Vísir - 03.09.1943, Page 2
VISIR
VÍSIF3
DAGBLAÐ
0
Útgefandi:
BLAÐAÚTGÁFAN VÍSIR H.F.
Ritstjórar: Kristján Guðlaugsson,
Hersteiun Pálsson.
Skrifstofa: Félagsprentsmiðjunni
Afgreiðsla Hverfisgötd 12
(gengið inn frá Ingólfsstræti).
Símar: 1 66 0 (iimm línur).
Verð kr. 4,00 á mánuði.
Lausasala 35 aurar.
* Félagsprentsmiðjan h.f.
Trúarlíí og trúarstarí.
Bretar halda í dag almennan
bænadag, svo sem getið
er á öðrum stað liér i blaðinu.
Er þelta merkilegur og virðing-
arverður siður, sem mætti vera
öðrum þjóðum fordæmi. Sú var
tiðin að skynsemisstefnan þýzka
för sigurför um flest lönd jarð-
ar. ÖUum æðra mætti var af-
neitað, og ekkert viðurkennt
annað en andi og liendi manns-
ins, sem stórvirki unnu. Ung-
rnenni flestra landa voru alin
upþ í afneitunarstefnu, og svo
var jafnvel málum komið, að
menn skömmuðust sín fyrir að
viðurkenna trú sína að öðrum
áheyrandi. Til Bretlands náði
þessi alda aldrei, þannig að lmn
gerbreytti lifi almennings,
bænadögum og helgisiðum.
Bretar þurftu ekki að læra af
öðrum í þessu efni, og þorðu að
sýna trú sina án blygðunar,
livort sem skynsemistrúar-
mönnum líkaði betur eða ver.
Því hefir lengi vel verið hald-
ið fram, að trú og vísindi stæðu
á öndverðum meið, þannig að
visindin afsönnuðu, það sem
trúin segði satt vera. Nú er allt
annað uppi á teninginum. Það
er að vísu rétt að trúin krefst
ekki sannana, beri hún nafn
með réttu ,en þrátt fyrir það,
er það almennt álit visinda-
manna nú, enda margyfirlýst,
að ekkert það liafi komið fram
í visindum, er kippi undirstöð-
um undan trúnni, en hinsvegar
hafi margt fram komið, er
styðji hana og efli. Það er þvi
ekki lengur ',móðins“, að menn
telji sig trúlausa, en verðskuld-
ar vorkunnsemi og umburðar-
lyndi meðbræðranna. Trú-
hneigðin er ein af frumhvötum
mannssálarinnar ,og enginn er
svo í þennan heim borinn, að
hann sé firrtur henni. Hitt geta
menn, með langri þjálfun, æst
sig upp í því, að afneita öllu og
öllum, en það breytir ekki stað-
reyndum og stenzt ekki próf-
raun tímanna.
Annað mál er það, að ýmsir
menn eru ávallt uppi, sem telja
sig eina trúaða, — telja sig hafa
fundið vizkusteininn, — og eng-
inn megi um trú tala nema
þeir. Sumir þessara manna láta
hátt og fordæma aðra til neðsta
vítis fyrir vantrúar sakir, en gá
ekki að þvi að með atferli sínu
gera þeir sig hlægilega, á sama
hátt og yantrúarmaðurinn, og
fáir menn taka þá yfirleitt al-
varlega.
Stærstu sigrar mannsandans
og mannkynsins hafa unnizt
fyrir trú, sem að vísu var ekki
boðuð á torgum og gatnamót-
um, frekar en verkast vildi, en
var þó boðuð í orðum og gerð-
um hlutaðeigenda. Trúlaus
maður getur einskis vænst, en
er steingervingur nútiðarinnar,
en trúuðum mönnum standa
allir heimar opnir og allar leið-
ir til aukinnar farsældar fyrir
framtiðina. Margt af losi nútím-
ans og beinni rotnun í hverju
þjóðfélagi, stafar af trúleysi á
æðri máttarvöld, landið og
þjóðina. Slílct kann að reynast
sigurvænlegt um stund, en
aldrei til langframa. Verk, sem
mótast af ábyrgðarleysi, hrynja
skjótlega, en hin sem unnin eru
af samvizkusemi og sjálfsvirð-
ingu geta staðið um aldir. Sjálfs-
virðingin er einkenni hins trú-
aða manns, og því verður hann
ávallt beztur þegn hvers þjóð-
félags.
Ríkisvaldið og löggjafinn
hafa horfið að því ráði að und-
anförnu að spilla aðstöðu klerk-
Iærðra manna, til áhrifa með-
al þjóðarinnar, og er það þó
gagnstætt þvi, sem forfeður
okkar töldu hentast. Öll menn-
ingarstarfsemi í landinu var
um margar aldir falin klerk-
Iærðum í liendur, og þeir
gegndu hlutverki sínu ineð því-
líkum sóma að aklrei hefir ís-
lenzlc menning staðið með
meiri blóma. Jafnvel þegar
neyð landsmanna var sem mest,
hélt þessi stétt við andlegu lífi
þjóðarinnar og þangað má
rekja flest það bezta í jslenzku
jjjóðarfari á umliðnum öldum.
Unöarlegt má það heita hversu
köldu hefir andað til klerka-
stéttarinnar gersamlega að á-
stæðulausu, og nútíminn gæti
gjarnan bætt fyrir syndir for-
tíðarinnar með þvi að efla
klerklærða menn til áhrifa
meðal almennings, og j)ó eink-
um aukinnar fræðslustarfsemi,
sem þessari stétt myndi fara
miklu betur úr hendi en öðr-
um, -— þó algerlega að þeim ó-
löstuðum. Kristindómsfræðsla
á ekki að vera í annara höndum
en klerkanna, með því einfald-
lega, að aðrir hafa engin skil-
yrði til að meta þau fræði rétti-
lega. Af hinu getur stafað
háski og spilling er misbresta
og þverbresta mönnum er falið
að liafa slíka fræðslu með
höndum.
Launakjör presta og öll að-
staða hefir verið slík, að þessum
mönnum hefir fyrirfram verið
meinað að lielga sig starfi sínu
svo sem skyldi. Hefir þetta einn-
ig haft þær afleiðingar, að þeir
prestar, sem ekki hafa verið
jieim mun duglegri búmenn
hafa sett ofan i augunr almenn-
ings, en þó jafnframt þótt illa
sæma prestum að vera miklir
fésýslumenn. Sú var tíðin að
prestar urðu að innheimta laun
sín sjálfir hjá söfnuðinum, og
fengu þau aldrei greidd nema
að óverulegu leyti. Þessu hefir
að vísu verið breytt, en sérstaks
vanmats hefir gætt, er launa-
kjör klerkastéttarinnar liafa
verið ákveðin. Eftirlaun presta
hafa þó verið ennþá lélegri.
Þess eru dæmi að prestar, sem
þjónað hafa brauði í 40—50 ár,
verið slitnir að kröftum, eigna-
lausir og ósjálfbjarga, hafa
fengið frá opinberri hálfu kr.
40.00 — segi og skrifa fjörutíu
kr. á mánuði í eftirlaun. Slíkir
eru „blóðpeningarnir“, sem
runnið hafa til prestastéttarinn-
ar og almenningur hefir látið
sér sæma að telja eftir og talið
óhófslaun. Vonandi verður
hlutur prestastéttarinnar gerð-
ur mun betri i hinum nýju
launalögum, sem rikisstjórnin
hefir látið undirbúa með mik-
illi röggsemi, og væntanlega
verða afgi eidd á þingi því, er nú
situr. Prestastéttin sjálf hefir
aldrei liaft uppi háværar kröfur
um kjarabætur, en almenningur
og Alþingi ættu að gera sér það
að metnaðarmáli, að Iauna
þessa ágætu stétt ekki lakar en
aðrar stéttir sambærilegar.
Valgeir Björnsson
hafnarstjóri.
Á bæjarstjórnarfundi i gær
var samþykkt, samkvæmt til-
lögu hafnarstjórnar, að veita
Valgeiri Björnssyni bæjarverk-
fræðingi hafnarstjóraembættið
frá næstu áramótum.
Hafnarstjórn hefir farið
fram á það við Sigurð Þorsteins-
son að hann gegni hafnarstjóra-
embættinu til áramóta.
Frá félaginu „DANNEBROG“:
Vill sambandsslit Is-
lands og- Danmerknr
Atta félagsmenn berjast 1 brezka
hernum. — Merkilegt starf félegsins.
Félagsskapur danskra manna var stofnaður hér á íslandi þ.
8. júní árið 1941. Heitir félagið „Dannebrpg" og er aðaltil-
gangur þess að reka hjálparsjóð fyrir dönsk börn og stuðla að
samheldni Dana, búsettra á íslandi, með fundahöldum og öðr-
um samkomum.
Vísir hafði sem snöggvast tal af formanni félagsins, Paul '
Áberg og varaformanni, Viggo Andersen, í gærdag og spurðist
fyrir um starfsemi þessa félagsskapar. Gáfu þeir Vísi eftir-
farandi upplýsingar.
Félagið var stofnað með það
fyrir augum að starfrækja
hjálparsjóð fyrir dönsk börn,
sem orðið hafa fyrir barðinu á
stríðinu. Stjórn félagsins hefir
eftirlit með sjóðnum ásamt sér-
stökum. sjóðsgjaldkera. Pen-
ingar þeir, sem safnast í sjóð-
inn, eru vikulega lagðir inn á
sptarisjóðsbók í Landsbankan-
um. Söfnun í sjóð þennan fer
fram með þeim hætti, að séi'-
stök marki, sem prentsmiðjan
Gutenberg hefir gefið prentun
á, eru seld á 1. krónu og 5 kr.,
eftir því/sem. hver vill af mörk-
um láta. Merki Jæssi eru númer-
uð 1, 2, 3, 4, 5 o. s. fr. og koma
í stað kvittana fyrir gjafirnar.
Allur kostnaður í sambandi við
lijálparsjóðinn greiðist úr fé-
lagssjóðnum. I félagssjóði eru
allar Jiær tekjur sem koma inn
af innheimtu árlegra félags-
gjalda meðlimanna, en Jiau eru
kr. 24.00 á mann.
Þá hefir félagsskapurinn
kostað nokkrar jarðarfarir
danskra maima sem látizt hafa
hér á landi, eftir að stríðið
braust út og einnig hefir það
veitt hjálparþurfa Dönum liér
aðstoð sína, t. d. þeim sem af
óviðráðanlegum ástæðum liafa
ekki getað séð sér farborða,
vegna veikinda eða annars slíks.
Félagsmeðlimir eru um 80
að tölu núna og fjölgar óðum.
Sjö menn í félagsskapnum eru
farnir til Englands og gengu
Jæir í danska herinn þar. Aulc
Jieirra er sonur ÁJbergs sjálfs
nýfarinn og er hann nú í brezka
flugliðinu og tengdasonur vai'a-
formannsins Andersens, er í
brezka hernum.
Félagsskapurinn er því fylgj-
andi, að Danir séu bandamenn
Breta í stríðinu og að allir vopn-
færir Danir, sem þvi geta við
komið, berjist með þeim, J>ar
til yfir lýkur.
Félagið lýsir sig eindregið
fylgjandi því, að að íslending-
ar slíti sambandinu við Dani svo
fljótt sem auðið verður. Aberg
og Andersen sögðu að þeir vildu
Dani sem sjálfstæða þjóð óháða
öðrum þjóðum og þess sama
óska þeir íslendingum, og þeir
tóku fram, að Jieir myndu fylgja
íslandi, þegar til sambandsslit-
anna kæmi. I>eir sögðust telja
sig íslendinga, enda þótt þeir
báðir væri fæddir i Danmörku
og uppaldir þar.
Þá sögðust þeir lýsa megnustu
andúð' sinni á framkomu
Andreas Godtfredsens og kunnu
honum litlar þakkir fyrir grein-
ina í enska blaðinu, sem, fræg er
orðin.
f stjórn félagsins, auk þeirra
tveggja, sem að framan eru tald-
ir, eru Kaj Pind, gjaldkeri, Erik
Ingvarsson sjóðsgjaldkeri og
Emst Jensen ritari.
Bjarni Gestsson bókbindari,
Laugaveg 48, varS 40 ára í gær,
2. september.
Útvarpið í kvöld.
Kl. 20,30 íþróttaþáttur l.S.Í.
20,45 Strokkvartett útvarpsins:
Kvartett í G-dúr eftir Mozart. —
21,00 „Úr handraðanum" (SigurÖ-
ur Skúlason magister). 21,20 Sym-
fóniutónleikar (plötur): a) Píanó-
konsert nr. 19, F-dúr, eftir Mozart."
b) Symfónia nr. 5 eftir Beethoven.
Jörð,
3. hefti 4. árg. flytur þetta efni:
Stjórnarskrárfrumvarp (ritstjórn-
argrein), Ábyrgðarkennd og sóma-
tilfinning (Guðm. Friðjónsson),
Söngur selsmalans (kvæði eftir S.
O.), Bækur, Leikhúsið, ísfirzk
blaðamennska (Kristján Jónsson
frá Garðsstöðum), Ameríska hug-
sjónin (Valdimar Björnsson), Litið
i, Ganglera o. fl.
Vikur
HOLSTEINN
EINANGRUNAR-
PLÖTUR
fyrirliggjandi.
Pétur Pétursson
glerslípun & speglagerð
Simi 1219. Hafnarstræti 7.
Döðlar
Flkjnr
mvJms
Simi 1884. Klapparstig 30.
Veggfóður
1 -
Pensillinn
Laugavegi 4. — Sími 2131.
HIÐ NYJA
handarkrika
:ream deodoranti
stöðvax svitann örugglega
1. Skaðar ekki föt eða karl-
mannaskyrtur. Meiðir ekki
hörundið.
2. Þornar samstundis. Notast
undir eins eftir rakstur.
3. Stöðvar beKar svita. næstu
1—3 dasa. Eyðir svitalvkt.
heldur handarkrikunum
burrum.
4. Hreint. hvítt. fitulaust. ó-
mengað snyrti-krem. .
5. Arrid hefir fengið vottorð
albióðlegrar bvottarann-
sóknarstofu fyrir bví. að
vera skaðlaust fatnaði.
I A r r i d er svita-
I stöðvunarmeðal-
| ið, sem selst mest
- reynið dós í dae
ARRID
Fæst í öllum betri búðum
2500 kr.
í peningum getið þér eignast
ef lieppnin er með á liluta-
veltu Fram í í. R.-húsinu n.
k. sunnudag.
50 aura kostar
flugrferð
til Akureyrar á hlutaveltu
Fram n. k. sunnudag i I. R,-
húsinu.
(RuIIegardiner)
í miklu úrvali fást í
VEGGFÓÐURSVERZLUN
VTCTORS HELGASONAR
Simi 5949. Hverfisgotu 37.
Dcfi tíl lcigfu
yfir 20 manna bifreið í lengri
og skemmri ferðir alla daga.
Sími 4834.
Úrval af fataefnum og allt
fillegg. /
SPARTA
Húseigendur
Ungan, reglusaman íþrótta-
kennara í fastri atvinnu vant-
ar 1—2 herbergi og eldhús
sem fyrst. Fyrirframgreiðsla
I ef óskað er.
Tilboð sendist Vísi fyrir
10. þ. m., merkt: „Ábyggi-
legur“.
óskast frá 1. október á til-
raunabúið á Sámsstöðum í
Fljótslilíð. ÖII þægindi á
staðnum. Hátt kaup.
Uppl. á skrifstofu Búnað-
arfélags Islands.
Héraðs-
læknipinn
í Reykjavík er kominn heim.
Hárborðar
STRENGBÖND
FLAUELSBÖND,
í mörgum litum.
Grettisgötu 57.
Krl8tján Gnölangsson
Hæstaréttarlögmaðnr.
Skrifstofutími 10-12 og 1-9.
Hafnarhúsið. — Sími 3400.
/
Vluusi
Fertugur maður, sem liefir
unnið sjálfstæða vinnu, óskar
eftir framtiðar vinnu. Margs-
konar vinna getur komið til
greina. — Tilboð sendist
blaðinu fyrir miðvikudag,
merkt „Fertugur — 30“. —
Bittangir
Tréborar
Legusköfur
J á rn sagarbogar
Vinklar, færanlegir
Heflar
Klaufhamrar
Borsveifar
Kúluhamrar
Kúbein
Smergelvélar
Smergelsteinar
Skrúfjám
Tommustokkar.
0. Elliipo 1.1.
íbúð
(
í nýlegu húsi, 2 herbergi og
eldhús, óskast keypt eða leigð
1. okt. Tvennt í heimili. —
Tilhoð, merkt: „Ábyggileg
greiðsla“ sendist Visi.
Nýkomið
ÓDÝRT
cfni
í telpukjóla.
Níels Carlsson
& Co.
Laugaveg 39.
Blátt og brúnt
DRAGTA- og PILSEFNI
komið aftur.
VERZLUN
H. Toft
Skólavörðustíg 5. Sími 1035.
Stúlka
óskar eftir ráðskonustöðu á
fámennt heimili hér í bænum.
Tilboð, sendist afgr. Visis
fyrir 8. þ. m., merkt: „1.
október“. *í