Vísir - 07.12.1944, Side 2
VISIR
DAGBLAÐ
Útgefandi:
BLAÐAÚTGÁFAN VÍSIR H.F.
Ritstjórar: Kristján Gnðlaugsson,
Hersteinn Pálsson.
Skrifstofa: Félagsprentsmiðjnnni
Afgreiðsla Hverfisgötn 12
(gengið inn frá Ingólfsstrœti).
Símar: 166 0 (fimm línur).
Verð kr. 4,00 á mánuði.
Lausasala 35 aurar.
' Félagsprentsmiðjan hi.
Eldhússdagurinn.
Ureingerningin á Alþingi er
“ um garð gengin. Eldhúss-
dagsumræður hafa staðið yfir
í tvö kvöld og verið allt að
því tveimur kvöldum of lang-
ar, sé miðað við málflutning og
málefnagrundvöll. Enginn þing-
flokkanna hefir hreinan skjöld.
Allir hafa þeir gert sitt til að
skapa erfiðleikana og auka á þá.
Nokkrir ræðumenn reyndu að
áfellast fyrrverandi stjórn fyr-
ir það aðallega, að hún hefði
ekki leitað eftir samvinnu við
þingið, — en það var einmitt
það, sem stjórnin gerði, allan
þann tíma, sem hún sat að völd-
um. Hitt var annað mál,/ að
þingflokkarnir möttu ímyndað-
an hag sinn meir en hag lieild-
arinnar og því tókst samvinn-
an ekki, enda reyndist af-
greiðsla sumra þýðingarmestu
mála eftir því.
Kommúnistar ræða um fram-
kvæmdir fyrrver’andi stjórnar í
blaði sínu í gær og telja víti
hennar til varnaðar. Núverandi
stjórn hafi tekið við arfi henn-
ar „og að hún sé ákveðin í að
gera allt, sem í hennar valdi
stendur til að viðhalda þeim
lífskjörum, sem almenningur
býr nú við“. Arfurinn virðist
ekki hafa verið svo liábölvaður,
ef takmark núverandi stjórnar
er það eitt, að reyna að við-
halda þvi ástandi, sem er — þvi
ástandi, sem skapaðist á árun-
um 1941—42 og fyrrverandi
stjórn gat haldið að mestu ó-
breyttu. Oft ratast kjöftugum
satt á munn, og ásakanir Þjóð-
viljans gegn fyrrverandi stjórn
snerust óvart upp í hið mesta
lof, sem vel má við una af þeim,
sem ásakanirnar áttu að bein-
ast gegn.
Jafnframt þessu ræðst Þjóð-
viljinn af harðneskju á einn
fyrrverandi ráðherra fyrir ný-
sköpun, sem hann hefir átt þátt
í, — nýsköpun, sem er lítill
hluti af öllum þeim fram-
kvæmdum og umbótum, sem
hann beitti sér fyrir eða studdi
meðan hans naut við í ráð-
herradómi. öll nýsköpun, sem
eykur atvinnu og á engan hátt
getur talizt skaðleg, er til bóta,
enda hafa kommúnistar viður-
kennt það, með því að hampa
nýskipan sinni framan í þjóð- /
ina eins og kröfuspjaldi í hung-
urgöngunni 1. maí, þegar kröf-
umar hafa verið sem háværast-
ar. Ekki er unnt að lofa það
hjá sjálfum sér, sem lastað er
hjá öðrum, án þess að óeðlilegs
tvískinnungs gæti, jafnframt
eðlilegri tortryggni hjá þeim,
sem á hlýða. Hitt er svo enn
annað mál, að hlutaðeigandi
ráðherra hefir t. d. aldrei orðið
fálkaður í útgerð sinni, eins og
kommúnistar, en enginn mun
virða honum það á verra veg.
Af stjórnarandstæðingum var
ekki mikils að vænta, vegna for-
sögu þeirra, sem er þess eðlis,
að áheyrendur munu ekki geta
hugsað sér þá sem umvandara
eða siðabótamenn, einkum þar
^ sem þessir menn hafa jafnframt
sjálfir sýnt fulla viðleitni til
samneytis við þá floltka, sem
þeir vógu harðast að nú. Að þvi
leyti áttu menn þessir einnig J
óhæga aðstöðu, að stjórnin hef-
Allsherjar íþrdtta-
dagur um land allt.
Tillaga Benedikts Jakobssonar íþróttaráðunauts
Reykjavíkur.
Benedikt Jakobsson íþróttaráðunautur Reykjavíkur hefir komið
fram með þá eftirtektarverðu hugmynd, að stofna til eins
allsherjar íþróttadags um land allt, þar sem keppt yrði í fjóruni
íþróttagreinum.
Hefir Benedikt hugsað sér að koma þessari hugmynd á fram-
færi við Iþróttasamband Islands, og að fá þa.) til að taka þetta
mál á stefnuskrá sína og bera það fram til sigurs, helzt strax
á næsta sumri.
Hugmyndin er sú, að keppt
yrði 1 einni kastgrein, einu
stökki, einu spretthlaupi og
einu þollilaupi. Það, sem fyrst
og fremst vakir fyrir tillögu-
manni er það, að svejtirnar og
dreifbýlið fái að njóta sín í
þessari keppni. Ilugsar hann
sér að hvert íþróttahérað gang-
ist fyrir keppni í þessum grein-
um, hvert hjá sér, og öll á ein-
um og sama degi. Síðan yrði
meðaltalsárangurinn borinn
saman í öllum íþróttahéruðun-
um til að fá rétta mynd af
íþróttagetu og þátttöku hvers
einstaks héraðs.
Nú ber þess hinsvegar að
geta, að bæði er aðstaða til
íþróttaiðkana og eins fólksfjöldi
mjög misjafn í íþróttahéruðun-
um og við það verður nokkuð
að miða úthlutun verðlaunanna.
Mætti hugsa sér að annars veg-
ar yrðu verðlaun veitt fyrir bezt
afrek, miðað við stigatölu, en
hins vegar verðlaun fyrir bezta
þátttöku, í hlutfalli við fólks-
fjölda.
Áþekkt fyrirkomulag hefir
verið tekið upp í Svíþjóð fyrir
allmörgum árum og hefir gefizt
forkunnar vel. Hefir þetta orð-
ið mjög til þess að auka og efla
íþróttaþáttöku og áhuga fyrir
íþróttum í heild. Árangurinn
hefir í stuttu máli orðið sá, að
þúsundir manna hafa tekið að
iðka íþróttir, sern annars hefðu
látið sig þær engu skipta, og
hafa margir þeirra síðar orðið
afburða íþróttamenn. Hitt skipt-
ir þó miklu meira rnáli, að á-
huginn hefir orðið almennari
fyrir íþróttastarfsemi í landinu
og fyrir líkamsmennt almennt.
Þetta sýnir sig m. a. í því, að
nú teljast Svíar meðal mestu
og beztu íþróttaþjóða heimsins,
ef ekki sú langbezta, miðað við
fólksfjölda.
Kostir þessa fyrirkomulags
eru fyrst og fremst fólgnir i
því að skapa dreifbýlinu og fá-
mennari bæjum jafna aðstöðu
•
ir í rauninni ekkert gert enn
til ills eða góðs, enda hefir jafn-
vel lieyrzt, að hún hugsi sér
að hefja umbótastarf sitt rétt
fyrir næstu kosningar, eða jafn-
vel í kosningunum sjálfum, og
fer vel á því að framkvæmd-
in dragist til heppilegs tíma. Ef
til vill yerður engin ástæða til
að ásaka ríkisstjórnina fyrsta
kastið, enda boðuðu kommún-
istar að nýskipuparplan þeirra
yrði ekki framkvæmt á
skemmri tíma en tveim kjör-
tímabilum, — og ætla því að
eiga, lengi sqeti í stjórninni.
Meðan orðin ein liggja fyrir
er ekki heppilegt að dæma um
væntanlegar gerðir stjórnarinn-
ar. Ríkisstjórnin segir, að af-
rekin verði mikil og enginn get-
ur betur um það dæmt en hún
sjálf, til hvers hún geti verið
líldeg. Þá fyrst reynir á kapp-
ann, er á hólminn kemur. Eld-
hússdagsumræðurnar hafa eng-
ar vonir vakið, aðrar en þær,
sem kunna að hafa verið fyrir
hjá einhverjum einstaklingum,
og þær hafa heldur ekki dreg-
ið úr þeim vonum. Umræðurn-
ar voru leiðigjarnar, — minntu
um of á niðurlægingarskeið Al-
þingis, enda áttu sömu menn
þátt í hvorttveggja.
til viðurkenningar fyrir íþíótta-
starfsemi sína. Annars- staðar
er það jafnan .svo, að stsérstu
borgirnar, sem bæði hafa bezt-
um skilyrðum og mestum
mannafla á að skipa, hafa bor-
ið sigur úr býtum í öllum
íþróttakeppnum, og það hefir
oftast dregið úr áhuga minni
bæjanna, sem enga möguleika
hafa til að sigra.
Nú taka árlega fleiri þúsund
manns þátt í þessum allsherjar
íþróttadögum Svía, og þess má
vafalaust' vænta, að ef þessu
fyrirkomulagi yrði komið á hér-
lendis, myndi áhugi almennings
vaxa til mikilla muna um land
allt. Þess vegna þarf að vinda
bráðan bug að því að koma
þessu máli í framkvæmd.
Iðnskólinn íær tvær
nýjar kennslustofur.
Iðnskólinn hefir átt við mikla
húsnæðisörðugleika að stríða í
vetur, eins og undanfarna vet-’
ur. Skólinn er nú starfræktur
á fimm stöðum í bænum, og
veldur það ýmsum erfiðleikum,
eins og að líkum lætur.
I haust var hafizt handa við
að liyggja bráðabirgðabyggingu
við hús skólans í Vonarstræti,
og bætast þar tvær nýjar
kennslustofur við. Viðbótar-
bygging þessi átti að verða til-
búin 1. desember s.l., en fram-
kvæmdum hefir nú seinkað svo,
að hún verður ekki tilbúin fyrr
en um eða eftir áramót.
Happdrættis-vinningar,
sem upp komu á hlutaveltu
Kvennadeildar Slysavarnafélagsins
sunnudaginn 3. des.: 19781 Flug-
ferfi til Akureyrar, 21878 Flug-
ferÖ til ísafjarðar, 28022 Ferð meÖ
Esju til Akureyrar á 1. farrými,
29687 Tonn af kolum, 1404 toonn af
kolum, 4855 tonn af kolum, 16666
tonn af kolum, 24098 hálft tonn- af
kolum, 1016 Flerra-frakkaefni,
25233 Karlmanna-fataefni, 18379
Permanent, 24846 Permanent,
10875 Hveitipoki '50 kg., 10544
Islenzkir sjómenn
sæmdir brezku
heiðursmerki.
Björguðu skipbrots-
mönnum í fárviðri.
Á laugardag afhenti brezki
sendiherrann, herra Gerald
Shephard, þremur Islendingum
„British Empire“ orðuna, fyrir
björgun brezkra sjómanna úr
sjávarháska. Orðuna hlutu þeir
Einar Jónsson hafnsögumaður,
Björn Guðmundsson skipstjóri
og Jón Axel Pétursson hafn-
sögumaður.
I ræðu, er senidherrann hélt
við þetta tækifæri, skýrði hann
svo frá atvikum, að s.l vetur
strandaði herskip við Lundey i
myrkri og versta veðri. Gerði
brezkur dráttarbátur nokkrar
tilraunir til að koma skipverj-
um til hjálpar, en varð jafnan
að snúa aftur, því að veðurofs-
inn var afskaplegur, vindhraði
128 km. á klukkustund.
Skömmu síðar létti ofurlítið
og fór þá dráttarbáturinn á
vettvang aftur og sást þá skips-
böfnin af hinu strandaða skipi
i Lundey. Er þetta var tilkynnt,
fór íslenzki dráttarbáturinn
Magni á vettvang, en þá var
ekki viðlit að komast upp í eyna
til Iilés við liana. Var ákveðið
að varpa akkerum áveðurs við
skipsflakið, nálæ^t rifinu, og
senda bát á land áftur aLMagna
í skjóli hans. Voru tvær ferðir
l arnar og öllum mönnum bjárg-
að. —
Einar Jónsson hafnsögumað-
ur stjórnaði bátnum, sem bjarg-
aði mönnunum í 80 km. vind-
hraða; var það algerlega hug-
rekki hans og leikni að þakka.
Skipstjórinn á Magn, Björn
Guðmundsson, sýndi mikið
hugrekki við stjórn á skipi
sínu. Sker voru þarna 90 metra
frá skut og 45 metra frá stefni,
og lagði hann því i mikla hættu
með því að leggja svo nærri, að
hægt væri að koma taug frá
björgunarbátnum í land.
Jón Axel Péytursson hafn-
sögumaður sýndi einnig mikið
hugrekki við skyldustörf sín.
Dömukápa, 4269 Dömukápa, 1226
Dömu-gullúr, 13322 Herra-stálár,
4256 Dömu-dragt, 24011 Dömu-
veski, 12461 Dömuveski, 24628
Dömuveski, 10461 TeborÖ, 7608
Sólgler, 11312 Rafmagnsmótor,
6120 Standgrammófónn með plöt-
um, 20614 100 lítrar af benzíni. —
Vinninganna skal vitjað á skrif-
stofu félagsins.
r
o4 kiíif&Mwum.
Úr herbúðum blaðanna
Alþýðublaðið, 2. des.
(Ályktanir Alþýöufliokksþings) :
„2. AS hin stórvirkustu at-
vinnutæki verði starfrækt nfeð
hagsmuni þjóðarheildarinnar fyrir
augum og þá sérstaklega á sviði
sjávarútvegs og vinnslu sjávaraf-
uröa, og gætu þar komiö til mála
eftirfarandi rekstrarform, eftir þvi
hvað bezt þætti eiga við og fram-
kvæmanlegast væri:
a. Ríkisrekstur.
b. Atvinnurekstur bæja, sveita
eða sýslufélaga.
c. Rekstur á sama grundvelli
og starfsemi Síldarverksmiðja
ríkisins.
d. Samvinnufélög er störfuöu
samkvæmt löggjöf, er sett yrði um
samvinnufélög til útgerðar eÖa iðn-
aðar.
e. Samvinnufélög ríkis-, bæja-,
sveita-, sýslufélags og einstakra
manna eða félaga.“
(Þetta virðist vera stefna Al-
þýðuflokksins í útvegámálum. At-
vinnurekstur einstaklinga á að úti-
loka en þeir eiga að fá leyfi til að
leggja fé i sameignaHélög ríkis og
bæja. Þetta er endurbætt útgáfa á
stefnu stjórnarinnai; og þá líklega
það sem Alþýðufl. ætlar að setja
sem skilyrði fyrir áframhaldandi
samvinnu).
★
Dagur, 30. nóv.
(Hækkun mjólkurverðs) :
„Eyfirzkir bændur höfðu vænzt
þess, eftir að Búnaðarþing háfði
gert sína mikilvægu samþykkt, að
stéttir þjóðfélagsins tækju hönd-
um saman um lækkun dýrtíðarinn-
ar í landinu, en þetta fór því miður
á annan veg. Framlag bænda til
lækkunar á hinni síauknu dýrtíð
hefir verið einskis virt, þar sem
nýjar kauphækkanir við ýmsar at-
vinnugreinir í landinu halda áfram
eftir sem áður.
Eyfirzkum bændum hefir nú
síðasta mánuðinn orðið það ljós-
ara en áður, að viðleitni þeirra til
þess að draga úr hinni vaxandi
dýrtíð hefir ekki mætt þeim skiln-
ingi iog samúð, sem' þeir gerðu sér
vonir unr hjá öðrum stéttum þjóð-
íélagsins, þess vegna sjá þeir ekki
ástæðu til að halda áfram að selja
mjólk sína lægra verði hér á Akur-
eyri en gert er í öðrum bæjum
landsins."
(Þetta mundi líklega eiga frekar
að kallast „samræming“ en verð-
hækkun!)
Dömublússur
frá 27 kr.
Erla,
Laugaveg 12.
Brandur Brynjólfsson
lögfræðingur
Bankastræti 7
Sírni 5743
r
Scrutator:
TlcucLdih oÉmjmnwtyS
Smjöreklan og rekasmjörið.
Fregnin, sem Vísir birti i gær um
uppboðið á rekasmjörinu, sem
fannst hér úti á flóanum um helg-
ina, vakti að vonum mikla athygli
og merk húsmóðir hér í bænum
hringdi til mín seinna um daginn
til þess að koma á framfæri skoð-
un sinni í þessu máli.
Hún er alveg á móti því, að glík
aðferð og þarna átti sér stað sé
við höfð við sölu á þessari vöru,
þegar skortur er svona mikill á
henni og þeir einir geta brugðið
sér á uppboðið, sem hafa bíla til
umráða og nægan tíma. Hún vill
að hið opinbera haldi ekki uppboð
á slíkum reka, heldur greiði sann-
! virði fyrir hann og taki upp skömmt-
j un á honum.
| Mörguin mun hafa brugðið í
: brún við það, að smjörið skykli
vera seít á uppboðinu við meira
! verði en hámarksverði, en úr því
að það var á annað borð boðið
| upp, þá var náttúrlega ekki gott,
, til gerðar fyrir uppboðshaldarann
að segja hingað og ekki lengra, þeg-
ar komið var upp í hámarksverðið
og margir kepptust um að bjóða í.
Skömmtunin.
Um hitt atriðið, skömmtunina,
skiptir allt öðru máli, því að hún
er svo sjálfsögð, að hún hefði átt
að vera komin á fyrir löngu. Und-
anfarna daga hafa blöðin farið lof-
samlegum orðum um skömmtun þá,
sem tekin hefir verið upp á smjöri
norður á Akureyri og er það að
vonum. Þar var komið sama öng-
þveitið og hér í bæ og það ráð því
tekið, að reyna að koma lagi á
hlutina í stað þess að láta allt reka
á reiðanum.
Það er lítill vafi á því, að hægt
er að framkvæma skömmtun hér,
ef viljinn er fyrir hendi. Á honum
hefir bara ekki bólað hingað til, en
nú má ekki lengur svo til ganga.
Eggjaskortur.
En það er skortur á ýmsu fleira
en smjöri og rjóma, því að eggja-
skortur hefir slegizt í hópinn við
skort annarra lífsnauðsynja. Það
má heita hreinasta tilviljun,,ef hægt
er að fá egg í verzlunum, því að
það litla, sem þangað berst, er rif-
ið út á svipstundu og sv,o ér sami
skorturinn eftir sem áður.
1 bréfi, sem eg hefi fengið frá
„II. S.“, er borin fram uppástunga
um það, að gerð verði gangskör að
því að uppræta „svarta markaðinn“
á eggjasölunni með því t. d„ að
ekki verði selt hænsnafóður til ann-
arra en þeirra, sem selja framleiðslu
sína að öllu leyti á opnum markaði.
Með því einu móti muni verða
hægt að uppfæta þessa .plágu.
Hernaðarvísindi.
Tveir hinna þekktari hernaðar-
sérfræðinga í hópi Reykvíkinga
hittust á förnum vegi á dögunum
og fóru þegar að tala um striðið.
Þeir voru ekki sammála, fremur en
venjulega. A héltþví fram, að Þjóð-
verjar teldu sér liag í því að draga
stríðið á langinn, en B. hélt því
frain, að það væri þeim mjög á
móti skapi.
„Hvers vegna heldur þú það?“
spyr A.
„Það er ofur einfalt málj“ segir
B„ „því að hver dagur, sem stríð-
ið dregst á langinn, tefur fyrir því,
að þeir geti byrjað það næsta.“
Ársþing Í.R.R.:
Gunnar Steindórsson
kosinn formaður.
Ársþingi Iþróttaráðs Reykja-
víkur lauk á mánudagskvöld.
Nefnd sú, er kjörin var til að
atlmga tillögur ráðsins að nýj-
um starfsreglum, skilaði áliti,
og var það samþykkt með litl-
um breytingum.
Næst fór t fram kjör for-
mannsefna. F'Iest atkvæði hlaut
Gunnar Steindórsson, og verð-
ur hann væntanlega skipaður
formaður ráðsins af stjórn I.S.I.
— en formaður er fulltrúi I.S.l.
i ráðinu, þótt ársþing I.R.R. til-
nefni hann.
Næst voru umræður um ýms
mál. M. a. skilaði nefnd áliti um
prófraunir á dómaranámskeið-
um, sem hún lagði til að vísað
yrði til I.S.I., þar sem sam-
handið ætti að láta semja slík-
ar prófraunir.
Fulltrúar félaganna í ráðinu
næsta ár verða þessir: Jóhann
Bernhard (K.R.), Guðmundur
Sigurjónsson (Ármann), Sigur-
páll Jónsson (I.R.) og Helgi Sæ-
mundsson (Umf. Reykjavíkur).
Erlendur Pétursson var for-
seti þingsins og fórst honum
þpð skörulega úr hendi, svo
sem vænta mátti.
Ungbarnavernd Líknar
Templarasundi 3, er opin þriðju-
daga, fimmtudaga og föstudaga kl.
3.15—4 e. h. Fyrir barnshafandi
konur mánudaga og miSvikudaga
kl. 1—2 e. h. Börn eru bólusett
gegn barnaveiki á föstudögum kl.
5—5.30 e. h. Hringið fyrst í síma
5967 kl. 9—10 f. h. samadag.
Vetrarfrakkar,
Klýir og vandaðir.
Vigfús Guðbrandsson
&Co.
Austurstræti 10.
GÆFAN FYLGIR
HRINGUNUM FRÁ
SIGURÞÓR
Hafnai'stræti 4.
Bridgebókin
eftir
tty
(ÍUjuZkuCfá&jU
fæst í næstu bókabúð.
Lærið að spila
Bridge.
5 herbergi
fyrir einstaklinga, þar af
tvær stórar stofur samliggj-
andi, til leigu nú þegar. —
Fimm ára leiga og talsverð
fyrirframgreiðsla. Lysthaf-
endur leggi nöfn sín í lokuðu
umslagi á afgreiðslu Visis
lyrir fimmtudagskveld,
merkt: „5 herbergi.“
Sandcrépe
svart, hvítt og blátt.