Vísir - 16.03.1944, Qupperneq 1
Ritstjórar:
Kristján Guðlaugsson
Hersteinn Pálsson
Skrifstofun
Féiagsprentsmiðjan (3. hæð)
Ritstjðrar !
Blaðamenn Slmii
Auglýsingar 1660
Gjaldkeri 5 llnur
Afgreiðsla
34. ár.
Reykjavík, fimmtudaginn 16. marz 1944.
62. tbl.
Fleiri farait I
slysum en á
YÍgfYÖIlllllIllll.
ISnaðarslys í Bandaríkjunum
hafa orðið fleiri mönnum að
bana, síðan ráðizt Var á Pearl
Harbor, en farizt hafa af völd-
um stríðsins.
I lok síðasta árs liöfðu 37,600
menn beðið bana í verksmiðjum
landsins, síðan 7. des. 1941, og
var það 6000 mönnum meira
manntjón, en fallið höfðu á víg-
völlunum. Auk þess höfðu 4,7
milljónir manna orðið fyrir alls-
lconar meiðslum, en það var 60
sinnum stærri hópur en særzt
hafði í viðureignum við fjand-
mennina, eða voru týndir.
|Hér eru þeir ekki taldir, sem
látazt eða slasast í bílslysum, en
þeir skipta mörgum þúsundum.
Finnska þingið hélt annan
lokaðan fund í gær og er talið,
að samþykkt hafi verið að hafna
skilmálum Rússa.
Að vísu liafa ekki verið gefn-
ar út neinar tilkynningar um
störf fundarins, en þó hefir
heyrzt* að rætt hafi verið í
klukkustund um skýrslu, sem
Linkomis forsætisráðherra gaf
þingheimi urn utanríkismálin.
Síðan var samþykkt að taka
málið út af dagskrá, en það
þykir mönnum í Stokkhólmi
tákna, að skilmálum Rússa hafi
verið hafnað.
Ilerlög: sdt aftnr
í Nofia.
Herlög hafa verið sett í Sofia,
höfuðborg Búlgaríu, enda þótt
aðeins fátt manna sé í borginni.
í ungverska útvarpinu er þetta
skýrt þannig, að talið sé að
spellvirkjaflokkar hafi komizt á
laun inn í borgina, til þess að
vinna þar tjón. Lögreglu borgar- |
innar hefir verið skipað að
skjóta á hvem þann mann, sem
stingur höndum í vasa, ef hon-
um er sagt að nema staðar.
600 menn gera
.við Tirpitz.
Samkvæmt fregnum, sem
borizt hafa til Stokkhólms,
vinna nú um 600 menn að við-
gerðum á Tirpitz.
Er mestmegnis unnið að því
að þétta skipið, svo að hægt
verði að flytja það til fullkom-
innar skipasmíðastöðvar. Nær
allar rafleiðslur hafa eyðilagzt
i skipinu, vegna þess hvað sjór
komst víða í það og það maraði
lengi í kafi.
Viðgerðar,mennirnir búa í
farþegaskipinu Monte Rosa og
er baldinn strangur vörður um
þá, til þess að ekkert leki út um
það, livenær gert sé ráð fyrir að
skipið verði sjófært á nýjan leik.
Arás á Braunschweig,
Meðalstórir hópar amerískra
sprengjuvéla fóru í gær í árás
á BVaunschweig í Þýzkalandi.
Mikill sægur orustuvéla var
þeim til verndar og vörðu
sprengjuvélarnar svo vel, að
Þjóðverjar gátu einungis grand-
að þrem þeirra. Hinsvegar telja
Bandaríkjamenn, að þeir liafi
skotið niður 26 þýzkar flugvélar.
Snemma í gærmorgun gerðu
Aðbúð fanga hjá
Japönum mjög
slæm.
Eden útanríkisráðherra Breta
gaf skýrslu um aðbúð fanga í
böndum Japana á þingi í gær.
Hann sagði, að það gengi allt- |
af jafn stirðlega að fá leyfi Jap-
ana til að senda menn til að
kynna sér vistina í þeim fanga-
búðunum, sem hafa verst orð á |
sér. Beiðni um þctta hefði síð-
ast verið send í janúar-lok, en
hefði ekki borið neinn árangur.
En jafnframt berast æ fleiri
fregnir til stjórnárinnar um að
fangarnir lifi liinu versta lífi
í mörgum þeim fangabúðum,
sem um cr að ræða. Annars
staðar er aðbúðin að ýmsu leyti
betri, en kemst þó Iivergi í hálf-
kvisti við vistina, sem japanskir
fangar njóta hjá bandamönnum.
Sænskur ræðismaður hefir
fengið áð koma í nokkrar fanga-
búðir. Sagði hann aðbúnað þar
þolanlega, en þó voru riokkrir
menn með beri-beri og köldu-
sótt.
Marauder-vélar snarpa árás á
flugvöll í Suður-Belgíu og járn-
brautarstöð þar í grennd.
SERBNESKUR SKÆRULIÐI.
^Stúlka þessi er serbneskur skæruliði. Hún særðist í bardaga
á Dalmatiu-strönd og var flutt yfir lil Ítalíu til þess að fá þar
bó meina sinna.
Aðstaða Manstems
íer hríðversnandi.
Rússar sækja
hratt til
Dnjestr.
Innikróunarhættan meiri
en nokkuru sinni fyrir
Þjóðverja.
Me« hverjum deginum,
sem líður, versnar að-
staða Mannsteins og mögu-
leikarnir fyrir lið hans, sem
er austast í Ukrainu, til að
komast undan, verða sí-
fellt minni.
Það kom í ljós í gærkveldi,
að þær fregnir voru sannar, sem
heyrzt höfðu um að Rússar
hefðu brotizt yfir Bug. 1 her-
stjórnartilkynningunni rúss-
nesku var frá því skýrt, að
Rússar liefði viðstöðulaust byrj-
að að brjótast yfir ána, er þeir
voru komnir að henni. Var not-
ast við hvaða fleytu, sem hægt
var 'að ná í og jafnvel tunnur
voru notaðar til að komast yfir.
En meðan fyrstu sveitirnar voru
á leíð yfir, liélt langdrægt stór-
skotaiið uppi mikilli skotliríð
yfir ána og undir vernd þess
lókst Rússum að búa um sig
þar, svo að hægt var að koma
, upp brúm.
Rússar fóru yfir úna á 100
1 km. breiðu svæði og í gærkveldi
liöfðu þeir sótt fram 30 km. í
áttina til Dnjestr og tekið um
100 bæi. Voru þeir þá í 50 km.
fjarlægð frá Dnjestr og gera
blaðamenn í Moskva ráð fyrir
því, að þeir komist að henni ann-
að kveld. Má gera ráð fyrir því,
að Þjóðverjar verði látnir hefja
hratt undanhald úr S.-Ukrainu
austur yfir Dnjestr til að forðast
herkví.
Nikolajev og Vinnitsa
í stórum vaxandi hættu.
Rússar eru nú í rauninni bún-
ir að umltringja Vinnitsa á þrjá
vegu og má búast við þvi, að
borgin falli þeim í hendur þá og
þegar. Voru þeir í gær í 20 km.
fjarlægð að sunnan og norðan,
en að austan átlu þeir um 15
km. ófarna. Vörn Þjóðverja er
einna hörðust þarna, enda er
borgin aðalbækistöð herjanna,
sem eru í grennd við hana, og
beita Þjóðverjar miklu af
skriðdrekum, en gagnáhlaup
þeirra bera ekki árangur.
Ilerdeildir þær, sem um-
kringdar eru hjá Nikolajev, hafa
nú verið klofnar í smáfloldca
og þjappað saman á minna
svæði. Ilafa Rússar þokazt held-
ur nær borginni.
Meiri afli í Vesímannaeyjum,
en nokkuru sinni í sögu þeirra.
3000 smál. sprengja
varpað I árásnm
I métt.
Stuttgart fékk:
■O retar hófu loftsókn
** sína gegn Þýzka-
landi á nýjan leik í nótt
eftir nokkurt hlé. Var að
bessu sinni varpað til
jarðar alls 3000 — þrem
þúsundum — smálesta
af sprengjum af ýmsum
stærðum.
Aðalárásin var gerð á
Stuttgart, hina miklu iðn-
aðarborg í suðvestur
hluta landsins. Er talið,
að aðeins litlum hluta
bróðurpaptinn.
sprengjanna hafi verið
varpað á aðrar borgir en
Stuttgart, svo að árásin á
hana hafi vafalaust verið
metárás.
Flugmennirnir segja,
að gríðarmikil eldar hafi
komið upp í borginni.
Fjörutíu og ein flug-
vél fórst.
f morgun snemma fóru
litlar sprengjuflugvélar í
árásir á N.-Frakkland og
víðar.
45 ára
afmæli K.R.
Knattspyrnuféiag Reykja-
víkur er 45 ára í þessum mán-
uði og í tilefni af því efnir það
til samsætis að Hótel Borg á
laugardaginn kemur, en auk
þess til margháttaðra íþróttasýn-
inga og íþróttakeppni, sem aðal-
lega fara fram sunnudaginn 26.
ma'rz n. k.
Þar sýnir úrvalsflokkur karla
fimleika undir stjórn Vignis
Andréssonar. Þá verður keppt
í handknattleik kvenna og karla,
glímu drengja og fullorðinna.
Svo verður og glímusýning.
Loks fer fram keppni í hástökki
með og án atrennu. Mót þefta
fer fram í íþróttahúsi sem am-
eríska setuliðið á, en hefir lánað
K. R. það.
Þá má geta þess að nýafstað-
ið sundmót K. R. var einn liður
afmælishátiðahaldanna.
Félagið telur nú um 1800
meðlimi, en sögu og starfsemi
félagsins undanfarin ár er ekki
liægt að rekja í stuttri frétta-
klausu. Félagið hefir verið of
mikilvirkt til þess.
Síuíl og lagrgott
Árás hefir verið gerð á járn-
brautarstöðina í Sofia.
★
Bandaríkjamenn hafa gert á-
rás á hringrif eitt skammt fyrir
austan Truk.
. ★
Arásir hafa verið gerðar á Vi-
vak í fjóra daga samfleytt. Jap-
anir hafa misst 73 flugvélar þar.
★
Kolaverkfallinu í V.-Wales ér
lokið, og annarsstaðar fara æ
fleiri ngmamenn til vinnu.
★
Maður að nafni Job, brezkur
þegn af þýzkum ættum, hefir
verið tekinn af lífi fyrir njósn-
ir í Bretlandi — 14. njósnarinn,
sem er líflátinn þar.
★
Spænska dómsmálaráðuneyt-
ið hefir nú birt skýrslu, þar sem
það ásakar lýðveldisstjórnina
spænsku um að liafa lálið drepa
85.000 manns í borgarastyrjöld-
inni.
Háskólafyrir-
lestur á frönsku.
Miðvikudaginn 8. þ. m. flutti
frú de. Brésé fyrsta fyrirlestur
sinn í liáskólanum fyrir .miklum
fjölda áheyrenda. Hann fjallaði
um Guy de Maupassant, en sá
rilhöfundur er einna kunnastur
Islendingum allra franskra rit-
höfunda.
I gær flutti frúin annað erindi
sitt. Að þessu sinni um franskt
skáld, er menn þekkja fremur
lílið til liér á landi, Charles
Péguy. Þessi afreksmaður á
sviði andans er mjög ofarlega nú
i hugum þeirra, sem berjast fyr-
ir frelsi og endurreisn Frakk-
lands, því að liann ber í brjósti
brennandi ættjarðarást og féll
sem hetja í hinni rómuðu or-
ustu við Marne í upphafi fyrri
heimsstyr j aldarinnar.
Miðvikudaginn 22. þ. m. mun
frú de Brésé flytja þriðja fyrir-
lestur sinn. Mun liún þá taka til
meðferðar nútímaskáldskap
Frakka.
Byggðahverfi á
Fljótsdalshéraði.
Fundur skólamanna á Fljóts-
dalshéraði sem haldinn var að
Eiðum 3. og 4. marz s.l. ræddi
um stofnun heimavistarskóla á
Iléraði og taldi þörf á, að koma
þar upp 2—4 slíkum skólum.
Akveðið var að hefjast þegar
handa um fjársöfnun til að
koma þeim upp.
Meðal annara mála, sem
rædd voru á fundinum var
stofnun byggðahverfis og kaup-
túna á |Héraði og var skorað á
skipulagsnefnd bæja og sveita
að liraða undirbúningi þessa
máls sem mest.
Umf. Reykjavíkur.
Aðalfundur sá, er halda átti sið-
astl. febrúar, en þá féll niður, verð-
ur haldinn á föstudagskveldið, 17.
þ. m., í baðstofu Iðnaðarmanna kl.
8 y2.
Tveir menn
voru í gær dæmdir í lögreglurétti
Reykjavíkur fyrir þjófnað. Annar,
Hafliði Sigurbjörnsson, var dærnd-
ur i 3ja mánaða fangelsi, en hinn,
Guðm. Ó. K. Söring, í 45 daga
fangelsi. Höfðu báðir verið dæmdir
fyrir samskonar afbrot áður, og
voru þeir sviptir kosningarrétti og
kjörgengi.
Góður afli á Suður-
nesjabáta,
Slæmar horfur á
a.ð lína fáist í
Bretlandi.
*
J Vestmannaeyjum er nú
mokafli, svo að ekki
hefir í annan mund verið
meiri veiði við Eyjar í
manna minnum, ekki einu
sinni í hlutfalli við magn
veiðarfæra.
I fyrradag var landað á 6.
hundrað smál. af fiski i Vest-
mannaeyjum, og er það meira
en nokkuru sinni hefir komið
þar á land á einum degi áður.
Mest hefir verið landað þar um
475 smál. áður, en það var
dagana næst á undan. Suður
með sjó er einnig mokafli.
Tiðindamaður Vísis í Eyjum
skýrði blaðinu frá því, að fisk-
urinn vaði þar upp við land-
steinana og enda þótt aflinn sé
mestur á linu, veiða togbátarn-
ir einnig mikið.
Litlir bátar, sem skreppa út
að kveldinu og eru 1—2 klst á
sjó, hafa komið inn með hátt á
annað liundrað pund af fiski.
Mokafli í Grindavík.
1 Grindavík er svo mikil veiði,
að elztu menn muna ekki ann-
að eins, og var þó tregur afli
fyrst framan af vertíðinni. Eft-
ir fiskihrotuna, sem kom í vik-
unni sem leið, var talið að afl-
inn, sem þá var kominn á land
í Grindavík, væri um V2 millj.
króna virði. Og nú stendur önn-
ur veiðihrota yfir. Er aðallega
veitt í net um þessar mundir og
aflinn svo mikill, að bátarfiir
verða að fara tvær ferðir með
aflann í land — ná ekki nema
helmingnum af aflanum úr net-
unum í einu.
Súðurnesin.
Fréttaritari Vísis i Keflavik
símaði blaðinu í morgun, að
gæftir hefði verið góðar undan-
farna daga og verið róið dag-
lega. Til þess að geta það, hafa
bátar þó orðið að stytta línu
sína. Afli hefir verið með bezta
móti og er þeim mun verra, að
ekki er hægt að hagnýta sér liin
góðu veiðiskilyrði til hlitar.
Hæsti bátur í Keflavílc í gær
var með 37 skippund og ýmsir
voru ekki langt fyrir neðan það.
Fiskurinn er ýmist fluttur út í
ís eða lagður i frystihúsin. Starfa
þau dag og nótt, en nú er svo
komið, að þau eru að verða al-
veg fuíl. Stafar það af þvi, að
meiri fiskur hefir verið lagður
inn hjá þeim undanfarið en áð-
ur, þar sem kjöt var tekið til út-
fllútnings í fislrfökuskipin og
var þvi ekki rúm fyrir fiskinn.
Slæmar horfur
með veiðarfærin.
Vísir fékk þær upplýsingar hjá
Viðskiptaráði í morgun, að horf-
ur væri slæmar á því, að hægt
| mundi að fá línu frá Bretlandi
j til að bæta tjón það, sem varð
i ofviðrinu á dögunum. Mun
að líkindum útilokað að fá tjón-
ið bætt. Bera Bretar því við, að
þeir hafi sjálfir eldd of mikið af
j hampi.