Vísir - 19.02.1944, Blaðsíða 3
HHF
VlSIR
Adalárás Kesselrings
er ekki byrjuð enn.
Þjoðverfar uiikiu ekki á í grær.
Kesselring1 hefir notað svo lít- '
ið af skriðdrekum hingað til við
Anzio, að bandamenn búast við i
því, að aðalárás hans sé ekki
byrjuð enn, en geti komið áður
en varir.
I
Bandamenn nota hinsvegar j
skriðdreka sína gegn áhlaupa- \
sveitum Þjóðverja og segja, að |
með því móti geti þeir haldið
]>eim í skefjum og jafnvel gert
staðbundin gagnáhlaup. Þjóð- i
verjar skeyta ekkert um mann-
tjón, svo að bersýnilegt er, að
þeir ætla að sigra með þvi að
þreyta handamenn, ef ekki með
öðrum hætti. Kesselring horfir
lieldur ekki í flugvélarnar, sem
halda þó lielzt uppi árásum um :
nætur gegn Anzio og stöðvum
beint þar fyrir norðan. j
Ný-Sjálendingar
hjá Cassino.
Bandamenn hafa tekið tvo
fjallatinda fyrir vestan Cassino
og unnið litið eitt á í borginni
einnig. Þess er getð i fyrsta
skipti í herstjórnartilkynning-
unni í morgun, að hersveitir frá
Nýja-Sjálandi berjist með 5.
liernum á ítalíu. Berjast þær við
Cassino.
I
Slökkviliðið gabbað.
Seint í gærkveldi var slokkviliÖi’Ö
narrað að brunaboðanum hjá verka- j
mannabústöðunum við Bræðraborg- j
arstíg. ' •
íþróttafélag Reykjavíkur
hefir nú fengið til umráða leigU'
fría lóð við Sölfhólsgötu undir fyr-
irhugaða íþróttahússbyggingu. Er
stærð lóðarinnar 610 fermetrar.
Eidur.
í fyrrinótt brann húsið Ás við j
Reynisvatn í Mosfellssveit til kaldra !
kola. Eldsupptökin eru talin vera
þau, að kviknað hafi í fötum við
eldavél. Húsið var vátryggt fyrir :
13JÚ þús. kr., en innbú óvátryggt :
og brann það allt inni. Sömu nótt
brann bærinn Jaðar við Þórshöfn,
einnig- til káldra kola. Þar var inn-
bú heldur ekki vátryggt.
Minningarsýning
Markúsar heitins ívarssonar í
Listamannaskálanum verður opnuð
í dag kl. 5 e. h. og verður opin til
kl. 10 e. h. Framvegis verður sýn-
ingin o'pin daglega frá kl. 10—10.
Börn unglingadeildar
Slysavarnafélagsins, sem ætla að
hjálpa til við merkjasölu Kvenna-
deilar Slysavarnafélagsins, eru beð-
in um að mæta kl. 9—10 árdegis
á sunnudág á skrifstofu félagsins.
Útvarpið í kvöld.
Kl. 19,25 Hljómplötur: Lög úr
„Gullna hliðinu“ eftir Pál Isólfs-
son. 20,20 Leikrit: „Pygmalion"
eftir Bernard Shaw. (Þýðandi Bogi
Ólafsson. Leikendur: Soffía Guð-
laugsdóttir, Ævar Kvaran, Tómas
Hallgrímsson, Nína Sveinsdóttir,
Valdimar Helgason, Helga Valtýs-
dóttir, Friðný Pétursdóttir, Helga
Möller, Jón Árnason, Þorbjörg
Magnúsdóttir, Stefán Eggertsson,
Skúli Thoroddsen, Bjartmar Krist-
jánsson, Jakob Jónasson, Ólafur
Stefánsson, Páll Friðriiksson, —
Leikstjóri: Soffía Guðlaugsdóttir).
22,50 Danslög til kl. 24.
Útvarpið á morg-un.
Kl. 11,00 Messa í dómkirkjunni
(síra Friðrik Hallgrímsson). 21,10
Hádegisútvarp. 14,15 Óperan „La
Traviata" eftir Verdi. 18,40 Barna-
tími. 19,25 Hljómplötur: Eroica-til-
brigðin eftir Beethoven. 20,00 Frétt-
ir. 20,20 Einleikur á píanó (Fritz
. Weisshappel): Lög eftir Melartin.
20,35 Erindi: Sálarrannsóknarfélag
ísiands og starfsemi þess (Jón Auð-
uns prestur). 21,05 Hljómplötur:
Maria Markan syngur. 21,15 Upp-
lestur: „Brimgnýr"; bókarkafli (Jó-
hann Bárðarson. — Bárður Jakobs-
son flytur). 21,35 Hljómplötur:
Valsar. 22,00 Danslög til kl. 23.
KYRRAHAFIÐ.
Frh. af 1. síðu.
að ekki er talið að þeir hafi mik-
ið fluglið þar eftir. Flugher
Bandaríkjamanna hefir einnig
hindrað flutninga til liðsins á
eynni.
Eins og getið hefir verið áður,
er Aniwatok það hringrifið, sem
næst er Japan, en taka þess hefir
einnig þau áhrif, að leiðin stytt-
ist til muna til Ponape, sem er
ekki ýkjalangt fyrir austan
Truk. Skipalægi er þar ekki
gott, en flugvöllur Japana er all-
góður.
Truk.
Knox v*r spurður um átökin
um Truk á blaðamannafundi i
gær. Hann sagði, að þau væri
þriðja skrefið á stuttum tíma
til þess að gereyða veldi Japana.
Fyrsta skrefið var árás flugvéla
af flugstöðvarskipi á höfnina í
Rabaul, annað að skjóta á Para-
mushiru.
Roosevelt kvaðst í gær ekkert
vita um þá japönsku fregn, að
amerískt lið hefði gengið á land
á Truk. Vera má, að Japanir liafi
gefið hana út til þess að geta
síðar haldið því fram, að þeir
hafi rekið Bandárikjamenn i
sjóinn.
Frekari fregna af þessum við-
skiptum er ekki að vænta fyrr
en húið er að ná einliverjum ár-
angri í landgöngunni, ef um
slíkt er að ræða, eða flotinn er
kominn svo nærri bækistöð
sinni, að liann geti sent frá sér
skeyti.
Mjólkin ílutt á sleðum
til bæjarins.
Samkvæmt upplýsingum sem
Vísir fékk hjá Mjólkurstöðinni
í morgun hefir Reykjavík aldrei
verið jafn mjólkurlítil og í dag.
Enginn híll komst að austan í
gær og lítil sem engin von að
hílar komist í dag, enda þótt
tvær snjóýtur liafi lagt af stað
í morgun til að ryðja Þingvalla-
veginn. Hinsvegar munu verða
gerðar tilraunir í dag að
draga mjólkina á sleða yfir
fjallið, og fór dráttarvél austur
i þeim tilgangi áð draga sleð-
ann. Hvernig þeim flutningum
reiðir af, var ekki vitað fyrir
liádegi í dag.
Skip, sem átti að sækja mjólk
til Borgarfjarðar í gær komst
ekki, svo að þaðan var heldur
ekki neina mjólk að fá. Skipið
átti að fara í dag, og ef það
kemst leiðar sinnar verður um
einhverja mjólk að ræða í
fyrramálið.
Hellisheiðarvegurinn var
teptur rétt fyrir ofan Lögberg,
en i morgun fór fram athugun
á því hvort tiltækilegt mundi
vera að ryðja veginn þar, til að
greiða götu hifreiða sem fara
með skíðafólk. Ekki er hlaðinu
kunnugt um niðurstöður þess-
arar athugunar.
Fermingarkjóll
til sölu. Einnig kápa á ung-
ling.
Guðrún Guðmundsdóttir.
Bergstaðastræti 9 B.
Kristján Guðlaugsson
' Hæstaréttarlögmaður.
Skrifstofutími 10—12 og 1—6.
Hafnarhúsið. Sími 3400.
Á bolludaginn eiga
S.Í.F.-BOLLUR
úr fiski
að vera á hvers inanni diiki
FÁST I NÆSTU BÚÐ.
Niðursuðuverksmið j a S.I.F.
Fjórðu
hljómleikar
Tónlistarfél.
Aðeins tvö verk voru á
skránni í þetta sinn, annað
fiðlusónatan í c-moll eftir
Grieg, en hitt a-moll tríóið eftir
Tschaikowsky. Fór vel á þvi að
liafa saman lög eftir þessi tvö
öndvegistónskáld, því margt er
skylt með þeim, þrátt fyrir ólík
þj óðerniseinkenni.
Griegssónatan var fyrst leik-
in. í fljótu hragði virðist hún ó-
aðgengilegri en hinar sónötur
lians, en við nánari kynningu
vinnur hún og er mjög norræn
í anda. Slikt verk sem þetta,
ljóðrænt og glitrandi, er alveg
eftir höfði og hjarta þeirra Árna
og' Björns, enda léku þeir það
með góðum tilþrifum. Fiðla
Björns naut sín hetur en áður,
hvað hljómfyllingu snertir, og
er það vafalaust af því, að liann
var með nýtt og betra liljóðfæri
i höndunum, eitt að hinum nýju
hljóðfærum Hljómsveitar
Reykjavíkur.
Tríó í a-moll eftir Tscliai-
kowsky er langt verk og ekki
allsstaðar jafnauðvelt, méðfram
vegna lengdarinnar. Er það
helgað minningu Nikulásar
Rubinsteins, sem var vinur og
samkennari tónskáldsins við
Tónlistarskólann i Moskvu. —
Nilculás var bróðir Antons Rub-
insteins, tónskáldsins og píanó-
snillingsins fræga. í verkinu er
bæði valsinn og mazurkinn,
sem minna á léttlyndan heims-
manninn, þvi Nikulás var lirók-
ur alls fagnaðar og' kunni að
stíga léttan dansinn, svo er þar
líka fúgan og kontrapunktur-
inn, sem minna á liinn alvöru-
gefna listamann, en í upphafi
verksins og niðurlagi þess, er
sár söknuður, persónulegar til-
finningar tónskáldsins. Þetta
þykir eitthvert merkilegasta
verk tónskáldsins og er það tal-
ið með allra bezlu verkum i sín-
um stíl. Dr. Edelstein var þeim
félögum til aðstoðar í þessu
verki með cellóleik. Hann er á-
gætur listamaður, svo sem
kunnugt er, sem leysti hlutverk
sitt skemmtilega af hendi og
með mikilli vandvirkni, en virt-
ist stundum full atkvæðalitill
gagnvart pianóinu.
Þeir félagar, Björn Ólafsson
og Árni Kristjánsson, eru hvor-
ugur menn, sem herast mikið á,
og enda þótt þeir liafi tækni á
við margan erlendan sriilling-
inn, þá falla þeir aldrei fyrir
þeirri freistni að slá „sig til
riddara“ hjá áheyrendum með
eintómri yfirhorðsleikni. En því
meiri er innileikinn og skilning-
urinn á viðfangsefnunuin, sem
kemur fram í leik þeirra, og
virðast þeir báðir mjög vel sam-
stilltir.
Það var húsfyllir að venju á
þessum hljómleikum, því þess-
ir listamenn draga að sér dygg-
an hóp músíkvina, sem láta
ekkert tækifæri ónotað til þess
að hlusta á þá. Viðtökurnar voru
eins og vænta mátti mjög góðar.
B. A.
Styrkið Slysa-
varnafélagið! .
Kvennadeild Slysavarnafé-
lagsins efnir til almennar fjár-
söfnunar á morgun, 20. febrúar,
með merkjasölu, kvikmynda-
sýningu í Háskóíabíóinu kl. 3
og samkomu um kvöldið í
Tjarnarcafé í Oddfellowhúsinu
fyrir karla og konur.
Á morgun er fyrsli góudagur
eða konudagurinn svonefndi.
Er ætlast til að konurnar votti
karlmönnum þá alveg sérstak-
lega vináttu sína og virðingu, og
hefir kvennadeildin þá valið sér
þá mennina er lijarta liennar
standa næst, og reyndar allrar
þjóðarinnar, en það eru sjó-
mennirnir okkar, enda vinna
þeir hættumestu, djörfustu,
fórnfúsustu og afdrifarikustu
störfin í þjóðfélaginu. Enda er
það svo, að er sjómannskaðar
bera að höndum, þá nístir það
livert hjarta okkar og aldrei
finnum við betur en þá hversu
nátengd við erum livert öðru og
viljum þar lijálpa eftir megni.
Sjórinn mun halda áfram að
kenna okkur að lifa, minna
oklcur á skyldurnar við riann
og safnað sér þar kröflum.Verk-
efnin eru óþrjótandi og aldrei
nógu vel vandað til þeirra. Því
land okkar er og verður úthafs-
ins eyja, þar sem allra veðra er
von, eins og þessir síðustu tímar
liafa svo áþreifanlega fært okk-
ur lieim sanninn um.
Kvennadeildin hefir starfað i
14 ár, undir stjórn hins ágteta
formanns síns, frú Guðrúnar
Jónasson, er liefir verið lífið og
sálin í félagsskapnum. I deild-
inni eru um 1500 konur, er unn-
ið liafa með ósérplægni að þess-
um málum og lagt fram tölu-
verðan skerf. Hefir deildin mik-
inn hug á að gjöra það betur og
hefir því helgað sér daginn á
morgun til þess að þær óskir
megi rætast.
Hjálpumst öll að, að gjöra
daginn á morgun sem árangurs-
ríkastan og heilladrýgstan, því
þetta er hjartans málefni okkar
allra og mikla áhugamál.
S. M. C.
Cherry
Apple
Grabe apple
Bfml 1884. Klapparstf gT 30.
ar
sem birtast eiga
Vísi samdægurs,
þurfa að vera
komnar fyrir
kl. 11 ard.
Dúnsængnrnar
eritt komnar.
löítctal
Skiptafundur
verður haldinn í db. frú Sophiu Jónassen Claessen, Póstliús-
stræti 17, í skrifstofu bæjarfógeta í Arnarhváb fimmtudaginn
24. þ. m. ld. 2 e. h. Verður þá lögð fram arfleiðsluskrá, sem fram
er komin, og skrá um hinar uppskrifuðu eignir og væntanlega
teknar ákvarðanir um meðferð þeirra.
Skiptaráðandinn í Reykjavík, 18. febr. 1944.
KRISTJÁN KRISTJÁNSSON,
settur.
Gamall þjóðsiður
er að borða baunir
á sprengidag, þær fáið þér beztar í pökkum og lausri vigt
VERZLIJN
SIMI 4205
Btlend frimerki
fjölbreytt úrval.
Bóka- og ritfangaverzlun
MARINOS JÓNSSONAR.
Vesturgötu 2.
Minnningarsýning
á listsafni Markúsar ívarssorsar
verður opin fyrir almenning í dag (19. febrúar) í
Listamannaskáíanum frá kl. 5—10.
Framvegis verður sýningin opin daglega frá klukk-
an 10—10.
Um hann var þetta
Þorraþræll
er í dag.
kveðið:
„Angursemd ég á mér finn
oft í myrkri svörtu.
Þegar endar þorri minn,
þá skal hátta í björtu.“
Leikfélag Reykjavíkur
sýnir Vopn guðanna annað kvöld
og hefst sala aðgöngumiða kl. 4 í
dag. Óli smaladrengur verður sýnd-
ur kl. 4,30 á morgun. Aðgöngumiða-
sala hefst á morgun kl. 1.
Sigurður Sveinsson
garðyrkjufræðingur, Egilsgöte?
.32, hefir verið settur garðyrkjis*-
ráðunautur Reykjavíkur.
Myndasafn
barna og unglinga heitirnýútkom-
inn bæklingur í stóru broti, nieð
auðum blöðum til að líma inn á þatt
mjnidir úr blöðum og tímaritum,
sem börn hafa sérstakar mætur á
og vilja halda til haga. Er líklegt
að þessi bæklingur verði vinsæll
meðal barna..