Vísir - 19.02.1944, Síða 2
VlSIR
UAGBLAi)
Útgefandi:
BLAÐAÚTGÁPAN VÍSIR H.F.
Ritstjórar: Kristján Guðlaugsson,
Hersteinn Pálsson.
Skrifstofa: Félagsprentsmiðjunni
Afgreiðsla Hverfisgötu 12
(gengið inn frá Ingólfsstræti).
Símar: 1 660 (fimm línur).
Verð kr. 4,00 á mánuði.'
Lausasala 35 aurar.
Féalgsprentsmiðjan h.f.
Kapp og íorsjá.
OFT og einatt hefir það
heyrzt meðal verkamanna
og annara að bændastétt lands-
ins væri óþarflega ágeng við
ríkissjóðinn, landbúnaði væri
uppi haldið á opinberum styrkj-
um, hann þyrfti að skipuleggja
að nýju og koma lionum sem
atvinnuvegi á . heilhrigðan
grundvöll. Á siðasta ári töldu
ýmsir af eðlilegum orsökum að
verð landbúnaðarafurðum væri
óþarflega hátt, og raunar svo
liátt að ekki yrði það réttlætt. í
vísitölunefnd landbúnaðarins
áttu kommúnistar sæti. Þeir á-
samt öðrum ákváðu verð á
landbúnaðarafurðum í fullu
samræmi við kjör og hagsmuni
vérkamanna i kaupstöðum, að
því er þeir sjálfir sögðu frá og
gerðu grein fyrir í blaði sínu.
Ríkisstjórnin leitaði á síðasta
liausti til fulltrúa verkamanna
og bænda, og fór þess á leit, að
þeir reyndu að finna sameigin-
legan grundvöll fyrir ráðstöf-
unum gegn dýrtíðinni. Bændur
kváðust reiðubúnir til að taka á
sig nokkrar byrðar, þannig að
vöruverð lækkaði jöfnum hönd-
um og kaupgjald. Fulltrúar
verkamanna, sem voru að meiri
hluta kommúnistar neituðu með
öllu að taka nokkurn þátt í
slíku. Hinsvegar setja þeir nú
fram kröfur um kauphækkun
til lianda verk&mönnum, og
fullyrða að þeir séu ver settir
en bændur, að því er kaup og
kjör snertir. Er þá ekki nema
tvennt til; annað að kommún-
istar hafi hrugðizt skyldum sin-
um í visitölunefndinni eða hitt,
að þeir geri það nú, en hvort sem
er bregðast þeir með öllu skyld-
um sínum gagnvart þjóðfélag-
inu og reka slarfsemi sína í því
skyni einu að skapa hér lirun
og glundroða. Kommúnistar
vilja ekki að úr verðbólgunni
dragi en eru til alls búnir í því
augnamiði að örfa liana. Með
því telja þeir sköpuð skilyrði
fyrir frekara árangri í barátt-
unni fyrir ráðstjórnarskipulagi
hér á Iandi og liinu fyrirheitna
öreigaríki.
En hvað segja verkamenn um
slíka hegðun. Dæmið er degin-.
um Ijósara. Verkamenn, sem
nú hefir vegnað betur en nokkru
sinni fyrr vegna aukinnar og
stöðugrar atvinnu, samfara
nokkrum kjarabótum að und-
anförnu, hafa vafalaust sem
aðrir safnað nokkru fé og sum-
ir allmiklu á okkar mælikvarða.
Engar líkur eru til að alvinnu-
leysi segi til sín á þessu ári,
komi engin óvænt atvik fyrir.
Ætla má því að verkamönnum
muni vegna sæmilega við sömu
kjör og áður, og aflað fé rýrni
ekki að kaupmætti. Hefjist hins-
vegar verkfall og Iykti því með
kauphækkun, dregur það þann
dilk á eftir sér, að ný verðbólgu-
alda flæðir yfir landið, kaup-
máttur'krónunnar þverr, kaup-
ið verður e. t. v. nokkrum aur-
um hærra, en atvinnan lítil or
óstöðug, með því að flestar at-
vinnugreinar, sem upp hafa ver-
ið byggðar í landinu hljóta að
leggjast í rústir. Jafnvel útgerð-
in getur ekki borið sig, enda
hefir henni tekizt að fljóta til
Skýrslan um
Þormóðsslysið.
Frh. af 1. síðu.
Farþegar voru stundum með
og greiddu þeir fargjöld, sem
umboðsmaður Skipaútgerðar-
innar um borð innheimti og
tók við. Algengast var, að 6—
8 farþegar. væru með í hverri
ferð (eitt sinn þó 27 farþegar),
og komu þeir sér fyrir í háseta-
klefa og öðrum vistarverum
skipverja, en alls voru 18 hvílu-
rúm í skipinu. Skipverjar voru
sjö í þessum flutningaferðum.
I ferðum þessum bar enn á
leka, sérstaklega þilfarsleka,
og var hvað eftir annað reynt
að bæta úr með hampþéttingu
og þess liáttar.
Að kvörtunum um spjöll á
vörum vegna leka virðist ekki
hafa mikið kveðið, enda segir
forstjóri Skipaiitgerðar rikis-
ins, að þilfarsleki nokkur sé
nokkuð tíður á skipum sams-
konar og Þormóður var.
Þann 10. nóv. 1942 liélt skip-
ið af stað í eina slíka ferð frá
Reykjavík til Breiðafjarðar-
hafna og var það m. a. hlaðið
olíu og benzíni í tunnum á þil-
fari. Farþegar voru með. Vind-
ur var nokkur vestan og mik-
ill sjór. Úti á Faxaflóa kom
mikill leki að skipinu, þannig
að dælur þess höfðu ekki við.
Atta menn stóðu og við austur,
og stóð þá rétt í járnum, að
hægt væri að liafa við lekan-
um þar til komið var á slétt-
ari sjó undir Arnarstapa, en
þangað var leitað vegna lekans.
Við athugun kom í ljós, að stór
rifa liafði komið milli þilfars-
planka, aðallega stjórnborðs-
megin. Einnig varð vart byrð-
ingsleka. Skipverjar gerðu við
jietta til hráðabirgða og héldu
áfram förinni, en eftir komuna
til Reykjavíkur var skipið enn
tekið í Slipp til viðgerðar. Voru
sjö skjólborðsstoðir þá endur-
þessa, með óvenjulegum ráð-
stöfunum, sem ræddar Iiafa
verið í blöðum að undanförnu.
Allt sannar þetta, að hér er ekki
verið að berjast fyrir hagsmun-
um verkamanna, eða kjarabót-
um þeim til handa. Allt virðist
benda til að kommúnistar ein-
ir, sem starfandi stjórnmála-
floklcur í landinu fleyti af þvi
rjómann, en verkamenn fái
undanrennuna fái þeir á annað
borð nokkuð.
Hverjum heilvita manni dett-
ur í hug, að herlið sé stofnað í
landinu vegna verkamannanna,
þegar það á að liafa það hlut-
verk með höndunv fyrst og
fremst að vinna gegn verka-
mönnum, sem ekki eru ánægðir
með ráðstafanir kommúnista?
Verkamönnum finnst, sem öðr-
um, að tiltæki þetta sé svo bros-
legt, að vart sé eyðandi að því
orðum, en að öðrum þræði er
hér um alvarlegt fyrirbrigði að
ræða, með þvi að hér er skipað
fram stormsveit kommunista og
varaliðið haft við hendina, og
allt er þetta gert til að ógna rík-
isvaldinu. Kann svo að fara að
ekki verði um annað að ræða, en
að láta Guð skipta giftu og
kveða slíkar tiltektir niður í
eitt skipti fyrir öll. Vilji ríkið
lialda váldi sínu og raunar til-
veru í heiðri, ber þvi skylda til
að vernda það af fremsta megni.
Landráð væri það, ef byltinga-*
flokkum væri leyft átölulaust
að vaða hér uppi með offorsi og
ósvinnu, en rikisvaldið liéldi að
sér Iiöndum, þar til því yrði ger-
eylt. Bezt er að vísu að fara stillt
af stað, en uppreist í landinu
verður að eyða í liverri mynd,
sem hún kann að birtast, og
gera það með fullu kappi og
fullri forsjá.
nýjaðar beggja vegna, frá hval-
hak og aftur á inóts við vélar-
reisn (,,keis“). „Skammdekkið“
var og endurnýjað og inn á
„bjálkavegarann“ var settur
eikarplanki í bæði borð milli
hásetaklefa og vélarrúms (i
leslinni), en okki i vélarrúmi.
Fjögur járnhné voru og sett á
hita framan og aftan við lestar-
lúgu. Skjólborð og öldustokk-
ur, ásamt lilífðarborðum, var
endurnýjað eftir þörfum, liamp-
þéttað meðfram skjólborðs-
stoðum, nýju þilfarsplönkun-
um og víðar á þilfari, svo og
meðfram fram- og afturstefni
og háðum megin miðskipa fyr-
ir ófan sjólínu. Nýtt spil var
og sett í skipið (um 214—3 tonn
að þyngd), í stað þess, er áður
var (og var allt að 114 tonn að
þyngd). Var sett þar undir eik-
arlag, tvö 7 feta furutré neðan
á þilfarið, svo og stoð úr 6"x6"
furu undir mitt spil niður á
kjölhak.
Flestir skipverja þeirra, er
áður voru á skipinu, höfðu ver-
ið afskráðir úr skiprúmi, er
skipið fór í Slipp i des. 1942,
og nýir menn komu í staðinn,
m. a. skipstjórinn, Gísli Guð-
mundsson frá Bíldudal.
Eftir þessa aðgerð, sem að
framan er lýst og stóð fram í
janúar f. á., tólc Skipaútgerðin
skiiiið aftur á leigu til vöru-
flutninga með ströndum fram.
Fór það fyrst frá Reykjavík 29.
jan. 1943 og var farið til hafna
við Húnaflóa. Fannur var sams-
konar og fyr (einnig á þil-
fari). í þessari ferð (á Húna-
flóa) losnaði ró, er liélt svo-
nefndum „flangsi“ í skrúfu-
öxli, þannig að „flangsinn“
losnaði og skrúfan liætti þá að
snúast. Gátu skipverjar gert
við þetta, en síðan var það at-
hugað hetur eftir komuna hing-
að til Reykjavikur. í þessari
ferð virðist og enn hafa orðið
vart leka á skipinu. — Skipið
fór síðan í hina seinustu ferð
frá Rej'kjavík hinn 9. fehrúar
f. á., einnig til hafna við Húna-
flóa, og virðist farmur hafa
verið sams konar og fyrr. Virð-
ist svo sem enn liafi orðið vart
leka á norðurleiðinni. Þann 13.
febrúar fór skipið frá Blöndu-
ósi og var með lilinn varning
þaðan. Á Hvammstanga (þann
14. febrúar) tók skipið hins
vegar rúm 31 þús. kg. af vör-*
um (aðallega frosnu dilka-
kjöti), og virðist farmurinn
hafa fyllt lestina, en ekki hafa
verið annars staðar. Á
Hvammstanga tók skipið og 3
farþega, þar af einn, sem ætl-
aði lil Reykjavíkur, og fór
zjL-------
Scrutator:
skipið frá Hvammstanga að
morgni þess 15. febrúar. Á suð-
urleið kom skipið við á Drangs-
nesi og setti þar í land tvo far-
þeganna frá Hvammstanga.
Eftir því sem forstjóri Skipa-
útgerðarinnar skýrir frá, barst
beiðni, er skipið var á Húna-
flóa, frá afgreiðslumanni Skipa-
útgerðarinnar á Bíldudal,
Ágúst Sigurðssyni, um að Þor-
móður kæmi þar við á suður-
leið til að taka hann. Var í
fyrstu færzt undan þessu, en
fyrir eindregin tilmæli Ágústs
var lagt fyrir skipstjórann á
Þormóði að taka Ágúst á Bakka
í Arnarfirði, svo og að taka sr.
Þorstein Kristjánsson á Pat-
reksfirði. Án þess að vitað sé
glögglega, hvað valdið hafi,
liélt skipið þó til Bildudals og
komj þangað siðari hluta nætur
16. febrúar og lagðist þar að
bryggju. Engum varningi var
skipað þar á land, og það tók
engan flutning þaðan, nema
farangur farþega þeirra, er þar
fóru um borð í skipið, en þeir
voru alls tuttugu og einn, karl-
menn, konur og barn (þar á
meðal Ágúst Sigurðsson). Skip-
ið fór frá Bíldudal kl. 514 að
morgni þess 16. febrúar; kom
við á Patreksfirði, tók þar tvo
farþega (og var annar þeirra
sr. Þorsteinn Kristjánsson), og
var farið frá Patreksfirði kl.
13,45 sama dag, áleiðis til
Reykjavíkur. Að morgni þess
17. febr. fór veðurútlit að ger-
ast ískyggilegt á þessum slóð-
um; vindur fór mjög vaxandi
af V-SV og sjólag tók að versna.
Kl. 10,49 um morguninn sendi
forstjóri Skipaútgerðarinnar
skipstjóranum á Þormóði
skeyti og spurðist fyrir um það,
hvenær skipið væri væntanlegt
til Reykjavikur. Veður fór enn
mjög versnandi eftir því sem
leið á daginn, og kl. 6 e. h. lcom
svohljóðandi svarskeyti tihfor-
stjóra Skipaútgerðarinnar frá
skipstjóranum á Þormóði:
„Slowum Faxabugt, get ekki
sagt um það núna.“ Um sama
leyti sendi sldpstjórinn þó
skeyti til vandamanns hér í
bæ, þar sem liann kvaðst vera
væntanlegur til Reykjavikur
næsta morgun. Kl. 6.20 e. h.
sama dag sendi stýrimaðurinn
á Þormóði og skeyti um góða
líðan til konu sinnar á ísafirði.
Veður fór enn mjög versnandi,
svo og sjólag. Fréttist nú ekki
af Þormóði fyrr en Slysavarna-
félagi íslands harst eftirfar-
andi skeyti frá skipstjóranum
kl. 10.16 að kvöldi þess 17. fe-
brúar: „Erum djúpt út af Staf-
nesi mikill leki kominn að
skipinu eina vonin ér að lijálp-
in komi fljótt." Síðan heyrð-
ist ekkert frá skipinu, en vegna
veðurofsans urðu engin tök á
að koma því til hjálp'ar. Mun
skipið liafa farizt með allri á-
liöfn, að þvi er virðist aðfara-
nótt þess 18. febrúar.
Síðari hluta júhmánaðar
fréttu lilutaðeigandi sjó- og
verzlunardómsmenn, að nokk-
bátsverjar á Suðurnesjum
teldy sig hafa fundið flak við
Garðsskaga og líkur hentu til,
að hér væri að ræða um flak
af v.s. Þormóði. Til þess að
reyna að ganga úr skugga um,
livað liæft væri í þessu, fóru sjó-
og verzlunardómsmennirnir
suður með sjó þann 28. júlí og
höfðu tal af þeim aðiljum, sem
um þelta gátu vitað og unnt var
að ná í. Af þeim viðtölum virð-
ist Ijóst að vélbátarnir Glaður
frá Ytri-Njarðvikum, Gylfi, s.
st., Áfram frá Keflavík og Gull-
foss s. st„ höfðu á s. 1. vori fest
veiðarfæri sín í skipsflaki í
„misvísandi“ austur frá Garð-
skagavita, all-skammt frá landi,
en áður hefir eigi orðið vart við
neinar festar á þessum slóðum.
Skipverjar á v.h. Gylfa fengu i
vor þilfarsplanka úr flaki þessu
í dragnót sína og var sá planki
geymdur hjá hreppstjóranum í
Njarðvíkum. Hafliði J. Hafliða-
son, slcipasmiður, fór ásamt sjó-
og verzlunardómsmönnum suð-
ur þangað og athugaði planka
þennan. Virðast allar líkur
benda til, að hér sé um að ræða
þilfarsplanlca úr Þormóði, og
sama er að segja um fleka þann,
sem skipverjar á v.h. Gullfossi
fundu í vor á sömu slóðum.
Mörg af þeim líkum áhafnar-
innar á Þormóði, sem komið
hafa fram, hafa fundizt á þess-
um slóðum og verður því að
telja talsverðar líkur til, að
skipsflakið, eða hluti þess, sé
þarna, en úr því verður eigi
slcorið nema við nánari athug-
un. Þarna mun vera allt að 20
faðma dýpi, og skv. umsögn
Ársæls Jónassonar kafara,
munu kafarar eigi treysta sér til
að kafa á því dýpi, sérstaklega
á þessum stað, þar sem straum-
ur er þar mjög þungur. Ilins-
vegar var talið hugsanlegt að
ná mætti flaknu upp og var á-
kveðið að reyna það og fengin
til þess sú fullkomnasta aðstoð
sem liér er nú völ á. Stóðu þess-
ar tilraunir fram í vetrarbyrj-
un, en varð alltaf frá að ganga
þar eð veður varð aldrei nógu
kyrrt og loks taldi sjódómur-
inn um miðjan nóvember að
vonlaust mundi vera að halda
tilraunum áfram.
Af því sem fram Iiefir komið
við rannsókn þessa, vecður elcki
ráðið með neinni vissu Iivort
skipið hefir steytt á grunni eða
farizt af völdum ofviðrisins.
ÞAÐ BORGAR SIG
AÐ AUGLtSA
I VISI!
88,
JIcucUvl aÉnmwnfyS
Kommúnistar óðir.
Kommúnistum hefir orðið illa
við, eins og við var að búast, að
Vísir í gær benti með einföldum
rökum á athæfi þeirra gegn verka-
lýðnum og allri þjóðinni. 1 Þjóð-
viljanum í dag birta þeir heilan dálk
af flaumósa og órökstuddum
skömmum, sem bera öll einkenni
hins óverjandi málstaðar. /
Gamall og reyndur kennari í
barnaskóla ráðlagði nemendum sín-
um að telja alltaf upp að tíu, áður
en þeir létu bræði sína í ljós, ef
þeir ætluðu að reiðast þeim, sem
kæmi upp um óknytti þeirra eða
afbrot. Þá mupdu þeir öðlast still-
ingu til að viðupkenna yfirsjón sín^
og komast hjá að verða sér til
skammar. Þar sem yfirsjón komm-
únista er í eðli sínu svo miklu glæp-
samlegri en venjuleg unglingaaf-
brot, hefði þeim vissulega ekki veitt
af að telja upp að hundrað, einu
sinni fyrir hvern gestapomann, áð-
ur en þeir byrjuðu að ausa úr skál-
um reiði sinnar yfir Vísi.
Klukkan á torginu.
Hún er farin að láta allmikið á
sjá, klukkan á Lækjartorgi. Glerin
eru brotin og horfin að meira eða
minna leyti og eg held að eg rnegi
segja, að hún sé til mikilla lýta,
eins og hún er nú útlítandi.
Það þyrfti hið fyrsta að láta fara
frarn gagngerða aðgerð á henni,
setja ný gler í hana, þar sem þess
er þörf og mála hana snoturlega,
annaðhvort eins og hún var eða
nreð einhverjum öðrurn myndum.
Það væri þá heldur ekki úr vegi,
að allar klukkurnar yrði samræmd-
ar, því að nú um tíma hefir ein
þeirra verið tveim eða þrem mín-
útum á eftir hinum.
Stríðskímni.
Það þykir alltaf kostur — og
er það óneitanlega — ef menn láta
ekki hugfallast, þegar á móti blæs
og fokið virðist í flest skjól. Þá
er það heldur ekki lakara, að geta
gert að gamni sínu, þegar svo
stendur á.
(Bretar þyicja jafnan geta gert
að gamni sinu, þótt illa horfi, og
það, ásamt hinni alkunnu þrá-
kelkni þeirra, á vafalaust sinn þátt
í því, að þeir lögðu ekki árar i
bát 1940.
Mér barst í hendur um daginn
eintak af „Punch“ — Spegli þeirra
Breta. Þar voru nokkur sýnishorn
af stríðskímni þeirra, þótt hún
hljóti nú að vera með nokkuð öðr-
um hætti en þegar horfur voru
sem iskyggilegastar 1940. Eg ætla
að taka hér upp tvo „brandara“,
sem birtust í þessu eintaki af
„Punch“.
Annar er á þessa leið:
„Það hefir haft svo slæm áhrif
á Þjóðverja, að bandamenn eru
farnir að framleiða skrúfulausa
flugvél, að það er látið berast út
í Þýzkalandi, að Þjóðverjar sé að
finna upp flugvélarlausa skrúfu."
Hin er svona:
„Henmðarsérfræðingar óttast,
að Hitler muni ætla sér að vinna
varnarsigur í Vestur-Evrópu með
því að láta undan síga áður en inn-
rásin hefst.“
Bœjar
9 fréítír
Helgidagslæknir
á morgun Katrin Thoroddsen, Eg-
ilsgötu 12, sími 4561.
Næturvörður.
Ingólfs apótek.
Næturakstur.
/ nótt: Aðalstöðin, sími 1383. —
Aðra nótt: B.S.R., sími 1720.
Messur á morgun.
/ dómkirkjunni. Kl. 11 f. h., sira
Friðrik Hallgrímsson. Kl. 1.30
barnaguðsþjónusta (sr. Fr. Hall-
grímsson). KI. 5, sira Bjarni Jóns-
son.
Hállgrhnsprcstakall. Messað kl.
2 e. h. í Austurbæjarskólanum, sira
Jakob Jónsson. Barnaguðsþjónusta
kl. 11 f. h„ sira Sigurbjörn Einars-
son. Kl. 10 f. h. sunnudagaskóli i
Gagnfræðaskólanum við Lindargötu
Kl. 8.30 e. h. Kristilegt ungmenna-
félag heldur fund í húsakynnum
Handíðaskólans, Grundarstíg 2A.
Nesprestakall. Messað í Mýrar-
húsum kl. 2.30.
LaugarncsprestakaU. Barnaguðs-
þjónusta í satnkomusal Laugarnes-
kirkju kl. 10 f. h.
Messað í Háskólakapellunni kl.
5. Stud. theoi. Jóhann Hlíðar pré-
dikar.
Messað' á Elliheimilinu kl. 1.30.
Síra Sigurbjörn Á. Gíslason.
Fríkirkjan í Reykjavík. Messað
kl. 2, síra Árni Sigurðsson. — Ung-
lingafélagsfundur i fríkirkjunni kl.
11. Framhaldssagan byrjar o. fl.
Frjálslyndi söfnuðurinn. Messað
kl. 5 e. h„ síra Jón Auðuns.
Fríkirkjan í Hafnarfirði. Messað
kl. 2 e. h„ sira Jón Áuðuns.
Fjáreigendur!
Aðalfundur Fjáreigendafélagsins
í Reykjavík og nágrenni verður
haldinn næstk. mánudag.kl. 8)4 e.
h. í Oddfellowhúsinu, uppi.
Bolludagurinn
er á mánudaginn.
Hjónaband.
í dag verða gefin saman í hjóna-
band, af síra Garðari Þorsteinssyni,
ungfrú Hulda Hafliðadóttir verzl-
unarmær, Ránargötu 29A, og Olaf-
ur Bachmann rafvirki, Austurgötu
43, Hafnarfirði.
Loftvarnaæfing
verður á morgun. Er nauðsynlegt
að allir geri skyldu sina á æfingunni,
jafnt almennir borgarar sem sjálft
starfslið loftvarnanefndar. Ennþá
er sá tími alls ekki liðinn, að hér
geti komið til átaka í lofti, og er
því fásinna, að vera eklci á verði í
loftvarnamálunum, sem áður.
Dansleik
heldur kvennadeild Slysavarna-
félagsins í Oddfellowhúsinu annað
kvöld kl: 9. Frú Steinunn Sigurðar-
dóttir skemmtir ])ar með einsöng,
síra Jón Thorarensen með upplestri
og Gunnar Kristinsson með einsöng.
Að því loknu verður dansað. Að-
göngumiðar fást í skrifstofu, Slysa-
vamafélagsins í dag frá kl. 2—6.
Félagskonur eru beðnar að mæta
með gesti.
f sunnudagsblaðiuu,
sem fylgir Vísi í dag, hafa færzt
til línur undir myndum í grein Þor-
steins Konráðssonar. Það eru
myndirnar úr Vatnsdal og af ísn-
um við Skagaströnd. Lesendurnir
eru vinsamlegast beðnir að hafa
þetta í huga við lestur greinarinnar.
verður að Hótel Borg þriðju-
daginn 22. febr. (sprengi-
kvöld) og liefst með borð-
haldi kl. 20. — Aðgöngumið-
ar fást í Verzl. Havana,
Austurstræti 4.
Nýkomið:
Náttfataefni.
Ullarkjólaefni
og tvöfaldar kápur.
H. TOFT
Skólavörðustíg 5. Sími 1035.