Vísir - 04.08.1944, Side 1
Hltstjórar:
Kr.istján Guðlaugsson
Hersteinn Pálsson
Skrifstofur:
Félagsprentsmiðjan (3..hæð)
34. ár.
Ritstjórar
Blaöamenn Slmii
Auglýsingar 1660
Gjaldkerl 5 llnur
AfgreidsU
Reykjavík, íöstudaginn 4. ágúst 1944.
174. tbl.
BRETAGNE-SKAGINN AÐ LOKAST
B
Sendiherra íslands í
Moskva leggur fram
embættisskilríki.
Útvarpið í Moskva skýrði frá
því i gær, að Pétur Benedikts-
son, sendiherra Islands, hefði
gengið á fund Molotovs, utan-
ríkisráðherra, á miðvikudag og
aflient honnm embættisskilríki
sín. Ræddust þeir við nokkra
stund.
Samkvæmt upplýsingum, sem
Yísir hefir fengið í stjómarráð-
inu, hefir Pétur Benediktsson
verið að undirbúa afhending
embættisskilríkja sinna, þvi áð
þau á að afhenda Kalinin. —
Eitt fyrsta verk ríkisráðs eftir
stofnun lýðveldisins var að
gefa út ný skilríki fyrir sendi-
menn íslands erlendis.
Vilja hafa sterk-
an her eftir stríd.
Brezk blöd um ræöu
Churchills.
Lundúnablöðin hafa tekið
ræðu Churchill yfirleitt vel, þótt
sum finni lítilsháttar áð ein-
stökum atriðum í henni.
Dáily Mail og Daily Express
taka sérstaklega til athugunar
ummæli Churchills um innrás-
ina. Benda þau á það, að inn-
rásarhætta geti vofað yfir Bret-
landi í framtíðinni og mæla ein-
dregið með því, að Bretar hafi
sterkan her að stríðinu loknu.
Daily Herald og News Chron-
icle eru liinsvegar óánægð með
þau ummæli Churchills, að
stríðið sé ekki lengur eins hug-
sjónalegt og áður.
Bandameiiii
nálgatst Florens.
Bandamenn hafa nálgazt
Florenz og hafa Þjóðverjar stytt
víglínu sína þar.
Ný-Sjálendingar eru húnir að
taka liæð, sem er fáeina kiló-
metra fyrir sunnan borgina og
hafa Þjóðverjar orðið að'flytja
stöðvar sínar talsvert fyrir
bragðið.
Flugvélar frá Ítalíu réðust í
í gær á járnbrautina um Brenn-
er-skarðið, rétt fyrir norðan
það, og flugvélaverksmiðjur í
Friedrichshaven.
Síðan um áramót hafa 53.726
manns farizt af völdmn loft-
árása í Bretlandi.
Rússar fara yfir
Vistúlu.
i
Stefna til Krakow.
Rússar hafa brotizt vestur
yfir Yistúla á 30 km. breiðu
svæði fyrir vestan Lublin.
Markmið Rússa á þessum
slóðum virðist vera að ná Kra-
kow á vald sitt, en sumar fregn-
ir herma, að þeir muni einnig
stefna norður með fljótinu, til
að geta komið varnai’her Þjóð-
verja í Varsjá í opna skjöldu.
Fyrir austan Varsjá berst
leikurinn fram og aftur um
slétturnar, en þó virðast Rússar
mjakast hægt og bítandi til
borgarinnar. En engu verður
enn spáð um úrslitin og má bú-
ast við því, að enn verði lengi
harizt um borgina.
Á nyrðri hluta vígstöðvanna
miðar einnig vestur á bóginn,
þó að mjög sé nú orðinn minni
hraði hjá Rússvun sums staðar
en verið hefir á undanförnum
vikum. Síðasti spölurinn til A.-
Prússlands virðist ætla að verða
torsóttur og hefir heimsókn
Görings og Keitels o. fl. fyrir
skemmstu því borið einhvern
árangur.
■ ■ ■ r
i sueri
'ifli iiresiriynr-
Það hefir verið upplýst, að
það var Englendingur, sem átti
mestan þátt í að ákveða hvar
ráðizt skyldi inn á meginlandið.
Chux’cliill forsætisi’áðlieri’a
gat þess í ræðu sinni í fvrradag,
að maður þessi héti Frederick
Morgan og er hann hershöfð-
ingi. Honum var falin stjórn
sérstaks i*áðs ameriskra og
brezkra foringja, sem áttu að
velja stað og aðferð fyrir innrás
í Frakkland. Þeir lögðu tillögur
sínar fyrir Quebec-ráðstefnuna
í fyrra og voru þær allar sam-
þyklctar.
Myitkyina alveg á
valdi bandamanna.
Bandamenn hafa nú tekið
Myitkyina í Norður-Burma eftir
nærfellt þriggja mánaða viður-
eign.
Það var 17. maí sem lier-
sveitir bandamanna tóku flug-
völl boi’garinnar, eftir leynilega
göngu lil liennar á 20 dögum.
Síðan hafa götubai’dagar verið
háðir í sifellu, og liafa Japanir
misst gi’íðai’mikið lið í þessum
viðureignum.
Bandamenn liafa nú þrjár að-
alslöðvar Japana, Myitkyina,
Maugaung og Kamaing, sem
áttu að vei’ja þeim leiðina inn í
Burma að norðan.
Bi’etar hafa fest kaup á alh’i
: ársframleiðslu Nýja-Sjálands af
kjöti og öðrum landbúnaðaraf-
urðum.
Amerískar flugvélar
fóru í 59,000 árásir.
Fiá Italíu voiu geiðai
52 000 áiásir.
| síSasta mánuSi vörpuSu
flugvélar bandamanna
samtals til jarðar um 150,000
smálestum af sprengjum á
stöðvar Þjóðverja í Evrópu.
1 gær bárust þrjár tilkynn-
ingar urh afrek flugherja
bandamanna í síðasta mánuði
og sýna þær, að þeir hafa verið
athafnasamari á því tímabili en
nokkuru sinni áður.
Árásir voru gerðar á hverj-
um sólai’hring og aðeins einn
dag varð örlítið lát á árásun-
um.
Bandaríkjamenn.
Hei’stjórn Bandaríkjamanna
á Bretlandi skýrði frá því, að
farið hefði verið í 59,000 flug-
ferðir frá Bretlandi, Italíu og
Rússlandi, og varpað var til
jarðar 60,000 smálestum af
sprengjum. Aðalárásir Banda-
rikjamanna voru gei’ðar á olíu-
stöðvar, skriðdrekaviðgerða-
smiðj ur, f lugvélaverksmiðjur
og kúlulegaverksmiðjur.
Bretar.
Litlu eftir að tilkynningin urn
Bandaríkjámenn var kornin, gaf
stjórn brezka flughersins út til-
kynningu um aðgerðir sinna
manna. Brezkar flugvélar vörp-
uðu á þýzkar stöðvar samtals 55
þúsund smálestum sprengja.
Er þess sérstaklega getið, að þá
sé ekki talið sprengjumagn það,
sem brezkar flugvélar við
Miðjarðarhaf vörpuðu niður, né
heldur sá flugher, sem veitir
landherjum beina aðstoð á víg-
stöðvunum.
p..’*
Ilesli loftárásarmánnðnrinii — júlí:
Um 150.000 smál. sprengja
varpað á Evrópuvirkið.
Þannig var umhorfs í Castelforte eftir að bandamenn höfðu
barizt við Þjóðverja um hana, þegar þeir brutust í gegnum
Gustav-línuna svonefndu.
Ítalía.
Á hæla hinum lcom svo til-
kynning frá herstjórninni við
Miðjarðarhaf. Flugvélar frá
Italíu fóru í 52,000 ferðir og j
vörpuðu samtals niður 40,000 ,
smál. sprengja. Skotnar voru ■
niður 740 þýzkar flugvélar, en j
Þjóðverjar grönduðu 476 flug-
vélum bandamanna, þar af 306
stórurn sprengjuvélum.
Á annað lxundrað
þúsund smálestir.
Sé helmingnum af sprengju-
magninu við Miðjarðarlxaf bætt
á reikning Breta, hafa flugvél-
ar bandamanna varpað eigi
minna magni cn 135,Q00 smá-
lestum, en þá er enn ótalið
sprcngjumagn það, sem hundr-
uð og jafnvel þúsundir flugvéla
í Noi’mandie hafa látið í’igna á
Þjóðverja. Er varléga áætlað að
það sé 15,000 smálestii’, og liafa
bandamenn því varpað samtals
150,000 smál. á virki IJitlers á
þessum eina mánuði.
Útiásíi Japana hjá
Aitape mistakast.
Japanir hafa enn reynt að
brjótast út hjá Aitape en ekki
tekizt.
Undanfarið hafa þeir gert
f jórar ái’ásir til að komast gegn-
um lið bandamanna, en þehn
liefir verið hrundið svo i*æki-
lega, að enginn maður liefir
komizt í gegn. Misstu Japanir
600 menn í þessum síðustu til-
raunum og hafa alls misst 4000
menn siðustu vikurnar.
Mikolatsjik, forsætisi’áðherra
Pólverja, hefir gengið á fund
Stalins í Kreml.
IJitler hefir heiði’að Remer,
yfirmann setuliðsins í Berlin,
fyrir þátt hans i að bæla niður
uppreistina gegn nazistum.
leltleiQir ú ðQaileoa
Vinna byrjuð
við Melaskóla.
Byrjað er að grafa fyrir Mela-
skóla, sem reistur verður við
Hagaveginn fyrir vestan 1-
þróttavöllinn.
Það eru Tómas Yigfússon og
Anton Sigurðsson húsasmiða-
meistarar, sem gerðu lægsta til-
boðið i smiði skólans og standa
þvi fyrir verkinu. Tilboð þeirra
liljóðaði upp á 1,565,400 krónui’,
en hin tilboðin tvö voru nokk-
uru liærri.
Undirbúningur að liinum
nýju ibúðai’húsum bæjarins
mun vera um það bil að liefjast.
Flaug 21.600 km.
Flugvél Loftleiða h.f. stund-
aði aðallega síldarflug fyrir
Norðurlandi í síðasta mánuði.
Samkvæmt þeirn upplýsing-
um, senx Yísir hefir aflað sér um
flugtimann, nam bann samtals
132 klst. og 10 mínútum. Alls
voru farnar 83 flugferðir á 25
flugdögum og flogin 21.600 lun.
vegalengd. Það er rúmlega bálf
leiðin umliverfis jörðina.
Auk þess fór flugvélin tvö
aðkallandi sjúkraflug. Annar
sjúklingurinn var maður, sem
féll af bil við Skeiðfossvii’kjun-
ina og slasaðist liættulega. Hinn
sjúklingui’inn liafði slasazt á
Iíkum slóðum, brotnað á báðum
fótum. Voru þeir báðir flutth’
til Siglufjarðar.
SS-íoiingjai
geiðii heishöfðingjai.
Hitler hefir gert 20 SS-for-
ingja að hershöfðingjum.
Meðal þeirra eru Carl Ober,
sem var lengi foringi Ge^tapo i
París og hefir unnið þar mörg
hryðjuvei’k, og Sepp Dietricli,
en hann var um eitt skeið lif-
vörður Hitlers.
I.O.O.F. 1
éffir
126848V2 = 9.0
Útvarpið í kvötd.
KJ. 20.30 Erindi: Um Dante I.
(Þórhallur Þorgilsson magister).
21.55 Píanókvartett í Es-dúr eftir
Mozart. 21.10 Iþróttaþáttur. 21.30
Hljómplötur: Sönglög eftir Scliu-
rnann. 22.00 Symfóníutónleikar
(plötur): a) Píanókonsert nr. 3
eftir Beethoven. b) Symfónía nr.
8 eftir sama höfund.
Næturlæknir
er á Læknavarðstofunni, sími
5030.
Næturvöður
í Lyf jabúðinni Iðunni, sími 1911.
Næturakstur
Hreyfill, sími 1633.
Sótt við litla
mótspyrnu
til Nantes og
St. Nazaire.
Jókn Bandaríkjamanna suS-
ur yfir Bretagne-skaga er
nú orðin svo hröð, að ekki er
annað sýmlegt, en að þeir loki
skaganum næstu daga.
Það kom mjög á óvart, þegar
Stimson hermálaráðheiTa
Bandarikjanna skýrði frá því í
gær, að búið væri að taka Ren-
nes. Það var að vísu vitað, að
Bandaríkjámenn fóru hratt yf-
ir, en hinsvegar virtist ekkert
benda til þess, að þeir gætu
sprett svo úr spori.
I morgun komu svo fregnir
um það, að enn væri barizt í
borginni við setuliðið þar, en
framsveitir skriðdi-ekadeild-
anna hefði brotizt rakleiðis
i gegnum borgina og stefndu
þær bratt suður á bóginn. Eiga
þær fyrir höndum 100 km. leið
til Nantes — loftlína — og álíka
langt til St. Nazaire.
Engar vamarlínur.
Fréttaritarar síma, að Banda-
ríkjamenn berjist nú á landi,
þar sem segja megi, að Þjóð-
verjar liafi engar vamarlinur
og lið það, sem amerisku skrið-
drekarnir eiga í höggi við, er
setuhð í borgunum. Það er eng-
an veginn eins vel þjálfað eða
útbúið og sá her, sem sigraður
var, þegar brotizt var suður hjá
3t. Lo. Á þetta ekki lítinn þátt
i þvi, hversu vel gengur.
|
Sóknin í vestur.
Önnur sveit Bandaríkja-
manna sækir vestur eftir norð-
urströnd Bretagneskaga. Hún
var í gær húin að taka borgina
Dinan og liafði þar með lokað
skaganum, sem St. Malo stend-
ur á. Síðustu fregnir herrna, að
liðinu liafi verið skipt þarna og
sækir sumt norður til St. Malo,
en hitt heldur áfram vestur á
bóginn.
0 •
Austur á bóginn.
Bandamenn færa út kvíarnar
austur á bóginn og tóku í gær
bæinn Mortain, sem er beint
austur af Avranches. Er víglína
þéirra nú sem næst í beina línu
frá norðri til suðurs frá Tilly
við Seulles-á í norðri, framlijá
Villers Bocage að vestan og Yire
að austan til Mortain.
Engin tíðindi í
Xðjn-deilunnL
Engar viðræður fara nú fram
milli fulltrúa Félags íslenzkra
| iðnrekenda og Iðju.
F.Í.I. telur sér ekki fært að
gera nýja samninga, sem fela í
; sér miklar hækkanir á fram-
j leiðslukostnaði, nema meðlimir
! þess fái leyfi til að hækka verð
1 á vörum sínum, en verðlags-
, stjóri hefir neitað um samþykki
sitt til þess. Meðan sú neitun
stendur, telur F.Í.I. sig elcki
geta gert neitt i málinu.