Vísir - 05.09.1942, Page 2
VISIR
Setuliðsvinnan:
Dagsbrún geíur verka-
mönnum óbundnar hendur
Hún afturkallar áskorunina um að
þeir vinni áfram.
Stjórn Dagsbrúnar kom saman á fund í gærkveldi og gekk
frá ályktun varðandi verkamenri og landvarna- eða setuliðsvinn-
una, sem hún tíðast er nefnd. Með ályktun þessari eru verka-
menn, eins og sakir standa, látnir hafa óbundnar hendur um
það hvort þeir vilja vinna áfram hjá setuliðinu, þrátt fyrir það,
að setuliðsstjómin hefir ekki tekið fullnaðarákvörðun í tilefni
af hinum nýja vinnusamningi Dagsbrúnar og Yinnuveitenda-
lélagsins. Hefir setuliðsstjómin þessi mál til athugunar. Mun
bráðlega koma í ljós, sennilega í dag, hvort menn hverfa úr
setuliðsvinnunni eða starfa þar áfram enn um sinn upp á sömu
kjör, í von um samkomulag á grundvelli nýja vinnusamningsins.
VÍSIP
DAGBLAÐ
Gtgefandi:
BLAÐAÚTGÁFAN VÍSIR H.F.
Ritstjórar: Kristján Guðlaugsson
Hersteinn Pálsson.
Skrifstofa: Félagsprentsmiðjunni.
Afgreiðsla Hverfisgötu 12
(gengið inn frá Ingólfsstræti).
Símar: 1 6 60 (fimm línur).
Verð kr. 4,00 á mánuði.
Lausasala 25 aurar.
Félagsprentsmiðjan h.f.
Traust
eða vantraust.
tj INS og frá hefir verið skýrt
hér í blaðinu, hafa Fram-
sóknarmenn á Alþingi borið
fram þingsályktunartillögu, sem
sú grein er gerð fyrir í fyrir-
sögninni, að hún sé „viðvikjandi
núverandi ríkisstjórn“, og að
efni til er á þá leið, að með þvi
að vitanlegt sé, að ríkisstjórnin
hafi ekki lengur meirihluta
þings að baki sér, en ekki sjá-
anlegt að unnt verði að mynda
meirihlutastjórn á þessu þingi,
þá verði að „líta á rikisstjómina
sem starfandi til bráðabirgða“.
Menn hafa verið að brjóta
heilann um það, síðan tillaga
þessi birtist, hvort heldur yrði
að lita á hana sem trausts- eða
vantrauststillögu. Sannleikurinn
er sá, að síðan Alþýðuflokkurinn
og Sócíalistaflokkurinn lýstu yf-
ir afstöðu sinni til rikisstjórn-
arinnar á dögunum, hafa menn
verið að húast við því, að fram
mundi koma tillaga um van-
traust á stjórnina frá Framsókn-
arflokknum. Yfirlýsing for-
manns flokksins í sameinuðu
þingi um það, að flokkurinn
væri i andstöðu við ríkisstjórn-
ina, var alveg óþörf, af því að
sú afstaða flokksins var alkunn,
og liún var alveg þýðingarlaus,
af því að hún skar ekkert úr
um það, hvort flokkurinn vildi
una því, að ríkisstjórnin færi á-
fram með völd eða ekki. Hins-
vegar virðist nú alveg úr þessu
skorið með jieirri þingsályktun-
artillögu flokksins, sem nú er
fram komin. I þeirri tillögu felst
alveg ótvirætt, að flokkurinn
telur ekkert annað fært en að
núverandi ríkisstjórn sitji á-
fram við völd til næsta þings.
I greinargerðinni fyrir tillög-
unni er þetta undirstrikað, með
tilvísun til yfirlýsinga Alþýðu-
flokksins og Socíalistaflokksins
um, að þeir „mundu ekki leng-
ur hindra vantraust, ef fram
kæmi. Og einmitt fyrir þá sök
vill Framsóknarflokkurinn ekki
bera fram vantraustið, að hann
telur að það hlyti þá að verða
samþykkt og ríkisstjómin að
biðjast lausnar.
Nú er það auðvitað sannast
mála, að yfirlýsingar Alþýðu-
flokksins og Socialistaflokksins,
um breytta afstöðu til ríkis-,
stjórnarinnar, eru ekkert annað
en orðin tóm, úr því að þeir
fylgja þeim ekki eftir með van-
taustsyfirlýsingu. En söm er
gerðin Framsóknarflokksins
eigi að síður, þegar hann nú
finnur sig til þess knúinn, að
hlaupa í skörðin fyrir þá með
alla sina 20 þingmenn, til þess
að bæta ríkisstjórninni upp
missi þeirra 12 þingmanna, sem
þá flokka fylla nú. Og í raun-
inni verður að líta svo á, að ef
þessi þingsályktun framsóknar-
manna nær fram að ganga, þá
verði við það sú breyting ein á
afstöðu Alþingis til rikisstjóm-
arinnar, að stjórnin fái yfirlýst
ef til vill samhljóða þingfylgi
til þess að fara með völdin á-
fram til næsta þings, í stað þess
að orkað. gæti tvímælis um það
ella, hvert fylgi hún hefði til
þess. En þó að því sé hnýtt aftan
í ályktunina, að líta verði á
ríkisstjórnina „sem starfandi til
bráðabirgða", þá skiftir það alls
engu, því að valdaaðstaða rikis-
stjórnarinnar breytist ekkert
við það.
Tillaga þessi var rædd á fundi
Sameinaðs þings í gærkveldi.
Hófst umræðan kl. 10 og stóð
yfir í tæpa klukkustund, en at-
kvæðagreiðslu var frestað. For-
maður Framsóknarflokksins
fylgdi tillögunni úr hlaði með
stultri og hógværri ræðu. Kvað
hann tillöguna fram borna í
því skyni að gengið yrði úr
skugga um það, hvert þingfylgi
rikisstjórnin hefði að baki sér.
Hinsvegar taldi hann að ekki
mundi fært að skifta um stjórn
að svo stöddu, enda mundi eng-
inn kostur á betri stjórn, eins
og nú væri komið málum, þó
að núverandi ríkisstjórn mundi
að sjálfsögðu, eins og aðrar
stjórnir,£Íga sínar syndir á bak-
inu. Forsætisráðherra svaraði
með því að visa til fyrri yfirlýs-
inga sinna, þess efnis, að nú-
verandi ríkisstjórn liefði sjálf
frá upphafi litið á sig sem minni-
hlutastjórn, starfandi til bráða-
birgða, og tillagan, þó að sam-
þykkt yrði, breytti því í engu
aðstöðu hennar, að dómi hennar
sjálfrar. Hinsvegar væri það á
\aldi Alþingis að skifla um rik-
isstjórn, þegar því Jxetti það
tímabært. — Engir aðrir tóku
til máls, nema hvað Sveinbjörn
Högnason reyndi af veikum
mætti að teygja svolítið úr um-
ræðunum og krydda þær með
sínum venjulega munnsöfnuði.
Wyveitt presta-
köll.
Nýlega hefir ísafjarðarpresta-
kall verið veitt sira Sigurði
Kristjánssyni, sem, áður var
prestur í Hálsprestakalli í
Fnjóskadal. Eins og áður var
getið hér í blaðinu fór fram
prestskosning í Isaf jarðarpresta-
kalli fyrir nokkuru og var kosn-
ing ólögmæt, en síra Sigurði
hefir nú verið veitt embættið
frá 1. þ. m.
Sömuleiðis hefir Svalbarðs-
þinga-prestakall í Norður-Þing-
eyjarprófastsdæmi verið veitt
síra Hólmgrími Jósefssyni að
Skeggjastöðum. Hann var eini
umsækjandinn um prestakallið,
en kosning var ekki lögmæt.
Síra Erlendi Sigmundssyni
hefir verið veitt Seyðisfjarðar-
prestakall frá 1. sept. Þar voru
tveir umsækjendur og var sna
Erlendur kosinn lögmætri kosn-
ingu.
ALÞINGI
Drykkjumannahæli.
TiIIaga til þál. um drykju-
mannahæli var til umræðu í
Sameinuðu þingi i gær. Var hún
flutt af þingmönnum úr öllum
flokkum. Tillögunni var vísað
til ríkisstjórnarinnar með 24 at-
kv. gegn 19, til frekari undir-
búnings fyrir næsta þing.
Skipulagning vinnuaf lsins.
Sameinað Alþingi samþykkti
í gær tillögu þá til þingsályktun-
ar, sem allsherjarnefnd lagði
fram, um skipun vinnuaflsins.
Skv. tillögunni verður skipuð
milliþinganefnd, svo sem áður
hefir verið getið, til gagngerðrar
athugunar á sviði atvinnumál-
anna.
Frumvarp sjálfstæðismanna
um raforkusjóð orðið að lögum.
Frv. þetta, en með því er stig-
ið stórt spor í rafveitumálum
sveitanna, var afgreitt í gær sem
lög frá Alþingi. Flutningsmenn
Alyktun ’Dagsbrúnarstjórnar-
innar hefir nú verið birt og er
hún undirskrifuð af varafor-
nianni félagsins.
í upphafi tilkynningarinnar
er skýrt frá hinum nýja vinnu-
samningi, sem undirritaður var
24. f. m. Tveim dögum síðar var
samningurinn sendur í enskri
þýðingu til yfirherstjórnar setu-
liðs Bandaríkjanna hér, í þeim
tilgangi, að samningar tækjust
einnig um þá verkamenn, sem
vinna hjá setuliðinu. 28. ágúst
hirti stjórn Dagsbrúnar áskorun
til verkamanna hjá setuliðinu
um að skipta ekki um vinnustaði
meðan samnmgar væru óút-
kljáðir. Aðalástæðan fyrir’ á-
skoruninni var sú, að fulltrúi
setuliðsstjómarinnar hefir oftar
en einu sinni hótað að flytja inn
erlenda verkamenn, og að hver
sá verkamaður, sem hyrfi úr
setuliðsvinnunni ætti þangað
ekki afturkvæmt. Stjóm Dags-
brúnar þóttist sjó þá hættu
framundan fyrir isl. verkalýð,
að atvinnuleysi hæfist aftur og
taldi sér skylt að vara verka-
menn við. Nú er svo komið að
verkamenn í landvarnavinnunni
hafa frá 22. ágúst unnið sam-
kvæmt samningum, sem þangað
til giltu milli Dagsbrúnar og
Vinnuveilendafélagsins, og liafa
því miðað við aðra verkamenn,
farið algerlega varhluta þeirra
kjarahóta, sem hinn nýi samn-
ingur felur, í sér. Þetta hefir allt
verið skýrt fyrir amerísku setu-
liðsstjórninni. í lok tilk. segir
svo:
Stjóm Dagsbrúnar er þeirrar
skoðunar, að enginn geti vænzt
þess að verkamennimir í land-
vamavinnunni vinni lerigur upp
á sömu kjör og hingað til.
Stjóm Dagsbrúnar álítur, að
hún og meðlimir Dagsbrúnar í
landvarnavinnunni hafi þegar
gert fulla skyldu sína og reynt
eftir megni að afstýra þeim af-
leiðingum, er hlotizt gætu af af-
stöðu herstjómarinnar til þess-
ara mála. Fari svo, að land-
varnavinna verði ekki lengur op
in íslenzkum verkamönnum, þá
álítur félagsstjómin, að Vmf.
Dagsbrún hafi gert allt, sem í
þess valdi stóð, til þess að af-
stýra því.
Verkamennimir í landvarna-
vinnunni hafa til fulls farið eft-
ir áskomn Dagsþrúnarstjómar-
innar og sýnt með því félagi
sínu, verkalýðsstéttinni og þar
með allri þjóðinnl þegnskap,
sem ber að þakka og viður-
kenna.
Vegna þess, er að framan
þess voru Ingólfur Jónsson, Sig-
urður Bjarnason, Gunnar Thor-
oddsen og Jón Pálmason.
Mikilvæg breyting var gerð í
efri deild, þ. e. að frumvarpið ,
næði einnig til hinna smærri
kauptúna.
greinir, lýsir stjóm Vmf. Dags-
brún því yfir, að hún afturkallar
hér með fyrri áskorun sína til
verkamanna í landvamavinn-
unni um að skifta ekki um
\
vinnustað.
Beykjavík, 4. sept. 1942.
f.h. stjórnar Vmf. Dagsbrún
Helgi Guðmundsson,
varaformaður.
Vísi hefir þótt rétt að skýra
ítarlega frá tilkynningu Dags-
Tilraunirnar með bóluefnið
fara fram á þann liátt, að 5 grís-
ir hafa verið teknir og allir
verið sýktir, en samtímis þvi
hefir blóðvatni (þ. e. bólusetn-
ingarefninu) verið sprautað í
fjóra þeirra, en aðeins einn grís-
inn er látin afskiptalaus, til að
munurinn sjáist á veikindum
hans og þeirra, sem bólusett-
ir hafa verið.
Nú sem stendur er mestur
sótthiti í þeim grísnum, semekki
var bóiusettur, svo að gera má
sér vonir um að bóluefnið beri
tilætlaðan árangur. Fái svinin
bata er þar um lífstíðarvörn
gegn svínapestinni að ræða.
Veikin er þegar komin upp í
10 búum og munu um 260 svín
vera dauð, þar af um 100, sem
slátrað hefir verið heilbrigðum,
til þess að forða þeim frá veik-
inni og koma í veg fyrir að
kjötið skemmist.
Annars sagði Ásgeir, að nokk-
uð bæri á ótta hjá fólki að kaupa
svínakjöt um þessar mundir, en
hann sagði að það væri ástæðu-
laus hræðsla. I fyrsta lagi væri
aðeins um gott svínakjöt að
ræða á markaðnum og af ósýkt-
um svínum, en í öðru lagi væri
kjötið alls ekki hættulegt fyrir
menn, þó þess væri neytt af
sýktum svínum.
Þá sagði hann ennfremur, að
fyrir svínaeigendur væri það all-
mikil vörn að sjóða matinn í
s\ínin. Sumir teldu hann þá að
vísu ekki eins hollan, en það
væri alls ekki rétt. Ef maturinn
væri soðinn jafnaðist fæðan yf-
irleitt miklu betur, og ef gefið
væri grænmeti, smári, arfi eða
gras með matnum, væri það til
mikilla bóta.
Annars sagði Ásgeir, að vegna
þess hve svínapestin væri næm,
væri ákaflega mikil hætta á því
að hún yrði hér landlæg. Þar af
brúnarstjórnarinnar, þar sem
mál þessi varða hag fjölda
manna, og breytt viðhorf á sviði
atvinnulifsins kann að vera yf-
irvofandi. Verður það rætt itar-
legar hér i blaðinu.
S j ómannadeilan.
Samkomulagsumleitunum í
sjómannadeilunni er haldið á-
fram. Að því er Vísir hefir fregn-
að kom fram hugmynd í málinu
í fyrrinótt, frá sáttanefnd, sem
stjórn Eimskipafélagsins var
heðin að taka afstöðu til. Hefir
stjórn Eimskipafélagsins gefið
svar sitt við þessari liugmynd
og var það afhent um kl. 7
i gærkveldi. Um samkomulags-
horfur verður ekkert frekara
sagt en áður, á þessu stigi, ann-
að en það, að meðan samkomu-
lagsumleitunum er haldið áfram
er þó von um árangur. Mikið
liggur við að þessi deila leysist
hið skjótasta, og er það ósk allra,
sem bera velferð lands og þjóð-
ar fyrir brjósti, að sættir komist
á nú þegar.
leiðandi ylti mjög á því, hversu
tækist til með bóluefnið.
Um hundapestina sagði Ás-
geir, að hún herjaði bæði á Aust-
ur-, Norður- og Suðurlandi, og
í Eyjafirði hefði hún komizt í
eitt refabú. Er hún nýkomin
þangað og þó eru 4—5 dýr þeg-
ar dauð.
Taldi Ásgeir að hér væri held-
ur ekki um annað að ræða en
að bólusetja bæði hunda og refi
framvegis, því útlit væri fyrir
að veikin herjaði hér í nokkur ár
eða jafnvel áratugi. M. a. væri
mikil hætta á því, að sá hunda-
stofn, sem risi upp að nýju hér
í nágrenni Reykjavíkur smitað-
ist af hundum úr sýktu héruð-
unum.
Hjúskapur.
Nýlega hafa verið gefin saman í
hjónaband af síra Sigurbimi Ein-
arssyni ungfrú Gróa Sigríður Þor-
geirsdóttir frá Lambastöðum í Garði
og Walter R. Laurence.
Gefin verða saman í hjónaband
í dag ungfrú Ragnheiður Þórunn
Jónsdóttir og Vilhjálmur Kristinn
Ingibergssog. Heimili þeirra verður
á Hverfisgötu 104C.
Nýlega voru gefin saman í hjóna-
band af sira Sigurbimi Einarssyni,
Guðrún Sigriður Jónsdóttir og Að-
alsteinn Guðmundsson stud. jur. —
Heimili þeirra er á/Lokastig 2.
Hlutavelta.
Glimufélagið Ármann heldur hina
góðkunnu árlegu hlutaveltu sina þ.
13. þ. m. i Í.R.-húsinu, sem Iþrótta-
félag Reykjavíkur hefir góðfúslega
lánað. Söfnun muna er nú þegar
hafin og heitir félagið á alla vel-
unnara þess að taka vel á móti sendi-
mönnum, er koma í erindagjörðum
fyrir hlutaveltuna.
Dansleikur S.A.R„
sem auglýstur var í gær, verður
í kvöld kl. 10 og verða aðgöngu-
miðar seldir í Iðnó frá kl. 6—9.
Af misgáningi stóð í auglýsingunni,
að dansleikur þessi yrði haldinn í
gærkvöldi, en það er ekki rétt.
Húsdýrasjúkdómaj:
260 svín eru dauð.
Tilraunir gerðar með nýtt bóluefni.
Handapestin drepnr refi í Eyjafirði.
Samkvæmt upplýsingum sem Vísir fékk í dag hjá Ásgeiri Ein-
arssyni, dýralækni, er nú búið að fá amerískt bóluefni við
svínapestinni og standa þessa daga yfir tilraunir með það. —
RÚMGÓÐUR
suEnarbðslaQor
óskast til leigu sem næst
bænum. Þarf að vera raflýst-
ur. Tilboð sendist Vísi fyrir
n. k. þriðjudagskvöld, merkt:
„Sumarbústaður“.
Stúlka
óskar eftir mðskonustöðu á
fámennu lieimili í bænum. —
Uppl. í síma 3704, laugardag
3—7 e. h.
Vanar
stnlknr
og lærlingar óskast strax eða
síðar.
SAUMASTOFA
Guðrúnar Amgrímsdóttur.
Bankastræti 11.
sem eiga að birtast í Vísi
á laugardögum, þurfa
helzt að berast blaðinu
fyrir kl. 6 á föstudögum
eða í síðasta lagi kl. 19
f. h. á laugardögum.
Stúlka
óskast til morgunverka.
SIGRÍÐUR THEODÓRS.
Reynimel 54.
Cítrónur
nýkomnar,
vma
Laugavegi 1.
Fjölnisvegi 2.
Munið að VISCOL leðurfeiti
margfaldar endingu vinnu-
stígvéla yðar og gerir þau
vatnsheld.
Gólflakk
þpFroiMr