Vísir - 27.05.1943, Blaðsíða 1

Vísir - 27.05.1943, Blaðsíða 1
Ritstjórar: • Kristján Guðlaugsson Hersteinn Pálsson Skrifstofur: « Félagsprentsmiðjan (3. hæð) 33. ár. Reykjavík, fimmtudaginn 27. maí 1943. Ritstjórar Blaðamenn Slmi: Auglýsingar 1660 Gjaldkeri 5 llnur Afgreiðsla 118. tbl. Rú§§ar undlr- j bna storsókn. i . i FLUGHER Rússa hefir haldið uppi látlausum árásar- og könnunarferðum um allar austurvigstöðvarnar, allt frá Finnlandsflóa suður lil Svartahafs undanfarin dægur. Uað er Ijóst af fréttunum frá Rússlandi, að Rússar undirbúa nú af kappi stórsókn gegn leifun Sókn Rússa virðist þegar hafa gert það að verkum, segja Bret- ar, að Hitler hefir orðið að breyta áætlunum sínuin um „vorsókn“ á austurvígstöðvun- J nm. 1 Kuban voru bardagar liarð- i astir i gær. Rússar hrundu þar gagnárás tveggja þýzkra herfylkja og skutu niður 67 þýzkar flugvélar, en misstu 20 sjálfir. í herstjórnartilkynningu Rússa i gærkveldi var skýrt frá þvi, að þeir hefði tekið fjögur Ný »hreinsun« í Nazistaflokknum, Robert Wagner, fylkisstjóri í Mannheim, einn af fremstu fylk- isstjórum (Gauleiter) Hitlers, hefir lýst yfir því, að kominn sé tími til „nýrrar flokkshreinsun- ar“ innan Nazistaflokksins. 1 blöðum bandamanna liafa þessi ummæli verði skilin þann- ig, að Nazistar verði nú varir mikilla svika og lausungar inn- ^n flokksins, en hernaðaróför- um Þjóðverja sé beint og óbeint um að kenna. Þvi hefir hvað eftir annað verið haldið fram, í blöðurn bandamanna, að ótti um ósigur grafi nú mjög um sig í herbúð- um Nazista, en samkvæmt kenn- ingum Hitlers er slíkur ótti hið sama og landráð á styrjaldar- timum. Fregnir um skemmdarverk Þjóðverja á hergögnum og vig- vélum Iiafa að undanförnu ver- ið að berast út fyrir talcmörk Ev- rópu. Þannig hefir frá Noregi lil dæmis frétzt um mikla skemmdarstarfsemi af hálfu þýzkra sjóliða á herskipum og birgðaskipum í Oslo, bæði þýzk- um og norskum. Óhug miklum mun hafa sleg- ið á þýzku þjóðinaviðfregnirnar frá Stalingrad i haust, og talið fráleitt að dr. Göbbels hafi tek- izt að rétta kjark þjóðarinnar við aftur eftir þann hnekki. Sið- ustu fregnirnar um ósigurinn i Afríku og yfirvofandi uppgjöf ítala eru sizt til þess fallnar að auka fólki kjark. Ef úr slíkri flokkshreinsun verður, er engin ástæða til að ætla að hún verði mildari en júní-hreinsunin 1934, þegar Röhm höfuðsmaður, einkavinur Hitlers, var myrtur í rúmi sínu og sömu nóttina fjöldi annara manna og kvenna, sem grunuð voru um samsæri gegn Hitler, þar á meðal Schleicher liers- höfðingi og kona hans, en Sclileicher var talinn eiga að verða eftirmaður Hitlers sem kanslari Þýzkalands. Italska útvarpið hefir nú við- urkennt, að uppjiot og óeirðir hafi átt sér stað meðal ítalskra verkamanna, án þess að greina nánar frá þeim. • Edsel Ford, sonur Henry Fords, lézt í gær i Detroit. Hann var 48 ára að aldri. þýzka hersins. i þorp vestur ai Kalinin þa um daginn. Davis, sendimaður Roosevelts, hefir rætt við Stalin öðru sinni. 1 Erfitt að uppræta Japani á Attu. Það er erfiðleikum bundið að uppræta síðustu flokka Japana á eynni Attu. I dag er tiundi dagurinn, sem liarizt er á eynni, og samkvæmt fregnum hafa Bandaríkjamenn megnið af eynni á valdi sínu. : Japanir liafa hinsvegar nokkrar hæðir austarlega á benni á valdi sinu og þar verjast þeir mjög hraustlega. Veður er líka þeim í hag, því að undanfarna daga hefir v.erið kafald við og við. Þrátt fyrir þetta liefir Banda- ríkjamönnum tekizt að upp- ræta nokkur vélbyssuhreiður, sem hafa myndað — með fleir- um slíkum stöðvum — kjarn- ann i síðustu vörn Japana. Lið Japana hefir enga von um að geta rétt hlut sinn né um að koinast undan. Kanadalið kemur til Bretlands. í gærkveldi var tilkynnt í London, að kanadiska hernum í Bretlandi hefði enn borizt liðs- auki. Sveitir þær, sem nú eru ný- komnar austur um liaf, eru úv fó tgönguli ðinu, s tórsko taliðinu, skriðdrekaliðinu og verkfræð- ingadeild hersins. Er það allt fullæft og búið til bardaga. • Þá skýrði herstjóru Banda- ríkjamanna á Bretlandi frá þvi i gær, að þangað væri kominn Gockett undirliershöfðingi. Ilann er sérfræðingur í útbúnaði og skipulagningu þýzka hersins, því að hann liefir starfað \ið amerísku sendisveitina i Bcrlín. Samningar hefjast í koladeilunni vestra. Samningar eru nú hafnir í kolanámudeilunni í Bandarikj- unum. Gerðardómurinn kallaði á fund enn einu sinni í gær og kom John L. Lewis þangað i fyrsla skipti, en hingað til hefir staðið á því, að liann fengist til að ræða við dóminn. Segir í fregnum af viðræðun- um að þær hefi verið vinsam- legar og sé liorfur góðar um að samningar lakist fyrir mánaða- inót. Það mun liafa liaft úrslita- áhrif á Lewis, hversu kuldalega Jjví var tekið, er verkamanna- | félag hans leitaði upptöku i sam- i bandið „American Federation of , I Labor“. Roosevelt hefir skipað verk- fallsmönnum i gúmmíverk- smiðjum í Akron (Oliio) að snúa aftur til vinnu fyrir hádegi i dag (kl. I ísl. tímij. Á einum flugvelli bandamanna í Túnis Það er mi'kið um að vera á flugvöllunum i Norður-Afríku um þessar mundir. Það er unnið dag og nótt, Jjví að Jiað er ótrúlega mikið starf, sem Jiarf að inna af liendi við að halda flug- vélum við, búa þær undir árásir með þvi að láta í ]iær sprengjur, eldsneyli og skoltæri. A myndinni er verið að búa brezka, tvihreyfla flugvél undir leiðangur, meðan flugmennirnir horfa á. Allir búa í tjölduin á flugvölhmum og bækistöð vfirforingjans er í stórum bil, sem er búinn loftskevtastöð. Diisseldorí-árásin önnur mesta loftárás stríðsins Harðnandi loftárásir á Þýzkaland og Italíu. DCSSELDORF er þriðja stærsta innanlandshöfn Þýzkalands og einhver mesta iðjuborgin í Ruhr-héraði. Þar er stjórnarsetur flestra stór- verksmiðja héraðsins, aðalskrii'stofnr og teiknistofur. Borgin liggur aðeins 37 kílómetra frá Köln, sent brezki flugherinn gerði sína voldugustu árás á fyrir ári, Jteg- ar sendar voru meir en 1000 flugvélar yfir borgina á stuttum tíma. Árásin er talin álika hörð og árásin á Dortnumd fyrir fáimi dögum, enda er íalið að fjöldi Jieirra brezku sprengjuflugvéla, sem saknað er, gefi til kynna að geysi-margar flugvélar liafi verið sendar til árásarinnar. 27 brezkar flugvéla er saknað. í tilkynningu flugmálaráðuneytisins i morgun var sagt, að vegna Jiess, live loft var skýjað, liafi verið erfitt uin mið og erfitt að segja til um tjónið. I árásinni á Dússeldorf vörp-, þ\í að samtimis J>vi, sem frélzt uðu flugvélar Breta niður að liefir að ibúarnir séu fluttir meðalíali fimm tveggja smá- burt, berast fregnir um auknar lesta spreiigjum og tveim einn- liðssendingar Þjóðverja til eyj- ar smálestar sprengjum á mín- arinnar. útu liverri, auk fjölda fjögurra ! Frii aðalstöðvum Eisenhow- smálesta sprengja. Alls telur ers er tilkynnt, að á þriðju- biezka flugmálaráðuneytið, að dag liafi 26 óvinaflugvélar sama sprengjumagni liafi verið verið eyðilagðar af flugher varpáð niður í þessari árás einni bandamaima í Norðúr-Afríku. og i 19 samfelldum loftárásum lén nærri 100 flugvélar banda- Þjóðverja á London fyrir tveim manna tóku þátt í árásunum í árum. | gær á Sikiley, Sardiniu og Pan- ' tellaríu. ÍTALÍA. Giraud og de Gaulle sáttir Það hefir orðið að samkomu- lagi milli frönsku hershofðingj- anna Giraud og de Gaulle, að setjá á stofn sameiginlega | stjórnarnefnd stríðandi Frakka um alian heim á J>eim grund- velii, sem franska stjórnar- J nefndin i London slakk upp á og getið var um hér i blaðinu á mánudag. í Samkvæm l þessu samkomu- i lagi eru þeir sjálfkjörnir i nefndina og tilnefna að auki '■ tvo menn livor, en síðar vérður nefndarmömmm fjölgað um þrjá, [>annig að þeir verða alls niu. Nánari samningar munu ( fram fara milli hershöfðingj- anna, Jægar de Gaulle kemur til N.-Afriku i lok [>essarar viku. „Kooðsr HoDvélarnor ekki bæíluleoar leoour. Meðan Jæssum loftárásum á \restur-Þýzkalandi fer fram, láta brezkir og ameriskir flug- menn ekkert tækifæri ónotað til árása á stöðvar ítala við Mið- jarðarhaf. Árásum er haldið uppi á Sikiley, Sardínu og Pan- tellaríu. í fvrradag voru 2 loft- árásir gerðar á Messina áSikiley. Amerískar 1-lireyfia Liberator- sprengjúflugvélar vörpuðu 175 smálestum af sprengjum og eldsprengjum yfir borgina. Á- rásunum var einkum beint gegn ferjukvíúm og járnbrautar- stöðvum í borginni. Fimmtíu ameriskar flugvélar Jijku J>átt í harðri loftárás á Reggio di Calbria og San Gio- vanni á suðurodda Ítalíu, hand- an Messinasunds. Cagliari, höfuðborg Sardíníu, hefir að kalla má verið gereyði- lögð, ásamt viðlendu liéraði, sein liggur að henni og nærliggj- andi flugyöllúim lbúar borgar- innar liafa verið fluttir burtu. Þjóðverjar virðast tejja þess- ar miklu loftárásir á Sardiniu undanfara innrásarlilraunar, FRANCO MA TRÚTT UM TALA. Brezka útvarpið í morgun vitnaði i ummæli spanskra fal- angistablaða um loftárásir bandamanna, og segir að þar kveði við nokkuð annan tón en meðan á loftárásmmm á Eng- land stóð fyrir tveim árum. Nú segja spænsku blöðin, að loft- árásirnar séu „ómannúðlegar“ og hafi „enga hernaðarþýð- ingu“. Rrezk l>löð hafa bent á, að Franeo forsináði ekki að beita þýzkum flugvélum fyrir sig i spænsku styrjöldinni, og að hingað til liafi |>áð þótt góð latína á Spáni að trúa á mátt ílugherja. Loftsókninni var haldið áfram af sáma kappi í gær. Auk J>ess, að ráðist vár á Sardiniu og Sik- íley, var nokkrum skipum sökkt við Grikkland. • Ffanco liefir nú fyrirskipað, að komið skuli upp sprengju- heldum loftvarnaskýlmn i öll- um spænskum borgum með yf- ir 20 þúsund ibúum. Aukin flugvélavernd skipalesta. Siglingum bandamanna á norðanverðu Atlantshafi stafar ekki lengur hætta af hinum langfleygu flugvélum Þjóð- verja. Meðan bandamenn voru ekki búnir að skipuleggja fullkomna loftvernd handa skipalestuin, máttu J>ær alltaf eiga það víst, að einhver liinna langfleygu flugvéla Þjóðverja — Focke- Wulff „Kondor“ — . mundi koma upp um ferðir Jieirra og tilkynna um J>ær til kafbóta, sem gæti J>á legið í leyni fyrir J>eim. Þessi liælta er nú raun- verulega úr sögunn, því að flugvélar strandvarnalið brezka flughersins eru betur húnar að vopnum og geta næstum alltaf hrakið J>ær á brott, áður en þær komast í augsýn við skipalestir, sem eru á ferð og brezku flug- vélarnar eiga að vernda. Flugvélar strandvarnaliðsins brezka fljúga nú meira en 1550 milur á sjó út og eftirlitsflug- 30 bifreiðum úthlutað. Nýlega konvu til landsins 30 fólksbifreiðar. Nokkrar umræður Iiafa orðið i blöðum um skiptinguna, eink- um með tilliti til atvinnubíl- stjóra og stöðva. Eftir upplýs- ingum, sem blaðið liefir fengið i fjármálaráðuneytinu, hefir Skilanefnd Ri freiðaeinkasölunn- ar úthlutunina algerlega með liöndum, að öðru leyti en þvi, að ráðherra liefir ákveðið eftirfar- andi skiptingu: 15 liifreiðar til bifreiðarstjóra ög stöðva. 10 bifreiðar til læknn. 5 bifreiðar til embættismanna. Mun úthlutuniniii vera lokið. Brezka bóka- og listsýningin opn- uð 1. júní. Á þriðjudaginn kemur verður brezka koparstungu- og' bóka- sýnÍRgin opnuð í sýningarskála listamanna, Á«k þessa verða sýndar þar tréskurðarmyndir og Ijósmyndir. Sýning J>essi er haldin að til- hlutun British Council, undir aðalumsjón Mr. Steegman, sein nýkominn er liingað tíl lands- ins. Mun hann i sambandi við sýndar þar tréskurðarmyndir lestra mn brezka list og lista- menn. A sýningunni verða m. a. um 600 bækur og- verða J>ær að sýn- ingunni lokinni gefnar íslenzk- um hókasöfnum. aðallega Há- skólasafninu og Landsbókasafn- inu. Sýningin verður opnuð kl. 6 siðd. á Jn iðjudaginn fyrir al- menning, en sjálf opnunar- athöfnin fer fram kl. 3 og tala J>á bæði próf. Sigurður Nordal og Mr. Steegman. Annars verð- ur sýningin opin daglega kl. 10 árd. til kl. 10 siðd. Flolamálaráðuneyti Banda- rikjanna tilkynnti i morgun að ameríski flotinn hefði sðfckt hjálparskipimi Niagara i Suðnr- Kyrrahafi, eftir að Japanir höfðu gert loftárás á skipið ný- lega. • Þjóðverjar tilkynna, að þeir hafi stofnað verkfræðiháskóla í Minsk, sem sé fimmti háskól- inn, sem þeir stofni frá stríðs- byrjun. Hinir eru í Danzig, þar sem J>eir segjast hafa stofnað tvo, í Strassburg og Posen. SíðnstM fréttir Stokkhólmsblaðið Arbetaren birtir þá fregn í morgun, að Þjóðverjar hafi lokað aðalveg- inum frá Oslo austur til landa- mæra Svíþjóðar. Hafa þeir skriðdrega við vegatálmanirnar, en auk þess hafa þeir gert ráð- stafanir til að sprengja brýr í loft upp fyrirvaralítið. Tré hafa verið feHd yfir veginn og vill- andi vegamerki sett upp við vegamót. vélar Bandarfkjaiina álika leið, svo að skipaléstir eru aðeins ör- stutta stund án flugvélaverndar á miðju Atlants'liafi. i

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.