Vísir - 20.09.1944, Page 2
VISIR
VÍSIR
DAGBLAÐ
Útgefandi:
BIAÐAÚTGÁFAN VÍSIR H.F.
Ritstjórar: Kristján Guðlangsson,
Hersteinn Pálsson.
Skrifstofa: Félagsprentsmiðjunni
Afgreiðsla Hverfisgötn 12
(gengið inn frá Ingólfsstræti).
Símar: 1 6 6 0 (fimm línnr).
Verð kr. 4,00 á mánuði.
Lausasala 35 aurar.
Félagsprentsmiðjan h.f.
G ó ð æ r L
jyjesta góðæri hefir verið það,
sem af er þessu ári til lands
og sjávar. Þjóðin ætti því að
vera vel búin undir veturinn,
sem í hönd fer, enda má full-
yrða að Island verði yfirleitt
ekki örara að gæðum, en reynzt
hefir á þessu sumri. Heyskap
er nú lokið að mestu eða öllu.
Hefir hann gengið vel og nýting
heyja verið i bezta lagi. (Jlarð-
uppskera stendur yfir og spáir
góðri. sprettu viðast á landinu.
Síldveiðum er lokið og flotinn
sem óðast að halda heim, en
sjaldan mun veiðifengurinn
hafa reynzt meiri. Fengust
þannig 1,530 þús. mál í bræðslu,
en til samanburðar má geta
þess, að í fyrrasumar nam
bræðslusíldin 1,263 þús. mál-
um. Hinsvegar var saltað nokk-
uð minna að þessu sinni en í
fyrra.
Framan af síldveiðitímanum
voru horfur þungar og erfiðar.
Var liðið langt fram á sumar, er
veiðihrota kom fyrir alvöru, en
hún reyndist þeim mun nota-
drýgri, sem hún lét lengur á sér
standa. Verksmiðjurnar höfðu
að mestu undan í vinnslu, þann-
ig að flotinn þurfti ekki að
liggja í höfn að neinu ráði, að-
gerðalaus og bíða eftir af-
greiðslu, en sú hefir raunin oft
orðið á, er aflahrotur hafa ver-
ið hvað mestar. Hitt er vafa-
mál, hvort menn gera sér al-
mennt grein fyrir hvílíka þýð-
ingu það hefir fyrir þjóðarbú-
skapinn, hversu giftusamlega
tókst til um veiðar að þessu
sinni. Hefði veiðin brugðist, er
hætt við að þjóðin hefði orðið
að ganga allnærri þeim erlendu
innStæðum, sem safnazt hafa á
styrjaldarárunum. Ekki þarf
nema eitt aflaleysisár og mis-
bresta, til þess að eyða þeim
þjóðarauði að verulegu leyti,
sem menn metast nú um hversu
upþ skuli eta. Þjóðin þarf engar
áhyggjur að hafa af slíku. Næg
eru verkefnin framundan, en
árferði misjafnt, og veitir ekki
af að vera undir það búinn að
mögru kýrnar geti étið hinar
feitu. Stríðsgróði er stopull,
jafnt hjá einstaklingum sem
þjóðum, — enda í rauninni eitt
af okkar þjóðarmeinum, að
þ'ví er snertir framferði ein-
staklinga, sem hlotnazt hefir
fljóttekinn og 'fyrirhafnarlítill
gróði. Slikt verður öl á könnu
niðurrifsmanna og álíka skað-
semd og niðurrifsstarfsemi
þeirra.
Tryggingin.
J^ítil trygging er I erlendum
innstæðum og stríðsgróðari-
um, ef ekki tekst að tryggja af-
komu atvinnuveganna til fram-
búðar. Séu fyrirtækin rekin með
lialla, bætir að engu leyti úr að
fjölga þeim, en þeim mun örar
gengur á stríðsgróðann, sem
slík fyrirtæki eru fleiri. Því er
það ekki einhlítt bjargráð hjá
kommúnistum, að fjölga at-
vinnufyrirtækjum, þótt slíkt sé
út af fyrir sig gott á venjuleg-
um tímum. Rekstur þeirra verð-
ur einnig að tryggja. Hvorki
ríkið né verkalýðurinn geta bor-
ið haliarekstur atvinnufyrir-
Bindindissýningin í hanst
er brautryðjendastarf.
Fjögur félagasamtök standa að sýningunni.
Samvinnunefnd Stórstúku Is-
lands, Iþróttasambands fslands,
Sambands bindindisfálaga í
skólum og Ungmennafélags fs-
lands hyggst að koma upp bind-
indissýningu hér í Reykjavík
mjög bráðlega, helzt fyrri hluta
komandi vetrar.
Fréttamaður hlaðsins hafði
tal af Pétri Sigurðssyni, form.
nefndarinnar og spurði, hvað
gengi með undirbúninginn.
Nefndin hefir haft ungan há-
skólaborgara, Guðmund Sveins-
son stud. theol. í þjónustu sinni
í sumar, fjóra mánuði. Hefir
hann safnað skýrslum, samið
línurit og gert aðra updrætti,
einnig fengið annan ungan
mann — listmálara að störfum,
sem vinnur nú að myndagerð.
Auk þessa hefir Guðmundur
Sveinsson unnið á ýmsan hátt
að undirbúningi sýningarinnar
og segir form. nefndarinnar, að
hann hafi unnið verk sitt ágæt-
lega. En nú er þörf á meiri
starfskröftum, því að Guð-
mundur Sveinsson verður nú að
sinna sérnámi sínu. Þá hefir
nefndin enn mjög takmarlcað fé
til sinna ráða. Hefir þegar feng-
ið fimm þúsund krónur frá
Stórstúku Islands og l.S.Í. til
samans. En nefndin hefir von
um fjárstyrk frá ríki og jafn-
vel Reykjavíkurbæ, einnig Þing-
stúku Reykjavíkur eitthvað.
Þetta er brautryðjendastarf
hjá okkur, segir Pétur Sigurðs-
son, töluvert mikið verk 'og
vandasamt, þar sem þá er ekki
nægilegt fé til þess að kaupa
nauðsynlega vinnukrafta, og'
við erum viðvaningar í þessum
sökum. Horfur eru þó á að
þetta muni takast sæmilega, ef
til vill ágætlega, og verður þ’á
hægt að byggja síðar ofan á
þessa byrjun. Þá eru nokkur
vandkvæði á um húsrúm, en
vojiandi leysast þau á sínum
tíma.
Ætlazt er til að sýningin geti
orðið góð tilbreyting og haft all-
verulegt menningargildi, komi
þar sjón í stað prédikunar, sem
ætti að geta orðið mörgum
minnisstæð. Formaður nefndar-
tækja til lengdar, og enga stund
án þess að ganga jafnframt á
þjóðarauðinn. Vara, sem dýrari
er í framleiðslu en sölu á er-
lendum markaði, skapar tap
fyrir þjóðarheildina, en ekki
gróða, og kveði verulega að
slíku tapi, siglir neyðin í kjöl-
far þess. Velmegun er því að-
eins unnt að skapa hjá öllum
almenningi, að ekki sé eytt
meiru en aflast. Gildir þetta
jafnt um einstaklingsrekstur
sem ríkisrekstur. Að þessu leyti
er enginn munur á þeim. Neyð-
in verður einnig sú sama, hvort
sem ríki eða einstaklingar reka
atvinnufyrirtækin með halla til
langframa. Allt gengur til
þurðar, se meytt er af, en ekjd
við bætt að sama skapi.
Vilji þjóðin njóta og notfæra
sér erlendar innstæður, sem
væntanlega verða til frjálsrar
ráðstöfunar að styrjöldinni lok-
inni, verður að tryggja afkomu
atvinnuveganna, þannig að
reksturinn gefi eðlilegan arð, en
ekki halla. Jafnframt verður að
fjölga atvinnutækjunum svo
sem frekast er unnt, þannig að
tryggt verði að allir, sem vilja
vinna, geti fengið að njóta
krafta sinna að staðaldri og í
fullu öruggi um framtiðina.
Þetta er vandalaust, ef þjóðin
byggir á þeim undirstöðum, sem
heilbrigt fjárhags- og atvinnulíf
skapar, en nú í bili er 'hvort-
tveggja sjúkt og spillt.
innar kvaðst vilja segja sem
minnst um þessa fyrirhuguðu
sýningu, þvi að eftir væri að
efna, þá loforð væru gefin. Hug-
myndina sagði hann, að upphaf-
lega hefði borið fram Gísli Sig-
urbjörnsson, forstjóri Elliheim-
ilisnis, sem er einn í aðalnefnd-
inni, en einnig einn þeirra
þriggja manna, sem aðallega sjá
um undirbúning. Þriðji maður í
þeirri nefnd er Jón Gunnlaugs-
son fulltrúi í stjórnarráðinu. 1
samvinnunefndinni eru, auk
þeirra þriggja, sem þegar eru
taldir, Ingimar Jóhannesson
kennari og Guðmundur Sveins-
son stud. theol.
Frumvarp um fjölgun
deilda við Háskólann
Menntamálanefnd neðri deild-
ar hefir nýlega lagt fram frv.
á Alþingi um breytingu og við-
auka við lög um laun háskóla-
kennara og um breytingu á lög-
um um Háskóla íslands.
I 1. gr. frv. segir, að í Há-
skóla Islands skuli vera þessar
6 deildir: Guðfræðideild, lækna-
deild, laga- og hagfræðideild,
heimspekideild, atvinnu- og
verkfræðideild.
I 2. gr. segir, að í laga- og
hagfræðideild Háskólans skuli
vera 3 prófessorar í lögfræði og
2 dósentar i viðskiptafræðum.
Þá segir í 3. gr. frv., að stofna
skuli tvö dósentsembætti við
heimspekideild háskólans, í bók-
menntum og sögu og í 4. gr. frv.
eru ákvæði um það, að í verk-
fræðideild skuli vera 3 prófess-,
orar.
Frumv. fylgir greinargerð og
segir þar m. a., að frv. sé borið
fram skv. ósk háskólaráðs og
feli það i sér þrjár breytingar
frá gildandi lögum, en þær eru:
1. að lögfest verði embætti
þeirra tveggja dósenta, sem nú‘
eru í viðskiptafræðum. 2. að
stofna skuli tvö dósentsembætti,
í bókmenntum og sögu, við
heimspekideild Háskólans. 3. að
sett verði lög um verkfræði-
deildina, sem starfað hefir við
Háskólann síðan 1940.
Frv. fylgja meðmæli frá Há-
skólaráði, álitsgerð frá Verk-
fræðingafélagi Isladns, álitsgerð
frá Einari B. Pálssyni og Stein-
þóri Sigurðssyni og loks áskor-
un frá þeim nemendum í verk-
fræðideild Háskólans, sem lokið
hafa fyrrihlutaprófi í verk-
fræði.
Tvíritun kirkju-
og manntalsbóka
I neðri deild Alþingis hefir
verið lagt fram frv. til laga um
kirkju- og manntalsbækur. Er
flutningsmaður þessa frv. Jón
Sigurðsson frá Reynistað.
1 fyrstu grein frv. segir svo:
I hverju prestakalli skal sókn-
arprestur færa kirkjubók og
manntalsbók fyrir prestakalh'ð
og varðveitir prestur þær. Auk
þess skulu sóknarnefndarfor-
menn í hverri sókn færa slíkar
bækur, að því er til sóknarinn-
ar tekur og geyma þeirra.
I greinargerð fyrir frv. segir,
að reynslan hafi sýnt, að tvírit-
un kirkjubóka sé nauðsynleg;
margsinnis hafa eldsvoðar á
prestssetrum grandað kirkju-
bókum og eyðilagt þannig ó-
bætanlegar og mikilsverðar
heimildir, af því að engin sam-
rit voru til.
Ætlar að læra
leiktjaldamálun,
Ungur Reykvíkingur,
Sigfús Halldórsson á
förum til Englands.
Sigfús Halldórsson er Reyk-
víkingum að góðu kunnur.
Hann hefir á undanförnum ár-
um komið víða frám opinber-
lega í skemmtanalífi borgar-
innar, Ieikið í revýum, sungið
og leikið á hljóðfæri á skemmt-
unum og alls staðar komið fram
sem ágætur skemmtikraftur.
Nú er Sigfús á förum til Eng-
lands, þar sem hann ætlar að
leggja stund á leiktjaldamálun.
Mun hann stunda nám í Oxford
um eins árs skeið við The Slade
and Ruskin Scliool. Er það
þekktur Ijptaskóli, sem kennir
flest það, er að leikhúslistum
lýtur. Námsgreinarnar eru með-
al annars: Teikning, Jeikhús-
skreyting, myndateiknun, stein-
prent, trjáskurður, mynda-
skreyting, líffærafræði, lista-
saga o. fl.
Er leikhúslífi okkar Islend-
inga mikil þörf á því, að ung-
ir og efnilegir menn kynni sér
það bezta, sem stórþjóðirnar
hafa upp á að bjóða í leikhús-
starfsemi. Hefir Sigfús Hall-
dórsson sýnt það hér, að í hon-
um býr hið bezta listamanns-
efni.
Þrjár bækur eftir
Guðmund Daníelsson
Ný hók er komin út eftir Guð-
mund Daníelsson rithöfund, og
er það þriðja og síðasta bindið
í ritverki lians sem hann byrjaði
í hi.tteð fyrra með bókinni „Af
jörðu ertu kominn“. í fyrra kom
út annað hindið, er her heitið
„Sandur“, en þetta síðasta heít-
ir „Landið handan landsins“.
Ileildarheiti ritverks þessa er
„Blóð og sandur“.
Þá eru i haust væntanlegar
tvær aðrar bækur eftir Guð-
mund, smásagnasafn, er hann
nefnir „Heldri menn á hús-
gangi“, og leikrit, sem kemur
til með að heila „Það fanst gull
i dalnum“. Er þetta fyrsta leik-
rit Guðmundar og fjallar um
það ástand sem auknir fjáröfl-
unarmöguleikar vegna stríðsins
hafa skapað. Leikritið er vænt-
anlegt á markaðinn fyrir jól en
smásögurnar innan skamms, og
gefur ísafoldarprentsmiðja
hvorutveggja út.
SlgrFnr Erlingsdóttir
skipaínr iögreginþjönn.
Á bæjarráðsfundi, sem hald-
inn var 15. september s.l„ var
samþykkt, eftir tillögu lög-
reglustjóra, að leggja til að Sig-
ríður Erlingsdóttir yrði skip-
aður lögregluþjónn (heilbrigð-
is). Jafnframt samþykkti bæj-
arráð, að hún haldi fullum
launumu um 4—5 mánaða tíma,
á meðan hún dvelur í Englandi
til að kynnast störfum heil-
brigðislögreglunnar þar.
Vinnuheimili S.Í.B.S.
fær heitt vatn.
Hitaveitustjóri hefir lagt þá
tillögu fyrir bæ^arráð, að láta
vinnuheimili Samb. íslenzkra
berklasjúklinga á Reykjum fá
heitt vatn til upphitunar, þann
tíma árs, sem nægilegt vatn er
til ,enda verði séð fyrir vara-
hitun, sem grípa megi til, ef
þörf gerist. Bæjarráð sam-
þykkti þessa tillögu hitaveitu-
stjórans.
Hús til sölu.
Hús í Austurbænum til
sölu. Tveggja herbergja íbpð
laus til ibúðar nú þegar.
Upplýsingar gefur
Gunnar Þorsteinsson.
hæstaréttarlögmaður.
Sími 1535.
JSverrir"
Tekið á móti flutningi til
Patreksfjarðar, Tálknafjarð-
ar, Bíldudals, Þingeyrar og
Flateyrar í dag og fram til
hádegis á morgun.
Stúlka
óskast í vist allan daginn.
Sérherbergi. Til mála getur
komið formiðdags- og eftir-
miðdagsstúlkur, ef þær geta
komið sér saman um her-
bergið. — Upplýsingar hjá
Jóhanni Karlssyni, Samtúni 8
Kjólaefni
nýkomin.
Brandur Brynjólfsson
lögfræðingur
Bardmstræti 7
Sími 5743
Ntorgjöf fil
Liandarkirkjn.
Kirkj ublaðið skýrir frá því i
siðasta tölublaði, að þau hjónin
Edith og Herluf Clausen fram-
kvæmdarstjóri hafi nýlega gert
sóknarnefnd og söfnuði Lund-
arkirkju í Lundarreykjadal það
höfðinglega boð, að leggja til
allan efnivið til endurbyggingar
á Lundarkirkju, en nú er orðin
biýn nauðsyn á því, að sú
kirkja fái gagngerða endurbót.
Þau hjónin Edith og Herluf
eiga Lund í Lundareykjadal,
hafa þar bú og eiga sumarbú-
stað á staðnum.
Frækileg
björgun.
Ungur sjómaður, Karl Krist-
jánsson, Sjafnarg. 12, Reykja-
vík, 17 ára að aldri, vann það
afrek fyrra laugardag að bjarga
félaga sínum frá drukknun.
V/s „Jakob“ var á siglingu í
Faxaflóa, þegar það slys vildi
til, að matsveinninn féll fyrir
borð. Var þegar kastað til hans
bjarghring og skipinu snúið, en'
við fyrstu tilraun mistókst að
leggja því að manninum. Sást
nú að hann hafði misst taki á
bjarghringnum og var að
sökkva. Gerði Karl, sem er há-
seti á „Jakobi“ sér þá lílið fyrir,
kastaði af sér sjóstígvélum sín-
um og stakk sér til sunds. Tókst
honum von bráðar að synda
með manninn að bjarghringn-
um þar sem þeir héldu sér unz
þeim var bjargað um borð. Má
þetta teljast mjög frækilegt af-
rek af svo ungum manni, sem
Karl er.
Piltur.
Ungur piltur óskast í létta
vipnu. Uppl. í síma 3459.
LEIKNIR,
Vesturgötu 18.
NÍKOMIN
Amerísk
Kjólföt
Smokingföt
Lokastíg 8.
FORD-mótor
til sölu.
Uppl. í síma 5753.
________________
Tvöfaldar kápur,
allar stærðir,
og nokkrir
Kven
ullar-rykfrakkar,
lítil númer.
H T0FT
Skólavörðust. 5. Sími 1035.
R a u ð r o fur,
G u I r ó f u r,
Gulrætur,
L a u k u r.
Verzlunin Vísir h.f.
Laugaveg 1. Sími 3555.
Fjölnisveg 2. Sími 2555.
Glervörur:
Ávaxtasett,,
Stakar glerskálar,
Vatnssett,
öskubakkar
og margt fleira af
fallegri glervöru.
Verzlun
Halldórs Eyþórssonar
Víðimel 3 5.
Herbergi
óskast fyrir hjúkrunarkonu,
helzt í Austurbænum. Uppl.
í síma 3744 og 1534.
ULLAR-drengjafataefni, kr. 34,60 met. E R L A, Laugavegi 12.