Vísir - 19.07.1944, Side 1
1
Ritstjórar:
Kristján Guðlaugsson
Hersteinn Pálsson
Skrifstofun
Félagsprentsmiðjan (3. .hæð)
Ritstjórar j Blaðamenn Slmii
Auglýsingar' ' 1660
Gjaldkeri 5 llnur
Afgreiðsla
34. ár.
Reykjavík, miðvikudagínn 19. júlí 1944.
160. tbl.
Bre'tar hefja stór-
sókn í Normandie.
Komnir á aisirc
anstan Ornefljóts.
JJretar og Kanadamenn hófu
stórsókn í gær og eru nú
komnir yfir á sléttuna austan
Orne, þar sem hin ágætustu
skilyrSi eru til skriðdrekabar-
daga. Montgomery lýsti yfir
því í gærkveldi, aS hann væri
prýðilega ánægður með ár-
angurinn fyrsta dag sóknar-
innar. Yfir 2000 sprengju-
flugvélar veittu landhernum
ómetanlegan stuðmng í gær.
Sóknin hófst með árásum
1000 Lancastei1- og Halifax-
sprengjuflugvéla á lið og stöðv-
ar Þjóðverja. 500 sprengju-
flugvélar gerðu stundarfjórð-
ungs árás á stálverksmiðjur
suðvestur af Caen, þar sem
Þjóðverjar hafa varizt af miklu
kappi, en aðrar 500 sprengju-
flugvélar réðust á hermanna-
•og birgðastöðvar í skógi fyrir
austan Caen. Ltvarpsfvrirlesari
í London sagði í gærkveldi, að
þessar árásir hefðu verið svo
ægilegar, að hvorld hann né
hlustendur hans gætu gert sér
nokkra grein fyrir því. Eftir
árásina á skógarstöðvarnar
grufði reykhaf yfir skóginum,
en í miðju reykhafinu mátti
glöggt sjá hátt úr lofti, að hver
stórsprengingin varð af annari.
Alls var varpað niður 5000
smálestum sprengna í árásum
þessum.
Nokkru síðar réðust amerísk-
ar sprengjuflugvélar á lið og
stöðvar Þjóðverja fyrir austan
vígstöðvarnar og var varpað
hundruðum smálesta sprengna.
Loks fóru sprengjuflugvélar af
meðalstærð til árása, eða alls
yfir 2000 sprengjuflugvélar, er
héldu óhindrað áfram árásum.
Þýzki flugherinn bærði ekki á
sér.
Hncona íallin
Pólsku hersveitirnar, sem í
gær brutust gegnum varnir
Þjóðverja suðvestur af An-
cona, hafa nú hertekið þenn-
an mikla hafnarbæ. Lítur út
fyrir, að varnir Þjóðverja
hafi bilað skyndilega, því að
Pólverjar tóku fjöldamarga
fanga og mikið herfang.
Ibúatala Ancona er 80 þús.
Þar er flotastöð, skipasmíð^-
og viðgerðarstöðvar o. s. frv.,
og í nánd við borgina eru á-
gætir flugvellir.
Bandamenn rjúfa varnir
Þjóðverja við Livorno
og Ancona.
jpimmti herinn á Italíu vann
mikilvægan sigur í gær, er
hann rauf varnir ÞjóSverja
norðaustur af Livorno, og tók
Pontedere. Bær þessi stend-
ur við ána Arno og er 32 km.
frá Livorno og 20 km. frá
Pisa, sem er höfuðstöð vest-
an megin í varnarlínu þeirri
þvert yfir Ítalíu, sem svo
mjög hefir verið umtalað í
seinni tíð, en hinar eru Flór-
enz og Rimini á austurströnd-
inni. Geti Þjóðverjar ekki
varizt þarna, er engum vafa
Beaufort-flugvélar á flugi yfir Rabaul í Nýja-Bretlandi.
St. Lo fallin
I gær var birt aukatilkynn-
ing frá aðalbækistöð Omars
Bradley hershöfðingja, yfir-
manni amerísku hersveitanna í
Normandí, þess efnis, að
Bandarikjamenn hefðu tekið St.
Lo, aðalsamgöngumiðstöðina,
þar sem Cherbourgskagi byrj-
ar, en í St. Lo, sem á venju-
legum tímum hefir 12.000 íbúa,
mætast 12 járnbrautir og þjóð-
vegir. Er það mjög mikilvægur
sigur, sem Bandaríkjamenn
hafa unnið með töku St. Lo.
Búlgrarar lofa
BnssDm
ölln fögrn.
Að því er United Press hefir
fregnað frá Ankara hefir búlg-
arslca stjórnin nú svarað orð-
sendingu þeirri, sem sovét-
stjórnin sendi lienni til þess að
mótmæla því, að hún leyfði
þýzkum herskipum og flugvél-
um að í'áðast á skip Rússa frá
bækistöðvum í Búlgaríu. í svari
sínu kveðst búlgarska stjórnin
ætla að koma í veg fyrir, að
þetta komi fyrir aftur, og einn-
ig lofar hún að stöðva allan á-
róður í garð Rússa.
Hermálaráðlierra Bretlands
tilkynnti i gær, að enn liefðu
borist fregnir um, að brezkir
hermenn hefðu verið teknir af
lífi i Þýzkalandi, eða 33 alls.
27 þeirra var gefið að sök að
hafa reynt að flýja.
Sótf fram á 200 km. víglínu.
undirorpið, aS þeir munu
hörfa undan norður fyrir Po,
en vafalaust reyna þeir að
tefja fyrir Bandamönnum á
undanhaldi sínu. MeS töku
Pontedera eru Bandamenn
næstum búnir aS umkringja
Livorno.
I fregnum frá Ítalíu síSdeg-
is í gær var einnig sagt frá
því, aS pólskar hersveitir
hefSu brotizt alveg í gegnum
varnir ÞjóSverja suSvestur af
hafnarborginni Ancona viS
Adríahaf.
gtalin rauf í gærkveldi þögn-
ina um sókn þá milli Lutsk
og Tarnopol, sem ÞjóSverjar
hafa veriS aS tala um í fregn-
um sínum undanfarna daga.
I dagskipan Stalins um þessa
sókn segir, aS í þriggja daga
sókn hafi Fyrsti Ukraínuher-
inn sótt fram í áttina til Llow
(Lember) 30 kílómetra á
200 kílómetra víglínu og tek-
iS 600 bæi og þorp. — 128
þýzkar flugvélar voru skotn-
ar niSur.
Milli Grodno og Kaunas, vest-
an Njemenfljóts, sækja Rússar
fram og stefna í áttina til Maz-
uirsku vatnanna í Austur-
Prússlandi. Sækja Rússar fram
þar á 110 kílómetra víglínu.
Þjóðverjar veita harðnandi
mótspyrnu á þessum slóðum og
tefla fram öllu því liði, sem
þeir geta, en hafa þó hvergi
getað stöðvað Rússa. Fregnir
frá hlutlausum löndum herma,
að mikill kviði sé ríkjandi í
Austur-Prússlandi. I Danzig
hefir safnazt saman mikill grúi
flóttamanna og skip er í för-
um dag og nótt til Königsberg,
til þess að flytja þaðan verlt-
smiðjuver, verðmæta muni,
skjalasöfn og jafnvel stórgripi.
. Sókn Yeremenko inn í Lett-
land gengur að óskum. Sótt er
fram á breiðu svæði og hafa
margir bæir verið teknir, þeirra
á meðal bæir* við hrautina til
Riga.
Varnirnar
í Austur-Prúslandi.
Fréttaritari United Press í
Moskvu símar, að rússneska
herstjórnin muni gæta þess vel,
að hefja ekki sókn inn í sjálft
Austur-Prússland, fyrr* en öll-
um undirhúningi sé lokið. Ilafa
Þjóðverjar treyst aðstöðu sína
af fremsta megni á undanförn-
um mánuðum, ejkanlega í nánd
við Mazurisku vötnin, og að
sjálfsögðu draga Þjóðverjar að
sér allt það lið, sem þeir geta til
varnar Austur-Prússlandi, i
von um, aðeins fari oog þegar
Ilindendburg sigraðist á Rúss-
um í rostunni við Tannenberg,
en það er við annan rússneskan
her að eiga nú en þá, segir
fréttaritarinn.
Skipasamgöngur milli
Bretlands og Svíþjóðar
Ilraðskreið brezk smáskip úr
brezka kaupskipaflotanum hafa
lialdið uppi samgöngum milli
Bretlands og Svíþjóðar, þrátt
fyrir hafnbamf Þjóðverja, að
þvi er Reuterfréttastofan til-
kynnir. A skipum þessum eru
engir skipverjar yfir fertugt, og
flestir 20—25 ára, og sérstak-
lega þjálfaðir lil þessara ferða.
Skip þessi.hafá flutt vörur, sem
ekki þótti ráðlegt að senda loft-
leiðis, og eins hafa þau flntt
farþega, þeirra meðal unga
Norðmenn. Skipin eru byggð
sérstaklega til þessara ferða. Á
hverju skipi er 20 manna áhöfn.
— Að eins eitt af skipunum lief-
ir týnst.
pjooverjð
i norinaodi 156,000.
Seinustu fregnir frá Nor-
mandí herma, að harðir bardag-
ar geisi á sléttunum fyrir aust-
an Caen og í Vaucelles fyrir
sunnan Caen og þar i grennd.
Um það bil helmingur Vaucelles
er á valdi bandamanna og barist
á götunum af ákefð í suðurhlut-
anum. Montgomery er hinn á-
nægðasti yfir árangrinum til
þcssa og segir manritjón banda-
manna hverfandi. Bandamenn
hafa alls tekið 60.000 fanga í
Normandí frá D-degi. Mann-
tjón Þjóðverja, fallnir, særðir
og fangar, er varlega áætlað
156.000'.
Bandaríkjamenn höfðu lokið
Eisenhower og' Montgomery.
lþróttaför
Ármarms
Fimleikaflokkar Ármanns,
sem verið hafa á ferðalagi um
Vestfirði undanfarinn hálfan
mánuð, komu heim siðastliðið
sunnudagskvöld. Flokkar þeir,
sem tóku þátt í förinni, voru ,
úrvalsflokkar karla og kvenna,
iundir stjórn Jóns Þorsteinsson-
ar íþróttakennara.
Flokkarnir sýndu fimleika á
13 stöðum, en alls voru haldn-
ar 15 sýningar (2 á Isafirði og
Patreksfirði).
Allsstaðar ]jar sem flokkarnir
komu, fengu þeir hinar beztu
viðtökur og önnuðust ung-
menria- og íþróttafélög á stöð-
unnm móttökur. Var flokkun-
um Iialdið samsæti allsstaðar,
þar sem þeir komu.
Sögulegasta þátt ferðalagsins
má telja, að íþróttafólkið fór
riðandi yfir Þorskafjarðarheiði
á 37 hestum, og var það Magn-
ús bóndi á Bæ i Króksfirði, sem
hestana útvegaði.
Jens Guðbjörnsson formaður
Ármanns og fararstjóri þessar-
ar ferðar, bað blaðið að flvtja
öllum þeim mörgu, sem stuðl-
uðu að því að ferðin varð
íþróttafólkinu ánægjuleg og ó-
gleymanleg, beztu þakkir sínar
og annara þátttakenda. Sérstak- !
ar þakkir bað Jens um að flytja
skipshöfnunum á Súðinni og
Sæbjörgu, en með þessuin skip-
um ferðuðust Ármenningar á
ferð sinni. ;
hann til mikils trafala fyrir um-
ferðina.
Nú er í ráði, ef leigusamning-
ar takast um lóðina, að úthluta
liverjum einuní bifreiðaeiganda,
sem þess óskar, s'tæði fyrir bif-
reið sína á IJótel íslands lóðinni,
gegn einhverju álcveðnu gjaldi.
Hefir hann þá sinn ákveðna
blett eða stæði á lóðinni, sem
öðrum yrði þá jafnframt óheim-
ilt að nota.
Skarlatssóttin
í rénum.
Um síðastliðin mánaðamót
og í byrjun þessa mánaðar bar
meira á skarlatssótt hér í bæn-
um en venja hefir verið til nú
um nokkurt skeið, og skýrði
Vísir frá því á sínum tíma.
í morgun átti Visir tal við
Magnús Pétursson héraðslækni
og tjáði hann hlaðinu, að skar-
latssóltin væri núna i rénun,
þannig að eklvi væri meiri hrögð
að henni en venjulega. Að öðru
leyti er heilsufarið i hænum
gott.
Hótel Island-lóðin
bifreiðastæði.
Komið hefir til mála að bær-
inn taki Hótel íslands lóðina á
leigu fyrst um sinn og noti hana
fyrir bifreiðastæði.
Svo sem kunnugt er, stendur
alltaf dags daglega mikill fjöldi
bifreiða á fjöfförnustu götum
miðbæjarins, sem sem Austur-
stræti og Hafnarstræti og er
hertöku St. Lo í gærkveldi.
Manntjón Þjóðverja i orustunni
var riiikið og Bandaríkjamenn
tóku mildð herfang,
Flugvélar bandamanna gerðu j
7350 flugvélaárásir í gær, og j
var loftsókninni haldið áfram j
i nótt og í mörgun af miklu
kappi. Ráðist var á margar
stöðvar í Frakklandi, olíustöðv-
ar i Þýzkalandi og á Köln og
Berlín.
Þjóðverjar slvýra frá árásum
í morgun á Suðvestur- og Mið-
Þýzkaland.
Eldsvoði
s. 1. noti
Maður brenxúst allmikið
Kl. 2 mínútur yfir 12 síðastl.
nótt var slökkviliðið kvatt inn
á Laugaveg 53B. Hafði kviknað
þar í þakhæð hússins og stóð
eldur og reykur út um dyr og
glugga, er slökkviliðið kom á
vettvang, og virtist þá eldur
vera kominn i allt þakið. —
Kl. 45 mín. yfir 12 var búið
að ráða niðurlögum eldsins, en
þá var öll þakhæð hússins eyði-
lögð af eidi, en skemmdir
munu hafa orðið allmiklar ú
nærliggjandi íbiiðum hússins af
vatni og reyk.
I þakliæð hússins bjó Jóhann
Sigurðsson ásamt konu sinni
og barni. Misstu þau alla húslóð
sina i eldinum, en Jóhann sjúlf-
ur brenndist mikið á haki, og
var hann fluttur á sjúkrahús.
Ekki var kunnugt um upptölc
eldsins í dag.
Félag Vestur-íslending-a
heldur fund í Oddfellowhúsinu
n.k. föstudag kl. 8,30 e. h. Próf.
Richard Beck verður heiðursgest-
ur á fundinum. — Á fundinum
verður sameiginleg kaffidrykkja,
en siðar verður dasað. Vestur-ís-
lendingar, sem hér eru staddir eru
sérstaldega boðnir á fundinn. —
Aðgöngumiðar fást í verzl. Kjöt
og Fiskur, Baldursgötu og skal
þeirra helzt vitjað fyrir n.k. fimmtu-
dagskvöld.