Vísir - 23.08.1944, Page 1

Vísir - 23.08.1944, Page 1
Hltstjórar: Rristján GuðlaugssoQ Hersteinn Pálsson Skrifstofur: Félagsprentsmiðjan (3.xhæð) Rltstjórar 1 Bladamenn Slmti Auglýsingar i 1660 Gjaldkerl S llnur Afgreiðsla 34. ár. Reykjavík, miðvikudaginn 23. ágúst 1944. 189. tbl. BANDAMENN ERU MEIRA EN HALFNAÐIR TIL SVISS ÚR NORÐVESTRI QG SUÐRI. Komnir til Sens fyrir suðaustan Paris. Eru nyrzt 6 km. frá Signuósum. gærkveldi var það eitt lát- ið uppi um ferðir þriðja hers Bandaríkjamanna, að hann hefði tekið borgina Sens, sem er um 100 km. fyrir suðaustan Paris. Sens er við Yonne, sem er ein, af þverám Signu. Þar sem Yon- ne rennur í Signu, rétt fyrir neðan Sens, beygir Signa norð- austur á bóginn um skeið, en svo aftur til suðausturs. Nánari fregnir en áður eru ekki fyrir hendi um brúarstæð- in yfir Signu, en Þjóðverjar lialda áfram að flytja allskonar nauðsynjar og birgðir frá París. Meira en hálfnaðir til landamæra Sviss. Framsveitir bandamanna eru nú komnar meira en liálfa leið til landamæra Sviss í loftlinu frá Clierboúrg, en til frekari samanburðar má geta þess, að loftlínan frá Cherbourg til Sens er jafnlöng loftlinu frá Sens til Kölnar. Framh. á 4. síðu. Árásir á olíustöðvar. Bandamenn héldu áfram loft- árásum sínum í gær gegn olíu- stöðvum Þjóðverja. Aðalárásh’nar voru gerðar á olíustöð í Oderdalnum, skammt frá Breslau og tvær olíustöðvar í grennd við Vínarborg. Sjö liundruð og fimmtíu flug- vélar voru sendar í þessa leið- angra frá Ítalíu og Þjóðverjar sendu upp fleiri flugvélar til varnar en þeir liafa gert um langt skeið. Forrestall lofar brezka flotann. Forrestall, flotamálaráðherra Bandaríkjanna, er á ferð um Evrópu um þessar mundir. Hann hefir komið í heimsókn til aðalbækistöðva Eisenhowers og látið í ljós mikla aðdáun á því, hversu samvinna banda- manna er þar góð á öllum svið- um. Hann lét einnig í ljós mikla aðdáun á brezka flotanum, sem hefði hvað eftir annað unnið afrek, sem allir hefði talið ó- framkvæmanleg. Norðaustur af Praga segjast Rússar hafa tekið 50 staði, þ. á. m. járnbraútarstöð 30 km. frá borginni. ★ Enn einn blaðamaður hefir farizt í Frakklandi. Ök Sher- man-dreki yfir „jeep“ hans. Rússar sækja iiii til IMoesli - olíulindanna. Tvöföld sókn inn í Rúmeniu* Líkt og í Afríku eftir orustuna við Alamein. En Kluge mun berjast til þrautar. Aðstaðan í Norður-Frakk- landi er nú mjög lík því, sem hún var eftir Alamein í Afi’íku, ritar hermálaritari Times í London. Við EI Alamein tókst 8. hern- um að gersigra Þjóðverja, þótt þeir gerðu nokkrar tilraunir til að stöðva hann á leiðinni til Tri- polis. Nú hefir bandamönnum tekizt að gersigra 7. her Þjóð- verja, svo að hann getur aðeins reynt að forða sér á flótta. Eins og eftir Alamein munu Þjóðverjar vafalaust gera til- ■ raunir til að stöðva bandamenn og það er auðveldara i Frakk- Indi en í N.-Afríku, vegna þess að þarna verður umferð að mestu að fara eftir vegum og þá er hægt að eyðileggja eða sprengja brj'r í loft upp. Kluge mun berjast. En það eru ýmsar ástæður fyrir því, að Kluge mun berj- ast, meðan þess er nokkur kost- ur. Það er veigamikil ástæða, að hann er SS-hershöfðingi og sama er að segja um marga af nánustu samstarfsmönnum hans. Þeir eru nær allir á lista Rússa yfir stríðsglæpamenn og geta ekki bjargað sér með því að fara að ráðum bandamanna um að gefast upp. Þótt þeir sjái vonleysi barátt- unnar, munu þeir ekki gefast upp fyrr en í fulla lmefana, meðan þeir eiga enn einhvern vonarneista. Rússar hafa hafið tvöfalda sókn inn í Rúmeníu og hafa herir þeirra sótt fram 65—70 km. sums staðar. Sókn þessi hófst á sunnudags- morgim og var gerð heggja vegna við Jassy, hina fornu höfuðl)org Rúmeníu. Annar her Rússa hóf sókn sína á svæðinu milli ánna Seret og Pruth, en liinn var austar, á háðum böklcum Dnjestr. Þarna hefir allt verið með kyrrum kjörum, síðan vetrarbardagar hættu og höfðu Þjóðverjar mikið lið þarna, þótt þeir hafi orðið að uppfylla mildar kröfur annars staðar. Herinn, sem vestar er, rauf varnir Þjóðverja á 120 km. breiðu svæði og sótti fram allt að 65 km. leið. Hinn herinn rauf varnir Þjóðverja á næstum 130 km. breiðu svæði og sótti fram í’úmlega 70 km. Á sóknarsvæði þessa hers eru borgimar Kisjin- ev, Bender og Akkerman. Er það gamalt orðtak í Rússlandi, að sá sem hafi Bender hafi all- an Balkanskagann. Manntjón 38 þúsund. Þessa þrjá daga segjast Rúss- ar hafa fellt 25.000 Þjóðverja, en tekið að auki 13.000 fanga. Rússar hafa einnig tekið nokkuð herfang og eru meðal þess 22 skriðdrekar og 250 fall- byssur, en auk þess segjast Piússar liafa eyðilagt 154 skrið- dreka og 407 fallbyssur. Annars hefir tjón Þjóðverja verið óvenjulega mikið síðustu dagana, því að þeir hafa misst á þriðja hundrað skriðdrelca hvern daginn eftir annan. Gagnáhlaupum enn hrundið. Þjóðverjar halda áfram mikl- um gagnáhlaupum fyrir siuinan Riga og víðar í litlu Eystrasalts- Iöndunum, en þau hera þó ekki tilætlaðan árangur. Rússar hafa sjálfir unnið á í Eistlandi og er TartU nú slitin úr sambandi að sunnan. 12,000 Þjóðverjar felldir. 1 orustunni við herdeildirnar þrjár, sem innikróaðar voru við Sandomir í Póllandi, féllu um 12,000 Þjóðverjar, en rúmlega 1500 voru ieknir til fanga. Lið þessara herdeilda hefir því mjög verið farið að ganga sam- an. — Fækkar í SS. Einn af fréttariturum brezka útvarpsins í Frakklandi segir að SS-sveitirnar verði nú æ meira að gerast einskonar lögreglu- sveitir gagnvart sjálfum þýzka hernum. En þeim hefir verið beitt svo oft og víða, að mjög hefir fækkað þeim ofstækisfullu nazistum, sem áður fylltu allar fylkingar þeirra. Að vísu er enginn maður meðal foringjanna, sem trúir ekki á Hitler og sigur hans, en til þess að fylla i skörðin liafa verið teknir menn í sveitirnar, sem alls ekki munu geta talizt tryggir, ef trúa má frásögnum fanga. Þetta getur um síðir orð- ið lil þess, að SS-sveitirnar bili eins og herinn, og þegar þær bila, liá verður allt húið fyrir Hitler. Tlalir eru sagðir leggja hvað eftir annað til bardaga við Þjóðverja að baki gotnesku lín- unnar. ★ Þjóðverjar hafa náð Gördeler borgarstjóra, en heita 500 þús. marka launum fyrir upplýsing- ar um mann, sem skaut yfir hann skjólshúsi. Hersveitir bandamanna streyma inn í borgina. König hershöfðingi, sem er yfirmaður hersveita föðurlands- vina og var fyrir skemmstu gerður hernaðarstjóri í Frakk- landi, gaf út tilkynningu í morgun um að Paris hefði verið losuð undan oki Þjóðverja. I tilkynningu Königs var sagt, að stjórnir leynisamtaka Frakka heima fyrir hefðu tekið ákvörðun um það á laug- dag, að gerð skyldi uppreist í Paris. Þar var fimmtíu þúsund manna herlið, en auk þess hjálpuðu borgarbúar uppreistar- sveitunum í hundraða þúsunda tali, þótt þeir hefði ekki vopn. Lögregla horgarinnar gekk og í Iið með uppreistarmönn- um og tók hún þegar aðallögreglustöðina á vald sitt, en auk þess var gert virki á eyju úti í Signu. Síðan hefði barátta ParV arbúa borið þann árangur, að Þjóðverjum hefði verið stökkt úr borginni. Síðar var sagt frá því í fregnum, að herlið bandamanna streymdi inn í borgina og væri þeim fagnað mjög af borgar- búum. Fara allir, sem vettlingi geta valdið, út á götur borgar- innar, til þess að hylla þær. Ösigur í dag eða á morguxt. Spurningin, sem Þjóð- verjar verða að svara. 1 útvarpi frá London á þýzku eru Þjóðverjar sífellt hvattir til að steypa Hitler og semja frið. Spurningin fyrir Þjóðverja sé 'ekki um sigur eða ósigur, held- ur ósigur í dag eða ósigur ó morgun: Ef hætt er að berjast í dag, þá' verður fljótlega hægt að hefja endurreisnina, en ef berjast á um hvern þumlung Þýzkalands, þá verður ckkert, sem hægt verður að hyggja á, þcgar blóðbaðið hættir að lolc- um og hægt er að snúa sér að viðreisninni. Franska bráðabirgðastjórnin og tékkneska stjórnin í Lon- don hafa samið með sér um að rifta Múnchenarsáttmálanum. ★ 1 Englandi stendur nú til að sameina öll héraðafélög náma- manna í eitt allsherjarsamband. Ðag:- ogf nætsir- árásir á Jagiau. Risaflugvirki Bandaríkja- manna hafa gert bæði dag- og næturárás á japönsku borgina Yawata. I dagárásinni var árarigur mjög mikill af sprengjukastinu. Margar orustuvélar réðust á flugvirkin og voru fjögur þeirra slcolin niður, en Japanir misstu 15 flugvélar, ef til vill 13 að auki og tólf voru laskaðar. Svíar veita Þjóð- verjum þungt áfall. Svíar hafa gert Þjóðverjum mikinn óleik. Sænska tryggingaráðið hefir ákvcðið að tryggja ekki sldp, sem eru í siglingum til Eystra- saltshafna Þýzkalands. Þann 11.'þ. m. var hætt að tryggja skip, sem sigla til Norðursjáv- arhafna. Þetta er mikið áfall fyrir Þjóðverja, því að sænsk skip héldu uppi mestum hluta flutn- inganna milli landanna. Komnir inn í Gren- obfe frá Miðjarðar- hafi. Fangatalan komin upp í 17.000. j^tta dagar voru í gær liðn- ir frá því að bandamenn gengu á land í Suður-Frakk- landi og í gær fóru fram- sveitir þeirra inn'í borgina Grenoble, 90 km. frá þyon. Undanfarið hefir verið mjög hljótt um fei’ðír þeirra her- sveita bandamanna, sem lengst liafa verið komnar upp í land í Suður-Frakklandi, en nú hefir hlæjunni verið svipt af ferðum þeirra og er sóknin hraðari en nbkkurn óraði fyrir. Er óhætt að fullyrða, að sjaldan eða aldrei hefir verið sótt eins liratt fram um langan tíma í upphafi inn- rásar. Grenoble er 220—30 km. í loftlíuu frá Miðjarðarhafi og hafa hersveitirnar, sem til borg- arinnar eru konmai’, þvi farið að jafnaði 28 km. á degi hverj- um. Er leiðin norður til Genfar- vatns miklu meira en hálfnuð því að þangað eru taldir um 340 km. í loftlínu frá Toulon. Vita ekki sitt rjúkandi ráð. Patch hershöfðingi gaf út dagskipan í gær og sagði þar meðat annai’s, að Þjóðverjar væri nú svo ruglaðir, að þeir vissu ekki sitt rjúkandi ráð og veittu aðeins mótsþyrnu rétt með ströndum fram. Þessi síð- asta fregn um töku Grenoble — sem þó þurfti ekki að taka, því að borgin var í höndum föður- landsvina — sýnir þetta betur en nokkuð annað. Harðir bardagar í Toulon. Frakkar eiga í liörðum bar- dögum í Toulon. Hefir þeim leldzt að komast í gegnum hina öflugu virkjaröð umhverfis borgina og eru á einum stað að- eins um 1000 m. frá flotalœg- inu. Ekki er sýnt ennþá, hvernig fer við Marseilles, cn þó er lík- legast, að Þjóðverjar reyni að verjast eitthvað þar líka. Til Avignon stefna banda- menn í fjórum svetium og mæta lílilli mótspyrnu. 17.000 fangar. Fangatalan er ærin sönnun þess, að baráttuhugur Þjóðverja er ekki mikill. í gær var til- kynnt, að búið væri að taka um 13.000 fanga, eri á einum degi hefir hún hækkað um 4000. Taka handamenn nú nærri jafn- ört fanga og síðustu dagana 1918.

x

Vísir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.