Vísir - 26.08.1944, Page 1

Vísir - 26.08.1944, Page 1
Kitstjórar: Kristján Guðlaugsson Hersteinn Pálsson Skrifstofun Félagsprentsmiðjan (3.,hæð) Ritstjórar Blaðamenn Slmt> Auglýsingar 1660 Gjaldkeri S llnur Afgreiðsla * 34. ár. Reykjavík, laugardaginn 26. ágúst 1944. 192. tbl. Bandamenn undirbúa næstu sókn sem Forseti Islands! boði Roosevelts forseta í Hvíta húsinu. Eins og áður hefir verið skýrt frá, var forseti Islands, utanrík- isráðherra og annað föruneyti gestir forseta Bandaríkjanna í kvöldverði í Hvita húsinu á fimmtudagskvöld. Meðal boðsgestanna voru ráð- herrar, liæstaréttardómarar, ýmsir helztu þingmenn, for- stjórar sjálfstæðra stjórnar- deilda, Settinius varautanrilds- ráðherra, fulltrúar fyrir her og flota og ýmsir ráðgjafar, enn- fremur voru meðal boðsgesta sendiherra Islands í Washing- ton Thor Thors og Henrik Sv. Björnsson, sendiráðsritari. Roosevelt forseti ávarpaði forseta Islands með hlýjum orð- um í garð Islands og Sveinn Björnsson forseti þakkaði með stuttri ræðu. á að opna leiðina inn í Þýzkaland. Bandamenn 15 km. frá Got- neskulínunni. Hersveitir bandamanna á ít- alíu hafa unnið nokkuð á síð- ustu daga. Áttundi herinn liefir komizt nær upptökum Metauro-árinn- ar uppi í Appenninafjöllum, þar sem Þjóðverjar hafa gert tilraun til að lialda undan án þess að þurfa aðvlenda í bar- daga við bandamenn. Flugvélar bandamanna frá Ítalíu fóru í víðtækar árásir í gær. % Efst í Arnodalnum hafa' bandamenn bætt aðstöðu sina og eru víða aðeins um 15 km. frá gotnesku línunni. 100 menn farast í fellibyl. Að minnsta lcosti hundrað manns hafa farizt í fellibyl á Jamaica. Fellibylurinn gekk yfir eyj- una síðastliðinn sunnudag, og var einliv,er sá versti, sem geng- ið litefir yfir á þessum hluta Karaibiska hafsins. Hús féllu eða fuku út í buskann í hundr- aða tali, og er hætt við, að fleiri hafi farizt, en enn er vitað um. Margvísleg uppskera á eynni varð einnig fyrir miklu tjóni. Loftárásir dag og nótt á Þýzkaland. Loftsókn handamanna hélt á- fram í gær og nótt. I gær réðust um 1100 amer- ískar sprengjuflugvélar á ýms- ar stöðvar Þjóðverja á megin- landinu. Var meðal annars ráð- izt á Peenemiinde, þar sem Þjóðverjar hafa mikla tilrauna- stöð fyrir allskonar vopn flug- hersins. Er talið, að tilraunir séu þar gerðar með rakettu- sprengjur. Stórar brezkar flugvélar fóru líka í leiðangra, meðan bjart var og réðust þær á rakettu- stöðvar á strönd Ermarsunds. Stórhópar brezkra flugvéla réðust á Þýzkaland í nótt. M. a. var ráðizt á Russelheim lijá Frankfurt, en Moskito-vélar réðust á Berlin. Sendiherra Vichy-stjórnar- innar i Ankara hefir v.erið sagt, að hann teljist ekki fulltrúi ríkisins framar. Lið Japana í Burma hefir ver- ið tvöfaldað síðan Mountbatten flotaforingi var sendur til her- stjórnar austur þar. Mountbatten hefir verið í London nýlega og er nýkominn aftur til höfuðstöðva sinna á Ceylon. Áður en hann fór þang- að átti hann tal við blaðamenn. Sagði Mountbatten meðal axmars, að Japanir hefði gert allt, sem í þeirra valdi stóð til að hindra bandamenn í að kom- ast inn í Burma, en þó ekki tekizt. Fyrirætlanir banda- manna eru að vísu ekki eins stórhuga og Japana, en þó var Japönum um megn að hindra hersveitir Breta, Kínverja og Bandarikjamanna í að brjótast inn í Norður-Burma og hreinsa þar duglega til. Tilgangurinn með þeim hernaðaraðgerðum er að opna leið til Kina og koma til þeirra hergögnum og öðrum nauðsynjum, sem þá vanhagar nú mjög um. Mesta orusta Breta og Japana. Innrás Japana í Manipur-hér- Japanir hafa tvöfaldað her sinn í Burma. Mesta orusta þeirra og Breta var við Dimapur. Meðan liðskönnun fer fram á amerísku flugstöðvarskipi, standa flugvélarnar á þilfarinu með vængina lagða aftur með hliðunum, eins og fuglar, sem sezt hafa til hvildar. V.*lslending:ar falla í innrásinni á megin> landið. Flugmaður getur sér orðstír í loftárásum. að hefði getað orðið banda- mönnum stórhættuleg, ef Jap- anir hefðu haft að baki sér full- komnar aðdráttarleiðir. En þeir urðu að sækja yfir há og illfær fjöll, sem einungis mjóir skóg- arstígar lágu yfir og engin leið að koma upp vegum nema á mörgum árum. En þrátt fyrir þetta komu Japanir svo miklu liði vestur yfir f jöllin, að orustan, sem háð var við Manipur, mun hafa ver- ið mesta orusta, sem banda- menn hafa háð við Japani, að minnsta kosti sú mesta, sem Bretar hafa háð við Japani. Japanski flotinn bærir lítt á sér. Blaðamenn spurðu Mount- batten að lokum um afrek jap- anska flotans, en fengu það svar, að heldur færi lítið fyrir þeim. Hefir japanskt orustu- skip ekki sézt vestan Malakka- skaga í háa herrans tíð og önn- ur herskip þeirra halda sig mest i höfnum eða upp við land- steina. 1 nýkomnum vestur-íslenzk- um blöðum er sagt frá því, að tveir menn af íslenzkum ættum hafi fallið í stríðinu. Annar þessara manna var Jack Ed'ward Kristján Hannes- s'on. Hann var flugmaður, gekk í herinn snemma á árinu 1942, og var sendur til Englands 1943. Hann féll 30. júní s.l. Kristján Hannesson var tæpra tuttugu og tveggja ára. Foreldrar hans eru Kári Ösk- ar Hannesson og kona hans, sem eiga heima í Vancouver í Kanada. Kári er ættaður úr Borgarfirði, bjó Kristján Hann- esson faðir hans í Eskiholti, að því er Heimskringla hermir. Kristján mun haaf tekið þátt í árásum til stuðnings innrás- inni. Hinn íslendingurinn féll í Frakklandi um líkt leyti. Hann hét Irvin Paulson og var sonur þeirra hjóna Jóhanns Paulsson- ar1 og konu hans, sem búa í Winnipegosis. Irvin var settur í herdeild Kanadamanna af slcozkum ættum, eftir að hann var sendur til Englands í októ- ber á síðasta ári. Þá er sagt frá, því að íslenzk- ur flugmaður að nafni Hilmar Clifford Eyjóllsson hafi getið sér mikið frægðarorð fyrir hreystilega framgöngu í 30 sprengjuárásum á Þýzkaland. Hefir hann síðan verið gerður flugkennari. Hilmar er sonur Bjarna Eyj- óflssonar frá Laugarvatni í Ár- nessýslu og konu hans Guðnýj- ar Jónsdóttur, sem er frá Víða- stöðum á Fljótsdalshéraði. Rarms knir á virkjunarmöguleikum Bæjarráð ræddi rafmagns- mglin á fundi sínum í gær. 1 Lögð var fram tillaga frá j rafmagnsstjóra, og samþykkt, að hann t slcyldi halda áfram rannsóknum á virkjun foss- anna fyrir neðan Ljósafoss i Sogi, og geri jafnframt ítar- lega . virkjunaráætlun um Botsá í Hvalfirði, í samvinnu við Rafmagnseftirlit ríkisins. Rússar un3kring:ja 12 þýzkar herdeild- ir í Rnmenhi. RÚKueiiar Negrja Þjóöierjuni slríð á headsir. Útvarpið í kvöld. Kl. 19.25 Hljómplötur: Sam- söngur. 20.45 Upplestur: Sögukafli (GuÖmundur G. Hagalín rithöf- undur. 21.15 Hljómplötur: 4) Tón- verk eftir Mozart og Haycín. b) Svíta nr. 3 eftir Bach. 21.50 Fréttir. 22.00 Danslög. Útvarpið á morgun. Kl. 14.00 Messa í Fríkirkjunni (síra Árni Sigurðsson). 15.00 Miö- degistónleikar (plötur) : a) Tatara- lög. b) 15.25 Syrpa af enskum þjóðlögum. c) Lög og dansar eftir Foster. d) Endurtekin lög. 19.25 Hijómplöfur: a) Chaconne eftir Vi- tali. 1)) Fiðlusónata eftir Veracini. 20.20 Einleikur á píanó (Fritz Weis- shappel): Preludium og intermezzo eftir MacDowell. 20.35 Erindi: Viðhorf Islendinga til konung- dóms (Skúli Þórðarson magister). 21.00 Hljómplötur: Norðurlanda- söngvarar. 21.15 Upplestur:' Smá- saga (Anna Guðmundsdóttir leik- kona). 21.35 Hljómplötur: Fiðlu- sónatá eftir Brahms í A-dúr, Op. 100, nr. 2. 22.00 Danslög. Nærri 2 milljónir komnar á land í N.-Frakklant Fcrtugur er í dag Sigurður G. Jónsson, Hofsvallagötu 21, starfsmaður hjá Kol og Salt. Vörn Þjóðverja í Rúmeníu er alveg' að fara í mola og geys- ast Rússar suður til Galatz- hliðsins. Fangatalan fer dagvaxandi og tekur stór stökk upp á við á hverjum degi, síðan Rúmen- ar gengu handamönnum á hönd. Má vera að það stafi af því, að rúmenskar lierdeildir hafi gengið bandamönnum á hönd. I gærkveldi var talið, að fangarnir væri orðnir 105,000 að tölu, en þá fimm daga, sem sóknin hafði þá staðið, töldu Rússar, að þeir hcfði fellt 100 þúsund Þjóðverja. 12 herdeildir umkringdar. I gær tilkynntu Rúss'ar, að þeir hefði umkringt 12 þýzkar herdeildir suðvestur af Kishi- nev, og er nú verið að uppræta þetta lið. Þá tvo daga, sem her þessi hefir verið umkringdur, hafa 13,000 menn gefizt upp. Tjón Þjóðverja hefir verið mikið í þessari sókn. Þeir hafa misst 200 flugvélar, en auk þess hafa Rússar tekið eða eyðilagt um 660 skriðdreka og sjálfak- andi fallbyssur. Rúmenar segja Þjóðverjum stríð á hendur. I gær tilkynnti nýja rúm- enska stjórnin, að hún væri í stríði við Þýzkaland, og í Kairp í gær heyrðist rúmensk út- varpsstöð skýra frá því, að föð- urlandsvinir hefði tekið Buka- rest. Bandaríkjamenn komnir til Troyes. j^laSamenn síma frá NorSur- Frakklandi að stórkost- legur sóknarundirbúningur fari nú fram þar, svo að slíks Kafi aldrei sézt nein dæmi áS- ur í hernaSarsögunni. I fregnum frá Þýzkalandi er þess getið, að Þjóðverjar telji tvær milljónir manna komnar á land. Bandamenn segja ekk- ert um það, hvort sú ágizkun sé nærri sanni, en á hitt er eng- in dul dregin, að her hafi aldrei verið eins vel að öllum her- gögnum og flutningatækjum búinn og Bretar og Bandaríkja- menn. Og þegar þessi sókn fer af stað, mun hún ekki stöðvast fyrr en í Þýzkalandi, eins og segir í einni fregn. Þjóðverjar gefast upp. Þýzka liðið í París gast loks upp í gær. Foringi þess, von Schlobitz, undirritaði uppgjaf- arsamninginn í Montparnasse- stöðinni. Nú eru aðeins leyni- skyttur á einstaka stað í borg- inni. Þegar De Gaulle kom til Par- ísar í gær var honum tckið af miklum fögnuði. Lýsti hann yf- ir því, að fjórða franska lýð- veldið væri stofnað. SÓKNIN SUÐAUSTUR FRÁ PARÍS. Bandaríkjamenn kömust í gær til horgarinnar Tróyes, sem er við Sígnu. ofarlega. Eru liardagar skæðir þarna, því að Þjóðverjar hafa eflzt mjög að liði undanfarna dagá, en flutningaleiðir ameríska liers- ins hinsvegar orðnar langar og erfiðar. Enn hefir verið þrengt svæði Þjóðverja norðan við Signu- ósa og er haldið uppi miklum árásum á liðið, er það leitast við að komast -yfir fljótið. 60 KM. FYRIR NORÐ- VESTAN MARSEILLES. í gærkveldi voru framsveit- ir bandamanna komnar um 60 km. norðvestur fyrir Marseil- les á leiðinni til Arles við Rón. Hefir Þjóðverjum tekizt að koma einhverju liði þarna suð- ur eftir og er því sóknin liæg- ari en áður. Ennþá er barizt i Toulon, en engar fregnir herast af liðinu, sem tók Grenoble. Messur á morgun: Dómkirkjan: Messa'ð kl. 11 f. h. Síra Friðrik Hallgrímsson. Hallgrímsprestakall: Messað kl. 11 f. h. i Austurbæjarbarnaskólan- um. Síra Sigurbjörn Einarsson. Fríkirkjan. Messað kl. 2 e. h. Síra Árni Sigurðsson.

x

Vísir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.