Vísir - 25.04.1944, Blaðsíða 2
VISIR
I
Þing' Slysavarnafélag:§ins hvetnr
eindregið til aðgerða
í öryggÍKiiiáluiiiilii.
Alit öryggismálanefndar
þingsins.
Á þingi Slysavarnafélags ís-
lands, sem nýlega hefir lokið
störfum, var starfandi öryggis-
málanefnd. /
Nefnd þessi hefir skilað frá
sér áliti um öryggismálin i 15
atriðum og fer það mjög í þá
átt að hvetja til aukinna öryggis-
ráðstafana fyrir sjófarendur og
fiskimenn. Að öðru leyti er
nefndarálitið mjög samhljóða
þeim kröfum, sem gerðar hafa
verið hór í blaðinu um þessi
mál.
Nefndarálitið er svoliljóðandi:
1. Að verja á þessu ári nægj-
anlega miklu fé til skipaeftir-
litsins 'svo að það liafi nógu
starfsliði á að skipa til að full-
nægja þeim skyldum, sem því
ber að inna af hendi og eru
Iagðar því á herðar.
2. Að fjórðungseftirlits-
mennirnir verði launaðii” þann
veg að þeir geti gefið sig óskipta
að starfinu.
3. Að skipaeftirlitið fái í
þjónustu sina sérfróðan mann í
skipabyggingum og þá hæfustu
menn með sjjómennskuþekk-
ingu, sem völ er á, til þess að
framfylgja lögum og reglum i
þessum efnum og hæfilega
marga gæzlumenn, er fylgist
með hleðslu, öryggi og útbúnaði
skipanna víðsvegar um landið,
enda hafi þeir þessi störf að að-
alstarfi.
4. Að lög um skipabygging-
ar og skipaeftirlit séu endur-
skoðuð með það fyrir augum
að tryggt sé að nýbyggingar og
sérhverjar breytingar á eldri
skipum, fái beztu fáanlega at-
hugun sérfróðra manna, og það
tryggt a& byggingar og breyting-
ar á skipum séu ekki hafnar fjrrr
en skrifleg umsögn þeirra ligg-
ur fjrrir. >
5. Að flokkun á skipum, sér-
staklega þeim eldri, sé aldrei
dregin fram yfir lögskipaðan
tíina, og yfir tímabilið sé skipið
vandlega athugað og leitað um-,
sagnar skipshafnar um hvort
nokkrar veilur í bol eða vél
skipsins hafi komið í ljós, og
fullt tillit sé tekið til umsagnar
þeirra í þessu efni, en fullkom-
lega tryggt að þeir missi einskis
i, ef upplýsingar þeirra eru á
rökum byggðar.
6. Að fullkomin rannsókn
fari fram á nýbyggðum skipum
og hlutfallinu milli yfirbygg-
ingar, bols og botnþunga skips-
in£ og þá tekið tillit til þess, að
þau eiga að stunda ferðir á fiski-
mið og landa á milli við þau
veðurskilyrði, sem þekkt eru
hér.
7. Að stækkanir á farmrými
togara séu þeim takmörkum
háðar að öruggt sé að þau hafi
nóg rúm fyrir forsvaranlegan
eldsneytisforða til ferða þeirra,
sem þeim eru ætlaðaivog örugg-
lega frá því gengið að rúm af
farmrýminu sé autt fremst í
skipunum, svo öruggt sé að
skipin liggi sem jafnast og séu
eliki ofhlaðin. Og fullt tillit sé
einnig tekið til þess að skipin
séu ekki vanhlaðin. Núgildandi
hleðslumerki séu ekki rýrð, þótt
um lokaðan hvalbak sé að ræða,
enda séu merkin svo ljós og á-
berandi að allir megi sjá þau.
Athugun fari fram á því hvort
ekki beri að hafa sumar- og
vetrarhleðslumerki. ,
8. Að framfylgja til liins
ýtrasta settum lögum og reglu-
gerðum um öryggi mannslífa á
sjónum svo og þeim reglugerð-
um er gilda um hleðslu skipa.
9. Að skipaeftirlitið noti
þann rétt, sem því er heimilt að
lögum, að heita viðurlögum án
nokkurrar vægðar eða tilhliðr-
unarsemi gagnvart þeim, sem
annað tveggja hrjóta eða snið-
ganga Iög og reglugenðir eða
fyrirmæli, sem skipaeftirlitið
hefir gefið.
10. Að forðast í lengstu lög,
að láta dæla úr botngeymum
slcipanna til þess að lélta þau
áður en þau leggja úr höfn til
útlanda.
11. Að sjá svo um að ávallt
sé nægilega mikið eftir um horð
í togurunum af togvírum þeirra
í Englandsfefðum til öryggis
mönnum og skipi á hafi úti, ef
skipið þarf hjálpar með eða til
hjálpar öðru skipi.
12. Að loftskeytamaður,
sem ekki hefir önnur störf á
hendi en þau er tilheyra loft-
skeytamannastarfi, sé ávallt um
borð í skipinu á fiskiveiðum eins
og lög mæla fyrir um á leiðum
milli landa.
13. Birting veðurfrétta fyrir
atvinnulíf landsmanna hefir um
langt skeið verið viðurkehnd
nauðsyn, en fyrst og fremst
■ ° (----
voru þær einn veigamesti þátt-
urinn í vörnum til öryggis fjrir
lífi manna á sjónum.
Nú á tímum liefir sjófarend-
um ekki gefizt kostur á veður-
fréttum, og liefir sú ráðstöfun
liaft í för með sér margvíslegar
afleiðingar. Síðustu atburði á
hafinu má að nekkuru rekja til
þess.
I’ingið skorar því á Alþingi
og ríkisstjórn að þau nú þegar
beiti sér af alefli fyrir því við
hernaðaryfirvöldin er dvelja í
landinu, að fá framgengt að út-
varpa megi á dulmáli veður-
fregnum til skipa og ver-
stöðva.
14. 2. Landsþing Slysavarna-
félags Islands samþykkir að
skora á næsla Alþingi að bréyta
37. gr. laga frá 11. júní 1938
um lög um eftirlit með skipum,
þannig:
Að auk sektarákvæða komi
réttindamissir á eftirfarandi
Iiátt: Fyrsta brot 3 mánuðir.
Annað brot 6 mánuðir. Þriðja
brot 12 mánuðir. Fjórða
brot ævilangt. Sömu viðui’-
lög gilda um yfirmenn skipa,
þegar þeir eru i starfi undir
áberandi áhrifum áfengis.
15. Um leið og jiingið æskir
hinríar fullkomnustu löggjafar
um allt það, er lýtur að öryggi
mannslifa á sjónum og ’fullkom-
ins eftirlits með því, að sú lög-
gjöf sé framkvæmd í einu og
öllu, þá er ljóst að fullur árang-
ur í þessu efni næst ekki nema
því aðeins, að sjómannastéttin,
sem lögin eiga að vernda, stuðli
að því eftir fyllsta mætti, að
gera sitt til að lialda í heiðri öll
þau bjargráð, sem fyrirskipuð
eru og aldrei að Ijá liðsinni sitt
til þess að sniðganga þau eða.
brjóta.
Um 30 þýzkar flugvélar
gerðu árás á Neapel á Ítalíu
í nótt. Nokkrar þeirra voru
skotnar niður.
Þrjátíu skip liggja í höfninni
i Trálleborg í Svíþjóð og kom-
ast ekki til Þýzkalands vegna
tundurduflahættu.
Félagar
í FerSafélagi Islancls eru vin-
samlega beÖnir að vitja Árbókar-
innar til Kristjáns O. Skagfjörðs
Túngötu 5. Skrifstofan verður op-
in kl. 8—10 í kvöld og annað kvöld.
Hafnfirðingar eru beðnir að vitja
hennar til Valdimars Long.
Scrutator:
QoAAvl GJhn&iwwys
Hafnarfjarðarbílar.
Hljómskálagarðurinn.
VÍSIR
DAGBLAÐ
Útgefandi:
BLAÐAtJTGÁFAN YÍSIR H.F.
Ritstjórar: Eristján Guðlaugsson,
Hersteinn Pálsson.
Skrifstofa: Félagsprentsmiðjunni
Afgreiðsla Hverfisgötu 12
(gengið inn frá Ingólfsstræti).
Símar: 1 6 6 0 (fimm Iínur).
Verð kr. 4,00 6 mánuði.
Lausasala 35 aurar.
Féalgsprentsmiðjan h.f.
Kauphækkun,
— vísitala.
JÓÐVILJINN getur þess
nýlega, að kaup verka-
manna liafi hækkað 22. febrúar
s.l. um 16,6%, en hinsvegar hafi
vísitalan aðeins hækkað um 3
stig frá því er hækkunin skall á.
Hafi kauphækkunin haft svo
sáralítil áhrif, ‘,,að ekki einu
sinni helmingurinn af þeirri
liækkun stafi af hækkun kaup-
gjalds“. Af þessu eru svo dregn-
ar þær ályktaríir, að kauphækk-
un hafi sama og engin áhrif g
vísitöluna, en jafnframt dáist*
blaðið að þvi hversu djúpa virð-.
ingu það beri fyrir staðreynd-
unum.
Vildi Þjóðviljinn hinsvegar
segja satt og rétt frá, myndi
blaðið einnig geta þess, að kaup-
liækkun sú, sem lcom til fram-
kvæmda 22. febrúar s.l., hefir
enn ekki haft nein teljandi á-
hrif af þeim sökum, að fyrir-
tæki þau, sem kauphældcunina
verða að greiða, hafi ekki fengið
heimild tjl samsvarandi hækk-
unar til viðskiptavina, og verða
sjálf að bera hækkunina alla,
hversu Iengi, sem þeim reynist
kleift að standa undir henni.
Kauphækkunin mun hinsvegar
segja til sín á komanda hausti,
með því að landbúnaðarafui’ðir
hljóta að hækka yerulega sök-
um hækkandi kaupgjalds, en þá
mun vísit^Ian einnig sýna hverj-
ar afleiðingar kauphækkunin
hefir, og hækkunin þá fyrst
bitna með fullum þunga á neyt-
endum. Er því ofsnemmt að
hrósa sigri í Jiessu efni, og vilji
menn bera virðingu fyrir stað-
reyndum og rökum, eins og of-
angreint blað segist gera, mætti
það einnig taka þetta með í
reikninginn. AHt fleiprið um á-
hrifaleysi kauphækkana á vísi-
tölunai liefir ekki við rök að
styðjast, enda leggur enginn
heilvita maður eyru að sliku.
Hér í blaðinu var lagst á móti
aukinni kaupslreitu, er Dags-
brún reið á vaðið í þvi efni upp
úr áramótunum, meðal annars
af þeim sökum, að af því myndi
leiða að önnur fagfélög myndu
fara inn á sömu braut. Þess var
einnig skammt að bíða að sú
yrði raunin. Iðnaðarverkamenn,
bifreiðarstjórar og ef til vill
fleiri hafa ekki látið standa á
sér, og sett fram kröfur um
kauphækkun. Af því leiðir, að
sennilegt er að þær iðngreinir,
sem ekki fá lieimikl lil aðliækka
framleiðsluverð sitt, hljóta að
stöðva rekstur sinn, með því að
iðnfyrirtækin geta fæst bætt
verulegum þunga á sig í auknum
kaupgreiðslum eða auknum
framleiðslukostnaði, án þess að
hækka verð framleiðslunnar.
Af þessu hlýtur óhjákvæmilega
að leiða atvinnuleysi í einstök-
um iðngreinum eða iðnaðinum
öllum, en einmitt það bölið
þykjast niðurrifsmennirnir
vilja forðast í lengstu lög og
gera um það allskyns samþykkt-
ir á samkomum sínum. Fyrir-
liyggjuleysið og skammsýnin
ríða þar ekki við einteyming, ef
vel væri meint, en fullur grunur
leikur á, að hér sé um grátt
gaman að ræða, sem miðar fyrst
og fremst að niðurrifinu til þess
jr •„ c- ^ ’ .J
*» • _r • v. ...... -jtr-v-
að skapa frjórri jarðveg fyrir
kommúnismann. Hann fær eng-
in skilyrði til að þrífast fyrr en
eymdin segir til sin< meðal alls
þorra manna, — þegar sparifé
almennings er annaðhvort upp-
étið eða gert einskis virði með
gildisrýrnun krónunnar.
Það kann að láta vel í eyrum
slcammsýnna manna, að kaup-
hækkanir hafi engin ''ahrif á
vísitöluna eða afkomu einstakra
atvinnugreina, en slikt er ömur-
legasta blekking, sem raunin
mun sanna á sínum tíma. Para-
dís heimskingjans er engin
Paradis. Kommarnir lifa þar að
vísu góðu lífi, en jafnvel þeir
munu á sínum tíma sannfærast
um að barátta þeirra verður
hvorki þeím né öðrum til bless-
unar. Atferli þeirra allt minnir
á gráðugar engisprettur, sem
eyða öllum jarðargróðri sér til
lífsviðurværis, en þegar hefja
skal ræktun að nýju, kann að
reynast að víðar spretti ekki
gras en þar, sem hófar hests
Attila Húnakonungs snertu jörð
á sinum tíma.
«
Það er óskemmtilegt að ferðast
milli Hafnarfjarðar og Reykjavík-
ur. Samgöngr þessar voru komn-
ar í ágætt horf fyrir nokkrum ár-.
um. Bílakostur var nægur, og
sæmilega fór um farþegana. En
pp á síðkastið e rtroðiÖ svo i bil-
ana, að á stundum nær ekki nokk-
rri átt. Mér rhafa borizt ýmsar
kvartanir þess efnis að stundum
sé allt að þvi tvísett í bílana, þegar
þeir fara af stað, en siðan sé að
jafnaði reynt að troða inn í þá
þeim vegfarendum, sem bíða úti
á víðavangi. Enginn farþega mun
amast við því, þótt einstakir far-
þegar séu ekki skildir eftir, enda
munar minnst um þá. Hitt er miklu
lakara, að á endastöðinni í Hafnar-
firði og' Reykjavík sé ekki gerð
tilraun til að takmarka töllu .far-
þega. En til þess þyrfti að koma
upp biðkerfi við áfangana, þannig
að þeir, sem fyrstir koma, fái fyrstu
ferð. Það eru þrjár stöðvar, sem
reká þessa flutninga, Áætlunarbíl-
ar Hafnarfjarðar að hálfu og
Steindór og BSR að Vi hvor. Þess-
ir aðilar ættu 'að geta komið sér
saman um eftirlit á helztu áfanga-
stöðvum, og mætti sameina það
við farmiðaeftiflit. Samgönguleið
þessi er svo þýðingarmikil og fjöl-
farin, að gera verður fyllstu kröfu
til þess að áætlunarferðirnar séu
vel og tryggilega ræktar.
Hljómskálagarðurinn var einu
sinni uppáhalds-athvarf Reykvík-
inga Nú er hann að verða bílastæði.
Framþróunin lifi. Á þriðjudags-
kvöldið höfðu tveir bilstjórar gert
sér lítið fyrir og „parkerað" bílum
sínum í aðal-skemmtigarði bæjar-
ins. Þegar eg gerði athgasemd um
það í fyrravor, að Sóleyjargatan
væri breikkuð á kostnað garðsins,
var eg fullvissaður um, að allt
mögulegt yyrði gert til að bæta
þann skika upp, sem garðinm tap-
aðist. Ojæja. Girðingin hefir ekki
einu sinni verið endurreist. Allt
situr við sama, og garðurinn er
bráðm orðinn flag, þar sem ekki
verður ein sinni hægt að leggja
bílum. — Svo er vgrið að rífa upp
skárst hríslurnar í Bjarkagarðin-
um og klessa verkfæraskúrum á
skárst blettina. Þetta er sjálfsagt
allt gert í bezta tilgangi og víst
ekki tjaldað nema til nokkurra
daga. En það er vandalast að spá,
hvernig að lokurn fer, ef áfram á
að ríkja sama árvekni og fram-
kvæmdasemi. ,
Nota bene —
í blaðstjórn Tímans eiga Her-
mann og Jónas sína fjóra hvor.
Oddamaðurinn ákveður hvaða blöð-
um sé brennt.
1 tíma og ótíma
ísak ísax
Slökkviliðsst j óri.
Dagsbrún kaupir land
í Biskupstungum.
Á fundi Verkamannafélags-
ins Dagsbrúnar sem haldinn
var nú nýlega, voru samþykkt-
ar nokkrar tillögur, meðal ann-
ars ein um að fela stjórn fé-
llagsins að óska eftir því að
Fulltrúaráð verkalýðsfélag-
anna höfði mál til riftingar
sölu á eignarhluta félagsins
í eignum þeim er afhentar
voru Alþýðuhúsi Reykjavík-
ur li.f. 12. ágúst 1940. Önnur
tillaga, sem miðaði að þvi að
fá sannprófaða fyrir dómstól-
unum ráðstafanir fulltrúaráðs-
ins „vegna þess rógs, sem upp
hefir komið í sambandi við
ráðstöfun þessara eigna“ var
félld með öllum greiddum at-
kvæðum nema tveimur.
Fundurinn samþykkti enn-
fremur samning 'stjórnar fé-
lagsins um kaup á landsspildu
úr landareign jarðarinnar
Stóra-Fljóts í Biskupstungum.
Ennfremur samþykkti fundur-
inn að kjósa nefnd til að vinna
að allsherjar þátttöku Dags-
brúnarmanna í þjóðarat-
kvæðagreiðslunni um lýðveld-
isstofnunina.
KARLAKÓRS REYKJAVÍfíUR.
—o— \
%
Kórinn er húinn að syngja
tvisvar sinnum í Gamla Bíó
fyrir fullu lmsi og við góðar
viðtökur. Á efnisskránni voru
12 lög, þar af lielmingurinn ís-
lenzk. Er jafnan gott til þess að
vita,' að íslenzkum lögum er
sýnd ræktarsemi, enda þótt sum
lögin hafi verið þannig úr garði
gerð, að þau munu tæplega
auka við frægð liöfundanna.
Öðru máli er að gegna um Iag
Inga T. Lárussonar „Nú andar
súðrið“, sem er viðfeldið og
fellur vel að texta, og ekki síður
hið tilkomumikla sönglag Sig-
fúsar Einarssonar „Island* 1*, sem
var síðasta lagið á söngskránni
og bar í tign og alvöruþunga af
öllu þvi, sem kórinn söng, svo
mér liggur við að segja, að það
hafi risið eins og tindur upp af
jafnsléttu léttrar tóniistar, þar
sem það kom í röðinni, því satt
að segja, þá var söngskráin með
fullléttum brag, rétt eins og
lögin hafi verið valin með það
fyrir augum, að þau gengju í
fólkið eins og vatn. Er þó í
sjálfu sér ekkert víð þvi að
segja, að lögin séu valin með
gleðibrag, ef þau eru sungin
eftir listarinnar reglum. En það
vill alltof oft brenna við hjá
kórunum okkar, að söngurinn
verður litið meira en það, að
lagið er tekið og drengilega sé
sungið með sæmilega góðum
samtökum, en söngurinn nái
ekki því stigi, að um listræn til-
þrif sé að ræða. Það verður að
gera sömu kröfur til karlakórs-
söngs og annars listflutnings,
að liann sé listrænn. Meðferð
Karlakórs Reykjavíkur á mörg-
úm lögunum i þetta sinn gefur
mér tilefni til að minnast á þetta
hér og nægir að vitna í Strauss-
lagið „Ferðalag“ og Schuberts-
lagið „Murtuna“ þessu til sönn-
unar. Hinsvegar náði söngur-
inn listrænum tilþrifum í lagi
Björgvins Guðmundssonar „Þei,
þei og ró, ró“, svo og áður-
nefndu lagi Sigfúsar Einarsson-
ar og fleiri lögum. Sigurður
Þórðarson hefir marga góða
kosti, sem söngstjóra prýða, en
stundum fatast honum listin,
vegna smávægilegrar óná-
kvæmni hvað hljóðfall og
þungaáherzlu snertir, sem -þó
eru nægilegar til þess, að hinn
bezti ár.angur næst ekki.
Karlakór Reykjavíkur hefir
ágætan raddkost, svo sem al-
kunnugt er, þó hafa tenórradd-
irnar áður verið betri, og mun
það liafa stafað af fjarveru
nokkra góðra söngmanna. Einar
lÓIafsson söng einsöng í laginu
„í dr.ykkjukránni“. Hann hefir
hljómfagra og viðfeðma bassa-
rödd og fékk ágætar viðtökur.
Ilaraldur Kristjánsson söng ein-
söngshlutverkið í laginu „Nú
andar suðrið“. Hann liefir fagra
barítónrödd og gerði lilutverki
sínu hin beztu skil, svo)að end-
urtaka varð lagið. Fr. "Weiss-
liappel lék undir á slaghörpu í
nokkrum lögum, vel að vanda.
B. A.
Bœjop
fréiiír
Útvarpið í kvöld.
Kl. 20,30 Erindi: Saga kolanna
og stórveldin (dr. Jón Vestdal). •—
21,05 Tónlistarfræðsla fyrir ung-
linga (Guðmundur Matthíasson
kennari). 21,45 Fréttir. Dagskrár-
lok.
Bridg’efélag Iteykja;víkur.
Spilað verður í kvöld kl. 8 í húsi
V.R., Vonarstræti 4.
Leikfélagið
og Tónlistarfélagið sýna Pétur
Gaut annað kvöld og hefst sala
aðgöngumiða kl. 4 í dag.
Stúlka
óskar eftir hérbergi. Hús-
hjálp eða saumaskapur getur
komið til greina. — Uppl. i
sirría 4557.
Nýtt golftep,
1
stærð 3,65x3,15 mtr., til
sölu Hverfisgötu 75. — Verð
2700,00 krónur.
2 herbergi
og eldhús,
»
eða aðgangur að eldhúsi, ósk-
ast í Reykjavík eða Hafnar-
firði frá 1. maí tíl 15. sept.
Tilboð leggist inn á afgr. Vís-
is, merkt „Sumaríbúð“ fyrir
28. þ. m.
Ágætur
garðáburður
fæst til afgreiðslu nú þegar.
FISKIMJÖL h.f.
JUafnarstræti 10.
Sími 3304.
Háilitun
Peimanent
með útlendri olíu.
Snyrtistofan P E R L A
Vífilsgötu 1 .
Sími 4146.
HeibeigL
Undirritaður óslcar eftir að
fá leigt gott herbergi frá 14.
maí. Ars fyritframgreiðsla,
cf óskað er.
Kristinn IJ. Briem.
Sírni 5033.