Vísir - 15.06.1944, Side 5

Vísir - 15.06.1944, Side 5
VlSIR Kventöskor nýjustu tízkulitir og skinn. Hliðartöshir Hvitar og mislitar. Ferðatöiknr Ferðaolar Leöurvörudeild Hljóðfærahússins 5 manna fólksinl til sölu og sýnis á verk*- stæði P. Stefánssonar, Hverfisgötu 103. Samsýning lista- manna opnuð í dag Félag íslenzkra myndlistar- manna opnar samsýningu d málverkum á morgun. Verður hún opnuð kl. 1.30 á morgun fyrir gesti með erindi er Matt- hías Þórðarson fornminja- fræðingur flytur. Kl. 3 verður sýningin opnuð fyrir almenn- ing. Á sýningunni. verða 46 mál- verk, 14 vatnslitamyndir og teikningar og 15 höggmyndir og gefur þarna að líta listaverk eftir flesta núlifandi listamenn okkar. Sýningin verður opin til 24. þ. m. Hér skal ekki rætt um heild- arsvip sýningar þessarar né dómur lagður á einstök lista- verk en fullyrða má þó að sýn- ingin er listamönnum mjög til sóma. Væntanléga tekst að fá því framgengt 'að koma upp veg- legu listasafni á næstunni, sem yrði listamönnunum til vegs- auka og þjóðinni til sóma. Eng- inn staður er betur fallinn fyr- ir Iistasafn en Skólavörðuholt- ið, enda sjálfsagt að ar komi upp fagrar og veglegar hygg- ingar. Þjóðhátíðarskjöld- urinn til sýnis. Þjóðliátíðarskjöldur sá, sem Þjóðhátíðarnefnd fól Guð- mundi Einarssyni frá Miðdal að gera, verður til sýnis á sýn- ingum myndlistarmanna, sem opnuð verður í Sýningarskál- anum á morgun. Skjöldurinn er úr leir, 32 cm. i þvermál, með mynd af Jóni Sigurðssyni, en beggja megin, við hann eru birkisveig- ar og undir mynd Jóns stendur: 17. júní 1944. Jafnhliða því sem skjöldur- inn verður sýndur í Lista- mannaskálanum verður hann og til sýnis í Listvinahúsinu. Hæstiréttui mildar dóm Adolphs Bergssonar. Hæstiréttur liefir kveðið upp dóm í sykurseðlafölsunarmál- inu og var dómur undirréttar staðfestur að öðru leyti en því, að Adolph Bergsson var sýkn- aður af einu ákæruatriðinu og þar af leiðandi dregið úr refs- ingu hans. Hlýtur hann, sam- kvæmt hæstaréttardómi, 14 mánaða fangelsi og gert að greiða málflutningslaun skipaðs verjanda síns fyrir hæstarétti, 1200 krónur. Ævifsasa IIEL§ FIASEAS írægasta íslendings síðan á 13. öld. ■<3 Vísindin um áhrif ljóss og sólskins á mannslíkamann eru afrek hans, enda hlaut hann á unga aldri Nóbelsverðlaunin. Niels Finsen var Islendingur, sonur Hannesar Finsens amtmanns, en hann var sonur Ölafs Finsens, assessors við landsyfirréttinn í'Reykja- vik, Hannessonar, biskups í Skálholti, er var sonur Finns Jónssonar, prófasts Halldórssonar í Hítardal. Niels Finsen var stúdent héðan, eins og minningartaflan í Mennta- skólanum segir til um. ÆVISAGA NIELS FINSENS er saga um þrotlausa baráttu manns, sem finnur svo til þjáninga meðbræðra sinna, að hann ann sjálfum sér engrar hvíldar í lífinu. — Gleði hans er að hjálþa öðrum. Einkunnar- orð Finsens voru: Sá hefir lifað vel, sem lítið hefir borið á. Þessi fagra ^aga, sem enginn getur lesið án þess að verða fyrir ógleymanlegum áhrifum, á vafalaust eftir að vekja marga landa hans til að endurskoða líf sitt og lífsviðhorf á þessinn mikilvægu tímamótum. Dr. Gunnlaugur Claessen rítar ítarlegan formála. Á morgun kemur út heildarútgáa af ljóðtun Páls Ölafssonar, vinsælasta alþýðuskáldsins, sem þjóðin hefir átt. Gunnar Gunnars- son skáld á Skríðuklaustri gefur bókina út og skrifar hann um skáldið og list þess merkilega ritgerð. Bókin fæst í fallegu skrautbandi. M sérstökum ástæðum er til sölu ný rafsuðu-eldavél, amerískt Marconi-útvarps- tæki, 2 armstólar (stálhús- gögn), sem nýir. Stofuskápur með skrifborði. Svefn-otto- man, ameriskur, með þrem- ur pullum. Uppl. á Baldursgötu 22, uppi. SHIPAUTCERÐ rn r?TIT|i y~* |-*U~1 Esja Hraðferð til Akureyrar í byrjun næstu viku. Tekið á móti flutningi til Akureyrar og Sigluf jarðar í dag og fram til hádegis á morgun, og til ísafjarðar og Patreksfjarðar árdegis á mánudag. Skipið kemur við á Bíldudal vegna farþega og pósts báðar leiðir. — Pantaðir farseðlar óskast sóttir í dag. ■ ■ VEGGSKJOLDUR Lýðveldishátíðarinnar verður varanlegasta minningin um endúrreisn lýðveldisins. Tryggíð yður hann í tíma. — Pöntunum veitt móttaka í Bókaverzlun Lárusar Blöndals, Skólavörðustíg, sími 5650 og 2339. Skjöldurínn er til sýnis í glugga Morgunblaðsins og hjá Bókaverzlun Lárusar Blöndals. Hý bóh: NFISTAR , fir (msuikI ára lífsbaráttu íslenzkrar atýða Björn Sigfússon, magister, hefir tekið saman i nærri 400 síðna bók marg- víslegt efni, er hann nefnir „neista“, úr sögu Islands fram til 1874, dæmi úr sagnritum, löggjöf, Islendingasögum, dómabókum, annálum, skáld- skap, þingtiðindum, þjóðsögum, til vitnis um lífskjör og baráttu þjóðar- innar, drottnun og yfirgang erlends valds, hróp og eggjan skáldanna, vörn og forustu stjórnmálamannanna. Raunveruleg saga íslands í myndum, saga af viðnámi þjóðarinnar gegnum aldirnar, réttleysi hennar og þjóðfrelsisbaráttu, þjáningum, ótta og vonum, uppreisn hennar og harðnandi kröfum. Bókin skiptist í þessa kafla: Ur álögum gullsins. Uppreisn frá réttleysi og örbirgð. Hinir ofurseldu. „Eigi skal höggva.“ Gegn drottnun og herveldi. Vörn sjálfstæðis. Vörn þegnfrelsis og þjóðfrelsis. Frá upplausnar- skeiði miðaldamenningar. Danslca nýlendan mótast. 1 klóm fáeinna kauphöndlara. Verkafólk, þurrabúðir og leigujarðir. Réttur og refsingar. „Island bundið / þungt ok undir.“ Barizt fyrir landsréttindum. Fjársöfnun og viðskiptaklækir. Atvinnu- þróun og landflótti. Mannréttindi. Alþýðutungan og snikju- siðirnir. Bók þessi er brýnasta eggjan til íslendinga, nútímakynslóðar og æsku landsins, að standa á verði um þjóðfrelsi sitt og lýðveldi. — Björn Sigfússon ritar stuttan inngang að hverjum kafla bókarínnar. Bókin fæst í öllum bókaverzlunum, en aðalumboð hefir Bókabúð Máls og menningar. Bðkaútgáfan Þjóð og saga. Skrifstofur bæjarins og allia bæjaistoínana veiða lokað- ai fiá kL 12 á hádegi föstudaginn 16. þ. m. f Borgarstjórinn. I Jarðarför dóttur minnar og systur okkar, önnu Sigríðar Sigurðardóttur, fer fram þriðjudaginn 20. þ. m. að Breiðabólsstað. Athöfnin hefst með húskveðju að heimili hennar, Kirkjulæk í Fljótshlíð kl. 11 f. h. Bílferðir verða frá Bifreiðastöð Reykjavíkur kl. 6,30 f. h. sama dag. Farseðlar sækist daginn áður fyrir kl. 6. Sigurður Bárðarson og bræður. Þökkum innilega auðsýnda samúð og vináttu við and- lát og jarðarför Sigurþórs Ólafssonar frá Gaddstöðum. Börn og tengdabörn. i

x

Vísir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.