Vísir - 12.06.1944, Blaðsíða 1
Rltstjórar:
Kristján Guðlaugsson
Hersteinn Pálsson
Skrifstofur:
Félagsprentsmiðjan (3. hæð)
34. ár.
Ritstfórar
Blaðamenn Slmi i
Auglýsingai* 1660
Gjaldkerl 5 llnur
Afgreiðsla
uioulegt að i lyrlr
liuað oeristj lt.-Evropu
£n Svíar eru við öliu
búnir.
Per Albin Hansson, forsætis-
ráðherra Svía, hélt ræðu í Ek-
sjö í gær.
Hansson sagði, að það væri
ómögulegt að sjá fyrir, hvað
bandamenn ætluðu sér gagnvart
Norður-Evrópu, en allt yrði gert
tíl að koma í veg fyrir að þær
hernaðaraðgerðir skertu hlut-
léysi Svía. Hansson sagði, að
varnir Svía yrði styrktar og
þeir væri staðráðnir í þvi að
varðveita hlutleysi sitt og verj-
ast árásum frá hverjum sem
væri.
Rússar í sókn
gegn Finniim.
Bpjótast í gegn á
Kirjálaeiði.
Kyrrðin á austurvígstöðvun-
nm er úr sögunni, því að Rússar
hafa hafið sókn á Kirjálaeiði.
Finnar sögðu frá þessum
hernaðaraðgerðum í lok siðustu
viku og viðurkenndu í gær, að
Rússum liefði tekizt að brjótast
í gegnum viggirðingar þeirra
vestan til á eiðinu. Litlu síðar
gaf Stalin út aukatilkynningu
um að sóknin hefði verið hafin
fyrir tveim dögum og ú þeim
tíma hefði vjggirðingar Finna
verið rofnar.
Rússar hafa brotizt í gegnum
varnir Finna á 40 km. breiðu
svæði og sótt fram allt að 25
km. leið. Þeir liafa tekið rúm-
lega 80 bæi og eru 4 þeirra við |
járnbrautina til Viborgar.
Þekktasti bærinn er Terijoki,
þar sem Kuusinen-stjörnin sat,
þegar Rússar réðust á Finna
1939.
Araslr á Gnam
<ogr flelrl eyjar.
Amerískar flotadeildar hafa
gert árásir á stöðvar Japana í
Mariana-eyjum.
Árásímar voru gerðar síðast-
liðinn laugardag og var þeim
einkum beint gegn Guam-eyju.
sem fyrir stríð vár á valdi
Bandaríkjanna. Lítið varð um
varnir af hálfu Japana.
Fimm japanskir tundurspill-
ar, séni voru á leið til Biak með
liðsauka handa liði Japana þar,
lögðu á flótta, er ameriskir og
ástralskir tundurspillar urðu
þeirra varir.
Carentan fallin,
1 þýzku herstjórnartilkynn-
ingunni var það viðurkennt, að
bandamenn væri búnir að taka
Carentan.
Að öðru leyti var lítið nýtt
í tilkynningunni.
Bonomi hefir tekizt að mynda
stjórn á ltalíu. I henni eru m. a.
Sforza greifi og Benedetto
Croce.
Bandamenn 27 km. frá Cherbourg
og hálfnaðír vestur yfir skagann.
400.000 komin á land, segir Berlin.
Ráðizt á 9 flug-
velli og io brýr
í gær.
Bandamenn hafa
3 flugbrautir fyrir
orustuvélar í
Frakklandi.
eður var ekki sem hag-
stæðast til flugferða yfir
Frakklandi í gær, enda þótt
veður hafi aldrei verið betra
til uppskipunar úr innrásar-
flota bandamanna.
Þrátt fyrir það, að veður var
ekki eins og bezt varð á kosið,
liéldu bandamenn samt uppi
miklum árásum og fóru meðal
annars 750—1000 stórar amer-
ískar flugvélar til árása á 9 flug-
velli Þjóðverja og 10 mikilvæg-
ar hrýr milli innrásarsvæðisins
og Parísar.
Minni flugvélar liafa einnig
haldið uppi árásum á víð og
dreif um Norður-Frakkland.
Flugbrautirnar.
Það var gert uppskátt í gær,
að bandamenn hafa komið sér
upp þrem flugbrautum í Nor-
mandie og eru þær nú þegar
notaðar af Spitfire-flugvélum.
Brautirnar eru gerðar með vír-
neti, sem lagt er á sléttlendi.
Fyrsta daginn, sem þessar
brautir voru í notkun, flugu
Spitfire-vélarnar alla leið til
Parísar.
V
Þjóðverjar
enn í vafa.
Brezkur liermálasérfræðing-
ur sagði í útvarp frá London í
galr, að í uppliafi árásarinnar á
Normandie liafi Þjóðverjar á-
reiðanlega verið í vafa um það,
livort þar var um stórárás að
ræða eða bara blekkingarárás.
Nú geti þeir ekki lengur verið í
vafa um það, að um stóra árás
sé að ræða þarna, en þeir hljóti
enn að vera í vafa um það, hvort
hér sé um aðalárásina að ræða.
Svíar auka tundur-
duflavarnir við
vesturströndina.
Svíar ætla að auka tundur-
duflavarnir sínar fyrir vestur-
ströndinni á næstunni.
Gera Svíar þetta af ótta við
það, að leikurinn kunni að ber-
ast inn í Skagerrak vegna inn-
rásaraðgerða bandamanna.
Verður aukning varnanna
fólgin í því, að duflagirðingar
verða lagðar allt að þrjár sjó-
mílur út frá eyjum Svía uudan
landi þarna. Áður hafa dufla-
girðingar náð þrjár mílur út frá
meginlandinu.
Randolph Churchill er nýlega
koirrinn frá Júgóslavíu til
Bómahorgar.
Handavinnusýn-
ing Húsmæðra-
skólans.
I fyrradag var opnuð sýning
á handavinnu nemenda Hús-
mæðraskólans i Reykjavík fyrir
það námsár, sem nú er að enda.
Munr ú sýningunni eru afar
margir og yfirleitt forkunnar
vel unnir. Er þarna um að ræða
sýningu á vefnaði, útsaumi,
fatnaði og mörgu fleira. Auk
þess er ýmiss skrautvefnaður,
sem er gerður úr alíslenzku efni
og með íslenzkum jurtalitum.
Það vekur undrun, hversu mikil
afköstin eru á þessum stutta
tíma, sem nemendurnir hafa
haft til umráða til að ljúka
þessu námi.
Á þessu námsári voru 30
námsmeyjar í hcimavist og 24 á
dagnámskeiðinu.
Handavinnukennarar skólans
eru: ungfrú Guðrún Jónasdótt-
ir, er kennir vefnað, ungfrú
Margrét Jólisdóttir, er kennir
kjólasaum og frú Ólöf Blöndal,
er kennir útsaum og nærfata- og
harnafatasaum. Auk þess kenn-
ir frú Hulda Stefánsdóttir, for- i
stöðukona skólans, útsatum á
dagnámskeiðinu o. fl. Handa-
vinnusýningin er opin í dag í
síðasta sinn.
Amerísku flugvélarn-
í Rússlandi.
Amerísku flugvélarnar, sem
flugu til Rússlands fyrir
skemmstu, eru komnar aftur til
bækistöðva sinna á ítalíu.
Á leiðinni frá Rússlandi var
ráðizt á tvo l'lugvelli á Balkan-
skaga og borgirnar Constanza
og Giurgiu. Yfirmaður flug-
Þá hafa 5 þjóðir
I lok síðustu viku bárust rík-
isstjórninni enn tilkynningar
um tvo sérstaka sendimenn, sem
erlendar ríkisstjórnir hafa út-
nefnt til þátttöku í þjóðhátíð-
inni.
Það eru franska bráðabirgða-
stjórnin í Alsír og Svíastjórn,
sem hafa að þessu sinni útnefnt
sérstaka sendimenn.
Fulltrúi frönsku þjóðfrelsis-
nefndárinnar tilkynnti utanrík-
isráðherra á föstudag, að bráða-
hirgðastjórn franska lýðveldis-
ins hefði útnefnt sendimanninn,
herra Henri Voillery, fulltrúa
sinn sem „délégué extraórdi-
naire“ (sérlegan sendimann) við
i lýðveldishátíðina.
.Tafnframt því, að tilkynna
þetta, bar herra Voillery fram
heztu árnaðaróskir sínar
Átta herdeildir
gersigraðar.
20.000 smálesta skipi
sökkt í gær.
ýzka útvarpiS skýrði frá
því í gærkveldi, að
bandamenn mundu þá vera
búnir að koma um 400.000
manna liði á land í Norman-
die.
Þjóðverjar segja, að 20 her-
deildir liafi verið sendar yfir
sundið, auk sérstaklega æfðra
sveita úr öðrum herdeildum, en
þær hafi márgar fengið slæma
útreið og hafi álta þeirra verið
gersigraðar.
Þá sögðu Þjóðverjar og frá
því i gær, að þeim hafi tekizl að
sökkva 20,000 smálesta skipi,
sem var á leið frá Énglandi til
Frakklands. Skipið var í fylgd
með tundurspilli og varð hann
fyrir skemmdum; af völdum
þýzku flugvélanna, sem árásina
gerðu.
Megnið af herliði þvi, sem var
i á skipinu, drukknaði, sega Þjóð-
! verjar. ,
j Þótt bandamenn hafi enga
i liöfn í Normandie, sem geti tek-
ið svo stór skip, verða þeir samt,
að nota þau, vegna þess hvað
þeir hafa heðið mikið tjón á hin-
um smærri skipum sínum, segir
að lokum í tilkynningu Þjóð-
verja.
herja bandamanna á Italiu, Fak-
er hershöfðingi, var með i leið-
angrinum til Rússlands og i'ór
tvisvar til Moskva, meðan stað-
ið var við þar í landi.
útnefnt sendiherra.
og hráðahirgðastjórnarinnar til
handa ríkisstjórn Islands og ís-
lenzku þjóðinni.
Á laugardag boðaði utanrikis-
ráðherra blaðamenn aftur á
fund sinn til að tilkynna þeim,
að sænski sendifulltrúinn hefði
tjáð honum, að sendifulltrúan-
um, herra Otto Johansson, hefði
verið falið að vera sérstakur
sendihcrra Svíþjóðar sem „en-
voyé en mission spéciale“ á lýð-
veldishátíðinni og að flytja við
það tækifæri ríkisstjórninni og
íslenzku þjóðinni kveðjur og
árnaðaróskir.
Fimm þjóðir hafa nú tilkynnt
ríkisstjórninni, að þær muni
hafa hér sérstaka sendimenn við
fyrirhugaða lýðveldisstofnun og
mun það öllum Islendingum ó-
blandið ánægjuefni.
Bandarikjaþing
sendir íslending-
um árnaðaróskir.
Einkaskeyti .frá U. P.
London í morgun.
Báðar deildir Bandaríkja-
þings hafa samþykkt þings-
ályktunartilögu um árnaðar-
óskir til Alþingis lslendinga.
Conally, formaður utanrík-
isnefndar öldungadeildarinn-
ar, bar fram tillögu um það,
að þar sem íslenzka þjóðin
hefði samþykkt með yfir-
gnæfandi meiir hluta að
stofna lýðveldi, þá sendi þing
Bandaríkjanná Alþingi Is-
lendinga, hinu elzta þingi í
heimi, beztu árnaðaróskir í
tilefni af stofnun lýðveldisins
og fagni því, að yngsta lýð-
reldi heims bætist í hóp hinna
frjálsu þjóða.
Ályktunin var samþykkt
tneð ollum atkvæðum í báð-
ím deildum Bandaríkjaþings.
Spndilierpíi U.S.
kominn.
Hinn nýi sendiherra Banda-
ríkjanna, hr. Louis G. Di'eyfus
og frú hans, komu hingað á
laugardag.
Vilhjálmur Þór, utanríkis-
málaráðherra, og l'rú hans, tóku
á móti sendiherranum, er hann
kom hingað.
Hr. Dreyfus verður, sem
kunnugt er, ambassador Banda-
ríkjanna hér við stofnun lýð-
veldisins. Mr. Leland Morris,
síðasti sendiherra Bandaríkj-
unna, er farinn af landi hurt
fyrir nokkuru.
íslandsmótid:
Valur vann K.R"2:0.
B
★
I.R. hættir í mótinn.
íslandsmótið hélt áfram í
gærkveldi með leik milli K. R.
og Vals. Úrslit urðu þau að Val-
ur vann með 2:0.
Leikurinn var yfirleitt jafn
og . vel leikinn á háða hóga.
Bæði mörkin voru skoruð i
fyrri liálfleik og skoraði Jóhann
Eyjólfsson, liægri útframherji
Vals, bæði.
Næsti leikur mótsins átti að
fara fram í kvöld milli í. R. og
Víkings en í. R. hefir gefið hann.
Iiefir I. R. þannig dregið sig til
haka í mótinu vegna forfalla
leikmanna sinna.
Annað kvöld keppa Fram og
Víkingur.
Wilson, yfirmaður herja
bandamanna við Miðjarðarhaf,
hefir varað leppstjórnina í AI-
baníu við að safna hermönnum
fyrir Þjóðverja.
Bandamenn sækja nú að Jap-
önum bæði frá Impal og Koima.
Er sótt meðfram veginum milli
þessara bæja.
Hægri fylkingararm-
urinn sækir eink-
, um hratt fram.
Afar harðar árásir á
vinstri fylkingar-
arminn.
erstjórnartilkynning
bandamanna í gærkveldi
skýrði frá því, að framsveitir
þeirra væru. þá staddar að-
ems um 27 km. frá Cher-
bourg.
Þeir voru komnr að úthverf-
um smáborgar einnar, sem lieit-
ir Montebourg, og er um j>að
hil hálfa leið milii Carentan og
Cherbourg, aðeins 27 km. frá
siðarnefndu borginni. En vestur
á bóginn eru þeir nærri hálfnað-
ir að sjó. Þær hersveitir, sem
þarna sóttu fram, fóru lengst af
hersveitum bandamanna í gær.
Hafa handamenn ]x> átt í höx-ð-
um bardögum jxirna eins og
víðar.
Þarna fyrir sunnan, hjá Isigny,
Iiafa bandamenn sótt fram suð-
ur fyrr flóðasvæðið í Ouredaln-
um. Ilöfðu Þjóðverjar veitt
vatni yfir landið til að gera sér
vörnina auðveldai-j.
Harðasti
atgangurinn.
Bardagar eru allsstaðar harð-
ir, en þó livex-gi eins harðir og
milli Caen og Bayeux. Banda-
menn hafa sótt nokkra kíló-
metra suður fyrir veginn og
járnbrautina milli þessara bæja
og tekið Ixorgina Tilly, sem
stendur á bökkum Seulles-ár.
Þarna Iiafa verið háðar skrið-
drekaorustur undanfai-ið.
í vinstra fylkingararmi bei-st
(5. herdeild Breta, sem flutt var
á vettvang í svifflugum. Hefir
hún á valdi sínii brúarsporð
vestur vfir Caen-skipaskurðinn,
sem liggur til sjávar og gera
Þjóðverjar allt, sem í þeiiTa
valdi stendur til að hrekja Breta
vfir um skurðinn,
80 km. löng
víglína.
Viglína bandamanna i Nor-
mandie er nú samfelld og er um
80 km. löng frá Montebourg
suður-austur til Caen. Smns
staðar hafa bendamenn getað
sótt næst um þvi 20 km. upp í
| land, svo að einungis langdræg-
ustu fallbyssur geta skotið á
fjörurnar, ]xir sem verið er að
skipa æ meira liði og birgðum á
land.
Mon tgomery hefir sent mönn-
um sinum kveðju. Segir hann að
þeir sé búnir að ná góðri fótfestu
og sigurinn sé þeim viss, þótt
harðir bardagar muni framund-
an.
Tedder flugmarskálkur og
; Rainsay flotaforingi fóru í eftir-
litsför um innrásarsvæðið í gær.
Bretar eru farnir að nota nýj'a
gerð orustuvéla, sem þeir nefna
Tempest. Hún er smíðuð af
sama félagi og Hurricane.
Svíar og Frakkar útneína
sendiherra fyrir lýðveldis-
hátíðina.