Vísir - 26.09.1944, Side 1

Vísir - 26.09.1944, Side 1
 Ritstjórar: Kristján Guðiaugsson Hersteinn Pálsson Skrifstofun Félagsprentsmiðjan (3.hæð) t Ritstjórar Blaðamenn Slmii Auglýsingar 1660 Gjaldkerl 5 llnur Afgreiðsla 34. ár. Reykjavík, þriðjudaginn’26. september 1944. 217. tbl. Austurvígstöðvarnar: Þjóðverjar búast til varnar um- hverfis Ríga. Harðir bardagar á landa- mærum Ungverjalands. Rússar tóku alls um 1000 staði í Suður- og Yestur-Eistlandi og Norður-Lettlandi. Stærsta 'borgin, sem Rússar tóku, var Haapsalu og hafa þeir þá þrjár stærstu borgir landsins á valdi sínu. Auk Haapsula tóku Rússar í gær um 800 bæi í Vest- ur- og Suður-Eistlandi. I Norður-Lettlandi tóku Rúss- ar 200 bæi. Þar hörfa Þjóðverj- ar til lítils svæðis umhverfis Riga. Flótti Þjóðverja er svo liraður, að þeir gefa sér ekki tíma til að sprengja upp brýr eða vegi, til að tefja eftirförina. Vörn þeirra er yfirleitt skipu- lagslítil. Harðir bardagar hjá Ungverjalandi. Engar fregnir hafa borizt síð- an i gær, um að Rúmenar og Rússar hafi farið yfir landamæri Ungverjalands, eins og Rúmen- ar skýrðu frá í gærmorgun. En í frásögnum frá Moskva í gær var sagt, að harðir bardagar væri háðir við suðausturlanda- mæri Ungverjalands. Rússar segja, að Þjóðverjar hafi flutt lið frá Póllandi suður til Ung- verjalandssléttunnar. Flutningar Breta til Nijmegen lágu niðri í 12 klukkustundir. M. C. Dempsey, yfirmaður 2. hersins, hefir getið sér góðan orðstir í orust- unum undan- farið. — Telur Montgomery hann einn hezta hershöfðingja, sem Rretar eiga. 60 amerískar bardaga- herdeildir úti um heim Bandaríkjamenn hafa nú um 60 bardagaherdeildir víða um heim. Auk þessa mannafla hefir Randaríkjaherinn enn meira lið, sem sér um alla aðdrætti, og er talið, að það lið sé þrefalt meira, sem aldrei er í bardaga. I þessum mánuði sendu Banda- rikin átta bardagaherdeildir úr landi. Margir bruggarar teknir norður í Fljótum í Skagafirði. Talið er að bruggað sé á 11-12 bœjum þar en 5 bruggarar hafa þegar verið bandLteKnir Björn Blöndal löggæzlumað- ur hefir ljóstað upp um stór- fellda hruggun norður í Fljót- um í Skagafirði. Hafa þar ver- Burma: Ný sókn banda- manna í undir- búningi. Bandamenn húa sig undir mikla sókn suður til Mandalay í Burma. 1 fregnum hlaðamanna *segir, að gera megi ráð fyrir því, að sóknin geti hafizt mjög bráð- lega eftir að styttir upp um mánaðamótin. Hafa bandamenn sótt jafnt og þétt suður frá Maugaung síðustu vikur, þrátt fyrir rigningarnar og eru komn- ir 80 km. suðnr fyrir hæinn. Krístján Xo 74 ára. ið handteknir 5 bruggarar á 4 bæjum, en vitað er alls um 11 —12 bæi, sem bruggað hefir verið á. Hefir Björn skýrt svo frá, að lengi hafi legið á grunur um á- fengisbruggun í Skagafirði, sök- um mikils drykkjuskapar þar á skemmtunum og mannamótum. Kom Björn þarna i sumar og rannsakaði málið, en gat ekkert aðhafst þá, sökum skorts á ýms- um upplýsingum. Er liann hafði aflað sér þessara upplýsinga, lagði hann af stað norður í Fljót ásamt aðstoðarmönnum sínum. Komu þeir við hjá sýslumann- inum að Sandárhóli og fengu úrskurð um húsrannsókn á á- kveðnum bæjum í Fljótum. Föstudaginn 22. þ. m. fór svo húsrannsókn fram á 4 bæjum og voru handteknir samtals 5 bruggarar á þessum stöðum. Fyrst var haldið að Keldum í Fellhreppi ,en þar hýr Pétur Björgvin Björnsson. . Játaði hann þegar að hafa bruggað og vísaði á bruggunartækin. Þá var haldið að Hciði í sama hreppi, en þar hýr Jón Guðnason. Gruir- ur lék á, að Jóhann, sonur Jóns, hefði stundað brugg, en hann var ekki heima. Ýms merki um að bruggað hefði verið þarna fundust og kom einnig í ljós, að bóndinn hafði verið viðrið- inn hrugg sonar síns. Þá var haldið að Hamri í Haganes- hreppi. Bóndinn þar, Hermann Jónsson, var ekki heima, en kona hans vísaði á hruggunar- fæki og hálf- og fullhruggað á- fengi. Næst var farið að Hólmi í Holtshreppi. Fundust þar tæki til bruggunar og áfengi í gerj- un hjá bóndanum, Víglundi Arnljótssyni. Víglundur þessi hefir áður verið dæmdur fyrir hrugg. Bruggarar þessir hafa selt „landann“ á 50 kr. flöskuna. Af 5rmsum ástæðum var ekki hald- ið víðar að þessu sinni, en tal- ið er að til viðbótar sé hruggað á 7—8 bæjum. Munu þeir verða heimsóttir síðar. Kristján Danakonungur X. er 74 ára í dag. Samkvæmt síðustu fregnum, sem borizt hafa frá Danmörku, dvelur konungurinn nú í höll sinni Amalienborg, ásamt fjölskyldu sinni. Hjónaband. Síðastliðinn laugardag voru gef- in saman í hjónaband af síra Bjarna Jónssyni, Dagrún (Dolly) Bjarna- dóttir frá Siglufirði og Odd Hagen frá Oslo. Nú á að taka . Calais. Þjóðverjar segjast hafa komið liði sínu yfir Schelde. |^anadiskar hersveitir hófu í gær mikla sókn gegn Calais og var sagt opinberlega að það ætti að verða loka- sóknin að borginni, nú 53tti að taka hana. Fyrst gerðu 300 brezkar flug- vélar, mestmegnis Halifax-vél- ai% árás á varnirnar við horg- ina og vörpuðu þar niður um 1300 smálestum sprengja. Um líkt leyti hófst mikil stórskota- hríð á stöðvar Þjóðverja og tóku fallbyssur á Dover-strönd þátt í henni. Næsti þáttur var að sérstak- lega útbúnir skriðdrekar voru sendir fram til að ryðja hraut- ir í jarðsprengjusvæði Þjóð- verja og gerðu þeir tvær braut- ir, en í kjölfar þeirra komu skriðdrekar með eldsprautum og loks fótgönguliðið. i GEKK VEL. Tveim stundum eftir að sóknin hófst, var sagt, að hún gengi vel og eftir liádegi var tilkynnt, að Kanadamenn væri aðeins 3 km. frá suðvestur- hverfunum. 1 f morgun höfðu ekki borizt fregnir um, hvað sókninni liði. FisKaflinn: Rúml. 220 þús. smál. í júlílok. 1 lok júlí-mánaðar nam allur fiskafli á landinu 221,857 smá- lestum: Megnið af þessu var ísaður fiskur, sem var samtals 125,082 smáléstir og fluttu veiðiskipin sjálf út rúmlega 49,000 smá- lestir af þeim, afla. Auk þess höfðu rúmlega 50,000 smálestir fiskjar verið ísaður, en í salt liöfðu farið 2694 smálestir. Átta liúndruð níutíu og átta smálest- ir fóru til neyzlu innanlands. Þá er ótalinn síldaraflinn, er nam í júlílok 41,273 smálestum. »TenÍDgfunam er kastað« Áttundi herinn brezki er nú kominn að Rubicon-ánni á It- alíu. Þótt Þjóðverjar hafi verið liraktir úr Gotnesku línunni, verjast þeir enn af hinni mestu hreysti. Ætlar leiðin til Ravenna og Bologna að verða all-torsótt. Fimmti lierinn liefir tekið Futa-skarðið, sem er 3000 fet yfir sjávarmál og hallar nú undan fæti fyrir hana til Pó- sléttunnar. (Það var þegar Caesar fór yfir Ruhicon árið 49 f. Kr., sem hann á að hafa sagt: „Tening- unum er kastað.“) l>anir mótmæla ofbeldi ft»ióð- verfa. Á sunnudag var Þjóðverjum afhent harðort bréf frá dönsku stjórnmálaflokkunum. Bréfið var undirritað af for- mönnum allra flokkanna og af- hent sendiherra Þjóðverja í Kaupmannahöfn. Er sagt þar, að handtaka lögregluþjónanna hafi vakið mikla gremju meðal dönsku þjóðarinnar, og gerð krafa til þess að lögregluþjón- arnir verði settir í stöður sín- ar á ný, en þeir fluttir þegar þeim aftur, sem sehdir voru til Þvzkalands. Grikkir kref jast engra landa. Gríska stjórnin ætlar að láta fara fram þjóðaratkvæða- greiðslu um, hvort menn vilja konungsdæmi e^a ekki, er stríð- inu er lokið. Talsmaður stjórnarinnar, sem nú er flutt til Napoli, gaf út yfirlýsingu á sunnudag um stefnu stjómarinnar fyrst eftir að landið verður orðið frjálst, og eru kosningar um konung- inn meðal helztu atriðanna. Grikkir krefjast engra landa, en vilja að öryggissvæði verði meðfram suðurlandamærum Búlgaríu. Þá hefir stjórnin og í hyggju að semja við Albaníu um réttingu landamæranna þar. Kosningar verða látnar fara fram eins fljótt og unnt verður. Siíar banna Þjóðvei'jum. Þýzk skip mega ekki nota hafnir á austur- og suðurströnd Svíþjóðar frá deginum á morg- un að telja. Sænska stjórnin gaf út bann við þessu fyrir helgina og nær það einnig til siglinga um land- lielgi Svíþjóðar fyrir sömu ströndum. Þetta veldur því, að Þjóðverjar munu nú aðeins geta fengið járngrýti um Narvík, og er það til mikils óhagræðis, svo að ekki sé meira sagt. Vestmannaeyjastúlkurnar halda heim. Vestmannaeyjastúlkurnar, sem komu til Hafnarf jar'ðar til að leika handknattleik við félögin þar, eru nú farnar heim. Ráðgert hafði ver- ið, að þær léku þrjá leiki,, en vegna veðurs gátu leikarnir ekki orðið nema tveir. Fyrri leikinn, sem þær kepptu við Haþka, unnu Haukar með 5 : 3, en þann seinni léku þær á móti Fimleikafélagi Hafnarf jarðar og unnu hann með 3:1. Síðasta dag- in, sem þær dvöldu í Hafnarfirði, var þeim haldið kaf fisamsæti á Hót- el Hafnarfjörður. Voru þar fluttar margar ræður og félögin skiptust á, gjöfum. | Leiðrétting'. 1 greininni „Fyrirmynd eining- ar“, í Vísi s.l. föstudag hefir fallið úr ein lína í tilvitnun í grein Ara Arnalds- Þar á að standa: „Flokka- hugsmunir og persónulegir hags- munir voru fyrirlitnir og útilokaðir frá athöfnum og hugsunum þessara einbeittu þjóðhetja, þar til þeir náðu takmarki sínu: Noregur al- frjáls." Þjóðverjar rufu Eindhoven-Nij- megen-veginn. En horfur loftflutta llðsins eru verri en nokkuru sinni. JJerstjórnartilkynning Eisen- howers skýrði frá því í gærkveldi, að Þjóðverjum hefSi tekizt aS loka flutninga- leið Breta frá Eindhoven til Nijmegen. Voru taldar allslæmar horfur fyrir lið Breta, sem þarna var fyrir norðan, því að Þjóðverjar liöfðu veginn á valdi sínu á 8 km. kafla í hálfan sólarhring. Höfðu SS-sveitir brotizt að hon- um úr austurátt. En rétt fyrir ellefu í gær- kveldi bárust fregnir frá blaðamönnum um, að Þjóð- verjar hefði verið hraktir af veginum á ný. Þjóðverjar höfðu tvisvar áð- ur, undanfarna átta daga, gert tilraunir til að rjúfa þessa lífæð brezku herjanna. Þeim. hafði að vísu tekizt að komast á veginn og ná nokkurum kafla hans, en höfðu í bæði sldptin verið hrakt- ir af honum þegar í stað. Reynt að eyðileggja brúna við Nijmegen. bað var í fyrrinótt, sem Þjóð- verjum hafði tekizt í skjóli næt- Urinnar að komast á veginn, en á sunnudag liöfðu þeir sent flug- vélar til árásar á brúna yfir Waal lijá Nijmegen. Árásin misheppnaðist. Loftflutta liðið. Blaðamenn lýstu aðstöðu loftflulta liðsins svo í gær, að liún væri verri en nokkuru sinni. Liðinu hefir ekki einungis verið þjappað saman á minna svæði, heldur leitast Þjóðverj- ar við að hrjótast milli þess og Lek-árinnar, til þess að ekki sé hægt að ferja lið og birgðir til þess að næturlagi. * Skotið á Diiren og Jiilich. 1. ameríski herinn herst enn að mestu leyti í sömu sporum og var aðeins sagt um hann í morgun, að hann héldi uppi skothríð á Duren og Julich úr 155 mm. fallbyssuip. Frá Danmörku: íslendingar eiga að bera vegabréf. 1 fregn sem útvarpið birti fyr- ir skemmstu frá fréttaritara sin- um í Kaupmannahöfn, er skýrt frá því, að Islendingum í Dan- mörku hafi verið gert að skyldu að bera vegabréf. Dönum hefir einnig verið fyrirskipað að hafa vegabréf, en Islendingar eru einu útlendingarnir, sem einnig er skipað að hafa þau. Ríkisstjórnin hefir látið spyrj- ast fyrir um liðan Islendinga í Danniörku og fékk þau svör, að þeim liði öllum vel.

x

Vísir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.