Vísir - 13.06.1944, Blaðsíða 1
Ritstjórar:
Kristján Guðlaugsson
Hersteinn Pálsson
Skrifstofur:
Félagsprentsmiðjan (3..hæð)
Ritstjórar ] Blaðamenn Stmii
Auglýsingar ' 1660
Gjaldkeri 5 Unur
Afgreiðsla
34.
ar.
Reykjavík, þriðjudaginn 13. júní 1944.
131. tbl.
Mesti lof tárásadagur bandamanna í gær
Þjóðverjar hafa sent fram 5 bryndeildir
Hætta vofir enn
yfir bandamönn-
um í Normandie,
segja Bretar.
Sviffluga, sem flytur
skriðdreka.
Jþ ótt bandamenn séu búnir
að vera viku á landi á
Norður-Frakklandi, eru menn
í löndum þeirra þó varaðir við
því að vera of bjartsýnir um
horfurnar.
I brezka útvarpinu var á það
bent í fyrrakveld, samkvæmt
heimildum frá herstjórninni,
að sá möguleiki væri enn fyrir
hendi, að Þjóðverjum tækist að
reka bandamenn í sjóinn aftur.
Baráttan er enn á því stigi,
var sagt í útvarpinu, að banda-
menn væri að koma fótunum
undir her sinn á meginlandinu,
og meðan ekki liefir tekizt að
koma öllu yfir Ermarsund, sem
þangað þarf að senda, vofir
hætta yfir því liði, sem yfir er
komið.
Eins og Þjóð-
verjar vilja.
Hernaðarfræðingur utanrik-
ísráðuneytisins þýzka, Hallers-
leben, sagði í gær, að hernaðar-
aðgerðirnar í Frakklandi færi
alveg éins og Þjóðverja vildu.
Það væri fyrst, að Montgomery
hefði orðið að breyta uppruna-
legum áformum sínum, en þar
bættist við, að það væri Þjóð-
verjum að vissu leyti í hag að
leyfa bandamönnum að komast
talsvert upp í Iand. Þá kæmi
nefnilega sá tími„ að þeir nytu
ekki lengur aðstoðar herskipa-
fallbyssa og þá yrði látið til
skarar skríða gegn þeim.
Hamilkar-svifflugan.
Eitt af leynivopnum þeim,
sem Bretar notuðu við innrás-
ina og nú hefir verið leyft að
segja frá, er afarstór sviffluga,
sem ber léttan skriðdreka eða
önnur þung vopn, sem vega
nokkrar smálestir. Svifflugan er
búin þannig, að hægt er að setja
vél skriðdrekans í gang, áður
en flugan tekur niðri, en um
leið og hún gerir það, er trjón-
an opnuð og skriðdrekinn ekur
leiðar sinnar með fullri ferð.
Islansglíman hefst
annað kvöld.
Íslandsglíman verður liáð í
tvennu lagi, svo sem Vísir hefir
áður skýrt frá. Hefst fyrri liluti
hennar annað kvöld kl. 9 í
íþrótthúsi Jóns Þorsteinssonar,
en úrslitin fara fram á Þing-
völlum 17. júní.
Þátttakendur eru 12 frá 5 fé-
lögum, Glímufélaginu Ármann,
K. R., Ungmepnafélagi Mývetn-
inga, U. M. F. Trausti og U. M.
F. Valca.
Glímukonungur ' er Guð-
mundur Ágústsson og er hann
meðal keppenda. Mun hann
mæta harðri keppni, því að í
glimunni taka þátt ýmsir beztu
•og færustu glímumenn landsins.
Þjóðverjar í Dan-
mörku skelkaðir.
Byggja virki af
óvenjulegu kappi.
Stokkhólmsfregnir herma,
að aldrei hafi verið meira
unnið að virkjabygginguni í
Danmörku en þessa dagana
eftir innrásina í Frakkland.
Er unnið meðfram allri vest-
urströnd Jótlandsskaga að
þessu, en að næturlagi er
unnið að því að leggja segul-
duflum í sjóinn með strönd-
um fram.
Sænskir hernaðarsérfræð-
ingar hafa ekki trú á því, að
virki Þjóðverja í Danmörku
sé eins sterk og þau, sem þeir
höfðu komið sér upp í Frakk-
landi. Áður hefir verið álitið
að Þjóðverjar mundu hafa
5—6 herdeildir í Danmörku,
en síðan mun nokkuð af því
liði hafa veríð sent til ítalíu
og Ungverjar látnir koma í
staðinn.
20.000 kr. til
náttúrnfræði-
rann§ókna.
Menntamálaráð íslands hefir
á fundi sínum 10. júní úthlutað
rannsóknarstyrkjum úr nátt-
úrufræðideild Menningarsjóðs
svo sem hér segir:
Árni Friðriksson fiskifræðingur
kr. 2500,00, Finnur Guðmunds-
son náttúrufræðingur kr. 2500,-
00, Geir Gígja kennari kr. 2500,-
00, Helgi Jónasson Gvendarstöð-
um kr. 1000,00, Ingimar Óskars-
son grasafr. kr. 2000,00, Ingólf-
ur Davíðsson magister kr. 1500,-
00, Jóhannes Áskelsson jarðfr.
kr. 3500,00, Jón Eyþórsson veð-
urfr. kr. 1500,00, Leifur Ás-
geirsson skólastj. kr. 2500,00,
Steindór Steindórsson mennta-
skólakennari kr. 3500,00, Steinn
Emilsson grasafr. kr. 1000,00,
Þorkell Þorkelsson veðurstofu-
stj. kr. 2500,00, Guðm. Kjart-
ansson jarðfr. kr. 2500,00.
1400 stórar flug-
vélar ráðast á 16
flugvelli og 6 brýr,
30.000 smál. sppengja
varpað á brýr yflr
Signu.
andamenn unnu enn á í
bardögunum í Frakk-
landi í gær, en það voru loft-
árásirnar, sem voru emkum
einkennandi fyrir daginn.
Bandaríkjamenn sendu 1400
stórar sprengjuflugvélar inn yf-
ir Frakkland og hafa aldrei þvi-
likir liópar verið sendir þangað
á einum degi. Var ráðizt á 16
flugvelli Þjóðverja og sex járn-
brautabrýr, en öll þessi árása-
mörk eru i norðurhluta lands-
ins, allt frá landamærum Belgíu
og vestur á Bretagne.
í fregnum herstjórnar banda-
manna var frá því skýrt, að þeg-
ar ákveðið var að ráðast á land
við Signuflóa, hafi verið tekið til
óspilltra málanna við að eyði-
leggja brýrnar yfir Signu milli
Parísar og sjávar. Á þessu svæði
voru 10 járnbrautabrýr og 14
vegabrýr. Þegar innrásardagur-
inn rann upp höfðu 18 þessara
brúa verið eyðilagðar, en þrjár
af hinum voru ónotliæfar. Var
alls 30 þús. smál. sprengja varp-
að á þessar brýr.
Þjóðverjar nota
fleiri flugvélar.
En Þjóðverjar hafa einnig
leflt fram fleiri flugvélum og
gera þeir tíðar árásir að nætur-
lagi, en láti sér nægja að verjast
á daginn. En bandamenn hafa
jafnan mikið af næturorustuvél-
um yfir landgöngusvæðinú og
hefir þeim tekizt að granda
nokkurum af flugvélum Þjóð-
verja.
í gær segjast bandamenn hafa
eyðilagt 70 þýzkar flugvélar i
lofti og á jörðu, en Þjóðverjar
skutu niður fyrir ])eim 7 stórar
flugvélar, eina af meðalstærð og
31 orustuvél.
VISIR
kemur ekki út á morgun
Vísir kemur ekki út á morg-
un, miðvikudaginn 14. júní.
Þetta stafar af því, að verið er
að ganga frá útgálu þjóðhátíð-
arblaðsins, en það er svo stórt
— 144 blaðsíður — að ekki
vinnst tími til að koma því út
á tilsettum tíma, ncma öllum
starfskröftum sé beitt til þess.
I þjóðhátíðarblaði Vísis, sem
er langstærsla blað, sem nokk-
uru sinni hefir komið út héV á
landi, verða greinar um öll svið
þjóðlífsins frá 1874- -1944. Blað-
^ ið samsvarar að lesmáli bók í
r stóru broti, sem er hátt á 6.
1 hundrað. blaðsíður að stærð.
Næsta blað Vísis kemur út á
fimmtudag.
Stutt og laggott.
Þýzkur almenningur fær nú
engin rafmagnstæki framar.
Vegna tjóns á verksmiðjum fær
hið opinbera framvegis alla
framleiðsluna.
★
Jugoslavar hafa tekið þrjár
borgir úr liöndum Þjóðverja.
★
Lundúnablöðin rita mjög um
l það, að Bretar ælti að viður-
| kenna þjóðfrelsisnefndina
| frönsku, vegna innrásarinnar í
. Frakkland.
★
Japanir hafa tekið ldnversku
borgina Changsa og segjast hafa
unnið hana nærri bardagalaust.
★
Amerísku hersveitirnar á
Biakeyju við N.-Guineu hafa
sótt nær flugvöllunum, sem
Japanir liafa enn á valdi sínu.
MENN HANS FÓRU FYRIR.
Bretar telja Þjóð-
verja hafa 250
þús. menn.
B
Maðurinn hér á myndinni er yfirmaður víkingasveita Breta.
Hann heitir Robert Laycock og tók við af Mountbatten lávarði,
þegar liann var gerður yfirhershöfðingi bandamanna i suð-
austurhluta Asíu. Laycock hefir hlotið viðurnefnið „heppni“,
vegna þess hvað hann hefir oft sloppið nauðulega undan fjand- 1
mönnunum, þegar hann hefir barizt með mönnum sínum. Það
er kona hans, sem er með lionum á myndinni, og ef einhvern
langar til að vita hvað hundurinn heitir, þá er nafn hans Kipling.
Rússland:
Sóknin gegn Finnum að-
eins sú fyrsta af mörgum
Rússav halda áfram á Kirjálaeiði.
Rússar héldu áfram sókn
sinni á Kirjálaeiði í gær og tóku
alls um 40 bæi þar.
Þeir eiga nú um 65 km. ó-
farna til Viborgar, en landið er
mjög gotl til varnar og getur því
verið, að leiðin þangað verði
þeim torsótt. Finnar verjast með
örvæntingarhreysti, en fá ekki
stöðvað Rússa, því að þeir hafa
hvorki nægan mannafla né vopn
til þess.
í fregnum frá Svíþjóð er það
líka talið veikja aðstöðu Finna,
að yfir þeim vofir sú hætta, að
Rússar setji lið á land af skip-
um að baki þeim.
Þetta er að-
eins byrjunin.
Fréttaritari amerislca útvarps-
félagsins National Broadcasting
Compány hefir sagt í útvarps-
sendingu frá Moskva, að
sóknin gegn Finnlandi sé aðeins
hin fyrsta af mörgum hernað-
araðgerðum, sem Rússar undir-
búi nú í samvinnu við banda-
menn siiia og eigi að leggja
liættulegasta fjandmann þcirra,
Þýzkaland, að velli.
Rússar eru tilbúnir til saiu-
ræmdrar sóknar á ölltun austur-
vígstöðvúnum í samráði við þá,
sem stjórna sóknum úr vestri
og suðri.
Ítalía:
Mazmtjón Þjóð-
verja 70.000.
Síðan Alexander hóf
sókn sínar.
Síðan bandamenn hófu sókn
sína norður eftir Italíu fyrir
nokkurum vikum, er manntjón
Þjóðverja talið um 70,000
manns.
Þá eru taldir þeir, sem fallið
hafa, særzt eða verið teknir til
fanga, en tala þeirra er farin að
nálgast 20,000. Bandamenn
töldn, að Kesselring hafi haft
yfi 23 herdeildum að ráða, þegar
látið var til skarar skríða og
hafa bandamenn átt í bardögum
við 20 þeirra. Sumar liafa verið
nærri upprættar, en hinar goldið
afhroð mikið. En ])á eru ótaldar
hersveitir, sem fluttar voru frá
Genua og Danmörku, eftir að
sókn bandamanna hófst.
Þjóðverjar hafa yfirgefið eyj-
1 uná San Stefano, en þar er borg-
in Orbetillo. „Evja“ þessi
er tengd landi af. rifi, sem
i myndazt hefir á síðustu öldum.
10.000 fangar hafa verið
teknir fyrstu viku bar-
daganna.
andamenn telja, að ÞjóS-
verjar tefli nú fram um
250 þúsund manna liði í Nor-
mandie gegn innrásarherjun-
um.
í liði þessu eru fjórar eða
fimm bryndeildir og þótt und-
arlegt sé, er flestum ]>eirra beint
gegn Bretum, sem eru í vinstra
fylkingararmi og erú að því er
virðist elcki eins hættulegir og
Bandarikjamenn, sem leitast við
að ná Clierbourg.
Bandamenn hafa tekið 10.000
fanga.
Segja Bretar, að þeir hafi orð-
ið varir við þrjár bryndeildir á
svæðinu milli Bayeux og Caen.
Víglínan tæplega
130 km.
í fregnum blaðamanna frá
aðalstöðvunum í morgun, er
sagt, að víglínan muni nú
vera læplega 130 km. á lehgd.
Nyrzt eru Bandaríkjamenn
búnir að koma sér fyrie milli
sjávar og Montebourg, en þar
fyrir sunnan liafa ]>eir sótt
noklcuð vestur fyrir Carentan,
sem þeir tóku í gærmorgun.
Það er á næsta hluta víg-
stöðvanna, sem bandamenn
liafa sótt lengst. Þar hafa þeir
tekið skóg einn, sem Þjóðverjar
höfðu breytt í geymsiusvæði
fyrir allskonar birgðir. Hjálp-
i uðu orusluskip til við töku lians
með skothríð.
Sifelldar skriðdre.kaviður-
1 eignir éru háðar á svæðinu milli
Bayeux og Carentan, en þar er
ekki getið um neina verulega
framsókn.
Churchill fer
til Frakklands.
Churcbill var sjö klukku-
slundir í Frakklandi í gær og
ók víða um landgöngusvæðið
með MontgÓmery. Skömmu áð-
ur fóru ]>eir Arnold, Iíing og
Marsliall yfir til Frakklands
með Eisenliower og heimsóttu
]>eir ýmsar stöðvar banda-
manna í fylgd méð Bradley
liershöfðingja.
Akurnesingar byggja
verkamannabústaði.
Akurnesingar hafa ákveðið að
ráðast í byggingu verkamanna-
bústaða í sumar og verða þau
resit í samfelldri hvirfingu of-
arlega á Suðurskaganum.
Verkamannabústaðirnir eru
byggðir á milli Suðurgötu og
Iilínargötu og allt upp undir
Sleipnisveg. Þeir eru byggðir
samkvæmt verkamannabústaða-
lögunum og er þegar húið að fá
1 kaupendur að öllum húsunum.
| Greiða ltaupendur 16—17 þús.
i strax, en að öðru leyti verður
I upphæðin borguð niður á viss-
1 um árafjölda.
Akraneskaupstaður sér fyrir
lóðum undir húsin.