Vísir - 26.09.1942, Page 2
VISIR
Útgefandi:
BLAÐAÚTGÁFAN VÍSIR H.F.
Ritstjórar: Kristján Guðlaugsson
Hersteinn Pálsson.
Skrifstofa: Félagsprentsmiðjunni.
Afgreiðsla Hverfisgötu 12
(gengið inn frá Ingólfsstrœti).
Símar: 16 30 (fimm línur).
Verð kr. 4,00 á mánuði.
Lausasala 25 aurar.
Félagsprentsmiðjan h.f.
Bifreiða-
einkasalan.
jyjorgunhlöðin skýra frá því í
dag, að fjármálaráðherra,
Jakob Möller, liafi að fengnu
samþykki annarra ráðherra, á-
kveðið að leggja Bifreiðaeinka •
söluna niður. Er þetta svo sjálf-
sögð ráðstöfun, að flesta hefir
undrað, að til þessa ráðs skuli
ekki hafa verið gripið fyr, og
einskis saknaðar verður vart í
blöðunum, — jafnvel ekki þeim,
sem fyrir einkasölunni börðust
í upphafi.
I Vesturheimi hefir mjög ver-
ið um það.rætt frá þvi er Banda-
ríkin fóru í stríðið, að nauðsyn
bæri til að hafa opinbert eftirlit
með framleiðslu og sölu einka-
bifreiða, en i umræðum, sem
fram hafa farið i blöðunum um
það mál, hefir rík áherzla verið
lögð á að slíkt eftirlit myndi í
senn rcynast hvimleitt og hald-
laust og bæri að forðast það í
lengstu lög. Er lieldur ekki vit-
að, að þorfið hafi verið að því
ráði, enda eru Bandaríkjaþegnar
litlir dáendur ríkiseinkasölu og
of nærgönguls opinbers eftirlits.
í ritinu „Fortune“ birtist ný-
lega grein um þessi mál, sem
var mjög atliyglisverð fyrir okk-
ur íslendinga, með því að heita
mátti, að þar væri nákvæm lýs-
ing á ástandinu hér, þótt þar
væri að sjálfsögðu rætt almennt
um einkasölu og opinbera út-
hlutun bifreiða. Var þar komizt
að þeirri niðurstöðu, að vand-
kvæðin á opinberri úthlutun
bifréiða væru svo mikil, að ekki
væri í mál takandi að koma
því á.
í þessu efni höfum við lært af
reynslunni, og mun óhætt að
fullyrða, að hún sé sú, að bæði
ríkisstjórn, einkasalan, bifreiða-
stjórar og umboðsmenn bif-
reiðaframleiðenda munu vera
jafnfegnir að losna við þessa
vandræðastofnun. Nefndir þær,
sem skipaðar liafa verið til þess
að hafa úthlutun bifreiðanna með
liöndum, hafa ekki reynst þess
umkomnar, að fullnægja svo
eftirspurn, að kurr og óánægja
hafi ekki stöðugt ágerzt. Leiddi
þetta til þess að fjármálaráðu-
neytið neyddist til að láta til sín
taka um úthlutun bifreiðanna,
þótt það væri engan veginn
æskilegt. Til f jármálaráðherrans
leituðu bifreiðastjórar,sem mis-
rétti þóttust beittir, — og að
sjálfsögðu héldu allir því fram,
að þeirra væri rétturinn, en ann-
arra ekkL Kvað svo mjög að
þessari áleitnL að enginn vinnu-
friður var í ráðuneytinú oft og
einatt, ög eiiginn vegur (21 að
ná tali af ráðherra vegna atln-
ara erinda á venjulegum viðtals-
tíma hans, hema að sérstaklega
væri um sanfið fyrirfranv Eins
var því farið ttieð stjómend-
ur Bifreiðaeitíkasölunnar. Þeir
voru með öllu friðlausir fyrir á-
sókninni, ög urðu jafnvel stund-
um að fara huldu höfði. í»að
var enginn vegur að greiða fram
úr vandræðunum á viðunandi
hátt, og voru þó allir aðilar þár
af fulluiii vilja gerðir.
Bifreiðaeinkasalan hefir nú
starfað ttm nokkurra ára skeið.
Illa var hún séð í upphafi, en
stöðugt liefir óánægjan ágerzt,
fyrst og fremst meðal bifreiða-
stjóranna og almennings, — án
þess þó að andstæðingar einka-
sölunnar gerði nokkuð til að
spilla áliti hennar, á einn eða
annan Iiátt. Stórfelld spilling
hefir flotið í kjölfar einkasöl-
unnar, sem ekki var auðvelt að
sjá fyrir í uppliafi, og enn erf-
iðara að bæta úr síðar, þótt
reynt væri. Skal það mál ekki
rakið að sinni, en vel má vera að
að þvi verði vikið siðar.
Beti*a er seint en aldrei, og
þótt full ástæða hefði verið* til
að afnema Bifreiðaeinkasöluna
fyrir löngu, er mikil landhreins-
un gerð með því að afnema hana
nú. —•
Blaðamannafélags
íslands á þriðju-
daginn kemur.
Blaðamannafélag íslands
mun n. k. þriðjudagskvöld halda
kvöldvöku í Oddfellowhúsinu,
er hefst kl. 9 stundvíslega. —
í hitteð fyrra hélt Blaða-
mannafélagið kvöldvöku að
Hótel Borg og urðu þær allra
skemmtana vinsælastar, enda
vandað meira og betur til
þeirra en venjulegt er um
skemmtanir.
I vetur liefir Blaðamannafé-
lagið ákveðið að taka þetta mál
upp að nýju og gefa bæjarbú-
uin kost á skemmtunum með
lífrænna og fjörugra sniði en
bæjarbúar hafa átt að venjast.
Verður fyrsta kvöldvakan
n. k. þriðjudagskvöld og hefir
Blaðamannafélagið aflað sér
ýmissra ágætra og jafnframt fá-
gætra skemmtikrafta.
Meðal skemmtikraftanna má
fyrst og fremst telja Piál Isólfs-
son, sem verður þulur kvölds-
ins, ennfremur rabb um daginn
og veginn — eða laugardaginn
og'Laugaveginn sem Árni Jóns-
son frá Múla flytur. Ragnar Jó-
hannesson blaðamaður les upp,
Hallgrímur Helgason tónskáld
leikur á slaghörpu, Þorsteinn
Hannesson söngvari syngur
nokkur lög. En auk þessa eru
nokkur atriði, sem fágæt eru á
skemmtunum og ekki verða
nefnd hér.
Ætlast er til að skemmtunin
Iiefjist stundvíslega, og jieir sem
ekki mæta í tæka tíð eiga á
hættu að missa af beztu
skemmtiatriðunum.
Hvert skemmtiatriði mun
taka 5—10 mínútur eflir ástæð-
um, en að síðustu mun verða
stiginn dans.
Hlutaveltu
heldur Barnakórinn Sólskins-
deildin á morgun, í stóra salnum í
nýbyggingunni á Laugaveg 39.
MeÖal annars verða þar 2 nýir guit-
arar, mandólín, 3 málverk, 12
manna matarstell, 2 tonn af kolum
og appelsínur og epli. Kórinn hef-
ur gluggasýningu á Laugaveg 1.
Háskólinn:
Aukin starfsemi
í vetur,
Háakóli íslands tekur til starfa
mánnd. 28. sept. VerCiir starf-
setni hans enn aukin frá því,
sem verið hefir.
Samkvæmt hinni nýju há-
skólareglugerð verður komið á
kennslu til B. A. prófs (baccca-
lanreus artium). t þessu námi
geta menn valið sér 3 náms-
greinar á þann hátt, að taka 3
stig í einni námsgrein, 2 stig
í annari og eitt í hinni þriðju,
en hvert stig er miðað við á-
kveðnar þekkingarkröfur: eitt
Kapella Hallgrímskirkj u
mun brátt rísa af grunni.
. * . (
Allar líkur til9 að iinnÉ verði að hefja franikvæmdir
hráðlesra.
Vísir hefir fregnað samkvæmt áreiðanlegum heim-
ildum, að nokkurar líkur séu fyrir því, að
unnt verði að hefjast handa á næstunni um
að reisa kapellu Hallgrímskirk ju (suðurvæng kirk junn-
ar) — en kapellan verður hluti hinnar miklu og veg-
Iegu Hallgrímskirkju, sem von allra góðra íslendinga
er, að komist upp í náinni framtíð, allri J) jóðinni til
blessunar. En til þess þarf ný, mikil átök, og væntan-
legamun þess skammt að bíða, að betur sæki að mark-
inu, þótt margir hafi lagt hendur að því að i*yðja fyrsta
brautarspottann að því. En betur má ef duga skal. —
Tíðindamaður frá Vísi átti
fyrir nokkuru stutt viðtal um
Hallgrímskirkjumálið við bisk-
up landsins, herra Sigurgeir Sig-
urðsson. Kvað hann von um, að
með haustinu mundi fara að
komast rekspölur á fram-
kvæmdir til þess að jkoma þessu
’ máli örugglega í höfn. Mikið
hefði verið unnið af fjölda á-
liugamanna, karla og kvenna,
fyrir málið, en hefja yrði nýtt,
voldugt átak, og sú væri trúa
sín, að það yrði gert áður langt
liði. Lagði biskup mikla áherzlu
á, að hér væri ekki aðeins um
að ræða kirkju fyrir Ilallgríms-
söfnuð í Reykjavik, því að Iiall-
grímskirkja yrði og ætti að vera
kirkja-allrar þjóðarinnar. Reyk-
víkingar myndu að sjálfsögðu á-
fram verða fremstir í flokki
til þess að hrinda málinu áfram.
Væri það þeim og ætti að vera
metnaðarmál, að hafa forystuna
í að koma upþ veglegri kirkju
í borg sinni, höfuðborg lands-
ins, og það væri þeim hvatning,
en hinu mætti ekki gleyma, liver
stoð kirkjulegu lífi, heimilislífi
og öllu inenningarlifi bæjarins
og þjóðarinnar yrði að því, að
þessi kirkja rís upp i liöfuðborg
landsms. I því róti styrjaldarinn-
ar, sem nú er, hafa margir for-
eldrar fundið sárt til þess, að
þeim og börnum þeirra er skjóls
vant, og væri enginn efi, að
Hallgrimskirkja mundi mörg-
um skjól veita og verða til efl-
ingar sönnum uppeldisáhrifum
og bættum, heimilisbrag og ó-
metanlegrar blessunar annarar.
Til þess að konia upp Hall-
grimskirkju, veglegustu kirkju
landsins, þarf mikið fé. Og eng-
inn hugsar svo hátt, að kirkjan
komist upp á skömmum tíma.
Enda er það ekki höfuðatriðið.
Aðalatriðið er, að menn leggi j
grundvöllinn sem traustastan j
nú, meðan skilyrði eru fyrir
hendi, og menn eiga hægast með
að styðja að framgangi málsins.
Nú er, sem fyrr var getið, von
um, að hafizt verði handa um
að reisa kapelluna í haust eða
vetur, og er það von góðra
manna, að erin sannist hér, að
stig táknar minnstu kröfur, en
3 stig mestu kröfur. Fyrst í
stað geta menn valið um þess-
ar námsgreinar: Islenzku (að-
eins 3 stig), ensku, frönsku,
latínu, þýzku og forspjallsvís- !
indi, en próf í þeim er reiknað
eitt stig. Gert er ráð fyrir, að j
nám þetta taki 3 ár og veiti hald-
góða þekkingu i þessum málum.
Nám þetta er eingöngu fyrir
stúdenta.
Þá verður komið á siðdegis-
og kvöldnámsskeiðum fyrir
starfandi verzlunarmenn, svo
sem tilkynnt var s.l. vor, og eru
námsskeið þessi að mestu Ieyti
fullskipuð, Sú kennsla hefst um
20. október og verður nánar til-
kynnt um hana síðar.
Skrásetningarfrestur stúdenta
er til 3. október, og verða
stúdentar þá að vera komnir til
náms.
„hálfnað er verk þá hafið er“.
Með því að reisa kapelluna nú
er og bætt úr brýnni nauðsyn
Hallgrímssafnáðar, sem, þarna
fengi aðsetur fyrir starfsemi
sína, en núverandi aðstæður
presta og safnaðar — að því er
starfsskilyrði snertir —• eru
mjög erfiðar. Ráðgert er að kap-
ellan rúmi 250—300 manns í
sæti.
Walterskeppnin.
K. R. og Valur
heyja úrslitaleikinn,
Á morgun fer fram síðasti
opinberi kappleikur í knatt-
spyrnu á þessu sumri. Eru það
Valur og K. R. sem heyja úr-
slitaleikinn í Waltersfeeppn-
inni kl. 5 á íþróttavellinum. -—
Það mun mörgum leika for-
vitni á að sjá Jæssi félög keppa
síðasta leikinn á Jiessu sumri.
Annarsvegar keppir tvímæla-
laust Iiezta félagið í meistara-
flokki, því að Valur hefir unnið
öll meistaraflokksmót á'sumr-
inu, en liinsvegar er K. R. eina
félagið sem hefir unnið Val á ;
sumrinu — en það var á Islands- ’
mótinu. , í
K. R.-ingar eru harðskeyttir
þegar þeim tekst upp, og á morg-
un þarf ekki að efa, að þeir
munu gera sitt ítrasta til að bera
sigur úr býtum.
ir riosiaiaiir
til að ráða bót á
rnrn
I gær lágu tillögur frá húsa-
leigunefnd fyrir bæjarráðsfundi.
Voru þær í meginatriðum sam-
þykktar, en efni þeirra er í
stuttu máli sem hér segir:
Láta lagfáera 20 íbúðarlier-
bergi, sem til eru á Korpúlfs-
stöðum. Að leitað verði sam-
komulags um að fá 20 sumar-
bústaði við Vatnsenda, sem eru
íbúðarhæfir, svo og aðra not-
hæfa sumarbústaði í grennd við
bæinn. Að kosinn verði sér-
stakur húsnæðisráðunautur,
sem aðstoði húsnæðislaust* fólk
annarsvegar, en leiðbeini bæjar-
stjórn hinsvegar um að finna
leiðir til að draga úr húsnæðis-
vandræðunum. Að ógiltar verði
með bráðabirgðalögum, upp-
sagnir á ibúðarhúsnæði, miðað
við 1. okt. þ. á., nema þar sem
leigutakar koma ósæmilega
fram. Að bæjarstjórnin fái
lagaheimild til að framkvæma
útburð á þeim, sem hafa fengið
ólögleg húsnæði í bænum, og
lagaheimild til að taka til af-
nota ónotað eða lítt notað hús-
næði. Og loks að borgarstjóri
og bæjarstjórn beiti sér fyrir
þvi, að vinnuafl og efni verði
fyrst og fremst varið til að Ijúka
við þær íbúðarbyggingar, sem
nú eru í smíðum.
Bæjar
fréttír
Messur á morgun.
í dómkirkjunni kl. n, síra Bjarni
Jónsson; kl. 5, síra Friðrik Hall-
grímsson.
Nesprcstakall. Messað í kapellu
háskólans kl. 2 e. h.
Laugarnesprestakall. Messa'S kl.
2, sr. Garðar Svavarsson.
Fríkirkjan í Reykjavík. Messað
kl. 5, síra Árni Sigurðsson.
Hafnarfjarðarkirkja. Messað kl.
5, síra Garðar Þorsteinsson.
Brautarholtskirkja. Messað kl.
13 (barnaguðsþjónusta), síra Hálf-
dan Helgason.
Bessastaðakirkja. Messað kl. 2,
sira Garðar Þorsteinsson.
Naeturlæknar.
í nótt: Halldór Stefánson, Rán-
argötu 12. Sími 2234. Næturvörður
i Reykjavikur apóteki.
Aðra nótt: Kjartan Guðmunds-
son, Sólvallagötu 3. Sími 5351. Næt-
urvörður í Lyfjabúðinni Iðunni.
Anglia
hélt fjölsóttan fund i gærkvöldi.
Hófst hann með því, að Sigurður
B. Sigurðsson konsúll ávarpaði
gesti og minntist Howard-Smith
sendiherra með hlýjum orðum, og
vottaði fundurinn hinum látna virð-
ingu sína. Þá hófst fyrirlestur Árna
Jónssonar frá Múla, er fjallaði um
ísland og íslendinga. Var það langt
erindi og snjallt, er fékk hinar beztu
undirtektir. Fundurinn fór prýði-
lega fram og skemmtu menn sér
svo vel, sem á varð kosið.
Fimmtug
er í dag frú Guðlaug Gisladótt-
ir, Hringbraut 148, kona Sigurjóns
Á. Ólafssonar, alþingismanns.
Iíathleen Long,
brezki píanósnililngurinn, hélt
aðra hljómleika sina i Gamla Bíó
í gærkvöldi fyrir troðfullu húsi og
við mikinn fögnuð áheyrenda. Á
morgun heldur hún næstsíðustu
hljómleika sína í Gamla Bíó kl. 3.
Aðgöngumiðar fást hjá Bókaverzl-
un Sigf. Eymundssonar, Sigriði
Helgadóttur og í Hljóðfærahúsinu.
Dansleik
heldur Kvennadeild Slysavarna-
félagsins annað kvöld í Oddfellow-
húsinu. Dansað verður bæði uppi
og niðri.
Útvarpið í kvöld.
Kl. 19,25 Hljómplötur: Þjóðlög
frá ýmsum löndum. 20,00 Fréttir.
20,30 Leikrit: „Kunningjar", eftir
Harold Brighouse (Soffía Guð-
laugsdóttir, Tómas Hallgrímsson,
Finnborg Örnólfsdóttir, EddaKvar-
an). 21,05 Útvarpstríóið: Einleikur
og tríó. 21,30 Hljómplötur: Gamlir
dansar. 21.50 Fréttir. 22.00 Dans-
lög til kl. 24.
Útvarpið á morgun.
Kl. 12,10 Hádegisútvarp. 14,00
Messa í Hallgrímssókn (séra Jakob
Jónsson). Sálmar: 24, 400, 354,
394, 14). 15,30 Miðdegistónleikar
(plötur): Tónverk eftir Wagner,
sungin og leikin. 19,25 Hljómplöt-
ur: Strauss-valsar. 20,00 Fréttir.
20,20 Einleikur á fiðlu (Þórir Jóns-
son): Sónata í D-dúr eftir Beét-
hoven. 20,35 Erindi: Trúin á Ól-
ympsguði, III (Jón Gíslason dr.
phil.). 21,00 Hljómplötur: Létt
sönglög. 21,15 Upplestur: „Það er
einhver að hringja“, þýdd saga.
(Jón Sigurðsson kennari). 21,35
Hljómplötur: Lög úr óperunni
„Carmen" eftir Bizet. 22,00 Dans-
lög til kl. 23.
Stúlka
óskast hálfan eða allan dag-
inn lil 1. nóv. Sérherbergi.
Magnea Jónsdóttir,
Marargötu (i. — Sími 4198.
Stúlka
i vist. Hátt kaup. Sérherbergi.
Júlíus Schopka,
Shellveg 6.
Dettifoss
Lestar til Akurejxar og
Siglufjarðar á mánudag 28.
þ. m. og tii ísaf jar'ðar og Pat-
reksfjarðar á þriðjudag þ.
29. þ. in. —
Aðeins fastlofaðar vérur
koma til greina.
EIMSKIPAFÉLAG ÍSLANDS
Röskan
Sendisvein
vantar okkur strax. —- Gott
kaup. —
INGOLFSAPÓTEK.
Stúlka
óskast ihálfan daginn,
BAKARÍIÐ
Hverfisgötu 72.
2 Stúlkur
óskast á gott lieimili.
Uppl. í síma 1619.
I
er ljúffengast ís-kalt.
Flaskan 50 aura.
Stúlku
vantar í eldhúsið á Vífils-
stöðum. — Uppl. hjá ráðs-
konunni. — Simi 5611.
Walterskeppnin:
á morgun kl. 5 s.d.
K.R.-VALIJR
— Komið og sjáið SÍÐASTA LEIK ÁRSINS —