Vísir - 13.06.1944, Blaðsíða 2
VlSIR
VÍSIR
DAGBLAÐ
Útgefandi:
BIAÐAÚTGÁFAN VlSIR H.F.
Ritstjórar: Kristján Guðlangsson,
Hersteinn Pálsson.
Skrifstofa: Félagsprentsmiðjunni
Afgreiðsla Hverfisgðtu 12
(gengið inn frá Ingólfsstræti).
Símar: 16(0 (fimm línur).
Verð kr. 4,00 á mónuði.
Lausasala 35 aurar.
Félagsprentsmiðjan h.f.
Vinarþel,
ENGU Iiefir íslenzka þjóðin
orðið fegnari en því vinar-
þeli, sem ýmsar þjóðir hafa sýnt
henni nú, er stofna skal lýðveld-
ið hér á landi. Nú fyrir helgina
tilkynnti utanríkisráðherra
blaðamönnum að auk þeirra
þjóða, sem áður hafa sýnt okkur
sérstakan vinsemdarvott, liefði
sænska stjórnin gert það einnig,
með þvi að iiinefna sendifull-
trúa sinn, hen-t Otto Johansson
til að vera sérstakan sendiherra
við hátíðahöldin (envoye en
nnssion spéciaíe*. Hafa þá bæði
Noiðmenn og Svíar gefið óbeint
fvrirheit um vií a/kenningu hins
ískiizka lýðvektts, auk stór-
veldanna, sem það gerðu þegar
i v-pphafi. Gefa þessar ráðstaf-
anir frændþjó* tnna vonir um
að Norðurlöndió muni skilja til
fulls aðstöðu ístenzku þjóðar-
iuiiar vegna lýðveldissloí'nunar-
innai, þannig að enginn skuggi
falli á góða samhúð þjóðanna i
framtiðinni.
Því ber ekki að neita að ís-
lenzka þjóðin varð fyrir nokkr-
um vonbrigðum, er hingað bár-
ust fréttir að fyrstu ummælum
sænskra blaða varðandi sam-
bandsslitin. Þau sýndu ekki
þann skilning, sem við töldum
æskilegan, en síðari ummæli
hnigu á allt annan veg og voru
okkur á allan liátt vinsamleg.
Sænska stjórnin hefir einnig
tekið þá afstöðu að sýna okkur
skilning og velvild með ofan-
greindri afstöðu sinni, og munu
íslendingar vel kunna að meta
slíkt í norrænni samvinnu síðar.
Islendingar hafa aldrei ætlað sér
að f jarlægjast Norðurlöndin eða
draga sig út úr norrænni sam-
vinnu á nokkurn hátt, og þótt
við krefjumst fulls og óskerts
sjálfstæðis, sem við eigum rétt
til gat ekkert rofið tengsl þjóð-
ariimar við Norðurlönd, nema
skilningsskortur frændþjóð-
anna á afstöðu okkar og að-
gerðum. Engin þjóð getur sóma
síns vegna samið af sér sjálf-
stæðið, en hún getur samið um
allt annað. íslenzka þjóðin er
engin undantekning i þessu efni
og engar þjóðir ættu að skilja
þetta betur, en frelsisunnandi
þjóðir Norðurlanda. Norðmenn
og Sviar hafa sýnt það í verki
að svo er, en allar raddir, sem
fram hafa komið og eigi verið í
sama dúr, eru hjáróma raddir,
sem að engu eru hafandi. Þær
mega dcki spilla sambúð Norð-
urlanda og munu heldur ekki
gera það. 1
Islenzka þjóðin ber hlýjar
hugsanir einar til Norðurlanda,
og óskar þess að þau megi öll
njóta friðar og frelsis. Hún
þekkir hverja þýðingu það hefir
að fara frelsis á mis. Erfiðleikar
Norðuriandaþjóðanna og skuggi
styrjaldarinnar, veldur þvi að
gleði islenzku þjóðarinnar er
ekki óskipt. Við sjáum skinið
og greinum skuggana, en við
erum þakklátir þeim þjóðum,
sem sýna það nú í verki, að þær
eru vaxnar upp úr yfirdrotnun-
arstefnum og kúgun og vilja
byggja upp heiminn á lögum og
alþjóðarétti. Það eitt getur gefið
fyrirheit um batnandi og bjart-
ari tíma, — betri og friðsamlegri
sambúð allra þjóða, sem heim-
urinn þarfnast nú mest.
Undixbúningur undir
hátíðahöldin á Þing-
völlum i fullum gangi
MJögr iiilkill eftirspnrn eftir far-
iiiiöuin og tjald§tæðnm.
Nær tvö þúsund tjaldstæði
hafa verið pöntuð á Þingvöllum
jrfir hátíðina og enn er eftir-
spurnin mjög mikil.
Alls er gert ráð fyrir að unnt
verði að flytja um 14.000 manns
á vegum þess opinhera en aulc
þess er mikið af hifreiðum i eigu
einstakra manna, sem vafalaust
flytja mikið af fólki. Skrifstofan
sem selur farmiða fyrir það op-
inbera hefir nú selt 5100 miða
og auk þess eru um 1200 manns,
sem fara sem boðsgestir.
Farið verður austur á þessum
tímum: Föstudaginn 16. júní,
ld. 9,13,17 og 21. Þann 17. verð-
ur farið austur kl. 7,30 og kl.
10,30 f. h. Að austan verður
farið þann 17. kl. 18,22 og 1 e.
li. og 18., kl. 13, 17 og 21. Ferð-
in austur kl. 10,30 þann 17. er
uppseld og einnig ferðin kl. 7,30
að mestu leyti. Þá er ferðin að
austan kl. 22 þann 17. uppseld.
Veitingar verða allan daginn
á Þingvöllum þann 17. Verða
veitingarnar i tjöldum og sér
fólk um þær, sem hefir samn-
inga um það við hátíðanefndina.
Fálkaorðum úthlutað.
Tilkynning frá orðuritara.
Herra ríkisstjóranum hefir 3.
þ. m. þólmazt að sæma eftir-
greinda menn heiðurmerkjum
liinnar íslenzku fálkaorðu, svo
sem hér segir:
Stórkrossi:
Prófessor Einar Jónsson,
myndhöggvara, Reykjavík.
Stjörnu stórriddara:
Einar Árnason, óðalsbónda,
fyrv. fjármálaráðherra, Eyrar-
landi, í Eyjafirði. Gísla Sveins-
son, sýslumann og alþingisfor-
forseta, Vík i Mýrdal. Prófessor
Matthías Þórðarson, þjóðmenja-
vörð, Reykjavík. Dr. Sigurgeir
Sigurðsson, biskup, Reykjavik-.
Stórriddarakrossi:
Ágúst Helgason, óðalsbónda,
Birtingaliolti, í Árnessýslu.
Friðrik Hallgrímsson, dómpró-
fast, Reykjavik. Dr. med. Hall-
dór Hansen, lækni, Reykjavík.
Halldór Þorsteinsson, fyrrver-
andi skipstjóra, Reykjavík, Har-
ald Böðvarsson, kaupmann,
Akranesi. Frú Ingibjörgu Þor-
láksson, forstöðukonu kvenfé-
lagsins Hringsins, Reykjavík,
Jón Ásbjörnsson, hæstaréttar-
lögmann, Reykjavík. Lárus
Fjeldsted, hæstaréttarlögmann,
Reyrkjavík. Pál Sveinsson, fyrv.
yfirkennara, Reykjavík. Valtý
Stefánsson, ritstjóra, Reykjavik.
A. F. Kofoed-Hansen, fyrv.
skógræktarstjóra, Reykjavik.
Riddarakrossi:
Andrés Ólafsson, hreppstjóra,
Brekku í Gufudalssveit. Bjarna
Jónsson, kvikmyndahússtjóra í
Reykjavik. Björn Eymundsson,
hafnsögumann, Höfn í Horna-
firði. Björn Kristjánsson, kaup-
félagsstjóra, Kópaskeri. Carl
Finsen, framkvæmdarstjóra,
Reykjavík. Eggert Kristjánsson,
stórkaupmann, Reykjavík. Eirík
Brynjólf Jónsson, verkstjóra,
Isafirði. Friðrik V. Ölafsson,
skólastjóra Stýrimannaskólans,
Reykjavík. Gísla Jónsson, óðals-
bónda, Stóru-Reykjum í Árnes-
sýslu. Guðlaug Rósenkranz, yf-
irkennara, Reykjavik. Guðmund
Gamalielsson, bóksala, Reykja-
vík. Guðmund Guðmundsson,
skólastjóra, Keflavík. Guðmund
Jörgensson, skipaafgreiðslum.,
Hull í Englandi. Guðmund
Markússon, skipstjóra, Reykja-
vík. Frú Guðrúnu Indriðadótt-
ur, leikkonu, Reykjavík. Frú
Guðrúnu Jónasson, bæjarfull-
trúa, Reykjavík. Helga Bergs,
framkvæmdarstjóra, Reykjavík. ;
Hilmar Stefánsson, bankastjóra, j
Reykjavík. Uhgfrú Jóhönnu j
Friðriksdóttur, yfirljósmóður j
við Landspítalann, Reykjavík.
Jón Gestsson, óðalsbónda, Vill-
ingaholti í Árnessýslu. Kristinn
Jónsson, vagnasmið, Reykjavík.
Kristján ó. Skagfjörð, fram-
kvæmdastjóra Ferðafélags Is-
lands, Reykjavík. Magnús Gísla-
son, skrifstofustjóra, Reykjavík.
Pál Pálmason, stjórnarráðsfull-
trúa, Reykjavík. Pál Stefánsson,
stórkaupmann, Reykjavík. Pét-
ur Ólafsson, óðalsbónda, Hrana-
stöðum í Eyjafirði. Sigurð
Björnsson, fátækrafulltrúa,
Reykjavík. Sigurð Jónsson, óð-
alsbónda og skáld, Arnarvatni í
Mývatnssveit. Sigurð Runólfs-
son, framkvæmdastjóra,
Reykjavík. Frú Valgerði Þórð-
ardóttur, Kolviðarhóli. Dr.
Victor v. Urbantschitsch hljóm-
sveitarstjóra, Reykjavík. Viggó
Björnsson, bankaútibússtjóra,
Vestmannaeyjum. Þórarin
Benediktsson, fyrv. hreppstjóra,
Seyðisfirði. Þorbcrg Guðmimds-
soji, útgerðarmann, Gerðum í
Garði.
B c&taf
fréttír
Hæsti vinningur
í Happdrætti Háskóla íslands
kom á númer 18,425, og var hann
seldur á fjór'Öungsmiða í umboði
frú Marenar Pétursdóttur og á
Hvammstanga.
Útvarpið í kvöfld.
Kl. 20.30 Tónleikar Tónlistar-
skólans: a) Hátiðalag eftir Bent-
ford. b) Þrjú ensk þjóðlög eftir
Grainger. c) /Norskt þjóðlag eftir
Grieg. d) Tvö íslenzk þjóðlög eftir
Svendsen. (Strengjasveit leikur. —
Dr. Urbantschitschj stjórnar). 20.55
Frá Þingvöllum (Pálmi Hannesson
og Vilhjálmur Þ. Gíslason). 21.50
Fréttir. Dagskrárlok.
Næturakstur.
í nótt og aðra nótt Hreyfill, sími
1633-
Útvarpið á morgun.
Kl. 20.15 Endurvarp frá Ameríku
og Englandi (Dagur hinna samein-
uðu þjóða). 2100 Hljómplötur: Is-
lenzkir einsöngvarar og kórar. 21.15
Ávarp frá þjóðhátíðarnefnd (Ás-
geir Ásgeirsson bankastjóri, vara-
formaður nefndarinnar). 21.35
Fréttir. Dagskrárlok.
Leikfélag Reykjavíkur
sýnir Paul Lange og Tora Pars-
berg í síðasta sinn annað kvöld. Að-
göngumiðasala hefst kl. 4 i dag.
Hjónaband.
Laugardaginn 10. júní voru gefin
saman í hjónaband af síra Friðrik
Hallgrímssyni Ása Karlsdóttir,
Þverholti 5, og Tryggvi Steingríms-
son, þjónn á Es. Dettifossi, til heim-
ilis á Lokastíg 19. Heimili ungu
hjónanna er fyrst um sinn á Þver-
holti 5.
Brauðsölubúðir
Bakarameistarafélags Reykjavík-
ur verða oþnar til kl. 3 e. h. á föstu-
daginn 16. júní, en lokaðar allan
daginn 17. jún og aðeins opnar kl.
9—11 f. h. sunnudaginn 18. júní.
Samsöngur
Vestmannakérsins.
Þessi samkór frá Vestmanna-
eyjum gistir nú höfuðstaðinn
fyrsta sinni og hefir sungið
tvisvar sinnum i Gamla Bíó við
góða aðsókn og ágætar viðtök-
ur. Það hefir verið einskonar á-
lög á samkórum hér á landi til
skamms tíma, að fæstir hafa
þeir átt sér langan aldur og
hafa lognazt fljótt út af aftur.
Áhuginn hefir allur verið á
karlakórsöng. Einstaka undan-
tekningar hafa þó verið frá
þessu og þar á meðal er Vest-
mannakórinn, en hann getur í
rauninni rakið feril sinn alla
leið aftur til aldarafmælis Jóns
Sigurðssonar árið 1911, þótt
ekki hafi hann verið félags-
bundinn lengur en frá árinu
1925. Allan tímann hefir kórinn
notið leiðsagnar sama mannsins,
Brynjólfs Sigfússonar organista,
sem verið hefir lífið og sálin í
sönglífinu þar á staðnum.
Vestmannakórinn er skipaður
44 manns, eftir söngskránni að
dæma. Kvenraddirnar bera af
karlmannaröddunum, bæði að
þrótti og fegurð. Tenórraddim-
ar eru litdaufar og bassaradd-
irnar þyrftu að vera öllu þyngri,
þótt þær fylli öllu betur upp í
hljóminn en tenórarnir. Samt er
kórhljómurinn blæfagur og
þægilegur, því að raddirnar eru
vel samsungnar. Ekki hefir kór-
inn yfir miklum þrótti að ráða,
niiðað við hinn fjölmenna hóp.
Söngstjórinn hefir ekki viljað
reisa kórnum liurðarás um öxl
og hefir nær undantekningar-
laust takmarkað verkefnin við
alþýðleg lög, sem eru að vísu
fögur, en krefjast ekki stórra á-
taka. Söngstjórinn er orðinn
þaulreyndur stjórnandi, sem
með kostgæfni hefir þraútæft
kórinn og agað. Hann er í senn
öruggur og smekklegur og hefir
lag á því að gera laglínuna lif-
andi. Þó kemur fyrir, að hann
bregður að ásettu ráði út af því,
sem skrifað stendur, og enda
þótt andinn sé yfir bókstafnum,
þá má ekki gleyma því, að tón-
skáldin skrifa hvorki niður
þagnarmerki eða önnur tákn í
lögin sín öðru vísi en að vel yfir-
lögðu ráði. Mörg voru lögin
prýðilega sungin. Eg hefði kosið
að hið fallega kórlag Gades
„Hafnsögumaðurinn“ hefði ver-
ið sungið breiðara. „Landkjenn-
Verzlunarjöfnuðurinn:
Óhagstæður um
8,1 millj. kr. í maí
Samkvæmt útreikningi Hag-
stofunnar nam verðmæti inn-
fluttra vara í maímánuði 28,8
millj. kr., en andvirði útfluttra
vara 20,7 millj. kr. Samkvæmt
þvi var verzlunarjöfnuðurinn
í maí óhagstæður um 8,1 millj.
króna.
Á tímabilinu frá janúar til
maíloka nam andvirði útfluttra
vara 98,8 millj. króna, en and-
virði innfluttra vara 96,6 millj.
króna. Þannig er verzlunar-
jöfnuðurinn hagstæður um 2,2
millj. króna það sem af er þessu
ári. Á sama tíma í fyrra var
verzlunarjöfnuðurinn við út-
lönd hagstæður um þrjár millj-
ónir króna.
íslandsmótið.
í gær gaf Í.R. leikinn, sem fram
átti að fara milli þess og Víkings
. og er óvíst að Í.R. haldi áfram þátt-
töku i ipótinu. — í kvöld kl. 8.30
! keppa Fram og Víkingur og fer nú
: óðum að styttast til lokasennu móts-
! ins.
ing“ eftir Grieg, með einsöng
Sigurðar Bogasonar og undir-
leik frú Sísí Gísladóttur, lá fyrir
utan takmörkin, sem verkefnin
annars voru skorðuð við, enda
naut það sín hvergi nærri nógu
vel, þótt kórhlutvtíriunu í því
hafi verið bezt skilað. Nokkur
lög voru sungin eftir sjálfan
söngstjórann og vil eg sérstak-
lega nefna lagið „Yndislega eyj-
an mín“, sem er hugþekkt lag
við ljóð um Vestmannaeyjar.
Annars voru kvæðin mörg um
átthagana og sjósókn, eins og
vera ’bar hjá kór á þessum stað.
Auk áðurnefnds einsöngvara
söng Konráð Bjarnason einsöng
í snotru lagi eftir Steingrím
Hall, við hið alkunna kvæði „Þú
ert sem bláa blómið“. Þótt þetta
lag sé ekki líklegt til að skyggja
á hið meistaralega sönglag
Schumanns við þetta kvæði, þá
hygg eg að margir muni samt
læra það og syngja. Einsöngs-
hlutverkið í „Sunnudag selstúlk-
unnar“ eftir öla Bull sungu þær
saman Áslaug Johnsen og Torf-
hildur Sigurðardóttir. Enginn
þessara einsöngvara mun vera
lærður í listinni, en þeir skiluðu
sínum hlutverkum þó all lag-
lega.
Formaður Landssambands ísl.
blandaðra kóra og kvennakóra,
Jón Alexandersson, ávarpaði
kórinn nokkrum orðum fyrsta
kvöldið, en söngfélagið „Harpa“
heilsaði honum með söng. Síð-
an hófst samsöngurinn samkv.
efnisskránhi, svo sem drepið
hefir verið á hér að framan, og
það var góður og vandaður
söngur, sem margan mun hafa
glatt.
, B. A.
5 manna híll
í góðu standi, til sölu. Uppl.
á Lindargötu 63A (steinhús-
ið) eftir kl. 5 í dag.
Kvenmaður
sem kann algenga matreiðslu
og meðferð mjólkurafurða,
getur fengið vel launaða at-
vinnu í sumar á sveitaheim-
ili skammt frá Reykjavík.
Uppl. gefur Ólafúr Ólafs-
son, Laugavegi 43, uppi.
Bíll til sölu
5 manna Ford, model 1934.
Til sýnis á Skólavörðustíg 36
kl. 8—-10 í kvöld.
5 manna bíll
á góðum gúmmíum og í góðu
lagi, til sölu.
Uppl. á Benzínsölu B. P„
Tryggvagötu, tp kl. 10 í
kvöld.
Sumar-
KVENKÁPUR,
KVENKJÓLAR,
TELPUKJÓLAR og
SMÁBARNA-
KJÓLAR
með Kuxum.
Lokastíg 8.
Hver er maöuriim?
Bókin, sem allir hafa beðið eftir með óþreyju árum
saman, er nýkomm út.
Á rúmlega 800 þétt prentuðum blaðsíðum eru stutt
æfiágrip
3740 Islendinga.
I einu vetfangi getið þér fengið að vita glögg deili á
þessum mönnum, „sem gert hafa garðinn frægan“ á 40
fyrstu árum heimastjórnarinnar og ýmsum þaðan af eldri.
Þér fáið að vita fæðingardag þeirra og ár, hvar þeir eru
fæddir,. hverra manna, lífsstöðu, trúnaðarstörf, fram-
kvæmdir, lærdömsframa þeirra og heiðursmerki, ritstörf,
stofnun og starfrækslu margra fyrirtækja, og enn fáið
þér að vita um konur þeirra, hverra manna þær eru
o. s. frv.
Þetta er ómissandi bók fyrir alla þá, sem vilja átta
sig á samtíð sinni og fortíð.
Hver er maðurinn? er bókin, sem allir góðir íslend-
ingar vilja eignast á hinum miklu núverandi tímamótum
í sögu vorri.
Bókin verður send áskrifendum næstu daga.
Guðmundur Gamalíelsson.
Allir út á völl!
Islandsmótið
í iullum gangi
í hvöld kl. 8,30.
Fram - Víkingur
Þetta er leikurínn, sem allir vilja sjál
/
Orslitin nálgast! Hvor vinnurl