Vísir - 18.11.1943, Page 2

Vísir - 18.11.1943, Page 2
VISIR VÍSIR DA6BLAÐ Útgefandi: BLAÐAÚTGÁFAN YÍSIR H.F. Ritstjórar: Kristján Guðiangsson, Hérsteir.n Pálsson. Skrifstofa: Félagsprentsmiðjunni Afgreiðsla Hverfisgöíd 12 (gengið inn frá Ingólfsstræti). Símar: 16 6 0 (fimm línur). Verð kr. 4,00 á mánuði. Lausasala 35 aurar. Félagsprentsmiðjan h.f. Víxlspor. Þeir menn, sem uppi liafa haldið vörnum fyrir stjórnarskrárnefnd vegna á- kvæða í stjórnarskrárfrumvarp- inu varðandi kjör og stöðu for- seta hins íslenzka lýðveldis, hafa látið í það skína, að á- kvæðin réttlættust af því, að liér væri ekki um endanlega skipan að ræða, heldur bráða- birgðaráðstafanir einar. Með þessu virðist vera gefið í skyn að óhyggiieg ákvæði geti rétt- læzt af þvi að þau séu til bráða- birgða, og inun það nýtt mat á andlegum fyrirbrigðum. Menn Jiafa slegið þessu fram og jafn- framt fullyrt að réttarstaða for- setans þurfi elcki að álcveðast samliliða endanlegri afgreiðslu sjálfstæðismálsins og lýðveldis- stofnunarinnar, enda sé minni Jiætta á-víxlsporum, verði það látið bíða þar til búið sé að stofna Iýðveldið. Slíkar varnir hafa heyrzt bæði á stúdentafundi þeim, sem haldinn var um málið og einnig síðar í blöðum, en hér er um hættutegan misskilning að ræða, sem ástæða er til að kveða nið- ur. Með stofnun hins islenzka lýðveldis, er konnngsvaldinu skipað á annan veg en verið hefir þegar gert til bráðabirgða með sérstökum ráðstöfununi Alþingis. Eins og sakir standa er ekki vafi á því að ríkisstjóri fer með konungsvaldið óskipt að heitið getur, en er ]x) kosinn frá ári til árs, og leiðir það nokkuwi veginn af sjálfu sér vegna núverandi ástands. Þegar lýðveldið verður stofnað á að ráðstafa hinu æðsta valdi, ekki fyrst og fremst til bráðabirgða heldur til langframa, og breytir þar engu þótt breytingum megi siðar koma fram á stjórnskip- unarlögum Grunninn á að leggja nú og hinu æðsta valdi á í upphafi að ráðstafa á örugg- asta hátt, og þann hátt að með- ferð hins æðsta valds sé svipuð og tíðkast hefir, en samræmist þó lýðveldinu og þeim grund- vallarlögmálum, sem það bygg- ist á. Stjórnarskrárnefnd hefir litið svo á málið, að hyggilegt sé að fela Alþingi í hendur æðsta valdið að mestu, en fela því auk þess dómsvald um gerðir forseta, að svo miklu leyti, sem honum er falin fram- kvæmd þessa valds. Er þetta svo furðuleg skammsýni, að full- yrða má að hinu íslenzka lýð- veldi sé með þessu fyrirfram stefnt í voða og allar flóðgáttir séu opnaðar fyrir varanlegu öngþveiti. Forsetinn á að verða gersamlega áhrifalaus topp- fígúra, algerlega háður dutlung- um Alþingis, sem getur á einum þingfundi svipt hann völdurn, án þess að honum gefist kostur á vörnum, eða eigi þess nokkurn kost að skjóta máli sinu til ann- ars æðra réttar. Forsetinn væri því eini maður á íslandi, sem ofurseldur væri pólitískum dómstóli, — verst settur af öll- um mönnum illa settum innan þjóðfélagsins, — og þó á þetta að vera æðsti maður landsins, sem eðli málsins samkvæmt ætti að njóta fyllsta öryggis og frið- helgi. Hörður Bjarnason arkitekt: Bexta leiðin til að fraiiikvænia §kipnlag]§brcytingar I Rc^kjavík Bænum sé skipt i skipu- lagshveríi sem verði brey tt á tilteknum tíma. Hús flutt á nýjan grunn. AÐ VONUM er oft og mikið rætt um skipulag, eða öllu heldur skipulagsleysi hinna eldri bæjarhluta í Reykjavík, enda ekki vansalaust, liversu lítið er um endurbætur, þar sem, mest er nauðsyn, t. d. eins og í mijð- bænum. Allar helztu verzlunargötur miðbæjarins bera merki gamla tímans, þegar skilyrði í bygg- ingu bæjarins voru gjörólík því, sem nú er, og umferð ökutækja eingöngu hestvagnar, handvagn- ar og barnakerrur. Kröfurnar um endurbætur g'jörast háværari með ári hverju, en að nokkru leyti má afsaka aðgerðarleysið í þessum efnum með þvi, hversu lengi hefir dregizt að bærinn sam- þykkti skipulagsuppdrátt innan Hringbrautar. Undirstöður að því skipulagi voru þegar lagðar árið 1927 með fullgerðum upp1- drætti, sem áldrei fékkst sam- þykktur, en bærinn þó byggst samkvæmt honum í aðalatrið- um siðan. Á s.l. sumri fullgerði Skipu- lagsnefndin uppdrátt að skipu- lagi innan Hringbrautar að nýju, en til þessa hefir verið furðu hljótt um þann uppdrátt af hálfu bæjarins. Allt bendir til þess, að þeim Hafi víxlspor nokkuru sinni verið stígið í löggjöf hér á landi, hafa þau með öllu verið skað- laus, miðað við þessar fáheyrðu lillögur, með því að stjórnar- skrárnefndin hefir stungið sér með opin augu í grængolandi kaf fyrirhyggjuleysisins. Til þess geta engar eðlilegar orsak- ir legið, aðrar én þær, að Al- þingi óttist svo áhrif forsetans, að það vilji tryggja áhrifaleysi hans með þjóðinni, sér til fram- dráttar. Engar líkur eru til að nokkur maður finnist á íslandi, sem fáanlegur væri til að setj- ast í forsetastól, ætti hann að eiga allan sinn rétt undir póli- tiskum Alþingisdómi, svo sem ráð er fyrir gert, hafa auk þess enga áhrifaaðstöðu og njóta hvorki virðingar né trausts með þjóðinni, þar eð öllum væri ljóst hver aðstaða hans væri og til hvers hann væri líklegur. Al- þingi fengi þægan þjón, upp- Iausnaröflin merkisbera, en Is- land færi á mis við allt gott, sem af forseta mætti vænta. Slíkan forseta hefir enginn ís- lendingur hugsað sér fyrr en stjórnarskrárnefndinni tókst það. Miðað við' þessa afstöðu for- setans er hitt algert aukaatriði, að þrettán menn í þingi gek? hindi'að kjör hans með fjarveru sinni, en vist væri það guðsþakkavert ef ofangreind á- kvæði yrðu samþykkt og for- setinn ofurseldur slíkum ó- heillaörlögum. Þeir menn, sem telja slík ákvæði eðlileg og sjálf- sögð, eða aukaatriði, sem leið- rétta megi síðar, skilja ekki hvað það er, sem fyrir íslenzku þjóðinni ætti að vaka með stofn- un lýðveldisins. Það er barna- skapur að efna lil stórdeilna um slík atriði þegar í upphafi, en þár verður engum um kennt nema stjórnarskrárnefnd, og þeim mönnum öðrum, sem hafa ekkert við víxlspor hennar og fyrirhyggjuleysi að athuga. tillögum eigi að svara með skip1- un nýrrar nefndar, sem fjalli um þessi mál sérstaklega fyrir hönd bæjarins, en tillögur þess efnis liafa ]>egar verið sam- þykktar í bæjarráði. ★ SKAL að þessu sinni enginn dómur lagður á tilgang eða markmið bæjarráðs og tekn- iskra ráðamanna þess með þeim- breylingum, sem ætlað er að undanskilja Reykjavíkurbæ að öllu frá afskiptum ríkisins af skipulagsmálum, og ætlað er að gefa honum einum allra bæja á landinu sjálfákvörðunarvald í þeim efnum. Mun ég hinsvegar hér á eftir leitast við að gera grein fyrir nokkrum bolla- Jeggingum mínum um, hvern- ig bezt mundi borgið fram<- kvæmdum skipulagsbreytinga í þeim bæjarlilutum, sem mestra breytinga og lagfæringa þarfnast. Væri æskilegt að þær hugleið- ingar gætu komið af stað frek- ari uinræðum um málið, og frekari ábendingum. Lausn verður að finnast, sem aðgengileg sé fyrir alla hlutað- eigendur, og má ekki dragast lengur en orðið er. ★ REYKJAVÍKURBÆR er þannig settur, að megin- þorri lóöa er eign einstaldinga, og þá einkum við allar lielzlu verzlunar- og umferðargötur. Viðast hvar i bæjum úti á landi er þetta þveröfugt, og því auðveldara um lagfæringar skipulagsins, ef bæjarstjórnir á- kveða breytingar. Eg er því mótfallinn, að geng- ið sé á hlut einstaklinga, þannig að eignarréttur þeirra sé skertur með valdbóði, en, hér í Reykja- vík þarf þó breytinga við, sem tryggja raunverulegar aðgerðir i endurbyggingu bæjarins, og aukin afskipti bæjarstjórnar. Það er óviðunandi að endur- bygging bæjarins sé eingöngu liáð geðþótta einstakra lóðaeig- enda, sem sjá sér hag i að láta verðmætar lóðir ganga kaupum og sölum. ★ EINS OG N,Ú ER háttað íýk- ur ráðagerðum um skipu- lagsbreylingar, og umræðum um glæstar fyrirætlanir, i dálk- um blaðanna, en framkvæmdir verða kák eitt. Hér verður þvi að hefjast banda um raunverulegar að- gerðir, sem byrja megi á, og núlifandi kynslóð fái að líta ein- hvern árangur þeirra breytinga. Endanlegur uixlráttur Skipu- lagsnefndar hggur nú fyrir, og þvi tilvalið að beita sameiginleg- um átökum yfirvalda og al- mennings um endanlegar niður- stöður, en forðast flokkadrætti og persónuágreining, því lausn- in Iilýtur að vera sameiginlegt á- hugamál allra borgara bæjar og ríkis. Þegar þetta er fengið, en það verður að fást hvað sem það kosíar, — kemur til fram- kvæmdanna, og set eg hér fram tillögur í þeim efnum, sem eru þessar: ★ Bskipulagshverfi eftir fyrir- ÆNUM SÉ SKIPT í mörg fram ákveðnu kerfi, og þó eink- um þeim bæjarhlutum, sem mest þarfnast endurbyggingar í innbænum. Hvert hverfi eða bæjarhluti fái sína „áætlun“, þannig að öll- um skipulagsbreytingum og endurbyggingu yrði lokið þar innan ákveðins tiltekins tíma. Tökum dæmi: Grjótaþorpið, eða einstakir eigendur lóða þar, fá tilkynningu að aflokinni itar- legri athugun bæjarráðs, um að þessi bæjarhluti skuli byggður upp að fullu skv. áætlun skipu- lagsuppdráttai', og sé frestur til þeirra framkvæmda allt að 20 ár. Að öðrum kosti falli lóðimar undir ráðstöfun bæjarstjórnar (skv. mati). Sé þá bæjarstjórn skylt að hefja þær framkvæmd- ir, sem aðrir höfðu látið undir Fimmtudaginn í síðuslu vilui var húsið Mýrargata 1 flutt á nýjan stað við Seljaveg. Var það flutt upp Ægisgölu, en síðan vestur eftir Vesturgötu á nýja staðinn. Amerískir hermenn að- stoðuðu við flutninginn, eins og sést á myndinni. Hún er tekin á Vesturgötunni, við Bræðraborgarstíg. liöfuð leggjast, annaðhvort bein- línis, eða framselja lóðirnar þeim, sem hefðu hug og getu til jákvæðra framkvæmda þegar í stað. Þó verður að búa svo um hnútana, að spákaupmennska og lóðabrask sé útilokað, ef bær- inn neytir ekki þess forkaups- réttar, sem hann verður að eiga. Fresturinn og tíminn til þess- arra framkvæmda verður að sjálfsögðu að miðast við allar aðstæður á hverjum stað, og utanaðkomandi hömlur, sem einstaklingar fá ekki við ráðið, þótt þá skorti ekki viljann. ÞAÐ ER AUGLJ,ÓST MÁL, að löggjafarvaldið yrði að lieimila bæjarstjórn þessi af- skipti af eignum einstaklinga. Hér er þó ekki um eignarnám að ræða í venjulegum skilningi, heldur mönnum gefið tækifæri til þess að gera eignir sínar arð- bærari en ella með endurbygg- ingu á verðmætustu lóðunum, og um leið upfylla þá skyldu, sem hVerjum lóðareiganda er sett gagnvart bæjarfélaginu í lieild um útlit og fegrun bæj- arins, en með eðlilegu aðhaldi. Afskipti hins opinbera koma ekki til greina fyrr en séð verð- ur að enginn árangur er af starfi einstaklinganna. Með því móti komast skipu- lagsbreytingar lengra en á papp- írinn, á tiltölulega skömmum tíma, og eg er þvi algjörlega ó- sammála, að miða eigi endur- byggingu miðbæjarins i Reykja- vík við aldir fram í timann. Okkar kynslóð getur og á ský- ÍJr dagbók Hafnfirðing's Kjöt og smjör. Ekkert hefir veriö meira rætt hér í Firðinum aö undanförnu en um „Hraunkjötsmáli'ð" og er það sizt að undra. Það er ekki á hverj- um degi, sem hraungjóturnar hér umhverfis bæinn eru barmafullar af mat. Fyrr má nú vera góðærið! Það er heldur ekki á hverjum degi, sem íbúum þessa bæjarfélags »er brígzlað um þjófnað og gripdeild- ir í stórum stíl. Hingað til hafa Hafnfirðingar verið taldir mikið fremur frómir menn. En þó tekur út yfir, þegar þefr, sem upphafi málsins ollu, gjörast háværastir í kröfum um rannsókn og réttar- höld. Það er vonandi að þeim verði að ósk sinni og ekki verði fyrr skilizt viÖ þetta mál, en það er upplýst að fullu og hinir seku hafa hlotið sinn dóm. Gott væri ef þetta óskemmti- lega kjötmál gæti orðið til þess, að það hneyksli hendi ekki öðru sinni, að matvælum sé fleygt í stórum stíl jafnvel þótt af því leiddi, að stöku sinnum yrði að gripa til þess „neyð- arúrræðis" að selja þau almenningi fyrir skaplegt verð! * En hvar er smjörið? Þótt allar gjótúr fyllist af kjöti, þá er synd að segja að smjör drjúpi af hverju strái. Og það er von að margur spyrji hvort ekkert smjör sé leng- ur framleitt í landinu, og það því frernur, sem smjörlikinu hrakar jafnt og þétt og vöntunin á smjör- inu verður því æ tilfinnanlegri. Hafi smjörframleiðslan í landinu minnkað stórlega af einhverjum óviðráðanlegum orsökum, hvers- vegna er þá ekki gerð grein fyrir því opinberlega? Hvað veldur þögn þeirra, sem mestu ráða um fram- leiðslu mjólkuraíurða? Eða á sá orðrómur við rök að styðjast, að í sumum frystihúsum séu miklar smjörbirgðir geymdar? Almenn- ingur á heimtingu á því, að þessi mál séu fyllilega upplýst og það er vafalaust öllum fyrir beztu. Útivist barna. Nýlega birtist yfirlýsing frá bæjarfógetanum í Hafnarfirði, þar ■ sem vakin er athygli á því, að börnum sé óheimil útivist eftir klukkan 8 á kvöldin. Þetta er sanarlega þörf tilskip- un, og væri vel, ef lögpglan gengi strangt eftir því að henni væri hlýtt. Ætla mætti, að þessari til- skipun væri sérstaklega vel tekið af öllum foreldrum og ef þeir vildu sitt til gjöra að ekki væri út af brugðið. Samt mun það þó hafa komið fyrir, að lögreglustjórarnir hafi fengið litlar þakkir fyrir það, að skipta sér af því að börn væri á götum úti langt fram á kvöld, og má það sannarlega undarlegt heita. Rjúpur — Minkar. Það ber nú ekki ósjaldan við, að rjúpnaskytturnar sjáist þramma með byssu við hlið hér í nágrenni bæjarins, síðan rjúpnadráp var aft- ur leyft, en lítinn árangur virðist heiferð þeirra bera hér um slóðir. Kvarta veiðimennirnir undan því, að fáft sé um rjúpuna á Reykja- nesskaganum. En það er þá ekki alveg eins með minkinn. Verður ekki betur séð en að hann þrífist prýðilega, þótt svo sé talið, að hann éti ekki saltkjöt frá Sambandinu, enda þarf þá ekki að þjófkenna hann fyrir það. Eink- um virðist hann hafa búið vel um sig á á Vatnsleysuströndinni, og er það fjáreigendum þar syðra hið mesta áhyggjuefni. Gæti það ekki verið tilvalið fyr- ir hinar vígreifu rjúpnaskyttur að fara á minkaveiðar úr þvi rjúp- an bregzt? Það ætti ekki að vera lakara „sport“ en hvað annað. Strandarbúar stunda þetta sumir hverjir i frístundum og hefir orðið vel ágengt. Til dæmis er einn bóndi búinn að leggja að velli um 30 minka. Hefir hann hund sér til aðstoðar, sem þefar dýrin uppi. Annars sannast það á minkun- um að „fátt er svo illt að einugi dugi,“ því að þar sem þeir setjast að villtir, má heita að rottan hverfi algjörlega. lausa, kröfu til að sjá árangur á þessu sviði. Eðlileg þróun þessara mála og óvenjulegt peningaflóð eiga hér aðeins samleið að litlu leyti því að um leið og byggingafram- Icvæmdir hætta í þjóðfélagi, stefnir það hröðum skrefum, til bnignunar. ★ FYRIRIvOMULAG ÞAÐ, sem nú er viðhaft víða í verð- mætustu bæjarhlutunum, er spákaupmennska lóðaspekú- lanta, sem gefur mjög ranga Iiugmynd um raunverulegt lóðaverðmæti í bænum, og tor- veldar stórlcostlega allar fram- kvæmdir þeirra, sem byggja vildu að nýju, og allar endur- bætur slcipulags. Hvaða vit er það til dæmis, að lóð i miðbænum, sem er eigi fullir 500 fermetrar, með lélegu timburhúsi litlu, slculi á s.l. ári hafa verið föl fyrir 500.000 lcrónur, en keypt áii áður fyrir meir en lielmingi minna. Slíkt brjálæði má ekki tefja eðlilega þróun og torvelda breyt- ingar, sem gera þarf, og getur forkaupsréttur bæjarins á verð- mætustu lóðunum komið í veg fyrir allt slíkt brask. ★ RÓM YAR EKKI byggð á einum degi, og ekki til þess ætlast að árangur sjáist hjá okk- ur, fáum og smáum, í einu vet- fangi. En vissulega mundi leið- in virðast skemmri að markinu, og vonir manna um nýjan og fegurri bæ endurglæðast, ef 10 —30 ára áætlanir endurbygg- ingar væri gerðar að fastri reglu um öll hin eldri hverfi bæjarins. Yitaskuld þaf að sníða þess- um áætlunum betur stakk en liér er gert, en eg tel hugmynd- ina þess virði, að henni sé gaum- ur gefinn, ef verða mætti til endurbóta og að færa okkur nær þvi marki, að leysa þessi vandamál. Hrakningasaga ameríska flugkappans Rickenbacker. sneru kom í bókaverzlanir í gær. Enginn maður af þessari kyn- slóð hefir oftar horfzt í augu við dauðann en Eddie Rickenbacker. Fyrst voru það velturnar á hrað- akstursbrautunum. Síðan hékk lífið á bláþræði, þegar hann skaut niður flugvélarnar tuttugu og tvær og loftbelgina fjóra. Hann hefir lært að horfast í augu við drottinn sinn án þess að blikna. í þessari bók sinni segir Ricken- backer frá viðureign sinni og fé- laga hans við höfuðskepnurnar á Kyrrahafinu haustið 1942, — þjáningafullan bardaga urn lif eða dauða.

x

Vísir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.