Vísir - 07.06.1944, Blaðsíða 3

Vísir - 07.06.1944, Blaðsíða 3
VISIR Aðeins 3 sölu dagar eftir í 4. flokki. Happdrættið. r Jón Ólafsson fyrxv. dyravörður Menntaskólans í Reykjavík I andaðizt liinn 30. f. m., rúmlega 82 ára að aldri og verða jarð- neskai' leifar lians til moldar bornar í dag. Hann var fæddur að Vetleifs- holtsparti í Holtalireppi hinum forna hinn 10. apríl 1862 og ólst hann þar upp til tvítugs- honum áður og aðkomnir úr fjarlægum sveituxn. Þessir menn, og þeir eru eigi fáir, munu minnast þessa hollvinar síns með aðdáun og þakklæti; þeir vita bezt, hversu xnjög hann lét sér ant um að hjálpa þeim, livetja þá til dugnaðar og dáða, svo að þeir yrðu góðir og nýtir menn, enda er það saaanreynd, að þeir urðu það. —- Óskandi væri að vor litla þjóð ætti ávallt mörgum slíkinm og þvílikum mönnum á að skipa í hvaða stöðu sem er, sem þessi trúverðugi þjónn hennar, Jón Ólafsson, reyndist ávallt vera ®g var alla hina löngu og láni prýddu ævi sína. Blessuð sé minníng lians! Reykjavik, 7. júní 1944. Jón Pálsson. .aldm's hjá foreldrum sínum, ólafi Jónssyni og Margréti Jónsdóttur, er þar bjuggu. Síð- an stundaði Jón ýmsa algenga vinnu hér og þar, sjómennsku og sveitastörf, hjó búi sínu á ýmsum stöðum eystra, kvæntist þar myndarlegri og dugandi stúlku, er Björg hét, Héróný- umsdóttir frá Smádalakoti og eignuðust þau tvo mannvænlega sonu, Ólaf Ilelga, lcaupm. í Hafnarfirði og Þorlák, skrif- stofustjóra Ráðningarstofu Reykjavíkurbæjar. í þeirra skjóli var hann nú, hinn síðasta hluta ævi sinnar. Hin langa ævi þessa mæta og megingóða manns, Jóns Ólafs- sonar var að ýmsu leyti merki- leg: Hann var eigi einungis við- urkenndur sem einn hinn ágæt- asti og ötulasti verkamaður, að liverju sem liann gekk, heldur og hinn þegnhollasti þjónn hús- hænda sinna, sí-úðrandi og uppörfandi samstarfsmaður, samvinnuþíður og sífelt glaður. Var hann því eftirsóttur mjög til allrar vinnu og honum oft verkstjórn falin á mannmörg- um myndarheimilum, m. a. hjá hinum ágætu hjónum, Sigurði Ólafssyni sýslumanni í Kaldað- arnesi og lconu hans, frú Sigríði Jónsdóttur. Um nokkurra ára skeið var Jón Ólafsson dyravörður Menntaskólans í Reykjavik og naut hann þar verðugrar hylli kennara og nemenda hinnar virðulegu fræðslustofnunar þjóðarinnar, sem einn hinn liprasti og reglusamasti maður í þeirri stöðu, sem öllum öðrum. Góðvild Jóns Ólafssonar í garð húsbænda sinna og samverka- manna var sönn fyrirmynd; ánægja hans og aðal-umhugs- unarefni var ávallt það, að aðrir menn, frekar en hann sjálfur, mættu njóta alls hins bezta á- vinnings af orðum hans og gjörðum; þar var aldrei um neina augnaþjónustu að ræða, hlédrægni neina né hlifð við sjálfan sig, heldur dæmafáa trú- mennsku og trygðfasta örygð um, að allt það, sem hann gerði eða átti að sjá um að gert væri, mætti vera sem bezt af hendi leyst, til hagsmuna þeim, er þess áttu að njóta, húsbændunum og heimilinu, sem liann vann fyrir; eiginhagsmuni sjálfs hans lét hann sér því oftast í Iitlu rúmi hggja. Ungum mönnum og um- komulitlum, er tii hans leituðu var hann leiðbeinandi mjög og lét sér velfarnan þeirrá sig miklu skipta, þótt ókunnir væru Boðhlaup Ármanns. Sjötta boðhlaup Ármanns umhverfis Reykjavík fer fram n. k. föstudagskvöld kl. 9. Hlaupið átti að fara fram í kvöld, en varð að fresta því vegna kappleiks milli Vals og Víldngs. Vegalengdin, sem hlaupin er, er tæpir 7 km., og skiptist í hlaupalengdir þannig: 8x150 m., 2x200 m., 1x400 m., 2x 800 m„ 1x1500 m. og 1x1675 metrar. 15 keppendur eru í hverri sveit og sveitirnar eru fjórar, tvær frá ÍR, ein frá Armanni og ein frá KR. Alls 60 manns. 1 fyrra vann Ármann Alþýðu- blaðshornið, sem um var lceppt, til fullrar eignar, en nú er keppt um nýjan bikar, sem Alþýðu- blaðið gaf einnig og vinnst hann á sama hátt og hinn, þrisvar sinnum í röð eða fimm sinn- um alls. Hlaupið hefst á Iþróttavellin- um og þar lýkur þvi einnig. fréttír Trúlofun. Á hvítasunnudag opinberuðu trú- lofun sína ungfrú Sigrún Sigurð- ardóttir, starfsstúlka í Laugavegs- apóteki og Guðmundur Guðmunds- son sjómaður, Bárugötu 29. Garðyrkjuritið, árið 1944, er nýkomið út, fjöl- breytt að efni. Ritstjóri ér Ingólfur Davíðsson grasafræðingur. Á kápu er litmynd af íslenzka fánanum, en í ritinu er birt kvæðið „Fáninn“, skráð' eftir Ingólfi Davíðssyni og raddsett af Hallgrími Helgasyni. Nótnaútsetning er birt með kvæð- inu. Að öðru leyti er efni ritsins sem hér segir: Kartöfluaf brigði, val útsæðis, stöngulveiki (Klemens Kristjánsson). Gróðurhús — garð- yrkjunienning (Niels Tybjerg), Garðurinn á Bakka (Anna Sigurð- ardóttir), Garðrækt og manneldi (Jónas Kristjánsson), Grasblettur og limgerði (Ingólfur Davíðsson), Vetrargarðar — gróðurskálar (Ole P. Pedersen), Riddarastjarna (Am- aryllis) (Arnaldur Þór), Hortens- íur (August Möller), Trjágarðar (Bjarni F. Finnbogason), Melgras- ið (Gunnlaugur Kristmundsson), Gúrkukvillar (Ingólfur Davíðsson), Fræ og spirun (Ingólfur Davíðs- son), Hitt og þetta (Ing. Davíðs- sno). Molar (Niels Tybjerg), Frá Sölufélagi garðyrkjumanna (L. Boeskov), Frá Garðyrkjufélagi ís- lands (Ing. Davíðsson), Bjarka- Ijóð og blómavísur (Ing. Davíðs- son), Viðauki við félagatal (Ing. Davíðsson). , Happdrætti Háskólans. Athygli skal vakin á því, að dregið verður á laugardaginn í 4. flokki happdrættisins. Ættu menn að endurnýja strax í dag, til þess að missa eklri miða sina. Úrslit 2. fL mótsins urðu þau að Valur hlaut 4 stig, K.R. 2 stíg <og Fram ekkert stig. — Úrslit 3. flókks mótsins: Valur 5 stig, Fram 4 stig, K.R. 3 stig og l.R. ekkert stig. — Úrslit 4. fl. mótsins: K.R. 4 stig og Valur og Fram 1 ,stig. Silfurbrúðkaup. eiga i dag hjónin Sigurveig Magnúsdóttir og Karl Þorvalds- son trésmiður, Berðstaðastíg 61. Þjóðhátíðarnefndin hefir síma 1564 og 1130. Skrif- stofan er opin kl. 10—12 og 1—7 e. h.. Þing’vallaferðir. Bifreiðastöð íslands mun í sum- ar annast áætlunarferðir til Þing- valla. Hefir bifreiðastöðin fengið sérleyfi til mannflutninga þangað austur til þriggja ára. — Ferðir verða fyrst um sinn tvísvar á dag til og frá Þingvöllum, alla daga vik- unnar, nema laugardaga og sunnu- daga, þá eru ferðirnar fjórar. Hjónaband. 1 dag verða gefin saman í hjóna- band af síra Bjarna Jónssyni vigslu- biskup, ungfrú Guðlaug Karlsdótt- ir Bergstaðastíg 61 og Karl ' Ó. Sölvason. Heimili ungu hjónanna verður við Samtún 22. Næturlæknir: Slysavarðstofan, sími 5030. Næturvörður: Lyfjabúðin Iðunn, Laugavegi. Útvarpið í kvöld. Kl. 20.30 Útvarpssagan: (Helgi Hjörvar). 21.00 Hljómplötur: Is- lenzkir einsöngvarar og kórar. 21.15 Erindi: Hrakningar í Seley (Ás- mundur Helgason frá Bjargi. — fBijaJrni! \'J.lhjáífnsson cand. mag. flytur). 21.35 Hljómplötur: Út- skþfun Fausts eftir Berlioz. Næturakstur: Hreyfill, simi 1633. Leiðrétting’. 1 viðtali við Ingvar Vilhjálmsson útgerðarmann í gær hafa orðið tvær meinlegar prentvillur. Á ein- um stað segir að 4 menn hafi unn- ið við hraðfrystihúsið, á að vera 40 menn. Síðar í greininni hafa orðið línuskipti í heilum lcafla. Kaflinn á allur að vera svohljóð- andi: Bátaútvegurinn veitir tiltölu- lega mörgum mönnum vinnu. Auk þess er bátaútvegurinn frumskil- yrði fyrir að unnt sé að reka nokk- urn verulegan fiskiiðnað. Allt bendir til að hæglega megi reka útgerð héðan á landróðrabát- um til mikils stuðnings fyrir at- vinnulífið í bænum, samkvæmt reynslu minni frá í vetur, þótt að vísu verði að taka tillit til að ó- venjulega aflaðist á síðustu vetr- arvertíð. Hinsvegar verður að gera ráð fyrir að einhvern tíma takist að lækka verðbólguna það mikið að það gæti vegið nokkuð upp á móti þótt minna aflaðist. — Um afla Jóns Þorlákssonar segir 538 þús. kr„ en á að vera kg. Áætlonarfertom til Þiogvalla verður fyrst um sinn hagað þannig: Frá Reykjavík alla mánud., þriðjud., miðvikud,, fimmtud. og föstudaga M. 10 og 18,30. — Þingvöllum sömu daga M. 14 og 20,30. — Reykjavík laugardaga og sunnudaga kl. 10, 13,30, 18,30 og 21,30:. — Þingvöllum sömu daga M. 11,30, .17,30, — 20—23. Blfreiðastöð íslands. — Sími 1540. Fimm íslenzk systkini í herþjónustu. „Heimskringla“ birtir nýlega myndir af fimm íslenzkum systkinum, sem eru nú í her- þjónustu í Canada. Foreldrar þessara fimm mannvænlegu ungmenna, eru þau Sigurþór Sigurðsson frá Svignaskarði (síðar á Rauða- mel) í Rorgarfjarðarsýslu, og kona lians María Eiríksdóttir, fædd í Reykjavik, en ættuð úr Árnessýslu, og sem nú búa að 594 Alverstone St„ Winnipeg, Man. Systkinin eru þessi: Thor Sigurðsson. Innritaðist í fluglið Canada í maí 1941. Jóliann Sigurðsson. Innritað- ist í flugher Canada í marz 1942. Hann fór til Englands í maí 1943, og tólc sinn þátt í flugor- ustum, þar til hánn féll 29. febrúar 1944. Þórður Sigurðsson. Innritað- ist í flugher Canada í september 1940, og er nú kennari í firðrit- un í Calgary, Alta. Guðni Sigurðsson. Innritaðist í flugher Canada í nóvember 1942. Er nú í þjónustu flughers Canada á Englandi. Rikka Sigurðsson. Innritaðist í fluglier Canada í september 1943 og vinnur nú á skrifstofum flughers Canada, í Arnprior, Ont. Auk þeirrafimm, sem að ofan er getið eiga þau hjónin þrjár dætur, eru tvær þeirra giftar mönnum í flug-herþjónustu Canada, en sú yngsta, sem enn er á unga aldri, dvelur í for- eldrahúsum. Silfurbrúðkaup eiga i dag hjónin GuSríSur Jóns- dóttir og Kristján Á. Ágústsson prentari, öldugötu 2. Cl vantar til aö bera VÍSI um Kleppisholt Dagblaðið TÍSlIt TILKYNNING. Hefi opnað skrifstofu í hermannaskála við Eiríks- götu, gegnt Listasafni Einars Jónssonar. Venjulegur viðtalstími frá kl. 10—12 f. h. Sími 4944. Skúli Thorarextsen. Tilkynning til hluthaía Útvegsbanka Islands h/L < X \ "V -'A m ■"% m •«fc. Samkvæmt ákvörðun aðalfundar verður greiddur 4% arður af hlutabréfum bank- ans fyrir árið 1943. Arðurinn verður greiddur í skrifstofu bank- ans í Reykjavík og útibúum hans, gegn af- hendingu arðmiða fyrir nefnt ár. Útvegsbanki íslands h/L Arður til hluthaía /Á aðalfundi félagsins, þ. 3. þ. m., var sam- þykkt að greiða 4% — 4 af hundraði — í arð til hlutahafa fyrir árið 1943. Arðmiðar verða innleystir á aðalskrifstofu félagsins í Reykjavík og á afgreiðslum fé- lagsins úti um land. H/í Eimskipafélag íslands. EIKARSKBIFBOBÐ fyrirliggjandi. Trésmíðavinnustofan Mjölnisholti 14. — Sími 2896. S. I. B. S. vantar ráðskonu % m; til að standa fyrir mötuneyti að Reykjum í sumar. Uppl. á skrifstofu sambandsins, Lækjargötu 10 B frá kl. 2—4 næstu daga. Jarðarför frú Þorbjargar Möller, fer fram frá Dómkirkjunni föstudag 9. þ. m. Athöfnin hefst kl. 1,30 með bæn, frá Garðastræti 44. f. h. aðstandenda Jóhann G. Möller. Faðir okkar og tengdafaðir, Sigurþór Ólafsson, verður jarðsunginn að Odda föstudaginn 9. júní. Athöfnin. hefst að Lambhaga kl. 11 fyrir hádegi. Röm og tengdabörn. Bílar fara frá Bifreiðastöð Reykjavíkur. Farmiðar sækist daginn áður.

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.