Vísir - 09.03.1944, Blaðsíða 3

Vísir - 09.03.1944, Blaðsíða 3
VlSIR í dag ersíðasti söludagurí 1. flokki. Vegna aukinnap eftipspurnap eru umboðsmenn neyddip tii þess að selja í dag miða þá9 sem þeir liafa eftir venju geymt föstum viðskiptamönnum. Kaupið því miða mi þegrar. Ath: Umboðsmenn í Reykjavík og Hafnarfirði hafa opið til miðnættis. stöðu Finna, er hið næstum því ósldljanlega hatur þeirra í garð ! Rússa. Æðstuprestar þessa hat- urs eru Mannerheim hershöfð- ingi og Tanner varaforsætisráð- herra. Ástæðan til þess að Finn- ar þiggja heiðursmerki af Jap- önum er kannske ekki aðallega sú, að Japanir séu bandamenn Þjóðverja, heldur hin, að þeir vonast mjög eftir því að Japanir ráðist á Rússa að austanverðu. Því má ekki gleyma, að Finnar telja sig eiga um sárt að binda eftir ósigurinn gagnvart Rúss- um veturinn 1939—40, enda þótt flestum fyndist Rússar bjóða þeim mjög hagkvæma friðarskihnála. Þeir hafa aldrei getað séð annað í fari Rússa en yfirgang og ásælni, og samfara þessu er allmikill geigur við hið tröllaukna vald sinna miklu nágranna. Auk þess eiga þeir frelsi sitt að þakka ófriði við Rússa, þegar þeir brutust undan ofurvaldi þeirra 1917, og þeir telja að Rússar muni aldrei geta fyrirgefið þeim, að kommún- istabylting var kæfð í fæðing- unni í Finnlandi um þær mund- ir. Finnar hafa jafnan hallazt mjög frá kommúnisma, og hef- ir lýðræði þeirra oft stafað mik- il hætta af einræðishneigðum innanlands, samanber Lappó- lireyfinguna sælu. Þeir telja sig nú berjast fyrir lífi sínu. Telja að Rússar muni eigi að þessu sinni sætta sig við minna en al- ger yfirráð landsins. Og þótt þeir beri í hjarta sínu litla vin- áttu til Þjóðverja, þá kjósa þeir lieldur að eiga þá að banda- manni gegn Rússum en að eiga það á hættu að Rússar gleypi land þeirra. Hernaðarnauðsyn krefur nú, að innan skamms verði gripið til gagngerðra ráðstafana gegn Finnum. Undanfarið hefir verið lagt fast að þeim að semja frið og taka beztu fáanlegum skil- málum. En þeir hafa ekki borið gæfu til að leita friðar á réttum tíma sjálfir, og nú er svo kom- ið, að aðrir fást ekki til að gera það fyrir þá. Það er því með talsverðum geig, að vinir Finnlands utan- lands líta á framtíðina. En lik- legt má telja, að Finnar sjálfir telji hlutskipti sitt betra að eiga í stríði við Rússa en að neyðast til að lúta þeim. B. G. Mótorhjól Model 1940, 2ja cylender, 4 gira, með fótskiptingu, til sölu. — Uppl. í síma 4315, næstu daga. Tökum upp í dag ensk dragtaefni af mörgum litum og gerðum- Lífstykkjabúðin hi. Hafnarstræti 11. — Sími 4473. RAFMAGNS- Eldavélar Hitunartæki Suðuplötur KOLA- Ofnar liOKS- Eldavélar OLÍL Vélar Ofnar svo og önnur hitunar- og suðutæki í stórum stíl, óskast til kaups. Tilboð, merkt: „Hitunartæki“ sendist afgr. Vísis fyrir 18. þ, m. Garðeigendur Ef þér þurfið að láta úða eða grisja trjáviðinn í görðum yð- ar, þá hringið i síma 5268. Bezt að auglýsa í VÍSI. Bók eftir þrjátíu höfunda, sem margir eru heimsfrægir menn. Um óknnna stign Þrjátíu sannar sögur um landkönnun, rannsóknir og svaðilfarir, sagðar í fé- lagi landkönnuða í New York. Margir höfundanna hafa lagt á torsóttustu leiðir jarðarinnar. Þeir hafa lagt leið sína til Suðurhafsey.ja, dvalist með galdamönnum í Zúlúlandi, þreytt úlfalda- reið um Sahara, heimsótt steinaldarfólk í Austur:Grænlandi, flúið inn í kvenna- búr Soldánsins i Marokkó og farið riðandi norður Sprengisand, svo fátt eitt sé nefnt. Fjöldi ágætra mynda er í bókinni. Vilhjálmur Stefánsson útvegaði leyfi til útgáfu bókarinnar á islenzku. Þýðendnr: Jón Eyþórsson og Pálmi Hannesson Þetta er hrífandi bók og nýstárleg, þrungin lífsfjöri og frásagnargleði. SNÆLANDSÚTGAFAN H.F. Kristján Guðlaugsson HæstaréttarlSgmaðnr. Skrifstofutimi 10—12 og 1—6. Hafnarhúsið. Sitni 3400. Féiagslíf húsinu. ÁRMENNINGAR! íþróttaæfingar félags- ins i kvöld i iþrótta- í stóra salnum: KI. 7—8: II. fl. karla, fimleikar. Kl. 8—9: I. fl. kvenna, fimleikar Kl. 9—10: II. fl. kvenna, fimleik- ar. Stjóm Ármanns. Fimmtudagur: 2—3 Frúaflokkur. 6— 7 Old Boys. 7— 8 H. fl. kvenna. 8— 9 Handbolti kvenna. 9— 10 Handbolti karla. 19-11 Isl. glima. SÁL ARRANNS ÓKN AFÉL AG ÍSLANDS heldur fund í Guð- spekifélagshúsinu fimmtu- daginn 19. þ. m. kl. 8.30 e. h. Grétar Fells flytur erindi. (186 AUSTURFARAR K.R. halda sameiginlegan fund í lcvöld kl. 9 í Oddf ello whúsinu. Æfingar í kvöld: í Austurbæjarskólanum: Kl. 9y2: Fimleikar 2. fl. og 2. fl. knattspyrnumanna. Stjóm K.R. Orð§ending: Þeir áskrifendur Yísis er kunna að verða fyrir vanskilum á blaðinu, eru vinsamlega beðnir að snúa sér strax til afgreiðslo blaðsins í síma 1660, eða kl. 10—-12 fyrir há- degi næsta dag. Geymslupláss, rúmgott, þurrt og rakalaust, óskast nú þegar. A. v. á. Nýjung! Nýjung! Höfum fengið sendingu af amerískum Pappaskífnm mjög henlugum til utanhússklæðninga á þök og veggi. Smekklegir litir. Sænsk-íslenzka Verzlunarfélagið hi., Rauðará. — Sími 3150. Bæjargjaldkerastarf h já Hafnarf jarðarbæ er laust til umsóknar. Umsóknir sendist undirrituðum fyrir 25. marz n. k. Upplýsingar um launakjör og annað varðandi starfið gefur undirritaður. Bæjarstjórinn í Hafnarfirði. Jarðarför Haraldar Eliassonar frá Skógum, Arnarfirði, sem andaðist á Landakotsspítala 29. febrúar, fer fram næstkomandi föstudag, 10. marz, og hefst kl. 2 e. li. frá dómkirkjunni. Fyrir liönd foreMranna. Asg. Ásgeirsson. Innilegustu þakkir til allra hinna mörgu einstaklinga og' félaga, sem sýnt hafa okkur samúð og hluttekningu við andlát og útför Jóns Magnússonar, skálds. Borgfirðingum í Reykjavík og Þingvellingum þökkum við höfðinglegar minningargjafir. Guðrún Stefánsdóttir og dætur. Alúðar þakldr fyrir auðsýnda samúð við fráfall sonar míns og hróður okkar, Freysteins G. Hannessonar. Hannes Friðsteinsson og systkinln.

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.