Vísir - 09.07.1943, Side 1
Ritstjórar:
Kristján Guðlaugsson
Hersteinn Pálsson
Skrifstofur:
Félagsprentsmiðjan (3. hæð)
Ritstjórar
Blaðamenn Slml:
Auglýsingar 1660
Gjaldkeri S llnur
Afgreiðsla
33. ár.
Reykjavík, föstudaginn 9. júlí 1943.
153. tbl.
Ný flugstöðvarskip bandamanna
undanfarið hefir þess verið getið nokkuð í fréltuni, að banda/nenn se íarnir að noia nýja og
minni gerð flugstöðvarskipa, sem liægt er að smíða á mjög stuttum tíma. Myndin hér að ofan
sýnir eitt þessara skipa, sem hafa 20—30 flug élar innan borðs. Þau eru nefnd „Woolwortli-
skip“, vegna þess livað þau eru tiltölulega ódýr.
Framleiðsla bandamanna
ferföld á við framleiðslu
möndulveldanna í lok ’44
Ultírís á Kili.
Brezkar flugvélar fóru til
Þýzkalands í nótt og réðust á
Köln.
I----
Ein flugvél á 5.
egar komið verður undir
lok þessa árs munu Banda-
ríkin og Kanada framleiða sem
svarar einni fullgerðri flugvél
á hverjum tæpum fimm mín-
útum, sagði Donald Nelson, yf-
iraður hergagnaframleiðslu
Bandaríkjanna í ræðu, sem
hann hélt í Töronto í Kanada
í gær.
Til þessa tíma frá því að
stríðið hófst hafa þessi tvö
lönd framleitt um 150.000 flug-
vélar af öllum gerðum. Á sama
tíma liafa verið smíðaðar 60*000
skriðdrekar eða skriðdreka-
grindur, sem liafa verið notað-
ar sem fallbyssugrindur fyrir
hina nýju skriðdrelcabana
bandamanna. Vörubílar hafa
líka verið framleiddir í stórum
stíl, svo að þeir eru orðnir
1.600.000 samtals.
Skipasmíðar hafa líka verið
gífurlegar. Stærð kaupskipanna
neraur 20 milljónum smál.
deadweight, en herskipin hafá
verið samtals 10 milljónir smál.
í fyrra reiknaðist banda-
mönnum svo til, að þeir fram-
leiddu tvisvar meira en mönd-
ulveldin og á þessu ári á fram-
leiðsla þeirra að verða þrisvar
meiri, sagði Nelson. Á næsta
ári á framleiðsla bandamanna
að verða fjórföld á við fram-
leiðslu möndulveldanna. Ekki
mun veita af, sagði hann að
lokum, því að bráðlega munu
hefjast orustur, sem munu
gleypa hergögn með meiri
hraða en dæmi eru til áður.
Lausn í Martinique-
málinu bráölega.
Hull utanríkisráðherra Banda-
ríkjanna segist vonast til að geta
gefið út tilkynningu um fram-
líðarstöðu Martinique á næst-
unni. Samingar eru ekki um
garð gengnir, en þeim verður
lokið innan skamms.
Giraud hershöfðingi fer til
Kanada í næstu viku, þegar
hann hefir lokið viðræðum sín-
um í Washington. Þar verður
bæði rætt um aðstöðu Frakka
hernaðarlega og stjórnmála-
lega.
hverrl minUtu.
S V-Ky rrahafið:
Segjast sökkva 29
sklpum vid Salo-
monseyjar.
Japanir segjast hafa unnið al-
geran sigur á hersveitum banda-
manna, seih fóru á land á Nýju
Guineu við Nassau-flóa. Gaf
japanska herstjórnin út til-
kynningu um þetta í gær.
Þann 30. júní reyndu her-
sveitir undir stjórn MacArthurs
að ganga á land við Nassau-
flóa, segir í 'tilkynningunni, og
lókst það. Um sama leyti fengu
ástralskar hersveitir skipun um
að fara til móts við þær fráWau.
Japönsku hersveitirnar i Sala-
raaua gripu þegar til gagnráð-
stafana og á mánudaginn, þann
5. júlí lögðu þær til orustu við
bandamenn. Urðu úrslit þeirr-
ar orustu þau, að bandamenn
biðu algeran ósigur.
Frá bardögunum á Rendova
og Nýju-Georgiu segja Japanir
þær fregnir, að þeir haldi uppi
miklum loftárásum á skip og
stöðvar Bandarípjamanna þar
við eyjarnar. Segjast þeir hafa
sökkt 29 skipum, en laskað 8
skii). Skip þau sem Japanir
segjast hafa sökkt eru: Tvö
beitiskip, 5 tundurspillar, 3 lier-
skip af óvissri gerð, 8 flutninga-
skip og tíu skip önnur. Löskuð
voru tvö beitiskip, einn tundur-
spillir, einn tundurskeytabátur
og fjögur flutningaskip.
I herstjórnartilkynningu Mac
Arthurs í mórgun segir, að am-
erískar liersveitir steí'ni til
Munda úr þrem áttum. Ein
fregn hermir, að slegið liafi í
bardaga á einum stað fimm
kílómetra frá flugvellinum.
Stórar flugvélar bandanjanna
á N.-Guineu hafa gert harðar
áriásir á Japana hjá Mubo og
Salamaua.
Árásin var stutt en hörð, segir
í tilkynningu flugmálaráðuneyt-
isins. Átta flugvélar komu ekki
aftur.
Þó er ekki víst, að þær liafi
allar farizt í árásinni á Köln,
því að tundurduflum var einn-
ig varpað á skipaleiðir.
10 japönskum skipum
sökkt.
Amerískir kafbátar hafa enn
sökkt tíu skipum fyrir Jap-
cnum*við Austur-Asíu.
Tvö skipanna voru olíuflutn-
ingaskip og eitt stórt vöruflutn-
ingaskip. Auk þeirra skipa, sem
var sökkt, löskuðu kafbátarnir
fjögur skip. Hefir ekki verið
tilkynnt áður um neitt þessara
skipa.
Orói I Kiel.
„Handelstidningen“ í Gauta-
borg birtir þá fregn, að komið
hafi til uppþota í Kiel í vikunni
i sem leið.
I Að sögn blaðsins var SS-sveit
' send til skipasmíðastöðvar flot-
j ans í síðustu viku og var hún
I látin hafa þar eftirlit í tvo daga.
' Orsökin var sú, að flugmiðum
hafði verið dreift meðal sjóliða
þar og hljóðuðu þeir á þessa
leið: „Kafbátastríðið hefir einn-
ig inislieppnazt. Farið ekld út i
hinum fljótandi líkkistum.
Ljúkum striðinu. Niður með
Hitler.“
Bretar láta i Ijós ýmsar efa-
semdir um þessa frétt og aðrar
svipaðar. Er þeim ekki grun-
laust, að Þjóðverjar útbreiði
viljandi slikar fréttir til þess að
auka bjartsýni meðal almenn-
ings í löndum bandamanna, svo
að síðari fregnir geti komið eins
og reiðarslag, þegar almenn-
ingur á þeirra sízt von.
Samkvæmt skýrslu norska út-
varpsins eru nú, aðeins 8500
gjaldskyldir útvarpshlustendur
í Noregi. Þeir voru 460.000 áður
en tækin voru tekin af fólki.
Rússar reyna að ut-
má fleyg Þjóðverja
fyrir sunnan Knrsk
Noirður undir Orel haía þeir
hrundið ölium áhlaupum.
Þjóðverjar aldrei snarari i
. MiiiÍDiiii^um.
Þótt barizt væri af saraa kappi í Rússlandi í gær og
áður, áttu sér þó engar verulegar breytingar
stað. Rússar sögðu i gærkveldi, að þeir hefði
einkum gert tilraunir til að útmá l'leyginn, sem Þjóð-
verjar voru búnir að reka í varnarkerfi þeirra fyrir
sunnan Kursk. En þeir sögðu ekki, að sér hefði tekizt
það.
Fyrir norðan Kursk hafa Rússar ekki látið undan siga og er
þó engu minni ofsi í bardögum þar. Það sem ræður því, að
Þjóðverjum gengur ekki eins vel þarna, er landslagið. Það er
hentugra til varnar en sóknar. Milli Kursk og Orel er hinsvegai'
hið fyrirheitna land skriðdrekanna.
Þar eru lágir ásar og aflíð-
andi, landið næstum því flatt
og hingað og þangað þorp og
smáskógar. Rússar og Þjóðverj -
ar skiptast á að hafa þorpin á
valdi sínu og jafnvel, þegar þau
eru ekkert annað en múrsteina-
hrúgur og spýtnahaugar er á-
fram barizt um þau af engú
minna kappi en þegar þau veita
nærri fullkomið skjól fyrir vél-
byssuskyttur og skriðdreka-
byssur.
Sami ofsi og1
í fyrrasumar.
Fréttaritari Daily Telegraph
í Moskva simar, að bardagarnir
sé búnir að ná sama ofsa og í
fyrra, þegar Þjóðverjar geyst-
ust austur að Volgu, en nú sé
munurinn aðeins sá, að Rússar
hafi getað haldið Þjóðverjum í
skefjum næstum allsstaðar.
En Þjóðverjar hafa aldrei
verið skjótari í snúningum en
einmitt í þessari sókn. Skrið-
drekaflotar þeirra fara til og
frá til að leita að veikum, bletti
i vörnum Rússa og þeir fara
hraðar en nokkru sinni. Hið
hreyfanlega stórskotalið Rússa
er þó jafnfljótt á sér og það er
jafnan fyrir þar sem Þjóðverj-
ar leita á. Orsökin fyrir því,
að Rússar geta alltaf fylgzt með
þessum hreyfingum þýzku
skriðdrekanna er sú, að þeir
þyrla upp svo miklu ryki, að
það er hægt að fylgjast með
ferðum þeirra í órafjarlægð,
þótt þeir sé í hvarfi við ása eða
skóga. Það mundi koma sér
vel fyrir Iþóðverja, ef skúr
gerði, til þess að draga úr ryk-
inu, en þvi fylgdi þá sú hætta,
að tigris-skriðdrekar þeirra,
sem eru um 60 smál., mundu
sökkva svo í gljúpan jarðveg-
inn, að þeir gætu ekki fylgt hin-
um léttari eftir.
Loftbardagar,
Þjóðverjar segja margar sög-
ur af þvi, hversu mikil afrek
flugmenn þeirra vinni. Þann 5.
júlí segja þeir, að flugsveit sú
sem kennd er við Mö’deru fbVár-
foringja, en hann er fallinn,
hafi skotið niður 99 rússneskar
flugvélar. Einn flugmaður úr
lienni skaut niður 15 þessara
flugvéla.
Önnur flugsveit hefir síðan
skotið niður 77 flugvélar á ein-
um degi, en misst aðeins eina
sjálf.
Kínverjar taka borg.
Kínverjar hafa tekið borg
eina af Japönum, sem er um 25
kílómetra innan landamæra
Yunnan frá Burma.
Chiang-Kai-shek gaf út dag-
fckipan í fyrradag, vegna þess
að styrjöldin við Japani liafði
staðið í sex ár. Sagði hann, að
stríðinu mundi lokið eftir tvö
ár og bráðlega niundu Kínverj-
ar hefja gagnsókn.
Grikkir vinna sigur.
Grískir ættjarðarVinir hafa
unnið allmikinn sigur í norð-
vestur hluta landsins.
Skæruhópur sat þar fyrir
þýzkri flutningalest. Yoru í
henni mest flutningabílar, sem
voru með fullfermi af allskonar
nauðsynjum. Grikkir stöðvuðu
bílana, felldu 37 af mönnunum,
sem voru með þá en tóku alla
hina til fanga. Yoru þeir 78 að
tölu.
Harðari loftárásir
við Miðjarðarhaf
Yfirstjórn 9. ameríska flug-
hersins, sem er við botn Mið-
jarðarhafsins, tilkynnti í fyrra-
dag, að amerískar sprengju-
flugvélar liefði varpað niður um
1800 smálestum af sprengjum á
borgir og hernaðarstöðvar á
Ítalíu og víðar í júnímánuði.
Bætt var við, að í þessum
mánuði mundi loftsókn þessa
flughers verða hert og farnar
fleiri og lengri leiðangrar.
Japanir tilkynna, að kínversk- !
ur hershöfðingi, Clieng Tu-yang,
liafi gefizt upp í norðaustur-
Kína með öllu liði sínu, 20.000
mönnum.
★
Fyrstu sex mánuði þessa árs
voru 879 flutningaskip, samtals
nærri 9 millj. smák, fullgerð í
Bandaríkjunum.
Njr Island snppdráttur
komlnn á markaðínn.
Nýtt íslandskort er nú að
koma á markaðinn og er það
uppdráttur sá sem Ferðafélag
íslands hefir gefið út og prent-
aður var vestan hafs.
Það er Ágúst Böðvarsson
sem teiknað hefir uppdráttinn
og búið hann undir prentun.
Hefir hann farið eftir ítarleg-
ustu mælingum, sem fyrir hendi
voru, en það voru landmæling-
ar herforingjaráðsins danska.
Starfaði Ágúst sjálfur, ásamt
Steinþóri Sigurðssýni, að þess-
um mælingum á vegum herfor-
ingjaráðsins síðustu árin, sem
unnið vai' að þeim.
Þessi nýi íslandsuppdráttur
kemur i stað uppdráttar Daniels
Bruun, en er stórum endurhætt-
ur og prentaður í 5 litum. Um
2000 örnefni eru prentuð á kort-
ið og allt er það hið vandaðasta.
Þó liafa slæðst inn fáeinar mein-
lausar prentvillur og smávegis
skekkja er á því á einum stað
í Þingeyjarsýslu.
Aðalumboð fyrir uppdráttinn
hefir Bókaverzlun Sigfúsar
Eymundssonar. Upplagið er
mjög takmarkað og gengur
vafalaust allt of snemma til
þurrðar.
Færeyingur særist í
loftárás.
EINKASKEYTI TIL VlSIS. —
Seyðisfirði í morgun.
Færeyski kútterinn „William
Martin“, 82 brúttólestir, varð í
fyrrakvöld kl. 19.30 fyrir árás
þýzkrar flugvélar austur af
Langanesi. Veður var bjart og
gott í sjó. Flugvélin kom úr
vestri, flaug tvisvar yfir skipið
og skaut fjölda vélbyssuskota
og fallbyssuskota bæði skiptin á
skipið. 3 kúlur fóru í gegnum
skipið rétt ofan sjávar. Ein kúla
fór gegnum lúkarsþak og
sprakk í lúkarnum. Þar var
einn maður og særðist allmikið.
Var honum komið í skip er var
ekki allfjærri árásarstaðnum.
„William Martin“ fær gert við
skemmdirnar hér og fer aftur á
veiðar. Var nýbyrjaður veiðar
þegar árásin var gerð. — Gísli.
Virkjun [Fljótaár
Vinna við virkjun Fljótaár er
hafin fyrir nokkuru, og vinna
þar nú um 60 manns. Unnið er
í flokkum allan sólarhringinn
og verður bráðiega fjölgað upp
í 100 manns.
Höjgaard & Schultz A/S sér
um verlcið, en vélar verða fengn-
ar frá Ameríku. Vann Jakob
Gíslason verkfræðingur að því,
er liann var fyrir vestan, að af-
greiðslu vélanna yrði hraðað.
Munu þær að líkindum verða
komnar til landsins fyrir vetur-
inn.