Vísir - 10.06.1944, Side 1
Ritstjórar:
Kristján Guðlaugsson
Herstelnn Pálsson
Skrifstofur:
Félagsprentsmiðjan (3. hæð)
Ritstjórar
Blaðamenn Stmii
Auglýsingar 1660
Gjaldkeri 5 linur
Algreiðsla
34. ár.
Reykjavík, laugardaginn 10. júní 1944.
129. tbl.
Hjálp Svía við
Norðmenn,
108.000 börnum og
gamalmennum séð
fyrir mat.
Svícir geta- ekki veitl Norð-
mönnum allaþá hjálp, sem þeir
villa.
Þetta var upplýst í sænska
þinginu fyrir 'skömmu, þegar
þingmaður gerði um það fyrir-
spurn, hvernig hjálpinni væri
hagað. Axel Gjöres, birgða-
málaráðherra, gerði grein fyr-
ir afstöðu stjórnarinnar og
skýrði frá því m. a., þegar
gjafabögglar hafi verið sendir
til Noregs, án þess að leitað
væri samþyþkkis bandamanna
fyrirfram, þá hafi komið fyrir,
að það hafi haft áhrif á inn-
flutningsleyfi, sem bandamenn
veita. Bandamenn eru alltaf
hræddir um það, að hjálpin
muni verða til að létta á skyld-
um Þjóðverja við Norðmenn.
Um þessar mundir sér sænska
hjálparstafsemin fyrir mat
handa 108,000 norskum börnum
og gamalmennum. Auk þess
voru sendir til útlanda frá Sví-
þjóð á síðastl. ári 217,000 mat-
vælabögglar, tæplega 100,000
fleiri en 1942.
Skriðdrekar ÞJoðrerja inegfna ekki
að §töðra Siersveltlr bandamaima.
Hundrað þýzkar
herdeildir í
Frakklandi,
segir sviss-
neskt blað.
Fjölgar á svarta lista
Bandaríkjanna.
Tvö hundruð og eitt fyrirtæki
í hlutlausum löndum hafa verið
sett á svartan lista í Bandaríkj-
tinum að undanförnu.
Flest þeirra eru i Finnlandi
og Spáni, 84 í fyrrnefnda land-
inu og 55 í liinu siðarnefnda.
Auk þess liafa 53 fyrirtæki í
Svíþjóð hætzt á svarta listann,
tíu í Tyrklandi og eitt í Iran.
Verzlunarráðuneyti Banda-
ríkjanna tilkynnti um jketta i
fyrradag og lót jafnframt í
Ijós mikla gremju yfir því, að
hinar hlutlausk þjóðir skuli
halda áfram viðskiptum sínum
við Þjóðverja.
Japanir nálgast
Changsa í Kína,
Japanir eru nú aðeins tuttugu
kílómetra frá Changsa, höfuð-
borginni í Honan-fylki.
Kinverjar hafa flutt miklar
birgðir af matföngum og her-
gögnum til borgarinnar, en íbú-
ana á brott — þá sem eftir
voru — og búast til varnar þar
af kappi. Halda Kínverjar uppi
tíðum gagnárásum á stöðvar
Japana, en fá þó ekki stöðvað
þá. —
I Myitkina liafa kínverskar
hersveitir unnið enn á.
Æðstu hershöfðingjar
í U.S. London.
Þrír æðstu herforingjar
Bandaríkjanna eru nú staddir
í London á ráðstefnu.
Þeir eru Harold King, yfir-
flotaforingi, Henry Arnold ýfir-
foringi flughers Bandaríkjanna
og George Marshall, yfirmaður
lierforingjaráðs Bandaríkjanna.
Boosevelt forseti hefir til-
kynnt þetta og þykir mega ráða
af tilkynningu hans, að þeir
muni hafa verið komnir til
London, þegar innrásin Iiófst
fyrir fimm dögum.
En herstjórnin þar vill
fá 50 að auki.
Wúrich-blaðið „Die Tat“
segir frá því í leiðara
sínum í gær, að það sé skoð-
un hernaðarsérfræðinga á
meginlandinu, að Þjóðverjar
hafi um 100 herdeildir í
Frakklandi.
En, bætir blaðið við, þar með
er engan veginn upptalinn allur
sá herstyrkur, sem Þjóðverjar
geta beitt gegn innrás banda-
manna i Evrópu, því að með
auknu herútboði um gervalla
álfuna hafa þeir getað stækkað
Iier sinn svo, að i hvorki meira
né minna en 300 herdeildir eru
til taks í Vestur-Evrópu.
Þriðjungur herdeildar þeirra,
sem er til innrásarvarna að
vestan, er vcl þjálfaður og
reyndur, en hinar deildirnar eru
lakari og sumar svo, að þær
verða ekki sendar til bardaga,
nema í nauðir reki.
Fimmtíu og tvær af herdcild-
unum í Frakklandi eru með
hinum hetri herdeildum Þjóð-
verja.
Meðalfjöldi hermanna i þeirn
100 herdeildum, sein eru i
Frakldandi, er talinn 11,000
menn, svo að þeir hafa þar á
aðra milljón manna.
Rommel vill
meira lið.
Die Tat segir ennfremur, að
Rommel hafi farið fram á það
við Hitler, at) hann fái til um-
ráða 50 herdeildir frá austur-
vígstöðvunum að auki. Telur
blaðið, að Rommel muni i raun-
inni mestu ráðandi í herstjórn-
inni í Frakldandi þótt Rundstedt
sé aðalmaðurinn að nafninu til.
Stafar þetta af því, að Hitler er
sagður hafa mest traust á
Rommel, enda er hann einú
hinna fáu háttsettu hershöfð-
ingja, sem eru í nazistaflokkin-
um.
Herstjórninni
margskipt.
Samkvæmt frásögn hins
svissneska blaðs, er herstjórn-
inni í Vestur-Evrópu skipt í
mörg herstjórnarumdæmi.
Þannig skiptist Frakkland og
Belgdía í tvö umdæmi, en
strendur Noregs, Hollands,
Danmerkur og Norðvestur-
Þýzkaland eru sérstök umdæmi.
4 japönskum tundur-
splllum sökkt.
Bandamenn hafa sökkt fjór-
um tundurspillum úti fyrir
ströndum N.-Guineu.
1 flotadeild, sem ráðizt var á
þarna, var auk ]æás beitiskip
og fimmti turidurspillirinn, en
þessi skip komust bæði undan.
Er álitið, að flotadeildin hafi átt
pð flytja liðsauka til japanska
setuliðsins á Biak-eyju.
Innrás hinum megln á hnettinum.
t:
Þessi mynd er tekin hinum megin á hnettinum, þv, að þar hefir innrás verið nærri daglegt brauð
undanfarið ár. — Myndin sýnir bandamenn ráðast á land á Admiralty-eyjum.
Þurrkuð síld.
Nýmæli í matar-
æði Breta.
I ræðu, seip matvælaráðherra
Breta hélt á þingi í gær, minnt-
ist hann á þurrkaða síld sem
matvöru.
Kvað hann það hafa dregið
mjög úr flutningaörðugleikum,
að hægt hefði verið að auka
mjög þurrkun matvæla og gat
þess meðal nýjunga, aq hægt
væri nú að fá Jiurrkaða síld.
Bretar liafa fengið mjög mikið
af allskonar þurrkuðum mat-
vælum undanfarið.
Væri ekki athúgandi fyrir Is-
lendinga að kynna sér hina
þurrkuðu síld?
Ítalía:
Alger upplausn í
þýzka hernum,
Ekkert viðnám.
Alger upplausn er í her Þjóð-
verja á Italíu og flýr hann eins
og fætur toga norður á bóginn
á öllum vígstöðvunum.
Bandamenn taka hverja
mikilvæga borgina á fætur ann-
ari*, sem Þjóðver jum mundi
vissulega hagur í að halda.
Þjóðverjar reyna einu sinni ekki
að hindra sókn bandamanna
neitt að ráði og virðast ætla að
reiða sig á það, að flulningaleið-
ir þeirra verði að lokum svo
langar, að þeir verði að hægja
f'erðina, vegna þess að ekki verði
hægt að sjá frarnsvéitunum fyr-
ir nauðsynjum jafnótt og þess
gerist þörf. :
Viðureignin á Italíu í sam-
bandi við innrásina í Norður-
Frakkland minnir óncitanlega
mikið á sókn 8. hersins vestur
eftir Norður-Afríku og innrás
bandamanna í frönsku nýlend-
urnar i'yrir liálfu öðru ári.
Um 750 stórar amerískar
sprengjuvélar fóru í gær í árás
á stöðvar í grennd við Miinchen
í Þvzkalandi.
Fegrum hæinn okkar
fyrir þjóðhátiðina.
Mjög lofsamleg hreyfing í
fegrunarátt hefir valtnað í bæn-
um síðustu vikurnar.
Nokkru fyrir mánaðámótin
birti Vísir grein, þar sem bæj—
arbúar voru hvattir til að gera
það, sem þeir gætu til að gera
bæinn sem hreinlegastan og
snyrtilegastan, Jiegar þjóðhátíð-
ardagurinn rynni upp, — nú er
vika lil stefnu. Þessum til-
mælum blaðsins hefir verið vel
tekið, því að viðs vegar um bæ-
inn, vinna menn nú af kappi að
þvi að mála lnis sín og þvo þau,
svo að þau verði í hátíðaklæð-
um, þegar dagurinn mikli renn-
ur upp.
Enn eru margir, sem eiga eft-
ir sinn hlút í ]>essu og tíminn
líður óðum. En það er enn vika
til stefnu og á þeim tíma, er
hægt að vinna mikið verk á
þessu sviði, ef viljinn er fyrir
hendi.
Látum alla Reykjavík vera í
hátíðabúningi um þjóðhátíðina!
Selveiði hér á
landi iiiiiinkar.
I fiskiskýrslum, sem Hag-
stofan hefir sent Vísi, sést, að
selveiði hefir farið mjög minnk-
andi hér á landi undanfarna
áratugi.
Er gefið yfirlit um selveiði
hér á landi frá 1921—41 og hef-
ir liún minnkað á þeim tíma um
meira en helming. Árin 1921—
25 veiddust að méðaltali 554
selir og 4542 kópar á hverju
þessara ára. Næstu fimm ár
veiddust 438 selir en 4710 kóp-
ar. Hefir kópunum því heldur
fjölgað. Árin 1936—40 yeiddust
hins vegar aðeins 288 selir og
,3761 kópur og árið 1941, en yf-
irlitið nær ekki lengra, veiddust
ekki nema 202 selir og 3237
kópar.
Þess er gelið, að veiðin árin
1940—41 hafi verið undir með-
allagi.
Miimsía skipa-
fjón stríðsins.
Skipatjón bandamanna var
minna í maí en nokkrum mán-
uði öðrum í stríðinu.
Hin sameiginlega tilkynning
Roosevelts og Churchills var
gefin út í gærkveldi og segir í
henni, að hin áframhaldandi
j barátta gegn kafbátununi hafi
í horið enn betri árangur í síð-
j asta mánuði en nokkuru sinni,
; því að eklci aðeins. var fleiri kaf-
: bátum sökkt en kaupskipum,
heldur var og færri kaupskip-
um sökkt en í nokkrum mán-
uði öðrum í öllu stríðinu.
Amerísk blöð rita
mildð nm sjálfstæðis-
Blöð víða um Bandaríkin
birtu viðtal við Thor Thors
sendiherra í Washington, með-
an þjóðaratkvæðagreiðslan stóð
yfir.
Visi hafa borizt nokkrar úr-
klippur úr stærstu blöðun-
um, svó sem úr New York
Daily News og Herald Trihune,
auk margra annara, sem hirta
ummæli sendiherrans, er hann
skýrði blaðamönnum frá sögu
landsins i aðalatriðum og sam-
handi ])ess við Dani á undan-
förnum öldum.
Blöð vestan hafs hafa öll ver-
ið mjög vinsamleg Islandi í um-
mælum sínum um sjálfstæðis-
málið.
Bardagarnir eru
harðastir suðvestur
af Bayeux.
Bandamenn hala
tekið um4000fanga
‘UT arðir bardagar eru nú
háðir á um það bil allri
víglínunni í Frakklandi, en
þrátt fyrir skæð gagnáhlaup
Þjóðverja, halda þandamenn
áfram að færa út kvíarnar.
Þungamiðja bardaganna virð-
ist hafa færzt suðvestur fyrir
Bayeux, þar sem járnbrautin til
Cherbourg hefir verið rofin, svo
að Þjóðverjar hafa aðeins ein-
spora braut opna þangað.
Þjóðverjar og bandamenn
beita nú æ fleiri skrið<Irekum í
bardögunum og segir í fregnum
blaðamanna, að skriðdrekakapp-
ar bandamanna standi sig engu
síður en Þjóðverjar, þótt margir
þcirra manna, sem 'stjórna -
skriðdrekum þeirra, sé þaulvan-
ir þessum vopniun, en Iiinir hafi
ekki barizt með þeim fyrr en
nú.
Meðal bæja þeirra, sem barizt
er um, er Formigny, sem er um
15 km. fyrir suðvestan Bayeux.
Eru bardagarnir svo harðir þar,
að þeir minna á viðnreignina i
Cassino á Italíu.
Virki Þjóðverja
erfið viðureignar.
Þegar bandaménn fóru á land,
fóru þeir framlijá mörgum ámá-
virkjum Þjóðverja, með það fyr-
ir augum, að uppræta þau siðar.
Þetta hefir stundum tekið tals-
verðan tíma, pví að virki þessi
eru mjög ramlega gerð. Umi eitt
þeirra var harizt í fimm klukku-
stundir, og voru þó aðeiiis 50
menn til varnar þar.
4000 fangar.
I gær voru fluttir 1300 fang-
ar til Bretlands, en 1000 í fyrra-
dag. Blaðamenn telja, að alls
hafi 4000 fangar verið téknir.
— Þeir segja sögur af því, að
hermenn hafi skotið foringja
sína, er Jieir vildu ekki gefast
upp, þótt baráttan væri vónlaus.
Loftárásir.
■ Loftárásum var haldið uppi
af kappi í gær og féllu ekki nið-
ur, þótt dimmdi um kvehlið. —
Eins og undanfarið vaf mest
ráðizt á samgönguæðaf i norð-
vesturhorni Frakklarids: Þýzki
flugherinn lét lítið á sér bera.
Bæjar
• fréttír
Leikfélag Reykjavíkur
sýnir Paul Lange og Thora Pars-
berg annaS kvöld og hefst sala aÖ-
•göngumiða kl. 4 i dag.
Utvapið í kvöld:
20.00 Fréttir. 20.30 Leikrit:
„Regnið" eftir Tryggva Svein-
björnsson (Brynjólfur Jóhannesson
o. fl.). 21.50 Fréttir. 22.00 Dans-
lög. 24.00 Dagskrárlok. #
Messur á morgun:
Dómkirkjan: Kl. 11 sira Friðrik
Hallgrínisson.
Fríkirkjan: Kl. 2 síra Árni Sig-
urÖsson.
Nesprestakall: Kl. 2 í Háskóla-
kapellunni, síra Jón Thorarensen.
Laugarnessókn : Kl. 2 síra GarSar
Svavarsson.
Frjálslyndi söfnuSurinn>: Kl. 5
síra Jón Auðuns.
Fríkirkjan í Hafnarfirði: Kl. 2
síra Jón AuÖuns.
Næturakstur:
B.S.Í., Hafnarstsræti. sími 1540.
I