Vísir - 07.01.1944, Page 1
—
Ritstjórar:
Kristján Guðtaugsson
Hersteinn Pálsson
Skrifstofur:
Félagsprentsmiöjan (3. hæð)
Ritstjórar
Biaðamenn Slmt:
Augiýsingar 1660
Gjaldkerl 5 llnur
Afgreiðsla
34. ár.
Reykjavík, föstudaginn 7. janúar 1944.
5. tbl.
Níu stunda bar-
dagi við kafbát.
Fimm flugvélar
grönduóu honum,
1 Bretlandi hefir blöðum ver-
ið skýrt frá viðureign fimm
flugvéla við kafbát á Biskaja-
flóa og sýnir hún, að oft er erf-
itt að vinna á þeim, þótt aðstaða
flugvélanna sé að flestu leyti
betri.
Snemma í desember sá brezk
eftirlitsi'Iugvél þýzkán kafbát á
siglingu ofansjávar á Biskaja-
flóa. Vörpuðu Bretar djúp-
sþi'ehgju að bátnum og fór hann
þá í kaf, en virtist ekki skemmd-
ur. Misstu Bretar af honiim við
svo búið.
Litlu síðar sá amerísk Libera-
tor-vél sama kafbátinn á ferð.
Gerði hún sig tvisvar liklega til
að ráðast á bátinn, en í bæði
skiptin sátu sprengjurnar fastar
i flugvélinni, féllu ekki. Kafbát-
urinn hóf skothríð á flug-
vélina og gat loks komið skoti
á hana, sem rauf eina oliuleiðsl-
una og varð flugvélin þá frá að
hverfa.
Þá kom önnur Liberator-vél á
vettvang. Varpaði hún djúp-
sprengjum að kafbátnum og
sást að hann laskaðist, því að
olíurák lagði aftur úr honum.
Þegar djúpsprengjurnar voru
gengnar til þurrðar, gerði flug-
vélin margar vélbyssuárásir á
bátinn. Stóð viðureignin alls í
75 mínútur og var báturinn þá
farinn að sökkva að aftan. Elds-
neyti flugvélarinnar var þá orð-
ið svo lítið að hún hélt heim-
leiðis.
Þriðja Liberator-vélin kom þá
á vettvang og skutu kafbáts-
menn ákaflega á hana, en hún
, gat varpað djúpsprengjum á
bátinn og lagðist hann þá næst-
um á hliðina. Varð flugvélin þá
að snúa aftur til bækistöðvar
sinnar.
. Síðasta flugvélin var með
tékkneskri áhöfn og skaut hún
úr vélbyssum á turn bátsins, því
að þar var megnið af bátsverj-
um. Síðan varpaði hún djúp-
sprengju og sökk kafbáturinn
þá loksins.
Þá voru 9 klst. liðnar, síðan
bátsins varð fyrst vart.
Bretar buðu betur.
Bretar hafa keypt alla ullar-
framleiðslu Spánverja og'
Tyrkja.
Þjóðverjar reyndu einnig að
ná i ullina, en Bretar buðu
hærra og gátu auk þess greitt
í iðnaðarvörum, sem þessar
þjóðir skortir mjög, en Þjóð-
verjar gátu ekki greitt þannig.
I.O.O.F. 1 = 125178V2 =
Útvarpið í kvöld.
Kl 20,30 Útvarpssagan: „Bör
Börsson" eftir Johan Falkberget, I
(Helg'i Hjörvar). 21,00 Strokkvart-
ett útvarpsins: Kvartett nr. 15 í B-
dúr eftir Mozart. 21,15 Útvarps-
þáttur (formaður útvarpsráðs).
21,35 Spurningar og svör um ís-
lenzktmál (Björn Sigfússon). 21,55
Fréttir. 22,00 Sym f óníutónleikar
(plötur): a) Bach: Konsert fyrir
tvær fiðlur. b) Mozart: Harpsicord-
konsert nr. 1. c) Beethoven: Sym-
fónía nr. 2.
Vatnssúla skyggir á þýzka kafbátinn, sem amerísk eftirlits-
flugvél hefir gert árás á. Djúpsprengjan féll skammt frá kaf-
bátnum, spraklc undir honum og sölckti honum.
Danskur bæjar-
fulltrúi myrtur.
Óþekktur maður, sem komst
undan, myrti í gær dr. Willy
Wigholt, bæjarstjórnarfulltrúa í
Slagelse.
Fregn um þetta liefir borizt
um Stokkliólm frá Kaupmanna-
höfn. Wigholt mun hafa verið
á gangi á götu, þegar hann var
skotinn til bana. Hann var bæj-
arstjórnarfulltrúi fyrir íhalds-
flokkinn.
í Svíþjóð er svo litið á, að
þetta sé enn eitt dæmi um
þá hryðjuöld. sem nazistar hafa
komið af stað í Danmörku og
hófst með tilræðinu við Ole
Björn Kraft og morðinu á séra
Kaj Munk. Ætlunin er bersýni-
lega að hræða danska föður-
landsvini til að hætta baráttunni
gegn Þjóðverjum.
Dönskum blöðum var aðeins
leyft að minnast á morðið á síra
Kaj Munk með örfáum orðum.
Þegar lík lians var flutt frá
Silkeborg í gær. safnaðist sam-
an mikill mannfjöldi til að sýna
hinum látna virðingu sína.
Finnar trúa ekki á
kafbátana.
Það er skoðun Finna, að Þjóð-
verjar sé búnir að tapa orust-
unni á höfunum.
í gær birti finnska útvarpið
kafla úr grein, sem kom í blaði
jafnaðarmanna, Suomen Soci-
aldemokratti. Þar segir, að það
sé enginn efi á því, að banda-
menn sé að sigra kafbátana og
bezta sönnun þess sé, hvað
miklu færri skip liafi verið skot-
in tundurskeyti undanfarna
sex mánuði. Jafnframt hafi
bandamenn aukið skipasmíðar
sínar, svo að þeir hafi nú 6
millj. smál. stærri skipastól en
áður.
The Icelanders
heitir bæklingur, sem dr. Gu'ðm.
Finnbogason hefir tekið saman og
félagið „Anglia“ gefið út. Er þetta
fyrirlestur, sem Guðmundur hélt á
fundi félagsins í fyrravetur. í bæk-
lingnum eru drög aÖ þjóSarlýsingu
íslendinga, í stuttu máli.
Yfirlýsing.
Að gefnu tilefni skal tekiS fram,
aS meS starfsfólki ríkisins undir 13.
liS í nefndaráliti atvinnumálanefnd-
ar Reykjavíkurbæjar, er taliS allt
starfsfólk í skrifstofum viSskipta-
ráSs, verSlagsstjóra og skömmtun-
ar, en ekki aðeins hinna tveggja
síSasttalinna stofnana. — F. h. at-
vinnumálanefndar Reykj avíkurbæj -
ar, Björn Björnsson.
N-Bretland:
Japaiiir ini§$a
180 fliisficlaB*
ú 2 vikum.
Undanfarimi hálfan mánuð
hafa Japanir misst rúmlega 180
flugvélar yfir Rabaul einni.
Gríðarharðir bardagar eru
háðir austur af Gloucester-
höfða og felldu Bandaríkja-
menn þarna, siðan Banda-
Hafa Japanir þá misst um 2000
menn fallna þarna, síðan Banda-
ríkjamenn gengu á land.
Flugvélar af flugstöðvarskipi
hafa enn gert árás á Kavieng og
hæfðu þar beitiskip. Tveir tund-
urspillar liafa' verið laskaðir
með tundurskeytum.
Skrúfulaus flugvél:
Nýung sern, orsakar
byltingu í flugmálum.
I Bandaríkjunum og Bret-
landi var í gær skýrt í fyrsta
skipti frá nýrri flugvél banda-
manna, sem á að fara að fram-
leiða í stórum stíl.
Flugvél þessi er með nokkuð
öðrum hæfti en tíðkast, því að
hún er elcki knúin með loft-
skrúfu, heldur heitu sam-
þjöppuðu lofti, sem blásið er
út um stél hennar. Iiún er létt-
ari en aðrar vélar af sömu
stærð, getur farið mjög hátt og
með miklum liraða.
1 Maðurinn, sem fundið hefir
þessa vél upp, er Franít Wliittle
ofursti í hrezka flughernum.
Árið 1929 fékk hann hugmynd-
ina og fjórum árum siðar byrj-
aði hann að gera teikningar.
árið 1939 var fýrsti hreýfillinn
tilbúinn og gengu tilraunir á-
gætlega. Árið 1941 var svo búið
að smíða fyrstu flugvélina og
síðan voru Bandaríkjamönnum
fengnar teikningarnar, tii þess
að láta smíða flugvélina í verk-
smiðjum veslan hafs.
65 flugsföðvarskip
smíðuð vestan hafs.
Síðah stríðið hófst hafa
Bandaríkjamenn smíðað 65
flugstöðvarskip.
Skipin eru af öllum stærð-
um, mörg mjög stór en
einnig af þeirri gerð, sem nefnd
eru „vasaflugstöðvarskip“ og
liöfð eru til að vernda skipalest-
ir. Flotinn hefir nú 13.000 flug-
vélar lil umráða, allt frá stærstu
flugbátum til lítilla kennslu-
véla.
I
Rússar hef j a sókn
í Dnjepr-bugðunni
vilja ekki
samvinnu við stjóm
Pólverja í London.
Pólska blaöiö i Moskva ræðst á hana.
PÓLSKA BLAÐIÐ í Moskva, „Wolna Polska“, hefir enn
veitzt hatrammlega að pólsku stjórninni, sem hefir að-
setur í London. Kallar það hana svikastjórn og jafnframt
birtir það stefnuskrá sína í málum Póllands eftir stríðið. Er
hún í fimm liðum og hljóðar svo í aðalatriðum:
1) Landamæri Póllands verði látin ná miklu lengra vestur
á bóginn en áður.
2) Öll héruð Vestur-Ukrainu verði skilyrðislaust lögð undir
Rússland og fái Rússar sjálfdæmi í öllum ágreinings-
málum, sem af þessu kunna að rísa.
3) Sett verði á stofn lýðræðisstjórnfyrirkomulag og þing
kosið. 1
4) Allir menn, sem eru taldir afturhaldssinnaðir, verði
upprættir og landinu skipt milli bænda.
5) Allir Pólverjar, hverri stjórnmálaskoðun, sem þeir fylg'ja,
verði sameinaðir í einn flokk, en hinir afturhaldssömu
flóttamenn fái þar hvergi nærri að koma.
Með þessu virðist sýnt, að Rússar ætli sér ekki að hafa sam-
vinnu við stjórnina í London, því að Wolna Polska er ekkert
annað en talpípa Rússa gagnvart Pólverjum.
Miklip á lofli
Blaðameiin fljnga í
boði Bandaríkjaher§
"!*?■ ILLIAM S. KEY hershölðingi og George P. Tourtellot
flughershhöfðingi buðu íslenzkum blaðamönnum í gær
í flugferðir um Suðvesturland.
Fór fyrri hópurinn i flugferð
fyrir hádegið suður um Reykja-
nesskaga, austur yfir Ölfus, yfir
Helhsheiði og til Reykjavíkur
aftur. Síðari liópurinn fór
nokkuru lengri ferð, þvi að yfir
ölfusi var gerð lýkkja á leiðina,
flogið yfir Þingvelli, Skjald-
breið og inn yfir Langjölcul,
síðan suður yfir Súlur og Mos-
fellsheiði. 1 bæði skiptin stjórn-
aði Tourtellot hershöfðingi
sjálfur flugvélinni, sem er ó-
vopnuð farþegaflugvél, en or-
ustuflugvélar flugu með benni
til verndar. Tók fyi-ri flugferðin
tæpa klukkustund, en hin síðari
liðlega eina og hálfa klukku-
stund.
Blaðamönnum liefir ekki áð-
ur gefizt kostur á að fljúga með
flugvéíum hersins, og varð þvi j
för þessi Iiarla fróðleg. Það er j
mjög nýstáríeg reynsía að fljúga
langa leið yfir íslenzkt vetrar-
ríki, þvi að landið er sumsstað-
ar býsna torkennilegt, þar sem
allt er hulið hvítri blæju En
fróðfegast er þó að kynnast hin-
um þjálfuðu vinnubrögðum
flughersins, undirbúningnum á
flugvelli, áður en vélin getur j
hafið sig lil flugs, liinum rólegu
sjálfsögðu vinnubrögðum fhtg-
manna og „Itáseia“ um borð.
Það er engin furða þótt flug-
menn kalli flugvélarnar „skip“,
þvi að svo margt svipar ]iar til
hins rólega aga á skipsfjöl.
Flugvélin, sem f’ncnð w* <"•
að stærð ekki ósvipuð stórum
sprengjuflugvélum F,n liún
ekki vopnuð og flytur ekki
sprengjur, og getur hún því tek-
ið talsverðan fjölda hermanna
eða mikla þyngd hergagna og
vista. Ilraði flugvélarinnar er
talsverður, þrátt fyrir þyngdina,
en þó voru orustuflugvélar þær,
sem með voru í förinni, mildu
skjótari í snúningum. Flugu þær
í allskonar liringi, undir vélinni
og yfir og á alla vegu.
Þótt flestum blaðamanna
þætti merkilegt að skoða há-
lendið „frá nýju sjónarmiði“,
munu þeir þó liafa veitt mann-
virkjunum mesta athygli, því að
í ferðinni var flogið yfir ýmis
mannvirki og loks margir þring-
ir yfir okkar ástkæra liöfuðstað.
Tourtellot hershöfðingi lenti
flugvélin.ni svo mjúklega, að
ekki varð vart. Er hann hinn
mesti flugsnillingur, og er hon-
um raunar fleira lil lista lagt,
]>ví að hann er ágætur píanó-
leikari og hvers manns hugljúfi.
Frenna á íþrötta-
vellinum.
Knattspyrnufélögin Valur og
Fram efna til brennu á íþrótta-
vellinum einhvern næstu daga.
Brenna hefir ekki verið liald-
in hér í bænum undanfarin þrjú
ár, svo að þetta er í raun og
veru nýung fyrir bæjarbúa.
Ekki er enn ákveðið hvaða
dag brennan verður haldin, en
það verður mjög bráðlega, og
verður vandað til hennar svo
sem et'ni standa til. Verður fyr-
irkomulag með svipuðum hætti
og verið liefir við brennur á i
íþrötfavellinum. Munu koma
]•■■!• frám álfar og skrípi, flug-
eldum skotið — ef þeir fást —
og ennfremur verður vandað til
söngkrafta.
Mesta skrið-
drekaorusta
stríðsins,
segja Þjóöverjar.
' Áframhald alls-
staðar á Kiev-
vígstöðvunum
Lissár byrjuðu í fyrra-
dag nýja sókn inni í
Dnjepr-bugðunni, að þfessu
sinni hjá Kirovograd og
Krivoi Rog. Hafa Þjóð-
vérjar: verið að tala um
þessa sókn, en Rússar ekki
tilkynnt um liana ennþá.
Þýzka fréttastofan segir að
Rússar tefli fram ógrynni liðs,
sem Iiafi mikið af skriðdrekum
og' allskonar nýtízku vopn.
Miklar : skriðdrekaorustur eru
liáðar á gresjunum þarna og
segja Þjóðverjar, að þær séu
hinar mestu, sem háðar hafi
verið í þessu stríði.
Ef að líkum lætur, munu
Rússar skýra frá sókninni eftir
nokkra daga, en þeir létu það
uppi fyrir nokkuru, að þeir væri
sí og æ að rannsaka hvar Þjóð-
verjar sé veikastir fyrir í
Dn j epr-bugðunni.
Vestur og suður.
Rússar halda áfram af mikl-
um hraða vestur og suður af
Kiev. Hafa þeir sótt fram með
ótrúlegum hraða sumstaðar,
síðan þeif tóku Berdisjev og
! nálgast borgina Sjapétovka.
Suður af Berdisjev hafa Rúss-
ar telíið bæinn Liposjev og eru
! með því að sækja framlijá Vinn-
itsa, með það fýrir augum ber-
i sýnilega, að umkringja þá borg.
j Framsveitir Rússa tóku i gær
bæinn Rokitno, sem er 15—20
km. fyrir innan landamæri Pól-
lands. Sækja Rússar þama til
borgarinnar Sarni, sem er við
járnbrautína frá Kiev til Vai’-
sjár.
ítalia:
llarÍKt í 8an
Vitíore.
Barizt er í þorpinu San Vit-
tore, sem 5. herinn hefir tekið
að hálfu leyti.
Þjóðverjar hafa breytt hverju
liúsi i virki og efu bardagar þvi
mjög mannskæðir. En banda-
mönnum hefir tekizt að ná hálf-
um hænum á vald sitt.
Áttundi herinn hefir einnig
sótt á lítið eitt, en veður er enn
miklu verra hjá honum en 5.
hernum.
Jugoslavar hafa orðið að hörfa
úr bænum. Banjaluka, þar sem
barizt liefir verið að undan-
l'örnu. Segjast þeir liafa fellt um
1000 Þjóðveja og tekið 700 til
fanga.
Innbrot var framið í nótt í
veitingastofuna á Skólavörðu-
stig 8. Var stolið þaðan 50—60
krónum í peningum og nokkur-
um hjórflöskum.
1
/