Vísir - 10.12.1942, Qupperneq 2
VISIK
VISIR
DAGBLAÐ
Útgefandi:
BLABAÚTGÁFAN VÍSIR HJ.
Ritstjórar: Kristján Guðlangsson,
Hetsteinn Pálsson.
Skrifstofa: Félagsprentsmiðjnnni.
Afgreiðsla Hverfisgötu 12
(gengið inn frá Ingólfsstræti).
Símar: 16 6 0 (fimm línur).
Verð kr. 4,00 á mánuði.
Lausasala 35 aurar.
Félagsprentsmiðjan 4i.f.
Bálfarir.
EINRÆÐISHERRAR Ev-
rópu hófu á öndverörí
stjórnartíð sinni bókabrennur í
stórum stíl, og voru þar aðallega
á bál bomar binar gyðinglegu
bókmenntir og svo aðrar, sem
taldar voru skaðlegar siðferði
og almannaheill. I lýðræðis-
löndunum var kveðinn upp
jdir jiessu atferli þungur áfell-
isdómur, og var það fyllilega
að vonum, með þvi að ýmsar af
bókum þeim, sem vöfðust eld-
tungunum bafa allt til þessa
verið taldar merkileg verk svo
að ekki sé sagt meistaraverk.
Þetta sýnir live fjarlægt það er
eðli lýðraeðisþjóðanna að láta
eldinn og öskuna geyma andleg
verðmæti merkra rithöfunda.
Nýjustu fréttir berma að í
fyrsta sinni hér á landi hafi far-
ið fram bálför andlegrar fram-
leiðslu, sem komin var fyrir
tilstuðlan véla og prentsvertu ó
pappir pTímans. Hafði formað-
ur Framsóknarflokksins, sem
jafnframt er talinn af kunnug-
um liinn eini og sanni ritstjóri
Tímans, skrifað grein eina
mikla um listamannaþingið, af-
skipti rikisstjóra af því, og svo
að lokum farið mörgum orðum
um einstaka listamenn, sem
ekki voru fonnanninum að
skapi. Var grein þessi með svo
sérstökum hætti, að blaðstjórn
Tímans, sem skipuð er mörg-
um fulltrúum flokksins og að-
alráðamönnum, treystist ekki
til, efnisins vegna, að láta grein-
ina koma fyrir almennings-
sjónir. Var þá gripið til þess
bragðs, að brenna allt upplag
blaðsins, sem prentað var, og
jiess jafnframt gætt vandlega
að engin eintök slj-ppu fram
lijá eldskím þessari. Þó er talið,
að nokkur eintök af blaðinu séu
finnanleg, og skýrir Alþýðu-
blaðið svo frá, að éintökin bafi
verið lögð til liliðar vegna
skemmda við prentunina, en
aðrar heimildir telja, að blað-
stjórnin eða aðrir dyggir flokks-
menn, hafi séð svo um að þing-
fulltrúar flokksins fengju. sitt
eintakið hver til yfirlestrar.
Mun því einhver slæðingur
vera til af liinu upptæka og eld-
vígða blaði, þótt ekki væri til
þess ætlast af þeim, sem hinar
róttæku aðgerðir framkvæmdu.
Svo virðist, sem formaður
Framsóknarflokksins bafi ekki
verið með öllu ánægður með
afdrif greinar sinnar, en elcki
treytzt til að koma henni á
framfæri að nýju í hinni fyrri
og sömu mynd. Birtir bann
hinsyegar greinarkorn í Tím-
anum í fyrradag, sem- virðist
vera einskonar útdráttur úr
Iiinni fyrri grein, sennilega
mun hógværari og skikkan-
legri, en er þó þess eðlis, að
margir myndu óska, að grein-
arkornið hefði aldrei séð dags-
ins Ijós, jafnvel þótt visir menn
hafi sagt, að ummæli örvilnaðs
manns hverfi út í vindinn.
Hér skal á engan háit út í það
farið að svara grein þessari, —
fyrst og fremst vegna almenns
velsæmis, en ennfremur í þeirri
trú, að almenningur skilji, að
þótt ekki sé svarað orðagjálfr-
inu eigi málskrafsmaðurinn
ekki að bafa rétt fyrir sér. I ís-
lenzku þjóðlifi eru til stofnanir
og embætti, sem öllum ber að
sýna liina fvllstu virðingu og
sóma, jafnt í ræðu sem riti.
Réðist almúgamaður gegn þess-
um stofnunum, myndi hann al-
mennt talinn hafa mannskemmt
sig, en ekki skert virðuleik
stofnunarinnar, og sama lög-
máli lúta jæir, sem hafa fyrir
fólksins náð hreykt sér á háum
sessi.
Formaður Framsóknar-
flokksins er ]>ví miður með
þeim endemum borinn, að hann
getur ekki gert greinarmun á
J>vi bvað rétt er eða rangt í
Jæssu efni, ef að allf leikur ekki
duttlungum lians í lyndi. Allt
til jjessa hefir J>að verið svo að
afbrot hans gegn góðum siðum,
hafa legið innsigluð í böggli og
yfir misgjörðir bans dreginn
livítur litur, eins og í Jobsbók
segir, en þess verður hann þó I
vel að gæta, að J>að er unnt að
misbjóða svo íslenzku þjóðinni,
að svart verði látið vera svart,
og af því verði hann að taka öll-
um afleiðingum. Það æskir eng-
inn eftir því, að J>jóðinni sé
sýnd slík vanvirða, að einn af
helztu trúnaðarmönnum henn-
ar, geri sig sekan um afbrot
gegn einföldustu siðareglum í
hverju menningarríki. Til slíks
ríkis vilja Islendingar teljast, og
J>vi þykir Jæim vanvirða, er of-
urkapp leiðtoganna leiðir J>á út
á hreina refilstigu í J>jóðmála-
baráttunni. Myndu flestir æslcja
J>ess að fleiri blöð af Tíínanum
reyndu slikar bálfarir, sem það
er að ofan var getið, og liefði
blaðið í fyrradag ekki átt að
verða J>ar nein undantekning.
Þetta þýðir ekki J>að, að Islend-
ingar aðhyllist ofbeldisverknað
einvaldsheiTanna, en siðferði
Jæirra er ekki svo sljóvgað, að
þeir láti bjóða sér allt, eða J>eim
mönnum, sem bera Jjjóðar-
merkið hæst.
V í s i r.
Um kl. 5 í dag kemur út auka-
blað af Vísi og verða birt í ]>ví iooo
fyrstu númerin, er vinningar falla
á í Happdrættinu. Er þetta gert til
þess að aðalblaðiÖ þurfi ekki aS
bíða eftir happdrættinu, en auka-
blaðið verður )>orið til kaupenda á
niorgun.
Starfsemi Vetrar-
hjálparinnar
haiin.
Brýn þörf að hjálpa einstæð-
ingsmæðrum og börnum þeirra.
Vetrarhjálpin hefir nú byrj-
að starfsemi sína, en henni verð-
ur hagað líkt og í fyrra. Þótt
menn almennt hafi nú meira fé
handa milli en á venjulegum,
timum, er margt gamalmenna
og einstæðingsmæðra o. fl., sem
hjálpa þarf, enda liggur í aug-
um uppi, að dýrtíðin bitnar hvað
harðast á slíku fólki, og beinisl
starfsemi Vetrarhjálparinnar
að því, að hjálpa J>vi. Stjórn
bennar befir ineð höndum sem
undangengin sjö ár Stefán Páls-
son. Hún hefir skrifslofu í
Bankastræti 7 og síma 4966, og
eni þeir, sem styðja vilja starf-
semi hennar, beðnir að snúa sér
J>angað.
Velrarbjálpin bjálpaði í fyrra
329 einslaklingum og 213 heimr
ilum, einkum einstæðingsmæðr-
um og börnum Jjeirra, en fólkið
i Elliheimilinu og Farsóttahús-
inu fékk jólaglaðning að vanda.
Bæjarbúar munu enn sem á-
vallt fyrrum stuðla að því, með
smáum, gjöfum og stórum, að
Vetrarhjálpin geti hjálpað sem
flestum sem bágt eiga.
Skólar og frædslustarfsexni
Skólahús I smíóom vlða
sm laod.
Kennarastödur. — Aðsókn að skólum.
Vísir hefir fengið nokkurar upplýsingar viðvíkjandi skól-
.um og fræðslustarfsemi frá skrifstofu fræðslumálastjóra.
Samkvæmt þeim eru nú allmörg1 skólahús í smíðum víðsvegar
á landinu. — Það er erfiðleikum bundið að fá fólk í kennara-
stöður. Aðsókn að framhaldsskólum er ágæt. Er stuðst við upp-
Iýsingar þessar í yfirliti því, sem hér fer á eftir.
Skólahús
og sumarheimili.
I Haganesvík er nú verið að
koma upp nýju lieimavistar
skólabúsi. Er byggingunni vel á
veg komið. Var hennar mikil
J>örf. Það er J>ess vert, að því sé
á loft haldið, að J>að er Kvenfé-
lag Siglufjarðar, sem á drýgst-
an þátt í þeirri byggingu, en
með lienni er unnið að því að
koma tveim þörfum málum á-
leiðis, i fyrsta lagi að koma
bvggingamálum sveitarinnar í
gott horf, og í öðru lagi að koma
upp sumarheimili fyrir börn.
En kvenfélagið hefir lagt fram
allmikið fé til byggingarinnar
gegn því, að þar verði sumar-
dvalarheimili fyrir börn frá
Siglufirði. Er Jjetta mjög til
fyrirmyndar. Konur í einum
stærsta bæ landsins leggja fram
myndarlegan skerf til J>ess að
upp komist skólahús í af-
skekktri byggð og vinna þann-
ig bið mesta J>arfaverk fyrir
hlutaðeigandi sveitarfélag og
ibúa J>ess, en jafnframt er J>að
tryggt, að börn úr bæ Jæirra
eiga vísan ágætan sumardval-
arstað í framtiðinni. Er von-
andi, að Jæssu fordæmi verði
fylgt viðar.
Á Árskógsströnd
í Eyjafirði er verið að byggja
heimavistarskóla. Þar verður
einnig myndarlegt fimleika-
og samkomuhús. Þá er og langt
komið byggingu heiman-
gönguskóla í Njarðvíkum. —,
Sumstaðar liafa skólahús verið
endurbætt.
Skólabyggingarsjóðir.
Allmikill ábugi er fyrir þvi,
að leggja fé til hliðar í skóla-
byggingarsjóði, til þess að hæg-
ara verði um framkvæmdir,
Jægar betur árar.
fþróttahús
á Reykjanesi.
Á Reykjanesi í Norður-fsa-
fjarðarsýslu er verið að byggja
iþróttahús og skólastjóraíbúð.
í fyrra var reist þar myndarlegt
heimavistarskólahús fyrir
nemendur.
Sundlaug á Eiðum.
Á Eiðum er langt komið
byggingu sundlaugar og íþrótta-
húss. Er þar með stórúm bætt
sund- og íþróttaaðstaða Aust-
firðinga — og einkum Héraðs-
búa.
i
Kennarastöður.
Umsóknir eru með allra*
fæsta móti um fastar kennara-
stöður, einnig í kaupstöðum.
Settir voru um 30 kennarar í
baust til þess að gegna kenn-
arastöðum, niu Jæirra í kaup-
stöðum. Þótt kennaralaun séu
nú orðin sambærileg við laun
fastra kennara var miklum erf-
iðleikum bundið að fá fólk í
stöður þær, sem lausar voru.
Ráðnir voru 10 farkennarar
með kennaraprófi og 25, sem
ekki hafa kennarapróf. (Menn
með kennaraprófi fást ekki í
þær stöður). Flestir hinna próf-
lausu kennara hafa gagnfræða-
skóla-, héraðsskóla eða alþýðu-
skólamenntun.
Skólanefndarformenn
fyrir barnaskólana voru
skipaðir á síðastliðnu hausti.
Þeir eru nú 227 á öllu landinu.
Skólasókn.
Skólasókn í öllum framhalds-
skólum er með bezla móti,
þrátt fyrir það, þótt hægt hefði
verið að fá vel launaða atvinnu.
Á síðastliðnu ári var lagður
grundvöllpr að, stofnun dvalar-
heimilis fyrit blint fólk, með
kr. 10.000 — gjöf frá ónefndum
kaupsýslumanni og konu hans.
Fyrir nokkru gaf „ungur
Reykvíkingur“ einnig 10.000
kr. í sjóð Jjennan, og með
merkjasölu og sinærri gjöfum,
hefir sjóðurinn vaxið svo, að
liann er nú um 36.000 krónur.
Yfirstandandi tímar eru að
vísu ekki sem heppilegastir til
J>ess að ráðast í stórbyggingar,
og Blindravinafélagið hefir
heldur ekki hugsað sér J>að. En
liinsvegar verður að telja mjög
liklegt, að ekki sé betra að biða
að J>ví er snertir getu almenn-
ings, til J>ess að styrkja riflega
almenna mannúðarstarfsemi.
Þrátt fyrir stöðugar árásir á
pyngju bæjarbúa, er nú enn
leitað til Jæirra, og farið fram á
að þeir leggi nokkum skerf,
hver eftir sinni getur, í bygg-
ingarsjóð blindraheimilis.
Sjálft nafn sjóðsins talar
sínu máli og er vilanlega með
öllu óþarft að orðlengja um
þörfina á slíkri stofnún., Vitað
er um nokkra tugi blindra
manna sem hafa hina brýnustu
þörf fyrir varanlegan samastað,
þar sem allur aðbúnaður væri
við þeirra haefi.
Blindraheimilð verður um
alla framtíð hinn ákjósanlegasti
dvalarstaður blindra manna bér
á lándi, þar sem allt verður
gjört sem í mannlegu valdi
stendur, til þess að létta þeim
hinar Jmngu raunir Jæiiæa.
Takmarkið er, að safna nú
þegar svo stórri fjárupphæð að
vel nægi til þess að koma upp
hæfilega stóru blindraheimili af
fullkomnustu gerð, þegar um
hægist með byggngarfram-
kvæmdir.
Nefnd skipuð eftirtöldum
mönnum, hefir tekið að sér að
safna fjárframlögum til vænt-
anlegs blindraheimilis:
Magnús Scli. Thorsteinsson,
framkvæmdarstjóri, Þórður
Ólafsson, framkvæmdarstjóri,
Ólafur H. Jónsson, framkvæmd-
arstjóri cand. jur., Þorsteinn
Scheving Thorsteinsson, lyf-
sali, Bjarni Jónsson, frgm-
kvæmdarstjóri, Tómas Tómas-
son framkvæmdarstj., Eggert
Kristjánsson, stórkaupm., Hall-
grímur Benediktsson stórkaup-
maður, Kristján Einarsson,
fiamkvæmdarstj., Gunnar Guð-
jónsson, skipamiðlari.
Bridgefélag Reykjavíkur.
Spilað verður í kvöld kl. 8 í húsi
V.R. í Vonarstræti 4.
Ávarp til félaga Máls
og menningar,
ÍSLEN25K MENNING, efUr
SIGURÐ NORDAL, I. bindi,
kemur út laugardaginn 12. des-
ember, og er fyrsta bindið af
ARFI ÍSLENDINGA, sem full-
gert er.
öllum er kunnugt, hver vand-
kvæði eru á að fá bækur prent-
aðar og bundnar í tæka tið á
jæssuin dögum og bve gífur-
lega allur kostnaður liefir auk-
izt. Félaginu er brýn nauðsyn
að geta nú fyrir jólin selt í lausa-
sölu j>au tiltölulega fáu eintök,
sem þegar eru til í bandi. Ann-
ars mundi j>að ekki standast,
að láta gamla áskrifendur Arfs-
ins og gainla félaga Máls og
menningar fá bókina með þeim
vildarkjörum, sem heitið hefir
verið.
Félagsstjórnin hefir þvi
neyðst til að ákveða, að bókin
verði ekki afgreidd bundin tii
félagsmanna fyrir jól, enda
verður ekki bægt að afgreiða
liana út um land fyrir J>ann
tima. F'élagar geta fengið bók-
ina befta, ef j>eir óska J>ess, eða
pantað band. En biðin eftir
bundlnum eintökum verðúf
stutt, Jrví unnið verður að bók-
bandinu jafnt og J>étt.
Þá skal athygli félagsmanna
vakin á J>ví, að vilji J>eir kauipa
bókina til gjafa, fá þeir liana
með 15% afslætti frá venju-
legu lausasöluverði í Bókabúð
félagsins, Laugavegi 19.
Vér þykjumst Jækkja félaga
Máls og menningar að svo
miklum drengskap og tryggð
við félag J>að, sem þeir eiga ein-
ir og bafa einir eflt til fram-
kvæmda án J>ess að þiggja nokk-
um styrk, — að J>eir muni skilja
þessa ráðstöfun og una hinni
litlu bið án J>ess að kvarta.
í stjóm Máls og menningár.
6. des. 1942.
Kristinn E. Andrésson.
Ragnar Ólafsson.
Sigurður Thorlacius.
Halldór Kiljan Laxness.
Sigurður Nordal.
Dagskrá Útvarpsins
aukin.
Sú breyting hefir verið gerð
á dagskrá útvarpsins, að einni
klukkustund hefir verið bætt við
dagskrána á föstudagskvöidum,
og þá verða leikin ýms stærri
klassisk tónverk.
Aður var hinni klassisku
músik lielguð l>riðjudagskvöld-
in sérstaklega, auk sunnudag-
anna. Hefir nú verið ákveðið að
á þriðjudögum leiki Tónlistar-
skólinn eins og að undanförnu,
en J>eim tíma, sem afgangs lcann
að verða, verði varið til léttari
bljómlistar.
Úlvarpsliljómsveitin liefir
verið stækkuð, þannig að nú
leika i Iienni 15 menn í stað 6
áður. — Er bér aðeins um til-
raun að ræða, sem verður þó
haldið áfram ef þessi nýbreytni
verður vinsæl meðal hlustenda.
Innrammanir
frá
Verzl. KÖTLi
eru afgreiddar í
Njálsbúð
Njálsgötu 26.
Vitjið myndanna sem fyrst.
Mjög hentugar
jólagjafir
bæði fyrir börn og fullorðna.
Bazónsbúð.
(Hominu á Hverfisgötu og
Barónsstíg).
Trésmiðir
óskast nú þegar.
Vélsmiðjan Héðinn h.t
Sími: 1365.
ftibn
Laugaveg 68
/
VISIR
Nýtt píanó
sölu. — Uppl. í síma 2334.
Verzlnnarhns
með tveimur sölubúðum, á krossgötum, og á góðum
stað í bænum er til sölu nú þegar. Nánari upplýsingar
gefur
Pétup Jakobsson
löggiltur fasteignasali.
________Kárastíg 12. — Sími: 4492.
æskja þess, að allir vinir
yðar kæmu í heimsókn samtímis.
Sama er um okkur. Gjörið þyí
svo vel að koma tímanlega með
jólapöntun yðar.
©kaupíélaqiá
BEZT AÐ AUGLÝSA I VÍSL
Skinnasala
L.R.I.
Lækjargfötu 6b.
Göfugu kunna sig fljóðin
að fegra
og forðast á veturna hósta
og kvef.
Og liver hefir séð annað
yndislegra
en íslenzka dömu með
fallegan ref.
HSi
Rakvelablöclin cru koinin
Jóh. Ólafsson & Co.
Reykjavík
Sími 1630
óskast, lil kaupa á trésmíða-
vélum frá Ameriku. Tilboð,
merkt: „Góð trygging“ legg-
ist inn á afgr. blaðsins fyrir
föstudagskvold.
Jóa-
ser-
viettur
Jóla-
i | Borðdreglar
Jóla-
Bögglapapplr
Jóla-
Umbúðagarn
Jóla-
Hilluborðar
Jóla-
Klukkup
Jóla-
Pappadiskap
Englaháp
Hertastjakar
Jólakerti
Skrautkerti
NORA
MAGASIN
Til
Nýtt gólfteppi 3V2X4
yards, ný kjólföt á Iiáan
mann, nýlegt sett húsgögn, 2
djúpir /stólar og sófi. —
Ennfremur 5 MANNA BÍLL,
ljótur en í góður lagi. —
Seljalandsveg 12, eftir kl. 5.
Mæður
Sparðið yður tímann með
J>ví að kaupa GRIND (stigi)
handa barninu yðar.
II
2. hæð í dag og næstu daga
1 kl. 3—8.
fréttír
I.0.0.F.5=124I21081/2=9.0.I.
Kofi Tómasar frænda
heitir heimsjækkt hók eftir Har-
riet Beecher-Stove, er lýsir þræla-
haldinu í Bandaríkjunum. Er bókin
hvorttveggja í senn átakanleg og
hrífandi. Bókaverzlun Þorst. John-
son's í Vestmannaeyjum gefur út
bókina.
Næturlæknir.
Ólafur Jóhannsson, Gunnars-
braut 38, sími 5979. Næturvörður
í Laugavegs apóteki.
Leikfélag Reykjavíkur
sýnir „Dansinn í Hruna“ annað
kvöld.
Tveir Kínverjar
hafa nýlega hlotið dóm fyrir ólög-
legan innflutning áfengis hingað til
lands. Var annar dæmdur í 1200
króna, en’hinn í 1040 kr. sekt.
Farfuglar
halda spilakvöld í Menntaskólan-
um uppi kl. 9 í kvöld.
Bifreiðarslys.
í gær varð maður nokkur, Sum-
arliði Halldórsson að nafni, fyrir
bifreið; féll hann við og slasaðist
allmikið. Viðbeinsbrotnaði hann
meðal annars og hlaut nokkur
meiðsl önnur.
Ekki neitt,
heitir lítil en lagleg barnabók —
ætluð yngstu lesendunum. Hún er
eftir J>ekktan amerískan barnabóka-
höfund Wanda Gág, en Stefán Júl-
íusson kennari í Hafnarfirði hefur
endursagt hana á íslenzku og Bóka-
útgáfan Björk gefið hana út.
Útvarpið í kvöld.
Kl. 20,30 Útvarpshljómsveitin:
a) Balet-svíta eftir Popy. b) Mí-
mosa-vals eftir Jones. c) Crepuscule
eftir Friml. d) Mars eftir Fucik.
21,00 Minnisverð tíðindi (Jón
Magnússon fil. kand.) 21,20 Hljóm-
plötur: Söngvar úr óperum. 21,35
Spurningar og svör um íslenzkt mál
(Björn Sigfússon magister).
Bezt að augljsa í Vísi.
DÖMUTÖSKUR
BURSTÁSETT
GREIÐSLUSLOPPAR
UNDIRFÖT.
vm.e
Stúliia,
helzt vön undirfatasaumi.
óskast til að taka heim saum
í ákvæðisvinnu. — Uppl.
Frakkastíg 26.
Bnllbðnrðr
Hnetubrjótar
Kökuspaðar
ístangir
Kjöttangir
Smjörsköfur
Tesíur
Eggjaausur
Kökuhnífar úr beini
Steikarspaðar
Hörpudiskar
o. m. fl.
Hamborg.
Laugavegi 44.
Sími: 25^7.
eru 1014. Að frádreginni rýrnun koma þvi aðeújs 2 kgr. í hlut
eru 9014. Að frádreginni rýrnun konia J>vi aðeios 2 kgr. í hlut
Iivers félagsmanns.
Til þess að enginn færi í jólaköttinn, neyddtunst vér til að
skammta eplin }>annig, að fastir viðskiptamenn 5ái sinn skammt
gegn J>vi að framvísa félagsskírteini i búðunuin.
Gjörið svo vel að íaka skömmtuninni vel, Jk>lt lítil sé.
MEIRI EPLI KOMA SÍÐAE..
ökaupíélaqiá
Bazar
KVENFÉLAG FRÍKIRKJUSAFNAÐARINS i Reykjavik held-
ur bazar föstudaginn (á morgun) 11. desember kl. 2 e. h. í
Goodteniplarahúsinu, uppi. —
KOFI
TÓMAfAR
FRÆNDA
Eftir
Harriet
Beeeher- Sto ve
Þessa frægu bólk ritaði höf.
til þess að lýsa hinu miskun-
arlausa þrælahaldi í Banda-
ríkjunum. Eru lýsímgar hennar
bæði átakanlegar <og hrífandi.
Fáum árum eftir að bókin kom
út hófst þrælastríðið í Banda-
ríkjunum.
Bókaverzlun
j
Þorst. Johnscns
V estmannaey jum.
Aðalútsala í Reykjavík:
Bókaútgáfa
Sími .4169.
Npil
Waddington’s
„555“ og „EXCEL“.
Jón Jóhannesson & Co.
Hafnarstræti 22.
Sími: 5821.