Vísir - 01.08.1944, Síða 3
VISIR
Berchtesgaden
verðnr þrauta*
virki Hitlers
Grein sú, sem hér fer á
eftir, er rituð af Walter
Farr, Stokkhólmsfrétta-
ritara Lundúnablaðsins
Daily Mail.
Hitler og nánustu samstarfs-
menn hans í stjórnmálum og
hernaðarmálefnum eru að und-
irbúa áætlanir um það, hvern-
ig halda megi uppi vörnum um
ótakmarkaðan tíma, þegar svo
verður komið, að herir Þýzka-
lands verða á barmi glötunar-
innar.
Kunnugir menn i Stokkhólmi
telja, að þessar séu uppistöður
áætlana nazista:
1) Hersveitir, sem reynzt
hafa öðrum fremur hraustar
og hugprúðar, verða valdar til
þess að mynda einskonar „mót-
spyrnu-kjarna“ í Þýzkalandi
sjálfu, einkum í hinum hálendu
héruðum landsins, og einnig i
hernumdu löndunum. I þessum
hersveitum verða ofstækis-
fyllstu aðdáendur Hitlers, og
verða þær látnar heyja barátt-
una á skæruflokkavísu, en þó
með þýzku sniði.
2) Hálendið umhverfis Salz-
hurg, þar sem Berchtesgaden
er, verijur aðalmiðstöð þessarar
þautavarnar, en aðrar mið-
stöðvar verða hingað og þang-
að um Alpafjöllin. Hitler og
aðrir helztu forsprakkar naz-
ista, auk Mussolinis og ýmissa
erlendra kvislinga, ætla að
forða sér til þessa liluta Ev-
rópú, þegar allt hrynur og
þeim verður ekki vært annars
staðar.
Nægar birgðir.
Þeir gera sér vonir um að
geta varizt árum saman, ef þeir
beita sömu aðferðum og skæru-
flokkar VíSs vegar um Evrópu
hafa beitt gegn þeim sjálfum.
3) Sagt er að stórkostlegar
birgðir af vopnum, skotfærum
og alls konar nauðsynjum hafi
verið fluttar til þessara héraða
og einnig sé verið að undirbúa
smíði útvarpsstöðva þar.
4) Þarna í fjöllunum á líka
að verða miðstöð leynistarfsemi
Hitlerssinna um alla Evrópu.
Er þegar hafinn undirbúningur
fyrir slíka leynistarfsemi og
hann meðal annars fólginn í
því, að æfðir og tryggir fylgis-
menn Hitlers eru skildir eftir í
þeim héruðum, sem Þjóðverjar
neyðast til að hörfa úr í Ev-
rópu.
Menn eru fengnir til að ganga
í þessi leynifélög með því að
telja þeim trú um að banda-
menn viti ekkert, hvernig þeir
eigi að fara að þvi að endur-
reisa álfuna og að þeir muni
annað hvort láta Rússa um að
stjórna Iienni eða láta þjóðirn-
ar vcrða hungurmorða.
„Frelsi Evrópu.“
Baráttan verður háð undir
orðtakinu „Takið þátt í hinni
þrollausu haráttu fyrir frelsi
Evrópu."
5) Hitler hefir skipað svo
fyrir, að hver sá foringi, sem
gefist upp fyrir bandamönnum
af frjálsum vilja, búi sig undir
uppgjöf eða nefni hana á nafn,
skuli slcotinn tafaralaust. Það
er meira að segja látið berast
út um þýzka herinn, að for-
ingjar, sem gefist upp, muni
verða drepnir siðar af mönnum
Hitlers, jafnvel eftir að vopna-
viðskiptum verði lokið. Þegar
bandamenn brjótast inn í
Þýzkaland, mun Hitler gefa út
skipun um það, að molar hers-
ins skuli berjast meðan nokkur
standi uppi.
6) Þegar Hitler lætur undan
síga upp í fjöllin, er ætlimin að
láta einhverja hershöfðingja og
óbreytta ’borgara stofna stjórn
til að hafa samvinnu við banda-
menn. Síðan munu fylgjendur
Hitlers kenna þessari stjórn um
allt, sem aflaga fer i Þýzka-
landi og benda á, að svona ill
hafi aðbúð þjóðarinnar aldrei
verið undir istjórn Hitlers.
Þekkti leyndarmálin.
Maðurinn, sem sagði mér frá
þessum ráðagerðum, var um
skeið einn af gæðingum nazista,
en þótti fyrir skemmstu hyggi-
legast að :segja sldlið við þá og
flýja til Stokkhólms. Hann heit-
ir Anton Knyphausen greifi og
var óður blaðamaður við „Ham-
burger Fremdenblatt“.
Hann var nýlega á ferð í
Finnlandi og komst þá að þeirri
niðurstöðu, að samvizka hans
bannaði honum að standa leng-
ur við hlið nazista. Eg átti langt
tal við hann í dag og hann sagði
mér Ijóslega frá öllu, sem hann
vissi um fyrirætlanir nazista.
Það er ekki nema eðlilegt að
menn taki því með nokkurri
tortryggni, sem þeir menn
scgja, sem eru nýkomnir frá
Þýzkalandi, hvort sem þeir eru
liðhlaupar eða flóttamenn, eða
hvort tveggja, og jafnvel þótt
þeir reyni að láta líta svo út,
sem þeir sé að öllu leyti lieið-
arlegir menn.
En eg hekl að málið horfi
öðru vísi við, hvað Knyphausen
áhrærir. Eg held, að það sé ekld
úr vegi að kynna sér frásögn
hans um hugsunarhátt Þjóð-
verja um það leyti, þegar við
erum að herða að hengingar-
ólinni.
DREN G JAMEISTARAMÓTIÐ.
Frh. af 1. síðu.
110 m. grindahlaup:
1. Svavar Gestss. KR. 19,9 sek.
2. Magnús Þórarinss. Á 20,1 —
3. Ásgeir Einarsson KR 20,6 —
4x100 m. boðhlaup:
1. KR-sveitin 48,7 sek.
2. Ármanns-sveitin 49,2 —•
3. iR-sveitin 50,7 —
Stangarstökk:
1. Þork. Jóhanness. FH 3,10 m.
2. Bjarni Linnet Á 3,00 —
3. Sigurst. Guðmundss. FH 2,70
Kúluvarp:
1. Bragi Friðrikss. KR 14,31 m.
2. Vilhj. Vilmundars. KR 12,88
3. Ásbjörn Sígurjónss. Á 12,28
3000 m. hlaup:
1. Öskar Jónss. IR 9:43,2 mín.
2. Gunnar Gíslas. Á 10:23,4 —
3. Kári Sólmundars., Skallagr.
11:17,6 —
Þrístökk:
1. Þorkell Jóhannesson FH
13,22 m., nýtt drengjamet.
2. Halld. Sigurgeirss. Á. 13,19
3. Björn Vilmundars. KR 12,72
Spjótkast:
1. Halld.Sigurgeirss. Á 48,61 m.
2. Sig. Pálsson KR 46,15 —
3. Bragi Friðrikss. KR 42,16 —
400 m. hlaup:
1. Magn. Þórarinss. Á 54,9 sek.
2. Óskar Jónsson IR 55,7 —
3. Páll Halldórss. KR 55,7 —
KR hlaut því 5 drengjameist-
ara, FH 4, en Ármann og IR
sína 2 livor. Knattspyrnufélag
Reykjavíkur hélt mótið nú eins
og í fyrra.
Dánarfreg'n.
Þorvaldur Pálsson læknir andað-
ist í fyrradag.
Útvarpið í kvöld.
Kl. 1925 Hljómplötur: Lög rír
óperettum og tónfilmum. 20.30 Er-
indi: Landastreita Germana og
Slava, I. (Sverrir Kristjánsson
sagnfræðingur). 21.55 Hljómplöt-
ur: a) „Þættir úr ævisögu minni",
kvartett eftir Smetana. b) Kirkju-
tónlist.
Nætnrakstur
annast Aðalstöðin, sími 1383.
Jazðyrkjuáætlaniz
Bzeta i Indlandi.
Bretar ætla að tvöfalda jarð-
yrkju á Indlandi á næstu fimm-
tán árum.
Hungursneyðin, sem varð í
Bengal á síðasta hausti, á meðal
annars rót sína að rekja til þess,
að ræktað land stækkar lítið
sem ekkert, þótt landsbúum
fjölgi um fimm milljónir á ári.
Verða því hafnar miklar fram-
kvæmdir til að bæta úr þessu,
m. a. með stórkostlegum áveit-
um, sem eru frumskilyrði fyrir
aukinni ræktun. Auk þess ætla
Bretar á næstunni að leggja
6500 lun. langa vegi um landið.
Russaz taká fanga-
búðiz í Póllandi.
Þjóðverjar flýja nú svo hratt
fyrir Rússum, að þeir hlaupa
frá fangabúðum, sem þeir hafa
liaft í Póllandi.
1 fyrradag símuðu blaða-
menn frá Moskva, að fanga-
búðir, sem i voru rúmlega 2000
ítalir, hefði verið teknar af
Þjóðverjum í Póllandi. Italir
þessir liöfðu verið handteknir
á undanförnum tólf mánuðum,
eftir að Mussolini var settur af.
Lundúnablöðin hafa birt frá-
sagnir um það, að það megi sjá
á bréfum, sem koma frá ensk-
um stríðsföngum í Póllandi og
A.-Prússlandi, að verið er að
undirbúa flutninga fangabúða
þaðan vestur á bóginn. .
Tirpitz hefir sézt á reynslu-
ferðum um Altenfjörð upp á
síðkastið.
★
Japanski flotaráðherrann hefir
sagt í viðtali við blaðamenn, að
enn sé ekki kominn tími til þess
að japanski flotinn leggi til úr-
slitaatlögu við flota Bandaríkja-
manna.
★
Japanir segjast hafa eyðilagt
105 ameríslcar flugvélar í árás-
um á þrjár bækistöðvar flug-
hers Bandarilcjamanna í Kína.
Naetnrlæknir
er á Læknavarðstofunni, sími
5030-
Næturvörður
er ! Lyfjabúðinni ISunni, sími
191X.
leilianílialn
H Ú S G Ö G N
Skrifborðs-
skápar
Eikarskápar
Klæðaskápar
Sængurfataskápar
Kommóður
Málarastofan.
Spítalastíg 8.
Stromberg Carlson
útvarpsgrammofónn til
sölu. Sími 3175 og 4309
eftir kl. 6.
Sögusýnhtgin:
Um 1140 sýningargest-
ir um helgina.
Sögusýningin í Menntaskól-
anum var opin á laugardag og
surmudag s.l. kl. 1—10 báða
dagana.
Blaðið átti í dag tal við Eirík
Pálsson lögfr., framkvæmda-
stjóra sýningarinnar, og spurði
hann hve margir sýningargestir
hefðu komið um helgina.
Tjáði hann blaðinu, að 240
gestir hefðu sótt sýninguna á
laugardaginn, en um 900 á
sunnudaginn. Áður var tala sýn-
ingargesta 10,500, svo að nú er
heildartalan orðin rúml. 11,600
manns.
Litlar líkur taldi Eiríkur til
þess, að sýningin yrði opnuð
aftur fyrir almenning, en taldi
hinsvegar geta komíð til mála,
að skólafólki yrði gefinn kostur
á að sjá hana um það leyti, sem
skólar hefjast í haust. Ekki er
þó víst, að af þessu geti orðið.
Hézaðsmót
Sjálfstæðismanna
á Snæfellsnesi.
Héraðsmót Sjálfstæðismanna
á Snæfellsnesi var haldið að
Vegamótum s.l. sunnudag. Veit-
ingahús og samkomuskáli hefir
verið reistur á mótum Stykkis-
hólms og Ólafsvíkur og ber
staðurinn nafn af þeim. Er þar
veitingasala, en hana annast
Jón Sigurgeirsson úr Ólafsvík.
Fjölmenni mikið var á sam-
komunni, sem hófst rétt eftir
miðjan dag. Setti Tómas Möller
símstjóri úr Stykkishólmi
skemmtunina og stjórnaði
henni. Ræður fluttu Gunnar
Thoroddsen alþingismaður, sem
aðallega ræddi héraðsmál, Ing-
ólfur Jónson alþm., sem ræddi
I stjómmálin alménnt, Ólafur
Jónsson úr Elliðaey fyrir minni
héraðsins, Pétur Jónsson söng
og Gísli Sigurðsson skemmti
með eftirhermum. Um kvöldið
var svo dans stígiim fram að
miðnætti. Fór samkoman vel
fram og skemmtu menn sér hið
bezta.
fliii ter ob toir...
Eggert Stefánssoxt
heldur konsert.
Söngvarinn okkar, Eggerfc
Stefánsson, er á förum af landfi
burt, nú á næstunni. Þetta ef
að vísu ekki ný frétt, J»ví a®
Eggert er eins og fuglar him-
insins — fer og kemur. Hann
þráir að ferðast og hann þráir
að koma heim til föðurlands-
ins aftur. — Hann fer til að
kynna land sitt — og kynnast
sönglist annarra landa — að
þessu sinni Bandaríkjanna.
Blaðamenn sátu fund hans i
gær og inntu hann frétta af
þessari fyrirhuguðu ferð.
— Jú, — ég er á förum til
New York, seinna í þessum
mánuði — ekki alfarinn — aíls
ekki — eg segi heldur: „Au re-
voir“ — sé ykkur aftur —•
aldrei alfarinn frá fslandi.
— Eg hefi fengið óskir min-
ar uppfylltar, sem föðurlands-
vinur — landið er frjálst. Og.
nú — nú fer eg inn á lista-
mannsbrautina á ný.
— Hver er ætlun yðar með
þessari ferð?
—■ Það hefir hvað eftír ann-
að verið skorað á mig að syngja
lögin mín inn á plötur á ný,
því að allt, sem til var af þeim,
er nú uppselt. Þá hafa margir
farið frarn á það við mig, að
eg læsi „Óðinn til ársins 1944“
inn á plötu, og nú ætla eg að',
láta verða af þvi.
— Hafið þér fyrr farið tiil
Ameríku ?
— Jú — árið 1923 kom eg>
þar — og mér var álcaflega vel'
tekið af Vestur-lslendingom —
og reyndar öllum. I þessari
ferð ætla eg að hitta bróður
minn, Guðmund glímukappa,
sem nú býr í Winnipeg. Það er
orðið langt síðan eg sá Iiamr.
— Fá ekki Reykvíkingar að
heyra yður syngja, áður en þér
hverfið á brott?
— Jú, vissulega. Einhvem
daganna 15.—20. ágúst næstk.
mun eg halda konsert hér, með
Sigvalda Kaldalóns, hróður
mínum og Páli Isólfssyni. Vil-
hjálmur Þ. Gíslason mun lesa<
„prolog“, en Lárus Pálsson les
upp við þetta tækifær! og
Gunnlaugur Blöndal ætlar að
slcreyta konsertsalinn — hver
svo sem liann verður. Eg mun
á þessiun konsert syngja tvö ný
lög — annað eftir Kaldaíóns,
sem heitir- „Grindvíkinguriim“,
lcvæði eftir örn Arnarson — og
lag eftir Áskel Snorrason, sem
nefnist „Sittu heil“. 1 Iokín mun
eg svo syngja „Þótt þú Iang-
förull legðir“.
— Hvar verður þessi konsert
haldinn?
— Óákveðið, grípur Bjami
Guðmundsson blaðafúlltrúi
fram í, — það er sérstök nefnd,
sem starfar nú að undirbúningi
þessa fyrirhugaða konserts —
og það er alveg óviðkomandl
vini okkar, Eggert Stefánsjsyni.
Ekki leikur vafi á því, aS
Reykvíknigar fagna þvi, að
Eggert Stefánsson skulf hafa
tekið rögg á sig og ætli aS
syngja fyrir þá — því 2% ár
er nú hart nær liðið, síðan þeir
bræður, Eggert og Kaldalóns,
létu til sín heyra. hér í höfuðf-
borginni siðast.
Ú T S A L A.
Allir hattar verzlunarínnar verða seldir fyrir lágt verð,
aðeins í dag og á morgun.
Hattastofa Svönu og Lárettu Hagan,
Laufásvegi 4.
Þ i j á r
deildarhjúkrunarkonur
vantar á Kleppsspítalann 1. ágúst og 1. sept-
ember og nokkrar aðstoðarhjúkrunarkonur. —
Einnig vökukonu og starfsstúlkur.
Umsóknir sendist til yfirhjúkrunarkonunnar.
AFGREIÐSLUM ANN
vantar í stóra sérverzlun. Enskukunnátta tilskilin. Eigin-
handarumsóknir, merktar „Afgreiðslumaður“, sendist á
afgreiðslu blaðsins fyrir helgina.
L0KAÐ til 14. ágúst
vegna sumarleyfa.
T0LED0.
Hjartanlega þökkum við öllum þeim, sem á marg-
víslegan hátt heiðruðu minningu okkar hjartkæru fóst-
urmóður,
Hallberu Jónsdóttur frá Kirkjubóli.
Sérstaklega viljum við þakka forstjóra Mjólkursamsöl-
unnar og starfsfólki hennar, forstjóra H.f. Sanítas og
starfsfólki. Guð blessi ykkur öll.
Fósturbörn hinnar látnu.
Jarðarför móður okkar,
Krístínar Jóhannsdóttur,
fer fram frá heimili hennar, Lokastíg 19, fimmtudaginn
3. þ. m. kl.> 1 /2 e. h.
*' Sigurlaug Einarsdóttir,
Skafti Einarsson,
Gfsli Einarsson.