Vísir - 21.11.1942, Page 1
Ritstjórar:
Kristján Guðlaugsson
Hersteinn Pálsson
Skrifstofur:
Félagsprentsmiðjan (3. hæð)
32. ár.
Reykjavík, Iaugardaginn 21. nóvember 1942.
Ritstjórar
Blaðamenn Sími:
Auglýsiugar 1660
Gjaldk’eri 5 linur
Afgreiðsla
245. tbl.
Möndulherinn grefur skot-
grafir og skrið dr ekagildr ur
SV af Bizerta og Túnis.
Frakkar hafna ur-
$Iftakostnm þeirra.
IEINKASKEYTI FRÁ UNITED PRESS, New York, í morgun.
Hersveitir ítala og Þjóðverja í Tunis vinna af
kappi að því nætur og daga, að koma upp vöm-
um á þeim stöðum í landinu, þar sem ætlunin
er að verjast. Frá bandamönnum í Norður-Afríku ber-
ast þær fregnir, að möndulhersveitirnar grafi skotgraf-
ir og skriðdrekagildrur í hálfhring, sem hefst við sjó
um 50 km. fyrir vestan Bizerta og liggur þaðan suður
og austur til Hameimat-flóa.
Reynist þetta rétt, munu Þ jóðverjar og ftalir ekki
tel ja það svara kostnaði eða hafa neinn raunhæfan til-
gang að reyna að hafa sameiginlegar vígstöðvar með
Rommel frá Tripolitania. Eða þeir hafa ekki getað flutt
nægilegt lið frá Sikiley til þess að hægt væri að stofna
svo langa varnalínu og er sú skýring sennilegust og eðli-
legust, þegar þess er gætt, hve stutt er, síðan bandamenn
hófu innrásina (2 vikur í nótt) og að möndulveldin
hófu ekki flutninga til Túnis fyrr en nokkurum dög-
um síðar.
Frakkar í Tunis, sem bandamannahersveitirnar, er sækja inn
í landið, hafa ekki náð sambandi við, hafa enn neitað að leggja
niður vopn sin eða ganga í lið með möndulveldunum. Þegar for-
ingi 'setuliðsins hafði liafnað úrslitakostum möndulherjann'a,
sló þegar í bardaga og hefir þeim ekki tekizt að yfirbuga Frakka.
I fregnum frá höfuðstöðvum
handamanna í Norður-Afríku i
morgun segir, að slegið hafi-i
bardaga milli lítilla skriðdreka-
sveita þeirra og möndulherj-
anna á þrem stöðum í gær. Seg-
ir i fregnum þessum, að mönd-
ulhersveitirnar hafi allsstaðar
látið undan síga eftir stutta bar-
daga, þegar þær höfðu orðið
fyrir nokkuru tjórii.
Þegar lqftárásir eru ekki tald-
ar með, eru þetta einu hernað-
araðgerðirnar, sem getið er um
á þessum slóðum.
Bandamenn halda jafnt og
þétt áfram loftárásum á flug-
velti þá, sem ítölsku og þýzku
flugvélarnar nota, en þær fara
til árása á hafnarborgir og
flutningaleiðir bandamanna.
Fljúgandi virki eru komin til
Norður-Afriku og hafa þar
bækistöðvar.
I gær voru sex bandamanna-
flugvélar skotnar niður yfir
Norður-Afriku, aðallega í árás-
arleiðöngrum vfir Tunis. Hins-
vegar skutu bandamenn niður
níu flugvélar andstæðinganna.
Átta þeirra voru skotnar niður,
•er gerð var loftárás á Alsirborg
og voru það loftvarnaskyttur,
sem náðu helmingi þeirra.
Uppgjöf saka.
ÓUurn mönnum í Norður-
Afríku, sem settir höfðu verið i
fangelsi fyrir skoðanir sir.ar á
styrjöldinni og afstöðu Vichy-
stjórnarinnar til ítala og Þjóð-
verja, hefir nú verið gefið frelsi.
Meðal þeirra, sem hafa verið
látnir lausir, eru margir Pól-
verjar og Tékkar.
New York-blaðið „PM“ ritar
um þetta og segir, að þarna sjái
menn, hvað það þýðir raun-
verulega, að bandamenn sigri.
Sigur þeirra tákni ekki aðeins,
að borgir og lönd sé tekin og
f jandmenn felldir og reknir á
ílótta, heldur og skoðanafrelsi.
Hlutleysi
Spánar og Portúgals.
Bandamönnum hefir nú bor-
izt svar frá Spánverjum og
Portúgölum vegna orðsendingar
þeirra, er þeirn var send, þegar
innrásin í Norður-Afríku hófst.
Var hún á þá leið, að hlutleysi
þeirra skyldi virt. Svar Spán-
verja og Portúgala er á þá leið,
að þau ríki telji sér ekki stefnt
í yoða með atburðunum í Norð-
ur-Afriku.
Minningarathöfn.
Á morgun fer fram í kirkj-
unni í Rabat minningarathöfn
um þá Frakka og Bandarikja-
menn, sem fallið hafa í Norður-
Afríku. Að athöfninni lokinni
verða blómsveigar lagðir á graf-
ir hinna föllnu. Samskonar at-
hafnir fara fram i Casablanca
og Port I.yautay.
Árásir á kafbáta-
bækistöðvar.
Undanfarna daga hafa flug-
vélar bandamanna gert tíðar á-
rásir á St. Nazaire, Lorient, La
Pallice og fleiri borgir á Frakk-
landsströndum.
Ástæðan er sú, að þarna eru
helztu kafbátalægi Þjóðverja og
nú er sérstaklega mikilvægt að
geta grandað kafbátum þeirra
eða hindrað, að þeir komist í
leiðangra, þar sem svo stutt
er að fara á miðin, aðeins til
Norður-Afrikú.
Kafbátabækistöðvar Þjóð-
verja eru gríðarvel úr garði
gerðar. Hafa verið steypt feikna-
stór skýli yfir þá hluta hafn-
anna, þar sem kafbátunum er
ætlað að liafast við, þegar þeir
eru ekki í viking, og telja Þjóð-
verjar þessi skýli næstum örugg
I gegn árásum. Bandamenn eru
annarar skoðunar og því gera
þeir þessar árásir.
seint í gærkveldi komnar suður
til Agedabia við Syrtuflóa — um
60 km. frá E1 Agheila — en um
morguninn héldu aðrar deildir
hans inn í Benghazi.
Pinmmel hafði komið sér upp
bráðabirgðavörnum hjá Antilat,
sem er um 120 km. suður af
Benghazi, en hersveitum banda-
manna tókst að ryðja þeim úr
vegi með lítilli fyrirhöfn.
Jafnt og þétt er unnið að því,
að safna saman föngum, sein
helzt hafa úr lestinni hjá mönd-
ullveldunum. Þjást þeir mjög
,af þorsta og hungri, og oft
deyja þeir af þessum sökum, af
þvi að þeir finnast ekki nógu
fljótt.
Hertzog látinn.
Hertzog, fyrrum forsætisráð-
herra Suður-Afríku, er látinn.
Hertzog var lögfræðingur og
yfirdómari í Friríkinu Oranje
í S.-Afríku, sem Bretar tóku
siðan. I Búastríðinu var Hert-
zog hershöfðingi í liði Búa, en
þegar Suður-Afríkusambandjð*
var stofnað, varð hann ráðherra
i ráðuneyti Botha. Siðar stofn-
aði ‘ hann þjóðernissinnaðan
flokk og varð forsætisráðherra
samsteypustjórnar árið 1933.
Hann var aðalandstæðingur
Smuts síðustu árin og vildi að
S.-Afrika væri hlutlaus i stríð-
inu.
Laval úrillnr.
Laval hélt útvarpsræðu í gær
og kom berlega í ljós, að hann
kennir bandamönnum allt það,
sem honum gengur miður
heima fyrir.
Var ræðan að nokkru leyti
skammaræða um bandamenn,
en auk þess óskaði hann ,þess,
að hann hefði de Gaulle á valdi
sínu, því að þá mundi hann fá
það, sem hann hefði gott af.
Laval kvaðst trúa á rígur Þjóð-
verja.
Riissar reka enu
flotiaiin.
Þjóðverjar halda sem hraðast
undan norður á bóginn í Mið-
Kákasus.
Rússar telja, að manntjón
Þjóðverja, fallnir og særðir, í
bardögunum hjá Ordsjonikidse
og undanhaldinu, sé milli 15 og
20 þúsund. Auk þess hefir mik-
ið verið skilið eftir af allskonar
hergögnum.
Víðar eru allsherjar bardagar
og hafa Rússar verið í sókn. Suð-
ur af Stalingrad kveðast Rússar
m. a. hafa tekið hæð eina. Á
miðvigstöðvunum eru tíð stór-
skotaliðseinvigi.
I
Hinip særdu snúa aftup
Þessi mynd er frá Nýju Guineu og sýnir særða nienn, sem snúa aftur frá vigstöðvunum til
þess að komast í sjúkrahús. Mennirnir verða oft að ganga dögum saman frá fremstu umbúða-
stöðvum til næsta sjúkraskýlis.
' ' ' ' I ■' , ' ‘ ' : ’ :.í ' '
Guadalcanal:
Flugvöllurinn í
minni hættu.
Bandaríkjamenn hafa að
mestu bægt hættunni að austan
frá Henderson-flugvellinum á
Guadalcaital.
Þeim megin hans liöfðu Jap-
anir komið á land 1500 manna
sveit. Bandaríkjamenn létu til
skarar skríða gegn þeim eftir
nokkra daga og liafa nú fellt
um helming af þeim, en hinir
hafa leitað liælis i skógunum.
Loftárás hefir verið gerð á
Bouin á Bougainville-oy, þar
sem nokkur skip voru hæfð
sprengjum. Ellefu japanskar
flugvélar voru skotnar niður.
Ncita loftárás á
á ítulska liorg.
Mesta loftárásin, sem gerð
hefir verið á Ítalíu, síðan loft-
sóknin gegn henni hófst, var
gerð á Torino í nótt.
Eins og áður var aðallega ráð-
izt á Fiat- og Caproni-verk-
smiðjurnar, sem framleiða álit-
lcgan hluta hifreiða og flugvéla
ítala.
Að þessu sinni voru þrjár
brezkar flugvélar skotnar niður.
Nýja-Guinea:
Japanir snúast
til varnar.
Japanar hafa nú loks neyðst
til að verjast sókn bandamanna
á Nýju Guineu.
Harðir hardagar standa yfir
hjá Buna, Gona og Sapotu, sem
er um 12 km. uppi í lanÚi. Er
búið að þjappa liði Japana sam-
an á svo iitlu svæði, að þeir geta
ekki annað en snúizt til varnar.
Fregnir frá höfuðstöðvum
MacArthurs lierma, að Japanir
hafi fengið aukinn flugher til
þessara stöðva. Loftárásum er
þó haldið áfram af fullum
krafti.
Auknar vélbáta-
byggingar.
Kjötskortur í Svíþjóð og
stöðvun á innflutningi fiskjar
frá Danmörku og Noregi, hafa
leitt til þess að fiskimenn Iands-
ins geta ekki fullnægt eftir-
spurninni eftir fiski.
Þeir geta ekki lengur veitt
síld við ísland, né ýmsan annan
fisk á Norðursjó, svo að þeir
verða að láta sér nægja að veiða
í Skagerrak og Kattegat. Nokk-
ur veiði er auk þess í Eystrasalti
við suðurströnd landsins.
Allur’ útgerðarkostnaður hef-
ir þotið upp, margir bátar liafa
farizt eða orðið fyrir meiri eða
minni skemmdum. Veiðai'færa-
töp eru og tið. En fiskverðið er
viðunandi og afli oft góður.
Fyrstu daga stríðsins, þegar
Þjóðverjar tóku. mþrg fiskiskip,
voru menn mjög bölsýnir, en
nú hafa menn aftur gerzt bjart-
sýnari. Kemur það m. a. fram
í auknum bátabyggingum. í
Vestur-Svíþjóð. Byggja menn
einkum stærri báta en áðuríog
með sterkari vélum. Méðal-
stærð er 70 fet á lengd og 20 f. á
breidd, með ca. 180 lia. hráolíu-
vél. Ganga hátar þessir um 11
hnúta. Miðstöð er í bátunum og'
þá eru þeir útbúnir talstöðvum
og miðunarstöðvum.
Stærri vélar eru liafðar af þvi,
að menn þykjast hafa fullreynt
það, að afli aukist með auknu
vélarafli, sérstaklega þegar not-
uð er botnvarpa.
Týndur—fannst aftur.
Rannsóknarlögreglan auglýsti í
gær eftir pilti, Ragnari Emil Guð-
numdssyni, Bergþórugötu 31, átján
ára gömlum, er ekki hafði komið
heim til sín né látið frá sér heyra
síðan á miðvikudaginn var, um kl.
3, er hann fór út. Ragnar er nú
kominn fram. Hafði 'hann dvalið
uppi í Skíðaskála þennan tíma.
Stúdentar
halda dansleik í háskólakjallar-
anum í kvöld kl. 10.
Daaðaslys í
Aðalstræti
I gærkveldi.
í gærkveldi um kl. 18.30 Varð
maður nokkur, Hans Peter Jen-
sen, verkstjóri hjá firmanu Höj-
gaard & Schultz, fyrir bifreið í
Aðalstræti og beið bana.
Atvjkaðist þetta með þeim
hætti, að fólksfhitningabifreiðiil
R R1()8 var á leið suður Aðal-
stræti. Segist bifreiðastjóririn
liafa ekið mjög hægt, eða með
10—15 km. hraða. Þegar hann
var kominn á móts við húsið rir.
9 við Aðalstræti, sá hann að þar
stóð hópur fólks, semhann hjóst
við að væri að bíða eftir strætis-
vagni. Segist bifreiðarstjórinn
þá hafa ekið um það bil 1 met-
er frá gángstéttinni.
E11 þegar bifreiðin vár kpmin
á móts Við fólkið, þar seiri það
stóð, vatt einn maður sér út úr
liópnum, út á götuna og lenti
þá á vínstri hlið bifreiðarmnar,
frartian til við framhurðina.
' Rifreiðarsljórinn stöðvaðií
bifreiðiria - samstundis, en þá
liafði maðurínn kastast frá bif-
reiðirini, fallið á götuna og lent
á gangstétarbrúninni. Varð það
lians barii.
Hans P. Jensen var fæddur
1884 og var búséttur á Laufás-
vegi' 2.
Ránnsóknarlögreglan hiður
fólk það, sem statt var á göt-
1111111 og horfði á atburðinn, að
koma tii viðtals.
Æfing
í meðferð eldsprengja fer fram
á morgun í Austurbæjarbarnaskól-
anun), kl. 9.30 f. h., á Óðinstorgi
kl. 11 f. h., á Landakotstúni kl. 1.30
e. h., og á leikvellinum viS Lækjar-
götu kl. 2.30 e. h. Æfingin er bæði
fyrir allar -loftvarnasveitir og al
menning. Er nauðsynlegt að fólk
kunni einhver skil á meðferð eld-
sprengja ef til loftárásar kemur á
bæinn.