Vísir - 15.10.1942, Page 1
Ritstjórar:
Kristján Guðlaugsson
Hersteinn Pálsson
Skrifstofur:
Félagsprentsmiðjan (3. hæð)
Ritstjórar 1
Blaðamenn Simi:
Auglýsingar 1660
Gjaldkeri 5 linur
Afgreiðsla
32. ár.
Reykjavík, fimmtudaginn 15. október 1942.
213. tbl.
Landganga á Salomonseyjum
Þessi mynd er tekin á Salomonseyjum og sýnir landgöngulið ameríska flotans ráðast upp á
land til að berja á Japönum. —
Megnið af þýzka hernum
hefir enga stórborg til
vetursetu.
Ný landganga Jap-
ana á Guadalcanal.
f gæp var nýp lidsauki settui* á land.
EINKASKEYTI FRÁ UNITED PRESS, New York, í morgun.
Athygli almennings í löndum bandamanna bein-
ist nú meira en nokkuru sinni að bardögun-
um á Salomonseyjum, og þá fyrst og fremst
á Guadalcanal, sem er mikilvægust þeirra, vegna þess
að þar er mest landrými fyrir flugvelli og allskonar
bækistöðvar. í morgun var það tilkynnt í Washington,
að Japanir hefði í gærmorgun sett liðsauka á land á
Guadalcanal.
í tilkynningu flotast jórnarinnar segir eingöngu, að
Japönum hafi í gærmorgun tekizt að setja lið á land á
norðurströnd eyjarinnar fyrir vestan þann stað, þar
sem landgöngulið Bandaríkjaflotans (U. S. Marines)
hafði komið sér fyrir. Var japanska liðið flutt í flutn-
ingaskipum, en herskip voru þeim til verndar.
I tilkynningunni er þess ekki
getið, að árásir hafi verið gerð-
ar á skip Japana, en þó má gera
ráð fyrir, að þeim hafi ekki
verið leyft að framkvæma land-
gönguna alveg án þess að spyrnt
hafi verið á móti.
Nóttina áður gerðu japönslc
skip stórskotaárás á ýmsar
stöðvar Bandarikjamanna á
noðurströnd eynnar, svo og
flugvöll henar. Virðast Japanir
hafa verið við því búnir, að
gripa tækifærið til landgöngu,
þegar flotadeild Bandaríkja-
manna var ekki enn komin úr
þeim leiðangri, þegar hún hindr-
aði Iandgöngu Japana á sunnu-
daginn.
1 gær bárust fregnb' um það,
að kafbátar Bandarikjamanna
hefðu sökkt fjórum flutninga-
skipum siðuslu dagana og hefir
því skipatjón Japana numið 10
skipum á þeim tima. Síðan 7.
desember telja Bandaríkjamenn
sig hafa sökkt 200 japönskum
skipum, þar af 81 herskipi, en
laskað 209, meira eða minna,
svo að sum sé óhætt að telja af.
Hinn nýi yfirmaður flug-
deildar Bandaríkjaflotans, Mc
Cairn, undiraðmiráll, hefir látið
svo um mælt, að Bandaríkja-
mönnum muni lánast að halda
Salomonseyjum og færa út kví-
arnar þar. Auk þess sagði Mc
Cairn, að það væri farið að koma
i ljós víða á Kyrrahafssvæðinu,
að Japönum hefði verið greidd
mörg þung högg. Sagði hann,
að flugmenn bandamenna hefði
skotið niður flugvélar, sem, voru
alveg nýjar af nálinni og gæti
það táknað, að Japanir væri i
flugvélaliraki. Mc Cairn varaði
þó við of mikilli bjartsýni.
Ástralíumenn
sækja enn á.
Frá Nýju Guineu eru fregn-
irnar á þá leið, að Ástralíumenn
lialdi áfram sókn sinni norður
eftir skarðinu í Owen Stanley-
fjöllunum. Er mótspyrna Japana
öflugri hina síðuslu daga, en
Ástralíumönnum miðar þó vel
áfram við að rjúfa víggirðing-
ar þeirra.
Þegar komið er nyrzt i skarð-
ið eru 10 km.. til Kokoda, en
þangað er undan fæti. Ef Jap-
önum tekst ekki að í/Vðva sókn
Ástralíumanna í skarðinu sjálfu
munu þeir ekki geta stöðvað þá
fyrr en norðan við Kokoda.
Aleut-eyjar.
Síðan Bandaríkjamenn komu
komu sér fyrir í Andreanof-eyj-
unum í Aleut-eyjakeðjunni, hafa
þeir haldið uppi tíðum loftá-
rásum á Kiska. í síðuslu árás
urðu þeir ekki varir við neina
japanska orustuflugvél, þvi að
í næstu árás þar á undan skutu
amerískar orustuflugvélar nið-
ur 5 af 6 japönskum orustu-
flugvélum, er ætluðu að ráðast
á sprengjuflugvélarnar. Höfðu
Japanir ekki fleiri orustuflug-
vélar þarna.
Sjómeim og lier-
menn óhlýðnast.
Himmler, yfirmaður þýzku
lögreglunnar, er nú staddur í
Rómaborg.
För hans suður til ítaliu er
sett í samband við þær fregnir
um óhlýðni meðal hersins og
sjómanna, sein borizt hafa út úr
landinu.
Skipshafnir tveggja ítalskra
skipa, er áttu að fara til Afriku,
neituðu að vinna slörf sín. Her-
flokkur, er átti að fara frá
Aþenu til Afríku, neitaði að fara
um borð i skip það, sem átti
að flytja hann.
Japanskir kafbátar
við strendur U. S.
Tveim skipum hefir verið
sökkt við vesturströnd Banda-
ríkjanna.
McCain, yfirmaður flugdeilda
Bandarikjaflotans, skýrði blaða-
mönnum frá þessu. Var skipun-
lim sökkt i sömu vikunni og
skipshafnir settar á land norð-
arlega á vesturströndinni.
Opinber tilkynning frá Osló
hermir, að tvö lik hafi fundizt
i rústunum eftir árás Breta fyr-
ir nokkuru. Hafa 9 menn þá
beðið bana. Sextíu særður, en
enginn af þeim hefir látizt.
•
Tvö norsk dagblöð hafa orð-
ið að hætta að koma út vegna
pappirsleysis. Alls 98 blöð liafa
liætt útkomu síðan 9. apr. 1940.
Timoshenko heldur áfram sókninni
milli Don og Volgu.
M eirihluti hers Þjóðverja og bandamanna þeirra er nú stadd-
ur í þríhymingi í Suður-Rússlandi, þar sem toppurinn
myndast af Voronesh, en grunnlínan af fjöllum Kákasus. Á
þessu ívæði er engin stórborg, sem hægt er að nota til vetursetu,
svo að möndulsveitirnar verða að hafast við að mestu á bersvæði
í vetur, eins og í fyrra.
Ef Russar leggja i hernaðar-
aðgerðir í vetur munu þeh vafd-
lítið gera það á þessu svæði, þar
sem þeim Stafar mesta hættan
af Þjóðverjum. Þar af leiðir, að
Þjóðverjar geta ekki flutt liðið
„i skjól“, án þess að stofna vinn-
ingum sínum í sumar í hættu.
í herstjórnartilkynningu sinni
á siðasta miðnætti sögðu Rússar,
að Timoshenko 'hefði haldið á-
fram sókn sinni suður á milli
Don og Volga og getað bætt að-
stöðu sina á nokkurum stÖðum
þar.
Aldrei meiri kyrrð
í Stalingrad.
I Stalingrad hefir kyirðin
aldrei verið meiri en í gær, sið-
an hernaðaraðgerðir byrjuðu
við sjálfa borgina. Rússar gera
þó i sifellu smááhlaup, til að
bæta aðstöðu sína, því að þehn
er Ijóst, að þessi lcyrrð er aðeins
„lognið fyrir storminn“, og hans
verði ekki langt að bíða.
Þjóðverjum, miðar jafnt og
þélt áfram til Tuapse og eru
þeir aðeins 20—30 km. frá borg-
inni.
Austur hjá Mosdok hefir Þjóð-
verjum tekizt að reka fleyg inu
í varnir Rússa. Gerðu það skrið-
drekahersveitir og er nú verið að
reyna að uppræta þær.
Fyrir norðan Stalingrad hafa
Rússar allsstaðar fi’umkvæðið,
nema við Ilmenvatn.
Verkfall í L^on.
Þúsundir verkamanna í Lyon
hafa lagt niður vinnu til að
mótmæla flutningi verkamanna
til Þýzkalands, samkvæmt fregn
frönsku fréttastofunnar.
Laval gaf fyrirskipun um að
3000 verkamenn skyldu sendir
frá Lyon, en aðeins 10 buðust
til fararinnar. Þá gaf Laval
skipun um að 2990 skyldu vald-
ir af handahófi, en þegar það
fréttist, lögðu verkamenn strax
niður vinnu, sumir fóru meira
að segja á brott úr borginni.
I dag er siðasti dagur þess
frests, sem, Laval liafði til að
útvega 133.000 verkamenn
handa Þjóðverjum.
Brezk láns-
og leigulög.
Brezk láns- og leigulög eru nú
gengin í gildi að því er snertir
Bandaríkjaherinn í Bretlandi.
Það er geysilegt magn af alls-
konar vörum, sem hann þarfn-
ast, og til að spara skiparými,
liefir það ráð verið tekið, að
Maður slasast
í biíreiðarveltu.
í morgun á 12. tímanum varð
bifreiðaárekstur á horni Garða-
strætis og Túngötu. Ók íslenzk
fólksbifreið á stóra vörubifreið
flata og vellti henni um koll.
Vörubifreiðin var á leið niður
Túngötu en fólksbifreiðin kom
sunnan Garðaslræti, mun bif-
reiðastjórinn á fólksbifreiðinni
hafa ætlað sér að stíga á brems-
una, en þess í stað sligið á ben-
zínið. Varð áreksturinn svo
mikill að vörubifreiðin valt á
hliðina.
Bifreiðastjórinn í vörubif-
reiðinni gat komizt út úr bif-
reiðinni áður en bún valt, en
maður sem sat frammí hjá lion-
um, Jónas Eyvindsson verk-
stjóri bjá símanum, skarst tölu-
vert á bendi og var jafnvel gizk-
að á að hún hefði brotnað líka.
Ekki er blaðinu kunnugt um
skemmdir á bifreiðunum, en
sennilega hafa þær ekki verið
miklar á vörubifreiðinni, liins-
vegar töldu sjónarvottar að
fólksbifreiðin liefði verið illa
útlitandi að árekstrinum Iokn-
um.
flytja liráefni um lielmings
þess er liann þarfnast austur um
haf og láta brezkar verksmiðjur
vinna úr þeim. Framleiðslu-
kostnaðurinn er láns- og leigu-
lagaframlag Breta.
Með þvi að flytja hráefni í
stað fullunninna vara sparast
um % hlutar skiparýmis, sem
annai’s þyrfti.
Kínverjar hefja sókn
í gær var gefin út um það
lilkynning í Chungking, að her-
sveitir Kínverja hafi hafið sókn.
Hersveitirnar kínversku lögðu
til atlögu við Japani í Chekiang-
fylki, hjá borgunum Lanchi og
Wuhi. Engar fregnir hafa borizt
um bardaga hjá Kinhwa um
skeið, en Japönum, tókst að
koma þangað liðsauka og hindra
með því, að borgin félli í hendur
Kínverjum.
Útvarpsumræðurnar í kvöld:
Pétur Magnússon
og Stefán Stefáns-
son tala af hálfu
Sjálfstæðísmanna.
1 kvöld kl. 20.20 verða stjórn-
málaumræður í ríkisútvarpinu,
er munu standa fram til kl.
23.30.
Þátt i umræðunum taka allir
þingflokkarnir og verður röðin
sú, að Sjálfstæðisfloklcurinn
byrjar, næst verður Alþýðu-
flokkurinn, þá Framsóknar-
flokkurinn og loks Sósíalista-
flokkurinn.
Ræðutími hvers ílokkft verða
30 og 15 mínútur, tvær um-
ferðir. ...v
Fyrir hönd Sjálfstæðisflokks-
ins tala Pétur Magnússon banka-
stjóri og Stefán Stefánsson frá
Fagraskógi. -
Af Alþýðuflokksins hálfu tala
Stefán Jóh. Stefánsson alþm. og
Sigurjón Á. ólafsson alþm. og
fyrir Framsóknarflokkinn
Jónas Jónsson alþingismaður og
Þórarinn Þórarinsson ritstjóri,
og fyrir Sósialistaflokkinn Kat-
rín Thoroddsen læknir, Jó.liann-
es skáld úr Kötlum og Sverrir
Kristjánsson sagnfræðingur.
Mjúlkurskortnr
í bæuum.
I Ankara er búizt við þvi, að
Þjóðverjar muni bráðlega fara
að flytja heim frá Rúmeniu,
Ungverjalandi og fleiri löndum
á Balkanskaga fóllc af þýzkum
ættum, sem þar býr. Er liér um
5% millj. manna að ræða.
Stafaði af vélabilun
og flutningsörðug-
leikum.
Borið hefur á mjólkurskorti
i bænum undánfarna dága og
hafa margir orðið frá að hverfa
án þess að hafa fengið nokkura
mjólkurlögg með sér.
í jnorgun sáust þess líka
greiniieg merki, er gengið var
framhjá mjólkurbúðum, að
fólk var orðið áhyggjufullt út
af mjölkinni, þvi að aðsókn var
óvenjulega mikil og sumstaðar
náði ösin út úr dyrufn og út
á götur.
Vísir spurðist fyrir um mjólk-
urskort þenna hjá skrifstofu
Mjólkursamsölunnar i morgun.
Tjáði liann að mjólkurskortur-
inn í fyrradag hefði stafað af
vélabilun í mjólkurstöðinni, en
þeirri bilun hefði verið kippt i
Iag i fyrrakvöld. Mjólkurskort-
urinn i gær hefði liinsvegar staf-
að af erfiðleikum á mjólkur-
flutningum að austan í gær, og
það sama liefði verið ástæðan
fyrir mjólkurskortinum i morg-
un, þvi að mjólkin, sem fyrst
er send út á morgnana er frá
j kvöldinu áður.
I Hinsvegar tjáði skrifsíofu-
j stjórinn blaðinu, að hann vissi
; ekki annað en flutningarnir
væru komnir i lag aftur, og að
fólk þyrfti þvi ekki að kviða
mjólkurskorti eftirleiðis.
Daglega hættumerki
á Seyðisfirði.
Vísi barst svohljóðandi slceyti
frá fréttaritara sinum í Seyðis-
firði í morgun:
í dag er sjöundi dagurinn í
röð, sem loftárásaxmerki er gef-
ið í Seyðisfirði.
D-Iistinn er listi Siálfstæðisflokksins i Reykjavflc
D-LISTANN.