Vísir - 30.11.1944, Blaðsíða 1

Vísir - 30.11.1944, Blaðsíða 1
* fcltstjórar: Kristján Guðlaugsson Hersteinn Pálsson Skrifstofun Félagsprentsmiðjan (3. hæð) Ritst|6rar Blaðamenn Slmii Auglýsingar 1660 Gjaldkerl 5 llnur Afgreiðsla 34. ár. Reykjavík, fimmtudaginn 30. nóvember 1944. 243. tbl. 13 skipum Tapana sökkt við Leyte. Bandaríkjamönnum hefir enn tekizt að sökkva.13 skipum fyrir Japönum, er þau voru á leið til Leyte. Talið er að um 4000 manna lið hafi verið á skipum þessum og drukknuðu flestir hermann- anna. Alls telja Bandaríkjamenn að þeir liafi drekkt 21,000 Jap- önum á leið til Leyte. Ilefir ver- ið sökkt 23 flutningaskipum fyrir þeim, auk 17 verndar- skipa. J\y Nokn Rús§a í Ungfvei'jalaodi, Rússar hafa fyrir nokkurum dögum hafið nýja sókn í Suður- Ungverjalandi. Hafa hersveitir Rússa komizt yfir Dóná á 145 km. hreiðu svæði og sótt fram allt að 40 km. leið til horgarinnar Pecs (frh. pets), sem er mikil flutn- ingamiðstöð og kolanámaborg. Þá hafa Rússar og tekið horgina Mohacs (frh. móhats), sem er skammt frá Pecs, og 330 bæi aðra. Nýjar flugmálatilögur Bandarikjamanna. Bandaríkjamenn hafa lagt fram nýjar tillögur á flugmála- ráðstefnunni í Chicago. Tillögur þessar eru þannig, að þar er ekki gert ráð fyrir nein- um hömlum á flugsamgöngum og samkeppni. Er eldd talið sennilegt, að Bretar geti fallizt á þessar tillögur, því að þeir eru andvígir ótakmarkaðri sam- keppni. Noxðmenn granda þýzkum skipum. Norsk herskip hafa gert usla í siglingum Þjóðverja við Nor- egsstrendur. í tilkynningu frá flotamála- ráðuneytinu í gær segir, að norsk skip hafi ráðizt á þýzka skipalest undan Sognsæ og sökkt í stuttri viðureign, tveim flutningaskipum, ef til vill tveim að auki og hæft stórt skip tund- urskeyti. 13 flugmenn granda 15.000 flugmönnum. Þýzka herstjórnin skýrir frá því, að 13 þýzkír flugmenn hafi alls grandað 15.000 flugmönn- um bandamanna. Sumir flugmanna þessara eru fallnir og segir herstjórnin að nokkrir hafi skotið niður yfir 300 flugvélar hver, en áhöfn hinna stærstu er margir menn. Fallhlífalið látið svífa til jarðar í Suð- ur-Þýzkalandi. Allar líkur benda til þess, að bandamenn hafi látið fallhlífa- lið svífa til jarðar í S.-Þýzka- landi. Fregnir hafa borizt um það til Schaffhausen í Sviss, sem er skammt vestan við Boden-vatn (Konstanz-vatn), að sent hafi verið til borgarinnar Imending- en, sem er beint norður af Schaffhausen, mildð Gestapo- lið, SS-menn og sveitir úr þjóð- varnaliðinu þýzka. Á lið þetta að hafa uppi á fallhlífasveitun- um, sem látnar voru svífa til jarðar hjá Imendingen með það fyrir augum, að þær sprengdu upp járnbrautarlínurnar um- hverfis borgina. Hún er talsverð samgöngumiðstöð, því að um hana liggja þrjár brautir. Það gerir Þjóðverjum erfið- ara fyrir í leitinni að fallhlífa- sveitunum, að sumir mannanna eru í SS-búningum. Þjóðverj- um hefir þó tekizt að handsama um 100 menn. 200 norskir flóltamenn í Kiruna. Ekkert lát er á flóttamanna- straumnum yfir til Svíþjóðar frá Noregi. 1 Kiruna í Norður-Svíþjóð eru nú um 200 flóttamenn og eru meðal þeirra margar konur og börn. Meðal flóttamanna, sem kom- izt hafa til Svíþjóðar síðustu vikur, er norskur piltur, sem var að hlaða timbri á vörubíl ásamt tveim bræðrum sínum, þegar þýzkir hermenn og kvisl- ingar komu á vettvang. Sló í bardaga, því- að hermennirnir og kvislingarnir skutu á bræð- urna. Féllu tveir þeirra, er þeir höfðu sjálfir fellt nolckra hinna, en þriðji bróðirinn komst yfir landamærin. Manntjónið við spreng- inguna í Burton- on-Trent. Daily Mail áætlar að um 220 manns hafi beðið bana í spreng- ingunni miklu, sem varð í Bur- ton við Trent á Englandi. Eins og getið hefir verið í fregnum var það sprengju- geymsla flughersins, sem spraklt þarna í loft upp og gizkar Daily Mail á, að flugherinn hafi misst þarna 220 menn. Enn hefir ekki teldzt að ná nema nokkurum hluta líkanna. 9. herinn Itefur nýja sókn. Fræffnr flugmað- ur horfinn. Guy Gibson, einn frægasti flugmaður Breta, er horfinn og talinn af. Það var Gibson, sem stjórnaði árás brezku flugvélanna á Eder- og Möhne-stíflurnar i Yestur- Þýzkalandi og hlaut hann Vikt- oríu-krossinn fyrir, því að hann flaug í liálfan annan tíma fram og aftur yfir skotmörkunum, til þess aS draga aS sér athygli loft- varnaskyttanna í grenndinni. Gibson var aS hinu sama, er hann hvarf. Hann var aS stjórna árás á borgina Rheydt, skammt frá Miinchen-Gladbach í Vestur- Þýzkalandi og flaug miklu lægra en al.lar flugvélar aSrar. Gibson komst ekki heim úr árásinni. Ilann var 26 ára aS aldri. Suðumesjamenn óánægðlr. Mikillar óánægju gætir meðal sjómanna á Suðurnesjum vegna bannsvæðis þess út af Reykja- nesi, sem tilkynnt hefir verið í blöðunum. Nær svæðið yfir öll helztu fiskimið Suðurnesjamanna og er útlit fyrir að ekki velði hægt að stunda sjó þar á næstu ver- tíð, ef ekld fæst breytt. Frá Keflavík róa á þessi mið 40—45 bátar, en af öllum Suð- urnesjum 125—130 bátar á ver- tíð. — Breftar byrja smíði far- þegaflugvéla. Bristol-flugvélasniiðjurnar ensku eru um það bil að byrja framleiðslu á farþegaflugvélum. Flugvélarnar eru með tveim hreyflum og lögð áherzla á, að þær verði ódýrar í rekstri og viðhaldi, sterkar og þægilega búnar fyrir farþegana. Það eru Bristol-smiðjurnar, sem framleiða Beaufighter og fleiri flugvélar, sem hafa reynzt Bretum vel. Breiðfirðingafélagið heldur skemmtifund í Lista- mannaskálanum kl. 8.30. Skemmti- atriöi: Félagsvist og dans. Chnrchill W ára. Milli 40 og 50 bifreiðar hætta akstri vegna hj ólbarðaskorts. Taxti leigubifreiða hækkar um miðjan desember r|*axti á leigubifreiðum í Beykjavík hækkar um miðjan desem- bermánuð næstkomandi, þannig að daggjaldið hækkar úr 15 krónum í 20 krónur á klukkustund. Hér birtist mynd af framhliðinni af liúsi því, er hlaut 1. verð- laun í samkeppni Teiknistofu landbúnaðarins um íbúðarhús í sveit. Næturgjaldið verður 25 krón- ur, en var áður kr. 22.50. Helgi- dagstaxti verður sami og næt- urtaxti. Samkvæmt upplýsingum, sem Vísir fékk hjá Bergsteini Guð- jónssyni formanni Bifreiða- stjórafélagsins Hreyfill, stafar hækkun þessi að verulegu levti af því að bifreiðarnar eru yfir- leitt orðnar stærri nú en þær voru áður. Taka þær flestar 5 farþega í stað 4 áður. Ennfrem- ur hefir kaup bifreiðastjóra hækkað nokkuð. Þá minntist Bergsteinn einnig á erfiðleikana sem stafa af lijól- barðaleysinu. Nú þegar hafa milli 40 og 50 bílar orðið að hætta akstri á bifreiðastöðvum vegna hjólbarðaskorts, og helt- ast æ fleiri úr lestinni með degi hverjum. Ef ekki lætist úr á næstunni er ekki annað fyrir- sjáanlegt en að flestar leigu- bifreiðar verði hættar akstri fyr- ir jól. Nú er liinsvegar von á hjólbörðum á næstunni, og þess þá fyllilega að vænta að leigu- hifreiðarnar beri ekki skarðan lilut frá horði. Undanfarið hafa einstöku hif- reiðastjórar bjargað sér á því að kaupa hjólbarða á svörtum markaði, en þá liafa þeir verið seldir á allt að 1300 krónur hver, í stað 170 krónur eins og þeir hafa kostað áður. Böjrgunaræíingar Sjó- mannaskólanemenda. Að tilhlutun Slysavarnafé- tagsins æfir Jón Bergsveinsson nemendur Sjómannaskólans í allskonar björgunarstarfi, svo sem að skjóta fluglínu o. s. frv. Eru það um 70 nemendur, sem taka þátt í þessum æfing- um og fara þær fram alltaf öðru hvoru. Jón lætur vel af þessum ungu mönnum og segir að það megi mikils af þeim vænta í framtíðínni. Winston Churcliill er 70 ára í dag. Forsætisráðherra Bret- lands varð liann 10. maí 1940 og hefir verið það síðan. Þegar hann tók við völdum gat liann ekki lofað þjóð sinni öðru en „blóði og tárum“, en hann var samt slaðráðinn í því að leiða hana til sigurs í styrjöldinni. Síðan hefir margt breyzt, og þó að styrjöldin sé ekki ennþá til lykta leidd, vonar brezka þjóðin að hún fái notið forustu hins aldna foringja síns unz sigur er unninn. Geymdi 450 krónur í tánni á skónum sínum. I morgun kvað sakadómari upp dóm yfir 18 ára gömlum manni, sem hafði stolið spari- sjóðshók með 800 krónum og falsað úttektarseðla úr henni. Maðurinn var dæmdur í 3 mán- aða fangclsi skilorðsbundið. I gær kvað sakadómari upp annan dóm yfir manni, sem hafði stolið 1500 krónum frá vinkonu sinni. Hlaut liann 3ja mánaða fangelsi sldlorðsbund- ið. Dómurinn var bundinn því skilyrði, að maðurinn endur- greiddi stúlkunni alla þá pen- inga, sem liann liafði tekið. Er hann var tekinn fastur, hafði hann eytt öllum peningunum, nema 450 krónum, sem hann geymdi 1 tánni á öðrum skón- um sínum. Trúlofun. í gær opinberuðu trúlofun sína ungfrú Kristín Jónasdóttir, Vatns- stig 9, og Snorri Guðmundsson, Lindargötu 12. Herir Bandaríkjamaima mæftast. 3. herinn nálgast þrjár mikilvægar borgir. Fólksflutningap hafnap frá Baden j^íundi ameríski herinn hóf sókn í gær norðaustan við Geilenkirchen og tókst að sækja fram rúmlega kíló- metra á breiðu svæði. Svo er að sjá af þessari fregn, sem nokkur hreyting liafi verið gerð á því, hvernig herjum bandamanna er fylkt á þessum slóðum, því að fram til þessa barðist 2. her Breta fyrir austan Geilenkirchen. Það kom alveg á óvart Þjóð- verjum, er 9. lierinn byrjaði á- lilaup sín, því að kyrrð hafði verið á þessum liluta vígstöðv- anna um tíma. Hefir herinn komizt að Roer-ánni á lengra svæði en áður með þessum á- hlaupum. Undanfarnar tvær vikur hefi 9. herinn tekið 52 borgir og þorp í sókn sinni. Allt á floti. Þjóðverjar hafa opnað flóð- gáttir víða í Roer-dalnum, svo að allt má heita á floti og gerir það aðstöðu bandamanna alla mun erfiðari. Víða þurfa þeir að aka um vegi, sem eru á kafi í vatni, en áin er sumsstaðar allt að tveir kílómetrar á breidd, þar sem hún rénnur um flatlendi. I í Þrjár borgir í hættu. Þriðji ameríski herinn heldur áfram áhlaupum sínum inn í Saar-héraðið og í áttina til þess. Hann ógnar nú þrem borgum, Saarbrucken, Saarlouis og Saar- lautern og iiefir þegar tekið nokkrar kolanámur. fbúar rétt sunnan landamær- anna tala þýzku, en blaðamenn segja, að þeir sé tryggir Frökk- um og bandamönnum yfirleitt. Baden hernaðarsvæði. Svissneskar fregnir herma, að Þjóðverjar liafi lýst allt Baden- ríki hernaðarsvæði. Er byrjað að flytja • óbreytta horgara á brott úr stærstu borgunum þar. Baden liggur meðfram Rín fí’á Sviss og norðaustur fyrir Mannheim. Auk þeirra borga eru þar t. d. Karlsruhe, Frei- burg og Heidelberg. Mynd þessi var tekin þegar hersvetir úr 7. og 3. ameríska hern- um mættust í Autun í Frakklandi í haust. Nýr bátur til Keílavíkur. Til Keflavíkur kom í gær- kveldi nýr bátur. Er eigandi hans Albert Bjarnason útgerð- armaður. Nafn bátsins er „Bjarni Öl- afsson“. Hann er 35 smálestir að stærð, smíðaður á Isafirði, Báturinn er húinn 120 hestafla vél og útbúinn bæði fyrir toe og línuveiðar. Vinna við hafnargarðinn i Keflavík heldur áfram, alltaí þegar veður leyfir. Við þa£ verk vinna um 15 manns.

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.