Vísir - 07.09.1944, Qupperneq 3
isaasifi
VISIR
f
Bjarni Grímsson
frá Öseyrarnesi
andaðist 29. ágúst s.l., að heim-
ili sínu, Barónsstíg 59 hér í
bænum, eftir stuttt legu; hafði
áður um nokkur ár verið mjög
veill á heilsu.
Hann var fæddur á Öseyrar-
nesi 4. des. 1870 og voru for-
eldrar hans Grímur óðalsbóndi
Gíslason Þorgilssonar frá
Syðraseli við Stokkseyri, og
Elín .Bjarnadóttir óðalsbónda
Hannessonar í Óseyrarnesí.
Systkin Bjarna voru 5, er upp
komust, og ólst hann upp með
þeim og í nábýli við frændsyst-
kini sín, börn Þorkels Jónsson-
ar, sem einnig bjó í Óseyrar-
nesi, er voru flest nokkru eldri,
en eigi að síður voru börn
Gríms og hin yngstu af börnum
Þorkels leiksystkin i æsku, og
féll víst vel á með þeim, og var
barna og unglingahópur þessi
mjög glæsilegur og vel uppal-
inn. Af þessum lióp eru nú að-
eins tvær konur á lífi: Valgerð-
ur, systir Bjarna, gift kona hér
,í bænum, og Ingibjörg, gift
kona á Laugabrekku í Reykja-
vík, dóttir Þorkels.
Eg, sem rita þessi minningar-
orð, var rúmum þremur árum
eldri en Bjarni og ólst upp á
næsta bæ við Óseyrarnes, aðeins
tæpur hálftíma gangur milli
hæjanna, og var eg því tíður
gestur í hópi unglinganna þar
á uppvaxtarárum mínum, og
var mér óblandin ánægja að
vera með þeim. Grímur í Ós-
eyrarnesi hafði heimiliskenn-
ara á vetrum fyrir börn sín,
eftir að þau komust á námsald-
ur, og var sá síðasti þeirra hinn
landskunni fræðimaður Bi'ynj-
ólfur Jónsson frá Minna-Núpi,
er mun háfa haft mjög góð á-
hrif á þessa unglinga, náms-
áhuga þeirra og skapgerð. Einn
vetur kom upp barnaveiki á
heimili Gríms, og kom hann þá
þremur elztu börnum sínum til
Eyrarbakka, og fékk þau tekin
um tíma inn í barnaskólann
þar. Eg var þá þar i skólanum
og mæltist Grímur til þess við
mig, að eg væri þeim hjálpleg-
ur við námið, ef eg gæti, svo
að þau gætu haft full not af
kennslunni þennan tíma og var
mér það ljúft, því þau voru öll
mjög skemmtileg, og höfðu á-
gæta hæfileika, en þó fannst
mér að Bjarni bæri þar af. Eft-
ir lát föður síns, er andaðist 26.
febrúar 1898, fluttist Bjarni að
Stokkseyri, sem síðar varð eign
hans, og gerðist verzlunarmað-
ur. Fyrst hjá Edinborgarverzl-
un, svo hjá Ólafi kaupm. Árna-
syni og síðast hjá kaupfélaginu
Ingólfi. Árið 1901 gekk Bjarni
aci eiga eftirlifandi konu sína,
Jóhönnu Hróbjarsdóttur óðals-
bónda Hannessonar á Grafar-
bakka í Hrunamannahreppi,
hina ágætustu konu, sem var
honum ástríkur og styrkur lífs-
förunautur til dauðans. Þau
eignuðust 7 börn og misstu eitt
þeirra á fyrsta ári, en 6 eru á
lífi uppkomin og mannvænleg.
Þau eru þcssi:
1. Grímur pípulagningameist-
ari.
2. Dagbjarlur, stýrimaður á
m.s. Esju, giftur Aðalheiði
Tryggvadóttur.
3. Haraldur múrarameistari.
4. Hróbjartur stórkaupmaður,
giftur, og er kona hans Eve-
lyn, f. Hobbs.
5. Sigríður, er reltur iðnfyrir-
tæki hér í bænum, og
6. Elín skrifstofumær.
Þau hjónin Bjarni og Jó-
hanna reistu bú á Stokkseyri
árið 1901 og bjuggu þar til þess
að þau fluttu til Reykjavíkur
31. desember 1926. Á Stokks-
eyri hafði Bjarni á hendi mörg
aukastörf í almenningsþarfir.
Hann var í hreppsnefnd, skóla-
nefnd, safnaðarstjórn, stjórn
sparisjóðs, og í stjórn Flóa-
áveitunnar, allt þetta um lengri
og skemmri tíma, og bendir það
ótvírætt til þess, að hann hafði
fullkomið traust sveitunga
sinna. Bú þeirra hjóna var víst
aldrei mjög stórt, en myndar-
legt i alla staði og lieimili þeirra
hæði á Stokkseyri og hér fyrir-
myndarheimili.
Þá kem ég að því, sem var
stór og veigamikíll þáttur í lífi
Bjarna, það var sjómennska
hans og formennska við fiski-
veiðar í Þorlákshöfn. Hann
mun hafa byrjað sjómanns-
starfið rúmlega 15 ára, fyrsta
árið með föður sínum, sem um
langt skeið var nafnkunnur for-
maður, en varð að hætta for-
mennsku, sökum sjúkleika, og
tóku þeir bræður, Bjarni og
Páll, síðar bóndi í Nesi í Sel-
vogi, við formennskunni. Páll
var rúmu ári eldri, eða um 17
ára, og var hann þvi talinn for-
maður, og var Bjarni með hon-
um tvær vertíðir, en byrjaði
svo formennsku á eigin skipi
rúmlega 18 ára að aldri. Þó þeir
bræður væru yngri en flestir
aðrir, er þeir byrjuðu for-#
mennsku, fór þeim bóðum það
starf svo vel úr hendi, að þeir
voru von bráðar taldir meðal
hinna allra fremstu formanna
um 38 ára skeið, er þcir stund-
uðu það starf.
Þegar Bjarni byrjaði for-
mennsku, réðust til hans ungir
og röskir hásetar, er sumir voru
víst með honum alla hans for-
1 mannstíð. Iiann varð fljótlega
meðal fremstu sjósóknara og
aflamanna, og báru hásetar
hans fullkomið traust til hans
alla tíð, og var það maklegt,
því að um leið og hann var
djarfur sjósóknari, var hann
aðgætinn og varð aldrei fyrir
neinu slysi.
Eg geri ekki ráð fyrir að
Bjarni hafi nokkru sinni haft
neinn háseta, sem vildi gera at-
hugasemdir við sjósókn hans,
en ef svo hefði verið, gæti ég
hugsað, að hann hefði sagt eitt-
hvað líkt og stendur í kvæðinu
„Eggert Ólafsson“: „Eg trúi á
Guð, en grýlur ei, og gleð mig
við reiðan sjó“. Bjarni gladdi
sig oft við „reiðan sjó“, það er
eg viss um; hann var ávallt
glaður og með örrugum hug; j
hans stefna í lífinu var fram-
sækni, hetjulund og glæsi-
mennska. Eftir að hann flutti
til Reykjavíkur stundaði hann
fiskimatsstörf, meðan heilsan
leyfði, og mun það hafa farið
vel úr hendi, eins og annað, er
hann starfaði.
Við Bjarni vorum, eins og áð-
ur segir, uppaldir í nágrenni
livor við annan og vorum leilc-
bræður í æsku, og tókst með
okkur góður kunningsskapur
og vinátta, sem hefir haldizt
alla tíð, og eru minningar mín-
ar um hann mjög ánægjulegar,
en mér finnst þegar hann er
fallinn frá, stórt skarð höggvið
í hóp þeirra samferðamanna, j
sem ég hefi metið mest af þeim,
sem eru á líku aldursskeiði og
ég, en ég veit að það er sam-
kvæmt óriúfanlegu lögmáli, er
allir verða að lúta, einn í dag
og anriar á morgun, og eg veit,
R ú s i n u r
Klapparstíg 30. - Sími: 1884.
Ung stúlka
með barn öskar eftir víst á
harnlausu heimili. — Tilboð,
merkt: „65“, sendist Vísi fyr-
ir n.k. laugardag
Miðstöðvarketill
til sölu,
Uppl. á Hverfisgötu 114.
Telpukápur
teknar fram í dag.
Dömukjúlar
teknir fram daglega.
KJÖLABOÐIN
Bergþórugötu 2.
Tyggigúmmí
Klapparstíg 30. - Sími: 1884.
ÞurrkaSur
Saltfiskur
Þurrkuð skata
íslenzkar gulrófur
ágætar.
Hafliði Baldvinsson
Hverfisgötu 123.
Sími 1456.
Kvenmaður
óskast.
til gólfþvotta í Nýju Efna-
laugina.
Upplýsingar þar.
í góðu húsplássi, með góðum
vélum og lager, til sölu nú
þegar. — Tilboð, merkt:
„Saumaverkstæði“, sendist
blaðinu fyrir föstudags,-
kvöld.
BEZT AÐ AUGLTSA í VÍSI
að „látinn lifir, það er huggun
harmi gegn“.
Farðu vel í fegri heim. Þökk
fyrir samveruria.
. Sigurður Þorsteinsson.
Húsgagnasmiðir.
Okkur vantar húsgagnasmiði og trésmiði til að vinna við hús-
gögn og innréttingar.
G. Skúlason & Hlíðberg h.f.
Þóroddsstöðum.
Framtíðarstarf.
Ungur maður óskast til skrifstofustarfa hjá þekktu
fyrirtæki í miðbæntim. Umsókn, helzt með mynd af um-
sækjanda, merkt: „FramtíSarstarf“, sendist afgreiðslu
þessa blaðs sem fyrst.
Skrúfblýantur og kveikjari
— einn og sami hlutur — nýkomnir aftur.
Nokkrar tegundir af vindla- og sígarettukveikjurum.
Lögur (lighter fluid). Tinnusteinar (flint).
BRISTOL, Bankastræti 6.
Ábyggileg 14 ára telpa
getur fengið atvinnu í búð nú þegar .Tilboð sendist blað-
inu, merkt: ,,Ca. 14 ára“, strax.
Ungir listamenn!
Þér, sem viljið taka þátt í fjölbreyttu skemmtikvöldi, sem fram
fer í næsta mánuði, sendið nafn yðar og heimilisfang í lokuðu
umslagi, merktu „Skemmtikvöld“, til Vísis fyrir 15. þ. m. —
Allir þeir, sem hafa lagt stund á dans, söng og hljóðfæraslátt,
koma til greina.
Til sölu goður járnrennibekkur og lítið
púnktsuðutæki.
Upplýsingar í H.f. RAFMAGN, Vesturgötu 10.
Sími 4005.
Amerískar KVENKÁPUR
t
í dökkum litum. — Ódýrar.
-
BREIÐABLIK
Laugavegi 7 4.
Móðir okkar, tengdamóðir og amma,
Guðlaug Hannesdóttir,
er andaðist 31. f. m., verður jarðsungin frá Fríkirkjunni
n. k. föstudag. Athöfnin hefst kl. 1,30 að Elliheimilinu
Grund. — Jarðað verður í Fossvogskirkjugarði.
Fyrir hönd aðstandenda.
Hannes og Gestur Magnússynir.
Paa de fraværende Slægtninges Vegne önsker det Kgl.
Danske Gesandtskab at udtale sin hjertelige Tak til de
mange, der ved Begravelsen af
Kaptajn Hans Kr. Pedersen, O.B.E.,
Kok Walter Knudsen og
Fvrböder Kaj Lauritzen
tilkendegav deres Deltagelse.
Leiðrétting.
Vegna ummæla í grein, er
birtist í dagblaðinu Vísi 4-
þ. m. og greinargerðar í öðr-
um dagblöðum, um stofnun
hlutafélagsins Innkaupasam-
band rafvirka, óskum vér eft-
ir að birt verði eftirfarandí
leiðrétting:
í greinargerð félagsstjórnar-
innar segir m. a.: „Að stofnun
þessa innkaupasambarids standa
því sem næst 80% af öllum
starfandi rafvirkjameisturum
á öllu landinu.“
Samkvæmt upplýsinguni frá
Rafmagnseftiriiti ríkisins, er
tala löggiltra rafvirkja á land-
inu um 105, auk þess mrunu
vera starfandi méð bráða-
birgðarlöggildingu um 40 raf-
virkjameistarar og er þanníg
tala þeirra alls um .145.
Að stofnun Innkaupasam-
bands rafvirkja, lilutafélag,,
standa 12 löggiltir rafvirkja-
mesitarar, skv. firmatilkjmn-
ingu i Lögbirtingablaði nr^, 41,.
frá 23. júni s. 1., eða um 8% af
löggiltum rafvirkjum, en ekH
80%, eins og ranglega var-
hermí.
í Vísi segir:
„Ástæðan sem til þess lá, aS
samband þetta var stofnað var'
sú, að rafvirkjar gátu ekki leng-
ur sætt sig við að þurfa aðhaupa-
ófullnægjandi efni tíl að virinai
úr, en slíkt hefir fram aS þess--
um tíma valdið þeim míklum
erfiðleikum i rafmagnsfram-
kvæmdum þeirra.“
Er stríðið liófst, tók fyrir öll
viðskipti við Evrópu, nema við
Bretland og síðastliðiS hálft
annað ár hefir orðið að kaupa
allar rafmagnsvörur frá Banda-
rikjunum.
1 Bandaríkjunum og Bref-
landi tíðkast efni af öðrumgerð-
um en hér var notað, og af þeim\
ástæðum og vegna styrjaldar-
innar hefir þurft að nota þaðl
efni, sem fáanlegt hefir verið..
Ströng vöruskömmtun Iiefir
verið í Bandaríkjunum á öllu
raflagnaefni og rafvörum, og
jafnvel framleiðslubann á t. d.
öllum heimihstækjum, síðan
fyrstu styrjaldarárin. í þessu
sambandi má geta þess, að al-
gert útflutningsbann var á ölf-
um rafmagnsvörpm frá Banda-
ríkjunum, frá því í september
1943 til ársloka, að undanlekmt
15.000 dollara verðmæti, er ráð-
stafað var af Viðskiptaráði til
Raftækjaverksmiðjunnar hJF. i
Hafnarfirði. Ennfremuir skaí
tekið fram, að fyrirhugað út-
flutningsmagn á rafmagnsvör-
um til Islands, fyrstu tvo árs-
fjórðunga þessa árs kom ekki
til framkvæmda í Bandaríkj-
unum.
Það magn af rafmagnsVörum
sem nú hefir verið úthlutað í
Bandarikjunum, fyrir siöari
.helming ]>essa árs, er langt frá
því að fullnægja þörfum lands-
ins. ‘
Frá Bretlandi hefir verið al-
gert útflutningsbann á raf-
magnsvörum frá því í árs--
byrjun 1943.
j í Vísi segir:
j „að þeir aðilar, sem hafa haft
1 á hendi innkaup fyrir rafvirkj-
ana, hafa reynzt harla Iinir í
þessum starfa sínum, og' ekki
nándar nærri fullnægt þeím
kröfum sem gera verður til
þeirra manna, er slíkt verk hafa
tekizt á hendur.“
Þessi ummæli skulu ekki vé-
fengd, enda mun hér átt við þá
aðila, er rafvirkjar hafa fram-
selt þau gjaldeyris- og inn-
flutningsleyfi, er þeim hefir
verið úthlutað. Hitt skal hins-
vegar tekið fram að við fyrir-
tæki vor starfa þaulvanir menn,
með margra ára reynslu í þess-
ari grein.
P. Smith. Raítækjasalan h.f.
Electric h.f. Terra Trading Co..