Vísir - 05.12.1942, Blaðsíða 2
V I s 1 H
DAGBLAÐ
Ötgefandi:
BLAÐAÚTGÁFAN VÍSIR H.F.
Uitstjdrar: Kristján Guðlaugsson,
Hei'steinn Pálsson.
Skrifstofa: Félagsprentsmiðjunni.
Afgreiðsla Hverfisgötu 12
(gengið inn frá Ingólfsstrwti).
Símar: 16 6 0 (fimm línur).
Verð kr. 4,00 á mánuði.
Lausasala 25 aurar.
Félagsprentsmiðjan h.f.
Hlutlaus stjórn.
Allnokkru fyrir kosning-
amar og þráfaldlega í
kosningabahríðinni sjálfri
lýstu kommúnistar, — eSa
liinn sameinaði sósíalistaflokk-
ur, eins og þeir kalla sig nú, —
skýrt og skorinort yfir því, að
fyrir þeim vekti fyrst og fremst
að skapa slikt ástand í landinu,
að kosningar hlytu fram að
fara aftur og aftur, þar til al-
ræði þeirra væri tryggt á þess-
um lýðræðislega grundvelli.
Fyrir þeim vekti ekki iengur
að brjótast til valda með hand-
aflinu, svo sem þeir éður hugð-
ust, heldur nota hvert tækifæri
til þess að afla sér aukins fylg-
is, vegna þess öngþveitis, sem
skapast myndi, og sem aðrir
flokkar gætu ekki ráðið fram
úr. I fullu samræmi við þetta
settu sósíalistarnir því næst það
skilyrði fyrir sljórnarsamvinnu,
að þeir einir skyldu ákveða
livenær slíkur ágreiningur væri
ríkjandi innan þjóðstjómar-
innar, að ástæða væri til að
láta kosningár fram fara, og
skyldi þá svo gert tafarlaust.
FuIIyrt er af kunnugum að
kommunistar telji að sam-
komulagsumleitanir um vænl-
anlega stjórn allra flokka, séu
með öllu farnar út um þftfur,
og vel kann svo að vera, þótt
enn hafi ekkert verið látið uppi
um það. En þá er að athuga
þann möguleika, hvort nokkur-
ir tveir eða fleiri flokkar innan
þingsins treystist til að taka upp
stjórnarsamvinnu í harðvítugri
andstöðu við minni hluta þings
og minni eða meiri hluta þjóð-
ar. Ekki verður sennilegt talið,
að stjóm, sem á þann hátt væri
mynduð, reyndist nægjanlega
sterk til þess að khýja fram
þær'umbætur, sem gera þarf og
sjá jafnframt svo um að ekki
yrði árangrinum spillt af and-
stæðingunum, einkum þar eð
svo virðist, sem enn eimi veru-
lega eftir af lcosningahitanum
hjá ýmsum þeim, sem nú sitja
innan þingsins sala. Er alls ekki
ósennilegt að svo geti farið að
þingflokkarnir nái ekki sam-
komulagi um pólitíska stjóm,
og lcann ýmislegt því að valda.
Er þá aðeins ein leið fær, en
hún er sú að flokkamir komi
sér saman um að mynda ó-
pólitiska stjórn, — þ. e. beztu
manna stjórn að þeirra dómi,
og ættu ráðherramir ekki sæti
á þingi.
Augljóst er það, að því þingi,
sem nú stendur yfir, verður
ekki lokið fyrr en einhverntima
á næsta ári öndverðu, en óvíst
hversu Iangt fram í febrúar það
kann að dragast. Samkvæmt
stjórnarskránni á nýtt þing að
koma saman hinn 15. febrúar,
en allt til þess dags virðist setið
meðan sætt er af þessu þingi.
Gæti þingið á þessum tima tek-
ið margskonar ákvarðanir, er til
heilla horfa, en framkvæma
þarf á árinu, en hitt er augljóst
að fjárlög verða með engu móti
samin fyrir hið komanda ár,
fyrr en Iangt er á árið liðið, eða
á hausti. Það er því tilgangs-
laust að nýtt þing setjist á rök-
stóla fyrr eh þá í fyrsta lagi.
Sú stjórn, sem mynduð kann
að verða þyrfti því að annast
ýmsar framkvæmdir óháð Jiin-
um einstöku flokkum, sem
ekki . kunnu fótum sinum for-
ráð, meðan af þeim var krafizt,
að Jæir tækju á sig ábyrgðina.
Það er sennilegt að slik ópóli-
tísk stjórn gæti mörgu góðu til
vegar komið, og fengið miklu
meiru áorkað, en hver sú
stjórn, sem í einu og öllu væri
báð dutlungum flokkanna.
Á hausti komanda, er þing
kæmi saman, má vel vera að
skapast hafi grundvöllur fyrir
samstarfi flokkanna, jxitt sá
grundvöllur sé ekki fyrir hendi
nú, að ný afstaðinni þ,osninga-
lifíð. Gætu þá flokkarnir tekið
stjómina að nýju í sínar hend-
ur, og væri það miklu líklegra
til árangurs, en ef að þeir gerðu
það nú. Það kann vel að vera,
að einhverjir annmarkar séu
einnig á því, að ópólitísk stjórn
setjast að völdum, en mest velt-
ur þar, — þrátt fyrir allt, — á
mannavalinu, og utan þings er
nægjanlegt úrval manna, þann-
ig, að hvert sæti yrði með
sæmd skiþað, þar til stjórn-
málaleiðtogarnir finndu sam-
eiginlega köllun til að taka þar
við, sem hinir léttu störfum.
»Stoínun félagsins
Andakílsárvizkjunu
Vísir hefir áður skýrt frá því,
að fyrirhuguð væri stofnun fé-
lagá er byggði og ræki hið vænt-
anlega orkuver við Andakílsá.
Nú er félag þetta stofnað af
þremur aðilum, þ. e. Mýrasýslu,
Borgarfjarðarsýslu og Akranes-
kaupstað, Félagið heitir Anda-
kílsárvirkjun og sátu sýslu-
nefndir beggja sýslanna og bæj-
arstjórn Akraneskaupstaðar
stofnfundinn.
Félagið tel^st á hendur að
byggja og reka orkuver við
Andakilsá ásamt öllum, há-
spennulínum og aðveitustöðv-
um. Fyrst í stað verða aðeins
reistar háspennulínur til Akra-
ness og Borgarness, en síðar
verður bætt við þær eftir ástæð-
um, en þó með því skilyrði, að
þær beri sig fjárhagslega.
í samþykktum félagsins ségir
að reksturshagnaður greiðist
aldrei til eigenda virkjunarinn-
ar, heldur skuli honum varið lil
aukningar hennar, til afborgana
umfram samningasbundnar af-
borganir, til þess að Iækka verð
raforkunnar eða hann lagður í
varasjóð.
Stjórn félagsins er skipuð sjö
mönnum, tveimur úr hvoru
sýslufélagi og þrír, er bæjar-
stjórn Akraness kýs. Þessir
menn eiga sæti i nefndinni: Har-
aldur Böðvarsson, Sveinbjörn
Öddsson, Arnljótur Gyðmunds-
son (kosnir af bæjarstjórn
Akraness), Jón Steingrímsson
Sverrir Gíslason (kosnir af
sýslunefnd Mýrasýslu), Guð-
mundur Jónsson Hvítárbakka
og Sigurður Sigurðsson Lamb-
haga (kosnir af sýslunefnd
Borgarfjarðarsýslu. IJaraldur
Böðvarsson er formaður stjórn-
arinnar.
Næturlæknar.
I nótt: Björgvin Finnsson, Lauf-
ásvegi ii, sími 2415. Næturvörður
í Ingólfs apóteki.
Aðra nótt: Gunnar Cortes, Selja-
vegi 11, sími 5995. Næturvör'ður
í Laugavegs apóteki.
Ntyi'jöldill O;
vöru foirgröii'iMM'.
Jafnan reynt ad hafa xnissiris birgðir fyrir besidi
i landinu.
Nokkuð mun nú um það rætt manna meðal, að skort-
ur sé á sumum nauðsynjum svo sem kolum og birgðir
ekki niiklar fyrir hendi af erlendum matvælategundum,
enda hefir á þetta verið minnst í blöðum, svo sem kola-
skortinn, og í einu blaðinu í gær var komizt svo að
orði, að heyrst hefði, að það væri ekki mikið, sem eftir
væri af matvælabirgðum í landinu.
Vísir hefir reynt að kynna sér lítilsháttar, hversu ástatt er í
þessum efnum og má fullyrða, að allt er gert, sem unnt er, til
þess að hafa jafnan nægar vörubirgðir fyrir hendi í landinu. —
Vísir átti m. a. um þetta stutt
viðtal við viðskiptamálaráð-
lierra Magnús Jónson í gær-
kveldi. Sagði liann, að jafnan
væri leitast við að sjá
um að til væri í land-
inu sem svaraði misseris
birgðum af helztu matvöruteg-
undum, sem fluttar eru inn er-
lendis frá. Hins væri þá og að
geta, að á tímum slíkum sem
þessum gæti það alltaf komið
fyrir, að það sé nokkuð breyti-
legt hve miklar birgðir séu í'
þann og þanrí sviipinn, og fer það
eftir því, Iiversu gengur að koma
vörunum til landsins. Ráðherr-
ann sagði og að ekki væri neinar
meiri hættur yfirvofandi að því
er þetta snerti nú,,en verið hefir
á styrjaldartímánum.
i Visir hefif einnig spurst fyr-
ir um þetta hjá einu helzta inn-
i fíutningsfyrírtæki landsins, og
I fékk þær upplýsingar, að ekki
[ mundi skortur eins og sakir
starída á fóðurvörum og mat-
vælum, en hið sáma kom, fram
þar og í viðtalinu við ráðherr-
ann, að það er vegna flutninga-
erfiðleikanna, að birgðir eru
stundum minni en vanalega. Það
stendur með öðrum orðilm á
flulninguin, en ríiiklar matvæla-
birgðir hafa verið keyptar er-
Jendis og bíða þær flutnings
hingað, en éitthvað er á leið-
inni.
Matvörur eru nú ríær ein-
göngu keýptar í Aineríku og
sterídur á skipakosti áð flytja
meira en gert er, en það ei’U
sem kunnugt er skip Eimskipa-
félagsins, eignafskip og leigu-
skip, sem annast þessa fluln
inga, en vitað er, að það er
miklum erfiðleikum bundið að
fá leiguskip, og jafnvel þótt svo
hafi horft stundum,.sem vand-
inn væri leistur og leiguskip hafi
íengizt, getur allt gengið til
baka, af því að skipin hafa verið
tekin til annara nota og ekkert
orðið úr leigunni. Þetta er éitt
af því marga, sem menn verða
að sætta sig við á styrjaldar-
tímum.
I gær var minnst á það i Visi,
að kolabirgðir væri litlar sem
engar hjá kolasölum, en ein
kolaverzlunin væri nýbúin að fá
farm og.ættu flestar kolaverzl-
anirnar von á nýjum birgðum.
Þá er þess að geta, að nýkom-
in eru 2 skip m,eð talsvert af
ríauðsynjavörum, m. a. sykri,
bg munar vitanlega um hvern
farminn, en á hinn bóginn er
nauðsynlegt að stefna að því, að
jafnan séu sem allra mestar
birgðir fyrir í landiríu af helztu
lífsnauðsynjum, sem flytja
verður inn, og hafa allir fullan
hug á að það sé gert, en það eru
sem fyrr var sagt flutningaerf-
iðleikarnir, sem eru þrándur í
| götu. Fyrst af öllu verður að
reyna að koma til Iandsins sem
l'yrst þeim birgðum, sem Íslend-
| ingar eiga eriendis, og halda
ÍKf
J
IHKIII
I
lur bíi
ar bðít lær SDrifll!
i strsx.
svo áfram innflutningi lífsnauð-
synja, eins og fáanlegt skiprúm
frekast leyfir. Og að þvi er unn-
ið af festu og einlægum vilja
allra, sem með þau mál fara.
Sundknattleiksmótið:
Ægir og R lið
iirmanns keppa
til úrsl tr.
Sundknattleiksmóti Reykja-
víkur er senn lokið og eru nú
aðeins eftir tveir leikir, þ. e.
úrslitaleikurinn, sem verður á
milli A-liðs Ájrmanns og Sund-
félagsins Ægis og keppnin um
3. og 4. sætið mil’i K. R. og B-
liðs Ármanns. Verða þeir háðir
9. þ. m. í Sundhöl inni. /
I fyrrakvöld fór fram kapp-
leikur milli A-liðs Ármanns og
Iv. R., er lauk með sigri Ár-
menninga, 5:1.
I gærkveldi keppti B-Iið Ár-
manns við Ægi og vann Ægir
með 1:0. Voru báðir þessir leik:
ir fjörugir og skemmtilegir, ef
til vill nokkuð harðir, en tilþrif
í þeim.
Ægir og A-Iið Ármanns hafa
bæði unnið félögin, sem bau
hafa keppt við og má vænta þess
að úrslitaleíkurinn á milli þeirra
verði jafn spennandi nú og hann
hefir verið að undanförnu.
Eæjarstjóm Akureyrar hefir
samþykkt að l'ara þess á leit við
Alþingi, að r.kið taki að sér að
reisa og reka sjúkrahús á Ak-
ureyri, er fullnægi kröfum sem
sjúkrahús fyrir allt Norðurland.
Tillagan, sem samþykkt var,
er svohljóðandi:
„Bæjarstjórn Akureyrar skor-
ar á Alþingi að samþykkja lög
mn að ríkið laki að sér að reisa
og reka sjúkrahús á Akureyri og
geri það þannig úr garði, að það
fullnægi kröfum sem sjúkrahús
fyrir Norðurland, enda fái ríkis-
sjóður sjúkrahúsið, sem hér er
nú, til eignar.“
í erindi, cr spítalanefnd sendi
bæjarstjórn Akureyrar, segir, að
Akureyrarbær standi nú einn
undir rekstri sjúkrahússins,
enda þótt bæði Eyjafjarðar-
sýsla og Þingeyjarsýsla hafi
komið því á laggirnar og rekið
það sameigmlega í upphafi.
Hinsvegar eru ekki nema 2
af hverjum fimm sjúklingum
Akureyringar, en hitt er utan-
bæjarfólk. Spítalanefndin telur
því óréttmætt að Akureyrarbær
beri bæði áhættu og halla af'
rekstrinum og vill að rikið taki
sjúkrahúsið i sinar hendur.
Á fundi bæjarstjórnar, þeim,
1 loftárasum er oft varpað
sprengjum á hús og mannvirki,
er springa ekki um leið og þær
lenda. Fyrst í stað sjást oft ekki
önnur verksummerki eftir slika
sprengju en göt á byggingu, sem
sprengjan hefir farið gegnum,
eða hola í jörðina, en liinsvegar
engin merki um sprengingu.
Timasiprengja, sem lendir á
Iiúsi, fer venjulega gegnum
mörg loft og greLt niður i grunn
hússins þegar liún springur.
Getur liún valdið miklum
skemmdum á húsinu eða algerri
eyðiieggingu. Loftþrýstingurinn
af sprengingunni getur skemmt
eða eyðilagt hús í nágrenninu
og fer tjónið ef tir stærð sprengj-
unnar, en manntjón verður að-
allega af völdiim iof tþrýstings-
ins eða braks, sejn þeytist í all-
ar áttir við sprenginguna.
Til þess að forðast slys og
manntjón, verður að gepa eft-
irfarandi ráðstafanir tafarlaust,
ef ósprungin sprengja finnst:
Koma tafar aust boðum til
næsta hverfisstjÖJra eða aðal-
stöðvar loftvarnanna í kjallara
Oddfellowhússins.
1. Síðan mun aðalstöðin gera
eftirfarandi ráðstafanir: Allt
það fólk, sem býr í byggingum
innan 150 m. frá sprengjustaðn-
um mun flutt á burt^
2. Engin umferð leyfð innan
150 m. fjarlægðar. (Götum er
lokað með strengdum köðlum
og settir verðir þar.)
3. Allt það fólk, sem dvelur í
lierbergjum sem vita i átt til
sprengjunnar og eru innan 250
m. fjarlægðar frá henni, mun
flutt burt í önnur öruggari her-
bergi.
Dæmi: lósprungin sprengja
finnst við vesturendann á turni
Landakotskirkjunnar í Reykja-
vik.
a. Öllu fólki skal þá vísað
burt af því svæði, sem er innan
150 m. fjarðlægðar frá sprengj-
unni. Svæði þetta takmarkast af
brotinni línu, sem, hugsast dreg-
in frá miðri Marargötu suður til
gatnamóta Hofsvallagötu, þaðan
ú miðja Blómvallagötu, þá að
vesturenda Hólatorgs, þá að
gatnamótum Garðaslrætis og
Hávallagötu vestan Hofsvalla-
Garðastræ.ti að Túngötu, þá í
noiðvestur að gatnamótum
Ránargötu og Öldugötu og loks
á miðja Marargölu. Götum skal
iokað með strengdum köðlum á
þessum stöðum: Marargötu og
Túngötu austan Unnai’stígs,
Hávallagötu vestan Hofsvalla-
götu, Ilofsvallagötu norðan
Sólvallagötu, Sólvallagötu suð-
austan Hofsvallagötu og vestan
við Hólatorg, Blómvallagötu
norðan Ásvallagötu, Hávalla-
götu og Túngötu, vestan við
Garðastræti, Ægisgötu og
Hrannargötu sunnan Öldugötu.
b. Öll herbergi, er snúa ,í átt
til sprengjunnar, skulu athug-
uð og skal fólk fíytjast úr þeim
og í önnur lierbergi i sama húsi.
Þetta nær til svæðis, sem er tak-
markað af brotinni línu er liugs-'
ast dregin þannig: Frá gatna-’
mótum Holtsgötu og Bræðra-
borgarstígs suður að gatriamót-
um Hofsvallagötu og Ásvalla-
götu, þá í suðaustur að óestur-
horni Brávallagötu, þá eftir
Brávallagötu að austurhorni
hennar, síðan að gatnamótum
Kirkjugarðsstígs og Suðurgötu,
þá eftir Suðurgötu að' Túngötu,
þá norður að gatnamótum
Garðastrætis og Bárugötu, þá
norðvestur að galnamótum
Garðastrætis og Bárugötu, þá
norðvestur að gatnamótum
Stýrimannastígs og Ránargötu
og loks á fyTsta staðinn aftur á
gatnamótin Holtsgötu og
Bræðraborgarstígs.
Dæmið, sem tiltekið var, mun
gefa nokkra hugmynd um
stærð hættusvæðisins. Tiltölu-
Iega fátt fóllc gerir sér grein
fyi-ir því fyrst í stað, en hins
vegar er öllum skylt að gera sér
Ijóst, að slík sprengja getur
valdið lífshættu fyrir fjölda
fólks, jafnvel þótt hún sé i all(-
mikilli fjaHægð.
Brottflutningur á ósprung-
inni sprengju er injög vanda-
samt og þýðingarmikið starf,
óg er því skjót og nálcvæm
skýrsla Um slíka sprengju alveg
bráðnauðsynleg. Þegar nauð-
synlegar upplýsingar eru fengn-
ar, munu allar slikar sprengjur
verða eyðilagðar eða fluttar á
brott, til þess að forða skemmd- \
um eða liftjóni, og er það verk
framkvæmt af sérstökum her-
deildum sem hafa lilotið, arfingu
í því.,
er um þetla mál fjallaði, var
og önnur u'IIaga samþykkt, er
svo hljóðar:
„Bæjarstjórn felur bæjar-
sljóra að leita samvinnu og
sluðnings sýslunefndanna í
Eyjafirði og Suður-Þingeyjar-
sýslu um að reist verði af rik-
inu fullkomið sjúkrahús hér á
Akureyri.‘‘
Bifreiðarslys á Hafn-
arf jarðarveginuiai.
" '■ v.
Bifreiðaárekstur varð í morg-
un kl. 9 á Hafnarf jar'ðarvegin-
um. Slasaðist maður, sem var
farþegi í annari bifreiðinni og
var hann fluttur á LandspítaJ-
ann.
Árekstur þessi mun hafa or-
sakast vegna hálku á veginum.
Tildrögin til hans voru þau, að
um níuleytið í morgun voru
vörbifreiðin G 258 á leið til
Reykjavíkur frá Hafnarfirði.
Mætir hún annari vörubifreið,
er var með timburfarm, á suður-
leið. Þegar þær mættust rann
bifreiðin með timburfarminn til
á veginum. Náði timbrið fram
með húsinu og fram fyrir það.
En þegar bifreiðin rann til, rakst
timbrið í hús bifreiðarinnar G
258, braut rúðuna og meiddi
farþega, sem sat hjá bifreiðar-
stjóranum töluvert mikð í sið-
una. Maður þessi heitir Nikolai
Sophus Bertels, búsettur í Hafn-
arfirði, og var farið með hann
á Landspítalann til athugunar
og aðgerðar.
Mikil liálka hefir verið á Hafn-
arfjarðarveginum og hafa marg-
ar bifreiðar runnið út af hon-
um.
Akranes,
9. tbl. I. árg, flytur m. a.: í hers
höndum, Magnús Stephensen (Vil-
hjálmur Þ. Gíslason), Kristín á
Jaðri (Ó.B.B.), Kristrún á Bjargi
(Þættir úr sögu Akraness II.). eft-
ir Ólaf B. Björnsson). Annáll Akra-
ness, Andakí 1 sárvirkjunin.
Bararoleg:, bráðum kemur Lad^ Hmnilton
á