Vísir - 20.09.1944, Blaðsíða 1

Vísir - 20.09.1944, Blaðsíða 1
RltJtjórar: ' Kristján Guðlaugsson Hersteinn Pálsson Skrifstofun Félagsprentsmiðjan (3..hæð) 34. ár. Reykjavík, miðvikudaginn 20. september 1944. Ritstjórar Blaðamenn Slmii Auglýsingac 1660 Gjaldkerí 5 llnur Afgreiðsla 212. tU. Loftsóknin gegn Hollandi heldur áfram. Fínnar sorgbitnir vegna samn- inganna. Landið verður sam- bandslaust við um- heiminn í 2 mánuði. Sorg ríkir í Finnlandi eftir að vopnahlésskilmálar banda- manna hafa verið tilkynntir þjóðinni. I fregnum um þetta frá Hel- sinki er sagt, að Finnar hafi gert sér vonir um að Rússar mundu sýna veglyndi, þar sem þeir hafi framtíð Finna í hendi sér, en þetta hafi brugðizt, eins og marga hefði grunað. Friðarsamningarnir hafa það í för með sér, að ekkert sam- band verður milli Finnlands og umheimsins í að minnsta kosti tvo mánuði og stafar það af því, að rússnesk nefnd á, sam- kvæmt kröfum Rússa, að hafa eftirlit með öllum pósti, skeyta- sendingum og shntölum til ann- ara landa þennan tíma. Finnar hafa fallizt á að af- henda Rússum Petsamo og leigja þeim Porkkala-skagann hjá Helsinki, auk landræmu og landhelgi þar hjá, og láta þeim kaupskipaflota sinn i té. Nýtt allsherjar- verkfall í Danmörku, 12,000 danskir lögregluþjónar hafa verið settir af, en Gestapo- menn tekið við störfum þeirra. Allsherjarverkfalli var lýst yfir í gær. Átti það að hefjast í dag, en menn fóru þega,r að hverfa frá vinnu sinni í gær- kveld. Barizt var lengi við Am- alienborg, en Þjóðverjar segja nú, að sá bardagi hafi stafað af þehn misskilningi, að menn hafi haldið að afvopna ætti lífvörð- inn. Tyrkneska stjórnin hefir nú viðurkennt tékkóslóvakísku stjórnina í London. Innrásin: 180.000 bílar og: 650.000 smál. nauð§yn|a fyrslu vikuna. Fyrstu viku innrásarinnar var 180,000 bílum og farartækjum skipað á land í Normandie. Löngum var vitað, að upp- skipun bandamanna hefði geng- ið mjög vel, en þó grunaði eng- an, að svo mikið kæmist á land þenna skamma tíma. En jafn- framt því, sem þessum bíla- fjölda var skipað á land, voru flutar 650 þús. smál. af allskon- ar hemaðarnauðsynjum. Tirpitz kæft §ex smál. §preng:|um Lancaster-vélar gerðu á föstu. dag árás á Tirpitz í Kaa-firði, sem gengur inn úr Altenfirði. Jafnskjótt og flugvélanna varð vart reyndu Þjóðverjar að hylja sldpið reyk, en þó tókst að hæfa það og segist einn flug- mannanna liafa séð enn stærri glampa en stafað geti af sex smálesta sprengju. Fimmti herinn tekur hæðir. , / Fimmti herinn hefir tekið þrjár hæðir, sem eru um 30 km. fyrir norðan Florens. Hæðir þessar eru mjög mikil- vægar, þvi að af þeim er liægt að lialda uppi' skothríð á veginn milli Bologna og Florens. Aulc þess hefir fimmti herinn tekð Monte Pratone, sem er 55 km. fyrir norðaustan Florens. Grískar liersvéitir hafa brot- izt að norðurjaðri Riminflug- vallarins, en Þjóðverjar verjast af mikilli hreysti. Landgönguliði ameríska flot- ans á Palau-eyjum miðar vel áfram gegn Japönum á eyj- unum. Amerískir kafbátar hafa sökkt 29 japönskum skipum síðustu dagana. Flugvélar bandamanna hafa gert árás á borg eina á Sumatra. Bnsisar við takmörk Bagyarasléttnn nar. Taka 2200 bæi í £ Tilkynnt var í Moskva í gær um tvöfalda sókn til Eystra- salts, sem Rússar hafa hafið. önnur er beggja vegna við lpndamæri Eistlands og Lett- lands. Þar hafa Rússar tekið 200 bæi og er Valka helztur þeirra. Þar eru mikilvæg vega- mót og járnbrautarstöð og eins- konar tengiliður milli hersveit- anna í Eistlandi og Lettlandi. 1 sókninni til Riga hafa Rúss- ár tekið 2000 hæi og er einn þeirra um 20 km. fyrir sunnan Riga. Þarna rufu Rússar varnir Þjóðverja á 120 km. svæði og sóttu fram allt að 40 km. Þjóð- verjar halda uppi miklum á- kn við Eystrasalt. hlaupum á vesturarm sóknar- hersins, fyrir vestan járn- brautaborgina Jelgava, en þeim áhlaupum var öllum hrundið. Vestarlega í Rúmeníu hafa Rússar tekið borgina Temis- oare. Um hana liggja fjórar járnbrautir. Þessi borg er 130 lun. fyrir vestan síðustu horg, sem getið var að Rússar hefði tekið. Hún er á mörkum slétt- unnar miklu, sem Belgrad stendur á í suðri og Budapest í norðvestri. Rússneskar flugvélar gerðu harða árás á Budapest í fyrri- nótt. Þetta er Frances Perkins, eini kvenmaðurinn sem er í ríkis- stjórn Bandaríkjanna. Hún hef- ir verið atvinnumálaráðherra frá árinu 1932. Kostar um 2 millj. að endurbyggja Ölfusár- brú. Nefndarálit um tillögu til þingsál. um endurbyggingu ölf- usárbrúar liefir nú verið lagt fyrir sameinað þing og í því segir meðal annars: Fyrir all- löngu liefir vegamálastjóri lok- ið við að gera uppdrátt og á- ætlun um kostnað við srníði nýrrar brúar á þessum stað, og var kostnaður við brúargerðina áætlaður 1.600 þús. kr. Gera má samt ráð fyrir, að kostnaður við hana nemi nú um tveim millj. ki\ Fjárveitinganefnd leggur eindregið til, að hafinn verði nú þegar undirbúningur að smíði nýrrar brúar og því verði hraðað svo sem mest eru föng á. Stjórn íslenzkrar landhelgisgæzlu. Fyrir sameinað þing hefir verið lögð tillaga til þingsálykt- unar um stjórn íslenzkrar land- helgisgæslu o.fl. Flutningsmenn eru þeir Gunnar Thoroddsen, Sigurður frá Vigur og Ingólfur á Hellu. I greinargerð fyrir til- lögunni segir svo: „Þegar full- veldi Islands var viðurkennt 1918 var einn liður dansk-ís- lenzku sambándslaganna um gæzlu íslenzkrar landhelgi. Sagði þar svo: „Danmörk hefir á hendi gæzlu fiskiveiða í ís- lenzkri landhelgi undir dönsk- um fána, þar til Island kynni að ákveða, að taka hana í sínar hendur ,að öllu eða nokkru leyti á sinn kostnað.“ .... Af þessum ástæðum er ein- mitt nú á þessum tímamótum rétt að gcra sér ljóst, hve mikil- væg starfsemi þetta er fyrir land og þjóð og hve þýðingar- mikið það er, að hún sé vel skipulögð og starfrækt. Tvö hundruð fyrirtæki í ýmsum löndum liafa verið sett á svarta lista Bandarikjamanna, en v234 önnur tekin af honum aftur. Sjö menn dæmdir fyrir þjófnaði og viðskipti við setuliðlð. Fyrir nokkru hefir sakadóm- ari kveðið upp dóma yfir mönn- / um, sem hafa gerst sekir um ýmis konar þjófnaði og- óleyfi- leg viðskipti við setuliðið. Maður sem keypt hafði bygg- ingarefni af hermanni. fyrir um 7000 kr. var dæmdur í þriggja mánaða fangelsi og var sviftur kosningarétti og kjörgengi. Her- maðurinn hafði stolið efninu og vissi „kaupmaðurinn“ um það. Maður dæmdur í 60 daga fangelsi skilorðsbundið og svipt- ur kosningarrétti og kjörgengi fyrir að stela 500 krónum úr ó- læstri konnnóðuskúffu. Einnig var honum gert að greiða 5Ó0 kr. skaðabætur til þess er liann stal frá. Maður stal úri af skipsfélaga sínum og tók við 250 kr. hjá hermanni úndir því yfirskyni að ætla að kaupa áfengi fyrir það, en eyddi fénu svo í eigin þarfir. Þessi maður var dæmd- ur i 60 daga fangelsi og sviptur kosningarrétti og kjörgengi. Tveir menn dæmdir fyrir að stela lijólbarða af bifreið. Ann- ar fékk 30 daga fengelsi, en hinn 45 daga, báðir skilorðsbundið. Aulc þess sviptir kosningarétti og kjörgengi. Maður stakk upp „koffort“ herbergisfélaga síns og stal 200 kr. Hann var dæmdur í 3 mán- aða fangelsi og sviptur kosning- arrétti og kjörgengi. Auk þess var hann dæmdur til að greiða 200 lu*. í skaðabætur til þess, er liann stal frá. Maður þessi hefir tvisvar áður verið dæmdur fyrir þjófnaði. Maður tók tvívegis við pen- ingum hjá hermanni i því skyni að kaupa áfengi fyrir hann fyrir þá. En í stað þess eyddi hann þeim til eigin nota. Hann var dæmdur í 3ja mán. fangelsi og sviptur kosningarrétti og kjör- gengi. ( ------------------------- Hlaut 72 sár í viður- eign við kafbát. Gat samt filogið flug- vél sinni heim. Nýlega var skozkur flugmað- ur sæmdur Victoríukrossinum fyrir hreysti í árásarleiðangri. Flugmaður þessi er í strand- varnaliðinu. Hann gerði árás á þýzkan kafbát langt frá bæki- stöð sinni, en í fyrstu atrennu losnuðu djúpsprengjurnar ekki, svo að gera varð aðra. En þá var kafbáturinn viðbúinn og hóf nákvæma skothrið, sem varð einum'af áhöfninni að bana og særði þrjá aðra, ]rar á meðal flugmanninn, sem hlaut alls 72 sár. Voru tvö þeirra gegnum lungun, en tíu gegnum fæturna og lærin. Flugmaðurinn stjórn- aði samt flugvélinni og tókst ftð sökkva kafbátnum. Á heimlcið- inni stjórnaði hann sjálfur, þóti hvað eftir annað lægi við að liann féll í öngvit og neitaði að láta gefa sér morfin, því að há óttaðist hann, að hann mundi Það er þessi maður, sem stjórn- aði loftfluttu hersveitunum, sem komið hafa mest við sögu síðustu dagana. Hann heitir Browning og er nú 47 ára að aldri. — Þess má geta, að hann er eiginmaður skáldkonunnar Daphne Du Maurier. árgentina hæli nazista vestan hafs. Argentínustjórn hefir dregið fulltrúa sinn úr nefnd þeriri, sem hefir verið kölluð „alþjóða- verndarnefndin‘r. Verkefni þessarar nefndar er að hafa gætur á njósnurum möndulveldanna í Vesturheimi og er skipuð fulltrúum frá öll- um þjóðum þar í álfu. Hefir nefndin afrekað miklu i því efni. Argentína tók þessa ákvörð- un eftir að Cordell Hull hafði látið orð falla um að Argentína væri vinveitt nazistum og griða- staður þeirra, vestan liafs. Hefir farið 100 leið- angra til Þýzkalands Brezkur flugmaður hefir fyr- ir skemmstu verið sæmdur Viktoríu-krossinum fyrir vel unnin störf. Maður þessi, Cheshire, hgfir stjórnað sprengjuflugvélum í 100 árásum á Þýzkaiand, en heiðursmerkið fékk liann fyrst og fremst fyrir árás, sem hann gerði á Munchen, en hana fór. hann sem sjálfboðaliði, til þess að reyna nýja loftárása-aðferð, sem hann hafði fundið upp. Sviar hafa enn dregið úr járn- grýtissölu til Þjóðverja og er hún nú aðeins brot af því, sem hún var áður. Pavelitcli frá Króatíu hefir hitt Hitler og fengið loforð hans fyrir vörn Króatíu. . Liklegt þykir, að Cliarles, bróðir Leopolds konungs, verði. gerður ríkisstjóri í Belgiu, unz Leopold verður leystur úr haldi í Þýzkalandi. ekki geta haldið áfram stjórn- inni. Þegar komið var yfir bæki- stöðina eftir nærri sex stunda flug, lenti hann flugvélinni sjálfur og renndi henni á land, til þess að hún sykki ekki. En áður en hægt væri að flytja hann í sjúkrahús, varð að gefa honum blóð í flugvélinni. Loftflutt lið lendir fyrir norðan Rrl ■ ■ í 1. ameríski herínn fier inn í Þýzkaland á nýjum stað. andamenn ganga nu á lag- ið í Hollandi og halda á- fram flutningum á her loft- leiðis þangað. Hefir fið nú venð sett niður fyrir norð- an Rín. Þetta hefir að vísu ekki ver- ið tilkyrmt opinberlega hjá bandamönnum, en í London er talið, að þýzkar fregnir um að loftflutt lið sé búið að taka sér stöðu víða við suðunstrendur Zuidersee, séu réttar. Standa bandamenn þá á báðum bökk- vim sumra kvísla Rínar. ; I gærkveldi var tilkynht op- inberlega i stöðvum Eisenhoiw- ers, að 2. brezki herinn hefði sótt fram 50 ltm. á 5 klst. og komizt að úthverfum Nijmeg- en, sem stendur við Waal, en þar er eina brúin yfir þá Rínar- kvísl. Á leiðinni norður náði herínn sambandi við hverja loftfluttu sveitina af annari. Inn í Þýzkaland hjá Maastricht. Þá var það og tilkynnt i gær- kveldi, að sveitir úr 1. ameríska hernum hefði farið inn í I>ýzka- land fyrir austan hollenzku borgina Maastricht og hefir því alls farið yfir landamærin á 130 km. svæði. Eru framsveitir komnar svo nærri Dör;en, að skothríð er hafin á þá borg. Hatrammir götubardagar eru háðir í Aachen. Himmler við Mosel. I fregnum frá 3. ameríska hernum segir, að margt bendi til þess, að Himmler hafi nýlega verið á ferð um Mosel-vigstöðv- ar Þjóðverja, haldið ræður þar og reynt að stappa stálinu í her- inn. En þetta hefir ekki borið árangur, því að hennenn gefast enn upp í hópum. \ Rundstedt tekinn við á nýjan leik. I London eru menn sannfærð- ir um, að Rundstedt marskálk- ur hafi áftur verið settur yfir heri Þjóðverja á vesturvíg- stöðvunum. Fundizt hafa skjöl, sem sanna þetta. Lpftárásir. Brezki flugherinn gerði harð- ar árásir í nótt á Munchen-Glad- bach og Rheydt, sem er þar rétt fyrir sunnan. I gær var ráðizt á þrjár mik- ilvægar stöðvar á járnbrautinni l’rá Köln vestur til Aachen. Auk þess réðust um 700 flugvirki á Hamm og Soest, sem eru á stytztu leið Þjóðverja fyrir flutninga til Hollands. Síðan innrásin hófst í Frakk- land hafa hinir 5 herir Eisen- howers tekið rúmlega 457,000 fanga.

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.