Vísir - 16.08.1944, Blaðsíða 2
VISIR
-M
m _____ . _____
VISIR
DAGBLAÐ
Útgefandi:
BIAÐAÚTGÁFAN VÍSIR H.F.
Ritstjórar: Kristján Guðlaugsson,
Hersteinn Pálsson.
Skrifstofa: Félagsprentsmiðjunni
Afgreiðsla Hverfisgötu 12
(gengið inn frá Ingólfsstræti).
Símar: 16 6 0 (fimm línnr).
Verð kr. 4,00 á mánuði.
Lausasala 35 aurar.
Félagsprentsmiðjan h.f.
Veikföllin.
ritthvert alvarlegasta vanda-
mál hvers þjóðfélags, sem
fengið hefir til þessa ófullnægj-
andi lausn, en ráða verður
fram úr, eru ýmsir þættir at-
vinnulífsins og þá viðhorfin til
verkalýðsins fyrst og fremst.
Lausamenn í erfiðisvinnu njóta
lítils öryggis. Þótt þeir hafi
vinnu í dag, geta þeir verið at-
vinnulausir á morgun. öryggið
er hverfandi lítið. Af því leið-
ir aftur að þessir menn reyna
að tryggja afstöðu sína með
hækkuðum launum frá degi til
dags og ári til árs. Alið er á
kauþkröfunum af mönnum,
sem sjá sér fyrst og fremst
pólitískan hag í að skapa og
efna til vinnudeilna, verkfalla
og verkbanna eftir ástæðum.
Alið er á þvi að í ýmsum öðr-
löndum njóti verkamenn, t. d.
iðnverkamenn mun betri kjara
en hér, en engin ástæða sé til
að ætla, að íslenzkir iðnrekend-
ur geti ekki greitt sama kaup
og þeir erlendu. Hér er þó ó-
líku saman að jafna. Erlendis
er vélaiðja miklu meiri en hér
og afköstin margföld á hverj-
um vinnutíma þar af leiðandi,
miðað við það, sem hér gerist
yfirlcitt. Þetta eitt og út af
fyrir sig getur réttlætt hærra
kaup iðnverkamanna þar en
hér, en auk þess koma svo
mörg atriði önnur til greina,
sem skapa aðstöðuna, — gera
hana hæga eða óhæga eftir at-
vikum og skal ekki farið nán-
ar út í þann samanburð að
sinni.
Eigi hinsvegar að haldast
vinnufriður hér í landi og eðli-
leg þróun atvinnuveganna að
eiga sér stað, verður að sjá fyr-
ir því tvennu, að verkamenn
njóti viðunanlegra kjara, en
hinsvegar að atvinnulífið geti
dafnað, þannig að það hvorki
hrörni né hjakki í sama farinu.
heldur reynist þess um komið
að taka á móti hlutfallslegri
fjölgun þjóðarinnar, miðað við
þann þátt, sem atvinnugrein
hver. á í atvinnulífinu. Hlúa
þarf jafnframt að öllum nýj-
um atvinnugreinum, þannig að
þær 'verði ekki kæfðar i fæð-
ingu, ef að þær má telja líf-
vænlegar á annað borð. Verka-
menn og vinnuveitendur hafa
sameiginlegra hagsmuna að
gæta í þessu efni, þótt ýmsir
áróðursmenn hafi reynt að
telia almenningi trú um þá
firru. að hagsmunirnir séu önd-
verðir. Atvinnurekandanum er
mikils virði að geta rekið fyrir-
tæki sitt án tilfinnanlegra trufl-
ana, en verkamönnum er engu
siður mikils virði að geta notið
fastrar og öruggrar atvinnu og
sæmilegra lífskjara, bæði að því
er afkomu og Öryggi snertir. Til
])ess að þetta megi lánast verð-
nr að sætta hina stríðandi að-
iln. — finna sanngjarna og ó-
véfengjanlega lausn á málinu
þar sem báðir aðilar bera sann-
giarna. þóknun úr býtum og
nióta s'æmilegra lífs- og fram-
tíðarskilvrða. Það er tilgangs-
Iaust að beria höfðinu við stein-
inn og neita fyrirfram allri
lausn, sem eitthvað kann að
víkja frá því, sem verið hefir.
Sigurður Guðmundsson
arkitekt gerir uppdrátt
að minnismerki Jóns
Arasonar.
Jóns Arasonar-dagur á Hólum.
Jóns Arasonar hátíð var hald-
in að Hólum s.l. sunnudag, að
yiðstöddu miklu f jölmenni. Um
400—500 manns munu hafa
verið bar viðstaddir í undur-
fögru veðri og var glampandi
sólskin allan daginn.
Hátíðin hófst á því, að sira
Bjarni Jónsson vígslubiskup
prédikaði í Hólakirkju, en
kirkjukór frá Sauðárkróki ann-
aðist sönginn.
Eftir messu flutti Brynleifur
Tobiasson menntaskólakennari
á Akureyri erindi um Guðbrand
Þorláksson Hólabiskup,og Matt-
hías Þórðarson þjóðminjavörð-
ur erindi um Hólakirkju. Við
þetta tækifæri afhenti Matthías
til Hólakirkju tvær gamlar mál-
aðar biskupamyndir af Hóla-
biskupum, þeim Guðbrandi Þor-
lákssyni og Gísla Magnússyni,
ennfremur gat fornminjavörður
þess, að Jóhannes Reykdal í
Hafnarfirði hefði gefið til Hóla-
kirkju þrefalda eikarhurð fyrir
forkirkjuna, er væri nákvæm
eftirlíking af hinni upphaflegu
kirkjuhurð.
Guðbrandur Björnsson pró-
fastur þakkaði ræðumönnum,
og ennfremur gjafir þær, er
Hólakirkju hefðu borizt. Seinna
um daginn flutti Sigurður Sig-
urðsson sýslumaður Skagfirð-
inga erindi, þar sem hann
skýrði frá fyrirhuguðu minnis-
merki Jóns Arasonar og sýndi
jafnframt teikningu af minnis-
merkinu, sem Sigurður Guð-
mundsson arkitekt hafði gert.
Hugmynd Sigurðar er af turn-
byggingu, er stæði rétt við
sjálfa kirkjuna.
Á eftir erindi sýslumanns tal-
aði Sigurður Guðmundsson
arkitekt og skýrði hugmynd'
sína um minnismerki Jóns Ara-
sonar.
Að ræðum loknum hélt Hóla-
nefnd fund og á honum var
samþykkt tillaga þess efnis, að
gera brent merki af hinu fyrir-
hugað mihnismerki, ásamt
kirkjunni og selja það lil ágóða
fyrir minnisvarðann.
Heyskapur hefir gengið yfir-
leitt vel í Skagafirði að undan-
förnu. Tíðarfar hefir verið liag-
stætt og spretta í meðallagi. Ut-
lit er fyrir góða kál- og rófna-
uppskeru í görðum, en aftur á
móti féll kartöflugras i júlí-
mánuði, svo að horfur eru á,
að kartöfluuppskera verði lítil.
Pencillin notað í
fyrsta skipti hér á
landi.
Nýlega hefir hið nýja lyf
pencillin, sem unnið er úr sér-
stakri myglutegund, verið not-
að í fyrsta skipti hér á landi.
Var sjúklingi á Landspitalanum
gefið lyf þetta. Hafði hann orð-
ið fyrir slysi og fékk blóðeitrun
upp úr því. Var hann mjög
þungt haldinn, en er nú á bata-
vegi. Pencillin mun ekki vera
•til hér á landi nú, en stjórnar-
völdin munu hafa gert ráðstaf-
anir til þcss að afla þess og fá
það flutt loftleiðis frá Ameríku,
að þvi ér Kristinn Stefánsson
læknir tjáði blaðinu nýlega. —
Hann kvað og lyf þetta geym-
ast óskemmt mjög stuttan tíma
eða aðeins um 3 mánuði og yrði
því, er tekið væri að nota það,
að leitast við að láta það ekki
vera lengi á leiðinni og afla þess
oft með stuttu millibili.
4,9 milljs kr. óhag-
stæður verzlun-
arjöínuður.
Verzlunarjöfnuðurinn er það
sem af er árinu, eða janúar—
júlí, óhagstæður um 4,9 millj-
ónir króna.
Alls hefir verið innflutt sjö
fyrstu mánuði ársins fyrir 137,4
millj. króna, en út fyrir 132,5
milljónir.
Á- sama tíma í fyrra voru
vörur fluttar inn fyrir 137,9
millj. króna, en út fyrir 139,8
millj. kr. og hefir verzlunar-
jöfnuðurinn þá verið hagstæð-
ur um tæpar 2 millj. kr.
I júlímánuði þessa árs varð
verzlunarjöfnuðurinn óhag-
stæður um 5,8 millj. kr. Nam
innflutningurinn í þeim mán-
uði 22,8 millj. kr., en útflutn-
ingurinn 17,0 millj. kr.
Hafníirðingar og Vest-
I mannaeyingar keppa.
Annað kvöld hefst í Hafnar-
firði bæjarkeppni í frjálsum
íþróttum milli Hafnfirðinga og
Vestmanneyinga. Mót þetta
mun standa yfir í 2 daga. I
fyrrasumar fór fram samskon-
ar keppni milli sömu aðila, en
þá var hún háð í Vestmanna-
eyjum og sigruðu Vestmanna-
eyingar. Tveir keppendur frá
hvoru félagi taka þátt í keppni
í liverri íþróttagrein, en sami
maður má ekki keppa nema í
3 íþróttagreinum í mesta lagi.
Keppt verður að þessu sinni
í 11 íþróttagreinum, þ. e. í’öll-
■ um köstum og stökkum og auk
þess í 100 og 200 m. lilaupi og
4x100 m. boðhlaupi.
Mótið fer fram á nýgerðu æf-
ingasvæði, sem Fimleikafélag
Hafnarfjarðar hefir gert og
vígt verður við þetta tækifæri.
Æfingasvæðið er á svonefndum
Hörðuvöllum, rétt fyrir ofan
Barnaskólann.
Margir af fremstu íþrótta-
mönnum landsins taka þátt í
móti þessu, svo sem Oliver
Steinn o. fl.
Bandaríkjamenn hafa tekið
þorpið Putangs vestur af Argen-
tau.
en með viðsýni og sanngirni má
vafalaust leysa þessi viðkvæmu
deilumál til frambúðar, skapa
þannigj einstaklingunum og
þjóðfélaginu sjálfu meira ör-
yggi, en vitanlega skiptir það
þjóðfélagið höfuðmáli, hvort
atvinnulífi í landinu má uppi
halda án skaðsamlegra og eyði-
leggjandi truflana, vinnudeilna
og stöðvunar á framleiðslu.
Á undanförnum árum hefir
þróunin miðað að því vegna
gagnkvæmra öfga, að eyða öll-
um vinnufriði og öryggi og
skapa lýðræðinu dauðameinið,
ef svo heldur áfram. Sú hætta
vofir ávallt yfir, að öfgaflokk-
ar uppskeri ávextina af striti
annarra og stórdeilum vegna
kjarabóta í einni og annarri
myn'd. Skammsýnin getur graf-
ið rætur undan ríkjandi lýð-
ræði, þannig að óróaflokkum
gefist færi á að friða þjóðfé-
lagið með ofbeldi í upphafi og
einræði til langframa. Slíkt er
ógæfusamleg lækning á mein-
inu og of harður dómur, sem
alþjóð kallar þannig yfir sig.
Nú er ástandið hér í landi svo,
að ekkert ár líður án þess að
vinnustöðvanir verði, langar
eða skammar. Allt logar í deil-
um um aurana og krónurnar,
en engin varanleg lausn hefir
fundizt til að setja deilur þess-
ar niður. Nú er komið á ýztu
nöf, en hvenær verða þessi mál
tekin það alvarlega, að reynt
verði að finna á þeim einhverja
viðunandi og varanlega lausn?
r
Scrutator:
O A.
TZjoudAbi aÉm&iwwfys
Eggert Stefánsson.
Það er mörgum gleðiefni, að
Eggert Stefánsson efnir til hljóm-
leika á sunnudaginn. Það er orðið
langt síðan Eggert hefir látið til
sín heyra hér í bænum, og valda
því margar orsakir, þótt aðalorsök-
in tnuni vera sú, hversu erfitt er að
'fá husnæði til hljómleikahalds.
Hópur vina Eggerts hefir nú.ráðið
fram úr þessum vanda með vin-
| semd og aðstoð amerísku herstjóm-
arinnar, sem léð hefir hið rúmgóða
og ágæta leikhús hersins, Tripoli-
j leikhúsið, sem er sunnan við Há-
skólann, andspænis Loftskeytastöð-
inni. Þetta leikhús er byggt með
braggalagi, nema miklu stærra en
almennir braggar, og gerir hvolf-
byggingin það að verkum að þar er
ágætlega hljóðbært, góð akustik,
eins og sérfræðingarnir kalla það.
En það er annar kostur við hljóm-
leika Eggerts á sunnudaginn, og
hann er sá, að þeir verða á venju-
lcgtun hljómleikatíma, klukkan
kortér yfir átta, og svoleiðis hljóm-
leikar hafa ekki verið haldnir hér
í bænum í mörg ár.
I
Aðrir skemmtikraftar.
Sigvaldi Kaldalóns tónskáld,
bróðir Eggerts Stefánssonar, ætlar
sjálfur að aðstoða hann á píanó við
þann hluta efnisskrárinnar, sem
Kaldalóns hefir sjálfur samið — hin
vinsælu og elskulegu Kaldalónslög.
En Páll ísólfsson, sem aðstoðað'hef-
ir Eggert á ótal hljómleikum í síð-
astliðin 30 ár, verður honum til að- j
stoðar við íslenzk þjóðlög, radd- :
sett af Sveinbirni Sveinbjömssyni, j
og nokkur Iög eftir íslenzkahöfunda, j
þar á meðal eitt, er Páll hefir sjálf-
ur gert. — Vilhjálmur Þ. Gísla-
son skólastjóri ætlar að mæla nokk-
ur ávarpsorð í tilefni þess að kon-
sertinn verður með talsveit sérstök-
um hátíðabrag, og Lárus Pálsson
leikari ætlar að lésa upp til þess að
gera skemmtunina f jölbreyttari. Eg
fæ varla séð að í langan tíma hafi
verið boðið upp á lætri né menn-
ingarlegri skemmtun, og því furðar
það mig lítt að mikil eftirspurn hef-
ir verið eftir miðum, enda höfðu
forstöðumenn konsertsins þá for-
sjálni að hefja sölu fyrir nokkrum
vikum, jafnvel áður en endanlega
var ákveðið um, hvar og hvenær
hljómleikarnir yrðu, haldnir.
Hlustar á Eggert.
Eg hitti í gær roskna Reykjavík-
urdömu. Hún er kvenna menntuð-
ust og frábærlega hljómvís og
söngvin. Hún kvaðst hlakka mikið
til hljómleika Eggerts. „Það getur
vel skeð að yður þyki Eggerti hafa
farið aftur,“ sagði hún. Eg „pró-
testeraði". „En fyrir mér — hélt
hún áfram — er hann alltaf hinn
sami Eggert, sem hreif hugi og
hjörtu okkar Reykvíkinganna í
gamla daga, þegar hann kom eins J
og sumarblær sunnan úr löndum
með farfuglunum á vorin. Og eg .
hef alltaf haldið því fram, að þótt ,
einhverjir íslendingar hafi sungið
meira eðá betur en hann, þá hefir
enginn þeirra átt hans cíjúpu og
hrífandi listamannslund. Og hún
hefir þroskazt og göfgazt með ár-
unum.“ Eg þarf engu við þessi um- !
mæli að bæta, öðru en því, að eg
ætla að hlusta á Eggert, og það ,
skal ekkert veður lokka mig úr .
bænum um helgina. Eg ætla að
njóta Reykjavíkur á sunnudaginn,
og um kvöldið ætla eg í Tripoli-
leikhúsið — bezta söngleikahús i
Reykjavíkur.
Austurvígstöðvarnar:
Gagnárásir Þjsð-
verja á þrem stöð-
um.
Þjóðverjar halda nú uppi
gagnárásum á þrem stöðum á
austurvígstöðvunum.
Gagnárásir þessar eru gerðar
við austurlandamæri A.-Prúss-
lands, austur af Varsjá og suður
undir Karpatafjöllum. Rússar
segja, að öllum þessum gagn-
áhlaupum haí'i verið hrundið.
Síðastliðnar fjórar vikur hef-
ir 1. Ukrainuher Rússa fellt um
140,000 Þjóðverja og tekið
32,000 höndum. Á sama tíma
hafa 700 þýzkar flugvélar verið
skotnar niður eða teknar her-
fangi, auk 2000 skriðdreka og
sjálfakandi fallbyssna, 3600 fall-
byssna af öðrum gerðum og
12,000 bíla.
Moskitovélar réðust á Berlin
í nótt og í morgun virtist margt
benda til þess, að árás stæði yf-
ir á Þýzkaland.
Landsmót 1. fl.
Akurnesingar nnnu
Víking.
Fyrsti kappleikur í landsmóti
1. fl. var háður í gærkveldi og
hófst hann kl. 8. Víkingar og
Akurnesingar kepptu og fóru
leikar þannig, að Akurnesingar
sigruðu með 2 mörkum gegn 0.
Aðeins þessi eini leikur var háð-
ur í gærkvledi. Dómari var
Hrólfur Benediktsson. I kvöld
keppir svo Knattspyrnufélag
Hafnarfjarðar við I.R.; dómari
verður Óli B. Jónsson.
Handknattleiksmótið:
Valur vann Hauka,
Víkingur vann
Ármann.
Handknattleiksmót karla hélt
áfram í gærkveldi og kepptu þá
Haukar og Valur og síðan Ár-
mann og Víkingur. Leikar fóru
svo, að Valur vann Hauka með
11 mörkum gegn 8 og Víkingur
Ármann með 9 mörkum gegn 4.
Námsstyrkir.
Menntamálaráð Islands hefir
nýlega úthlutað eftirtöldum
stúdentum styrk að upphæð kr.
3600,00 hverjum:
Ásmundi Sigurjónssyni, til
háms í hagfræði, Guðlaugi Þor-
valdssyni, til náms í ensku og
frönsku, ólafi Helgasyni, til
náms í efnafræði, Þórdísi íngi-
bergsdóttur, til náms í ensku og
frönsku og Þóri Kr. Þórðarsyni,
til náms í semitískum málum.
Þessir stúdentar allir, nema
Guðlaugur, stunda nám í Bret-
landi.
Suður-Frakklandu
Frh. af 1. síðu:
strandar. Er ekki ósennilegt, að
þær fregnir berist fljótlega, að
hann liafi gengið á land í S.- ‘
Frakklandi.
Það er nú talið víst, að amer-
íski hershöfðinginn Devers
stjórni innrásinni undir umsjón !
Wilsons.
Undirbúningurinn.
Eins og skýrt var frá í blað-
inu í gær, höfðu bandamenn
hert mjög loftárásir sínap á
suðurströnd Frakklands og
upplöndin þar síðustu viku. ,
Þann stutta tíma voru 10 brýr j
eyðilagðar í árásum og 11 að j
auki laskaðar, sex skotfærabúr |
sprengd upp, 60 flugvélar eyði- j
Iagðar á jörðu, 6 skipum sökkt, I
margar verksmiðjur lagðar í
rústir og 164 fallbyssustæði
sprengd upp.
J Ö T U N N
STEYPIR ÞAÐ!
Vér höfum nýlega stækk-
að málmsteypu vora um
helmmg og höfum ágætum
verkmönnum á að skipa.
Getum nú tekið að oss ým-
iskonar
I
jáin- og
málmsteypu
til skjótrar afgreiðslu. —
Tökum að oss
modelsmíði,
ef óskað er.
VELSMIÐJAN
JÖTUNN H/F
HRINGBRAUT
MATSÖLU
rekum við undirritaðar
framvegis á
Laugavegi 72
o g
Vesturgötu 48
hér í bæ, en veitinga-
starfsemi, sem þar hefir
verið, hættir að öðru
leyti.
J. H. og E. I.
Valdimarsdætur.
Lítið iðníyrirtæki
er til sölu. Trygg at-
vinna fyrir 1—-2 menn.
Upplýsingar gefur
Jón Arinbjörnsson.
Sími 2175.
Rafmagnsmótora
fyrir 220 volta rið-
straum, V4, V2, %, 1, 2,
3 og 5 hestafla, hefi eg
fyrirliggjandi.
Jón Arinbjörnsson,
Öldugötu 17.
Sími 2175.
Grjótkrani,
með stóru handsnúnu
spili er til sölu.
Uppl. í síma 1866.
5 manna bíll
til sölu í góðu standi
Lindargötu 63 A. —
Komin heim.
Ragnheðiur
Guðmundsdóttir
ljósmóðir
Laugavegi 83. —
Sími 3356.