Vísir - 13.11.1944, Síða 4
VISIR
B GAMLA BIO E
ODESSA 1905
(Lone white sail)
Rússnesk kvikmynd.
A. Melnikoy
I. Peltser
Sýnd kl. 7 og 9.
Börn fá ekki aðgang.
Henry og Dizzy
Amersík gamánmynd, með
Jimmy Lydon
Mary Anderson.
Sýnd kl. 5.
Fjalaköttuxiim
- *“■ sýnir revýuna
„Allt í lagi, lagsi“
á morgun, þriðjudag, kl. 8.
Aðgöngumiðar seldir frá kl. 4—7 í dag í Iðnó.
Unglingspiltur,
16—18 ára, óskast til afgreiðslustarfa í sérverzlun. Uppl. á-
samt afriti af meðmælum, ef til eru, sendist afgreiðslu Vísis,
merkt: „5466“, fyrir miðvikudagskvöld.
Reykjanesskólinn tíu ára.
Viðtal við Aðalstein Eiríksson, skólastjóra, Reykjanesi.
Mú í haust varð Reykjanesskóli við Isafjarðardjúp 10 ára. Skól-
" inn tók til starfa árið 1934. Var honum í upphafi fyrirhugað
að starfa samkvæmt ýtarlegum tillögum Aðalsteins Eiríkssonar
um fræðslumál sveitanna, er hann setti fram árið áður. Var Aðal-
steinn ráðinn skólastjóri þessa nýja skóla og hefir hann gegnt
því starfi síðan.
Vísir hefir innt Aðalstein eft-
ir starfsemi skólans þessi 10 ár,
sem af eru ævi skólans:
Reykjanes.
„Reykjanes við ísafjarðar-
djúp liafði lengi verið einskonar
miðstöð fyrir margháttaða
menningarviðleitni ísfirðinga
og fólksins við ísafjarðardjúp,
áður en hér reis u,pp raunveru-
legur skóli fyrir 10 árum,“ segir
Aðalsteinn skólastjóri.
„Árið 1830 hófst hér sund-
kennsla fyrir forgöngu Gests
Bjarnasonar, sem af ýmsum var
kallaður Sund-Gestur. Var hann
einna fyrsti brautryðjandi þess-
arar íþróttar hér á landi, og
ke'nndi sund i Reykjanesi og
víðar. Sundkennslan fór fram í
upphlaðinni sundlaug, sem var
skammt frá þar sem skólinn
stendur nú á nesinu. Sund-
kennslan lagðist þó niður uin
sinn en hófst aftur i lok 19. ald-
ar. Var síðan kennt sund í
Reykjanesi svo að segja óslitið
þar til að skólinn var stofnaður
1934.“
Skólinn stofnaður.
„Árin áður en skólinn var
reistur kostuðu Norður-ísa-
fjarðarsýtda og ísafjarðarkaup-
staðui\ sundnámskeiðin í
Reykjanesi. Þessir aðilar liöfðu
látið byggja sundlaug i Reykja-
nesi árið 1925 og heimavistar-
skála árið 1929. Voru þessi
mannvirki til í Reykjanesi, er
skólinn tók til starfa. Reykja-
nesskólinn var fyrst og fremst
byggður fyrir Nauteyrar- og
Reykj afj arðarhrepp samkvæm t
tillögum, sem eg hafði gert um
fræðslumál sveitanna árið 1933,
en að öðru leyti var skólinn
byggður samkvæmt lögum um
heimavistarskóla. Fyrst var
byggt skólahús, sem í voru tvær
rúmgóðar kennslustofur og
íbúð fyrir skólastjóra. Sýslan og
ísaf jarðarkaupstaður heimiluðu
skólanum afnot af sundlaug og
heimavistarskálum, en skólinn
tók að sér að sjá um rekstur
sundnámskeiðanna. Að þessum
undirhúningi loknum tók skól-
inn til starfa sem harna og
unglingaskóli haustið 1934.“
Rekstur skólans.
„Skólinn starfaði sem barna-
og unglingaskóli í þrjú ár, eða
fram til 1937 að hann fékk hér-
aðaskólaréttindi með undan-
þágu frá fullum námstíma. Hef-
ir rekstri skólans verið liagað á
])á leið síðan, að okt.-des. og
apríl hefir verið starfandi
harnaskóli fyrir næstu hreppa,
héraðsskóli jan.—marz, en
sundnámskeið liafa verið lialdin
uni tveggja mánaða skeið á
hverju vori, eða frá i maí og
fram í júlí. Auk þess hafa verið
haldin einstök sundnámskeið í
skólanum fyrir sjómenn og
fleiri og ennfremur handa-
vinnunámskeið fyrir konur.“
Verklegar framkvæmdir.
Árið 1935 var byggt stórt hús,
sem var notað fyrir peningshús,
þvottahús og geymslur skólans;
hyggingunni var siðar breytt til
annara nota. Árið 1940 brann
heimavistarhusið. Sama ár var
hyggt nýtt heimavistarhús
37x10 m. ásamt stórum borðsal
og eldhúsi. Einnig var byggt
vandað bátahús það ár. 1942—
43 voru byggð sérstök rúmgóð
skólastjóraíbúð. Jafnframt var
gamla húsinu breytt og þar
gerðir 4 stórir kennslusalir,
kennarastofa og forsalur. Á
þessu thnabili var einnig byggt
leikfimilnis 16x12 m. að slærð
ásamt áhaldageymzlu, búnings-
klefum og böðum. Bólcasafni er
ætlað húsnæði í sömu bygg-
ingu.
Þá var reisl ný bygging við
sundlaugina frá 1925. Þar eru
trésmíðavinnustofa, járnsmíða-
vinnustofa, cfnisgeymzla o. fl.
Uin þessar mundir er verið að
lengja sundlaugina um 20
metra. Verður hún þá alls um
50x12 m. að stærð.“
Ræktun og vegagerð?
„Árið 1936 var bvggð báta-
bryggja og rudd vör. Var þessi
framkvæmd mjög nauðsynleg
þar sem samgöngur við skól-
ann fara svo að segja allar fram
á sjó og fólksflutningaí og aðrir
flutningar eru miklir til skólana
allan ársins hring.
Öll árin hefir verið unnið
mikið að ræktun og fegrun um-
hverfis skólann. Alls Iiafa verið
ræklaðar um 20 dagsláttur.
Landið er yfirleitt mjög blautt
og jarðvegsgrunnt. Hefir þurft
að ryðja mikið grjót úr því
landi, sem Væktað hefir verið og
ræsa það fram svo til allt saman.
Hverahili er afar mikill á allri
landareign skólans og er hitinn
víða um 93 stig. Framan við
skólann er Hveravíkin með
heitum uppsprettum og skerj-
um, sem loka nálega fyrir vík-
ina að austan og að nokkru leyti
að norðan. Er þarna um að
ræða hinn ákjósanlegasta sjó-
haðstað, sennilega hinn bezta á
öllu landinu. Verið er að gera
íþróttavöll rétt hjá skólanum.“
Þegnskapur.
„Eitt af því sem er sérkenni-
legast fyrir Reykjanesskólann
er hin mikla þegnskaparvinna,
sem nemendur slcólans og ná-
grannar hans hafa innt af hendi.
Undanfarin ár hefir verið hald-
inn hér Vordagur Reykjanes-
skólans, en þá koma nemendur
skólans og aðrir unnendur lians
og vinir hér saman og vinna að
einhverju áríðandi verkefni í
skólans þágu. Alls hafa verið
lögð fram i þegnskaparvinnu
um 2370 dagsverk til skólans á
þennan hátt. Hefir verið unnið
að mörgúm verkefnum. Nem-
endurnir hafa og lagt mikið af
mörkum að því leyti um skóla-
tímann. Ef til vill er þefesi þátt-
ur skólalífsins einna mest virði
fyrir nemendurna sjálfa, og
aðra þá aðila, sem þarna hafa
lagt hönd á plóginn. Með þvi að
nemendurnir eigi beinan þátt í
að byggja sinn eigin skóla verð-
ur stofnunin hluti af þeim sjálf-
nm og áhugamálum þeirra. En
á hinn bóginn er ekki að leyna
jivi, að það hefir verið mér stór-
kostlegt gleðiefni, að livernig
])essir hlutir hafa gerzt, eigin-
lega sjálfkrafá, þvi að þegn-
skvlduvinnan hér við skólann
sannar mér betur en noklcuð
annað, að íslenzk æska hýr yfir
miklum þrótti og heilbrigðri
lífstrú, sem okkar unga lýð-
veldi ríður svo mikið á að hún
sýni í verki, þegar hún kemur
út í lífsbaráttuna,“ segir Aðal-
steinn skólastjóri að lokum.
B ö r n,
unglingar og roskið fólk óskast nú
þegar til að bera Vísi til kaupenda.
Gerið svo vel og gefið ykkur fram
við afgreiðslu blaðsins strax.
Leikritið „Ha’nn“ -
hefir nú verið sýnt tvisvar fyrir
fullu hási við ágætar undirtektir.
Leikritið fjallar uni margvísleg
þjóðfélagsfyrirhrigði á vorum dög-
um, drepur á ýmsar stefnur, sem
nú eru uppi, og viðhorf manna eftir
því, hvernig vindurin blæs, — en
að baki eru dýpstu viðfangsefni
mannsandans. Og á öllu þessu er
snert svo léttri hendi, að unun er
að. Meðferðin er Leikfélaginu i hví-
vetna til sóma.
Útvarpið í dag.
Kl. 20.30 Erindi: „Lönd og lýð-
ir“. Svipmyndir úr sögu Póllands
(Knútur Arngrímsson skólastjóri).
'20.55 Hljómplötur: Lög leikin á
balalaika. 21.00 Um daginn og veg-
inn (Sigurður Bjarnason alþingis-
maðuf). 21.20 Útvarpshljómsveitin:
íslenzk þjóðlög í raddsetningu
Sveinbjarnar Sveinhjörnssonar. —
Einsöngur (síra Marínó Kristins-
son): a) Largo eftir Hándel. b)
„Friður á jörðu“ eftir Árna Thor-
steinsson. c) Vögguljóð eftir Sig-
urð Þórðarson. d) „Hátt ég kalla“
etfir Sigvalda Kaldalóns. e) „The
Last Chord“ eftir Sullivan.
Meistarar!
Ungur reglusamur maður,
sem er í húsnæðisvandræð-
um, vill gerast iðnnemi, gegn
því að fá húsnæði. Tilhoð,
merkt: „205“, sendist blað-
inu fyrir þriðjudagskvöld.
Félagslíf
Í.R.-INGAR!
Skemmtikvöld fyrir
félaga og gesti verð-
ur 11. k. fimmtudags-
kvöld i Tjarnarcafé.
Nánar augl. síðar. Skemmti-
nefndin. (375
G LÍMUN ÁMSKEIÐ
fyrir byrjendur hefst
á miðvilcudaginn kem-
ur, 15. þ. m. í íþrótta-
húsi Jóns Þorsteinssonar við
Lindargötu kl. 8. Æfingar verða
á miðvikudögum og laugardög-
um kl. 8 lil 9. Kennari Jón Þor-
steinjsson, íþróttakennari.
Þátttakendur innritast á
skrifstofu félagsins í íþrótta-
liúsinu, opin kl. 8 til 9 á hverju
kvöldi. Glímufélagið Ármann.
(363
1*1
Valur
FIMLEIlvAÆFIN GAR i kvöld
kl. 8,30 e. h. i fimleikasal Aust-
urbæjarskólans. Aðalfundi er
frestað 21. þ. m. (382
m TJARNARBIÖ E1
Sonur Oreifans af
Monte Christo
Louis Hayward
Joan Bennett
George Sanders
Sýnd kl. 5, 7 og 9.
SIÐPRÚÐ og ábyggileg
stéilka getur fengið herbergi
gegn húshjálp. Uppl. í dag kl.
5—7 á Langholtsveg 27. (354
- FERÐAFÉLAG ÍSLANDS
heldur skemmtifund í Oddfell-
owhúsinu þriðjudagskvöldið
14. uóv. 1944. Húsið opnað kl.
8.45. Hallgrímur Jónasson kenn-
ari flytur erindi um byggðir og
fjöll. Dansað til kl. 1. Aðgöngu-
miðar seldir i bókaverzlunum
Sigfúsar Eymundssonar og Isa-
foldarprentsmiðju. (383
BrenslaI
VÉLRITUNARKENNSLA. —
Cecilie Helgason, Hringbraut
143, 4. hæð, til vinstri. (Enginn
simi). (591
Viðgerðir
Saumavélaviðgezðii
Áhersla lögð á vandvirkni og
fljóta afgreiðslu. — Sylgja,
Smiðjustíg 10. Sími 2656. (600
OHðFiiliil
*
SÁ sem Veit hvað varð af
gleraugunum sem tekin voru
um fyrri helgi úr þvóttaklefa 3.
hæð Austurstræti 10, er beðirin
að tilkynna það húsverðinum.
Simi 3041._____ (359
ARMBANDSÚR liefir tapast,
liklega á leiðinni frá Þingliolts-
stræti 28 lil hafnarinnar eða við
höfnina. Finnandi skili því gegn
fundarlaunum til Erlings Arn-
órssonar, Þingholtsstræti 18
(eftir kk 8), ____ (360
ARMBANDSÚR méð svartri
skífu (Aster) tapaðist laugíU'-
daginn 11. þ. m. Finnandi vin-
samlegast geri aðvart í síma
5663.________________(378
HÁLSMEN á gullkeðju, með
Stórum grænum stein tapaðist
í gær á götuin bæjarins eða á
danssýningu Rigmor Hanson.
Skilist á Þórsgötu 19. — Pála
Blandon. Fundarlaun. (365
SlÐASTL. laugardag milli kl.
6 og 7, tapaðist brjóstnál með
gullumgjörð á leiðinni Flóka-
gata—Smiðjustígur. Finnandi
vinsamlega skili henni á Kapla-
skjólsveg 5 (norðurdyr) gegn
fundarlaunum. (394
UNGUR maður óskar eftir
herbergi. Kennsla kæmi til
greina nokkra tíma i viku. Til-
boð, merkt: „Kennari" leggist
inn á afgr. blaðsins. (355
EITT herbergi og eldhús lil
leigu. Fyrirframgreiðsla áskil-
inn. Tilboð, merkt: „Nálægt
miðbænum“ sendist Visi. (358
STÚLKA í fastri alvinnu ósk-
ar eftir lierbergi. Fyrirfram-
greiðsla. Tilboð sendist blaðinu
fyrir föstudag, merkt: „Her-
bergi“. (379
TVÖ herbergi til leigu. Fyrir-
framgreiðsla. Uppl. Hverfisgötu
66, kl. 7—8 síðd. Júlíus Magnús-
son. (381
SAUMAKONA óslcar eftir
góðu herbergi gegn liúshjálp,
þvottum eða saumaskap. Til-
boð, merkt: „Saumakona“ send-
ist Visi fyrir fimmtudag. (376
I4ERBERGI til leigu til 14.
maí. Uppl. Efsta sundi 3, niðri,
eftir kl. 5. (368
PLÁSS óskast fyrir trésmíða-
verkslæði. Tilhoðum sé skilað á
afgr. blaðsins, merkt: „H. A.
1944“. (377
m
■mt
NYJA BIÓ
Æfintýri
prinsessunnai
(Princess O’Rourke)
Fjörug gamanmynd, með:
Olivia de Havilland og
Robert Cummings.
Sýnd kl. 5, 7 og 9.
TILBÚIN amerísk jakkaföt
og yfirfrakkar í fleiri litum,
einnig smokingföt. Klæðaverzl-
un H. Andersen & Sön, Aðalstr.
16. (Axel Andcrsen). (Elzta
ldæðaverzlun landsins). (1
BOKHALD, endurskoðun,
skattaframtöl annast ölafur
Pálsson, Hverfisgötu 42. Simi
2170.___________________(707
SNÍD og niáta kjóla og káp-
ur. Herdís Maja Brynjólfs.
Laugavegi 68. Simi 2460. (178
STÚLKUR vanar saumaskap
óskast. Dömuklæðskeriiin h.f.,
Hverfisgötu 42. (238
HREINGERNINGAR. Sími:
1327. (73
HÚSEIGENDUR! Get bætt
við mig málun. Sími 1327. —.
Hjalti Einarsson. (74
^GÓD stúlka óskast í létta vist.
Þrent fullorðið í heimili. Sér-
herbergi. Uppl. Víðimel 63. (384
GÖÐ stúlka óskast í vist hálf-
an eða allan daginn. Gott kaup.
Lítið herbergi. Uppl. á Lauga-
veg 49, neðstu hæð. (366
STÚLKA óskasl 3 daga í viku
á morgnana. Uppl. Bankastræti
6, efri hæð. ___________(371
VANTAR stúlku, helzt vana
afgreiðslu. Konfektgerðin Fjóla,
Vesturgötu 29. (374
TEIÍ að mér, að hekla smá-
barnaföt. Uppl. i síma 5284. (388
GÓÐ stúlka óskast. Sérlier-
bergi. Uppl. Lindargötu 21. (387
STULKUR óskast við sauma-
skap. Þórður Steindórsson feld-
skeri, Klapparstíg 16. (395
iKAlfPSKAI’M
VANDAÐ útvarpstæki er til
sölu og sýnis. Nönnugötu 8 lijá
Snorra Jónssyni. (372
RUGGUHESTAR. Stórir,
sterldr og fallegir rugguhestar
i ýmsum litum, er bezta leik-
fangið fyrir barnið yðar: Fást
aðeins i Verzl. Rín, Njálsg. 23.
(320
2 DJÚPIR stólar, nýir, til
sölu. Tækifærisverð. Grettisgötu
69, kjallaranum, ld. 5—8 dag-
lega. (337
Allskonar DYRANAFN*
SPJÖLD og glerskilti. Skilta-
gerðin, Aug. Iiákansson, Hverf-
isgötu 41. Sími 4896. (364
ÞVOTTAPOTTUR til sölu. —
Uppl. hjá Auðunni Oddssyni i
Vélsmiðjunni Jötunni. (356
IIAGLABYSSA ásamt skot-
faérum til sölu. Skála nr. 3 A við
Mímisveg kl. 8—10. (357
BUICK-bíltæki til sölu kl.
5—7 Njálsgötu 92. (361
NOKKRIR þvottastampar til
sölu. Verð kr. 25 á staðnum. —
Magnús Th. S. Blöndalil, Von-
arstræti 4B. (362
NÝR vetrarfrakki til sölu. —
Miðtún 22.____________(380
PRJÓNAVÉL. Stór og góð
flatprjónavél til .sölu. — Tilboð,
merkt: „Flatprjónavél“ sendist
Vísi fyrir miðvikudagskvöld.
‘ (370
FORD V 8, ný standsett blokk
(með heddum) til sölu. Uppl. í
sima 4408 til kl. 6 e. m. (364
VÖNDUÐ horðstofuhúsgögn
lil sölu. Njálsgötu 102. -— Simi
4636. • (367
RAFMAGNSVÉL eða gasvél
óskast til kaups. — Uppl. i síma
4163._______________ (369
MÓTATIMBUR til sölu. Uppl.
í síma 1595. (390
2 MIÐSTÖÐVAROFNAR og
miðstöðvareldavél til sölu i dag
lcl. 4—6. Litla blikksmiðjan,
Nýléndugötu 23. (373
KARLMANNAREIÐHJÓL til
sölu, Barónsstíg 18 (trésmíða-
verkstæðin) milli kl. 5—6 í dag.
________________ (386
• LÉTTSALTAÐ trippa og
folaldákjöt einnig nýreykt dag-
lega. Höfum nýja kæfu, tólg og
margt fleira. Von. Sími 4448. —
(385
OTTOMAN og tveir stólar til
sölu, Túngötu 45. , (378
NÝTR dívanar til sölu. A. v. á.
(391
EMAILERAÐUR kolaofn til
sölu. Ennfremur vetrarfraklci á
meðalmann. Uppl. í Bragga 62
við Barónsstíg. (392
TIL SÖLII mjög- ódýrt:
Tvíbreiður ottoman, rúm-
fataskápur, kommóða, klæða-
skápur, Ijósakróna, smoking'
og kjólföt, silfurrefaskinn
uppsett, allt mjög ódýrt. —
Njálsgötu 110. Sími 5489 í
kvöld kl. 5—8. (393
í