Vísir - 07.10.1943, Side 2

Vísir - 07.10.1943, Side 2
I VI SI R DAGBLAÐ Útgefandi: BLAÐAÚTGÁFAN VÍSIR H.F. Ritstjórar: Kristján Guðlaugsson, Hersteiun Pálsson. Skrifstofa: Félagsprentsnr-iðjunni Afgreiðsla HverfisgöVa 12 (gengið inn frá Ingólfsstræti). Símar: 1 6 6 0 (vimm línur). Verð kr. 4,00 á mánuði. Lausasala 35 aurar. Félagsprentsmiðjan h.f. UOIMtrnen ■ Skipulag og skammsýni. FYRIR fáum árum, er allt átti að skipuleggja, og Framsókn og Alþýðuflokkur- inn byltu sér i heitustu faðm- lögum valdavimunnar, voru meðal annars sett lög um dreif- ingu og sölu mjólkur. Þá var á það bent í blöðum Sjálfstæð- isflokksins, að hér væri um eitthvert mesta ranglæti í laga- setningu að raeða, er mótaðist af skammsýni, er koma myndi síðar flokkunum báðum i koll. Þrengja mætti um stund hag mjólkurframleiðenda í Reykja- vík og nágrenni, ganga mætti um stund gegn óskum og hags- munum neytenda, en til lang- frama mýndi það ekki líklegt til vinsælda og ósennilegt að mjólkurskipulagið yrði þolað til lengdar. Húsmæður í Re)rkjavík risu slrax í upphafi gegn lagasetn- ingu þessari og leituðust við að beita samtakamætti sínum til að knýja fram breytingar til bóta. Blöð.Sjálfstæðisflokks- ins studdu þær að málum með fullri hógværð og skynsemi, en af svo miklu ofurkaþpi var málið sótt, að húsmæðurnar voru dregnar fyrir lög og dóm og gert að greiða verulegar skaðabætur, og svipuðum úr- slitum urðu blöðin einnig að sæta. Þá var fagnaðarhátíð haldin af skipulagningarpost- ulunum og mikið um dýrðir og hermdu gamansamir náung- ar að smakkarar flokkanna hefðu um.þær mundir fengið senda ókeypis ýmsa reynslu- drykki. Eftir fjrrstu loluna, sem tryggði skipulagningu samkv. einhliða þröngsýni valdaflokk- anna, hreinum duttlungum þeirra og ofsóknartilhneiging- um, gerðust þeir menn, er til forstöðu þessara mála völdust, enn hornóttari og verri við- skiptis en menn höfðu átt von á. Hógvíerri gagnrýni var svar- að með illu einu og það jafn- vel gert til gamans, að ögra neytenduni og gangá gegn ósk- um þeirra. Er sagt að einn ut- anbæjarmaður, er framkvæmd þessara mála liafði með hönd- um, liafi viðhaft þau ummæli, að ekkert gerði hann glaðari en að gera h... kerlingunum í Reykjavík einh'verja bölvun í sambandi við framkvæmd mjólkurlöggjafarinnar. Var heldur ekki von á góðu, er slíkt hugarfar fylgdi eftir slæmu máli, en allur ósómi var um- borinn með furðulegri þögn og þolinmæði af neytenda hálfu. BlÖð Sjálfstæðisflokks- ins rituðu nokkrar greinar um málið, er úr hófi keyrði, en hlutu sektir einar fyrír, með því að á fullar sannariir brast fyrir dómstólrim, enda ekki sannana hægt að afla, þar eð þeirra var að léita lijá for- stöðumönriúm skipulagsins og öðruiri yfirleitt ekki. Oþinbert mál mun einnig hafa verið höfðað gegn ritstjóra eins viku- blaðsins, og géta þá allir gert sér þess fullá grein, að krié var látið fylgja kviði, þar sem færi gáfst. Állt l’eiddi þetta til frekari þagnar um málið, en Þriðjungi lieiri þáfttakend- ur í ferðum Ferðafélagsins í ár en i fyrra. Félaöata lan um 4550. pERÐAFÉLAG fSLANDS hefur efnt til 28 ferða- * laga í sumar með samtals 911 þátttakendum, og er það þriðjungi meiri þátttakendaf jöldi heldur en var í fyrra, að því er Kristján Ó. Skagfjörð, fram- kvæmdastjóri félagsins hefir skýrt Vísi frá. Af þessum 28 ferðum, er farnar hafa verið, voru 5 sum- arleyfisferðir, er liver tók 5—10 daga. Hinar hafa telcið 1—3 daga hver. mun Steinþór Sigurðsson mag. scient. flytja erindi um Mýr- dalsjökul og sýna þaðan skugga- myndir. í fyrra ferðuðust 625 manns á vegum Ferðafélagsins, en mestur liefir þátttakendafjöld- fjöldinn orðið á einu sumri ár- ið 1941, því þá lóku 918 manns þátt í ferðum félagsins. Nú er ekki ósennilegt að þetta met verði slegið í ár, þar sem ákveð- ið hefir verið að fara eina ferð ennþá, ef þátttaka fæst, og verð- ur það að Hagavatni um næstu helgi. hefði átt að vera, en réttlætt- ist þó af því, að er tímar liðu fram, varð ljóst, að úlfúð nokkur var upp komin innan vébanda samsölunnar, sem vel gat haft víðtækar afleiðingar til bóta, ef rétt var á málum haldið. Samvinna Framsóknar og Alþýðuflokksins virlist mundu fara út um þúfur og átti þá réttur neytenda að vera tryggður, ef loðdýra og kara- kúlhugsanir þingmanna hæru liann ekki ofurliði. Þegar hér var komið málum kom nýr aðili til sögunnar, — kommúnistar. Þeir eru, grey- in, — þrátt fyrir allan ósóma, — furðuleiga naskir á að velja sér vinsæl baráttumál í dæg- urþrasinu, en gera það fyrst og fremst til að afla flokksóskapn- aði sínum fylgis í þeirri vissu að „hugarórar heilalausra vit- firringa kringum liálfiieilagan mann“, eins og sá vísi maður Nostradamus komst að orði, mundu ekki einir nægja til að afla þeim flokksfylgis eða var- anlegrar upphefðar. Komm- arnir fundu af því lyktina, að mjólkurskipulagið allt var með fádæmum óvinsælt meðal neytenda, enda ástand mjólk- urinnar þannig, að full ástæða væri til einbeittra opinberra afskifta, af heilbrigðisástæðum einum, enda yfirlýst af erlend- um sérfræðingum, að oft og einatt hærist engin liollusta með mjólkinni til neytend- anna. Þegar slík fylling tím- ans var komin, enda kommún- istuin Ijóst, að vinstri sam- vinnu varð ekki á komið, þá fyrst rann það Ijós upp fyrir þeim, að hér var aðgerða þörf. Nú komst Alþýðuflokkurinn í klipu. Hann er alltaf á sama máli og kommar, til þess að glata ekki fylgi verkamanna, og flokknum var ljóst, að lion- j um mundi ekki stætt á fyrri j ósóma, og nú berst flokkurinn með hnúum og hnefum gegn þvi skipulagi, sem hann kom á sjálfur á sínum tíma. Forystumenn mjólkurskipu- lagsins nutu þess með afvega- leiddri „sadistiskri“ ánægju, að kreppa meir og meir að 1 kjörum neytenda í kaupstöð- unum, en nú eru það neytend- urriir, sem brosa að bjána- skapnum, þótt nógu bölvað sé að béra afléiðingarnar. Þéir einir eigast við, sem enginn hirðir um þótt bítist, en dagar öng- þveitisins í mjólkurmálunum munu bráðlega taldir. Alþýðu- flokkuririn flækist ekki lengur fyrir í málinu og Framsókn hrekur á eftir, fái hún ekki nýjan og óvæntan liðstyrk. Mest þálttaka í einni ferð í sumar var til Gullfoss og Geysis þann 18. júh, en í henni tóku ])átl 113 manns. Á verzlunar- mannafrídeginum ferðuðust á 2. hundrað manns, en þá var farið í fleiri en eina ferð. í sumar var farið í sumarleyf- isferðir vestur uni Barðastrand- arsýslu, en þangað hefir ekki verið efnt til ferðalaga áður. — Yfirleitt tókust ferðir félagsins i sumar með mestu prýði, enda gerði hagstæð veðrátta sitt til að þær hep'pnuðust svo vel sem raun varð á. Það geklc jafnan þolanlega að fá híla til ferðalaga í sumar og að þessu sinni skipti félagið við Guðbrand Jörundsson bifreiðar- stjóra, sem útvegaði því ágætan hifreiðakost. Stundum varð þó að takmarka jiátttakendafjölda vegna þess að ekki fengust næg- ar hifreiðar. I ferðir, sem farn- ar voru á hestum, varð einnig að takmarka þátttakendafjölda vegna hestafæðar. Að þessu sinni var ekki liafð- ur neinn vörður við Hvítár- vatnsskálann, svo sem verið hefir að undanförnu, enda virð- ist umgengni fólks í skálanum fara liraðbatnandi með ári hverju. Hús félagsins voru mik- ið sótt, og virðast þau öll vera í ágætu lagi. 1 sumar hafa um 300 nýir fé- lagsmenn gengið í Ferðafélagið og eru þeir nú alls um 4550. Sennilega hefir ekkert félag landsins neitt líka félagatölu, og sýnir það hinar óvenju miklu vinsældir Ferðafélagsins. Árhókin í ár fjallar um Rang- árvallasýslu qg ritar Skúli Skúla- son ritstjóri meginþátt hennar, en Guðmundur Kjartansson jarðfræðingur nokkuð. Övíst er ennþá livenær hún kemur út. Skemmtifundir Ferðafélags- ins liefjast í þessum mánuði, sennilega kringum þann 20. Þá BcbÍqp í fréttí | I.O.O.F. 5= 1251078x/2= 9III | Næturakstur. j B.S.Í.) sími 1540. Handíðaskólinn Vegna ófyrirsjáanlegra tafa, sem oröið hafa á aðgerðum á húsnæði Handíðaskólans, verður ekki hægt að setja hann fyrr en föstudaginn 15. þ. m. — Skólinn er fullskip- aður og hefir aðsókn að honum aldrei verið meiri en nú. Leikfélag Reykjavíkur sýnir Lénharð fógeta annað kvöld. Aðgöngumiðasalan er opin í dag. Útvarpið í kvöld. Kl. 20,20 Útvarpshljómsveitin (Þór. Guðmundsson stjórnar) : a) Forleikur að óperunni „Undine“ eftir Lorzing. b) Lagaflokkur eftir Bizet. 20,50 Minnisverð tiðindi (Axel Thorsteinson). 21,10 Hljórn- plötur: Celló-sónata eftir Debussy. 21,30 „Landið okkar“. Spurningar og svör. Straumhvörf. 4. hefti x. árg. flytur m. a. þetta ’ efni: Amerísk áhrif i íslenzku þjóð- j lífi (Emil Björnsson). Lífsskoðun í og þjóðaruppeldi (Sigurbj. Einárs- 1 son). Merðir og milliliðir (Broddi Jóhannesson). Til hvers á að skipu- leggja (Klemens Tryggvason), Heimili og þjóðfélag (Broddi Jó- j hannesson). Úr dagbók Leiru- I Gríms. ; / Slys 1 vildí til á Túngötunni, rétt eftir hádegið í gær. Varð þar fullorðinn 1 maður fyrir reiðhjóli, féll i götuna ! og meiddist nxikið. Fékk hann mik- inn heilahristing og ennfremur tal- ið að höfukúpan hafi eitthvað brák- ast. vélasamstæðan geti tekið til starfa áður en langt um líður. Unnið hefir verið að því að styrkja brýr og vegarkafla á leiðinni frá Húsavik til Laxár- stöðvarinnar, vegna flutninga vélanna. Ennfremur hefir verið unnið að endurbótum á ráf- magnskjerfi Akureyrarhæljar í sumar. Höjgaard & Schultz hafa tek- ið að sér uppsetningu vélaima. Fyrirhugaðar áveitu- og framræsluíram- kvæmdir í Eyjafirði. Miklar áveitu- og framræslu- framkvæmdir eru nú ákveðnar á svokölluðum Skálarlækjar- engjum í Svarfaðardal. Verður verk þetta að miklu leyti unnið með nýrri, stórvirkri skurðgröfu, sem Vélasjóður rílc- isins lánar. Hefir Árni G. Éy- lands forstjóri eftirlit með fram- kvæmdunum, en að öðru leyti eru það bændur af áveitusvæð- inu, sem að verkinu standa. Skurðurinn, sem grafinn verð- ur, á hvorltveggja í senn að vera áveitu- og framræsluskui’ður. Að áþekkum framkvæmdum hefir verið unnið undanfarin tvö sumur á Staðarhyggðarmýrum, og er húist við að þeim verði lokið næsta haust. Góð og siðprúð Stúlka óskast til lieimilisstarfa liálf- an daginn. Sérherbergi ef óskað er. Ingibjörg Stephensen. Breiðablik. , Seltjarnarnesi. Vélasamstæða Laxár- virkjunarinnar kom- in til landsins. Raforka Laxárstöðvarinnar verður aukin um 4000 hestöfl á næstunni, og er nýkomin véla- samstæða til landsins, til hinn- ar fyrirhuguðu stækkunar. Akureyringar hafa undnafar- ið átt við rafmagnsleysi að búa, ekki síður en Reykvikingar. Nú rætist vonandi úr þessu, og gera menn sér vonir um að nýja cr:11 j.tto mrríTTTro „Hrímfaxi“ Tekið á móti vörum til Þingeyrar, Flateyrar og ísa- fjarðar í dag og fram til há- degis á morgun, eftir þvi sem rúm leyfir. BJARNI GUÐMUNDSSON löggiltur skjalaþýðari (enska) Suöurgötu 16 Sími 5828 Ur dagrbók Bafnfirðingii. SUNDLAUGIN. „Það er undantekning að sjá Hafnfirðing með þurrt höfuðið siðan sundlaugin yklcar tók til starfa,“ sagði Reykvíkingur við mig um daginn. Þó hann tæki full djúpt í árinni, þá er það satt, að margur er búinn að bleyta kolinn í lauginni þennan stutta tima, sem hún hefir verið starfrækt, og liafa sund- hallarestirnir verið hátt á fjórða hundrað á dag til jafnaðar. Hall- steinn Hinriksson íþróttakenn- ari og aðstoðarmaður hans hafa nóg að starfa myrkranna á milli við að kenna fólki á öllum aldri. Er börnum frá barnaskólanum kennt í aldursfolkkum og nám- skeiði fyrir fullorðna hefir orð- ið að skipta í 5 flolcka vegna mikillar aðsóknar. Er almenn ánægja ríkjandi yfir því, að óska draumur bæjarbúa um fyr- irmyndar-sundlaug skuli nú vera orðinn að veruleika. STRANDGATAN. Það hefir löngum þótt lítill sómi að götunum hér í Firðin- um. Sagt er að Keflvíkingur einn hafi fyrir nokkrum árum ekið í bíl sínum til Eskifjarðar, sem þá þótti viðburður. Þegar heim kom var hann spurður að því, hvernig vegurinn hefði verið. „Ágætur,“ sagði hann, — „nema í gegnurn Hafnarfjörð!“ — Nú vjrðast góðar horfur á því, að úr þessu verði bsfett í náinni framtíð. Var nýlega lokið við að steypa Strandgötuna suður að læk, en að því hefir verið unnið í tvö sumur. Eru gangstéttirn- ar þó ógerðar enn, en á þeim verður hyrjað næstu daga. Veg- kafli sá, sem lokið er við að steypa, er um 330 metra langur, akbrautin 7,5 m. þreið og gang- stéttirnar til heggja lianda áætl- aðar 3 m. á breidd. Verður Strandgatan fyrsta steypta gat- an innanbæjar hér á landi. Verð- ur hún ólík því, sem áður var, enda þótt ýmsum þyki akbraut- in mjórri en hún hefði þurft að vera. j TÚNRÆKT. GARÐRÆKT — Landið umhverfis Hafnar- fjörð virðist ekki vel fallið til ræktunar. „Eg sá aðeins tórnt hraun,“ segir margur aðkomu- maðurinn, er hann sltýrir frá heimsókn til Hafnarfjarðar. En því betur hafa bæjarhúar reynt að notfæra sér þá fáu bletti, sem ræktaðir verða. Það er aðdáun- arvert, hve miklu bæjarbúar hafa afkastað í þesum efnum. Víða liafa menn orðið að bera moldina að, til þess að geta gjört sér garðholu í hraunbolla. Og þeir garðar launa líka vel fyrir erfiðið. Auk þess hefir bæjarfé- lagið láta girða tvö svæði og leigir þar bæjarbúum land til garðræktar. — Nú eru menn almennt hyrjaðir að taka upp úr görðum og virðist kartöflu- uppskeran ætla að verða mun hetri en við var húizt. Kartöflu- sýkinnar verður lítið vart að þessu sinni; þó ber eitthvað á stöngulsýki, eins og undanfárin ár. — Eg kom um daginn upp á tún til Friðfinns Stefánssonar múr- armeistara. Eg hafði orð á þvi, að háin væi’i vel sprottin hjá lionum. „Það er nú í þriðja sinn, sem eg slæ þenna hluta af tún- inu,“ sagði Friðfinnur, en síðan bent liann mér á teig, sem hann ætlaði að fara að slá í fjórða skiptið. Eg geri ráð fyrir því, að fáir hafi slika sögu að segja nú, eftir þetta sumar. — Hafn- arfjörður er ekki „aðeins tómt hraun.“ lliiiyiiiílr óskast á golt sveitaheimili. Uppl. i síma 4309, eftir kl. 6. TÖKUM UPP í DAG: Amerískar vörur Brengjafatnað ailsk. Drengjapeysur. Handklæði. Manchettskyrur, livitáv, með föstum flibba. Sportskyrtur. Golfblússur. Vasaklúta, livíta og misl. Vinnufatnað allsk. Axlabönd. Buxur, stakar o. fl. Geysir h í" FATADEILDIN. Lögíræöistörí Fasteignasala JÓN EIRÍKSSON. Lögfræðingur. Vesturgötu 56. Síriii 5681. Karlmannaföt eru fyrii’liggjandi i öllum stæx-ðum. II. Toít Skólavörðustig 5. Sími 1035. Húseigendur Mig vantar lítið ihúðarhús eða 2ja herbergja íbúð til kaups. Lysthafendur gex’i svo vel og leggi lilboð sín, ásamt kaupverði og greiðsluskil- málum, á afgr. Vísis, merkt: „Kaupandi 22“. Atvinna Duglegur maður óskast til afgr. í búð og annara venju- legra verzlunárstarfa. Aðeins reglusamur og lábyggilegur maður kemur til greina. Verzl. G. Zoága. 2 stúlkur vantar strax á Elli- og lijúkr- unarheimilið Grund. Uppl. gef ur yfirhj úkrunarkonan. Málastúdent óskar eftir lierbergi. Getur tekið að sér kennslu. Tilboð, merkt: „Málastúdent“, send- ist afgr. Vísis.

x

Vísir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.