Vísir - 20.06.1944, Qupperneq 3
son raffræðingur og Þórður
Guðmundsson vélstjóri flutt
upp flagg og dregið það á stöng
þar uppi milli óttu og miðs
morguns. Gnæfði það við liim-
in og blakti fyrir vindi sólroðið.
Kl. 10 hófst háfíðarguðsþjón-
usta í kirkjunni. Sóknarprestur-
inn, sr. Óskar J. Þorláksson var
fyrir altari, en bæjarfógeti tal-
aði úr kórdyrum. Daniel Þór-
hallsson söng einsöng að í'æð-
unni lokinni, og aulc þess sem
kirkjukórinn söng undir stjórn
Tryggva Kristinssonar, söng
Karlakórinn Visir, uridir stjórn
Þormóðs Eyjólfssonar, þjóð-
sönginn. Var guðsþjónustan öll
hin hátíðlegasta og var kirkjan
þéttskipuð. Kl. 12,30 söfnuðust
bæjarbúar saman á Hafnar-
bryggjunni og hófst skrúð-
ganga þaðan og að hinum nýja
íþróttavelli bæjarins við Tún-
götu, er fullgerður hafði verið
fyrir þennan dag. Forseti bæjar-
stjórnar, Þormóður Eyjólfsson,
setti hátiðina, en formaður há-
tíðarnefndar, Halldór Kristins-
son héraðslæknir, flutti minni
fullveldisins.
Þá var og hlustað á útvarp
athafnarinnar frá Þingvöllum,
þvi gjallarhorni hafði verið
■komið fyrir á vellinum í þeim
tilgangi. Síðan flutti bæjarfó-
geti, Guðmundur Hannesson,
minni Jóns Sigurðssonar, en
minni Siglufjarðar Sigurður
Kristjánsson ræðismaður og
forstjóri, en aðrar ræður fluttu
þeir Gunnar Jóhannsson og Vig-
fús Friðjónsson.
Karlakórinn Vísir undir stórn
Þormóðs ræðismanns söng milli
ræðna. Að því loknu hófst
íþróttasýning, er Kfiattspyrnu-
félag Siglufjarðar stóð fyrir.
Áður en sú sýning hófst, talaði
Óli Hertervig bæjarstjóri og af-
henti fyrir hönd bæjarstjórnar
hinn nýgcrða völl til afnota, en
formaður Iþróttaráðs, Aage
Schiöth lyfsali, þakkaði fyrir
hönd íþróttamanna.
Um lcvöldið var dansleikur á
vegum hátiðarnefndarinnar að
Hótel Hvanneyri.
Hátiðahöld 18. júní hófust ld.
13 með skrúðgöngu íþrótta-
manna um bæinn út á íþrótta-
völl, en þar fóru fram íþrótta-
sýningar og knattspyrna. 1
knattspyrnu sigruðu ókvæntir
lcvænta menn með 3 gegn
2. Er knattspyrnuleik Islend-
inga lauk, þreyttu leik Færey-
ingar og norskir sjóliðar, er hér
voru staddir, og sigruðu hinir
fyrnefndu með 4 gegn 1. Hefir
vart sézt hér skemmtilegri eða
fimari knattspyrna af hálfu
beggja liða.
Um lcvöldið var svo samkoma
í Bió og þar fluttar ræður, sung-
inn einsöngur og afhent verð-
laun frá íþróttakeppninni og
skiðamótunum í vetur.
Iþróttavöllurinn var fagur-
lega skreyttur fánastöngum allt
í lcring, en vébönd hans voru
oddfánar á streng millum
stanga, en hlið hans í fánalitum
og verðir klæddir sem forn-
menn í litklæði, og efst á ,um-
búnaðinum sat fránn valur með
þanda vængi. Allt var ]>etta gert
af hinum mesta haglcik.
Blöð staðarins minntust öll
dagsins, er þau komu út fyrir
hátíðina og kom Siglfirðingur
út í sérstakri hátíðarútgáfu. Á
forsiðu var mynd af íslenzka
fánanum, en fyrir neðan mynd-
ina erindi úr fánasöng Daviðs
Stefánssonar frá Fagraskógi, er
hann orti árið 1930 og fánasöng
Einars Benediktssónar, „Bís þú
unga Islands merki“. I blaðiriu
er grein um Jón Sigurðsson, á-
samt stórri mynd af honum, rit-
uð af sira Óskari J. Þorláks-
syni og erindi úr kvæðum um
Jón, eftir Gröndal, Steingrím og
Matthías. Einnig voru birt verð-
launakvæði Huldu og Jóhannes-
ar úr Kötlum, grein Ólafs Thors
„Islenzka lýðveldið endurreist",
VISIR
grein Sigurðar Kristjánssonar
alþingismanns, „Þingræði og
þjóðhöfðingjavald“ og grein
Jólianns Hafsteins, framkv.stj.
Sjálfstæðisflokksins, „I dag er
gott að halda hátíð“, grein rit-
stjórans, Sig. Björgólfssonar,
„Þingvellir“, ásamt hálfsíðu-
mynd af Þingvöllum, snjöll
grein. Er allt blaðið hið vand-
aðasta, prentað á góðan pappír.
Hafliði Ilelgason bankastjóri
skar myndamót af fánanum í
linoleum, en Siglufjarðarprent-
smiðja prentaði.
Bje.
65 ára
50 ára.
kaupmaður, varð fimmtugur í
gær. Hann er fæddur að Efra-
seli í Stokkseyrarhreppi 19.
júní 1894, og er þar fram yfir
fermingu, þar til hann flytur
til Reykjavíkur 1912 og er til
sjós í nokkur ár, tekur „mótor-
istapróf“ i Vélstjóraskólanum
1914 og er vélstjóri á skipuni
frá gömlu Duusverzluninni i
tvö ár, 1917, verður hann verk-
stjóri hjá Lofti Loftssyni út-
gerðarm. við fiskverkun o. fl.,
en 1. apríl 1918 eru þáttaskipti
í lífi Guðmundar, því þann dag
stofnar hann verzlun með Birni
Jónssyni fyrrverandi hakara-
meistara og reka þeir verzlun
saman til 1923 að hann stofn-
ar eigin verzlun, sem hann hef-
ir rekið síðan, og sem liefir
blómgast og þróast með hverju
ári, honum og viðskiptamönn-
um hans til ánægju og hags-
hóta, því að hann rekur verzl-
un sína á þann hátt, að við-
skiptavinir hans séu sem á-
nægðastir, og lítur oft á tíðum
þannig út, eins og umhyggja
hans fyrir þeim, sé á þann
veg, sem hann væri að hugsa
um sitt eigið heimili.
Hann er einn af stofnendum
Félags matvörukaupmanna hér
í bæ 1928, og hefir verið for-
maður þess síðustu 10 ár, enda
verið lífið og sálin i þeim fé-
lagsskap, stétt sinni til mjög
mikilla farsældar.
Kosinn var hann sem vara-
maður í stjórn Verzlunarráðs
íslands 1943, og sem aðalmað-
ur nú á síðasta aðalfundi ráðs-
ins.
Han á sæti í stjórn Varðai’fé-
lagsins og hefir verið í Fulltrúa-
ráði Sjálfstæðisfélaganna í
mörg undanfarin ár.
Guðmundur er einn af þeim
mönnum, sem má segja að hafi
að kjörorði: „gjör rétt, þol ei
órétt“, enda var hann einn
þeirra, sem mest og bezt gekkst
fyrir stofnun Frjálslynda safn-
aðarins í Reykjavík 1941, og
hefir liann verið í stjórn safn-
aðarins frá stofnun hans. Við
sem liöfum ált því láni a’ð fagna
að hafa samstarf með horium
þar, höfum gleggst fundið,
hversu ágætan mann Guð-
mundur hefir að geyma, og
leyfi eg mér fyrir safnaðarins
liönd, að árna honum gæfu og
gengis á ókomnu æfiskeiði,
lionum, heimili hans og vinum
til hlessunar.
Guðmundur ei’ kvæntur Önnu
Gísladóttur hinni ágætustu
konu, og eiga þau 4 góð og
myndarleg börn, hefir lijóna
band þeirra verið afar farsælt,
og finnur hver sá, sem á þau
fyrir vini, hversu traust og ör-
uggt þeirra heimili er.
Lifðu heill Guðmundur!
Stefán A. Pálsson.
Kristján Guðlaugsson
Hæstaréttarlögmaðar.
Skrifstofutími 10—12 og 1—6.
Hafnarhúsið. Simi 3400.
Guðmundur frá
MiÖdal mótar
höggmynd af; Lár-
usi Rist.
Lárus Rist íimleikakennari heiðraður
Margar hugsjónir aldamóta-
mannanna hafa rætzt hin síðari
ár, en fárra eins rækilega og
Lárusar Rists.
Þessi fátæki bóndasonur frá
Botni í Eyjafirði brauzt áfram
til menntunar, fyrst í Möðru-
vallaskóla, svo á Askov og síð-
ast í fimleikakennaraskóla í
Kaupmannahöfn. Ilann var
brennandi í andanum fyrir lik-
amsrækt og fimleikum og vildi
endurvekja líkamshreysti for-
feðranna með þjóðinni. Hann
átti á þessu sviði stóra drauma
og miklar hugsjónir og notaði
sínar hljóðu aðferðir til þess að
koma þeim áleiðis. Hann er einn
þeirra manna, sem fyrst og bezt
hafa kennt okkur Islendingum
að meta gildi fimleika, útilífs
og líkamsræktar, og margir
merkustu og áhrifaríkustu
menn þjóðarinnar bafa stundað
fimleika- og sundnám hjá Lár-
usi. Allir getum við verið á-
nægðir með árangurinn: Heitar
sundhallir, sundþrær, fimleika-
hús, skíðaferðir, skíðaskálar og
glæsilegar fimleikasýningar. Að
öllum þessum stórfelldu fram-
förum liafa margir ágætir menn
unnið og forgöngu um þær
flestar haft aðrir en Lárus Rist.
En ég mun ekki einn um þá
skoðun, að áhugi þessara for-
göngumanna sé sprottinn upp
af þróttmiklum frækornum
Lárusar og eldheitum áhuga
hans fyrir sannri likamshreysti,
frá því um aldamót og til þessa
Lárus kenndi ungur sund í
Eyjafirði, síðar um 15 ára skeið
á Akureyri. En leikfimi kenridi
hann í Akureyrarskóla í 25 ár.
Hann var röggsamur kennari
og öllum þótti vænt um hann,
þótt strangur þætti stundum.
Ilann hefir ætíð viljað láta
menn stunda leikfimina líkam-
ans vegna, en síður sem æsandi
keppni með ný met í huga, *—
Sjálfur hefir hann gengið á
undan og ætíð lagt stund á úti-
líf og göngur. Á yngri árum
synti hann yfir Eyjafjörð, en
sextugur gekk liann um Norð-
urland langar dagleiðir á skíð-
um. Lárus mun fyrstur manna
hafa gefið leikfimisfyrirskipan-
ir á íslenzka tungu, sem út af
fyrir sig var vandasamt braut-
ryðjandastarf, og fyrstur sýndi
hann skólaleikfimi opinherlega.
Ilann var ætíð áliugasamur
ungmennafélagi og studdi það
mjög, að félagið á Akureyri
gekkst fyrir byggingu sundþró-
arinnar þar.
Stuttu fyrir stríðið fluttist
Lárus til Suðurlands. Settist að
i Hveragerði og tók að byggja
þar sundþró við heita lind. Að
þessu merkil. starfi geklc hann
með sínum venjulega dugnaði,
safnaði fé og gjafadagsverkum,
en mokaði jafnframt sjálfur og
steypti. öll stríðsárin hefir
sundþró Lárusar verið mörgum
ómetanlega heilsulind. Þar býr
hann nú og kennir sund.
Lárus er þekktur inaður og
vinsæll um land allt, en vina-
flestur er hann á Akureyri, þar
sem hann bjó og starfaði um
aldarfjórðungs skeið. Gamlir
nemendur hans, vinir og sam-
starfsmenn þar og i Reykjavík
liafa, með forgöngu íþróttaráðs
Akureyrar, fengið Guðmund
Einarsson frá Miðdal til þess
að gera brjóstlíkan af honum,
sem setja á upp í Iþróttahöll
Akureyrar. Hefir Guðmundur
lofað að velja því þar veglegan
stað, þegar húsið er fullgert.
Um það er ekki aðeins I-
þróttaráð Akureyrar og fim-
leikamenn, sem senda Lárusi
Rist hlýjar kveðjur á afmælis-
daginn í dag, það gera áreiðan-
lega allir, sem nokkur kynni
liafa haft af honum, og einn
þeirra er eg. —
19. júni 1944.
Sveinbjörn Jónsson
byggingam.
Sextugur í dag:
Björn Bjarnason.
verkstjóri frá Viðey.
1 dag er sextugur Björn
Bjarnason verkstjóri frá Viðey.
Hann er Skaftfellingur að ætt,
en hefir dvalið viða um ævina.
Lengst starfaði hann hjá Kára-
félaginu, fyrst hér í Reykjavík,
en síðar í Viðey. Var hann hjá
félaginu allan timann, sem það
stjarfaði og ávallt sem verk-
stjóri. Var það álit allra, sem
kynntust lionum í þessu starfi,
bæði þeirra, sem hann stjórnaði
og eins hinna, sem hann vann
fyrir, að betri verkstjóra væri
trauðla unnt að hugsa sér.
Mér er minnisstætt, hversu
einstaklega laginn hann var á
að láta alla yinnu ganga fljótt
og leikandi, án þess þó að fólk-
ið fyndi til að vinnan væri erf-
ið, þó að fiskvinna sé talin erf-
iðari en flest önnur vinna. Enda
hefir Björn til að bera flesta þá
kosti, sem prýða mega einn
verkstjóra.
•Veit eg, að í dag munu marg-
ir þeirra, senmotið liafa sam-
starfs við hann um ævina, senda
honum hlýjar kveðjur á þess-
um tímamótum í ævi hans.
Björn hefir nú flutt úr Viðey
og reist sér bú á Langholts-
veg 45 og býr þar nú.
D. Ó.
I.R. fer í dasr til
I«af jarðar.
Um 30—Í0 manns úr íþrótta-
félagi Reykjavíknr fara með
Esju í dag til ísafjarðar.
Eru þetta fimleika floklcar
karla og kyenna, frjálsíþrótta-
menn og liandlcnattleiksflokk-
ur, sem fara í kynningar- og
sumarleyfisför. Munu l.R.-ing-
arnir dvelja á vegum íþrótta-
handalags Isfirðinga, meðan
þeir verða á ísafirði. Farar-
stjóri er Gunnar Andrev, en
Davíð Sigurðssori leikfimi-
kennari verður fimleikastjóri.
Lítill búðardiskur
til sölu.
Rafall
Vesturgötu 2.
Til sölu
2 fólksbílar, Plymouth 1942 og Chevrolet
1939. Meiri benzínskammtur. Ný gúmmí. —
Til sýnis í Miðtúni 18 í dag.
Tilkyimmg
til meðlima
Vörubílstféralélagsins Þréttur.
Allsherjar atkvæðagreiðsla um heimild til vinnu-
stöSvunar hjá meSlimum Vinnuveitendafélags ís-
lands, ef ekki hafa náSst samningar 1. júlí 1944,
fer fram á stöSinni þriSjudag 20. júní, miSviku-
dag 21. júní og fimmtudag 22. júní og stendur
frá kl. 7 f. h. til kl. 8 e. h. hvern dag.
Stjórnin.
Vantar krakka nú þegar til að bera út blaðið
til áskrifenda um
Austurstræti og
Þórsgotu.
DAGBLADIÐ VtSlR.
AÐALFUNDUR
Vélstjórafélags íslands verður haldinn fimmtu-
daginn 22. júní kl. 8 síSdegis í Oddfellowhúsinu
niSri.
MætiS stundvíslega.
Stjórnin.
BEZTAÐ AUGLÝSA í VÍSI
Beztu þakkir fyrir sýnda samúð við andlát og jarðar-
för föður míns,
Guðmundar Guðjónssonar
skósmiðs.
Oliver Guðntundsson.
Sonur okkar,
Steinn Rafnar,
andaðist aðfaranótt 19. þ. nt.
Marta og Jón Bergsteinsson.