Vísir - 22.03.1943, Blaðsíða 3
VISIR
VÍSIP
DAGBLAÐ
Ctgefandi:
BLAÐA0TGÁFAN VÍSIR H.F.
Ritðtjórar: Kristján Guólangsson,
Hersteinn Pálsson.
Skrifstofa: FélagsprentsmiSjunni.
Afgreiðsla Hverfisgötn .12
(gengið inn frá Ingólfsstræti).
Símar: 1 660 (fimm línur).
VerÓ kr. 4,00 á mánuói.
Lausasala 39 aurar.
Félagsprentsmiðjan h.f.
Félagslíf.
Félagslyndi er nú á döguni lal-
ið höfuðkostur í þessu
landi, og fáir munu l>eir nú uppi
með þjóðinni, sem ekki eru í
einhverjum félagssamtökum, og
sumir i mörgum. Komist menn
i stöður þannig að talið sé að
l>eir hafi einhver auraráð, Cru
þeir um leið orðnir meðlimir í
fjölda félaga, sean þeir hafa lítil
deili vitað á, og eru suniir i
ff.eiri slikum félögutn en þeir
kunna að telja á stuttri stundu.
Flest hafa félög l>essi einhver
mannúðarmál með höndum, og
er ekki nema gott um, slíkt að
segja, enda myndu mefnn ó-
gjarnan ljá máls á inngöngu i
slikan félagsskap, ef l>eir vildu
ekki fórna einhvörju fyrir mál-
efnið. Verður þá að fórna fé ein-
göngu, með þvi að um verulegt
starf er ekki að ræða frá hendi
þessara manna, enda færi allur
tími l>eirra í félagsstörf, ef l>eir
léðu máls á að taka sér veru-
legar trúnaðarstöður utan hins
þrengsta hrings daglegra
skyldustarfa. Venjulega skipast
málum svo í liverjuin félags-
skap, að starfið hvílir aðallega
á herðum sárfárra manna, sem
bera það uppi, jafnvel um ára-
tugi, en njóta að sjálfsögðu
stuðnings áhugamanna, sem að-
allega kjósa að vinna að slíku
verkefni, sem félagið hefir með
höndum.
Öll slík félagsstarfsemi liorfir
til þjóðþrifa, en þó því aðeins,
að menn vanræki ekki skyldu-
störf hins daglega lífs hennar
vegna. Skyldustörfin eiga að
sitja fyrir crllu, en að þeim
slepptum er ekki nema eðlilegt
að menn myndi sér önnur á-
hugamál, sem þeir fórna tima
og starfi. Reynslan leiðir einnig
i ljós, að l>eir menn, sem ekki
rækja með fullum sóma hin
daglegu störf, verða heldur
aldrei að neinu vefrulegu gagni í
félagsstarfsemi. Hún lýtur sömu
lögmálum og önnur vinna.
Hér í höfðustaðnum liafa á
síðustu árum verið miklir erf-
iðleikar á að lialda uppi félags-
Jífi, og gildir næstum einu hvaða
félagsstarfsemi hefir í lilut átt.
Annars vegar hefir verið óvenju-
legt annríki alls l>orra manna,
en hinsvegar hefir mjög skort á
viðunandi liúsakost í bænum
fyrir slíka starfsemi, og veldur
það mestu um hversu öllu fé-
lagslífi hefir hrakað. Jafnvel
starf stjórnmálafélaganoa, sem
ávallt hefir staðið með miklum
blóma, hefir lagzt.í dá, þannig
að undantekning má heita, ‘ ef
þau vakna úr rotinu eina og
eina kvöldstund á ári, nema því
aðeins, að kosningar standi fyr-
ir dyrum. Þegar svo er um hiu
grænu -trén, hvað þá um hin,
sem vaxa í ófrjórri jarðvegi,
þótt ekki sé þar farið út í mál-
cfnamat, heldur aðeins miðað
við hinn rika stjórnmálaáhuga
íslenzku þjóðarinnar. Slik félög
eru fámennari og fátækari en
stjórnmálafélögin og hafa að
flestu leyti erfiðari aðstöðu til
starfs.
Ungmennafélagsskapur 'er ný-
lega éndurvakinn hér í þessum
bæ, og varð þegar i upphafi all-
fjölmennur. Hinsvegar hefir
það háð starfseminni mjög, að
húsnæði til fundahalda hefir
ekki fengizt, nema allsendis ó-
fullnægjandi, en verkefnin híða
hinsvegar óleyst á öllum svið-
um. Ungmennafélagið lie'fir því
fyrir rúmu ári hafizt lianda um
fjársöfnun til húsbyggingar, eu
jafnframt leitað samvinnu við
mörg önnur félög um þátttöku í
hyggingu sliks lientugs sam-
komuhúss. Undirtektir munu
iiafa reynzt frekar daufar það
sem af er, enda ekki fengizt lof-
orð um henluga lóð fyrir slíkt
samkomuliús, e'n það mun hafa
legið fyrir til athugunar nú um
nokkurt skeið.
Á Alþingi liefir Jónas Jóns-
son alþingismaður hreyft l>essu
máli, og lagt til að styrkur yrði
veittur til slikrar byggingar.
Einhvörs misskilnings mun
liafa gætt í sambandi við flutn-
ing málsins, en vonandi spillir
slíkt á engan liátt fyrir fram-
gangi þess, með því, að hér er
um ótvírætt nauðsynjamái að
ræða, sem ekki þolir bið. Er
þess að vænta, að allir þeir, sem
málinu eru velviljaðir, láti ekki
óveruleg aukaatriði ráða úrslit-
um um afgreiðslu málsins innan
þíngs né framkvæmd þess að
öðru leyti síðar.
Eitt af dagblöðum bæjarins
hefir l>egar ritað vinsamlega og
af fullum skilningi um þetta
húsbyggingarmál og vakið at-
hygli á því, meðal annars, að
hin ýmsu félög bæjarins ættu
að taka upp nánara samstarf
sín í milli, í þvi augngmiði, að
spara útgjöld, sem samfara eru
félagsrekstrinum óhjákvæmi-
lega. Er þar aðallega um skrif-
stofuhald og innheimtu félags-
gjalda að ræða. Liggur Jxtð í
augum uppi, að slík félagsmið-
stöð hlyti að öðru leyti að efla
mjög allt félagslif í bænum og
hafa víðtæk og þjóðholl áhrif á
allan hátt.
Húsbygginguna þyrfti að
hefja þegar á j>essu sumri, enda
er þess að vænta, að málið mæti
fullum skihiingi Alþingis, bæj-
arstjórnar og allra þeirra félaga,
sem hér geta átt hlut að máli.
I>arf þvi ekki að örvænta um
framkvæmdina og árangur síð-
ar.
Bifreið stolið.
Skömmu fyrir hádegi í gær
var lögreglunni tilkynnt að
fólksbifreiðinni R 2128 hefði
verið stolið.
Var lýst eftir bifreiðinni í há-
degisútvarpinu og kl. tæplega
eitt var tilkynnt til varðstofunn-
ar, að bifreiðin hefði sézt á
akstri um bæinn.
Skömmu síðar tilkynnli
Sveinn Gunnarsson læknir, að
bifreiðin hefði stanzað fyrir
framan hús hans, Óðinsgötu 1,
og að út hefðu komið tveir pilt-
ar og hlaupið á brott.
I morgun hafði ekki náðst til
piltanna, en vonandi hefst upp
á þeim í dag.
íslenzkar þjóðsögur
5P5 á ensku.
Á laugardag kom út á forlagi
ísafoldarprentsmiðju kver lítið,
sem nefnist „FOLK TALES
FROM ICELAND AND OTHER
COUNTRIES“ eftir H. M. Scar-
gill, Ph. D., sem er liðsforingi í
brezka heraum.
Dr. Scargill er vel að sér í ís-
lenzku og hefir lengi haft hug á
að kynna íslenzkar þjóðsögur á
ensku. Vinnur hann nú að því að
þýða fleiri sögur og hyggst jafn-
vel að þýða eina eða fleiri af
íslendingasögum.
Til dómkirkjunnar í Reykjavík,
Gamalt áheit frá Úndínu Sig-
urðardóttur, ioo kr., afhent síra
Bjarna Jónssyni.
Félögum veittur styrkur
til byggingar skíðaskála. !
Tillögup lþróttaráðunauts Rvíkur
um úthlutun byggingarstyrks.
íþróttaráðunautur Reykjavíkurbæjar, Benedikt Jakobsson,
hefir sent bæjarráði tillögur að reglugerð um greiðslur á bæjar-
sl.vrkjum til skíðaskálabygginga. Er hér um athyglisvert mál
að ræða, enda ekki nema sjálfsagt að styrkjum sé úthlutað
eftir ákveðnum reglum.
Höfuðatriði í tillöguni íþrótta-
ráðunautarins eru þessi:
íþróttaráðunautur Reykavík-
ur skal fá í bendur allar teikn-
ingar viðkomandi sldðaskálum,
til atliugunar og samþykktar.
Honum ber ennfremur að at-
iiuga, hvort staðurinn sé heppi-
legur fyrir skíðaland og sam-
þykkja hann sem slíkan. Séu
teikningar óhagstæðar og stað-
urinn illa valinn, ber lionum að
gera tillögur til úrbóta.
Þegar skíðaskáli er full-
byggður skal fasteignamát fara
fram á skálanum. Bæjarstyrk-
ur skal miðaður við fasteigna-
matsverð og sé liann aldrei
bærri en sem nemur einum
þriðja (eða einhverri annarri
hlutfallsuppbæð) af fasteigna-
matsverði viðkomandi skála.
Með þessu ákvæði á að útiloka
það, að félag sem fær styrkveit-
ingu, geli byggt skála að öllu
leyti fyrir bæjarins fé, eða jafn-
vel haft aflögu af styrknum.
Hinsvegar fari það eftir atvik-
um hversu lágt styrkurinn fari
í. d. þvi, livar skálinn sé, liversu
gott .skíðalandið sé umliverfis
bann, hvernig samgöngur eru
til hans og liversu mikið/íiann
er notaður eða líkur til að liann
verði notaður i framtíðinni.
Þá gerir íþróttaráðunauturinn
það að tillögu sinni, að sérfróð-
ji’ yfirmenn annist byggingu
skálanna, að skálarnir séu
tryggðir gegn eldsvoða og aö
greiðsla á bæjarstyrk fari elcki
fram fyrr en framangreind á-
kvæði hafi verið uppfyllt.
í greinargarð, sem íþrótta-
Aðalfnn«lnr
Fiskifélags
Islands.
A aðalfundi Fiskifélagsins,
sem haldinn imr í fyrradag, gaf
forsetinn, Davíð Ólafsson,
skýrslu um störf félagsins á
liðnu ári.
Dr. Þórður Þorbjarnarson
gaf skýrslu um störf rannsókn-
arstofu félagsins.
Á fundinum voru samþykkt-
ar nokkrar tillögur, þ. á m.
þessi frá Lúðvík Kristjánssyni:
„Aðalfundur Fiskifélags ís-
lands, haldinn laugard. 20.
marz 1943, telur eðlilegt og
nauðsynlegt, að landsmenn
stofni sjóð, er hafi það hlut-
verk, að styrkja það fólk, er
missir forsjármenn sína af slys-
förum. Fundurinn beinir því
þeirri áskorun til stjórnar
Fiskifélags íslands, að beita sér
fyrir undirbúningi þessa máls.“
Svohljóðandi tillaga frá
Sveini Benediktssyni var og
samþykkt:
„Aðalfundur Fiskifélags ís-
lands beinir þeirri áskorun til
ríkisstjórnarinnar, að hún
freisti að fá upplýst, hver sé
höfundur níðbréfs um ísl. fiski-
menn dags. í Reykjavík 20. jan.
siðastl. og birt i „Tlie Fishing
News“ hinn 20. febr. Verði
kunnugt, hver sé höfundur
bréfsins, þá verði höfðað opin-
bert mál gegn honum og gerð-
ar ráðstafanir til þess að
hindra frekari þjóðhættuleg
skrif af hans hendi og til þess
að verða öðrum slíkum flugu-
mönnum að varnaði, ef ísl. lög
ná til þeirra.“
íáðunauturinn lét fylgja tillög-
um sínum til bæjarráðs, segir
m. a.:
„Eins og sakir standa, m,un
eftirlit frekar lílið með því,
hvernig styrkjum til skálabygg-
inga er ráðstafað, enda orðið
nokkur misbrestur á því. Það
mun nægja í þessu sambandi, að
lienda liáttvirtu bæjarráði á, að
iþróttafélögin geta liæglega sótt
ilm styrki ár eftir ár og lagt l>á
i sparisjóðsbók, án þess að
byggja nokkurn skíðaskála.
Skíðaskálar, sem byggðir eru að
einhverju leyti fyrir opinbert fé,
\erða ennfremur að vera griða-
staður fyrir alla, sem þangað
leyta um helgar, þegar skíða-
færi ér“.
Handknattleiksmótið
Kvenníl. Ármanns
íslandsmeistarar.
Á föstudagskvöldið vann
Kv.fl. Ármanns Hauka með
11:9, eftir framlengdan leik.
Leiknum lauk fyrst með jafn-
tefli 7:7, og var þá ákveðið
að framlengja, skv. leikreglum
um 2x5 mín., og urðu þá úr-
slit 4:2. Þar með vann kven-
flokkur Ármanns íslandsmeist-
aratign í handknattleik 1943.
— Leikurinn var ákaflega jafn,
eins og úrslit sýna. Haukar
voru í sókn framan afwog lauk
fj'rra hálfleik með 4:1, en Ár-
menningar sóttu sig. Var þetta
óefað bezti, liraðasti og mest
spennandi leikurinn í kvenna-
flokknum.
í 1. flokki unnu Víkingar Í.R.
(14:13) og K.R. Ármann. Stóðu
þá leikar þannig, að öll félögin
í B-riðli voru jöfn og varð að
keppa 3 leiki aftur, en Valur
hefir unnið A-riðil og á eftir
að keppa við sigurvegara í B-
riðli, þegar úrslit erú komin
þar.
Á laugardagskvöld var keppt
í 2. fl. A-riðli, og utinu Hauk-
ar I.R. (22:14) og Valur Ár-
mann (18:9). Keppa Haukar og
Valur í kvöld um það, hvort
félagið eigi að keppa til úrslita
við K. R., sem unnið hefir B-
riðil.
í B-riðli 1. flokks vann Vík-
ingur Fram.
í kvöld verður, auk 2. fl.
leikjanna, keppt í 1. fl. (B-
riðli) Fram gegn Í.R. Annað
kvöld má vænta úrslita í 2.
flokki.
Opnast næstu daga.
Þingvallaleiðin er nú orðin
allgóð fyrir bifreiðar, hvergi
hindrun, en vegurinn hinsvegar
byrjaður að blotna. Hellisheiði
er enn lokuð, en verður opnuð
mjög bráðlega, sennilega þó
ekki fjrr en aðra nótt eða á
miðvikudaginn.
Hellisheiðarvegurinn er þegar
orðinn fær og allgóður upp í
Skíðaskála og fóru bifreiðir
þangað með skíðafólk í gær.
En á liáheiðinni eru ennþá
nokkurar tálmanir og verður
unnið að því í nótt og dag að
moka snjónum burtu þar til
heiðin verður fær.
Byggðavegir úti á Iandi eru
Iðnminjasafn.
Dánargjöf Jóns Halldórsson
ar aflient þjóöminjaverði.
Fyrir helgina var þjóðminjaverði afhentur vísir að iðnminja-
safni. Er það dánargjöf Jóns heit. Halldórssonar hús-
gagnameistara.
I gjöfinni eru ýmsir vandaðir íslenzkir smíðisgripir, sem Jóni
voru gefnir sem heiðurs- eða vinagjafir.
Gjöfinni fylgir hefilbekkur
ásamt öllum. áhöldum, en sök-
um plássleysis hefir safnið
ekki getað veitt honum viðtöku
ennþá.
Meðal anrrara muna, sem af-
flestir færir orðnir, en fjallveg-
ir ennþá ófærir. Haldi þessi
hláka áfram verður farið að at-
liuga möguleika á þvi að moka
Holtavörðuheiði og Vatnsskarð.
Aimars ganga snjóbílar stöðugt
yfir Holtavörðuheiði, svo l>að
er ekki hægt að segja að sam-
göngur hafi teppzt á henni.
Bæjar
} fréttír
VoriS er komið.
Góuþræll er í dag. Á morgun
byrjar einmánuÖur.
Jón ólafsson
skipstjóri á m.s. ,,Arctic“ andað-
ist að HjarÖarfelli síðastl. laugar-
dag. Mun hann hafa kvefast í
hrakningunum um miðja vikuna.
Næturlaeknir.
Karl Sig. Jónasson, Kjartansgötu
4, sími 3925. Næturvörður í Ingólfs
apóteki:
Næturakstur.
B.S.R., síini 1720.
„Lærið að matbúa“
heitir ný bók eftir Helgu Sig-
urðardóttur, forstöðukonu Hús-
mæðrakennaraskólans. Inngang að
hókinni ritar dr. Júlíus Sigurjóns-
son og fjallar hann um næringar-
efnafræði. Þessa bók ættu húsmæð-
ur að flýta sér að kauþa áður en
uppla^ið þrýtur.
Bannað að selja mjólk á flöskur.
Lögreglustjóri hefir auglýs
bann bæjarstjórnar við afhend-
ingu mjólkur á ilát, sem nota
þarf trektir við. — Skal fólki,
sem hingað til hefir notað flösk-
ur, ráðlagt að verða sér sem fyrst
úti um hentug ílát, áður en bannið
gengur í gildi, en það verður frá
1. apríl.
N orðmaimaf élagið.
„Nordmannslaget" hefir ákveðið
að halda upp á 17. maí, þjóð-
ininningardag Norðmanna. Und-
irbúningsnefnd skipa förmaður
félagsins Thomas Haarde, sima-
verkfræðingur, frú Esmarch, Friid
blaðafulltrúi, Steversen ofursti og
Andreasen ræðismannsfulltrúi. —
Ennfremur var ákveðið að gang-
ast fyrir minningarguðsþjónustu
9. apríl, þegar 3 ár eru liðin frá
innrás Þjóðverja í Noreg.
Bridgekeppnin.
Fjórða umferð fer fram í kvöld
kl. 7,30 í VR-húsinu.
Áheit á Strandarkirkju,
afhent Vísi: 45 kr. frá Ónefndri.
10 kr. frá Hönnu Gunna. 20 kr.
frá B. B. G. (gömul áheit). 20 kr.
frá S. S. (gömul áheit). 1 kr. frá
konu. 10 kr. frá konu. 20 kr. frá
H. Þ. og 1. J. 9 kr. frá þakklátri
móður.
Þormóðssöfnunin,
afh. Vísi: 30 kr. frá Erlu og
Guðmundi.
Útvarpið í kvöld.
Kl. 20,30 Erindi: Mannlýsingar
í skáldsögum Jóns Thoroddsen, III:
Bjarni á Leiti (Steingr. Þorsteins-
son magister). 21,10 Um daginn og
veginn (Vilhj. Þ. Gíslason). 21,30
Útvarpshljómsveitin: Itölsk þjóð-
lög. Einsöngur (ungfrú Kristin
Einarsdóttir): a) Sveinbj. Svein-
bj.: Vetur. b) Arreboe Clausen:
Augun mín og augun þín. c) Krist-
inn Ingvarsson: Hjá lindinni. d)
Brahms: Söngur Saffó. e) Grieg:
I. Jeg reiste en deilig sommerkveld.
2. Med en vandlilje.
hentir voru, eru ýmis skraut-
lega gerð ávörp og kvæði sem
Jóni heitnum höfðu borizt um
dagana.
Þjóðminjavörður hefir mik-
inn áhuga fyrir að koma upp
sérstöku iðnminjasafni ásamt
listiðnaðarsafni, og býst við að
geta notið aðstoðar ýmissa
áhugamanna úr liópi iðnaðar-
manna og listvina.
En þó mun ekki vera liægt
að safna nednu að ráði, fyrr en
Þjóðminjasafnið fær stærri og
betri húsakynni.
Hýkomið:
Gólfmottur
2 stærðir.
Hamborg
Laugaveg 44. — Sími 2527.
6 manna.......kr.* 60.00
12 manna......... — 90.00
Ávaxtasett:
6 manna .........— 12.50
12 manna ......... —18.50
Föt, 3 hólf, .....— 11.25
Föt, 4 hólf, .... — 20.00
Nýkomið.
K. Einarison
á lljörnsson
Rafm. motor
5 ha., með gangsetjara, fyrir
220 • volta víxilstraum, til
sölu.
Halldór Ólafsson.
Sími 4775.
Nýkomið:
Teskeiðar
(Jitlar).
Hamborg
Laugaveg 44. — Sími 2527.
Tek að mér
á húsum annað hvort í á-
kvæðisvinnu eða timavinnu.
Tilboð, merkt: „100“ sendist
blaðinu fyrir þriðjudags-
kvöld.
VOrnbill
í góðu lagi og mjög sterkur,
öll gúmmí ný, til sölu. Skipti
á góðum fólksbil geta kom-
íð til greina. Til sýnis i dag á
Grettisgötu 16.
Lærið ad ma.t1búa,!
V ISIR
Frá hæstarétti:
Máli vísað frá
dómi.
Ekki grundvöllur undir
nýja meðíerð.
12. marz var kveðinn upp
dómur í hæstarétti í málinu Þór-
arinn Snorrason gegn Guð-
mundi Jónssyni, með þeim úr-
slitum, að málinu var vísað frá
hæstarétti. Er dómur liæstarélt-
ar svohljóðandi:
Með stefnu 29. maí f. á. hefir
Þórarinn Snorrason bóndi,
Bjamastöðum í Selvogi, krafizt
þess, að ttíkið verði til meðferð-
ar af nýju í liæstarétti samkv.
30. gr. laga nr. 112/1935 málið
nr. 141/1937: Guðmundur Jóns-
son gegn Þórarni Snorrasyni,
sem dæmt var í hæstarétti 8.
febrúar 1939, og málið nr. 93/
1939: Þórarinn Snorrason gegn
Guðmundi Jónssyni og gagnsök,
sem dæmt var í liæstarétti 6.
nóv. 1940. Stefndi, Guðmundur
Jónsson, hefir krafizt þess, að
nefndri dómkröfu Þórarins
Snorrasonai* vörði vísað frá
hæstarétti og að Þói*ami verði
dæmt að greiða lionum máls- ,
kostnað. Af liendi Þórarins hefir
frávísunarkröfunni verið mót-
mælt, og hafa aðiljar lagt frá-
vísunaratriðið undir dóm eða
úrskurð hæstaréttar sérstaklega.
Með bréfi 16. apríl 1941 sótti
hæstaréttarlögmaður um leyfi
dómsmálaráðbérra til þess, að
ofangreint mál yrði tekið til
meðferðar af nýju í hæstarétti
samkvæmt 30. gr. hæstaréttar-
laga nr. 112/1935. Beiðni sína
studdi hann við skýrslu Jóhönnu
Þorsteinsdóttur, er hún hafði
gefið utan dóms eftir uppkvaðn-
ingu hæstaréttardómanna, en
kona þessi seldi Þórarni Bjarna-
staði 1908. Samkvæmt nefndri
lagagrein getur dómsmálaráð-
herra að fegnum tillögum hæsta'
réttar leyft, að mál, sem þar
liefir verið dæmt, verði af nýju
tekið til meðferðar, ef það hefir
sannazt, eða mikil líkindi eru til
þess, að það liafi verið svo rangt
flutt, að niðurstaðan mundi liafa
orðið önnur i verulegum atrið-
um, ef svo liefði eigi verið, enda
megi heiðandi eigi sjálfum sér
um kenna. Sendi nú dómsmála-
ráðherra hæstarétti bedðnina til
álila. Með bréfi 23. júni 1941
til dómsmálaráðherra lýsti
liæstiréttur yfir þvi, að skilyrði
30. gr. hæstaréttarlaga til nýrrar
merðferðar málsins í hæstarétti
væri ekki fyrir bendi, þar sem
Þórami Snorrasyni hefði verið
í lófa lagið að afla skýrslna Jó-
hönnu um málið, meðan það
var rekið fyrir dómstólum, og
mætti hann þvi sjálfum sér um
það kenna, en hin nýju gögn, er
hann nú vildi flytja fram, komu
ekki til álita, er málið var dæmt.
Synjaði dómsmálaráðherra síð-
an hinn 7. ágúst 1941 endurupp-
töku málsins.
Með bréfi 7. febrúar 1942 fór
Guðmundur I. _ Guðmundsson
hæstaréttarlögmaður þess enn
á leit við dómsmálaráðherra, að
hann taki synjun sína til nýrrar
athugunar og veitti leyfi til nýrr-
ar meðferðar málsins í hæsta-
rétti, ef þess þætti kostur.
Skýrsla nafngreinds lögfræðings
um málið mun Iiafa fylgt um-
sókn þessari. Veitti dómsmála-
ráðherra siðan leyfi til endur-
upptöku málsins 15. mai 1942,
en þar sem hann leitaði ekki áð-
ur tillagna hæstaréttar samkv.
30. gr. hæstaréttarlaga um þau
gögn, er hann reisti hina breyttu
ákvörðun sína á, þá er leyfið
þegar af þeirri ástæðu ekki lög-
mætur grundvöllur undir nýja
meðferð málsins fyrir hæsta-
rétti, og ber því að vísa því ex
officio frá dómi.
Eftir atvikum þykir rétt, að
Rússar yfirgefa
Byelgorod.
Þeir hafa sótt fram í Vestur-Kákasus,
Hertjórnartilkynning Rússa í gærkveldi skýrði frá því, að
hersveitir þeirra hefði verið neyddar til að yfirgefa
Byelgorod, um 70 km. fyrir norðan Karkov, en Þjóð-
verjar höfðu tilkynnt töku borgarinnar fyrir fáeinum dögnm.
Jafnframt tilkynntn Rússar, að þeir hefði verið neyddir til að
láta lítið eitt undan síga hjá Tsjugujev.
Bardagar eru jafn harðir og
áður, en Rússar segjast vera
ofurliði bornir, og þvi verði
þeir að láta undan síga. Sér-
slaklega hafa Þjóðverjar dreg-
ið að sér mikið lið fyrir suð-
austan Karlcov, á Tsjugujev-
svæðinu.
Þjóðverjar tilkynntu, i gær,
að hersveitir þeirra væri nú
komnar að bökkum Donetz-
fljóts á öllu svæðinu frá Kar-
kov til Byelgorod, þrátt fyrir
hörð gagnáhlaup Rússa, en í
þeim hefði þeir ekkert liugsað
um mannslífin, sem þeir fórn-
uðu.
Norður hjá Syfevsk kveðast
Þjóðverjar hafa náð öruggu
sambandi við þær sveitir, sem
verja Orel, og né nú búið að
stöðva Rússa þar, eins og víð-
ast annarsstaðar, svo að þeir
sæki nú aðeins á fyrir suðvest-
an Viasma og hjá Ilmenvatni.
Sókn Rússa til Smolensk
gengur nú miklu hægar en áð-
ur og segja þeir, að það stafi
af vorleysingum, því að allir
vegir verði ófærir, nema þeir,
sem liafi verið þjóðvegir, og
þeir eru ekki ýkjamargir. Of-
an á ísi ánna rennur mikið vatn
og er það líka til mikils trafala.
VESTUR-KÁKASUS.
Það er nú bráðum liálfur
mánuður síðan fregnir bárust
frá þessum hluta vígstöðvanna.
Hafa liernaðaraðgerðir legið
niðri að miklu leyti vegna þið-
viðra, en nú segjast Rússar hafa
gert þar nokkur áhlaup með
góðum árangri. Hafi þeir tekið
þar allmöyg þorp og að auki
eina borg afar vel víggirta, og
var liún rétt hjá ströndum Az-
ovs-liafsins.
Churchill.
Frh. af 1. siðu
sama grundvelli og Þjóðabanda-
lagið var og þjóðirnar yrði að
sjá svo um, að það yrði að reglu-
legu þjóðaráði — með valdi til
að framfylgja samþykktum sín-
um, hindra stríð og því likt.
Þjóðirnar í Evrópu yrði að
skipa sér i li^pa, sagði Chur-
chill, en liver liópur sendi síð-
an fulltrúa á þing, þar sem þær
réðu ráðum sínum, en hinar sig-
ursælu þjóðir yrðu að veita heil-
liuga samvinnu og hjálp í þessu.
En ekkert væri jafn hættulegt
og að tala um landamæri og
landaskipan nieðan striðið er
ekki enn búið að ná hámarki á
vesturvígstöðvunum, kafbátarn-
ir lierjuðu sem fyrr og barizt
væri af móði i Rússlandi og
Austur-Asíu.
Fjögurra ára áætlun
fyrir Brétland.
Er hér var komið, fór Chur-
chill að tala um vandamál Bret-
lands sjálfs og sagði, að sér
fyndist það ekki fráleit liug-
mynd, að gerð yrði fjögurra ára
áætlun fyrir breytingatimana,
sem kæmi eftir að stríðinu yrði
lokið og menn færi aftur að
snúa sér að friðsamlegri störf-
um. Tímamir eftir stríðið yrði
örðugir, sagði Churchill, en
liann kvaðst hafa trú á hugviti
og dugnaði þjóðar sinnar til að
vinna bug á öllum erfiðleikum.
Hann kvaðst vera meðmæltur
algerri tryggingalöggjöf, sem
tryggði mönnum, að þá mundi
elcki þurfa að skorta neitt, frá
vöggu til grafar, og sú löggjöf
yrði að skipa veglegan sess í
þeirri fjögurra ára áætlun, sem
hann hefðf hugsað sér.
Bezta tryggingin gegn at-
vinnuleysi væri ekkert atvinnu-
leysi og það yrði að sjá um
það, að hvergi væri iðjuleysingj-
ar, hvaða stétt sem í hlut ætti.
Hið opinbera og einstaklingar
málskostnaður fyrir hæstarétti
falli niður.
Hrl. Stefán Jóh. Stefánsson
flutti málið af hálfu áfrýjanda,
en hrl. Lárus Jóhannesson af
Iiálfu stefnda.
vrði að haldast í hendur til að
skapa alla þá atvinnu, sem nauð-
synleg væri. Það yrði líka að
framleiða meiri mat lieima, en
gert var fyrir stríðið og á því
sviði hefði verið unnið mikið
verk og þarft.
I
Heilbrigði, menntun.
Það yrði að koma í veg fyrir
það, að barnfæðingum fækkaði,
því að annars væri voði fyrir
dyrum og það yrði að veita öll-
um sömu möguleika til að
mennta sig, svo að beztu liæfi-
leikar kæmi fram. Þegar börn-
in færi úr skóla mætti ekki
varpa þeim miskunnarlaust á
vinnumarkaðinn.
Þá yrði það eitt höfuðverkefni,
að endurreisa borgirnar og það
myndd krefjast mikillar vinnu
og fjár, en þar gæfist gott tæki-
færi til að koma i veg fyrir, að
atvinnuleysi skapaðist.
Fjármálin.
En allt, sem gert yrði, það
yrði að byggjast á því, að fjár-
málin væri á heilbrigðum
grundvelli. Þegar striðinu lyki
mundi 7—-8 milljónir manna
eiga 200—300 pund i banka, sem
væri einsdæmi, og rikið yrði að
standa við skuldbindingar sínar
gagnvart þessu fólki, því að það
liefði lánað ríkinu féð til stríðs-
útgjalda.
Þegar striðinu lyki yrði allt
kapp lagt á að halda verðlagi
stöðugu, eins og að undanförnu,
en þó skatlar væri nú hærri en
nokkuru sinni, mætti ekki
vænta þess að þeir yrði minni.
Það verður að undirbúa frið-
inn, sagði Churchill að lokum,
til þess að hann komi ekki á
óvart eins og síðast, því að það
leiddi til hins mikla atvinnu-
leysis og allra jæirra hörmunga
og upplausnar, sem því fylgdu.
En það er hættulegt að vera að
tala um friðinn og ávexti hans,
eins og hvorttveggja sé þegar
orðið að veruleika, meðan Rúss-
ar úthella blóði sínu í hat-
rammri baráttu við fjandmann-
inn og sama væri að segja um
hermenn Breta og bandamenn
þeirra í Tunis.
„Eg hefi hér í höndum,“ sagði
hann að síðustu, „fregn frá
Montgomery, sem segir, að 8.
herinn sé enn byrjaður sókn og
Vísir fyrir 25 árnm.
Vikan 15.—21. marz 1918.
15. marz:
Út af hafnarbakkanum og
niður í sjó datt hestur með
vagni í fyrradag. Hestunnn
kom þegar fyrir sig sundi og
synti með vagninn i eftirdragi
út á liöfn. Yar þá farið á báli i
veg fyrir hann og hann siðan
teymdur á land. Varð liestinum
ekkert meint við þetta, en lijól-
in liöfðu týnzt undan vagnin-
um.
„Frónið“ kom út í fyrradag,
þrem dögum fyrir timann, til
þess að leiðrétta vitleysuna, sem
það flutti á laugarclaginn.
Fra Akureyri var símað i gær,
að ís væri þar enn samfastur á
firðinum út undir Hrisey, en á-
gætis tíð til lands og sjávar.
Seglskipið, sem kom á dögun-
um til Kveldúlfsfélagsins frá
Færeyjum, hafði sand fyrir segl-
festu, og er nú veriö að flytja
hann í land og verður hann not-
aður í steinsteypuhús, sem fé-
lagið er að byggja við Grundar-
stig. Verður það fvrsta liúsið
hér, sem byggt er úr útlendum
sandi.
16. marz:
Þjóðfundurinn í Moskva er að
ræða friðarsamningana við
Þýzkaland.
18. marz:
Það er nú komið upp úr kaf-
inu, að ein aðalástæðan til þess
að botnvörpungarnir voru seld-
ir til Frakklands hafi verið ó-
reglan hérna á höfninni. Að
minnsta kosti segist einum
skipstjóranum. svo frá í blaða-
grein nýlega.
19. marz:
Smjör var selt hér í bænum á
kr. 3.25 pundið og er það líklega
ekki mikið lægra verð en gerist
annarsstaðar í heiminum, þar
sem smjör er dýrast.
21. marz:
í gærkveldi þegar verið var að
leika „Frænku Charleys“ i leik-
liúsinu, vildi það slys til, milli
siðustu þáttanna, að „King-
Storm“-lampi sprakk ,á leik-
sviðinu, en éinn aðstoðarmað-
urinn á leiksviðinu, Jónas Guð-
mundsson gaslagningamaður,
greip lampann og liljóp út með
hann. Brendist Jónas talsvert á
annari hendinni, en litill vafi er
á því, að hann hefir með snar-
ræði sínu bjargað húsinu, og
mörgum mönnum frá meiðsl-
um.
Á þriðjudagskvöldið um kl.
6, vildi það slys til, að maður
einn, Kristófer Magnússon frá
Framnesvegi 1, féll út af hafn-
arbakkanum, niður á milli
hakkans og skips, og lærbrotn-
aði. Hafði hann verið að líta eft-
ir vélbáti, sem hann átti von á,
en gengið tæpt á bakkanum og
flækzt með fótinn í keðjum eða
köðlum.
hann sé ánægður með árangur-
inn. Óskum honum góðrar ferð-
ar, snúum okkur aftur að
störfum okkar og vinnum af
meira kappi en nokkuru sinni.“
Hitler.
Frh. af 1. síðu
heldur þær þjóðir, sem hefði
verið að efla hana og gengið
í lið með henni.
Þýzka þjóðin hefði eflzt i
liættunni, og nú væri jafnt og
þétt verið að beizla hina miklu
orku, sem vaknað hefði við
liættuna, og því meiri sem erf-
iðleikarnir væri, því varanlegri
yrði friðurinn.
Ný matreiðslubók
eftir HELGU SIGURÐARDÓTTÖR:
Læriö að matbúa
Framan við bókina hefir dr. Julíus Slgurjónsson
skrifað kafla um næringarefnaíræði.
Bókin er mjög mikið aukin og breytt frá fyrri útgáfu
og því í rauninni alveg ný bók. Aftan við liana er nær-
ingarefnatafla og tafla yfir vitamíir. og, sölL
Bókin er 214 bls. prentuð með smáu en skýru: letrí
á góðan pappír.
FÆST HJÁ ÖLLUM BÓKSÖLUM.
Tvær nýjar bækur;
Ilaralds Nielssonar, fyrirlestrar III: Gunnar Gunnars-
son: Siðmenning — Siðspilling. Kostar 3 kr.
from Iceland and otlier Countries, eftir H. M. Scargil!
Ph. D. — í þessari litlu bók eru s jö þjóðsögur íslenzkar
og útlendar. Kostar kr. 2.75,
Bókaverzlun ÍSAFOLDAR
Skrifstofustúlka
Dugleg skrifstofustúlka, vön vélritun, óskast nú
þegar, eða sem fyrst. Eiginhandar umsókn, ásamt skil-
ríkjum um menntun, sendist skrifstofu
Verzlunarráðs íslands
Fyrii’spui'num ekki svarað í síma.
i
Rafmagnsmótorar
EINFASA 1/12—1/8 og 1/4 ha. — ÞRIGGJAFASA 1 til 20 hö.
. . Þeir, sem pantað hafa mótora, eða minnst á kaup við
okkur, geri okkur aðvart í síma 4320.
Johan Rönníng h.f.
Tjamargötu 4.
Konan mín,
Hólmfríður Pálsdóttir
andaðist 20. þ. m.
Fyi’ir rnina hönd og barna minna.
Jón Magnússon, Urðarstíg 11.
Það tilkynnist hérmeð að maðurinn minn,
Bjfirn Jóhannsson
andaðist að heimili okkar, Fi’amnesvegi 8 A, þann 21. þ. m.
Þórunn G. Guðmundsdóttir.