Vísir - 14.07.1944, Blaðsíða 2

Vísir - 14.07.1944, Blaðsíða 2
VISIR DAGBLAÐ Útgefandi: BIAÐAÚTGÁFAN VÍSIR H.F. Ritstjórar: Kristján GuSIaugsson, Hersteinn Pálsson. Skrifstofa: Félagsprentsmiðjunni Afgreiðsla Hverfisgötu 12 (gengið inn frá Ingólfsstræti). Símar: 16 6 0 (fimm línur). Verð kr. 4,00 á mánuði. Lausasala 35 aurar. Félagsprentsmiðjan h.f. Sogsvixkjunin. STÆRSTA rafvirkjun sem framkvæmd hefir verið hér i Iandi er virkjun Sogsstöðv- arinnar, sem Reykjavikurbær hefir staðið undir aðallega, en notið 1>6 til styrks ríkisins að þvi er ábyrgð fyrir lánum snert- ir og einnig greiðrar fyrir- greiðslu nú er virkjunin var stækkuð. Var ánægjulegt að heyra i gærkveldi hve gerbreytt viðhorf komu fram i ræðum nú- verandi ráðlierra í samsæti því er bæjarstjóm hélt vegna vígslu viðbótar virkjunarinnar, sem nú er lokið og getið verður á morg- un hér í blaðinu, frá því sem Reykvíkingar hafa átt að venj- ast frá hærri stöðum. Margir ráðamenn hafa litið svo á að Reykjávík væri einskonar baggi á landinu, sem það væri að slig- ast undir. Núverandi forsætis- ráðherra taldi hinsvegar að þvi væri á annan veg farið og nokk- ,ur væri það vottur um sjúklegt ástand, ef ríkisstjórn og bæjar- stjórn Reykjavíkur gætu ekki unnið saman af alhug að fram- faramálum. Því aðeins yrðu stór átök gerð að allir legðu saman. Dómsmálaráðherra lagði enn ríkari áherzlu á þetta viðhorf forsætisráðherra. Hann gat þess jafnframt að oft væri því frekar á lofti haldið, sem miður færi, en hinu sein lof ætti skilið, en því yrðu þeir menn að venjast, sem sætu á stormasöm- um stöðum og áveðra. Hér liefði verið unnið gott og mikið starf, sem komist liefði í framkvæmd þrált fyrir margskyns erfiðleilva, en þvi aðeins hefði þetta áunnist að stjórnarvöld bæjar og ríkis hefðu unnið saman og svo ætti þetta að vera í framtíðinni. Reylcjavik hefði fyllilega unnið til þess að hún væri styrkt til stórra framkvæmda af ríkis- valdinu, — hér byggi þriðjung- ur þjóðarinnar og héðan rynnu ríkistekjurnar að verulegu leyti. Andúð stjómarvaldanna gegn Reykjavikurbæ hefir mörgu misjöfnu til leiðar komið og flestu illu. Hefir þetta orðið til stórtjóns og óhagræðis ekki einvörðungu fyrir bæjarfélagið úeldur engu siður fyrir þjóðfé- lagið i lieild. Dýrasta óbófið er vafalaust það tjón, sem þjóð- inni hefir verið þannig bakað, þótt ékki tjói um að sakast eftir á. Vonandi læra menn þó af dýrkeyptri reynzlu, þannig að samstarf bæjarstjórnar Reykja- víkur, ríkisstjórnar og löggjaf- ans verður betra hér eftir en hingað til. 14. júlí. ÞjóðhAtíðardagur Frakka, — Bastilludagur- inn svonefndi, — er i dag. For- ystuþjóð frelsisins hafa Frakkar allajafna verið í Evrópu frá því er hið illræmda fangelsi var jafnað við jörðu, en þar höfðu áður orðið að sitja ýmsir rnerk- ustu brautryðjendur frelsis og mannréttinda, er háð höfðu bar- áttu gegn einræði og kúgun í margskonar myndum. Enn staf- ar ljóma frá Frakklandi um alla álfu og er þó aðstaða þjóðar- innar önnur og erfiðari en vera skyldi. Frakkar hafa verið her- numin þjóð nú um þriggja ára Ábiirðarnnnisla iir isiorpl í Re^kjavík. Herierð verður hafin gegn lausu drasli og öðrum óþrifnaði á opnum svæðum, við götur og á húslóðum. Viðtal við Ágúst Jósefsson heilbrigðisfulltrúa. j^gúst Jósefsson heilbrigðisfulltrúi hefir tjáð Vísi, að unn- íð væn að því að koma upp áburðarvmnslustöð fyrir sorp bæjarins, og er verið að byggja hana inn við Klepps- veg. Þá verður og gerð gangskör að því að hreinsa allt drasl og allan óþnfnað, sem kann að fyrirfinnast á opnum svæð- um, götum eða einkaíbúðum manna. hverra óvæntra verðmæta og mun stundum hafa hirt sitt af HugsaÖ er að áburðarvinnslu- stöðin verði inn við Kleppsveg, skammt fyrir austan Fiski- m j ölsverksmiðj una. Er verið að byggja sérstaka skúrbyggingu, þaúr sem vinnsl- an á að fara fram. Verður sorp- ið þar aðgreint þannig, að járnarusl og annað, sem ónot- hæft er til áburðarvinnslu, verð- ur tekið frá, en hitt allt hirt og. unnið úr því. Þessi tilraun er gerð samkv. tillögu Ásgeirs Þorsteinssonar, verkfræðings, er mun og hafa yfirumsjón með verkinu. Svipaðar tilraunir hafa verið gerðar með áburðarvinnslu úr sorpi í Englandi og víðar er- lendis og borið góðan árangur, að því er bezt verður vitað. önnur veigamikil ráðstöfun, sem heilbrigðisstjórn bæjarins hefir þegar samþykkt, er að láta flytja burtu allt skran og dót, sem finnst í reiðileysi á opnum svæðum, á götum og meðfram götum í bænum. Ennfremur verður gerð gangskör að því, að hverju af fánýtu rusli, sem jafn- an hefir verið til óþrifnaðar að- eins, og auk þess stafað af því allskonar smithætta. Það þeim mun fremur, sem sorphaugarn- ir eru ein helzta gróðrarstía rottunnar í bænum. Er nú verið að afgirða sorphaugana, en á meðan er höfð varzla þar bæði á nóttu og degi. Rottufarganið kvað heilbrigð- isfulltrúinn vera með allra mesta móti í bænum og við- komu rottunnar ískyggilega mikla. Hefir meindýraeyðirinn þó gert allt, sem í hans valdi hefir staðið, til þess að eyða henni, bæði með eiturefnum og svo líka með dælingu gass í ýms helztu rottubæli. Er rottan nú orðin útbreidd um flestar byggðir landsins og stöðugt að berast kvartanir um hana, þar sem hún hefir ekki þekkzt áður, jafnvel langt upp til sveita. Þetta mikla rottufargan mun sína til þess, a. m. k. liér í bæn- um, að menn fylla lóðir sínar með allskonar drasli og dóti og hirða ekki um þæi', en nú verður gerð herferð gegn þess- um ósóma, enda full þörf á, bæði vegna dótsins og rott- unnar. hirða allt dót, sem á einn eða ! ekki hvað sízt eiga að rekja rót annan hátt er til óþrifnaðar á einkalóðum manna. Mun dót þetta verða hirt og flutt i eina allsherjar ruslakistu, eftir að hlutaðeigendur hafa verið að- varaðir. Þá er og í ráði að gera her- ferð á gamla kofaræfla, timbur- brak og járnarusl, sem jafnvel árum saman hefir legið inni á lóðum manna, til stórlýta, ó- þrifnaðar og leiðinda, án þess að nokkuð hafi vérið að gert. Nú hefir gatnahreinsun með hestvögnum verið lögð niður, en bifreiðar komið í staðinn. Eftir þeirri reynslu, sem þcgar hefir fengizt, hefir þessi ný- breytni þegar borið góðan ár- angur. Enn eitt nýmæli er það, að búið er að loka sorphaugunum á Grandanum fyrir allri umferð og búið að banna tínslu úr þeim. Áður var það algengt, að fólk fór þangað til að leita ein- skeið, en þjóðin hefir háð bar- áttu sína innanlands sem utan, en saga þeirrar baráttu verður væntanlega ekki skráð til fulls fyrr en að stríðinu loknu. Nú er að rofa til i Frakklandi. Að vísu er Ijóst að margir og miklir erf- iðleikar eru framundan, en menn lifa i þeirri von að þeir verði færri og minni en jafnvel er ástæða til að ætla eins og sak- ir standa í dag. Nú er barist gegn sama ein- ræðinu og gert var fyrir liðlega hálfri annari öld. Einræðið er ávállt samt við sig þótt það nái sér misjafnlega niðri. Nokkurra ára kúgun mun ekki buga frönsku þjóðina. Hún hefir staðist þyngri i’aunir og meirÞ átök. Við íslendingar eigum þessari þjóð að þakka þá þjóð- arvakningu, sem nú hefir loks leitt til algers sjálfstæðis. Við liöfum um margra alda skeið átt við hana vinsamleg skipti. Enga ósk eigum við heitari frönsku þjóðinni til lianda nú í dag, en að hún megi fá frelsi sitt og njóta þess óskerts uin ókomin ár. Útvarpið í kvöld. KI. 19.25 Hljómplötur: Tónverk fyrir píanó og hljómsveit eftir d’- Indy. 20.30 fþróttaþáttur. 20.50 Hljómplötur: Söngvar úr frönsk- um óperum. 21.00 Erindi: Þjó'Öhá- tíðardagur Frakka (Eiríkur Sigur- bergsson viÖskiptafræÖingurj. 21.30 Hljómplötur: Septett eftir S,aint- Saéns, o. fl. 22.00 Symfóníutónleik- ar (plötur) : a) „Fö‘ÖurlandiÖ“, for- leikur eftir Bizet. b) Symfónía í d-moll eftir Cesar Franck. Frásögn um stækkun rafstöðvarinnar við Ljósafoss verður að bíða þangað til á morgun. ÍS.Í. tileinkað göngu- lag. Iþróttasambandi Islands hefir borizt göngulag frá Árna Björnssyni tónskáldi, sem er til- einkað sambandinu. Þessi ungmenna- og íþrótta- sambönd hafa gengið i Í.S.Í.: Ums. Borgarfjarðar gekk end- anlega i sambandið i júnímán- uði, en í því eru þessi 6 ung- mennafélög: Baula, félagatala 40; Björn Hitdælakappi, félaga- tala 40; Borg, félagat. 30; Brú- in, félagat. 45; Dagrenning, fé- lagat. 54 og Egill Skallagrims- son, félagat. 47. Áður voru i I. S.í. félög í Borgarfirði, en alls eru félögin 11, með 624 félags- menn. Formaður er Jón Björns- son frá Deildartungu. Ums. Skagafjarðar hefir gengið i sambandið. í þvi eru 8 félög, með 311 félagsmenn. Formaður er Guðjón Ingimundarson. — Nú eru sambandsfélög Í.S.Í. 175 að tölu, með yfir 20 þús. félags- menn. Glímubók. Stjórn Í.S.Í. hefir ákveðið að gefa út glímubók I. S.l. Hennar er orðið mjög þörf, með hinum vaxandi glímu- áhuga um land allt. Handknattleiksmót kvenna. Landsmót Í.S.Í. í handknattleik kvcnna úti fer fram í Hafnar- firði og hefst 23. júlí. íþróttafé- lögin í Hafnarfirði sjá um mót- ið. Umsóknarfrestur er til 15. júlí. f Staðfest Islandsmet, Stjórn í. S.í. hefir 3. júli staðfest eftir- farandi íslandsmet: 1. Hástökk án atrennu: Árangur 1,51 m. Sett af Skúla Guðmundssyni (KR) 3. júní ’44. 2. Hástökk með atrennu. Árangur: 1,93 m. Sett af Skúla Guðmundssyni (KR) 19. júní ’44. 3. Kúluvarp, betri hendi. Árangur: 15,32. Sett af Gunnari Huseby (KR) 19. júní ’44. Næturakstur: Litla bílastö'Sin. Simi 1380. Leikfélag- Reykjavíkur auglýsir í blaðinu í dag, aÖ út- borgun á ógreiddum reikningum á Leikfélagið frá s.I. starfsári, verði í Iðnó í dag, þann 14. júlí milli kl. 5 og 7- og Merkileg:t rit nm §íld. Árni Friðriksson fiskifræðingur hefir fyrir nokkuru samið mikið og merkilegt rit um síldina, sem nú er verið að ganga endanlega frá og er prentað á Siglufirði. Er hér um að ræða tæmandi vísindalegt rit um síldina, líf hennar og byggingu, síld- veiðar og síldárrannsóknir, og síðan dregnar fram ýmsar álykt* anir, er síldaratvinnuveginum mætti að gagni koma. lesa i Reykjavík til að hægt sé að bera saman við gögn og heimildir sem þar er geymt. Ætlast er til að með þessari bók sé lokið þætti i síldarrann- sóknum okkar og verður nú nauðsynlega að hefja náið sam- starf við aðrar þjóðir og þá fyrst og fremst Norðmenn, m. a. til að merltja síldina, eins og nú er farið að gera í Alaslca, en i þeim tilgangi lceypti eg 10.000 sildar- merki i Seattle til að hafa allt tilbúið þegar þar að kemur. Þessari nýju merkingarað- ferð er þannig fyrir komið, að lítilli málmplötu er stungið inn í kvið sildarinnar, en til þess að merkin endurheimtist þegar sildin veiðist, þarf hver verk- smiðja að hafa segul, sem dreg- ur þau úr mjölinu, en á hverju merki letrað „ísland“ auk talna og stafa, sem gerir það að verk- um, að auðvelt er að sjá hvar síldin er merkt. Fjöldi mynda, línurita korta fylgir lesmálinu. Árni Friðriksson liefir skýrt Vísi svo frá um þessa bók- arútgáfu: „Eg liefi unnið að þessu riti frá þvi i byrjun stríðsins og gat eg skilað öllu handritinu i prent- smiðju áður en eg fór til Ame- ríku. Búið er að setja allt handritið nema sumt af töflunum, en þær eru um 70. Aðalviðfangsefni mitt er að koma bókinni út óg mun eg byrja á því að lesa fyrstu próförk fyrir norðan, en eina próförk verður nauðsynlegt að K. R. sigraði í Allsherjarmótinu í gærkveldi lauk Allslierjar- móti í. S. í. K.R. sigraði á mót- inu og hlaut 137, stig. Í.R. fékk 90 stig, Ármann 43 stig og F.H. 42 stig. Hlaut því K.R. tililinn: „Bezta íþróttafélag íslands i frjálsum íþróttum“. í gærkvehli fór fram keppni i 10,000 m. hlaupi. Kepptu þar aðeins tveir menn, Indriði Jónsson, K.R. sigraði, rann hann skeiðið á 36,49,8 mín., en hinn keppand- inn, Steinar Þorfinnsson, Á., var 39,33,6 mín. Þá var og keppt í fimmtar- þraut í gærkveldi. Þar sigraði Jón Hjartar, K.R. með 2562 st. Bragi Friðriksson K.R. lilaut 2149 stig. Skúli Guðmundsson, K.R., hlaut flest stig á mótinu eða 26, Oliver Steinn F.H., hlaut 25 og Finnbjörn Þorvaldsson, Í.R. 24 stig. Að keppni lokinni sleit for- seli Í.S.Í., Ben. G. Waage, mót- inu með ágætri ræðu. Minntist liann m. a. á þá menn, sem skrá létu sig til leiks en mættu ekki. Taldi hann, slíka framkomu ó- verjandi. Allsherjarmót Í.S.Í. er veiju- lega liáð annað hvort ár nú, en frá 1921—1924 var það háð ár- lega. íþróttafélögin skiptast á um að sjá um mótið og gerði K.R. það að þessu sinni. Verður eigi annað sagt en að stjórn mótsins liafi farið félaginu vel úr hendi. K.R. hefir nú unnið mótið 9 sinnum, eða óslitið síðan 1928, Ármann 3 sinnum og Í.R. 1 sinni. Ólafur Briem skrifstofustjóri er sevtugur í dag. Hann hefir gegnt margvís- legum trúnaðarstörfum um ævina, bæði fyrir einkafyrir- tæki og liið opinbera. Hefir hann leyst hvert starf með prýði af hendi og nýtur fyllsta trausts allra, sem til hans þekkja. Ólaf- ur er ljúfmenni og drengur góð- ur á alla lund. Scrutator: 0» QcuddvL aAmjwwunjtyS Munnharpa. J. E. sendir blaöinu eftirfarandi hugleiÖingar: Flestir Islendingar, sem nú eru miöaldra og þaöan af yngri, munu í æsku sinni hafa leikiö þá list aS „spila á munn- hörpu“. Kann aö vera aö munn- harpan veröi ekki talin til meiri háttar hljóöfæra frekar en „drag- garganið“, sem frændur okkar Norömenn og fleiri þjóðir kunna þó vel aS meta. Enginn íslending- ur mun hafa náö verulegri leikni á munnhörpu, en nú um daginn hlustaSi. eg í útvarpinu á einstæS- an leik á munnhörpu, sem vel mætti telja til listar. Ungur ÞjóiS- verji, Ernst Schickler, lék þá á munnhörpu þannig, að unum var á aS hlýSa. Hefi eg aflaö mér þeirra upplýsinga um hann, aö barn aö aldri lagöi hann stund á rnunn- hörpuleik, en hefir svo þjálfað sig í listinni áfram og náö mikilli leikni. Ep hann dvaldi í Þýzkalandi lék hann þar á grammófónplötur og er það allnokkur viöurkenning á kunnáttu hans. Mig skortir kun- áttu til að ræöa máliö „tónfræði- lega“, en þótt eg hafi aldrei leikiö vel á munnhörpu, gekk eg í endur- minningu lífdaganna er eg hlýddi á leik hans, og þaö eitt er víst aö börn hafa gaman af aö hlýöa á hann oftar en þau hafa átt leost á til þessa. Þaö er veraldleg og sál- fræöileg staöreynd aö börn hafa gaman af margskyns „hljómlist", sem fullorönir kunna ekki jafnvel aö meta, og þaö er vist aö þeim geöjast betur aö hamoniku og munnhörpuleik en ýmsum full- orönum og þá einkum tónlistar- mönnum. Ætti aö taka tillit til þessa í barnatímunum og íþyngja ekki börnunum um of meö þungri tónlist. Hana læra þau aö meta síöar. Þótt harmonika og munn- harpa séu taldar til óæöri hljpö- færa kunna börnin bezt aö meta þetta tvennt, af því að þetta eru fyrstu hljóöfærin, sem börnin læra mörg aö leika á og þekkja bezt og úti um allar sveitir eru þetta hljóö- færin, sem mest er notast viö á skemmtunum enn í dag. OLeikni Schicklers orkar ekki tvímælis og nálgast vafalaust list. Ætti aö fá hann oítar til aö leika í útvarpiö, bæöi ryrir börn og fulloröna. Þaö myndi veröa þegiö meö þökkum. Eg hefi átt tal viö marga menn, sem mcr éru samdóma um þetta og skrifa eg þetta einnig í þeirra 11111- boöi. Geröið. Allir Reykvíkingar vita viö hvað er átt þegar „Geröiö" er nefnt. Þar er um að ræöa einhvern fegursta trjágarö á Islandi, sem ráöist var í aö rækta fyrir rösk- lega 20 árum, en er nú sérstæö prýöi Hafnarfjaröar, sem aö- komumenn sækjast mjög eftir aö skoöa. Hentuga^ mun að skoöa garðinn frá kl. 2—6 e. h. virka daga, en á sunnudögum mun hann einnig vera -opinn frá kl. 10—12 f. h. Bæjarstæði Hafnar- fjaröar er einkennilegt mjög, enda bærinn byggður að mestu í hellu- eða apal-hrauni. Stærstu hraun- bollarnir voru valdir fyrir garö- stæðið, en þar var skortur á hæfi- legum jarövegi og varð því i upp- hafi aö aka þangað allmikilli mold til uppfyllingar. Otalin eru hand- tökin, sem komið hafa „Geröinu" i slíkan blóma og ótalin fjár- framlög einstaklinga, en alltaf er unnið að frekari framkvæmdum. Er ætlunin aö stækka Geröiö um helming eöa allt aö því og bann- að er að byggja eða endurnýja hús, sem standa næst í kringum þaö. Eru Hafnfirðingar stórhuga í' þessu efni sem fleirum • og spáir það góöu um, framtíö bæjarins. íslexizk veizlnnarsaga Þöi>f hugmynd. Einar Ásmundsson hrl. kem- ur frarn með þá athyglisverðu hugmynd í síðasta hefti Frjálsr- ar verzlunar, að Verzlunar- mannafélag Reykjavíkur og Verzlunarráð Islands taki hönd- um saman um það, að láta skrá , íslenzka verzlunarsögu. „Eg, hika ekki við að full- yrða‘, segir Einar i greinargerð sinni, „að engri stétt væri það jafn þýðingarmikið, að eignast sögu sína vel ritaða og einmitt verzlunarstéttinni. Engin stétt hefir hlotið jafn liarða og mis- jafna dóma og verzlunarstéttin. Saga hennar hefir verið misskil- in og rangfærð meira en ferill nokkurrar annarrar stéttar. Engin stétt í landinu hefir orð- ið fyrir jafn hörðum árásum og hatrömmum. Tilveruréttur þessarar stéttar hefir verið vé- fengdur af miklum fjölda manna.“-------— Á öðrum stað segir hann: „Ef litið er aftur i tímann og at- hugað það ástand, sem verzlun landsmanna var í fyrir svo sem einni öld, eða jafnvel aðeins þremur aldarfjórðungum, þá skilst hve framfarirnar hafa verið miklar. Saga þess, livernig verzlunin fluttist inn í landið og komst algerlega í innlendra manna hendnr, hlýtur að vera mjög heillandi viðfangsefni fyr- ir sagnfræðing. Þessi saga er hetjusaga, hún er einn dýrmæt- asti þátturinn í sögu allrar þjóð- arinnar. Afrelc íslendinga i þess- um málum urðu undirstaða svo margs og margs, sem síðar hefir verið framkvæmt. Sjálfstæðis- viðurkenning sú, sem við öðl- uðumst 1918, hefði verið tor- fengin, ef verzlun landsmanna hefði verið í erlendra höndum. t Menningarlegar framfarir í landinn hafa að vcrulegu leyti byggzt á þessum sigri yfir hin- um erlendu keppinautum.“ Verzlunarráðið mun á sínum tíma hafa skipað nefnd til að undirbúa skráningu og útgáfu íslenzkrar verzlnnarsögu, en frá þeirri nefnd hefir lítið eða eklc- ert frétzt.

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.