Vísir - 07.01.1944, Page 3
VÍSIR
um þai- — er fengið í hendur
ajálft framkvæmdarvaldið fyrir
fullt og allt. Þeir láta blöð sín
jægja með öllu um þetta hálf-
gerða leyni- og landráða-plagg
og þegar loks er flett ofan af
þessu ódæði þeirra og þing-
flokkarnir finna, að þeir slanda
strípaðir og sem afhjúpaðar
valdránssamkundur frammi
fyrir alþjóð, svara þeir — „við
ætlum að bæla úr þessu seinna“
—* „strax að ófriðnm lokmfin“
—• eða einhverntíma þegar betri
tímar eru til þess en nú.
Enginn þeirra sker sig úr!
Enginn þeirra reynir að vernda
rétt þjóðarheildarinnar!
Hversvegna? Eg skal ekki
reyna að svara því, en þjóðinni
ailri ber að vera á verði.
V.
Hinn 10. janúar n. k. á Al-
þingi að koma sanma á ný lil
þess að taka „leyniplaggið“,
sem kallað er st j órnarskrárfrum-
varp, fyrir, til „endanlegrar af-
greiðslu“. Því verður ekki af-
stýrt. En hinu getur þjóðin
sjálf ráðið, livort sú stjórnar-
skrá skal standa stutt eða lengi.
Fylki hún sér einliuga um
kröfuna um stjórnlagaþing,
kosið eingöngu jil þess að setja
hinu nýja lýðveldi stjórnarskrá,
skipað miklu fleiri mönnum en
nú eru á Alþingi og kosnum að
einhverju leyti eftir flokkum
og að einhverju leyti eftir öðr-
um linum en flokkslinum, Þá
þorir Alþingi ekki að neita þjóð-
inni um þá kröfu.
Um þá kröfu verða því allir
þeir menn, er vilja láta kalla
sig Islendinga að fylkja sér ein-
huga, og það nú strax. Það verð-
ur að mynda nú þegar samtök
sem ná um allt land — en þó
alveg sérstaklega sterk hér i
Reykjavík —- til þess að knýja
þessa kröfu fram. Fáist hún
ekki fram nú, trúi menn undan-
hrögðum og flærð flokkanna á
Alþingi, er málið tapað og þjóð-
in lineppt í fjötx-a óláns og spill-
ingar um ófyrirsjáanlega fram-
tíð.
íslendingar! Hvaða flokki sem
þið tilheyrið, fylkið ykkur um
eftirfarandi kröfur til Alþingis
þess, sem saman kemur nú eftir
fáa daga:
1. Sett vei’ði nú þegar fjölmenn
stjórnarski’árnefnd — skipuð
hinum hæfustu mönnum til
þess að gera frumvarp að
nýrri stjórnarskrá og for-
setalögum.
2. Hinn nýi forseti verði þjóð-
kjörinn, en ekki kjörinn af
Alþingi né stjórnmálaflokk-
um.
3. Séi’stakt — þar til kjörið -—
stjórnlagaþing verði háð á
árinu 1944, er setji þjóðinni
nýja stjórnarskrá og skipi
forsetakjöri, og sé til þess
valið með sérstökum hætti
svo tryggt sé, að það sé þjóð-
in sjálf, sem skipar þeim mál-
um.
Sé þessum kröfum fylgt nógu
fast eftir fást þær frarn. Við
skulum sjá hvaða þingmenn og
flokkar þora að setja sig gegn
þeim. Þeir, sem það gera eru
eklci i þjónustu íslenzku þjóðar-
innar og vilja ekki hennar
sóma og öi’yggi. Veitið því at-
hygli — og gleymið því ekki —
liverjir það verða.
VI.
Með þessari grein er lokið
gi’einaflokki þeim, er í'itstjói'i
Vísis lofaði upphaflega að ljá
mér rúm fyrir. Ætlunin var að
greinarnar yrðu 5, en eg liefi
sameinað þrjár þær síðustu í
tvær greinar, því mér þótti það
betur fara.
Kann ég ritstjóranum og
blaðinu Vísi þakkir fyrir að
hafa leyft mér rúm fyrir þær
svo þær gætu komið fyrir al-
mennings sjónir. Er það vottur
um að enn hafi ekki með öllu
tekist að drepa að fullu þá víð-
sýni og þann drengskap sem eitt
sinn var einkenni íslendinga, að
þora að hlusta á mál andstæð-
ings síns.
Eg varð þess var strax og eg
hóf að birta þessar greinar að
fjöldi manna úr öllum flokk-
um var mér sannnála. Fjöl-
margir hafa hringt eða komið til
mín og þakkað mér fyrir grein-
arnar og tjáð sig fúsa til að
starfa á þeim grundvelli sem
hér hefir verið reynt að benda á.
Öllum þessum mönnum og kon-
um er eg þakklátur fyrir vin-
semd þeirra, því öllum þykir
vænt um að finna stuðning við
þann málstað sem honum er
hjartfólginn.
Nokkrir menn ákváðu strax
er fyrsta greinin kom, að láta
sérprenta greinarnar svo 'þeir
menn utan Reykjavíkur, sem
ekki sjá „Vísir“, ættu þess kost
að kynnast efni þeirra. Hefir
jiNÚ letrið verið geymt og geta
þær því komið út fljótlega í
hókarformi. Þá njóla þær sín
líka betur en þær geta i blaði
þegar langt líður milli útlcomu
þeirra. Þessum mönnum er eg
líka þakklátur. Þeir gátu vel lát-
ið það ógert.
Mér eru,þá fullgoldin ritlaun-
in fyrir Jiessar tómstundahug-
leiðingar mínar ef svo-mætti til
takast að nokkurt gagn yrði að
þeim til vakningar um þetta
merkastd mál i sögu íslands í
síðustu aldirnar — stofnun og
skipulag liins nýja lýðveldis á
íslandi.
Með vilja hefi eg engar á-
kveðnar tillögur gert um hvern-
ig forsetakjöri slculi skipað,
hvernig valdaskiptingin yrði,
livernig Alþingi yrði skipt eða
skipað né hvernig kjósa skyldi
lil stjórnlagaþingsins. Er það af
því að um það geta fjölmargir
haft betri tillögur en eg, og það
ber þeim sérstaklega að gera
tillögur um sem þetta verður
falið. Aðalatriðin fyrir mér
eru þau, að á íslandi verði
stofnað lýðveldi, sem að
stjórnskipan allri sé fyr-
irmynd annara ríkja og sem þær
þjóðir geta eitthvað lært af, sem
eftir nokkur ár sleppa úr klóm
kúgaranna og þá verða að leita
sér að fyrirmyndum um stjórn-
skipulag og stjórnarháttu.
Þegar forfeður vorir stofn-
uðu þjóðveldið til forna sköp-
uðu þeir ríki, sem livergi átti
sinn líka þá. Það eigum við,
eftirkomendui’ þeirra, einnig að
gera nú, þegar við endurreisum
liið forna ríki þeirra.
Höfm
feng:lð
Ljósakúlur í ganga og smáherbergi.
H.f. Rafmagn
Vesturgötu 10.
Shni: 4005.
$jarni (ýu&mundóSon
löggiltur skjalaþýðari (enska)
Suðurgötu ió Sími 5828
Tökum upp í dag:
Westinghouse-
straujárn
H.f. RAFMAGN.
Vesturgötu 10.
Sími: 4005.
Málverk 09 leikninoar
sem eg hafði til sýnis í bús-
álialdaverzlun KRON í
Bankastræti nú fyrir jólin,
verða til sölu þar næstu daga,
fyrir lágt verð.
Jón Helgason,
Kaplaskjólsveg 12.
Sníðakennsla
l itrrm. *
Ný námskeið liefjast sti’ax
eftir helgina. Dag- og kvöld-
tímar. Uppl. í síma 2569 og
eftir kl. 8—10 e. h. á. Óðins-
gölu 19.
Bergljót Ólafsdóttir.
Útvarps-
grammófónn
General Eleetric, 10 lampa,
sem nýr til sölu. — Tilboð
merlct: „G. E.“ sendist blað-
inu sem fyrst.
Myndavél
„Ciro Flex“, F. 3,5, til sölu.
Tilhoð, merkt: „Ciro-Flex“
sendist hlaðinu sem fyrst. —
Barnavinafélagið
SUMARGJÖF
Starfsstúlku vantar í vist-
arheimilið Suðurborg. Uppl.
þar. —
Stúlka
óskast á hótel úti á landi. —
Uppl. Klapparstig 37.
Verzlið við
Á L A F O S S,
Þingholtsstræti 2.
Qardlnuoorinar
krókar og lykkjur
fyrirliggjandi.
JÁRNV ÖRUVERZLUN
JES ZIMSEN.
atar
niðursoðnir.
VERZL. INGÓLFUR
Hringbraut 38. — Simi 2294.
Grundarstíg 12. — Simi 3247.
1884
10. janúar
- 1944
Góðtemplarareglan
á Islandi 60 ára.
Af mælisdagskr á:
Nunnndagfur 1K janiiar:
Kl. 11 f. li.: Messað í frikirkjunni: Séra Árni Sigurðsson.
Templarar mæta kl. 10% i G. T.-liúsinu og ganga það
an hópgöngu til kirkju.
Kl. 1% e. h.: Lúðrasveit Reykjavikur leikur á Austurvelli.
Stjórnandi: Alhert Klahn.
Kl. 2 e.h.: Ræða af svölum AÍþingishússins: hfenntamálaráðherrn
Einar Arnórsson (ræðunni útvarpað). Lúðrasveitin
leikur þjóðsönginn.
Kl. 4 e. h.: Stórstúkufundur (stigveiting).
Kl. 8% e. h. Sainkvæmi í Sýningarskálanum.
EFNISSKRÁ:
a) Gestir hoðnir velkomnir.
b) Hátiðarræða: Kristinn Stefánsson, stórtemplar.
c) Söngur: Dómkirkjukórinn.
d) Ávarp.
e) Stiginn dans.
Kl. 10 e. h.: Afmælisfagnaður í G. T.-húsinu.
Mánndagnr ÍO. janúar:
Kl. 8 síðd.: LEIKSÝNING 1IÐNÓ:
Frumsýning leikritsins TÁRIN, eftir Pál Árdal.
Kl. 8 siðd.: Sameiginlegur hátiðarfundur stúknanna í Reykjavik.
Embættismenn allra stúkna mæta með einkenni.
KI. 8% síðd.: Utvarpserindi: Reglan 60 ára“: Árni Óla, stór-
kanzlari.
Röndóttar Skíðapeysur, kembdar.
Bláar og sprengdar Peysur.
Drengjapeysur.
Skíðasokkar, hvítir, allar stærðir.
Barnasokkar, svartir.
Skíðahosur, allar stærðir.
Bamasamfestingar.
Ullarkjólar 4 mörgum stærðum.
Samkvæmisk jólar, aðeins örfá stk. tækifserisv.
Kvenkápur.
Hálsklútar.
Kvenbolir.
Karlmannanærföt.
Karlmannavesti með rennilás.
Verzlið við íslenzka framleiðendur!
Leó Arnaion Co.
Laugavegi 38.
...
w^mmmmmH^mmmmmmmmmmmammmmmmmmmmmammmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmammmr^
Kápur
Svaggerar
Saumum úr aðkeyptu efni.
SAUMASTOFAN
Laugaveg 16, (II. hæð).
(Laugavegs apótek).
Tvo tii þrjá
enn
vana við hílainnréttingai’,
vantar á réttingaverkstæði
okkar. Aðeins góðir rnenn
koma til greina.
H.f. BÍLASMIÐJAN.
Skúlatún 4.
Alúðarfyllstu þakkir vottum við ölum þeim
mörgu, sem sýnt hafa okkur samúð og vinsemd við
fráfall og minningarguðsþjónustu soroar okkar.
Antons B. Björnssonar
Sérstaklega færum við íþróttasambamdi íslands
og Knattspymufélagi Reykjavíkur aMðarþakkir
fyrir þeirra mörgu höfðinglegu minnmgargjafir,
minnisstæða heimsókn á heimili vort ©g göfuga
framkomu á allan hátt.
ANNA PÁLSDÓTTIR. BJÖRN JÓNSSON.