ins að mestu leyti. Þessir bank-
ar liefðu átt að telja það hlut-
verk sitt, að gangast fyrir spam-
aðarhreyfingu i landinu. Það
mundi að vísu hafa nokkurir
kostnað í för með sér að hrinda
slíku í framkvæmd, en það er
fé, sem hankarnir hefðu ekki
þurft að taka nærri sér að greiða.
F.n hér á voru landi, þar sem
allt er háð pólitiskri íhlutun og
forustu, er beðið eftir frum-
kvæði að öllum slíkum málum
frá rikisstjórninni eða Alþingi.
En þessar stofnanir sofa stund-
um líka.
Samband ríkisins við hankana
er mál, sem þarfnast alvarlegrar
athugunar. Ríkið stendur í á-
byrgð fyrir allri sparisjóðsinn-
eign í öllum bönkunum. Bank-
arnir eru raunverulega reknir á
ábyrgð ríkisins. Þetta er fyrir-
komulag, sem ber að afnema
hið hráðasta. Það er engin nauð-
syn að rikið standi i ábyrgð fyrir
sparifénu á þann hátt, sem nú er
gert. Auk þess skapar þetta á-
herandi misrétti gagnvart spari-
sjóðum viðsvegar um land. Ef
sparisjóðsáhyrgðin yrði afnum-
in i því formi, sem hún er nú, t
mætti setja upp sérstakt form
fyrir ríkistryggingu á innstæð-
um, sem bæði bankar og spari-
sjóðir gætu keypt gegn ákveðnu
iðgjaldi.
Að því hefir áður verið vikið
bér i blaðinu, að sanngjamt
væri að ríkið innleysti hlutabréf
einstakra manna í Útvegsbank-
anum, þar sem vitanlegt er, að
rikisstjórnin ræður öllu um hag
bankans. Að öðrum kosti ætti
ríkið að selja sín hlutabréf í
bankanum og afsala sér þar með
allri íhlutun um starfsemi og
rekstur bankans. Það væri mál,
sem ætti að athuga fyrir næsta
þing.
* *
Hætturnar á götunum.
Flestum kemur saman um að
hættulegra sé að ferðast á götun-
um en á götum í stórborgum
erlendis. Umferðin hér afar mik-
il og öll miklum mun óreglu-
bundnari. Hér eru engin um-
ferðarmerki og lítil stjórn á um-
ferðinni. Það er mjög áberandi
hversu Íslendingar aka óvarleg-
ar en útlendingarnir. Bifreiðar-
stjórar sumir aka svo glanna-
lega að furðu sætir. Virðast þess-
ir menn bera hina roestu fyrir-
litningu fyrir lífi og limum sam-
þorgara sinna. Eitt af því sem
er mjög áberandi hér í bæ, er
það, að ökumenn kunna yfir-
leitt ekki og hirða því síður um,
að „leggja“ bifreiðum sínum í
beinni röð við götukantinn. Er-
lendis er tekið ómjúkum hönd-
um á trassaskap í því efni. Hér
láta menn bifreiðarnar standa
þversum með framhjólin á
gangstéttinni og hirða ekkert
um, þótt bifreiðin slandi út í
miðja götu.
Umferðin er svo mikil á aðal-
götunum hér i bænum, að nauð-
synlegt er að sett séu upp um-
ferðar-ljósmerki á fjölförnustu
vegamótunum. En þangað til
slík ljósmerki verða sett upp, er
nauðsynlegt að lögregluþjónar
stjórni umferðinni mestan hluta
dagsins á aðalgötunum.
Akurnesingar
gefa út blað.
Nokkrir Akumesingar, er á-
liuga hafa fyrir menningar- og
framfaramálum Akraness, hafa
ráðizt í útgáfu vandaðs blaðs,
sem hóf göngu sína í aprílmán-
uði s.l. og hefir komið reglulega
út æ síðan.
Aðalmarkmið með útgáfu
blaðsins segja útgefendumir að
felist í:
„að ræða bæjarmál Akraness,
þau sem efst eru á baugi með
samtíð vorri, og þau er snerta
framtíð þess,
að safna saman og halda til haga
öllum gögnum og gömlum
fróðleik, er að haldi mætti
koma við samningu fulikom-
innar sögu Akraness að fornu
að nýju,
að eyða ennfremur nokkru
rúmi blaðsins til þess að ræða
önnur þau mál, sem efst eru
á baugi með þjóð vorri á
hverjum tíma.“
Ritnefnd skipa þrír menn,
en það eru Arnljótur Guðmunds-
son, Ólafur B. Björnsson og
Ragnar Ásgeirsson.
Hafa í blaðinu verið rædd öll
helztu áhugamál og framfara-
mál Akurnesinga, hæði á verk-
legum sem andlegum sviðum,
fréttir frá Akranesi og loks
þættir úr sögu Akraness. Hefir
Ólafur B. Björnsson lagt þar
drýgstan skerf til blaðsins og
m. a. ritað um upphaf bindind-
ishreyfingarinnar á Akranesi,
um Hallgrím Jónsson hrepp-
stjóra og upphaf sjávarútvegs
á Akranesi. Blaðið er prentað á
vandaðan pappír og prýtt mörg-
um ágætum inyndum frá eldri
og yngri tímum. Blaðið heitir
Akranes, og má segja að það sé
óvenjulega myndarlegt, með til-
liti til íbúafjölda kaupstaðarins.
Vantraust á stjóm
síldarverksmiðjanna.
*
Föstudaginn þann 28. ágúst
1942 héldu 62 skipstjórar af
samningsbundnum síldveiðiskip-
um hjá Síldarverksmiðjum rík-
isins með sér fund í Bamaskóla-
húsinu á Raufarhöfn.
Rætt var um stjórn og rekst-
ur Ríkisverksmiðjanna á líðandi
sumri.
Fjölmargir fundarmenn tóku
til máls.
Fundurinn samþykkti að lýsa
algeru vantrausti á núverandi
stjórn Síldarverksmiðjanna, og
sérstaklega framkvæmdarstjór-
ann, Jón Gunnarsson. Fundar-
menn voru einróma þeirrar
skoðunar, að stjóm á rekstri
verksmiðjanna á yfirstandandi
vertíð hafi keyrt svo úr hófi,
að óviðunandi sé. Benti fundur-
inn á nokkur atriði þessu til
stuðnings.
Næturlæknir.
Kristján Hannesson, Mímisvegi
6, sími 3836. ■ Næturvörður er í
Lyfjabúðinni Iðunni.
Flugvél sú, sem hér var um
að ræða, var Focke-Wulf-
sprengj uflugvél af Kurier-gerð,
er Þjóðverjar nota til langferða
og skipanjósna á Atlantshafi.
Var það flugvél af þessari sömu
gerð, sem varpaði niður sprengj-
unum i kálgarðinn á Höskuldar-
nesi hjá Raufarhöfn. Flugvélar
af þessari gerð hafa og áður sézt
á flugi við landið og yfir því.
Amerísku flugmennirnir, sem
skutu flugvélina niður voru
Joseph Shaffer og Elza Shahan,
liðsforingjar, seni báðir eru 24
ára að aldri. Hafa þeir verið
sæmdir silfurstjörnu fyrir
framúrskarandi hugprýði, eins
og tekið er til orða í tilkynningu
lierstjórnarinnar.
Þýzka flugvélin hafði lent í
bardaga við aðrar amerískar
Ofangreindar upplýsingar
hefir Vísir fengið hjá Lúðvíg
Guðmundssyni skólastjóra.
Hann sagði að í fyrra hefðu 238
nemendur sótt skólann og kenn-
arar hefðu verið 14. Nú í vetur
yrðu kennarar a. m. k. 15—16 og
væru yfirleitt valdir til þess fær-
ustu menn, hver á sinu sviði.
Á kvöld- og síðdegisnámskeið-
unum fyrir almenning verður
kennt: Teikning, meðferð lita,
auglýsingateikning, bókband,
tréskurður, húsgagna- og rúm-
sæisteikning, litafræði, leður-
vinna, og auk þess kennsla í
smíði, teikningu og pappavinnu
fyrir börn.
Eins og Vísir gat um í fyrra
er stofnuð sérstök deild fyrir
myndlistarnám, þannig að hér
er um sjálfstætt „akademi“ að
ræða. Kennslugreinar verða:
Teikning, svartlist (graphik) og
listmálun.
Nú þegar hafa allmargar um-
sóknir borizt um skólavist og
eru sumir námsflokkarnir um
það bil fullsetnir.
Vegna aukins styrks frá hinu
opinbera til skólans, hefir
kennslugjald ekki hækkað til
muna frá þvi sem áður var.
Um menningargildi Handíða-
skólans þarf ekki að fjölyrða
hér. Það er tvímælalaust ein
þarfasta skólastofnun sem hér
hefir verið korjiið á laggirnar og
á Lúðvík Guðmundsson skóla-
orustuflugvélar, sem gátu ekki
skotið hana niður, þegar Shaffer
og Shahan lögðu lil atlögu við
liana. Gerðu þeir árásir mjög
nærri og kveiktu í þýzku flug-
vélinni, en hún svaraði skotlirið-
inni. Síðan varð sprenging í
lienni og hún hrapaði.
Skothríð Þjóðverjanna olli
smávægilegum skemmdum á
einni amerískri flugvél, en eng-
inn flugmannanna særðist.
•
Herstjórn Bandaríkjamanna í
Bretlandi hafði áður tilkynnt, að
fyrsta flugvél, sem Bandaríkja-
maður grandaði yfir Evrópu i
þessu slríði, hefði verið skotin
niður yfir Dieppe 19. þ. m. Það,
sem sagt er frá hér að ofan, hef-
ir því gerzt fyrir þann tíma. —
stjóri, sem var brautryðjandi
þessa máls, miklar þakkir skild-
ar fyrir að hafa stofnað til skól-
ans og eflt hann þann veg, sem
raun er orðin á.
Síminn.
Þeir, sem hafa átt leið um
miðbæinn undanfama daga,
hafa ef til vill tekið eftir því, að
í kringum Austurvöll, hér og
þar, eru ,Jíapal-rúllur“ (síma-
línur), Iogsuðutjöld og þ. h.
Vísir hafði tal af bæjarsíma-
stóranum, Bjarna Forberg, i
morgun og spurði hann hverju
þetta sætti. Sagði Bjarni, að fyr-
ir einu til tveimur árum hefði
verið hafizt handa um að leggja
pípur frá símstöðinni í gegn
um miðbæinn og yfir í Höfða-
hverfið (Mjölnisveg og fleiri göt-
ur). Var fyrst byrjað á því að
grafa holur og skurði hér og
þar fyrir pípurnar, en nú er
verið að draga linurnar í jarð-
símann í pípukerfi þessu.
Annars sagði Bjarni, að um
engar nýjar framkvæmdir í
símamálum bæjarins væri að
ræða, því möguleikar til þeirra
hluta væru ekki fyrir hendi. Sér-
staklega er það efnisskorturinn,
sem er erfiður viðureignar.
Kennaraþingið:
Sambandið milli
barnaskóla og
æðri skóla.
Tveir fundir voru haldnir í
gær. Fyrri fundurinn hófst kl.
9 og var þá rætt um ríkisútgáfu
námsbóka og skipulag fræðslu-
mála, einkum sambandið milli
barnaskólanna og æðri skóla,
en þau hafa kennarar rætt tals-
vert að undanförnu. Hefir milli-
þinganefnd starfað að þeim
málum.
Tryggingamál.
Á fundinum kl. 2 mætti Guð-
mundur Guðmundsson trygg-
ingafræðingur og flutti erindi
um tryggingamál. Urðu nokkr-
ar umræður um þessi mál og
var einkum rætt um lífeyrissjóð
harnakennara. Á þeim fundi
var líka rætt um barnabók-
menntir og voru umræður fjör-
ugar.
öllum þessum málum var
vísað til nefnda.
Eftir kl. 4 voru engir fundir,
svo að nefndum gæfist nægur
tími til starfa.
Ný stjórn S. í. B.
Fundur hófst í dag kl. 9%.
Skýrt var frá úrslitum stjórnar-
kosningar. Er hin nýja stjórn
S. í. B. þannig skipuð:
Aðalsteinn Sigmundsson, form.,
Sigurður Thorlacius, varaform.,
Ingimar Jóhannesson, ritari,
Jónas G. Jónsson, vararitari,
Pálmi Jósefsson, gjaldkeri,
Arngrimur Kristjánsson, vara-
gjaldkeri,
Gunnar M. Magnúss, ritstjóri
Menntamála.
Fyrrv. form., Sig. Thorlacius,
skoraðist eindregið undan end-
urkosningu í formannssæti, þar
sem hann er formaður Banda-
lags starfsmanna rikis og bæja.
— Fyrrv. ritari sambandsins,
Guðjón Guðjónsson, sem átt
hefir sæti í stjórninni hartnær
tvo áratugi, skoraðist og undan
endurkosningu.
Á fundinum var rætt um
Menningarsjóð kennara, laga-
hreytingar o. fl.
Þingið mun ljúka störfum á
morgun.
Sundreglur f.S.f„
önnur útgáfa, eru nýkomnar út.
Heftið er um 50 bls., og eru aðal-
kaflarnir: Sundreglur Í.S.Í., Sund-
knattleiksreglur Í.S.Í., Reglugerð
um dómarapróf í sundknattleik,
Dýfingarreglur Í.S.Í. Öllum sund-
mönnum, sem taka þátt í keppnum,
er nauðsynlegt að eiga þessar sund-
reglur.
Læknablaðið,
2. tbl., er nú komið út, og er
efnisyfirlit sem hér segir: Stenosis
pylori congenita, eftir Kristbjörn
Tryggvason. Röntgenologische Un-
tersuchungen úber Arteriosklerose,
eftir Gísla Fr. Petersen. Frá lækn-
um. Fundargerð.
Frjáls verzlun,
júní—ágúst-heftið 1942, er ný-
komið út með eftirfarandi efni:
Verzlunarstéttin og þjóðin, eftir
Björn 'Ólafsson. 2. ágúst-minning-
ardagur, eftir Einar Ásmundsson.
Brúðkaupið á Sóleyjarbakka, eftir
Þorleif O. Johnson. Sjálfstæðis-
baráttan á 20. öld, eftir Benedikt
Sveinsson. ísland og Grænland í
hernaði, eftir Vilhjálm Stefánsson.
Fuggerættin og silfrið, eftir Sverri
Kristjánsson. Sumarsókn, eftir
Strategicus. Einar Pétursson. Buna
undraefnið. Á skrifstofunni. Ýms-
ar greinar og myndir.
Verkleg kennsla fyrir
bændaefni við Hand-
íðaskólann í vetur.
Starí myndlistardeildar aukið.
Frásögn Lúðvígs Guðmundssonar skólastj.
Handíðaskólinn mun taka til starfa upp úr næstu mánaða-
mótum. Mun enn verða aukið við kennslu frá því sem áður var,
bæði mun verða fjölgað kennslugreirtum innan hinna föstu
deilda, þ. e. kennaradeildar og myndlistardeildar og einnig á
siðdegis- og kvöldnámskeiðum fyrir almenning.
Meðal annara nýmæla má nefna stofnun nýs flokks, þar sem
fram fer verkleg kennsla fyrir bændaefni og kennd verður tré-
smiði auk undirstöðuatriða í málmsmíði.
Barnlaus, roskin hjón vantar
íbuð
nú þegar. Símalán og hús-
hjálp getur komið til greina.
Mikil útborgun. Uppl. í síma
5105 eða 3916.
Dodgre*
bifreið
nr. 1385 er til sölu ef við-
unandi boð fæst. Áskilinn
réttur til að hafna eða taka
hverju tilboðinu sem er. —
Tilboð, merkt: „S“, sendist
Vísi fyrir föstudagskveld. —
Kennara
vantar á sveitaheimili nálægl
Akranesi yfir veturinn. Þarf
að geta kennt bæði bömum
og unglingum tungumál o. fL
Uppl. Laugavegi 43, 1. hæð,
til laugardags.
eru komnir. — Einnig:
Lífstykki,
Iíorselett,
Brjósthöld,
Belti.
Hafnarstræti 11.
til sölu og sýnis. Grettisgötu
45, frá kl. 5—8 i kvöld. —
Eldri kona
óskast við létt innanhúss-
störf. Kaup eftir samkomu-
lagi. Frítt fæði og húsnæði.
Uppl. á Hverfisgötu 14, frá
kl. 6—9 í kvöld.
Húseigendur!
Er enginn svo hjartagóður
að vilja leigja mér, þar sem
eg er alveg á götunni, 1—2
herbergi og eldhús í vetur.
Má vera í kjallara eða hvar
sem er. 4 í heimili, engin
smáböm. Góð umgengni.
Skilvís greiðsla. — Tilboð,
merkt: „Á götunni“, sendist
Visi fyrir mánudagskvöld.
Gólflakk
j»pímiior
VÖNDUÐ
Svefnherbergis-
húsgögn
óskast til kaups. — Uppl i
síma 4507.1