Vísir - 28.01.1944, Blaðsíða 3

Vísir - 28.01.1944, Blaðsíða 3
 siysin skuli þó ekki hafa orðið fleiri ea ástæða er til að ætla að hafi orðið vegna ofhleðslu. Það, að af þeim sökum hafa ekki orðið fleiri slys, má vafalaust l>akka staðgóðri þelikingu skip- stjórnarmanna á vanhæfni skip- anna imdir þessari miklu hleðslu. Haga þeir þvi oft ferð- uin sínum, eftir því sem kostur er, með hliðsjón af þeirri þekk- ingu. Þannig er það ailtítt, að skip sem eru að veiðum á fjar- lægum miðum, færi sig undir laud eða í námunda við liafnir, er nokkuð vantar á fullfermi skipsins og ljúki þar veiðinni, sem skammt er í landvar ef veður breytist. En skiljanlega er ósjóhæfni skipanna tilfinn- anlegust þegar þau eru á leið frá miðunum, áður en þau hafa verið losuð við þilfarsfarminn, lýsi og veiðarfæri og bætt hefir verið við kolaforða þeirra, sem verkar sem kjölfesta. Breytingarnar, f dagblöðunum hefir verið varpað fram ýmsxmi spurning- um viðvikjandi breytingmn, sem gerðar hafa verið á farm- rýmum skipanna. Eg mun nú fara nokkurum orðum um þessi atriði sérstaklega. Stækkun farmrýmisins ligg- ur tiðast í því, að það er lengt aftur i kolageymsluna. Það, út af fyrir sig, að þyngdarpunkt- ur farmsins færist vitanlega aftur í skipinu við slíka leng- ingu, ætti af skiljanlegum á- stæðum að vera til bóta þar eð skipin liggja of djúpt að fram- an undan þunga fiskfarmsins. En málið hefir fleiri hliðar. Það er þá fyrst, að sé eigi leyft af farmrými skipsins fremst í hiutfaili við aukningu þess aft- ur, og allt fyllt á sama hátt og gert var fyrir lenginguna, verð- ur þungi farmsins vitanlega að sama skapi meiri sem stækkun farmrýmisins nemur. í öðru lagi kemur sá aukni þungi í skipið að mestu ofar hæðar- miðju þess eins og nú skal sýnt. í því rúmi, sem áður var kola- geymsla, er nú fiskur alla leið [>étt upp undir þilfar. Vegna vaxandi breiddar skipsins eftir því sem ofar dregur verður meiri hluti þessa rúms ofan við hæðarmiðju þess og þar af leið- andi einnig meiri hluti hins aukna farmþunga. Fyrir leng- inguna voru þarna kol, sein í íok veiðiferðar, náðu í mesta máta upp undir hæðarmiðju rúmsins og verkuðu þvi á sjó- hæfni skipsins sem kjölfesta. I>að er þvi sýnt, að hinn aukni farmþungi hefir áhrif á sjó- hæfni þess gagnstæð þeim sem kjölfesta hefir en hhðstæð áhrifum þilfarsfarms og verður þvi til þess að færa þyngdarlínu J>ess enn ofar, og það er einmitt }>að, sem megnið af hinum aukna farmþunga togaranna hefir gert, ekki einungis sá, sem fengizt liefir-með stækkun fannrýmisins, heldur öllu fremur sá, sem fengist hefir með síauknum troðningi fiskjar þétt upp undir þilfar skipsins, alls- staðar þar sem fiskur er látinn í það. Eg hygg, að óhætl sé að fullyrða, að af þeim farmþunga, sem nú er. látinn í hvert slcip, umfram það sem gert vai- fyrir strið, lendi að minnsta kosti % hlutar ofan við hæðarmiðju farmrýmisins, og geta þá allir séð, hvort undarlegt sé þótt nokkur röskun liafi orðið á jafn- vægis eða iniðþyngdarlínu skipsins og þar með sjóhæfni þess, þegar þess er gætt, að l>essi aukni farmþungi í meðalstórum togara nemur allt að 100 tonn- um, eða jafnmiklu öllum farm- inum áður. Opinberar aðgerðir. Það er vitað mál, að siðast- liðin tvö ár, hefir inörgum reyndum togarasjómanninum staðið öllu ineiri ógn af of- lileðslu skipanna en sjálfum ó- friðarhættunum þótt sízt sé á- stæða til að gera lítið úr þeim, og er þá langt gengið, þegar við höfum, með forsjálausu ofur- kappi, skapað okkur hættur, sem ástæða er til að óttast jafn- vel enn meira en vítisvélar hans. Við, sem lengi höfum siglt við strendur þessa lands og á haf- inu umhverfis það, ættum sann- arlega ekki að láta okkur úr minni liða, að hér er þeirra veðra von, sem flestuin geta orðið nógu ógnþrungin, þótt farkosturinn sé ekki dauða- dæmdur með ofhleðslu eða öðru þvi er í okkar valdi stendur að fyrirbyggja. Það er því sorg- legt tákn þessara trylltu tima, þegar einmitt þeir menn, sem i bezt ættu að þekkja ógnir of- hleðslunnar, láta frá sér fara bréf eins og það, sem Skipstjóra- og stýrimannafélagið Ægir sendi sjöunda þingi Farmanna- og fiskimannasambands ís- lands, nú í haust, þar sem þess var farið á leit, að þau félags- samtök beittu sér fyrir ógild- ingu á hinum nýtilkomnu hleðslumerkjum togaranna. Fátt talar til okkar skýrara máli, en einmitt þetta bréf, frá þessu félagi, um það, að hér sé þörf aðgerða þess opinbera og þeirra einbeittra og liispurs- lausra. Við höfum þegar goldið mik- íð afhroð í töpuðum mannslíf- um og töpuðum skipum af völd- um þessa ófriðar, beint eða ó- beint. Nafnalisti okkar föllnu er þegar orðinn óhugnanlega lang- ur í hlutfalli við mannfjölda þessarar fámennu þjóðar. Þó segir sá listi, engan veginn allt um raunverulegt tap okkar, því þeir eru margir, þótt sjaldnar sé getið, sem misst hafa svo eða svo mikinn hluta starfsorku sinnar, vegna lamaðs tauga- kerfis, að afstaðinni ofraun á- hættunnar. Hafa læknarnir oklc- ar vafalaust sina sögu að segja um þessa hlið málsins. Þetta hleðslumál er umfangs- mikið og viðkvæmt. Það snertir bæði fjárhag ýmissa og lifsör- yggi margra. Mér er fyllilega ljóst, að mér liefir elcki tekist að gera þvi þau skil sem skyldi, en þó vona eg að ýmsum verði, að loknum lestri þessarar greinar, ljósara en áður, að hér er þörf skjótra átaka, sem leitt geta til afturhvarfs af óheilla- vænlegri braut ofhleðslu og of- urkapps. Væri hún þá ekki til einskis skrifuð, ef hún yrði til þess að ýta undir þau átök. Guðm. Guðmundsson, frá Ófeigsfirði. Grænmetis- Hænsna og Kraftsúpa í pökkum Heinz Súpur í dósum fl. teg. Campells Súpur í dósum fl. teg. Kjötkraftur, Bovril, Torez, Maggi, Súpukorn (gular og gr. Baunir, Bankabygg. Hrísgrjón. Linsur og Núðlur blandað í pk.) Súpujurtir — Súpu-núðlur Slaufur — Stafir. Maccaroni, heilar, bútar, Salatskornar. VERZLUN Ungur maður óskar eftir einhverskonar at- vinnu, annað hvort á sjó eða landi. Tilboð, merkt: „Kappsam- ur“ sendist Vísi mánudags- lcvöld. 8IMI 420V VÍSIR Mikið úrval er nú aftur komið af: LOFTSKERMUM, BORÐLAMPASKERMUM, LESLAMPASKERMUM. Skermabnðin Laugaveg 15. Blaðið Bondimi Málgagn framleiðenda til lands og sjávar Kom iit í dagr EFNI 1. Ávarpsorð. 2. ,3er er hver að bakinu nema sér bróður eigi“, G. B. 3. Herhvöt bænda, Jónas Jónsson. 4. Hvað er framundan hjá þjóð vorri? Gunnlaugur Krist- mundsson. 5. Efling framleiðslunnar og aukning atvinnutækjanna er þjóðarnauðsyn, Ingólfur Jónsson. 7. Hvers vegna geta bændumir ekki staðið saman? Ingvar Pálsson, Balaskarði. ÚTSÖLUSAÐIR í REYKJAVÍK: Bókaverszlun Sigfúsar Eym undssonar. Bókabúð Kron ©g Bókaskemman á Laugavegi 20 B. Amerískir GÖTUSKÓR nýkomnir. Grettisgötu ö/. Kenni ensku Talæfingar, ritæfingar. Uppl. i síma 5454 í dag og á morgun, kl. 5—7. Magnús Thorlacius hæstaréttarlðgmaður. ACalstræti 9. — Sími: 1875. Félagslíf Ármenningar! Skiðaferð verður í Jósefsdal á sunnudagsmorgun kl. 9 frá I- þróttahúsinu. Svigkeppni fer fram fyrir drengi og fullorðna. Farseðlar seldir í Hellas, Tjarn- argötu 5, til kl. 4 laugardag. — (579 ÆFING i kvöld kl. 10. Hand- knattleiksmenn. Nefndin. (557 VALXJR S k í ð a f e r ð kl. 2 og kl. 8 á laugardag. Sunndag kL 8,30 f Jh. frá Arnarhvoli. Félagar! Til- kynnið þátttöku fyrir kl. 6 í kvöld.___________________(566 Leikjakvöld í Mennta- skólanum í kvöld kl. 8—11.(578 Föstudagur: 6— 7 III. fl. karla. 7— 8 H. fl. karla. 8— 9 I. fl. kvenna. 9— 10 I. fl. karla. Skíðaferð í Þrym- heim laugardags- kvöld kl. 8. — Far- miðar í Aðalstræti 4 f. h., uppi, frá lcl. 5,30—6,30. KRYDD í dósum. Pipar — Canel — Carde- mommur — Negull — Allrahanda — Muscat — Muscatblóm — Paprica — Engifer — Carry. Pipar, Negull, Canel, Kúmen heilt, Vanille- ptengur, Lárviðarlauf. w SIMI4205 Bílstjóri Sá, sem getur lánað kr. 5—7000.00 þúsund krónur getur fengið atvinnu við að þeyra góðan vörubíl i fastri vinnu. Einnig gæti komið til greina kaup á hálfri bifreið- inni. Tilboð sendist blaðinu fyr- ir næstlcomandi laugardags- kvöld, merlct: „Bilstjóri". Góður fólksbíll á nýjum gúmmíum og með stærri benzínskammti, til sölu. Til sýnis í Ingólfsstræti 21B, til kl. 7 i dag og á morgun. Amerfskir Kiemskor fjölbreytt úrval tekið upp i dag. . Skóverzlunin JORK Laugaveg 26. er til sölu, til niðurrifs eða burtfluínings,. Enn- fremur er áfastur steinskúr til sölu, til niðumfs. Hvorttveggja þarf að vera farið aí lóðínni tv œasæ næstk. Tilboð óskast i ofannefnt (i tvennu lagi) fyrir febrúar n. k. Réttur áskilinn iil að taka hvaða tíl— boði, sem er, svo og' hafna öllum Skrifstofa vor gefur allar upplýsingar. Steindóm|ireni Kirkjustræti 4. Pósthólf 365* RIEGEL vinnnveilinffnr fyrirliggjandi. Lækkað verðl Ólafur Gíslason & Gc, h,f. Sími 1370. Barnlaus hjón óska eftir íbúð strax. Há leiga og fyiárframgreíðsla eftir sam- komulagi. Tilboð, merkt: „Barnlaus hjón“ sendist Vísi fyrir laugar dagslcvöld. i: . Til sölu: 3 þriggja herbergja íbúðir, 1 tveggja herbergja ibúð, 2 lítil hús, 8 tonna mótorbátur, góð jörð og sumarbústaður. Höf- um lcaupendur að tveim 5 herbergjá ibúðum eða villum í bæn- um, svo og litlum einbýbshúsum. ’ Sölumiðstöðin Klapparstíg 16. Símar 3323 og 2572. ið að spila bridge. Lesið Bridge- bókina. vantar til að bera út blaðið nú þegar um eftirfaldar götur: AÐALSTRÆTI BRÆÐRABORGARSTlG. SÓLEY J ARGÖTU ÞIN GHOLTSSTRÆTI Talið strax við afgreiðsluna. — Sími 1660. Dagblaðið VÍSIR Tré og VAGNINN tekur að sér yfirbyggingar bila, réttingar og viðgerðir á yfir- bvggingu. — Einnig allskonar trésmíði. Verkstæðið við Brautarholt 28 (móti Tungu). —

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.