Vísir - 14.12.1944, Síða 1

Vísir - 14.12.1944, Síða 1
* Wtstjórar: Kristján Guðlaugsson Hersteinn Pálsson Skrifstofur: Félagsprentsmiðjan (3. hæð) RitstJ6rar Blaöamenrv Slrnli Auglýsingar 1660 Gjaldkerl 5 llnur Afgreiðsla 34. ár. \ Reykjavík, fimmtudaginn 14. desember 1944. 254. tbl. For§etinu Nkoðttr ltoka*,viiin:£im:i. Á mýndinni er forseti Islands að skoða sýningardeild Isafoldar- prentsmiðju, en svo sem kunnugt er stofnaði faðir forsetans, Björn Jónsson ráðherra, prentsmiðjuna og forlag hennar. Hjá forsetan- um stendur sýningarnefndin, e’n hana sltipa Pétur Ólafsson, Gunn- ar Einarsson og Ragnar Jónsson. Myndirnar á veggnum eru af Birni ráðherra Jónssyni og Ólafi Björnssyni ritstjóra. Seðlaveltan 156,2 millj. kr. Samkvæmt upplýsingum Lahdsbankans er seðlaveltan núna 156 millj. og 630 þús. ' Á sama tíma í fyrra var seðla- veltan 132 millj. 270 þús., svo að aukningin nemur rúmum 24 rnillj. kr. Búast má við aukn- ingu ennþá fyrir jólin vegna jólainnkaupa. Félagi tsienzkra hjúks- unarkvenxta berasi stórgjaíir. Á 25 ára afniæli Félags ís- lenzkra hjúkrunarkvenna, i s. 1. mánuði, bárust félaginu eftir- taldar gjafir: Til Félagsheimil- is íslenzkra hjúkrunarkvenna frá frk. Önnu Ólafsdótur, yfir- hjúkrunarkonu, Vífilsstöðum, 1000 kr., og frá ónefndum vel- unnara stéttarinnar, 5000 kr. Tií Minningargjafasjóðs Guð- rúnar Gisladóttur Björns, til styrktar veikum hjúkrunarkon- um, 500 kr. Hitaveítsageyimii bilar. Er kominn í kg aíiiisr. í fyrrakvöld bilaði hitaveitu- geymir í öskjuhlíðinni, og er það annar geymirinn sem taka verður úr sambandi á skömm- um tíma. Var hann Iekur og var farið inn í hann í fyrrakvöld til þess að athuga bilunina. I gær var hann svo tekínn úr sambandi á meðan viðgerð fór fram. Er nú búið að fylla hann að nýju og i dag eru allir geymarnir í gangi. Nú er hitaveitan byrjuð að loka fyrir vatnið á einstöku stöðum, aðallega í stórhygging- um. Enfremur er um þessar mundir verið að alhuga mögu- leikana á að 'kynda þessi stór- hýsi upp á meðan heita vatnið er tekið af þeim. Þessa dagana hefir enn auk- izt vatnsrennslið á Reykjum um 4]/> sekúndulítra. ,Er von til þess að með aukinni borun megi enn takast að auka það til veru- , legra muna. Bevin ver Churchill. Nauðsynlegt, aö leggja byssurnar til hlidap og ístjópnast af heilbrigöri skynsemi. ■ ||evin verklýSsmálaráSherra 1 flutti ræSu í gær á árs- j þingi brezku verkalýSsfélag- anna og sagði að stríSsstjórn- m brezka hefSi tekiS allar á- kvarSanir semustu 4 ár, varS- andi hernumdu löndin, en ekki Churchill einn, og er hann liti um öxl, gæti hann ekki séS, aS neinar rangar á- kvarSanir hefSu veriS teknar. Bevin kvað það alrangt að á- fcllast Churchill fyrir ráðstaf- anirnar varðandi Grikkland. Stríðsstjórnin hefði rætl þær á- kvarðanir sem aðrar. Bevin á- sakaði leíðtoga skæruliða fyrir að ganga á bak orða sinna. Bevin kvað brezku stjórnina aldrei hafa áformað að taka ráð- in af grísku þjóðinni, — það hefði alltaf verið markið, að hún tæki sjálf ákvarðanir um fram- BEVIN verkalýðsmálaráðherra. tíðina, þegar búið væri að leggja byssurnar til liliðar, og tryggt væri að heilbrigð skynsemi fengi að ráða. Laugarnesskólinn hefir feng- ið nýjan 24 sæta bíl frá Amer- íku til að sækja og flytja börn þau í skólahverfinu, sem lengst eiga til skólans að sækja. Það er ennfremur ráðgert að bíll þessi verði notaður til að flylja skólabörn burt úr bæn- um um helgar, í skíðalönd og aðra þá staði sem hentugt þj'kir að fara. Undanfarið hefir Reykjavík- urbær látið skólanum í tó al- menningsbifreið tilþessaðsækja og flyíja börn í Laugarnesskóla- hverfi.. En sá hængur hefir ver- ið á, að hifreiðin hefir ekki staðið börnunum til boða um helgar. Bundust kennarar Laugarnesskóla því samtökum um að stofna sjóð til bifreiða- l^aupa og hafa skólabörnin einnig átt nokkurn þátt í fram- lögum til sjóðsins. Er árangur þessarar sjóðstofnunar nú kominn í ljós með hinni nýju bifreið, sem tekizt hefir að út- vega frá Ameríku. Hörð átök á vesturvíg^ stöðvunum. Fyrsti Bandarkjaherinn hóf miklar árásir í gærmorgun snemma suðvestur af Diiren. Sótt var fram frá Hiirtgen- skógi og sóttu Bandaríkjamenn fram hálfan annan kílómetra fyrstu 3 • ldukkustundirnar. Þjóðverjar sprengdu i loft upp brú á Roer-ánni, sem mun hafa stiflast í hili. Flæddi vatn yfir allstórt svæði og m. a. inn i þorp nokkurt, sem barist var i. — Á Saarvigstöðvunum var áfram- hald á hörðum bardögum í gær. Þjóðverjar fluttu i skyndi skriðdrekasveitir til Selztvíg- stöðvanna í Norðaustur-Elsass, en Bandaríkjamenn voru komn- ir inn í þann bæ í fyrrakvöld. í sumum fregnum var sagt, að þeir hefðu tekið hann. í loftárásunum á Essen og Osnabruck í fyrrakvöld og Witten í fyrradag misstu Brelar 13 sprengjuflugvélar. Ellefu þýzkur flugvélar voru skotnar niður. í síðari fregnum segir að Bandarikjamenn liafi sótt fram 3.2 kílómetra frá Selz og hafi í gærkveldi verið 6—7 kílómetra frá Rín. — Þýzku hersveitirnar, sem fluttar voru til þess að stemma stigu við framsókn hersins, börðust áður við her- sveitir Paltons á Saarvígstöðv- unum. — Þar er enn barizt af j mildum ákafa og m. a. i útjaðri j Saarlautern. I Varnarlið Þjóðverja í sein- asta stóra virkinu við Metz hef- ir gefizt upp. Terje Wold dómsmálaráð- herra norsku stjórnarinnar lel- ur nauðsynlegt, að sótt verði einnig að Þjóðverjum af sjó úr vestri, til þess að endir verði bundinn sem fyrst á hörmungar norsku þjóðarinnar. Rú§§ar nelta EILtAS- mönnnm niti aðstoð. Úrval íslenzkra þjóðsagna í skrautútgáfu. Semur í bóltaveE zlani á laugard. Afstaða Rússa til ELAS-flokkanna hefir verið óljós til þessa. J| laugardaginn kemur út ein fegursta 'og vandaðasta bók, sem enn hefir sézt á þessu ári, en það er úrval íslenzkra þjóðsagna, valið af dr. Einari Ól. Sveinssyni, og með fjölda teikninga eftir íslenzka listamenn. Leiftur h.f. gefur bók bessa út. Heiti bókarinnar er „íslenzk- ar þjóðsögur og ævintýri“. Hún er um 500 að stærð í stóru broti og prentuð á mjög fallegan pappír. Um sjötíu teikningar prýða bókina eftir kunna ís- lenzka listamenn, en þeir eru: Ásgrímur Jónsson, Eggert Guð- mundsson, Eggert Laxdal, Ein- ar Jónsson, Guðmundur Thor- steinsson, Jóhannes Kjarval, Kristinn Pélursson og Tryggvi Magnússon. Þá hefir Hafsteinn Guðmundsson teiknað upphafs slafi í bókina, og eru þeir prent- aðir i litum. Framan við bókina er ein litmynd eftir málverki Ásgríms Jónssonar: Nólttröllið. Bókinni er skipt í 12 megin- þætti: Huldufólkssögur,' Sæbú- ar, Tröll, Draugar, Ófi’eskisgáf- ur, Galdrar, Ur náttúrunnar ríki, Helgisögur, Úr sögu lands og lýðs, Útilegumenn, Æfintýri og Gamansögur. Dr. Einar skrifar bi’áðsnjallt forspjall að bókinni og liann i'itar einnig eftirmála að henni. í upphafi forspjalls síns kemst dr. Einar svo að orði: „Ekki væri sá maður alls ófróður um íslenzka menningu fyrr á öldum, sem vel þekkti íslenzkar þjóð- sögur, þótt hann hefði engin sagnai’it lesið um þann tíma. Ver'a má, að myndin, sem hann fengi af henni væi’i ekki að öllu í réttum litum, hann mundi mikla fyrir sér hjátrúna, sjá drauga og sendingar miklu víð- ar en þeirrar tíðar menn gerðu. En allur þorri þjóðsagnanna ségir frá yfirnáttúrlegum hlut- um, það er þeiri’a eðli og efnis- val, og mei’ki þess hlýtur niynd- þeirra af menningunni að bera, en þrátt fyrir það er hún bæði viðfeðm og djúp.“ Þjóðsögur Jóns Árnasonar eru óneitanlega perla íslenzkra þjóðsagnabókmennta, en þær eru nú ófáanlegar með öllu og ekki vitað hvenær þær verða gefnar út að nýju. En nú fyllir þetta safn dr. Einars að veru- legu leyti upp 'í þetta skarðó enda eru þjóðsögur Jóns uppi- staðan í þessii úrvali, svo sem hlaut að vera. Þarf því tæpléga að efa að engin íslenzk bók verð- ur almenningi kæi’komnari en þetta gullfallega úrval dr. Ein- ars. Leiftur h.f. á sérstakar þakkir skilið fyi’ir óvenjulega vandað- an og fallegan frágang á ritinu. Háskólafyrirlestur. Á morgun flytur Mme' de Brésé fyrirlestur á frönsku í i. kennslu- stofu Háskálanas kl. 9 e. h. Efni: Le spiritualisme dans l’oeuvre de Victor Hugo. Tjarnarbíó sýnir núna kvikmyndina „Henry eltir drauga.“ Aðalhlutverk leikur Jimmy Lydon. * Kanadamenn í sókn milli Faenza og Adriahafs. Bardagar hafa harðnað mikið á vígstöðvunum milíi Faenza á Ítalíu og Adriahafs. Það eru kanadiskar hersveit- ir, sem nú bera hita og þunga dagsins í bardögunum þarna. Hafa þær rutt sér braut inn í aðalvirkjakerfi Þjóðverja, eftir að hafa farið yfír Lamone í skjóli mikillar stórskotahríðar. Gerðist þetta í fyrrinótt. Sótíu Kanadamenn frani næstum fimm kílómetra, en Þjóðverjar tóku sér stöðu við á nokkru norðar. Sprengjuflugvélar og orustuflugvélar gerðu árásir á lið og stöðvar Þjóðverja. Margir skriðdrekar voru cvðilagðir fvr- ir Þjóðverjum, m. a. tígris- skriðdrekar. Kanadiskar hersveitir sem fóru yfir Lamone á tveimur : töðum liafa sameinazt og sækja nú fram á 10 kílómetra víglínu. Þær tóku 300 þýzka h§rmenn höndum i gær. Suðaustur af Bologna lirundu hrezkar hersveitir árásum Þjóð- verja. Þýzkir blaðamenn og sendisveitarmenn dæmdir til lífláts. Þýzkur dónistóll hefir dæmt lil lífláts tvo þýzka blaðamenn, sem báðir störfuðu i Fiijnlandi, annar fyrir Mamhurger Frem- denblatt. Hann hafði gagnrýnt framkomu Þjóðverja í Finn- landi. Þá hafa tveir þýzkir sendi- sveitarstarfsmenn í Svíþjóð ver- ið dæmdir til lífláts. Þeir sögðu skilið við nazista og sögðu af sér störfum og fóru fram á, að fá leyfi til landvistar í Svíþjóð. Dómstóllinn fann alla þessa menn seka um landráð. Skátar! Piltar og stúlkur, mætið í kvöld kl. 7.30 við Yegamótastíg, iti'l söfnunar fyrir Vetrarhjálpina. Verið vél og hlýtt búin. Aukaskammt af kaffi og sykri fær fólk fyrir jólin. Verður úthlutað 240 gr. af brenndu kaffi, eða 300 gr. af ó- brenndu, út á stoínauka nr. 7, og ennfremur 500 gr. af sykri út á stofnauka nr. 8 með núgildandi matvælaseðlum. Vetrarhjálpin. í kvöld frá kl. 8—11 munu skát- arnir heimsækja í Mið- og Vestur- bænum, Skerjafirði og Seltjarnar- nesi. Heitir Vetrarhjálpin á íbúa i þessum hverfum að taka vél á rnóti skátunum nú eins og á undanförn- um árum. préttaritari United Press í Aþenu, Earl Roper, sím- aði þaðan í morgun, sam- kvæmt áreiðanlegum brezk- um heunildum þar í borg, að rússneska stjórnin hefði synj- að beiðni frá leiðtogum ELAS- skæruflokkanna um aðstoð. í stað þess hafa Rússar ráðlagt þeim, að hætta þegar í stað bardögum. Fregn þessi vekur mikla at- hygli, því að mikið héfir verið um það rætt hvort kommúnistar í Rússlandi stæðu á bak við kommúnista Grikklands, eða hinir síðarnefndu væru að gera byltingu algerlega á eigin spýtur og er nú ljóst, að ráðstjórnin rússneska vill að minnsta kosti ekki láta bendla sig við byjtingu þeirra. Vatnsskömmtun í Aþenu. — Afram- hald á bardögum. I Aþenu var harizt allmikið í gær. Skæruliðar gerðu tvær árásir snemma morguns, en tókst ekki að sækja fram. — Brezkar hersveitir eru farnar að láta allmikið til sín taka. Þær hafa tekið mikilvægar stöðvar í borginni og indverskar her- sveitir hafa hrakið skæruliða af Piræus-tanganum. Vatn er mjög af skornum slcammti i borginni og hefir ver- ið tekin upp vantsskömtun, þar sem Bretar ráða og gríska stjórnin. Brelar ráða yfir all- miklum vatnsbirgðum. Matarskortur er mikill i borg- inni og flestir borgarbúa svelta hálfu hungri. Geipiverð er á matvælum. Skæruliðar ruddust’í .gær inn í hermannaskála, sem eru í liálfs kílómetra fjarlægð frá bústað hrezka sendilierrans. Síðdegis voru skæruliðar hraktir þaðan. Skæruliðar fengu í gær liðs- auka. Útvarpsstöðin í Aþenu er á valdi skæruliða og var útvarpað þaðan tilkynningum i gær í nafni hins frjálsa Grikklands. Var skorað á alla Grikki að talca þatt í baráttu skæruliða. Tjón Breta í Grikklandi. Eden utanríkisráðherra Bret- Jands hefir svarað fyrirspurn í neðri málstofunni um tjón það, sem Bretar hafa orðið fyrir í styrjöldinni í Grikklandi. Eden kvað manntjón Breta um 10.000, fallnir, særðir og teknir höndum. Bretar liafa misst þar um 500 flugvélar, 5 beitiskip, 13 tund- urspilla, 3 kafbála og 48 önnur herskip, en flutningaskip sam- tals 120.000 smálestir. Þrjú or- ustuskip löskuðust.

x

Vísir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.